Joe Harvey er óneitanlega ein mesta hetjan í sögu Newcastle United og enn minnast stuđningsmenn félagsins glćstrar frammistöđu hans. Harvey var hálfa öld í slagnum, fyrst sem leikmađur og síđan stjóri og mun ávallt eiga sérstakan virđingarsess í hugum allra áhangenda Magpies.
Joe fćddist í Yorkshire en verđur varla talinn annađ en ćttleiddur Geordie. Hóf knattspyrnuferil sinn hjá Bradford City en gekk til liđs viđ Newcastle í október 1945, var keyptur á 4250 pund. Joe var sannur foringi og var fyrirliđi Newcastle í átta ár. Hann hampađi bikarnum í tvígang á Wembley.
Joe var bođin stjórastađa hjá Newcastle í júní 1962. Hann fékk eins árs samning í byrjun en átti eftir ađ sitja í stjórastólnum í 13 ár. Hann hófst strax handa viđ enduruppbyggingu liđsins og árangurinn lét ekki á sér standa. Liđiđ tók stakkaskiptum og áriđ 1965 vann ţađ 2. deildina og komst upp á ný. Ţar var liđiđ á međan Joe var stjóri. Hann var eldklár og mikill karakter og mjög vel liđinn af leikmönnum jafnt og áhangendum félagsins. Enda náđi hann ađ setja saman afar skemmtilegt liđ međ snjöllum strákum.
Áriđ 1969 er eftirminnilegt. Ţá kom Newcastle öllum á óvart og vann Inter City Fairs Cup Evrópu. Flestir áttu von á ađ Leeds myndi vinna keppnina en Leedsarar féllu úr leik međ ţví ađ tapa fyrir Ungverjunum í Ujpest Doza. Newcastle vann hins vegar hvern andstćđinginn á fćtur öđrum og mćtti ungverska liđinu í úrslitaleikjum. Flestir áttu von á ađ Ungverjarnir myndu vinna léttan sigur enda var liđiđ skipađ mörgum leikmönnum ungverska landsliđsins sem hafđi leikiđ svo vel í HM 1966. Annađ kom á daginn ţví Newcastle vann 3-0 heima og hampađi bikarnum eftir ađ hafa unniđ 3-2 í Búdapest, 11. júní 1969, á afmćlisdegi stjórans.
Undir stjórn Joes komst liđiđ í bikarúrslitin á Wembley áriđ 1974. Ţar spilađi liđiđ illa og steinlá, 3-0 fyrir Liverpool. Harvey var viđ stjórn eitt tímabil í viđbót en ađ ţví loknu sagđi hann af sér. Joe hlýtur ađ teljast einn besti stjóri Newcastle og ţađ eina sem skyggir á árangur hans er ađ ekki skyldi takast ađ vinna neinn bikar heima í Englandi en ţađ hefur reyndar reynst flestum erfitt. Harvey lést í febrúar 1989.
|
Stjóraferill |
|
FÉLAG |
BYRJAR |
HĆTTIR |
LEIKIR |
SIGRAR |
JAFNTEFLI |
TÖP |
|
NEWCASTLE |
1.6.1962 |
1.6.1975 |
591 |
224 |
152 |
215 |
Heim