Það vakti mikla athygli þegar Newcastle réði litla Argentínumanninn Osvaldo Ardiles í mars 1991. Sem leikmaður hafði hann staðið sig glimrandi vel með Tottenham en stjóraferillinn hófst hjá Swindon Town 1989. Þar hafði hann staðið sig ágætlega og þegar Newcastle leitaði til hans ákvað hann að slá til.
Ossie tók við liðinu á skelfilega erfiðum tíma og náði ekki að snúa lukkuhjólinu sér í vil. Mikið gekk á hjá félaginu og segja má að hrikt hafi í öllum stoðum á St James’ Park. Stjórnin skipaði honum að selja bestu mennina þar sem launakostnaður væri allt of mikill. Þegar Ossie hafði leyst þann vanda rétti stjórnin honum 500.000 pund til að kaupa nýja menn. Þeir áttu, ólíkt þeim sem seldir voru, að hafa getu til að leika í 1. deild. Ossie reyndist mjög naskur í leikmannakaupum þó aurinn væri lítill. Hann keypti tvo mjög góða leikmenn, Franz Carr og David Kelly, en þar með var aurinn búinn og ekki hægt að gera meira. Ossie reyndi að fylla í skörðin með því að fá lánsmenn til félagsins en ekki gekk alltaf vel með þá og losarabragurinn sem slíku fylgir líka mikill.
Eins og gefur að skilja gekk hörmulega að landa stigunum og undir stjórn hins keðjureykjandi Argentínumanns stefndi félagið niður í 3. deild í fyrsta sinn í sögunni. Stórveldið riðaði svo sannarlega til falls. Stjórnarherrarnir sáu að eitthvað yrði að gera og Ossie var rekinn í febrúar 1992.
Það er hart að kenna Ossie um allt sem miður fór en sennilega hefði Newcastle fallið ef hann hefði ekki verið látinn taka pokann sinn. Hann vildi að liðið spilaði léttleikandi sóknarbolta en virtist ekki gefið að skipuleggja varnarleik svo vel færi. Honum til varnar verður að segjast eins og er að hópurinn var skelfilega þunnskipaður. Oft mátti hann tefla fram mörgum unglingum og slíkt getur aldrei verið gott í harðhausabolta 1. deildar. Ossie hafði ekki verið lengi í starfi þegar hann tefldi fram yngsta liði í sögu félagsins en snemma á næsta tímabili var hann búinn að slá það met. Það sem upp úr stendur er að drengir á borð við Lee Clark, Robbie Elliott og Steve Watson öðluðust mikilvæga reynslu sem átti eftir að reynast félaginu dýrmæt. Þessir strákar voru kornungir en framúrskarandi góðir og þeir blómstruðu undir stjórn Kevin Keegans. Að nokkru leyti má þakka það eldskírninni sem þeir fengu hjá Ossie.
|
Stjóraferill |
|
FÉLAG |
BYRJAR |
HÆTTIR |
LEIKIR |
SIGRAR |
JAFNTEFLI |
TÖP |
|
TOTTENHAM |
19.6.1993 |
1.11.1994 |
65 |
20 |
17 |
28 |
|
WBA |
8.5.1992 |
19.6.1993 |
55 |
30 |
11 |
14 |
|
NEWCASTLE |
26.3.1991 |
5.2.1992 |
47 |
10 |
18 |
19 |
|
SWINDON |
19.7.1989 |
31.3.1991 |
102 |
38 |
33 |
31 |
Heim