ÓGLEYMANLEG FERÐ TIL NEWCASTLE

Þetta var búið að vera draumur hjá mér lengi að fara á heimaleik með Newcastle, það vita vel flestir fótboltaáhugamenn að Newcastle eiga sennilega bestu stuðningsmenn á Englandi. Ef menn eru búnir að hugsa þetta lengi eins og ég var þá var þetta ferð sem ég á aldrei eftir að gleyma og er einstök upplifun að koma á St. James‘s Park.

Ég varð stúdent nú í vor og fékk ég ferðina í gjöf frá kærustu minni. Við komum til Newcastle á föstudeginum og fórum í skoðunarferð um völlinn sem ég verð að segja að sé nauðsynlegt.  Svo endaði þetta allt á Shearer‘s bar það kvöldið. En laugardagurinn var ótrúlegur, mótmælin voru byrjuð fyrir utan völlinn fyrir hádegi og það var þvílíkt stemning. Svo komum við inn á völlinn og það var einnig hrikaleg stemning þar, þó svo að leikurinn fór ekki eins og maður var að vona og hefur þetta vesen allt á klúbbnum greinilega gríðarleg áhrif á leikmenn liðsins. Eftir leikinn héldu mótmælin áfram í um 2 tíma en ég fór ekki út af leikvanginum fyrr en eftir um klukkutíma. Við vorum að þvælast um stúkurnar að koma okkur að varamannaskýlunum og viti menn, Jonas labbaði bara framhjá mér og á bekknum sátu Butt og Owen, nýkomnir úr sturtu. Ég fór að þeim og fékk mynd af mér með Owen sjálfum og nokkrum sekúndum seinna var okkur fylgt út af einhverjum öryggisverði J. Eins og ég segi þá hvet ég alla til þess að fara á leik í Newcastle. Það verður klúbbferð í vetur og verður gaman að sjá sem flesta og aldrei að vita nema maður skelli sé aftur fljótlega.

Smári og Tinna

Owen var til í myndatöku með Smára

Í skoðunarferðinni um St James´ Park fær maður að kíkja í búningsklefa leikmanna ásamt mörgu öðru sem er alveg ómissandi fyrir þá sem eru að fara í fyrsta sinn á St James´ Park.

Hér má sjá brot af þeim áhangendum Newcastle sem voru mættir fyrir utan St James´ Park til að mótmæla Mike Ashley og Dennis Wise fyrir leikinn gegn Hull

Og auðvitað tók okkar maður þátt í mótmælunum og öskraði "Sack the board" ásamt öllum hinum. 

Hér er svo Smári í búningi KFS frá Vestmannaeyjum