Norman skipar stóran sess í knattspyrnusögu Newcastle þó hann hafi aðeins verið framkvæmdastjóri eitt tímabil. Hann hafði verið þjálfari hjá félaginu í 23 ár þegar stjórnin ákvað að ráða hann sem stjóra til bráðabirgða. Það stóð því aldrei til að hann yrði lengi við völd, átti aðeins að brúa bilið þar til rétti maðurinn fyndist.
Ástæða þess að stjórnin kaus að þessu sinni að ráða mann til bráðabirgða var sú að menn voru loksins farnir að átta sig á því að ekki dygði að láta stjórnina vasast í öllu. Fótboltinn var í geysilega örri þróun og þó Seymour væri duglegur var ómögulegt að ætla honum að fylgjast með nýjungum, samhliða því að sjá um stjórn félagsins. Ákveðið var að hefja leit að öflugum stjóra og ráða Smith til að stjórna í millitíðinni.
Norman var 64 ára þegar hann var ráðinn stjóri og aldrei hafði svo gamall karl fengið sína fyrstu stjórastöðu í enska boltanum. Líklega stendur það met enn. Hann var líka fyrsti stjóri félagsins sem var réttborinn Geordie, fæddur norðan árinnar Tyne. Seymour hafði komið frá Kelloe í Durham en margir telja það hérað frekar tilheyra Sunderland. Reyndar er það svo að stuðningur við liðin er mjög svipaður í því héraði.
Norman var ágætur miðjumaður. Hann varð enskur meistari með Huddersfield þrjú ár í röð. Spilaði einnig með Sheffield Wednesday og Queens Park Rangers. Menntaði sig síðan sem þjálfari í Sviss.
Eins og áður sagði stýrði Norman liði Newcastle aðeins í eitt tímabil. Liðið hafnaði í 11. sæti 2. deildar. Newcastle varð eina liðið sem Norman stýrði. Kappinn lést í Newcastle í maí 1974.
|
Stjóraferill |
|
FÉLAG |
BYRJAR |
HÆTTIR |
LEIKIR |
SIGRAR |
JAFNTEFLI |
TÖP |
|
NEWCASTLE |
1.10.1961 |
1.6.1962 |
35 |
12 |
8 |
15 |