Stjórarnir:

CHARLIE MITTEN (1958-1961)

ANDY CUNNINGHAM
TOM MATHER
STAN SEYMOUR
GEORGE MARTIN
DUGGIE LIVINGSTONE
CHARLIE MITTEN
NORMAN SMITH
JOE HARVEY
GORDON LEE
RICHARD DINNIS
BILL McGARY
ARTHUR COX
JACK CHARLTON
WILLIE McFAUL
JIM SMITH
OSSIE ARDILES
KEVIN KEEGAN
KENNY DALGLISH
RUUD GULLIT
SIR BOBBY ROBSON
GRAEME SOUNESS

CHARLIE MITTEN (1958-1961)

Eftir atvikið með Milburn og Livingstone í bikarleiknum var ljóst að stjórar Newcastle væru valdalitlir og þannig var það áfram næstu árin, Seymour í rauninni sá sem mestu réði og stjórnin ávallt tilbúin að grípa inn í ef þess gerðist þörf. Eftir að Duggie fór frá Newcastle sá stjórnin alfarið um liðið næstu tvö árin. Árangurinn var ekki góður og loks kom að því að menn áttuðu sig á því að hægt væri að gera mun betur. Sumarið 1958 var Charlie Mitten ráðinn framkvæmdastjóri en Newcastle hafði aðeins náð 17. sæti um vorið.

Mitten var um margt sérstakur maður. Hann fæddist í Rangoon í Burma og var ávallt afar umdeildur. Hann átti glæstan feril með Manchester United en að honum loknum hélt hann í ævintýraferð til Kólumbíu. Mitten var enskur landsliðsmaður og hreint frábær vængmaður. En hann var reynslulítill í starfi framkvæmdastjóra þegar hann kom til Magpies þó hann hefði stýrt liði Mansfield í rúm tvö ár.

Mitten var gagnrýndur harkalega en hann var vafalítið góður stjóri. Hann var að mörgu leyti langt á undan sinni samtíð en samferðamennirnir einfaldlega ekki á sama róli. Hann kom með nýjar hugmyndir úr meginlandsboltanum en þær féllu í grýttan jarðveg hjá leikmönnum jafnt sem áhangendum.

Mesta afrek Mittens í stjórastólnum var að ná saman hinni öflugu þrenningu, Ivor Allchurch, George Eastham og Len White. Þeir þremenningar báru liðið uppi um tíma en þegar Newcastle féll þótti kominn tími á breytingar. Mitten var rekinn í október 1961. Honum hafði ekki tekist nema að litlu leyti að færa Magpies til nútímalegra horfs. Hann var enn eitt dæmið um ágætan stjóra sem lenti upp á kant við ráðríka stjórnendur og fékk líklega aldrei að ráða nógu miklu.

Sonur stjórans, John, var einnig hjá Magpies. Hann fór til Leicester City þegar pabbinn tók pokann sinn. Þá hafði John spilað níu deildarleiki og skorað þrjú mörk. Charlie faðir hans lést í Stockport í janúar 2002.

Stjóraferill
FÉLAG
BYRJAR
HÆTTIR
LEIKIR
SIGRAR
JAFNTEFLI
TÖP
NEWCASTLE
1.6.1958
1.10.1961
145
53
28
64
MANSFIELD
1.2.1956
1.6.1958
115
49
22
44

Heim