|

Fréttir í ágúst 2008
31.Ágúst
Hvað gerist í dag ?
Einhver miskilningur varð hjá mér varðandi lokun félagskiptagluggans, hann lokar víst á morgun mánudag. Var það samþykkt af forráðamönnum úrvalsdeildarinnar að framlengja um einn dag vegna þess að 31 ágúst lenti a sunnudegi. Liðin hafa því mánudaginn til að ganga frá kaupum og sölum á leikmönnum. Engu að síður verður vel fylgst með hér á newcastleis.com
Þetta hefur helst gerst í dag:
# Það sem helst er að frétta í morgun er að samkvæmt ýmsum miðlum þá hefur Newcastle boðið Michael Owen nýjan þriggja ára samning. Sagt er að Newcastle ætlar sér að selja Owen, samþykki hann ekki þetta tilboð.
# Ignacio Gonzalez miðjuleikamður Valencia er á leið til Newcastle á láni út þetta tímabil. Sagt er að hann sé búinn að gangast undir læknisskoðun á St James´ Park það eigi bara eftir að klára pappírsvinnuna fyrir miðnætti. Ignacio María González Gatti eins og hann heitir fullu nafni er 26 ára og er landsliðsmaður Uruguay.
# Hull fær Kamil Zayette varnarmann Young Boys að láni út tímabilið. Zayette hafði verið sterklega orðaður við Newcastle og æfði með liðinu síðasta föstudag.
# Michael Owen var ekki valinn í landsliðshóp Englendinga sem mætir Andorra og Króatíu á næstu dögum. Fabio Capello gaf þá skýringu að Owen væri ekki kominn í fulla leikæfingu.
(FB)
30.Ágúst
Arsenal - Newcastle 3-0
(Van Persie 18(vsp), 41, Denilson 59)

Einstefna á Emirates
Lið Newcastle átti ekki möguleika gegn frábæri liði Arsenal í dag á Emirates Stadium og var 3-0 sigur heimamanna síst of stór. Það sást berlega í þessum leik hvað leikmannahópur Newcastle er hrikalega þunnur. Van Persie kom Arsenal yfir úr vítaspyrnu á 18 mínútu eftir að N.Zogbia fékk boltann í höndina, algjört óviljaverk hjá N´Zogbia en Rob Styles dómari benti strax á vítapuntkinn. Given átti ekki möguleika í öruggt víti Van Persie. Hann bætti svo við öðru marki rétt fyrir lok fyrri hálfleiks en þá rak hann endahnútinn á frábæra sókn Arsenal og Given átti ekki möguleika að verja góða spyrnu hans. Newcastle fékk aðeins eitt tækifæri í fyrri hálfleik var það Owen sem fékk gullið tækifæri til að minnka muninn rétt fyrir lok fyrri hálfleiks en flækjufóturinn Ameobi brá sér í hlutverk varnarmanns hjá Arsenal og bjargaði marki fyrir heimamenn. Newcastle átti góðan sprett í seinni hálfleik og átti Butt t.d skalla í slánna og Guthrie átti fínt skot sem Almunia varði vel. En Arsenal bætti við þriðja markinu stuttu eftir þennan sprett hjá Newcastle og var vörn Newcastle illa leikinn eins go svo oft í leiknum. Shay Given átti enn einn stórleikinn fyrir Newcastle og bjargaði hann Newcastle frá miklu stærra tapi með góðum markvörslum bæði í fyrri og seinni hálfleik.
Liðin í dag:
Arsenal:
Almunia, Sagna, Toure, Gallas, Clichy, Eboue (Walcott 72), Fabregas, Denilson (Vela 69), Nasri, Adebayor, Van Persie (Song)
Varamenn: Fabianski, Ramsey, Djourou, Bentner.
Gul spjöld: Fabregas, Nasri.
Newcastle: Given, Beye (Edgar 89), Colo, Taylor, Enrique (Bassong 44), Butt, Zog, Guthrie, Jonas (Barton 89), Ameobi, Owen,
Varamenn: Harper, Tozer, Donaldson, Ranger,
Gul spjöld: Colo, Given.
Skot á mark: Ars 20 (14) - Nufc 3 (1)
Hornspyrnur: Ars 12 - Nufc 1
Áhorfendur: 60.067
Maður leiksins: Shay Given (Bjargaði liðinu frá enn stærra tapi).
(FB)
30.Ágúst

Newcastle mætir Tottenham
Dregið var í þriðju umferð Carling bikarsins í dag og fékk Newcastle heimaleik gegn bikarhöfunum Tottenham. Leikurinn mun fara fram 23 eða 24 september. Hér er svo allur drátturinn:
Arsenal - Sheffield United Brighton eða Manchester City - Derby County Burnley - Fulham Portsmouth - Chelsea Blackburn - Everton Rotherham - Southampton Swansea City - Cardiff City Ipswich Town - Wigan Stoke City - Reading Leeds - Hartlepool Watford - West Ham Manchester United - Middlesbrough Liverpool - Crewe Aston Villa - QPR Sunderland - Northampton Newcastle - Tottenham
(FB)
29.Ágúst

Arsenal - Newcastle
Newcastle mætir Arsenal í síðdegisleik á laugardag kl 16:30. Af meiðslum er það að frétta að Martins, Viduka, Duff, Cacapa, og Carroll eru allir frá vegna meiðsla. En samkvæmt BBC þá er hugsanlegt að Joey Barton verði í leikmannhópnum. Þá má telja líklegt að Owen verði í byrunarliðinu í fyrsta sinn á þessu tímabili. Leikmannhópurinn er svona: Given, Harper, Beye, N'Zogbia, Taylor, Coloccini, Enrique, Bassong, Tozer, Edgar, Butt, Geremi, Guthrie, Barton, Jonas, Smith, Owen, Donaldson, Ranger.
Dómari leiksins verður Rob Styles
Leikur liðanna á Emirates Stadium í síðasta tímabili endaði með 3-0 sigri Arsenal. Síðasti sigur Newcastle á heimavelli Arsenal var í desember 2001 en þá unnu okkar menn 1-3 með mörkum frá Andy O´Brien, Alan Shearer og Laurent Robert.
(FB)
29.Ágúst

Milner seldur til Aston Villa
Newcastle hefur selt James Milner til Aston Villa og er kaupverð ekki uppgefið. En það er talið vera á bilinu 10 - 12 milljónir punda. Milner kom til Newcastle sumarið 2004 frá Leeds og spilaði hann 136 leiki og skoraði 11 mörk með Newcastle. Hann fór á láni til Villa tímabilið 2005/06 og hefur sífellt verið orðaður við Villa síðan. Kevin Keegan segir að salan á Milner hafi verið það rétta í stöðunni fyrir alla aðila. "Villa kom með mjög gott tilboð í Milner sem við töldum vera ásættanlegt. Á endanum var það mín ákvörðun að selja hann, Ég óska honum alls hins besta og það hefur verið frábært að vinna með honum".

Keegan segir í viðtali á heimsíðu Newcastle að hann reikni með að fá þrjá til fjóra leikmenn áður en markaðurinn lokar á sunnudagskvöld. "Ég tel okkur eiga góða möguleika á að fá 3 - 4 leikmenn. Peningurinn sem við fengum fyrir Milner verður notaður í leikmannkaup og þó svo að Milner hefði ekki verið seldur þá hefði ég haft þennan pening til umráða".
Mike Ashley og Kevin Keegan funduðu á síðasta miðvikudag og var Keegan mjög ánægður með fundinn.
"Mr Ashley lætur okkur fá peningana en það er undir okkur komið að ná í réttu leikmennina. Ef maður selur leikmenn þá verður maður að kaupa topp leikmenn í staðinn. Það getur enginn sagt að þeir leikmenn sem við höfum keypt hingað til séu ekki klassa leikmenn" sagði Keegan. Hann staðfesti svo að Kamil Zayette væri að æfa með Newcastle þessa dagana. Þessi 23 ára strákur frá Guiena er samningsbundinn svissneska liðinu Young Boys. "Hann getur spilað nokkrar stöður á vellinum og er leikmaður sem myndi styrkja okkur" sagði Keegan að lokum.
(FB)
28.Ágúst

Félagsgjald
Eins og félagsmenn hafa séð hér til hliðar þá er verið að hvetja menn til að borga félagsgjaldið fyrir þetta tímabil. Á síðasta tímabili gekk ekki nógu vel að fá menn til að borga félagsgjaldið og nú verða menn að gera betur. Það kostar kannski ekki mikið að halda út þessari síðu en ég legg alveg geysilega mikla vinnu og tíma í að gera hana sem besta. Eflaust eru einhverjir sem eru ekki ánægðir með hana en það er bara þannig að ekki hafa allir sömu skoðanir á hlutunum. Ég held að ég geti fullyrt að þessi síða sé en best uppfærða síðan hér á landi og ef menn vilja halda því þannig áfram þá verða Newcastle menn allir sem einn að standa saman. Það voru ekki nema um rúmlega 60 sem borguðu félagsgjaldið á síðasta tímabili sem er alveg skelfilega lélegt af um 300 manna hópi. Það er geysileg fjölgun á heimsóknum á síðuna í þessum mánuði og undanfarna viku hafa verið um 250 heimsóknir á síðuna á hverjum degi sem er mjög ánægjulegt. Ef einhverjir geta reddað auglýsingu frá einhverju fyrirtæki hér á síðuna gegn vægu gjaldi (eins og sjá má hér að ofan) þá mega menn endilega gera það. Sendið bara mail á newcastle@newcastle.is
Menn ættu ekki að spyrja "hvað ætlar klúbburinn að gera fyrir mig ? heldur hvað get ég gert fyrir klúbbinn ?" Klúbburinn ætlar að reyna stefna á hópferð í vetur og verður það tilkynnt þegar miðamál og annað skýrist.
Gerum þetta að alvöru TOON her á Íslandi stöndum saman.
TOON ARMY kveðjur
Friðrik Bergmanns (Rikki)
27.Ágúst
Milner vill fara
Newcastle hefur staðfest að James Milner vilji fara frá félaginu. "Hann hefur sett inn skriflega beiðni um að vera settur á sölulista. Enn hefur ekkert tilboð sem Newcastle telur vera sanngjarnt borist í Milner en ef það gerist fyrir vikulok, þá verðum við að skoða það, þar sem það er hans ósk að fara annað". Segir í yfirlýsingu á heimasíðu Newcastle "Félagið er mjög ósátt með að James sjái framtíð sína ekki á St James´ Park. Hann er mikilvægur leikmaður og það er bara eitt ár síðan hann skrifaði undir langtímasamning.".
Þetta eru slæmar fréttir fyrir Newcastle því Milner hefur verið lykilmaður í byrjunarliðinu og er að taka miklum framförum. Keegan hefur sagt að hann eigi klárlega heima í A landsliði Englendinga og er mun betri en sumir sem eru að fá tækifæri þar.
(FB)
27.Ágúst

89% vilja fá Saviola
Niðurstaða könnunarinnar er afgerandi, menn vilja fá Javier Saviola til Newcastle enda er algjört sóknarmannahallæri hjá Newcastle þessa dagana. Hann myndi vafalaust styrkja leikmannahóp Newcastle og við verðum að bíða fram til mánaðamóta til að sjá hvort af þessu verður. Nú er spurt hvort það eigi að semja við Owen.
(FB)
27.Ágúst

Keegan: "Vill ekki missa Owen og Milner"
Kevin Keegan hefur áhyggjur af því að missa Owen og Milner. Enn hefur ekki verið samið við Owen en hann er á síðasta ári samnings síns við Newcastle. Milner er sífellt orðaður við Aston Villa en Milner er í miklu uppáhaldi hjá Keegan. "Michael Owen er ekki bara hvaða leikamður sem er, hann er mjög sérstakur leikmaður. Hann er mjög mikilvægur fyrir Newcastle og ef aðrir sjá það ekki, þá er það þeirra vandamál. Ég veit hverskonar mannskap þú þarft hjá svona klúbbi. Maður getur beðið í langan tíma eftir slíkum mannskap sem tekur klúbbinn áfram og hann er einn af þeim. Mitt starf er að stjórna klúbbun og það er það sem ég er að gera. Ég er bara að segja hlutina eins og þeir eru". sagði Keegan um samnigsmál Owen. Um Milner að þá voru útsendarar frá Aston Villa á leiknum í gær og sáu Milner eiga mjög góðan leik og má reikna með að þeir reyni enn einu sinni að bjóða í hann. Keegan hefur mikla trú á Milner og vill alls ekki missa hann. "James á þrjú ár eftir af samningi sínum og ég vill ekki ræða um það að missa hann. Hann er alveg topp náungi, hjá klúbbnum, á æfingasvæðinu. Hann verður betri með hverjum leik". sagði Keegan að lokum. Samkvæmt netmiðlum mun Keegan funda með Mike Ashley eiganda Newcastle í dag um ýmis málefni, leikmannamál, samningsmál ofl.
(FB)
26.Ágúst
Coventry - Newcastle 2-3
(Morrison 45, Dann 90) - (Dann 21 (sjm),
Milner 38, Owen 97)

(Owen fagnar ásamt Colo og Enrique)
Michael Owen til bjargar aftur
Enn kemur Michael Owen til bjargar Newcastle. Hann skoraði sigurmarkið í framlengingu gegn Coventry á Rioch Arena í annari umferð Carling bikarkepninnar eftir frábæra sendingu frá Jose Enrique á 97 mínútu. Newcastle hafði þó nokkra yfirburði í leiknum en náði ekki að nýta færin sem skyldi. Í fyrri hálfleik var nánast um einstefu að ræða á mark Coventry og var James Milner sem lék í framlínu Newcastle í kvöld í essinu sínu. Hann lagði upp fyrsta markið og skoraði svo annað. Clinton Morrison minnkaði munin á lokamínútu fyrri hálfleiks með flottu marki. Það sama var upp á teningnum í seinni hálfleik en sem fyrr náði Newcastle ekki að nýta færin sín. Það var svo algjörlega gegn gangi leiksins að Coventry jafnaði með síðustu spyrnu venjulegs leiktíma, þá átti Aron Einar Gunnarsson svakalegt innkast beint inná markteig Newcastle (sem hann gerði nokkrum sinnum í leiknum) og þar var mættur Scott Dann. Hann stökk manna hæst og skallaði í markið. Leikurinn fór því í framlengingu og náði Newcastle að tryggja sér sigur á 97 mínútu. Owen sem hafði komið inná fyrir Geremi á 75 mínútu skoraði sigurmarkið eftir frábæra sendingu frá Enrique. Coventry reyndi allt sem þeir gátu að jafna leikinn en vörn Newcastle hélt og er því Newcastle komið í þriðju umferð Carling bikarsins.
Lið Newcastle:
Given, Beye, Colo, Bassong, Enrique, Butt, Geremi (Owen 75), Zog, Guthrie, Jonas, Milner.
Varamenn: Harper, Taylor, Edgar, Tozer, Donaldson, Ranger.
Áhorfendur: 19,249
Dómari leiksins: Tony Bates.
Skot á mark: Cov 13 (7) - Nufc 21 (15)
Hornspyrnur: Cov 8 - Nufc 19
Maður leiksins: James Milner.
(FB)
26.Ágúst

Akureyringur í Coventry
Í liði Coventry er íslendingurinn Aron Einar Gunnarsson, en hann kom til enska liðsins í júní frá hollenska liðinu AZ Alkmaar. Aron sem er 18 ára leikur á miðjunni og hefur byrjað inná í öllum leikjum Coventry á þessu tímabili (3 í deild og 1 í deildarbikar). Samkvæmt einkunargjöf Sky Sports er Aron með betri mönnum þar og er með meðaleinkunina 7,1. Aron er fæddur á Akureyri og spilaði með Þór upp yngri flokkana áður en hann var seldur AZ Alkmaar árið 2006. Aron hefur á fjóra landsleiki með A landsliði Íslands og sex leiki með U21 liðinu. Hans uppáhaldsleikmenn eru Wayne Rooney og Alan Smith.
(FB)
25.Ágúst
 
Coventry - Newcastle
Kevin Keegan og félagar mæta Chamionship liðinu Coventry City í annari umferð deildarbikarsins á Rioch Arena annað kvöld. Leikurinn hefst kl 18.45 að íslenskum tíma og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 sport. Obafemi Martins og Damien Duff verða sennilega ekki með vegna þeirra meiðsla sem þeir hlutu í leiknum geng Bolton. Michael Owen mun því líklega spila í framlínu Newcastle en óvíst er hver mun spila við hlið hans. Alan Smith og Shola Ameobi eru ekki orðnir alveg leikfærir en eru samt í leikmannahópnum. Mark Viduka er ekki klár fyrr en eftir 1-2 vikur þannig að Keegan á við smá framherjavandamál að stríða þessa dagana. Það sama má segja um Andy Carroll, hann hefur átt við ökklameiðsli að stríða og tók t.d ekkert þátt í undirbúningstímabilinu.
Hópurinn er svona:
Given, Harper, Beye, N'Zogbia, Taylor, Coloccini, Enrique, Bassong, Edgar, Butt, Geremi, Milner, Duff, Guthrie, Jonas, Smith, Owen, Ameobi, Donaldson.
Síðasti leikur Newcastle gegn Coventry á þeirra heimavelli var tímabilið 2000/01 í úrvalsdeildinni og endaði sá leikur 2-0 fyrir Newcastle. Það voru þeir Alan Shearer og Kevin Gallagher sem skoruðu mörkin.
(FB)
25.Ágúst

Slúðrið
# Javier Saviola gaf til kynna í gær að hann færi hugsanlega á láni frá Real Madrid og er Newcastle líklegast til að krækja í kappann. Saviola hefur aðeins spilað níu deildarleiki með Madrid eftir að hann kom frá Barcelona.
# Franski landsliðsmaðurinn Florent Malouda (28ára) sem leikur á vinstri kantinum hjá Chelsea er orðaður við Newcastle og er hann sagður kosta um 10 milljónir punda. En það veltur á því hvort Chelsea nær að krækja í Robinho frá Real Madrid.
# Ef Newcastle nær ekki að kaupa Malouda þá er Antonio Valencia leikmaður Wigan næst kostur hjá Keegan. Valencia er frá Ekvador og getur spilað á hægri og vinstri kanti. Hann hefur spilað 29 landsleiki fyrir þjóð sína og skorað í þeim 4 mörk.
# Eins og vitað er þá er Keegan að leita af vinstri bakverði og er tékkneski landsliðsmaðurinn Michal Kadlec hjá Sparta Prag einn af þeim. Kadlec er 23 ára og á 3 landsleiki með aðalliði Tékka. Hann hefur spilað 123 leiki með Sparta Prag og skorað í þeim 4 mörk.
(FB)
23.Ágúst
Newcastle - Bolton 1-0
(Owen 71)

(Owen skallar í markið, Grétar Rafn fylgist með)
Shay Given og Michael Owen björguðu deginum
Enn var Shay Given hetja dagsins, en hann varði vítaspyrnu frá Kevin Nolan í síðari hálfleik þegar staðan var 0-0. Leikmenn Newcastle fengu ágætis færi til að skora í fyrri hálfleik en fyrrum Newcastle leikmaðurinn Andy O´Brien var sem klettur í vörn gestanna ásamt öðrum varnarmönnum Bolton. Leikur Bolton var vel skipulagður og þurfti Keegan að endurskipuleggja leik Newcastle í seinni hálfleik. Keegan þurfti að byrja á því að gera eina breytingu á liðinu því Damien Duff þurfti að fara útaf vegna meiðsla en hann og fyrrnefndur Andy O´Brien lentu í samstuði og Duff haltraði af velli rétt fyrir leikhlé. Geremi kom inná fyrir Duff og átti hann eftir að setja mark sitt á leikinn. Milner var færður í sóknina og Geremi tók stöðu Milner á miðjunni. Keegan þurfti svo fljótlega að gera aðra breytingu á liðinu en Obafemi Martins varð að fara af velli vegna nárameiðsla. Inná kom enginn annar en fyrirliðinn Michael Owen.
Bolton fékk svo vítaspyrnu á 58 mínútu þegar Steven Taylor varð fyrir því óláni að fá boltann í höndina þegar Grétar Rafn sendi boltann fyrir markið og Joey O.Brien skallaði boltann áfram, boltinn fór greinilega í höndina á Taylor og ekkert vafamál með vítaspyrnudóminn. Kevin Nolan stillti upp boltanum en Shay Given gerði sér lítið fyrir og varði frábærlega við geysilegan fögnuð heimamanna. Owen fékk í kjölfarið dauðafæri en skallaði beint á Jussi Jaaskalainen. Allt leit út fyrir að þetta yrði ekki dagur Newcastle þar til á 71 mínútu en þá átti Geremi frábæra sendingu inn á vítateig Bolton og þar var mættur Michael Owen og í þetta sinn gerði hann allt rétt og skallaði framhjá Jaaskalainen. Milner fékk svo ágætt færi til að klára leikinn en skalli hans fór yfir markið. Bolton náði svo í lokin að pressa nokkuð á mark Newcastle og fékk Kevin Nolan tvö góð færi en vörn Newcastle með þá Taylor og Coloccini í broddi fylkingar náðu að halda hreinu. 1-0 sigur í fyrsta heimaleiknum og 4 stig eftir tvær umferðir er nokkuð gott. Ekki er enn komið í ljós hversu alvarleg meiðslin hjá Martins og Duff eru en það ætti að koma í ljós á morgun eða á mánudag. Eftir leik sagði Keegan "Ég missti báða sóknarmennina útaf í dag og ég var með Alan Smith og Michael Owen á bekknum. Smith á við meiðsli að stríða og ég hafði sagt honum að ég myndi ekki nota hann nema í neyð. Svo Owen leit ég á Michael og hann sagði "gefðu mér langa upphitun". Ég gaf honum 20 sekúndur og setti hann inná. Mikið hefur verið ritað um þá staðreynd að Michael er á síðasta ári samnings síns en ég held að við munum halda honum, ég held við séum nálægt því að semja við hann.
Liðin í dag:
Newcastle
Given, Beye, Taylor, Coloccini, N´Zogbia, Milner, Butt, Gutrie, Jonas, Martins (Owen 53), Duff (Geremi 46).
Varamenn: Harper, Enrique, Bassong, Smith, Edgar.
Gult spjald: Taylor
Bolton
Jaaskelainen, Steinsson, Cahill, Andrew O'Brien, Samuel, Joey O'Brien (Mustapha 85), Nolan, Muamba, Taylor (Gardner 65), Davies, Elmander (McCann 15).
Varamenn: Al Habsi, Hunt, Dzemaili, Shittu.
Gul spöld: Joey O´Brien, McCann
Áhorfendur: 47,711
Dómari Leiksins: Steve Bennett.
Skot á mark: Nufc 10 (8) - Bol 9 (4)
Hornspyrnur: Nufc 4 - Bol 6
Maður leiksins: Shay Given (Varði vítaspyrnu frá Kevin Nolan frábærlega og kveikti í leikmönnum Newcastle)

Obafemi Martins í baráttu við Grétar Rafn Steinsson Jonas Gutierrez átti fína spretti í dag
(FB)
21.Ágúst

Newcastle - Bolton
Fyrsti heimaleikur Newcastle er á morgun laugardag gegn íslendingaliðinu Bolton, en þar spila þeir Grétar Rafn Steinsson og Heiðar Helguson. Af liðsfréttum hjá Newcastle er það helst að frétta að Michael Owen er orðinn leikfær og verður á bekknum.
Steven Taylor er einnig klár í leikinn en hann meiddist lítillega í leiknum gegn Man Utd um síðustu helgi. Enginn ný meiðsli hafa komið upp hjá öðrum.
Leikmannahópurinn er svona:
Given, Harper, Beye, N'Zogbia, Taylor, Coloccini, Enrique, Bassong, Edgar, Butt, Geremi, Milner, Duff, Guthrie, Gutierrez, Martins, Smith, Owen.
Dómari leiksins verður Steve Bennett
Newcastle hefur gengið ágætlega gegn Bolton undanfarin ár ef frá er skilið tímabilið 2006/07 en þá sigraði Bolton 1-2.
Gengi Newcastle gegn Bolton á St James´ Park í úrvalsdeildinni:
2007/08: 0-0 2006/07: 1-2 Ameobi 2005/06: 3-1 Solano, Shearer, Ameobi 2004/05: 2-1 Bowyer, Dyer 2003/04: 0-0 2002/03: 1-0 Jenas 2001/02: 3-2 Shearer 2, Bellamy 1997/98: 2-1 Barnes, Ketsbaia 1995/96: 2-1 Kitson, Beardsley
(FB)
21.Ágúst

Given kosinn maður leiksins gegn Man Utd
Stuðningsmenn Newcastle völdu Shay Given mann leiksins gegn Man Utd síðasta sunnudag og var hann með nokkra yfirburði á næsta mann. Shay Given átti sannkallaðann stórleik á Old Trafford og sýndi enn einu sinni hversu megnugur hann er. Jonas Gutierrez var í öðru sæti og Fabricio Coloccini í því þriðja. Ný könnun er komin og er nú spurt hvort menn vilji fá Javier Saviola til Newcastle.
(FB)
21.Ágúst

Danny Guthrie hlakkar til að mæta Bolton
"Mig hlakkar mikið til fyrsta heimaleiksins" segir Guthrie, en á laugardaginn kemur Bolton í heimsókn á St James´ Park. Guthrie var í láni hjá Bolton allt síðasta tímabil og þekkir vel til þar. "Ég þekki marga stráka hjá Bolton, en núna snýst allt um Newcastle og vonandi náum við þremur stigum á laugardaginn.
Síðasta tímabil var stórt skref fyrir mig og ég mun alltaf hugsa til Bolton þar sem vendipunktur ferilsins varð. Ég spilaði gegn Newcastle á SJP á síðasta tímabili og andrúmsloftið var ótrúlegt en þá var Keegan nýbúin að taka við Newcastle. Ég get ekki beðið eftir að upplifa það aftur sem Newcastle leikmaður" sagði Guthrie.
(FB)
19.Ágúst

Milner með sigurmarkið fyrir U21 landslið Englands
James Milner átti góðan leik með U21 landsliði Englendinga gegn Slóvenum í kvöld og skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á KC Stadium heimavelli Hull City . Öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Slóvenar komust yfir snemma leiks en Micah Richards leikamður Man City jafnaði leikinn stuttu seinna. Það var svo James Milner sem gerði sigurmarkið á 35 mínútu með góðu skoti fyrir utan teig. Honum var svo skipt útaf í hálfleik enda var þetta bara æfingaleikur. Milner spilaði sinn 37 landsleik og bætti landsleikjametið enn frekar. Þetta var sjöunda markið sem hann gerir fyrir U21 landsliðið en hann á þó nokkuð í að ná markahæsta manninum sem er enginn annar en Alan Shearer (13 mörk). Reyndar deilir Shearer þessu meti með Francis Jeffers sem einnig hefur gert 13 mörk. Shearer þurfti aðeins 11 leiki til að gera þessi 13 mörk en Jeffers 16 leiki.
(FB)
19.Ágúst

Taylor: "Ég verð tilbúinn í leikinn gegn Bolton"
Steven Taylor hefur dregið sig úr u21 landsliði Englendinga vegna meiðsla sem hann hlaut þegar Martins skoraði gegn Man Utd síðasta sunnudag. Englendingar eiga að spila við Slóveníu í kvöld á KC Stadium heimavelli Hull City og hefur Taylor verið fyrirliði u21 árs landsliðsins undanfarið. En Taylor segir á heimasíðu Newcastle að meiðslin séu ekki það mikil og segist vera orðin klár í leikinn gegn Bolton næsta laugardag.
(FB)
19.Ágúst

Ameobi féll á læknissoðun
Ekkert verður af því að Shola Ameobi fari til Ipswich þar sem hann stóðst ekki læknisskoðun hjá Ipswich. Félögin höfðu komið sér saman um verð og var allt nánast frágengið. En í skoðuninni kom í ljós að meiðsli aftan í læri eru að hrjá kappann og er ólíklegt að hann nái sér fyrir lok ágústmánaðar en þá lokar leikmannamarkaðurinn.
Samningur Ameobi við Newcastle rennur út næsta sumar og ekki er útilokað að hann fari á frjálsri sölu næsta sumar. Jim Magilton stjóri Ipswich útilokar þó ekki að fá Ameobi til sín seinna á tímabilinu.
(FB)
18.Ágúst
Ný könnun
Það er komin ný könnun og spurt er um hver þótti standa sig best gegn Man Utd. Í síðustu könnum var spurt hvernig Newcastle mun standa sig í vetur og voru úrslitin þannig að flestir voru á því að Newcastle myndi enda í 5-8 sæti eða 45%, þannig að menn eru nokkuð bjartsýnir á gengi okkar manna í vetur. Annars eru úrslitin úr síðustu könnum svona:
|
Vel, endum í 5-8 sæti |
45% |
|
Svipað og undanfarin ár. 9 - 12 sæti |
39% |
|
Komum á óvart og verðum í topp fjórum |
9% |
|
Þetta verður basl. Endum í neðri hluta deildarinnar |
6% |
|
Fallbarátta í vetur |
0% |
(FB)
17.Ágúst
Man Utd - Newcastle 1-1
(Fletcher 24) - (Martins 22)

(Martins fagnar marki sínu í dag)
Frábær byrjun hjá Newcastle
Newcastle fékk það erfiða hlutverk að mæta Englands og Evrópumeisturum Man Utd á Old Trafford í sínum fyrsta leik á þessu tímabili. Það er óhætt að segja að Newcastle hefur ekki tekið mörg stig á Old Trafford í gegnum árin og að ná jafntefli þar telst bara vera góður árangur og það sem meira er að Newcastle þótti spila nokkuð vel í dag. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og þurfti Shay Given að bjarga í þrígang á meistaralegan hátt til að halda Newcastle inn í leiknum, fyrst var það Campell sem átti skalla að marki af stuttu færi og fór boltinn beint í hausinn á Given sem var rétt staðsettur. Svo bjargaði hann í tvígang með frábærri markvörslu fyrst frá Rooney og svo Scholes. En Newcastle náði að halda markinu hreinu og mjakaði sér fram völlinn. Newcastle fékk svo hornspyrnu á 22 mínútu sem Danny Guthrie tók og Martins stökk manna hæst og skallaði glæsilega í mark heimamanna. Auðvitað fagnaði Martins á sinn hátt með sínu fræga heljarstökki. En það leið ekki langur tími þar til Man Utd náði að jafna, einungis tveimur mínútum seinna hafði Fletcher náð að jafna eftir flotta fyrirgjöf frá gamla brýninu Ryan Giggs.

Það er greinilega mikil breyting á spilamennsku Newcastle og var varnarleikurinn í dag til mikillar fyrirmyndar. Coloccini stóð stig mjög vel og á hann eftir að reynast Newcastle mikill fengur. Jonas Gutierrez var einnig sprækur og skapaðist oft mikil hætta þegar hann tók sína spretti upp völlinn. Hann sinnti varnarvinnu sinni einnig frábærlega og verður gaman að sjá til hans í vetur. Í seinni hálfeik var nokkur pressa á okkar mönnum en vörn Newcastle með Given í fantaformi á milli stanganna stóðst alla pressu. 1-1 jafntefli gegn meisturum Man Utd verða að teljast mjög góð úrslit.
(Fabricio Coloccini og Wayne Rooney í leiknum í dag)
Liðin í dag:
Man Utd
Van der Sar, Brown, Vidic, Ferdinand, Evra, Fletcher, Carrick (O'Shea 25), Scholes, Giggs (Possebon 63), Campbell (Rafael Da Silva 80), Rooney. Varamenn: Kuszczak, Neville, Evans, Gibson.
Gul spjöld: Campbell, Brown, Rooney.
Newcastle
Given, Beye, Taylor, Coloccini, N'Zogbia, Milner, Butt, Guthrie, Gutierrez, Duff, Martins. Varamenn: Harper, Jose Enrique, Bassong, Smith, Geremi, Edgar, Donaldson.
Áhorfendur: 75,512.
Dómari leiksins: Mike Riley
Skot á mark: Man Utd 18 (12) - Nufc 11 (4) Skot alls (á rammann)
Hornspyrnur: Man Utd 6 - Nufc 6
Maður leiksins: Shay Given (sýndi í dag hversvegna hann er markmaður númer 1 hjá Newcastle)
(FB)
16.Ágúst

Þriðji Argentínumaðurinn til Newcastle ?
Samkvæmt The Evening Chronicle er Newcastle að reyna fá til sín sóknarmanninn Javier Saviola (26 ára) og yrði hann þá þriðji Atgentínumaðurinn hjá Newcastle. Sagt er frá því að Newcastle sé að reyna fá hann að láni út þetta tímabil og munu þeir svo kaupa hann ef hann stenst væntingar. Litla Kanínan eins og hann er kallaður er núna hjá Real Madrid og hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá þeim, hann hefur einungis spilað 17 leiki og skorað í þeim 3 mörk. Hann var áður hjá Barcelona og á frá 2001 - 2007 og spilaði þar 157 leiki og skoraði 68 mörk. En hann var sendur á láni til Monaco á tímabilinu 2004-2005 (36 leikir og 11 mörk) og svo var hann lánaður til Sevilla tímabilið 2005-2006 (42 leikir og 15 mörk). Hann á einnig að baki 44 landsleiki og hefur gert 12 mörk í þeim. Vonandi er eitthvað til í þessum sögusögnum því hann yrði vissulega góð viðbót við sóknarleikmenn Newcastle.
(FB)
15.Ágúst

Man Utd - Newcastle
Fyrsti leikur tímabilsins hjá Newcastle er gegn Englands og Evrópumeisturum Man Utd á Old Trafford á sunnudag kl 15:00 að íslenskum tíma.
Af leikmönnum er það að frétta að Martins er leikfær og verður í hópnum. Argentínumennirnir Jonas og Colo eru báðir tilbúnir í slaginn. Michael Owen er byrjaður að æfa á fullu en verður ekki með.
Mark Viduka mætti á sína fyrstu æfingu í dag og eru nokkrar vikur í að hann verði tilbúinn.
Joey Barton er einnig nýbyrjaður að æfa og verður ekki með. Hann á einnig yfir höfði sér leikbann vegna árásar sinnar á Oliver Dabo fyrir einu og hálfu ári síðan. Það mál mun skýrast á næstunni
Andy Carroll er meiddur og ekki í hópnum.
Shola Ameobi er sennilega á leið til Ipswich og er því ekki með.
Leikmannahópurinn er svona:
Given, Beye, N'Zogbia, Taylor, Coloccini, Enrique, Cacapa, Bassong, Edgar, Butt, Geremi, Milner, Duff, Guthrie, Gutierrez, Martins, Smith, Edgar, Harper.
Dómari leiksins verður Mike Riley.
Newcastle hefur ekki gengið vel á Old Trafford í gegnum tíðina og hafa ekki unnið þar síðan 1972. Á siðast tímabili voru okkar menn teknir í bakaríið á Old Trafford og endaði leikurinn 6-0. En fall er fararheill og við vonum að okkar menn standi sig vel. Það eru fjórir nýir leikmenn í hópnum (Jonas, Colo, Guthrie og Bassong) og vonast þeir allir eftir að spila sinn fyrsta opinbera leik fyrir Newcastle.
(FB)
15.Ágúst
Abdoulaye Faye seldur til Stoke
Newcastle seldi í dag Senegalan Abdoulaye Faye til nýliðana í Stoke fyrir 2,25 milljónir punda. Faye kom til Newcastle frá Bolton fyrir síðasta tímabil og spilaði hann 22 leiki og skoraði eitt mark fyrir Newcastle.
(FB)
15.Ágúst
Gutierrez verður með skírnarnafnið á bakinu
Argentínumaðurinn snjalli Jonas Gutierrez hefur ákveðið að nota skírnarnafn sitt á treyju sinni. Hann er með treyju nr 18 og verður því nafnið Jonas á búningi hans. Aðspurður afhverju hann vildi hafa skírnarnafnið sitt sagði hann " af því að mér líkar vel við nafnið mitt". Einfalt og gott svar hjá Jonas.
(FB)
15.Ágúst
Keegan: "Milner er ekkert á förum"
"Hann er síðasti leikmaðurinn sem Newcastle vill selja, þá er ég að tala um mig og Mr Ashley". sagði Keegan um hugsanleg kaup Aston Villa á Milner.
Um málefni Abdoulaye Faye og Shola Ameobi sagði Keegan: "Það er mjög líklegt að Faye fari til Stoke og Ameobi hefur fengið leyfi til að ræða við Ipswich. En það fara ekki fleiri leikmenn frá okkur. Og ef samningar nást um þessa tvo, þá munum við fá til okkar fleiri leikmenn"
(FB)
15.Ágúst
LOKSINS STAÐFEST:
COLOCCINI TIL NEWCASTLE

Loksins hefur kaup á argentínska varnarmanninum Fabricio Coloccini verið staðfest á heimasíðu félagsins. Coloccini (26 ára) gerði fimm ára samning og mun leika í treyju nr 2. Hann er dýrasti varnarmaður í sögu Newcastle og kostar rúmlega 10 milljónir punda.
Í viðtali á heimasíðu Newcastle þar sem félagi hans Jonas Gutierrez túlkar fyrir hann segir hann: "Ég er mjög spenntur að koma hingað og það er draumur að fá að spila fyrir svona stórann klúbb í úrvalsdeildinni. Ég hef vitað um áhuga Newcastle í nokkurn tíma og ég vildi koma hingað vegna þess að þetta er félag sem ég þekki vel frá því að horfa á enska boltann á Spáni og Argentínu. Að spila á St James´ Park er eitthvað sem ég get ekki beðið eftir að gera".

Gutierrez, Keegan og Coloccini
Jonas Gutirrez er ánægður að fá landa sinn til Newcastle, þeir hafa spilað á Spáni undanfarin þrjú ár og hafa því mæst nokkrum sinnum. En Gutirrez er mjög ánægður að fá að spila við hlið hans, þeir gerðu báðir fimm ára samning við Newcastle. " Ég veit frá því á Spáni hvernig leikmaður hann er, ég er bara ánægður að vera með honum í liði núna. Hann er topp varnarmaður og var einn sá besti á Spáni, en ég held að honum muni líka vel við úrvalsdeildina vegna þess að hann er mjög fljótur. Ég er líka ánægður að hafa landa minn hér og ég mun gera mitt besta til að hjálpa honum. Hann talar ekki ensku þannig að ég mun hjálpa honum þangað til hann lærir enskuna." sagði Gutierrrez.

Keegan og Coloccini
Kevin Keegan er mjög ánægður með kaupin á Coloccini. "Fabricio er með góða reynslu og hefur spilað með Argentínska landsliðinu, það segir mér að hann er topp leikmaður. Hann er í góðu formi, hann spilaði allar mínútur með Deportivo á síðasta tímabili og hann er einnig fjölhæfur leikmaður. Hann er miðvörður en hann getur spilað allar stöður í vörninni og einnig á miðjunni. Það er mikill plús að hafa svona fjölhæfa leikmenn í liðinu sínu" sagði Keegan.
(FB)
15. Ágúst
Gutierrez kominn með leikheimild

Newcastle fékk í dag grænt ljós frá FIFA að Jonaz Gutierrez mætti spila gegn Man Utd á sunnudaginn. Argentínumaðurinn snjalli hefur sýnt góða leiki á undirbúningstímabilinu og er strax orðinn nokkuð vinsæll hjá stuðningsmönnum Newcastle.
(FB)
14.Ágúst

Keegan: "Owen ekki með gegn Man Utd"
Kevin Keegan sagði í viðtali á heimasíðu klúbbsins að Michael Owen muni ekki taka þátt í leiknum gegn Man Utd næsta sunnudag. Owen tók ekki þátt í neinum af æfingaleikjum Newcastle og er svo til nýbyrjaður að æfa á fullu. "Ég ætla ekkert að reyna plata fólk. Hann þarf á meiri æfingu að halda og það væri glapræði af okkar hálfu að fara taka áhættu í leiknum á sunnudag" sagði Keegan að lokum.
(FB)
14.Ágúst

Faye á leið til Stoke ?
Samkvæmt ýmsum netmiðluum á Englandi í dag þá eru nýliðar Stoke í úrvalsdeildinni við það að fá til sín Senegalann Abdoulaye Faye hjá Newcastle.
Sagt er að hann hafi æft með Stoke í dag og hafið samningaviðræður í kjölfarið við nýliðana. Faye kom til Newcastle fyrir síðasta tímabil frá Bolton og kostaði um 2 milljónir punda, hann á 22 leiki að baki með Newcastle.
(FB)
14.Ágúst
Stjóri Ipswich staðfestir áhuga á Shola Ameobi
Jim Magilton stjóri Championship liðsins Ipswich staðfesti í dag áhuga sinn á að fá til sín sóknarmann Newcastle Shola Ameobi. Hinn 26 ára Ameobi á eitt ár eftir af samningi sínum við Newcastle og hefur ekki fengið mörg tækifæri eftir að Keegan tók við og var t.d sendur á láni til Stoke undir lok síðasta tímabils. "Við höfum talað við umboðsmann hans og viðræður eru í gangi. Shola er efnilegur leikmaður og er orðinn 26 ára, hann þarf að fara stíga skrefið fram á við. Hann þarf að ákveða hvað hann vill gera. Ef hann vill bíða og klára samninginn sinn hjá Newcastle þá er það hans ákvörðun. En ef hann hefur áhuga á að spila í Championship deildinni þá höfum við svo sannarlega áhuga á að fá hann til okkar" Sagði Magilton.
(FB)
14.Ágúst

Newcastle mætir Coventry í Carling bikarnum
Í gær var dregið í aðra umferð í Carling bikarnum og mætir Newcastle Coventry á Rioch Stadium. Leikurinn mun fara fram 26 ágúst næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn sem liðin mætast í þessari keppni en þau hafa fjórum sinnum mæst í FA bikarnum og komst Newcastle áfram í öll skiptin. Tilkynnt var svo í dag að leikurinn verður í beinni á Sky Sports og reikna má með við hér á Fróni munum sjá hann einnig.
(FB)
10.Ágúst
Flottur leikur gegn Valencia
Newcastle tók á móti spænska liðinu Valencia í gær á St James´ Park og endaði leikurinn 2-1 fyrir okkar mönnum. Mark Valencia gerði Joaquin í fyrri hálfleik og var staðan 0-1 í hálfleik. Það var svo Damien Duff sem jafnaði leikinn á 77 mínútu og James Milner skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Fyllilega sanngjarn sigur eftir því sem ég hef lesið um leikinn og voru Gutierrez og Milner sérstaklega sprækir í leiknum. Obafemi Martins spilaði í 63 mínútur í gær og virðist ætla vera leikfær fyrir leikinn gegn meisturum Man Utd næsta sunnudag.
Lið Newcastle í gær:
Given, Beye (Bassong 85) N'Zogbia, Cacapa (Edgar 85), Taylor, Milner, Guthrie, Gutierrez, Butt, Duff, Martins (Smith 63).
Varamenn: Forster, Enrique, Geremi, Lua Lua.
Dómari: Uriah Rennie
Áhorfendur: 31,494 (Að meðtöldum Fabricio Coloccini sem sat á meðal stjórnarmanna Newcastle, en kaup á honum hefur ekki verið staðfest hjá Newastle)
(FB)

(David Villa og Steven Taylor í leiknum í gær)
7.Ágúst

Fabricio Coloccini til Newcastle
Spænska liðið Deportivo La Coruna hefur staðfest að argentínski leikmaðurinn Fabricio Coloccini hefur verið seldur til Newcastle fyrir rúmar 10 milljónir punda. Hann er mættur til Newcastle og mun gangast undir læknisskoðun í dag og má reikna með staðfestingu frá Newcastle í kjölfarið. Coloccini sem hefur undanfarið verið sterklega orðaður við Newcastle og í dag hefur sá orðrómur verið staðfestur. Coloccini er 26 ára,
1,83 cm á hæð og er varnarmaður. Hann hefur spilað 27 landsleiki og skorað eitt mark með Argentínska landsliðinu. Hann spilaði 105 leiki með La Coruna og skoraði 5 mörk frá árinu 2004.
Kevin Keegan sagði í viðtali hjá Sky Sports eftir leikinn gegn PSV (áður en fréttin með Coloccini birtist) að hann reiknaði með að fá tvo eða jafnvel þrjá leikmenn áður en leikmannamarkaðurinn lokar í lok ágúst. Keegan hélt áfram "Ef þú skoðar þá leikmenn sem við notuðum í kvöld, og svo leikmennina sem ekki voru með og að viðbættum tveim til þrem leikmönnum þá verðum við með sterkan hóp í vetur. Ég held að við getum stefnt á að lenda í hóp topp tíu og allt umfram það er frábært. Við skoðum svo málin aftur um áramótin og kannski styrkjum við okkur aftur þá"
(FB)
6.Ágúst
Newcastle - PSV 2-2
Fyrri æfingaleikurinn sem fer fram á St James´ Park fór fram í kvöld og byrjuðu okkar menn nokkuð vel og komust í 2-0 eftir 8 mínútna leik með mörkum frá Steven Taylor (mynd) og Danny Guthrie. PSV náði að koma til baka og minnkuðu muninn á 32 mínútu og var það Ibrahim Affellay sem skoraði. Staðan því 2-1 í hálfleik.
Þeir náðu svo að jafna á 71 mínútu með marki frá Nordin Ambrbat. Newcastle þótti spila nokkuð vel í kvöld og var allt annað að sjá til liðsins en á Spáni um síðustu helgi.
Lið Newcastle í kvöld:
Shay Given, Jose Enrique, Claudio Cacapa, Danny Guthrie, Damien Duff, James Milner (Frank Wiafe Danquah 90), Jonas Gutierrez, Geremi (Ryan Donaldson 58), Nicky Butt (Sebastien Bassong 76), Steven Taylor, Habib Beye (David Edgar 58)
Varamenn: Tim Krul, Frank Wiafe Danquah, Ben Tozer.
Síðasti æfingaleikurinn er svo á laugardaginn gegn spænska liðinu Valencia á St James´ Park og vonandi verða einhverjir af sóknarmönnum liðsins með í þeim leik.
(FB)
6.Ágúst
 
Byrjunarliðið gegn PSV í kvöld.
Shay Given, Jose Enrique, Claudio Cacapa, Danny Guthrie, Damien Duff, James Milner, Jonas Gutierrez, Geremi, Nicky Butt (c), Steven Taylor, Habib Beye
Varamenn: Tim Krul, Frank Wiafe Danquah, Ben Tozer, David Edgar, Ryan Donaldson, Sebastien Bassong.
Habib Beye spilar sinn fyrsta leik á undirbúnings-tímabilinu eftir að hafa jafnað sig á hælmeiðslum sem hjrjáðu kappann. Nýju leikmennirnir Gutierrez og Guthrie spila báðir í fyrsta sinn á St James´ Park.
Eins og menn sjá að þá er ekki mkið um sóknarmenn í þessari liðsuppstillingu enda eru þeir enn allir frá vegna meiðsla (Owen, Martins, Viduka og Carroll)
(FB)
3.Ágúst

Æfingamót á Spáni
Newcastle var um helgina á Spáni að spila tvo æfingaleiki gegn Hertha Berlin og Real Mallorca.

Í fyrri leiknum á föstudaginn tapaði Newcastle 1-0 gegn þýska liðinu og ekki hægt að búast við miklu með þá Alan Smith og Shola Ameobi í framlínunni. Jonas Gutierrez (mynd) spilaði sinn fyrsta leik fyrir Newcastle. Newcastle skapaði sér ekki mikið af færum í leiknum ogsaknar liðið illilega þá Martins og Owen í sókninni. Shola Ameobi meiddist í leiknum og spilar ekki gegn Real Mallorca.
Lið Newcastle í leiknum gegn Hertha Berlin:
Harper (Krul 63), Geremi, Taylor, Cacapa, N'Zogbia, Butt, Guthrie, Milner, Gutierrez (Enrique 70), Smith, Ameobi (Duff 59). Varamenn: Edgar, Danquah, Tozer, Doninger, Donaldson, Godsmark, Bassong.
 
Seinni leikurinn var gegn heimamönnum í Real Mallorca og byrjuðu þeir leikinn vel og komust yfir strax á 6 mínútu. Var það eina mark leiksins og náði Newcastle því ekki að skora mark á Spáni.
Lið Newcastle í leiknum gegn Real Mallorca:
Harper (Forster 58), Taylor, Enrique, Cacapa, Bassong, Edgar, Geremi (f), Guthrie (Donaldson 69), Duff, Milner, Smith Varamenn: Danquah, Tozer, Doninger, Godsmark |