Arthur hafði ekki lánið með sér í boltanum. Hann var fæddur í Southall og gerði atvinnusamning við Coventry City. En áður en hann spilaði fyrsta leikinn varð hann fyrir því óláni að fótbrotna og gat því ekki spilað. Hann tók til við þjálfun þess í stað og var hjá Coventry, Walsall, Aston Villa, Preston, Halifax og Sunderland. Þar næst lá leið til Galatasaray í Tyrklandi en síðan kom hann heim og gerðist framkvæmdastjóri Chesterfield í október 1976. Þar skilaði hann góðu starfi og var kominn í virðingarsess.
Arthur tók við Newcastle í septemberbyrjun 1980. Liðið var þá í afar slæmum málum og verkefni nýja stjórans mjög erfitt. Áhorfendum var farið að fækka og sess félagsins sem eins af stóru klúbbunum í hættu. Cox átti erfitt uppdráttar framan af. Hann fékk ákaflega lítið fjármagn en þrátt fyrir það vann hann gott starf.
Mesta afrek Arthurs í stjórastólnum var að næla í Kevin Keegan frá Southampton. Það var árið 1982 og Keegan kom svo sannarlega með nýtt blóð inn í liðið. Segja má að aldrei fyrr hafi svo stór knattspyrnustjarna verið fengin til félagsins. Og lið Arthurs lék glimrandi skemmtilegan fótbolta. Þeir Keegan, Chris Waddle og Peter Beardsley fóru á kostum og aftur lá leiðin í efstu deild. Þannig reyndist Keegan vítamínssprautan sem Newcastle United og Arthur Cox þurftu á að halda. Þó að ekki væri fyrir annað en að koma á hinu ómótstæðilega ástarsambandi Keegans og Geordie fólksins á Cox heiður skilinn. Það ástarsamband átti eftir að verða mikilvægara fyrir framtíð Newcastle United en nokkurn hefði getað órað fyrir.
Útlitið var nú orðið virkilega gott og Cox með góðan grunn í höndunum. Hann vissi þó sem var að til að standa sig á meðal þeirra bestu yrði hann að fá fjármagn til að styrkja hópinn enn frekar. Cox bað stjórnina um peninga en hún neitaði. Stjórinn vildi ekki una þessu og ákvað að fara til Derby County og láta öðrum það eftir að stýra Magpies dallinum. Súr endir á farsælum starfsferli Coxarans hjá Magpies. Það kom í hlut Jackie Charltons að taka við.
|
Stjóraferill |
|
FÉLAG |
BYRJAR |
HÆTTIR |
LEIKIR |
SIGRAR |
JAFNTEFLI |
TÖP |
|
DERBY |
28.5.1984 |
2.10.1993 |
453 |
184 |
108 |
161 |
|
NEWCASTLE |
1.9.1980 |
24.5.1984 |
169 |
76 |
42 |
51 |
|
CHESTERFIELD |
1.10.1976 |
1.9.1980 |
|
69 |
49 |
67 |
Heim