Stjórarnir:

Glen Roeder (2006-2007)

ANDY CUNNINGHAM
TOM MATHER
STAN SEYMOUR
GEORGE MARTIN
DUGGIE LIVINGSTONE
CHARLIE MITTEN
NORMAN SMITH
JOE HARVEY
GORDON LEE
RICHARD DINNIS
BILL McGARY
ARTHUR COX
JACK CHARLTON
WILLIE McFAUL
JIM SMITH
OSSIE ARDILES
KEVIN KEEGAN
KENNY DALGLISH
RUUD GULLIT
SIR BOBBY ROBSON

GRAEME SOUNESS   

Glen Roeder

 

 

Glen Roeder er fæddur 13 desember 1955 í bænum Woodford / Essex. Hann lék í stöðu sem varnarmaður. Roeder hefur  þjálfað m.a Gillingham (1992 - 1993 ), Watford (1993 - 1996 ), West Ham (2001 - 2003) og Newcastle 2006 - 6.maí 2007. Hans stærsta verk fyrir Newcastle er eflaust þegar hann náði í framherjann Obafemi Martins. Undir hans stjórn lék Alan Shearer sinn síðasta leik fyrir Newcastle. Roeder tekur við af Souness sem skyldi liðið eftir í sárum og allt tímabilið sem Roeder var stjóri voru meiðsli leikmanna í algjöru hámarki. Það var ekki fyrr en undir lok stjórnartíðs að flestir leikmenn voru að koma úr meiðslum.

Eini titillinn sem Roeder tóks að næla í fyrir Newcastle klúbbinn var UEFA Intertoto bikarinn 2006 - 2007.

Roeder byrjaði sinn feril hjá Arsenal 1970 og var þar til 1973. Síðan var hann hjá Layton Orient 1973 - 1978. "78 -"83 var hann hjá Queens Park Rangers. Hann var lánaður "83 til Notts County en lék þar aðeins fjóra leiki. Síðan lá leiðin til Newcastle 1983 og var hann þar leikmaður til 1989. Alls lék hann þá 193 leiki fyrir Newcastle og skoraði 8 mörk. 1989 til 1992 var Roeder hjá Watford og lék þar alls 78 leiki og skoraði 2 mörk. Síðan lá leiðin aftur til Layton Orient 1992 en náði aðeins að leika 8 leiki fyrir þá þegar hann "92 fer til Gillingham. Þar er hann til ársins 1993 og lék aðeins 6 leiki fyrir þann klúbb.  Á fótboltaferli sínum hefur Roeder gert 31 mark fyrir áðurtalda klúbba. Hann var aldrei afburða maður í knattspyrnu, en þótti frábær félagi og traustur.  Roeder var lengi vel með unglinga þjálfun hjá Newcastle áður en hann tók við aðalliðinu. Mikil umræða fór fram um það þegar hann var kynntur til sögunnar, þar sem hann hafði ekki réttindi sem þjálfari. Shepherd stóð með Roeder og fékk undanþágu fyrir hann.

Roeder náði slökum árangri með Newcastle. Fyrra árið 2006 í 7 sæti og árið 2007 í því 13. Þegar einn leikur var eftir að leiktíðinni í maí 2007 sagði hann af sér og hætti strax með samþykki Freddy Shepherd.

.


Heim