Stjórarnir:

TOM MATHER (1935-1939)

ANDY CUNNINGHAM
STAN SEYMOUR
GEORGE MARTIN
DUGGIE LIVINGSTONE
CHARLIE MITTEN
NORMAN SMITH
JOE HARVEY
GORDON LEE
RICHARD DINNIS
BILL McGARY
ARTHUR COX
JACK CHARLTON
WILLIE McFAUL
JIM SMITH
OSSIE ARDILES
KEVIN KEEGAN
KENNY DALGLISH
RUUD GULLIT
SIR BOBBY ROBSON
GRAEME SOUNESS

Tom Mather hafði staðið sig feikivel með lið Stoke City og því var reiknað með að hann yrði fljótur að koma Newcastle aftur á meðal þeirra bestu. Þarna var kominn mun reyndari skipstjóri en Cunningham forveri hans í starfinu. Tom hafði gert Stoke að öflugu liði, komið því upp úr 2. deild og stjórnarherrar Magpies voru vissir um að hann hefði það sem þyrfti til að bjarga félaginu.

Mather reyndi mikið að sannfæra Stanley Matthews um að hann ætti að koma með sér á Tyneside, þar biði hans björt framtíð. Hetjan var ekki á sama máli og fylgdi stjóranum sínum því ekki norður í land.

Mather var vel liðinn stjóri. Hann setti ungmennin Stubbins og Cairns í aðalliðið og fékk að auki reyndari garpa á Tyneside, menn á borð við Birkett og Bowden. Liðið var á réttri leið og litlu munaði að það kæmist aftur upp vorið 1937. Stríðið tók svo við í september 1939 og þar með var möguleiki Mathers úr sögunni. Keppni lá niðri á stríðsárunum og þegar friður komst á að nýju var nýr maður kominn í stjórastólinn á Tyneside.

Eftir stríðið stýrði Mather liðum Leicester City og Kilmarnock í Skotlandi en að því loknu snéri hann heim og settist að í Stoke. Hann lést í mars 1957.

Stjóraferill
FÉLAG
BYRJAR
HÆTTIR
LEIKIR
SIGRAR
JAFNTEFLI
TÖP
LEICESTER
1.8.1945
1.3.1946
2
0
1
1
NEWCASTLE
1.6.1935
1.9.1939
179
78
32
69
STOKE
1.10.1923
31.5.1935

523

222
122
179
SOUTHEND
1.8.1920
31.5.1921

45

16
8
21



Heim