| Frank Brennan
Hjá NUFC: 1946-1956 Fæddur: 23.4.1924 Staður: Annithill Deildarleikir/Mörk: 318/3 1946-47: 29/0 1947-48: 42/0 1948-49: 41/0 1949-50: 41/0 1950-51: 32/1 1951-52: 39/1 1952-53: 38/1 1953-54: 39/0 1954-55: 6/0 1955-56: 11/0 FA CUP: 29/0 Aðrir leikir: 2/0 Alls með Magpies: 349/3
Frank Brennan var glæsilegur varnarmaður. Hann var rúmlega 190 cm hár og mikill skrokkur, notaði fótboltaskó númer 12. Þeir eru margir sem telja hann besta varnarmanninn í sögu Newcastle enda var hann þekktur sem Kletturinn á Tyneside.
Frank fæddist skammt frá Coatbridge í Skotlandi og hann hóf sparkferil sinn einmitt með Coatbridge St Patricks árið 1940. Gekk til liðs við Airdrieonians ári síðar en var keyptur til Newcastle á 7.500 pund í maí 1946.
Frank spilaði fyrsta leikinn sinn með Magpies á útivelli gegn Millwall 31. ágúst 1946. Hann sýndi strax styrk sinn, var afar yfirvegaður og gerði engin mistök. Þannig var hann allan sinn feril með Newcastle. Hann var fljótur þó hann væri gríðarlegur skrokkur og kunni aldeilis að meta það að berjast við frægustu miðframherjana, sem hann hafði oftar en ekki í vasanum.
Frank var kóngurinn í vörn Newcastle þegar liðið vann sig á ný upp í 1. deild og tók svo bikarinn tvö ár í röð skömmu síðar. Það segir sitt um styrk Brennans að hann varð leikjahæstur hjá Magpies þrjú tímabil í röð frá 1947-49. Hann var hins vegar fjarri góðu gamni í bikarúrslitaleiknum 1955. Hafði lent upp á kant við stjórn Newcastle og því miður reyndist ekki unnt að leysa deiluna. Var þetta mál allt hið furðulegasta og í raun til hálfgerðrar skammar fyrir Stan Seymour. Stan var ekki á því að Brennan ætti að reka sportvöruverslun í Newcastle en varnarmaðurinn sterki var ekki á því að láta vaða yfir sig fremur en úti á vellinum. Að lokum fór það svo að Skotinn stóri hætti knattspyrnuiðkun enda var Stan víst sá sem öllu réði.
Frank var þó ekki hættur með öllu því hann varð þjálfari hjá North Shields í mars 1956. Stóð sig vel og ferðaðist síðan um heiminn og þjálfaði meðal annars í Singapúr og Trinidad. Gerðist stjóri North Shields í apríl 1967 og náði frábærum árangri með liðið. Hóf þjálfun hjá Darlington árið 1970 og var stjóri frá ágúst og fram í nóvember árið 1971. Þjálfaði síðast hjá South Shields frá febrúar og fram í október 1972. Bjó í Whitley Bay eftir að hann hætti afskiptum af boltanum.
Brennan lék 7 A-landsleiki fyrir Skota og 3 óopinbera landsleiki að auki. Hann var óhemju vinsæll á Tyneside enda mótmæltu stuðningsmennirnir harkalega þegar hann átti í deilunni við Seymour. Það er auðvelt að þekkja Brennan á myndum af Newcastle liðinu. Hann er sá sem gnæfir yfir. |