Bill var fæddur í Stoke. Hann þótti afar harður nagli og lék á sínum tíma með liðum Port Vale og Huddersfield. Þrátt fyrir að hafa aðeins spilað fyrir þessi smálið var Bill valinn í landslið Englands og segir það sitthvað um styrkleikann.
Bill reyndi fyrst fyrir sér sem stjóri hjá Bournemouth. Síðan var hann með lið Watford, Ipswich og Wolves. Þegar hann var hjá Wolves gaf fyrirliðinn Derek Dougan út ævisögu og var harðorður í garð stjórans. Derek var greinilega allt annað en kátur með stranga agastjórnun Bills og nefndi sem dæmi um hana að þegar starfsmenn félagsins og leikmenn hefðu borðað saman hefði enginn mátt fá sér rækjukokkteil því stjóranum hefði ekki þótt hann góður.
Bill gat ekki komið í veg fyrir að Newcastle félli á ný í 2. deild en það hefðu líklega fæstir getað miðað við þær rústir sem Dinnis skildi eftir sig. Bill náði ekki að skapa sér neinar vinsældir hjá Newcastle enda er ekki hægt að hæla honum fyrir snilli í leikmannakaupum. Einna helst sterkur leikur að fá Peter Withe frá Nottingham Forest fyrir metfé. Þrátt fyrir þau kaup var harðnaglinn aldrei nálægt því að koma Newcastle upp í 1. deild á nýjan leik.
Sennilega var helsti styrkleiki Bills sömuleiðis veikleiki hans. Hann kunni ekki aðra aðferð en að stjórna með harðri hendi og það féll leikmönnum Newcastle greinilega illa í geð. Bill var rekinn í upphafi tímabilsins 1980-81 eftir 4-0 tap í Bolton. Þá hafði liðið aðeins náð í eitt stig.
|
Stjóraferill |
|
FÉLAG |
BYRJAR |
HÆTTIR |
LEIKIR |
SIGRAR |
JAFNTEFLI |
TÖP |
|
WOLVES |
4.9.1985 |
4.11.1985 |
12 |
2 |
3 |
7 |
|
NEWCASTLE |
18.11.1977 |
31.8.1980 |
118 |
37 |
33 |
48 |
|
WOLVES |
1.11.1968 |
13.5.1976 |
|
135 |
101 |
122 |
|
IPSWICH |
1.10.1964 |
1.11.1968 |
|
76 |
58 |
47 |
|
WATFORD |
1.7.1963 |
31.10.1964 |
|
29 |
20 |
18 |
|
BOURNEMOUTH |
1.3.1961 |
1.7.1963 |
|
47 |
38 |
27 |
Heim