Stjórarnir:

WILLIE McFAUL (1985-1988)

ANDY CUNNINGHAM
TOM MATHER
STAN SEYMOUR
GEORGE MARTIN
DUGGIE LIVINGSTONE
CHARLIE MITTEN
NORMAN SMITH
JOE HARVEY
GORDON LEE
RICHARD DINNIS
BILL McGARY
ARTHUR COX
JACK CHARLTON
WILLIE McFAUL
JIM SMITH
OSSIE ARDILES
KEVIN KEEGAN
KENNY DALGLISH
RUUD GULLIT
SIR BOBBY ROBSON
GRAEME SOUNESS

Willie var aldrei líklegur til að ná miklum árangri með lið Newcastle United. Hann hafði þjónað félaginu dyggilega sem markvörður og telst vissulega einn af öflugustu markmönnunum á SJP. Það var reyndar undarlegt að Willie skyldi fá samning. Hann fékk að spreyta sig í vináttuleik gegn Linfield árið 1966 og fékk á sig sjö mörk. Eitthvð hlýtur hann þó að hafa varið því Newcastle keypti hann á 7000 pund.

Willie var í landsliði Norður Íra en því miður fyrir hann þá var hann að keppa við Pat Jennings um markmannsstöðuna og það var ekki auðvelt að ryðja Pat úr vegi. Willie náði því aðeins að leika 6 landsleiki. Hann komst ekki strax í lið Newcastle en átti eftir að standa sig vel í þau níu ár sem hann lék með liðinu. Varði vítaspyrnu frá Andy Penman í undanúrslitaleik Fairs Cup gegn Rangers á Ibrox. Alls lék hann 355 leiki fyrir Newcastle og er eini markmaðurinn sem hefur skorað fyrir félagið í alvöru leik. Markið gerði hann í vítaspyrnukeppni gegn Pecsi Doza í Evrópukeppninni.

Willie lék undir stjórn fimm framkvæmdastjóra hjá Newcastle. Það er hins vegar nokkur ráðgáta hvers vegna hann sjálfur var ráðinn stjóri. Liðið var í rúst og því hefði verið nær að ráða vanan mann með bein í nefi. Hann entist samt þrjú tímabil og stóð sig vonum framar en var rekinn á því fjórða. Þá var liðið reyndar nýbúið að leggja Liverpool 2-1 á Anfield en engu að síður mátti Willie taka pokann sinn.

Hvað leikmannakaup varðar þá vakti það líklega mesta athygli þegar McFaul samdi við Brassann Mirandinha en hann varð fyrsti Brasilíumaðurinn til að leika í enska boltanum. Mirandinha gat gert ágæta hluti en það var engu að síður afar sjaldgæft að sjá hann eiga góðan dag. Gríðarlega eigingjarn leikmaður, sennilega sá eigingjarnasti sem hefur leikið fyrir félagið. Vondu dagarnir hans voru margir og áttu sennilega nokkra sök á að Willie var rekinn. Þá voru áhangendur liðsins allt annað en kátir með að óskasynirnir Beardsley, Waddle og Gascoigne hurfu á braut. En í heildina má segja að Willie hafi staðið sig vel við erfiðar aðstæður.

Stjóraferill
FÉLAG
BYRJAR
HÆTTIR
LEIKIR
SIGRAR
JAFNTEFLI
TÖP
NEWCASTLE
10.9.1985
10.10.1988
140
47
39
54

Heim