|

Fréttir í apríl 2007
30.Apríl
Reading - Newcastle 1-0
(Kitson 51)

Dapurt á Madejski Stadium.
Leikurinn í kvöld byrjaði fjörlega og mátti litlu muna að Michael Owen náði að skora eftir eina mínútu þegar hann fékk flotta sendingu frá Emre en Owen var hársbreidd frá því að hitta boltann. Owen skoraði
svo mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu en það verður gaman að sjá til Owen þegar hann verður kominn í góða leikæfingu og greinilegt að hann á eftir að gjörbreyta sóknarleik Newcastle. Það dró heldur af Owen í seinni hálfleik enda spilaði hann 90 mínútur og orðinn frekar þreyttur undir lok leiksins. Ameobi kom inná þegar um 35 mínútur voru eftir og virkaði hann mjög líflegur. Eina mark leiksins kom eftir herfileg mistök frá fyrirliða Newcastle í kvöld Kireon Dyer en hann missti boltann klaufalega á miðjum vallarhelmingi Newcastle og nýttu leikmenn Reading það sér til fullnustu og til að bæta gráu ofan á svart þá meiddist Sibierski þegar Kitson skaut boltanum og líklega er hann handarbrotinn. Dyer átti svo svo stuttu seinna aðra slaka sendingu beint í lappirnar á leikmanni Reading og mátti engu muna að þeir bættu við öðru marki. Emre var svo borinn af velli á 60 mínútu eftir tæklingu frá Kitson. Eins mikið og mátti hrósa Titus Bramble fyrir leikinn gegn Chelsea um síðustu helgi þá átti hann alveg skelfilegan leik í kvöld. Newcastle átti þrjú góð færi til að jafna leikinn, Martins átti skalla framhjá, Ameobi skallaði beint á markmann Reading og svo átti Dyer færi á síðustu mínútu leiksins en skaut einnig beint í hendurnar á markmanni Reading sem fagnaði þremur stigum í baráttunni um evrópusæti. Það jákvæða sem kom úr þessum leik er að Owen og Ameobi spiluðu báðir og sóknarleikur Newcastle verður allt annar með þessa menn innanborðs.
Lið Newcastle í kvöld: Harper, Solano, Bramble, Taylor, Carr, Milner, Emre (N'Zogbia 60), Dyer, Sibierski (Ameobi 54), Owen, Martins. Varamenn: Srnicek, Onyewu, Carroll.
Skot á mark: Rea 13 - Nufc 18
Hornspyrnur: Rea 8 - Nufc 10
Áhorfendur: 24,109
Maður leiksins: Steven Taylor (sterkur í vörninni og á bara eftir að verða betri)
(Rikki)
27.Apríl
Reading - Newcastle
Madejski Stadium
Mánudaginn 30 Apríl Kl. 19:00

Liðsfréttir
Stóra spurningin er sú hvort þeir félagar Michael Owen og Shola Ameobi verði með en þeir hafa verið að æfa á fullu undanfarið. Það ætti að koma í ljós á morgunn. Scott Parker og Antione Sibierski verða mjög sennilega í leikmannahópnum. Shay Given og Daimen Duff verða ekki með. Fyrri leikur liðanna í vetur fór 3-2 fyrir Newcastle og voru það þeir Sibierski, Martins og Emre sem skoruðu mörk Newcastle í leiknum sem fór fram í desember síðastliðin. Það verður gaman að fylgjas með baráttu þeirra Martins og Ívars Ingimarssonar sem hefur spilað hverja einustu mínútu fyrir Reading í vetur í úrvalsdeildinni.
Hópurinn er eftirfarandi: Harper, Srnicek, Solano, Carr, Babayaro, Taylor, Bramble, Onyewu, Moore, Ramage, Butt, Parker, Milner, Emre, Dyer, N'Zogbia, Martins, Owen, Sibierski, Luque, Carroll, LuaLua, Ameobi.
(Rikki)
26.Apríl

Solano vongóður um næsta tímabil
Solano segir að með smá heppni getur Newcastle slegist um efstu sætin á næsta tímabili. Þetta tímabil hefur verið erfitt hjá Newcastle vegna meiðsla lykilleikmanna. "Ég man þegar Sir Bobby Robson var með liðið að þá enduðum við um miðja deild fyrstu tvö tímabilin en eftir það vorum við í einu af fjórum efstu sætunum. Við verðum að vera þolinmóðir og gefa Roeder tíma með liðið og ef við fáum nokkur ný andlit fyrir næsta tímabil og byrjum tímabilið vel þá eigum við góðan möguleika á að komast á meðal efstu liða" sagði Solano í viðtali á heimasíðu Newcastle. Roeder fær væntanlega að setja nafn Owen á leikskýrslu í fyrsta sinn sem stjóri Newcastle næstkomandi mánudag gegn Reading.
(Rikki)
26.Apríl

England og Skotland bítast um Andy Carroll
Hinn bráðefnilegi sóknarmaður Andy Carroll er eftirsóttur af bæði enska og skoska u19 ára landsliðum eftir að hann skoraði þrennu með varaliði Newcastle gegn Middlesbro um daginn. Lee Clark þjálfari varaliðsins sagði að hann hafi tekið miklum framförum undanfarna sex mánuði undir stjórn Roeder.
(Rikki)
26.Apríl

Emre ánægður á St James Park
Hinn 26 ára gamli Tyrki er ánægður með dvöl sína á St James Park og ætlar sér að gera betur á næsta tímabili. Hann er að klára sitt annað tímabil með Newcastle og á 3 ár eftir á sínum samning. Emre átti sinn besta leik í vetur gegn Chelsea um síðustu helgi og fékk hann mikið hrós frá Glenn Roeder. Emre hefur átt erfitt uppdráttar í vetur og var hann sakaður um kynþáttafordóma í leik gegn Everton sem hann var svo sýknaður fyrir. "Ég er mjög ánægður í Newcastle, mér líkar vel við borgina, fólkið og ég á fullt af vinum hérna. Nú stefnum við á að ná í 9 stig í þeim þremur leikjum sem eftir eru" Sagði Emre í viðtali í dag.
(Rikki)
25. april
Antoine Sibierski er tilbúinn að skrifa undir nýjan eins árs samning við Newcastle. Það mun að öllum líkindum verða gert á næstu dögum eða strax eftir þrjár vikur þegar leiktíðinni lýkur. Antoine Sibierski er mjög ánægður hjá Newcastle og hefur staðið sig frábærlega. Hann er laus undan öllum samningum, en sem kunnugt er kom hann til Newcastle sem " best free transfer " eins og Roeder orðaði það.
24. April Michael Owen með...
Nú eru allar líkur á að Michael Owen og Shola Ameobi leiki með í næsta leik Newcastle gegn Reading. Það væri bara glæsilegt ef það mundi gerast. Eins og allir vita hefur Owen verið frá, frá því í júní 2006. Haft var eftir Owen fyrir stuttu að hann væri mun sterkari líkamlega nú og að öllum líkindum mun betri fótboltamaður en fyrir meiðslin sem hann hlaut á HM í fyrra. Newcastle menn geta horft til framtíðar með bros á vör.
22.Apríl
Newcastle - Chelsea 0-0

Jafntefli gegn Englandsmeisturum Chelsea
Í dag mætti Newcastle meisturum Chelsea sem hafa verið í hörkuformi undanfarnar vikur og unnið hvern leikinn að fætur öðrum og ef ég man rétt þá höfðu þeir unnið 10 leiki í röð í deildinni fyrir leikinn í
(Mynd: Bramble straujar Ballack) dag. En í dag mættu þeir öllum að óvörum mjög sterkri vörn heimamanna með þá Taylor og Bramble fremsta í flokk og héldu þeir besta sóknarmanni deildarinnar Didier Drogba algjörlega niðri. Það voru ekki mörg færi sem bæði lið fengu í dag og jafntefli sennilega sanngjörnustu úrslitin. Hættulegasta færi Newcastle átti Kireon Dyer þegar hann fékk frábæra sendingu frá Nicky Butt en Peter Cech sá við honum. Litlu mátti muna að Chelsea næði að skora undir lok leiksins þegar Joe Cole skaut framhjá marki Newcastle.
Scott Parker var ekki með í dag gegn fyrrverandi félögum sínum þar sem hann stóðst ekki læknisskoðun fyrir leikinn í dag. Nicky Butt bar fyrirliðabandið í hans fjarveru og átti hann góðan leik eins og allir leikmenn Newcastle Glenn Roeder sagði í viðtali eftir leikinn að hann væri mjög stoltur af sínum mönnum og þeir hafa fengið mikla gagnrýni undanfarið og en í dag sýndu þeir frábæra frammistöðu gegn meisturunum. Árangur Newcastle á St James Park gegn fjórum efstu liðunum í vetur er mjög góður. Jafntefli gegn Man Utd, Arsenal og Chelsea og sigur gegn Liverpool. Það eru ekki mörg lið sem geta státað af þeirri frammistöðu þó svo að uppskera vetrarins sé ekki góð.
Liðskipan í dag: Harper, Solano, Bramble, Taylor, Carr, Milner, Butt, Dyer, Emre, Sibierski (Carroll 78), Martins. Varamenn: Srnicek, N'Zogbia, Ramage, Babayaro.
Skot á mark: Nufc 11 - Che 12
Hornspyrnur: Nufc 4 - Che 2
Áhorfendur: 52,056
Maður leiksins: Bramble og Taylor (Báðir áttu frábæran leik og ekki hægt að gera upp á milli þeirra)
(Rikki)
22.April
Vinningshafinn á leiknum í dag.
Einn félagi Newcastle kúbbsins verður á leiknum gegn Chelsea í dag. Það er Einar Rúnar og hlaut hann ferðina ásamt miða á leikinn í vinning hjá klúbbnum í vetur. Þetta er fyrsta ferðin hans til Newcastle og án efa á hann eftir að fara margar ferðir eftir þennan leik.
20.Apríl
Newcastle - Chelsea
St James Park
Sunnudaginn 22 Apríl Kl 12.30

Liðsfréttir
Samkvæmt fréttavef bbc verður Ameobi ekki í leikmannahópi Newcastle um helgina vegna þess að hann er ekki kominn í nægilega gott leikform. Shay Given og Michael Owen verða einnig ekki með gegn Chelsea og eins og menn vita þá er Damien Duff ekki meira með á þessu tímabili. Þeir Kireon Dyer, Scott Parker og Antoine Sibierski verða allir með eftir að hafa hrist af sér smávægileg meiðsli. Það eru þrír fyrrverandi leikmenn Chelsea í Newcastle liðinu, það eru þeir Parker, Babayaro og Duff. Fyrri leikur liðanna fór 1-0 fyrir Chelsea. Leikur liðanna á St James Park á síðasta tímabili fór 1-0 fyrir Newcastle og var það Titus nokkur Bramble sem skoraði sigurmark leiksins.
Leikmannahópurinn:Harper, Srnicek, Solano, Carr, Babayaro, Taylor, Bramble, Onyewu, Moore, Ramage, Butt, Parker, Milner, Emre, Dyer, N'Zogbia, Martins, Sibierski, Luque, Carroll, LuaLua.
(Rikki verður í búning)
19.Apríl

Ólíklegt að Owen verði með gegn Chelsea
Michael Owen hefur sett stefnuna á að spila sinn fyrsta leik á þessu tímabili gegn Reading þann 30 apríl. Roeder hafði gefið út að það væri helmings líkur á að Owen myndi spila gegn Chelsea á sunnudaginn kemur en hann fékk ekki að spila með varaliðinu í vikunni þar sem hann á við smávægileg meiðsli í nára að stríða og Roeder vill ekki taka neina áhættu og vill því fresta endurkomu Owen um eina viku.
(Rikki)
19.Apríl

Andy Carroll fær samning
Hinn efnilegi Andy Carroll skrifaði undir fjögurra ára samning við Newcastle í gær og er hann samningsbudninn til ársins 2011. Þetta er búið að vera frábær vika hjá Carroll, hann fékk mikið hrós fyrir frammistöðuna gegn Portsmouth síðustu helgi og svo skoraði hann þrennu gegn varaliði Middlesbro í vikunni. "Ég er mjög ánægður að hafa fengið nýjan samning og vonandi á ég góða framtíð hjá Newcastle. Það hefur alltaf verið draumur minn að spila fyrir mitt heimalið" sagði Carroll sem er fæddur og uppalinn í Newcastle.
(Rikki)
17.Apríl

Varalið Newcastle á skotskónum
Andy Carroll skoraði þrennu í fyrri hálfleik í kvöld í 1-5 sigri á varaliði Middlesbrough á Riverside. Shola Ameobi skoraði eitt mark í kvöld og Johnny Godsmark eitt. Það er því líklegt að Ameobi verði allavega á bekknum gegn Chelsea um helgina. Það var talið að Michael Owen myndi spila þennan leik en þjálfarateymi Newcastle ákvað að láta Owen bíða aðeins lengur. Þeir Bramble, Ramage og N´Zogbia spiluðu einnig í kvöld.
Andy Carroll hlaut mikið hrós frá Glenn Roeder eftir frammistöðu hans gegn Portsmouth um síðustu helgi og er talið að hann fái að launum nýjan samning hjá Newcastle.
Varaliðið í kvöld:
NUFC: Fraser Forster, David Edgar, Chris Shanks, Titus Bramble (Mark Bertram, 72m), Peter Ramage (Alex Francis, 50m), Matty Pattison, Kris Gate, Charles N'Zogbia, Alan O'Brien, Andy Carroll, Shola Ameobi (Jonathan Godsmark, 72m) Varamenn: James Marwood, Kazenga LuaLua
(Rikki) kom ekki inná :-)
16.Apríl

Damien Duff frá út tímabilið
Írski landsliðsmaðurinn Damien Duff spilar ekki meira með Newcastle á þessu tímabili eftir að hafa haltrað útaf í leiknum gegn Portsmouth um helgina. Glenn Roeder segir að hann sé ekki brotinn en að hann er mjög bólginn og muni því ekki spila meira með á tímabilinu. Í þetta sinn er það hægri ökklinn sem er að angra Duff. Það er ekki hægt að segja að Duff hafi átt glimrandi tímabil með Newcastle frekar en aðrir leikmenn en vonandi kemur hann sterkur til leiks á næsta tímabili.
(Rikki)
14.Apríl
Portsmouth - Newcastle 2-1
(Mwaruwari 7, Taylor 59 - (Emre 69 víti)

Tap á Fratton Park
Slök frammistaða Newcastle í fyrri hálfleik varð liðinu að falli í dag. Leikurinn hefði kannski þróast öðruvísi ef Martins hefði skorað úr færinu sem hann fékk á fyrstu mínútu leiksins en David James varði
glæsilega frá honum. Á 7 mínútu missir Nicky Butt boltann á miðjum vallarhelmingi Newcastle og Matt Taylor sendir boltann á manninn með skrýtna nafnið Mwaruwari sem leikur á Steven Taylor og skorar framhjá Harper í markinu. Portsmouth sótti mun meira í fyrri hálfleik og hefði hæglega getað skorað fleiri mörk. Kanu átti meðal annars skot í þverslánna beint niður á línuna. Í seinni hálfleik voru leikmenn Newcastle örlítið beittari en heimamenn. Á 58 mínútu skorar Matt Taylor glæsilegt mark vel fyrir utan teig og slekkur nánast í vonum Newcastle. 10 mínútum seinna nær Newcastle að minnka muninn þegar Milner er felldur innan teigs og Emre skorar úr vítaspyrnunni með miklu öryggi. Undir lok leiksins fær Martins dauðafæri til að jafna leikinn þegar hann fær góða sendingu frá Luque sem hafði komið inná fyrir Duff sem meiddist en Martins skaut beint á James en hefði kannski átt að lyfta boltanum yfir hann. Newcastle fékk ekki fleiri færi eftir það og sanngjarn sigur Portsmouth á heildina litið í höfn. Til að bæta gráu ofan á svart þá fóru tveir leikmenn Newcastle meiddir útaf í leiknum. Það voru þeir Moore og Duff sem höltruðu útaf í sitthvorum hálfleiknum. Newcastle lék án þeirra Dyer, Parker og Sibierski sem stóðust ekki læknisskoðun fyrir leikinn.
Liðið í dag : Harper, Solano, Taylor, Moore (Onyewu 30), Carr, Milner, Butt, Emre, N'Zogbia (Carroll 46), Duff (Luque 81), Martins
Varamenn: Srnicek, Babayaro.
Skot á mark : Por 17 - Nufc 8
Hornspyrnur: Por 10 - Nufc 5
Áhorfendur á Fratton Park 20.165
Maður leiksins : Steve Harper (átti engan þátt í mörkunum og bjargaði liðinu frá stærra tapi)
(Rikki)
Nýtt spjallborð
Hér til vinstri í tenglasafninu má sjá að það er komið nýtt spjallborð og eru allir velkomnir til að taka þátt í umræðum um okkar félag. Ég vil biðja alla um að virða reglur spjallsins og vera málefnalegir.
Einnig er æskilegt að að allir skrái sig með því að smella á register efst í hægra horni síðunnar. Skemmtilegast er ef allir skrifa undir eigin nafni en auðvitað má nota dulnefni. Þeir sem hafa verið duglegir að stunda gamla spjallborðið eru auðvitað velkomnir að taka þátt í umræðum. Þetta spjallborð er til reynslu og er ætlunin að sjá til hvernig gengur með þetta á næstu vikum.
(Rikki)
13.Apríl
Viðurkenningar afhentar.
Á leiknum gegn Arsenal þann 8.april afhentu félagar úr klúbbnum þrjár viðurkenningar til leikmanna Newcastle. >> Lesa meira
13.Apríl
Portsmouth - Newcastle
Fratton Park
Laugardaginn 14. Apríl Kl 14.00

Liðsfréttir
Shay Given missir af leiknum um helgina vegna nárameiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Asrenal síðasta mánudag. Kireon Dyer, Scott Parker, Antoine Sibierski og Craig Moore eru allir tæpir vegna smávægilegra meiðsla. Þeir félagar Michael Owen og Shola Ameobi eru byrjaðir að æfa á fullu en eru ekki tilbúnir í slaginn ennþá. Fyrri leikur liðanna í vetur fór 1-0 og var það Sibierski sem skoraði sigurmarkið í leiknum sem fór fram í nóvember. Leikur liðanna á Fratton Park á síðasta tímabili endaði 0-0. Hópurinn er svona: Harper, Srnicek, Solano, Carr, Babayaro, Edgar, Taylor, Bramble, Onyewu, Moore, Ramage, Huntington, Butt, Parker, Milner, Duff, Emre, N'Zogbia, Pattison, Troisi, Martins, Dyer, Sibierski, Luque, Carroll, LuaLua.
(Rikki)
12.Apríl
Owen á æfingu í dag
Þessar myndir voru teknar í dag af ljósmyndara Newcastle Ian Horrocks þegar Michael Owen tók þátt í æfingu með félögum sínum í Newcastle

Hér má sjá Owen leika á Babayaro. Þeir Gooch, Martins og N´Zogbia fylgjast með.
Fleiri myndir
(Rikki)
11.April
Owen og Ameobi spiluðu æfingaleik og skoruðu báðir.
Enski knattspyrnumaðurinn Michael Owen lék í gær sinn fyrsta leik síðan hann sleit krossband í hné í landsleik Englands og Svíþjóðar í heimsmeistarakeppninni í Þýskalandi síðasta sumar. Owen skoraði eitt mark og lagði annað upp þegar Newcastle vann topplið skosku 1. deildarinnar, Gretna, í æfingaleik fyrir luktum dyrum á æfingasvæði Newcastle.Samkvæmt staðarblaðinu The Journal þótti Owen ótrúlega frískur miðað við langa fjarveru og erfið meiðsli en hann spilaði í 75 mínútur. Hann lagði upp mark fyrir Shola Ameobi, sem líka spilaði sinn fyrsta leik á þessu ári eftir að hafa gengist undir aðgerð á mjöðm í desember. Talið er líklegt að Owen komi inn í leikmannahóp Newcastle þegar liðið mætir Chelsea í úrvalsdeildinni um aðra helgi. „Ef hann getur spilað svona eftir að hafa verið frá keppni í tíu mánuði, þá vildi ég ekki mæta Michael Owen í fullri æfingu. Hann er ekki í leikformi en mér sýnist hann vera tilbúinn til að spila í úrvalsdeildinni," sagði Gavin Skelton, varnarmaður Gretna, við The Journal. „Markið var dæmigert fyrir frábæran sóknarmann. Þetta var ekki nema hálffæri á vítateigslínu, en á augabragði hafði hann afgreitt boltann í markhornið niðri. Þetta var ekkert þrumuskot, bara nákvæmt og snilldarvel gert. Ég gat ekki séð að hann skorti úthald og miðað við líkamlegt ástand hans benti ekkert til þess að þetta væri hans fyrsti leikur eftir langvarandi meiðsli. Við erum ekki með slæmt lið en hann er besti leikmaður sem ég hef mætt og sem betur fer þarf ég ekki að glíma við framherja í þessum gæðaflokki í hverri viku," sagði Skelton en lið hans er á leið upp í skosku úrvalsdeildina, aðeins þremur árum eftir að það fékk aðgang að skosku 3. deildinni. (Tekið af mbl.is)
10.April

Tim Krul á batavegi
Hinn 19 ára Hollendingur Tim Krul hefur sett sér markmið um að komast í 21 árs landslið Hollendinga fyrir sumarið en úrslitakeppni 21árs landsliða fer fram í heimalandi hans í sumar Krul hefur ekkert spilað síðan í nóvember en þá átti hann sankallaðan stórleik gegn Palermo í UEFA keppninni. Síðan lenti hann í því óhappi að meiðast í upphitun í leik gegn Watford í Carling bikarkeppninni og hefur hann þurft að fara í tvær aðgerðir síðan en er nú byrjaður að æfa á fullu með Newcastle. Krul segir að hann sé mjög ánægður hjá Newcastle og vill vera lengi hjá klúbbnum.
(Rikki)
10.April

Solano vongóður um samning
Hinn 32 ára Perúmaður Nolberto Solano er vongóður um að hann fái nýjan samning hjá Newcastle.
Solano hefur þurft að spila hægri bakvörð í nánast allan vetur þar sem mikil meiðsli hafa verið í herbúðum Newcastle. Hann átti frábær tilþrif í leiknum gegn Arsenal í gær þar sem hann bjargaði tvívegis á marklínu með stuttu millibili. Solano bar fyrirliðabandið í 65 mínútur eftir að Given fór útaf vegna meiðsla og er það í fyrsta sinn sem hann fyrirliði í alvöru leik hjá Newcastle. Solano sagði í viðtali á heimasíðu Newcastle að það hafi verið mikill heiður að fá að bera fyrirliðabandið hjá Newcastle.
(Rikki)
10.April
Bulut fær ekki samning
Tyrkinn Erol Bulut (32ára) fær ekki samning hjá Newcastle. Bulut er með lausan samning í sumar og Roeder vill fá samkeppni um vinstri bakvörðinn, Bulut hefur verið til reynslu undanfarið hjá Newcastle en hefur ekki staðið undir væntingum.
(Rikki)
9.April
Newcastle - Arsenal 0-0

Bragðdauft jafntefli á
St James Park
Leikurinn í dag var ekki mikið fyrir augað. Scott Parker gat ekki leikið í dag og tók Shay Given við fyrirliðabandinu í hans stað. Given náði þó aðeins að bera það í 25 mínútur en hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla í nára sem hafa verið að hrjá hann undanfarið. Newcastle fékk tvö góð færi til að skora í fyrri hálfleik og var það Damien Duff í bæði skiptin. Leikmenn Arsenal voru slakir í þessum leik og átti vörn Newcastle ekki í vandræðum með framherja Arsenal. James Milner átti skot í slánna í byrjun seinni hálfleiks og var það hættulegasta færi heimamanna í seinni hálfleik. Arsenal átti sannkallað dauðafæri undir lok leiksins en Nolberto Solano bjargaði tvívegis á línu með miklum tilþrifum. Lið Newcastle í þessum leik : Given (Harper 25), Solano, Onyewu, Taylor, Carr, Milner, Butt, Emre (Luque 88), Duff, Martins, Dyer (N'Zogbia 52). Varamenn: Bramble, Ramage.
Skot á mark : NUFC 8 Ars 6
Hornspyrnur: NUFC 3 Ars 6
Gult Spjald Steven Taylor
Áhorfendur 52.293
Maður leiksins: Nicky Butt átti frábæran leik á miðjunni
(Rikki)
8.April
Newcastle - Arsenal
St James Park
Mánudaginn 9. Apríl Kl 14.00

Liðsfréttir
13 félagar úr Newcastle klúbbnum verða á leiknum gegn Arsenal og munu þeir vonandi skemmta sér eins vel og þeir gerðu gegn Sheff Utd en þeir skelltu sér á hann á laugardaginn og sáu okkar menn sigra 1-2.
Scott Parker er tæpur í leikinn gegn Arsenal eftir að hafa haltrað útaf gegn Sheff Utd á laugardaginn. Líklegt er að annaðhvort Dyer eða Emre komi inn í staðinn fyrir Parker. Fyrri leikur liðanna í vetur fór 1-1 og var það Kireon Dyer sem skoraði glæsilegt mark í þeim leik. Leikur liðanna á síðasta tímabili á St James Park lauk með 1-0 sigri okkar manna og var það Nolberto Solano sem skoraði sigurmark leiksins á 82 mínútu. Hópurinn er eftirfarandi:
Given, Harper, Solano, Carr, Babayaro, Edgar, Taylor, Bramble, Onyewu, Moore, Ramage, Huntington, Butt, Parker, Milner, Duff, Emre, N'Zogbia, Pattison, Troisi, Martins, Dyer, Sibierski, Luque, Carroll.
(Rikki)
7.April
Sheffield United - Newcastle 1-2
(Nade 74) - (Martins 17, Taylor 80)

Loksins sigur hjá Newcastle
Eftir 397 mínútur án marks í úrvalsdeildinni náði Obafemi Martins að brjóta ísinn á 17 mínútu leiksins í dag með flottu marki eftir að James Milner lagði boltann fyrir Martins. Sheffield Utd jafnaði leikinn á 74 mínútu með marki frá Nade. Hetja dagsins var svo Steven Taylor sem skallaði boltann í mark heimamanna eftir hornspyrnu frá Milner. Sheffield Utd var svo nálægt því að jafna leikinn á lokamínútunum en Shay Given varði snilldarlega. Á myndinni má sjá þá félaga Milner og Taylor fagna sigurmarki leiksins.
Liðið í dag: Given, Solano (Onyewu 84), Moore, Taylor, Carr, Milner, Butt, Parker (Emre 56), Duff, Sibierski (Dyer 75), Martins. Varamenn: Harper, Babayaro.
Gult spjald: Parker 33 mín
Skot á mark: SU 10- NUFC 10
Hornspyrnur SU 5- NUFC 4
(heimildir Sky Sports)
Maður leiksins: Steven Taylor
(Rikki)
7.April
Markahæstu menn í vetur (í öllum keppnum)
Damien Duff 1
Paul Huntington 1
Titus Bramble 1
David Edgar 1
Emre 1
(Rikki)
6.April
Sheffield United - Newcastle
Bramall Lane
Laugardag kl 14.00

Craig Moore verður sennilega með gegn Sheff Utd þrátt fyrir að hafa haltrað útaf gegn Man City um síðustu helgi. Það styttist óðum í þá félaga Owen og Ameobi sem eru byrjaðir að æfa. Annars eru engir aðrir meiddir sem er óvanalegt í vetur. Newcastle á harma að hefna frá fyrri leik liðanna í vetur en eins og flestir muna að þá tapaði Newcastle 0-1 fyrir Sheff Utd á St James Park þan 4 Nóvember síðastliðinn. Lið Newcastle hefur aðeins haldið marki sínu hreinu í 6 leikjum í deildinni í vetur, það eru aðeins Tottenham og West Ham sem hafa lakari árangur en þau hafa haldið hreinu í 5 leikjum í vetur. Newcastle hefur ekki skorað mark í 380 mínútur eða 6 klukkutíma og 20 mínútur og var það Nolberto Solano sem skoraði síast mark fyrir Newcastle 10 Febrúar í 2-1 sigri gegn Liverpool. Hópurinn sem Roeder hefur úr að velja er eftirfarandi: Given, Harper, Solano, Carr, Babayaro, Edgar, Taylor, Bramble, Onyewu, Moore, Ramage, Huntington, Butt, Parker, Milner, Duff, Emre, N'Zogbia, Pattison, Troisi, Martins, Dyer, Sibierski, Luque, Carroll, LuaLua.
(Rikki)
5.April

Stuttar fréttir og smá slúður
# Steve Sidwell miðjumaður hjá Reading er orðaður við Newcastle í sumar.
# Roy Keane vill fá Nicky Butt til Sunderland í sumar.
# Erot Bulut er á reynslu hjá Newcastle þessa dagana. Bulut rennur út á samning í sumar. Þessi 32 ára Tyrki sem er á mála hjá Gríska liðinu Olympiakos getur spilað vinstri bakvörð og einnig vinstri kant.
# Fulham er nú talið líklegast til að fá Titus Bramble í sumar en ekki er líklegt að hann verði áfram í herbúðum Newcastle.
# Glenn Roeder hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að Damien Duff mun verða áfram hjá Newcastle enda gerði hann 5 ára samning við Newcastle síðasta sumar.
(Rikki)
3.April
Roeder stefnir á að komast í topp tíu
Glenn Roeder vill að leikmenn Newcastle sanni sig í þeim leikjum sem eftir eru á tímabilinu og stefnir á að komast á meðal topp tíu í deildinni. "Sumir leikmenn verða klára tímabilið með krafti". Það er enn hellingur af stigum eftir í pottinum og með góðum úrslitu getum við endað í efri helmingi deildarinnar" Sagði Roeder við enska fjölmiðla.
(Rikki)
2.April
St James Park verður stækkaður
Freddy Shephard tilkynnti í dag að til stendur að stækka St James Park. Fjölga á sætum um átta þúsund sæti og mun völlurinn taka rúmlega 60.000 áhorfendur eftir breytingu. Þá er einnig ætlunin að byggja fundarsal, hótel og lúxusíbúðir og mun þessi framkvæmd kosta um 300 milljónir punda. Stækkun vallarins mun verða á Gallowgate End. Freddy Shephard tilkynnti líka í dag að Newcastle muni kaupa nýja leikmenn í sumar og mun þessi stækkun á St James Park ekki hafa áhrif á leikmannakaup í sumar.
(Rikki) |