Stjórarnir:

DUGGIE LIVINGSTONE (1954-1956)

ANDY CUNNINGHAM
TOM MATHER
STAN SEYMOUR
GEORGE MARTIN
DUGGIE LIVINGSTONE
CHARLIE MITTEN
NORMAN SMITH
JOE HARVEY
GORDON LEE
RICHARD DINNIS
BILL McGARY
ARTHUR COX
JACK CHARLTON
WILLIE McFAUL
JIM SMITH
OSSIE ARDILES
KEVIN KEEGAN
KENNY DALGLISH
RUUD GULLIT
SIR BOBBY ROBSON
GRAEME SOUNESS

Bakvörðurinn Duggie naut mikillar virðingar þegar hann lék með liðum Celtic og Everton. Hann var fæddur í Skotlandi, nánar tiltekið í Alexandria, skammt frá Dumbarton. Þegar hann hætti að spila fótbolta tók hann til við þjálfun hjá Exeter City og var síðan í tíu ár við þjálfunarstörf hjá Sheffield United. Færði sig síðan um set í Sheffield og gerðist framkvæmdastjóri hjá Uglunum í Wednesday.

Næst lá leið til Hollands þar sem Duggie stýrði liði Sparta Rotterdam. Þá þjálfaði hann landslið Írlands og Belgíu. Það var þá sem Newcastle United bauð honum að koma á ný til Englands og taka við liði Magpies.

Duggie kom með nýjar og ferskar hugmyndir með sér á St James' Park en fæstar þeirra áttu upp á pallborðið hjá leikmönnunum. Hefur þeim líklega þótt farandþjálfarinn helst til nýjungagjarn og aðferðafræðin full Evrópusinnuð.

Duggie náði engu að síður þeim góða árangri að koma Newcastle í úrslitaleik FA-bikarsins árið 1955. En þá steig hann alvarlegt feilspor og ákvað að setja sjálfan Jackie Milburn út úr liðinu. Slík fásinna var óþekkt á Tyneside og óhætt að segja að enginn stjóri hafi gert slíkt axarskaft síðar meir þar til Ruud Gullit ákvað að setja þá Alan Shearer og Duncan Ferguson út úr liði sínu fyrir leik gegn Sunderland. Menn trúðu ekki sínum eigin eyrum, var maðurinn galinn? Átti héraðshetjan að sitja úti í kuldanum þegar kæmi að sjálfum úrslitaleiknum? Stjórn félagsins með Seymour í fararbroddi ákvað að standa með stuðningsmönnunum og setti Duggie stól fyrir dyr. Milburn skyldi spila hvað svo sem stjórinn segði um það.

Leikið var gegn Manchester City og Milburn skoraði strax í byrjun leiksins. Newcastle vann 3-1 en ljóst var að Duggie yrði ekki mikið lengur við stýrið. Sjö mánuðum síðar var Duggie farinn til Fulham og stjórnin sá um að stýra liðinu næstu árin.

Það var líklega ósætti stjórans við kóngana Milburn og Seymour sem olli því öðru fremur að Duggie fór frá liðinu. Þeir áttu hreinlega ekki skap saman enda var einhverju sinni haft eftir Milburn að hinar nýtískulegu útlensku þjálfunaraðferðir stjórans væru svona álíka nýtilegar fyrir leikmennina og að skjóta sig í hausinn. Duggie lést í Marlow árið 1981.

Stjóraferill
FÉLAG
BYRJAR
HÆTTIR
LEIKIR
SIGRAR
JAFNTEFLI
TÖP
CHESTERFIELD
1.5.1958
1.5.1962
199
65
43
91
FULHAM
1.1.1956
31.5.1958
111
52
22
37
NEWCASTLE
1.8.1954
31.7.1956

99

43
20
36

Heim