SKRÁNING Í NEWCASTLE KLÚBBINN Á ÍSLANDI

Þeir sem vilja skrá sig í klúbbinn geta haft samband við klúbbinn og fengið nánari upplýsingar. Annars er þetta einfalt mál og ætti ekki að vefjast fyrir mönnum. Munið að gefa upp nafn, heimilisfang, kennitölu, símanúmer og netfang. Gjaldið er kr. 2500 12 ára og yngri greiða ekkert árgjald. Takið nú við ykkur og sýnið að Toon-herinn á Íslandi sé kominn til að vera. Um leið og þú greiðir félagsgjaldið færð þú félagsnúmer, barmnælu klúbbsins og skýrteini. Sendingin til þín gæti tekið um 10 daga eftir að skráningin fer fram. 


Greiðslufyrirkomulag
Samþykkt var á síðasta aðalfundi klúbbsins að reyna nýtt greiðslufyrirkomulag til að draga úr kostnaði vegna útsendra gíróseðla. Framvegis eru menn beðnir að greiða beint inn á reikning félagsins, í gegnum netbanka eða með öðrum leiðum. Vonandi mælist þessi breyting vel fyrir og eins er vonandi að menn verði fljótir að greiða nýtt árgjald sem er klúbbnum lífsnauðsynlegt. Allar frekari upplýsingar er að finna hér.

Kt: 520303-3670
Reikningur: 1101- 05- 486996
Árgjald: 2500 kr.

Munið einnig að senda greiðslukvittun í tölvupósti, á hafsteinn@glerborg.is og newcastleis@newcastleis.com

 

Þegar menn hafa greitt árgjaldið teljast þeir fullgildir meðlimir í klúbbnum. Þá er rétt að minna á að þeir sem eru 12 ára og yngri  þurfa ekki að greiða félagsgjald.

 

Heim