Fréttir í ágúst 2009

 

Ranger, Guthrie, R Taylor, S Taylor og Enrique fagna marki Guthrie í kvöld

 

Newcastle tyllti sér á toppinn með 1-0 sigri á Leicester

Danny Guthrie skaut Newcastle á topp Championship deildarinnar í kvöld með góðu marki á 52 mínútu. Newcastle hefur unnið fjóra leiki í röð og ekki fengið á sig mark síðan í fyrsta leik deildarinnar gegn WBA. Það er varla hægt að byðja um betri byrjun á tímabilinu. En leikur liðsins í kvöld var ekkert sérstaklega sannfærandi enda vantar lykilmenn í liðið. Jonas Gutierrez, Andy Carrol, Shola Ameobi, Nicky Butt og Fabricio Coloccini voru allir fjarverandi í kvöld. Nile Ranger byrjaði inná og stóða hann sig nokkuð vel og vonandi styttist í fyrsta mark hans fyrir Newcastle. Varamannabekkurinn var frekar ungur í kvöld, Tim Krul(21), Kazenga LuaLua(18), Tamas Kadar(19), Wesley Ngo Baheng(19), Ryan Donaldson(18), Haris Vuckic (17), Ben Tozer(19). Þannig að ungu strákrnir eru að fá tækifæri enda er leikmannahópurinn þunnskipaður. Þeir Vuckic og Donaldson komu inná undir lok leiksins og voru þeir að spila sinn fyrsta deildarleik með Newcastle.

Lið Newcastle í kvöld: Harper, R Taylor, S Taylor, Simpson, Enrique, Geremi, Barton (Kadar 89), Nolan, Guthrie (Vuckic 85), Smith, Ranger (Donaldson (85).

Ónotaðir varamenn: Krul, Tozer, Baheng, LuaLua.

Skot (á mark) Nufc 10 (6) - Lei 12 (6)

Horn: Nufc 1 - Lei 2

Gult Spjald: Guthrie

Áhorfendur: 38,813

Maður leiksins:  Danny Guthrie

(FB)

 

31.Ágúst

Fabio Zamblera til Roma