Skotinn Andy Cunningham skipar sérstakan sess í enskri knattspyrnusögu. Hann spilaði nefnilega sinn fyrsta leik þegar hann var orðinn 38 ára og tveggja daga gamall. Þá lék hann fyrir Newcastle United og hvorki fyrr né síðar hefur eldri leikmaður náð því að leika sinn fyrsta leik þar í landi.
Andy var keyptur frá Glasgow Rangers á 2300 pund og varð hann fyrsti stjóri Newcastle United. Hann varð einnig fyrsti spilandi framkvæmdastjórinn í efstu deild ensku knattspyrnunnar. Árið 1930 var knattspyrnan farin að taka hægfara breytingum og menn smám saman að komast á þá skoðun að best færi á því að hafa karl í brúnni sem sæi um leikmennina og liðið. Andy hafði verið hjá Magpies í tæpt ár þegar hann var skipaður stjóri. Hann var ekki enn orðinn fertugur og því má segja að það hafi verið djörf ákvörðun að skipa svo ungan stjóra.
Lið Magpies hafði orðið deildarmeistari árið 1927 en síðan hefur titillinn ekki unnist á Tyneside. Liðið var á niðurleið og Cunningham var ætlað að rétta skútuna við. Það reyndist erfitt enda voru allar helstu hetjurnar farnar frá félaginu, menn á borð við markanagginn Hughie Gallacher. Cunningham stóð sig vel við erfiðar aðstæður og hreint ótrúlegt að honum skyldi takast að koma Newcastle í bikarúrslitaleikinn árið 1932. Þar lagði Newcastle lið Aston Villa á Wembley. Tveimur árum síðar gekk allt á afturfótum og Newcastle féll úr efstu deild, í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það þótti afar slæmt enda var hópurinn þéttur þrátt fyrir að stjörnurnar skorti.
Cunningham fór frá Newcastle í maí 1935 en síðar átti hann eftir að stýra liði Dundee í Skotlandi. Hann lést í maí 1973.
|
Stjóraferill |
|
FÉLAG |
BYRJAR |
HÆTTIR |
LEIKIR |
SIGRAR |
JAFNTEFLI |
TÖP |
|
NEWCASTLE |
1.1.1930 |
31.5.1935 |
251 |
105 |
45 |
101 |
Heim
|