Stjórarnir:

GEORGE MARTIN (1947-1950)

ANDY CUNNINGHAM
TOM MATHER
STAN SEYMOUR
GEORGE MARTIN
DUGGIE LIVINGSTONE
CHARLIE MITTEN
NORMAN SMITH
JOE HARVEY
GORDON LEE
RICHARD DINNIS
BILL McGARY
ARTHUR COX
JACK CHARLTON
WILLIE McFAUL
JIM SMITH
OSSIE ARDILES
KEVIN KEEGAN
KENNY DALGLISH
RUUD GULLIT
SIR BOBBY ROBSON
GRAEME SOUNESS

George Martin tók við vænu búi af Stan Seymour og kom Newcastle upp í efstu deild. Í stjórnartíð hans sóttu að meðaltali 56.000 áhorfendur leiki liðsins. Þetta voru gríðarlega spennandi tímar á Tyneside og Skotinn Martin var ein aðal hetjan í borginni. Hann var fæddur í Bathgate og var eins konar poppstjarna. Hafði tekið upp nokkrar plötur á stríðsárunum. En þrátt fyrir að Martin væri kallaður stjóri var það samt kóngurinn Seymour sem mundaði sprotann bak við tjöldin.

Á boltaárum sínum spilaði George með hinum magnaða Dixie Dean í framlínu Everton. Þeir voru ótrúlegir saman hluta tímabilsins 1927-28 en þá skoraði Dean 60 deildarmörk og setti met sem verður áreiðanlega aldrei slegið. George spilaði líka um tíma með Middlesbrough. Hann hóf stjóraferil sinn með Luton en fór svo til Newcastle í maí 1947.

Það urðu margir til að gagnrýna störf Martins en áhangendur voru ánægðir með hann. Blaðamenn gagnrýndu hann harkalega fyrir að fara mikinn á leikmannamarkaðnum en St James’ var stútfullur hvern einasta leikdag og áhorfendur voru kátir með að aðgangseyrinum væri varið til að kaupa nýjar hetjur. Helsta snilldarbragð Martins var þó ekki varðandi leikmannakaup. Hann á heiðurinn af því að færa Jackie Milburn af vængnum og í stöðu miðframherja. Eða var það kannski Seymour sem ákvað að Milburn ætti frekar heima í framlínunni?

Það er eiginlega furðulegt hve mikla gagnrýni Martin mátti þola frá pressunni. Árangur liðsins segir allt um það hve góður stjóri hann var. Newcastle varð í öðru, fjórða og fimmta sæti á meðan hann var við stjórnvölinn, allan tímann að keppa á toppnum.

Martin gekk til liðs við Aston Villa í desember 1950 og skildi við Newcastle í 3. sæti deildarinnar. Hann lauk svo stjóraferli sínum á sama stað og hann hófst, hjá Luton Town.

Stjóraferill
FÉLAG
BYRJAR
HÆTTIR
LEIKIR
SIGRAR
JAFNTEFLI
TÖP
LUTON
1.2.1965
1.11.1966
77
33
13
31
ASTON VILLA
1.12.1950
31.8.1953
119
47
30
42
NEWCASTLE
1.5.1947
1.12.1950

155

76
40
39
LUTON
1.8.1939
31.5.1947

47

17
8
22



Heim