Gordon Lee tók við stjórastöðunni af hetjunni Joe Harvey og hlutskipti þeirra var ákaflega ólíkt. Áhangendurnir þoldu hreinlega ekki Gordon og var þá nokkur von til þess að hann næði árangri?
Lee var fæddur í Hednesford. Hann spilaði í vörninni hjá Aston Villa en var ekkert sérstakur leikmaður. Varð þó deildarbikarmeistari með liðinu snemma á sjöunda áratugnum. Lék síðar með Shrewsbury en gerðist svo framkvæmdastjóri hjá Port Vale. Næst tók hann við liði Blackburn og undir hans stjórn komst liðið upp í 2. deild. Það var þá sem Newcastle leitaði til hans.
Lee kom til Magpies sumarið 1975 og tók við góðu búi. Liðið var skipað skemmtilegum leikmönnum og nú vonuðust menn til að nýi stjórinn gæti agað piltana til og mótað öflugt lið. Því miður virtist Lee ekki kunna við stórstirni því hann seldi ávallt bestu mennina. Margir telja reyndar að hann hafi alls ekki getað stjórnað slíkum leikmönnum og því hafi þeir orðið að fara. Kannski hafa þeir ekki verið nægilega vinnusamir að hans mati en Lee lagði sérlega mikið upp úr því að menn legðu hart að sér, öðruvísi væri ekki hægt að ná árangri.
Hinn vinsæli Terry Hibbitt var látinn fara fyrstur. Lee taldi hann hafa slæm áhrif á liðið. Hafi sá gjörningur verið umdeildur þá var þó salan á goðinu Supermac hálfu verri. Áhangendur Magpies gátu alls ekki sætt sig við að sjá á eftir Malcolm Macdonald til Arsenal og vinsældir leikmannsins voru slíkar að það varð hreinlega allt brjálað. Lee hélt því hins vegar fram að Malcolm væri eiginlega búinn sem leikmaður, hann ætti afar stutt eftir í boltanum vegna erfiðra meiðsla og því væri réttast að taka góðu tilboði og fá aura í kassann. Segja má að Lee hafi haft nokkuð til síns máls því Supermac mátti snemma leggja skóna á hilluna. Þrátt fyrir sífelldan orðróm um óánægju leikmanna náði liðið Evrópusæti og komst í úrslit deildabikarsins á Wembley árið 1976. Þar var leikið gegn Man City og flestir telja að Newcastle hefði unnið ef flensa hefði ekki lagt liðsmenn hvern af öðrum skömmu fyrir leik.
Það var svo í janúar 1977, skömmu áður en bikarleikur gegn Man City hófst, að Lee sagði leikmönnum sínum að hann ætlaði að ganga til liðs við Everton þá um kvöldið. Leikurinn tapaðist 3-1 og þar með var Lee úr sögunni. Hann stýrði Everton næstu fjögur árin en fór því næst til Preston. Þar var hann í tvö ár en hætti síðan störfum. Kom aftur til starfa hjá Leicester í janúar 1991 og var þar út tímabilið.
|
Stjóraferill |
|
FÉLAG |
BYRJAR |
HÆTTIR |
LEIKIR |
SIGRAR |
JAFNTEFLI |
TÖP |
|
LEICESTER |
30.1.1991 |
29.5.1991 |
20 |
7 |
2 |
11 |
|
PRESTON |
9.12.1981 |
20.12.1983 |
93 |
32 |
25 |
36 |
|
EVERTON |
30.1.1977 |
31.5.1981 |
|
80 |
69 |
63 |
|
NEWCASTLE |
12.6.1975 |
30.1.1977 |
|
28 |
20 |
26 |
|
BLACKBURN |
14.1.1974 |
12.6.1975 |
|
28 |
23 |
17 |
|
PORT VALE |
1.5.1968 |
14.1.1974 |
|
94 |
80 |
84 |