Formannsspjallið - Hugleiðingar og aðrar pælingar.

 

Sendi félögum treyjur og félagsskírteini.  Í dag 6/2/07 sendi ég félögum treyjurnar sem ég keypti úti fyrir þá. Einnig sendi ég um 20 félagsskírteini til félaga sem greitt höfðu félagsgjaldið til klúbbsins. Fór einnig yfir félagalistann og sendi stjórninni bréf. Svaraði um 10 bréfum sem borist hafa til klúbbsins þar á meðal Rob Atkin í Newcastle.

Næsta hópferð verður um páskana.  Um páskana mun klúbburinn standa fyrir hópferð á St. James Park. Newcastle tekur þá á móti Arsenal. Fyrstir fá miða, en klúbburinn hefur tryggt sér 15 miða á besta stað og aðeins félagsmönnum verður útvegaðir miðar. Verð á miða er um 60 pund.

Viðurkenningar: Fyrir leikinn munum við veita viðurkenningar til leikmanna Newcastle. Einnig verður völlurinn skoðaður og húsakostur ásamt ýmsu fleyra. Gist verður á besta stað í borginni. Allir þeir sem hafa hug á að fara á leikinn eru beðnir að hafa samband við klúbbinn sem fyrst. Miðar verða ekki teknir frá. Greiða þarf strags 10.000.- inn á reikning klúbbsins ef menn ætla að fara.

Ferð á leik Newcastle - Aston Villa og Fullham - Newcastle.  Þann 31.janúar 2007 fóru fjórir félagar í Newcastle klúbbnum á tvo leiki með Newcastle. Annar leikurinn var heima en hinn í London. Við sáum Newcastle leggja Aston Villa en tapa síðan gegn Fullham. Ferðin var í allastaði hin mesta skemmtun sem og einnig mjög árangursrík hvað varðar að geta útvegað félögum miða. En við áttum fínan fund með yfirmanni miðasölunna, sem mun framvegis verða okkar tengiliður þegar okkur vantar miða í hópferðirnar. Sem kunnugt er eru nánast allir klúbbarnir í Englandi hættir að útvega miða sérstaklega til félaga eða annara samtaka. Er það vegna svartamarkaðs brasks sem viðgengist hefur um langt skeið.

Félagatalan lækkar. Ljóst er að taka þarf til í félagaskrá klúbbsins þar sem enn eru inni á skrá mjög margir sem bæði mættu á stofnfund og einnig þeir sem skráð hafa sig síðar en ekki greitt félagsgjöld. Mjög margir ekki fjögur árin og aðrir ekki eitt til tvö ár. Það er engin ástæða til að halda nöfnum inni í félagaskránni sem í raun eru ekki virkir Newcastle áhugamenn. Sumir skipta um félög og aðrið sjálfsagt hafa einhverjar aðrar ástæður. Ég tel það raunhæft að það gætu verið svona um 100 - 150 Newcastle félagar á Íslandi.

Afmæli framundan. Þann 18. febrúar 2007 verða 4 ár liðið síðan um 70 manns komu saman og ákveðið var að stofna Newcastle klúbb á Íslandi . Eins og gengur hefur helst úr lestinni og eða bættst í hópinn eftir gengi liðsins. En alltaf hefur ákveðinn harður kjarni verið til staðar sem stutt hefur klúbbinn og Newcastle í sætu og súru. Og í raun eru það hinir sönnu Newcastle félagar. Þessir félagar munu nú á 4ára afmæli klúbbsins koma saman til að halda upp á afmæli klúbbsins, laugardaginn 17. febrúar á Players kl. 20.00

Sendi bréf út til Newcastle UTD. Í dag sendi ég út formlegt bréf til Newcastle Utd þar sem ég tilkynnti um komu okkar 30. janúar. Jafnframt óskaði ég eftir fundi við einhvern ábyrgan aðila fyrir hönd klúbbsins úti. Samskonar bréf sendi ég til Juniors klúbbsins, en það væri skemmtilegt að koma á tengslum við hann fyrir yngstu félagana okkar í klúbbnum hér heima.

Heimildarmynd um stuðningsmanna klúbbana. Í dag barst Newcastle klúbbnum bréf frá Filmus ehf. & Róbert Douglas leikstjóra  þar sem óskað er eftir (við þig, einhvern úr stjórn eða gallharðan stuðningsmann Newcastle) vegna gerðar á heimildarmynd stuðningsklúbba Enska boltans á Íslandi .

Gisting í Newcastle. Í dag áttum við Hafsteinn langt samtal um ferðina á leik Newcastle og Aston Villa 31.jan. Fram kom hjá Hafsteini að gistipláss þennan tíma eru að verða uppbókuð á helstu hótelum í Newcastle. Menn þurfi því að hafa hraðann á að ákveða sig hvort þeir ætli að sjá þennan leik.

Stutt um spjallsíðuna frægu ! Síðustu daga hef ég skotist á spjallsíðuna títt umtöluðu. Það verður að segjast eins og er að Pálmi fyrrverandi ritari klúbbsins heldur þessari síðu á flottum level. Hann er allavega sá aðili sem virðist kunna það að fá menn til að spjalla um boltann og fá flottar pælingar sem gaman er að fylgjast með. Vonandi sjá aðrir þetta og taka til fyrirmyndar. Hef einnig kíkt á aðrar spjallsíður sem virðast meira fjalla um liðin, boltann og ýmsar pælingar um það hvernig liðunum muni ganga. Það er flott. Vonandi tekst Pálma að halda svona áfram - enda er Pálmi sannur Newcastle maður eins og ég þekki hann. Til lukku Pálmi.

Viðurkenningar veittar: Nú eftir að fyrstu kosningu á kosningasíðu klúbbsins er lokið, er ljóst að Shay Given verður afhent viðurkenning frá klúbbnum sem Besti leikmaður ársins 2006. Hann hlaut 46% atkvæða. Í öðru sæti var Scott Parker, sem spurning er hvort klúbburinn eigi að heiðra hann einnig og þá hvernig ? Það væri gaman að fá frekari ábendingar frá félögum í klúbbnum. Viðurkenningarnar verða veittar í janúar 2007.

Newcastle félagar á Suðurnesjum koma saman: Þegar Newcastle leikur gegn Chelsea ( úti ) ætla nokkrir félagar ( um 20 ) að koma saman á veitingastaðnum Trix í Keflavík. Þetta er eitt af markmiðum stjórnar að félagar í stærstu byggðakjörnunum myndi með sér hópa og komi saman til að horfa á leiki. Flott byrjun.

Umræðan á spjallinu: Nokkur umræða hefur farið fram á spjallsíðu m.a um heimasíðu klúbbsins, störf stjórnar, formanninn og fl. Allt um það er gott að segja svo langt sem menn hafa verið málefnalegir. Við í stjórninni höfum reynt að taka tillit til þess sem þar hefur verið bent á eftir fremsta megni ef gagnrýnin hefur verið sanngjörn. Þó hefur borið á því hjá sumum að menn virðast ekki kunna sér hófs í orðbraggði og telja sér þá trú að þeir verði meiri menn fyrir vikið. Það er miður. Svo langt hafa sumir gengið að saka stjórn um ritskoðun. Langt því frá, stjórnin hefur um langt skeið látið þessa síðu algjörlega eiga sig - þar til stjórnin þurfti að svara fyrir soraskrif ákveðinna aðila sem ekki hafa einusinni byrt greinar sínar undir nafni. Það hljóta allir sem á annaðborð eru Newcastle félagar að sjá það að skrif eins og " að það sé opinber stefna Newcastle klúbbsins á Íslandi að sleikja rassgatið á..." hljóti að kalla á viðbröggð. Auðvitað er það ekki opinber stefna klúbbsins - það vita allir og þetta í raun sett eingöngu fram til þess að sverta starfið hjá klúbbnum og þeirra sem gefa kost á sér að starfa fyrir klúbbinn. Við hefðum örugglega látið eitthvað svona lagað eiga sig ef þetta hefði verið sagt á spjallsíðum einhverra annara klúbba. En þetta kom frá aðila sem hefur verið mikilsmetin innan klúbbsins og vann frábært verk fyrir klúbbinn og hefur ekkert fengið annað en hrós frá stjórn og formanni. Því miður hafa þessir einstaklingar gert spjallsíðuna að engu - þeir hafa í raun skotið hana niður sjálfir. Það er öllum hollt af fá gagnrýni og aðhald - en þá gerir maður það á þann hátt að maður misbjóði ekki náunganum, og ætlast til að hlustað sé á mann.

Félögum fjölgar í klúbbnum: Þótt gengi Newcastle hafi ekki verið upp á marga fiska að undanförnu þá sækja alltaf einn og einn um aðild að klúbbnum. Nokkrir hafa hætt.

Ferð á leik í janúar: Eins og félagar hafa séð á heimasíðunni er fyrirhuguð ferð til Newcastle í endan á janúar 2007. Hugmyndin er að einhverjir stjórnarmenn fari á þennan leik m.a til þess að styrkja samböndin við klúbbinn ytra. Ég mun örugglega fara enda búinn að bóka flug. Næsta skref verður að fá fund með einhverjum ábyrgum aðila hjá Newcastle UTD. Það er von okkar að fleyri sláist í hópinn því reynt verður að gera ferðina ógleymanlega.

Eldri gögn klúbbsins: Eins og allir vita sem heimsóttu heimasíðuna hér áður, hafði Júlíus unnið þrekvirki í gagnasöfnun og greinum fyrir klúbbinn. Ætlunin hefur alltaf verið að koma þessu gagnasafni fyrir á heimasíðu klúbbsins, en ekki unnist tími til. Nú hefur Júlíus bannað klúbbnum að nota þetta efni. Stjórnin hefur ákveðið að virða þessa ósk Júlíusar allavega fyrst um sinn eða þar til ljóst er hvort hægt sé að banna klúbbnum að nota það efni sem sett er inn á svæði sem klúbburinn á.