|

Fréttir í ágúst 2006
27. ágúst
13 óhappatala Newcastle
Það er gaman að lesa slúðrið eftir leikinn við Aston Villa. M.a er þar sagt að tólf sigrar hafi unnist frá því að leikurinn við Charlton vannst og þetta hafi verið 13 leikurinn. Annað sem sagt er; Bæði Nobby Solano og James Milner hafi ekkert haft að gera í leikinn þar sem þeir báðir léku með Aston Villa á síðustu leiktíð. Hvað um það, Bretar eru skemmtilegir og fótbolti er þeirra hjartans mál.
27. ágúst
Obafemi meiddur.
Eins og þeir sem sáu leikinn hjá Newcastle gegn Aston Villa var nýji framherjinn Obafemi Martins í treygju númer 9. Hann lenti í því að þurfa að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Samkv. fréttum eru meiðslin ekki alvarleg. Það verður ekki sagt að risið hafi verið hátt á okkar mönnum í þessum leik. Samspilið gekk illa og vörnin var oft á tíðum hálf vönkuð og sundurlaus. Roeder gerði breytingar strags í hálfleik á liðinu. Vonandi er þetta bara byrjunar skrekkur, en það verður ekki tekið frá Villa mönnum að þeir léku oft á tíðum fínan bolta og pressuðu stíft. GRL
27. ágúst
Aston Villa 2 - Newcastle 0
Stuttar fréttir:
Tvö íslensk nöfn grafin í stein á ST. James park.
Tveir félagar hafa fengið nöfn sín grafin á stein við St. James park. Nýlega fékk Sígríður K Eysteinsdóttir nafnið sitt á besta stað. Hún er annar Íslendingurinn sem er með nafnið sitt þar. Hér á myndinni er hún með köttinn Shearer.
Langar þig á leik á ST. James park ??
Við í stjórninni erum farnir að huga að hópferð á heimaleik okkar manna í haust og eftir áramót. Það er því nauðsynlegt fyrir okkur að þið sendið okkur e-mail og látið okkur vita um hug ykkar; newcastleis@newcastleis.com
26. ágúst
NR 9
Það var eins og við sögðum hér á heimasíðunni okkar allra fyrstir að Nígeríu maðurinn Obafemi Martins mundi fá treygju nr. 9.
Það verður spennandi að sjá nýja leikmanninn okkar taka þessa gríðalega miklu ábyrgð og stöðu mesta framherja og leiðtoga Englands og þá um leið Newcastle. Svo er að heyra að allir leikmenn Newcastle eru fanta ánægðir með komu Martins. Nú verður fróðlegt að sjá hvaða leikmenn Roeder hefur upp í erminni áður en leikmanna salan lokar !?? GRL
24. ágúst.
Fyllir í skarð Alan og verður nr. 9
Roeder telur að Martins eigi að fylla skarð Alans og klæðast treygju nr 9. Ef af því verður er það mikill heiður. Við hjá Newcastle klúbbnum á Íslandi bjóðum Ombafemi Martins velkominn í okkar raðir. GRL
24. ágúst
Newcastle gerði 0-0 jafntefli við FK Ventspils
Þessi dagur var viðburðaríkur í Newcastle borg og mikill gleðidagur þar. Nýr framherji af bestu gerð undirritaði samning og Newcastle gerði jafntefli við FK Ventspils, sem tryggði Newcastle áfram. Þess má geta að Steve Harper lék sinn fyrsta leik í markinu og stóð sig mjög vel.
Aðeins voru 30,498 áhorfendur á þessum leik sem sætir mikilli furðu í Newcastle.
Enn og aftur eru NEWCASTLEIS.COM lang fyrstir með fréttir af okkar mönnum. GRL
24. ágúst kl. 16.30 GLÆNÝ FRÉTT
Ombafemi Martins lenti á Newcastle flugvellinum kl. 16.15 að Íslenskum tíma.
Þykir það því örugg að hann sé lentur í Newcastle og sé að ganga til liðs við klúbbinn góða.
GRL
Samningurinn í höfn, kl. 16.45
Samningurinn er í höfn. Nú er bara eftir læknisskoðun og önnur tæknileg atriði.
P.S takið eftir skirtunni sem kappinn er í þegar hann gengur út úr flugvélinni, og svo 15 mínútum síðar við undirritun. GRL
24. ágúst
Bridge og Huth. Glenn Roeder vonast til að geta gert tilboð í tvíeikið hjá Chelsea Wayne Bridge og Robert Huth áður en leikmannasala lokar í næstu viku. Þá er næstum ljóst að kapphlaupið um miðjumanninn Thomas Gravesen frá Real Madrid sé úr sögunni. Það er því alveg ljóst að Glenn sefur lítið um þessar mundir.
GRL
21.ágúst
Á leið til Newcastle.
Nígeríu leikmaðurinn Obafemi Martins er á leið til Newcastle. Samkvæmt fréttum verður hann klár í slaginn um helgina.
Obafemi hefur leikið með Nígeríska landsliðinu en var hjá Inter Milan.
GRL
Annað í fréttum:
Juventus hefur gert tilboð upp á £4.5m í Boumsong, en Graeme Souness greiddi Rangers £8.5m fyrir hann á sínum tíma. GRL
20. ágúst
Bobby undir hnífinn;
Sir Bobby Robson fyrrverandi þjálfari Newcastle er enn og aftu á leið undir hnífinn. Þessi 73 ára hetja tekur þessu létt og segist halda áfram trauður og hress þegar því er lokið. Við hjá Newcastle klúbbnum á Íslandi sendum þessum fyrrum vini okkar bestu kveðju og von um skjótan bata. GRL
20. ágúst
Villa gerir tilboð í Milner;
Aston Villa hefur ákveðið að gera annað tilboð í James Milner hjá Newcastle. Eins og fram hefur komið er Villa einnig á eftir Gravesen.
1. SIGUR Í HÖFN
Newcastle - Wigan Lokatölur
2-1
"Beint" Sagt frá um leið.
65 mínútu 2-1 Shola Ameobi
59 mínúta 1-1 Lee Mc Culloch
38 mínuta 1-0 Scott Parker
51.569 áhorfendur á leiknum. GRL
Owen frá það sem eftir er: Roeder hefur sagt að líkur á að Owen leiki með á næsta tímabili séu nánast engar. Þett er að sjálfsögðu mikið áfall fyrir Newcastle. Sagan endalausa um Owen heldur því áfram, og Roeder leitar og leitar að leikmönnum og fer hver að verða síðastur í þeim málum.
17. ágúst:
Dirk Kuyt til Liverpool. Þá er ljóst að hollendingurinn kemur ekki til Newcastle. Öruggar heimildir segja að hann sé að ganga til liðs við Liverpool.
17.ágúst 2006
Roeder yfir sig hrifinn eftir að Hollendingar unnu 4-0 á Írum. Það er alveg ljóst að Dirk er næstum öruggur að leika með Newcastle eftir frammistöðuna í kvöld. Roeder er gjörsamlega yfir sig hrifinn að leikmanninum og " hann er nákvæmlega ákkúrat maðurinn sem okkur vantar" sagði Roeder." Það eru fáir sem hafa áhuga á mér, en það er einn sem ég hef verulegan áhuga " sagði Kuyt. NEWCASTLE ?? GRL
16.ágúst 2006
Enn og aftur verður Glenn Roeder í njósnaleiðargri til að fylgjast með hollendingnum Dirk Kuyt . Líkurnar á að Newcastle sigri í kapphlaupinu um þennan kappa aukast dag frá degi. Slúðurblöðin segja að í raun sé Roeder að fara til Dublin til þess að leggja lokahöndina á að ná samningum í höfn. GRL
13.ágúst 2006
Thomas Gravesen hefur opnað möguleikana á því að fara til t.d Newcastle samkvæmt nýjustu fréttum. Þó eru fleyri félög inni í myndinni sem hafa áhuga að ná í þennan kappa. Slagurinn stendur aðalega á milli Tottenhams og jafnvel tveggja annara félaga í Englandi. Gravesen saði Sunday Times fyrir helgina að hann hefði þó mestan hug á að fara til "Tyneside ". Umboðsmaður hanns John Sivebaek neitaði því ekki að jafnvel yrði búið að landa samning fyrir næsta þriðjudag við Newcastle Utd. " Það er kanski lengri tími ".
Gravesen sagði; " Newcastle er fræbær klúbbur með frábæra stuðningsmenn og það yrði heiður að leika með mönnum eins og Michael Owen ". GRL
13.ágúst 2006
Parker er vongóður
um að verða valin í enska landsliðið af nýja landsliðsþjálafaranum.
" Þetta var bara draumur þegar ég var yngri en nú verð ég svo sannarlega að sanna mig með Newcastle" segir Parker. " GRL
10.ágúst 2006
Shay Given varar Roeder við að tíminn fari að renna út fyrir almennileg kaup á leikmönnum fyrir næsta tímabil og aðeins nokkrir dagar séu til stefnu þegar deildin hefjist. Fyrsti leikurinn verður eftir aðeins 10 daga gegn Wigan.
Given segir: "Top leikmenn vilja leika í Evrópu. Við vitum að við verðum að standa okkur, og að okkur takist að spila vel í UEFA Cup, þá er eins líklegt að góðir leikmenn vilji spila hjá okkur ."
"Enn eru Dirk Kuyt hjá Feyenoordand og Thomas Gravesen hjá Real Madrid , ásamt fullt af öðrum enn inni í myndinni " segir Roeder ákveðinn. GRL
10.ágúst 2006
UEFA Cup
Newcastle vann FK Ventspils í Riga í dag. 1-0 Varnarmaðurinn Titus Bramble var hamingjusamur þegar hann náði að skora mark fyrir Newcastle." Það skiptir ekki máli hver skoraði þetta mark - aðalatriðið var að vinna þennan leik " sagði Bramble eftir leikinn. GRL
GRL

Newcastle United
vonast til að geta hafið viðræður við Inter Milan um einn hraðskreiðasta leikmann evrópu í fótbolta ; Obefemi Martins. Roeder sagði: "Ef Martins verður fáanlegur þá höfum við mikinn áhuga á að fá hann í okkar
raðir."
Eins og allir vita er nú búið að selja Amady Faye til Charlton Athletic. GRL
9.ágúst 2006
Vefurinn hefur verið í smá fríi vegna sumarleyfa.
Merkisdagur hjá systir Jackie Milnburn var nú fyrir stuttu þegar hún heimsótti James Park ásamt safninu sem geymir verðlaun og viðurkenningar þessa mikla Newcastle kappa.Jean eins og hún heitir var himin lifandi yfir því hversu nafn bróður síns væri mikils metið enn þann dag í dag. Hér heldur hún á treygju bróður síns.
Leiknum lauk Nufc 2 - PSV 3
STAÐAN Í LEIK þegar 72 min er lokið:
Newcastle Utd 2(Luque) - PSV Eindoven 3
STAÐAN Í LEIK þegar 68 min er lokið:
Newcastle Utd 1 (Solano Ameobei)- PSV Eindoven 3
Næstu leikir Newcastle: ( vináttuleikir )
Newcastle Utd - PSV Eindoven 29. júlí
Newcastle Utd - Villarreal CF 05. ágúst GRL |