Stan Seymour er sannarlega eitt stærsta nafnið í sögu Newcastle United því segja má að hann sé maðurinn á bak við flesta bikara félagsins.
Hann reyndi snemma fyrir sér hjá Newcastle en náði ekki að komast að. Reyndi næst hjá Bradford City og stóð sig þokkalega. Það var hins vegar ekki fyrr en þessi smávaxni vinstri vængmaður fór til Skotlands að hann vakti verulega athygli. Þar lék hann með Greenock Morton og sló algjörlega í gegn. Fjöldi enskra og skoskra liða reyndu að fá hann þaðan og þegar hann var 27 ára kaus hann að fara til Newcastle. Var keyptur þangað á 2500 pund árið 1920.
Newcastle vann FA-bikarinn árið 1924 og deildina 1927. Stan var framúrskarandi og skoraði 84 mörk í 266 leikjum með liðinu. Hann hætti að leika 36 ára gamall og það vakti nokkra athygli að stjórn félagsins fékk hann þá strax til starfa. Það þótti dálítið undarlegt þar sem hann hafði átt í deilum við stjórnendur vegna launagreiðslna.
Stan stýrði liði Newcastle í tvígang og náði frábærum árangri í bæði skiptin. Hann var reyndar hættur með liðið þegar það komst upp í efstu deild árið 1948 en þann árangur er samt að mestu hægt að þakka góðri uppbyggingu hans. Á sjötta áratugnum stýrði hann svo liðinu tvívegis til sigurs í FA-bikarnum.
Áhrif Stan Seymore á Newcastle United voru ótrúleg, ekki síst þar sem félagið hafði hafnað honum upphaflega. Hann var kallaður Mr Newcastle og átti það svo sannarlega skilið því óhætt er að fullyrða að enginn annar hafi átt meiri þátt í að gera Newcastle United að þeim stórklúbbi sem hann er. Segja má að hann hafi ráðið mestu hjá félaginu í marga áratugi, þó svo hann hafi ekki verið stjóri allan tímann. Allan fimmta og sjötta áratuginn var það hann sem sá að mestu um leikmannamálin og var reyndar svo ráðríkur að stjórarnir máttu oft láta í minni pokann. Árin 1956-58 var hann eiginlega stjóri liðsins þar sem hann fór fyrir stjórnarnefndinni. Því má eiginlega segja að Stan hafi verið stjóri í þrígang.
|
Stjóraferill |
|
FÉLAG |
BYRJAR |
HÆTTIR |
LEIKIR |
SIGRAR |
JAFNTEFLI |
TÖP |
|
NEWCASTLE |
1.1.1956 |
1.6.1958 |
110 |
36 |
22 |
52 |
|
NEWCASTLE |
1.12.1950 |
1.12.1954 |
193 |
75 |
45 |
73 |
|
NEWCASTLE |
1.9.1939 |
1.3.1947 |
35 |
19 |
7 |
9 |