Willie McFaul var rekinn í október 1988 og í byrjun desember var kominn nýr karl við stýrið. Þar var á ferð Sköllótti Örninn Jim Smith. Howard Kendall hafði verið efstur á óskalistanum en hann vildi ekki sjá að koma til félagsins. Það var heldur ekki sérlega vænlegt útlit sem blasti við nýjum manni og Arnarins beið erfitt verkefni í 2. deild.
Jim hóf stjóraferil sinn hjá utandeildarliði Boston United árið 1968. Fyrsta deildarlið hans var Colchester United en þar hóf hann störf 1972. Hann var hjá QPR þegar Newcastle hafði samband og karlinn ákvað að slá til.
Smith tók þegar til hendinni við að breyta liðinu. Fór hamförum í að kaupa og selja menn og var brátt búinn að gjörbylta hópnum. Vandamálið var bara það að þó honum tækist að losa sig við slaka menn voru þeir sem hann fékk í staðinn engu skárri. Hallarbyltingin hafði líka kostað fullt af peningum. Smith náði nú samt að að ljúka þessu fyrsta tímabili án teljandi vandræða.
Næst skyldi fara upp. Liðinu gekk þokkalega og minnstu munaði að Smith tækist ætlunarverkið. Newcastle fór í play-off keppnina og mætti þar Sunderland. Stórkostlegt tækifæri gegn erkifjendunum en því miður tapaði Newcastle. Örninn náði aldrei flugi eftir þetta sára tap.
Jim Smith var harður stjóri og vildi ekki láta menn komast upp með neitt múður. Hann var óheppinn hjá Newcastle því aðstæðurnar fyrir stjórann voru skelfilegar á þeim tíma. Ekki hjálpaði til að átök um völd innan félagsins voru mikil á bak við tjöldin og stjórnin var harkalega gagnrýnd. Pressan á Smith var gríðarlega mikil og svo fór að lokum að hann gafst hreinlega upp. Hann fór frá félaginu í mars 1991 og skilaði slæmu búi. Til að fullkomna svo sneypuna var hann mættur sem þjálfari hjá Middlesbrough viku síðar.
Jim hefur síðan stjórnað liðum Portsmouth og Derby með ágætum árangri. Og hann er enn að, nú síðast sem aðstoðarmaður Harry Redknapps hjá Portsmouth og stefnir í úrvalsdeild á ný. Skemmtilegur karakter sem gefur boltanum lit.
|
Stjóraferill |
|
FÉLAG |
BYRJAR |
HÆTTIR |
LEIKIR |
SIGRAR |
JAFNTEFLI |
TÖP |
|
DERBY |
15.6.1995 |
7.10.2001 |
281 |
99 |
81 |
101 |
|
PORTSMOUTH |
1.6.1991 |
1.2.1995 |
199 |
81 |
54 |
64 |
|
NEWCASTLE |
4.12.1988 |
26.3.1991 |
121 |
44 |
38 |
39 |
|
QPR |
11.6.1985 |
4.12.1988 |
167 |
67 |
38 |
62 |
|
OXFORD |
1.3.1982 |
11.6.1985 |
167 |
89 |
42 |
36 |
|
BIRMINGHAM |
12.3.1978 |
15.2.1982 |
160 |
50 |
47 |
63 |
|
BLACKBURN |
20.6.1975 |
12.3.1978 |
114 |
41 |
32 |
41 |
|
COLCHESTER |
1.10.1972 |
20.6.1975 |
127 |
49 |
34 |
44 |
Heim