Andrew Aitken
Hjá NUFC: 1895-1906 Fæddur: 27.4.1877 Staður: Ayr, Skotlandi Deildarleikir/Mörk: 316/33 FA-CUP: 33/8 Leikir alls: 349/41
Andy var á sínum tíma einn af þeim albestu í boltanum. Hann var hjá Elmbank, Ayr Thistle og Ayr Parkhouse í Skotlandi áður en hann kom til Newcastle í júlí 1895. Átti þátt í að koma liðinu upp í efstu deild vorið 1898 en var svo lánaður um tíma til Kilmarnock.
Andy, sem reyndar var kallaður Daddler, þótti afar fylginn sér og duglegur leikmaður. Hann lék á miðjunni, hafði gott auga fyrir sóknarfærum og studdi því vel við bakið á sóknarmönnunum. Hann var ungur að árum þegar hann lék sinn fyrsta leik með Newcastle, gegn Loughborough Town á heimavelli 7. september 1895, en í þeim leik gerði hann einnig sitt fyrsta mark fyrir Magpies. Vakti strax athygli og átti eftir að verða fyrirliði liðsins og einn mikilvægasti maðurinn á þeim árum þegar Newcastle var að lyfta sér á toppinn.
Annars ber heimildum ekki saman um það hvernig leikmaður Daddler hafi verið en líklega má treysta orðum félaga hans, Alex Gardner, sem sagði einhverju sinni að Andy kynni að skorta líkamlegt atgervi en það bætti hann svo sannarlega upp með gríðarlegum dugnaði og góðri skallatækni. Þá er ljóst að Andy hefur verið sérlega fjölhæfur því hjá Magpies prófaði hann allar stöður nema markmannsstöðuna.
Andy var án efa einn af sterkustu knattspyrnumönnum Bretlandseyja fyrir fyrra stríð. Hann lék 14 landsleiki fyrir Skota og var fyrirliði í tveimur leikjanna. Hann var líka fyrirliði Newcastle þegar félagið vann fyrsta meistaratitilinn árið 1905. Hann spilaði bikarúrslitaleikina 1905 og 1906 en fór sama ár til Middlesbrough þar sem hann varð spilandi framkvæmdastjóri. Fór til Leicester í febrúar 1909 og varð stjóri þar í apríl. Gekk næst til liðs við Dundee í maí 1911 og var kominn til Kilmarnock rúmu ári síðar. Hætti knattspyrnuiðkun í janúar 1913 vegna nárameiðsla en var ráðinn stjóri hjá Gateshead Town í júní. Var síðar njósnari fyrir Arsenal.
Eftir að Andy hætti afskiptum af fótbolta rak hann krá um tíma. Hann bjó á Tyneside allt til dauðadags en hann lést í Ponteland þann 15. febrúar 1955. Hann var tengdur Alex Gardner, félaga sínum á miðjunni hjá Newcastle, því þeir giftust systrum nokkrum. Sonur Andys reyndi fyrir sér hjá Magpies á þriðja áratugnum en náði ekki árangri. |