Fréttir í desember 2007

31.Des

Newcastle - Man City

St James´ Park

Miðvikudaginn 2 jan kl 19:45

Það gæti farið svo að Michael Owen byrji inná gegn Man City á miðvikudag en hann spilaði síðustu 20 mínúturnar gegn Chelsea. Alan Smith þurfti að  dvelja á sjúkrahúsi yfir nótt eftir leikinn gegn Chelsea en hann fékk vænt höfuðhögg. Hann fékk þó að fara heim daginn eftir og ætti að vera orðinn klár í fyrir næsta leik. Það eru enginn ný meiðsli í leikmannahóp Newcastle þannig að Big Sam hefur úr stórum hóp að velja. Man City hefur komið á óvart í vetur og er í 5 sæti deildarinnar en liðinu hefur ekki gengið vel á útivelli og hafa þeir aðeins unnið 1 leik, gert 4 jafntefli og tapað 4 leikjum. Þeim hefur hinsvegar gengið mjög vel á heimavelli og unnið 9, gert 2 jafntefli og ekki enn tapað leik. Hópurinn sem Big Sam hefur úr að velja er svona: Given, Harper, Carr, Beye, N'Zogbia, Enrique, Rozehnal, Cacapa, Taylor, Faye, Edgar, Geremi, Butt, Milner, Emre, Duff, Smith, Martins, Viduka, Owen, Ameobi.

Newcastle hefur gengið ágætlega gegn City á SJP undanfarin ár ef frá er skilið leikurinn á síðasta tímabili en þá vann City 0-1. Liðin hafa mæst níu sinnum frá stofnun úrvalsdeildarinnar og hefur Newcastle unnið 6 sinnum, liðin einu sinni gert jafntefli og City hefur unnið tvisvar. Markataln er 15-6 Newcastle í vil.

2006/07  0-1
2005/06  1-0 Owen
2004/05  4-3 Robert, Shearer, Elliott, Bellamy.
2003/04  3-0 Shearer 2, Ameobi
2002/03  2-0 Shearer, Bellamy
2001/02  1-0 Solano (FA Bikar)
2000/01  0-1
1995/96  3-1 Ferdinand 2, Beardsley
1994/95  0-0
1994/95  3-1 Gillespie 2, Beresford (FA Bikar
)
1994/95  0-2 (Deildarbikar)
1993/94  2-0 Cole 2
(FB)

 

29.Des

Chelsea - Newcastle 2-1

(Essien 29, Kalou 87) - (Butt 56)

Nicky Butt skorar jöfnunarmarkið í dag

 

Dómaraskandall í Stamford Bridge í dag

Einn mesti dómaraskandall í vetur átti sér stað á Stamford Bridge í dag þegar Chelsea skoraði seinna mark sitt. Kalou stóð um tvo metra fyrir innan vörn Newcastle þegar hann fékk boltann frá samherja og er með ólíkindum að aðstoðardómarin leiksins skyldi ekki lyfta flagginu. En þegar gengi liðsins er svona eins og það hefur verið í undanförnum leikjum þá fellur ekkert með okkur. En að leiknum í dag þá var allt annað að sjá til liðsins en í síðustu leikjum. En heimamenn fengu fleiri færi og hafði Shay Given nóg að gera í markinu. Fyrra mark Chelsea þótti líka vafasamt því þegar Wright Phillips skaut að markinu þá fór boltinn greinilega í hönd Kalou og boltinn féll beint fyrir fætur Essien sem átti ekki í erfiðleikum að skora framhjá Given í markinu. Jöfnunarmark Newcastle kom í seinni hálfleik eftir góðan undirbúning hjá N´Zogbia sem átti góðan sprett upp vinstri kantinn og sendi boltann á Martins sem hitti boltann illa en hann féll fyrir fætur Nicky Butt sem skoraði sitt annað mark í vetur. Að vísu var það Wayne Bridge sem ýtti boltanum yfir línuna en Butt fær markið sennilega skráð á sig. Eins og áður sagði þá fengu Chelsea hættulegri færi en Given átti stórleik í markinu og bjargaði oft glæsilega. það var ansi hart fyrir Newcastle að fá svo þetta kolólöglega mark á sig eftir svona góða baráttu.

Sam Allardyce var að vonum ekki sáttur við dómaratríóið eftir leikinn. "Þetta er virkilega sárt, ekki bara fyrir mig heldur leikmennina sérstaklega. Við vorum gjörsamlega rændir góðum úrslitum af aðstoðardómara sem tók fáránlega ákvörðun. Maður getur ekki annað en kvartað þegar svona ákvörðun er tekinn og það kostar okkur mikilvæg úrslit" sagði Allardyce.

Það voru gerðar þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik. Martins, Butt og Cacapa komu inn fyrir þá Geremi, Emre og Viduka. Þá kom Owen inná síðustu 20 mínúturnar en hann náði ekki að komast í takt við leikinn. Martins virtist ekki vera sáttur við að vera tekinn útaf og hristi hann hausinn þegar hann gekk af vellinum.

Liðið í dag: Given, Beye, Taylor, Cacapa, N'Zogbia, Milner, Butt, Faye, Smith (Rozehnal 70), Duff (Viduka 89), Martins (Owen 74).
Ónotaðir varamenn: Harper, Emre.

Skot á mark: Che 16 (10) - Nufc 3 (2)

Hornspyrnur: Che 12 - Nufc 3

Gul sjpöld: Given, Faye

Áhorfendur: 41,751

Maður leiksins: Shay Given

(FB)

29.Des

Gúrkutíð hjá 365 miðlum ?

Hún er með eindæmum furðuleg fréttamennskan hjá 365 miðlum stundum. Í gær horfði ég á íþróttafréttir á Stöð 2 og þar var Gaupi með íþróttafréttirnar og var hann með frétt þess efnis að Big Sam hefði þrjá leki til að bjarga starfi sínu hjá Newcastle. Hvaðan fær hann þessar fréttir ? Líklega úr slúðurblöðum í Englandi sem eru sjaldnast sannar. Það er stundum ótrúlegt að hlusta á þessa "íþróttafréttamenn" grípa svona slúður til að búa til æsilega frétt. Það á allavega að taka það fram í fréttinni að þetta sé úr slúðurblöðum. Svo toppaði hann vitleysuna með því að segja að Barton hefði verið fyrsti leikmaðurinn sem Big Sam hefði fengið til Newcastle. Hið rétta er að Mark Viduka var sá fyrsti sem Sam fékk til liðsins þann 7 júni síðastliðinn. Barton kom viku seinna. Sannir íþróttafréttamenn kynna sér staðreyndir áður en farið er með slíkt bull í loftið.

(FB)

 

28.Des

Chelsea - Newcastle

Stamford Bridge

Laugardaginn 29 des kl 15:00

29.Des

Newcastle mætir stórliði Chelsea á morgun laugardag og verður fróðlegt að sjá hvernig leikmenn Newcastle bregðast við eftir harða gagnrýni úr ýmsum áttum. Síðustu tveir leikir gegn Wigan og Derby hafa verið vægast sagt slakir að hálfu Newcastle. Og ekki skánaði vikan í gær þegar fréttist að Joey Barton hefði verið handtekinn ásamt 19 ára gömlum bróður sínum og 27 ára gamalli konu í Liverpool vegna árásar á tvo menn. Barton var svo neitað um reynslulausn í dag og mun hann að öllum líkindum sitja í fangelsi fram yfir áramót. Barton missir þar með af leikjunum gegn Chelsea og fyrrum félögum sínum í Man City. Af öðrum leikmönnum er það að frétta að Michael Owen verður sennilega á bekknum, Cacapa og Butt eru tilbúnir eftir að hafa verið hvíldir í síðasta leik. Lið Chelsea verður án nokkurra sterkra leikmanna eins og Lampard, Terry, Drogba, A Cole Carvalho, Makalele og Malouda en engu að síður er leikmannahópur Chelsea mjög sterkur. Hópurinn sem mætir Chelsea: Given, Harper, Carr, Beye, N'Zogbia, Enrique, Rozehnal, Cacapa, Taylor, Faye, Edgar, Geremi, Butt, Milner, Emre, Duff, Smith, Martins, Viduka, Owen.

Owen og Cacapa á æfingu í dag

 

Árangur Newcastle á Stamford Bridge síðustu ár er vægast sagt skelfilegur. Síðustu sex viðureignir liðanna í deildinni á Brúnni hafa allir endað með tapi og markatalan er 0-17 Chelsea í vil. Og ef allar keppnir eru taldar með frá árinu 1994 er hafa liðin spilað 17 leiki og hefur Chelsea unnið 12 leiki, fimm sinnum hafa liðin gert jafntefli og Newcastle hefur aldrei sigrað. Markatalan er eins og gefur að skilja ekki góð 6-30 Chelsea í vil.

 Sá sem síðast skoraði gegn Chelsea á Brúnni er Clarence Acuna á tímabilinu 2001/02 en þá endaði leikurinn 1-1. Við skulum því vona að sagan endurtaki sig ekki líkt og gerðist gegn Wigan á annan dag jóla.

Gengi Newcastle á Stamford Bridge frá tímabilinu

2006/07:  0-1
2005/06:  0-1
2005/06:  0-3
2004/05:  0-4
2003/04:  0-5
2002/03:  0-3
2001/02:  0-1 (Deildarbikar)
2001/02:  1-1 Acuna
2000/01:  1-3 Bassedas
1999/00:  0-1 
1998/99:  1-1 Andersson
1997/98:  0-1 
1996/97:  1-1 Shearer
1995/96:  1-1 Ferdinand (FA Bikar)
1995/96:  0-1
1994/95:  1-1 Hottiger
1993/94:  0-1

(FB)

27.Des

Allardyce "Smith verður fyrirliði"

Sam Allardyce hefur staðfest að Alan Smith verði fyrirliði í fyrirsjáanlegri framtíð. Smith var fyrirliði í leiknum gegn Wigan þó svo að Geremi væri í byrjunarliðinu. Eftir leikinn útskýrði Allardyce afhverju Smith bæri fyrirliðabandið. "Þetta er endanleg ákvörðun í bili allavega vegna þess að Geremi er að fara í Afríkukeppnina. Við Þurfum einhvern sem hefur rétt viðhorf og hollustu sem Alan hefur sýnt. Við þurfum að sjá þetta frá öllum leikmönnum því þú getur ekki unnið úrvalsdeildarleiki  án slíks viðhorfs til liðsins" sagði Allardyce að lokum.

(FB)

 

27.Des

Allardyce lætur leikmenn heyra það

Sam er ósáttur við að framtíð hans sem stjóri Newcastle sé í höndum leikmanna sem eru að spila langt undir getu.

"Þetta eru leikmennirnir sem ég hef. Suma af þeim hef ég keypt og suma ekki. Sumir hafa sýnt mér hvað þeir geta, í rauna hafa flestir hafa sýnt mér hvað þeir geta á góðum degi. En of margir hafa sýnt mér hvað þeir falla á lágt plan á slæmum degi".

Newcastle er nú í 11 sæti með 26 stig í 19 leikjum og áttu varla færi gegn Wigan. Allardyce sagði sökina á tapinu í gær vera í höndum leikmanna og er sammála stuðningsmönnum sem voru ósáttir á pöllunum í gær og skyldi engan undra. Sam bætti við "Ef ég hefði verið einn af þeim þá hefði ég sungið það sem þeir sungu því við vorum slakir. Ég veit að við vorum slakir og það þarf engan snilling til að sjá það. Stuðningsmennirnir eru ekki heimskir. Leikformið sem leikmennirnir eru að sýna þessa dagana er óásættanlegt" sagði Allardyce.

Chris Waddle fyrrum leikmaður Newcastle er viss um að pressan á Allardyce muni minnka ef hann nær að kaupa einhverja skapandi leikmenn í janúar. "Stuðningsmenn eru ósáttir vegna þess þeir vilja horfa á skemmtilegan bolta og boltinn sem liðið er að spila þessa dagana er ekki skemmtilegur á að horfa. Þegar Kevin Keegan kom til félagsins þá spilaði liðið skemmtilegan bolta sem aðdáendur höfðu gaman að. Nú er fótboltinn sem liðið spilar ekki skemmtilegur. Þeir hafa ekki skapandi leikmenn. Og í raun hafa þeir ekki leikmenn sem skemmta áhorfendum. Stuðningsmenn munu standa með liðinu vegna þess að þeir eru mjög trúir sínu félagi en ég held að janúar verði áhugaverður ef Allardyce nær í einhverja áhugaverða leikmenn" sagði Waddle að lokum.

(FB)

26.Des

Wigan - Newcastle 1-0

                    (Taylor 65)

Hrein hörmung

Sagan endurtók sig á JJB Stadium í dag þegar Newcastle tapaði 1-0 í fjórða skiptið í röð. Ég get ekki lýst því hvað ég var pirraður eftir að hafa horft á þennan leik því að það var ekkert að gerast hjá Newcastle í dag. Enginn sóknarleikur, ekkert miðjuspil, boltanum nelgt fram völlinn og það var eins og dagskipunin væri að halda jöfnu gegn liðinu í næstneðsta sæti. Wigan vann sanngjarnan sigur í dag þó svo að þeir hafi verið lélegir þá voru þeir betri en Newcastle. Big sam þarf virkilega að fara hrista upp í þessu liði okkar ef ekki á illa að fara. Duff var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu á tímabilinu en hann var eins og aðrir leikmenn í dag alveg skelfilegur. Ég fékk ósk mína uppfyllta með Emre að hann skyldi byrja inná en hann nýtur sín ekki þegar það er endalaust verið að beita löngum boltum upp völlinn. Big Sam byrjaði með Vikuka og Smith í framlínunni og gaf það ekki góða raun. Martins þurfti að sætta sig við að verma varamannabekkinn í dag en hann fékk að koma inná strax eftir að Wigan komst yfir en hann náði ekki að komast í takt við leikinn. Næsti leikur er gegn stórliði Chelsea á Stamford Bridge og eftir að hafa horft á tvo síðustu leiki eru væntingarnar ekki miklar. 

Liðið í dag: Given, Beye, Taylor, Faye, N'Zogbia, Milner, Smith, Geremi (Martins 66), Emre, Duff (Jose Enrique 78), Viduka.
Ónotaðir varamenn: Harper, Cacapa, Butt.

Skot á mark: Wig  8(6) - Nufc 7(6)

Hornspyrnur: Wig 3 - Nufc 2

Gul sjpöld: Milner, Emre, Smith, Taylor.

Áhorfendur: 20,304

Maður leiksins: Það á enginn skilið á fá þann heiður fyrir svona frammistöðu.

(FB)

 

24.Des

Wigan - Newcastle

JJB Stadium

Miðvikudaginn 26 des kl 15:00

Það er stutt á milli leikja á Englandi og ekki mikið um jólafrí á knattspyrnumönnum.

Það harðnar samkeppnin um sæti í byrjunarliðinu hjá Newcastle en Damien Duff kom sterkur til leiks í leiknum gegn Derby og gæti byrjað inná gegn Wigan. Abdoulaye Faye og Stephen Carr er orðnir leikfærir og banka á dyrnar líka hjá Big Sam. Maichael Owen er byrjaður að æfa aftur og gæti verið með í næstu leikjum ásamt Shola Ameobi sem hefur nánast ekkert spilað í vetur. Það má reikna með að Big Sam geri einhverjar breytingar á byrjunarliðinu eftir slaka frammistöðu gegn Derby. Steven Taylor byrjar nær örugglega inná og nú vill ég sjá Emre í byrjunarliðinu því hann er mest skapandi miðjumaðurinn í liðinu og ég hreinlega skil ekki af hverju hann er alltaf á bekknum. Mark Viduka heldur pottþétt sæti sínu eftir að hafa gert tvö mörk í síðasta leik. Maður setur spurningamerki við Martins því mér finnst hann ekki hafa staðið sig vel í fjarveru Owen. En það má segja honum til bjargar að hann hefur kannski ekki verið að fá þá þjónustu frá miðjunni sem hentar honum best. Langar sendingar upp völlinn er ekki það besta fyrir leikmann eins og Martins.

Newcastle hefur ekki gengið vel gegn Wigan frá því að þeir komu upp í úrvalsdeild á JJB Stadium og hafa þeir tapað þrem síðustu leikjum gegn þeim (einn í bikar). Allir hafa þeir tapast 1-0 þannig að Newcastle hefur ekki enn skorað mark á JJB. Tveir fyrrum leikmenn Newcastle verða með Wigan á miðvikudag en það eru þeir Antoine Sibierski og Titus Bramble. Við skulum vona að Bramble sýni varnartakta sem við þekkjum hann best fyrir. Nú er bara spýta í lófana, sækja þrjú stig á miðvikudag og gefa okkur stuðningsmönnum góða jólagjöf.

Gleðileg jól

(FB)

23.Des

Newcastle - Derby 2-2

(Viduka 27,87) - (Barnes 6, Miller 52)

Viduka fagnar fyrra marki sínu í dag ásamt félögum sínum

Viduka bjargar andliti Newcastle

Mark Viduka var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn í fimm leiki og hann þakkaði stjóra sínum traustið með því að skora tvö mörk í dag. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir heimamenn þegar Giles Barnes skoraði fyrir gestina á 6 mínútu með góðu skoti fyrir utan teig. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks var algjör einstefna að marki Derby. Á 10 mínútu átti Newcastle klárlega að fá vítaspyrnu þegar brotið var á Alan Smith á markteig og hreinlega óskiljanlegt afhverju dómarinn sá ekki ástæðu til að dæma neitt. Stuttu seinna átti Martins góðan skalla á markið sem varnarmaður Derby bjargaði á línu. Á 27 mínútu skoraði Viduka jöfnunarmark Newcastle eftir mikla þvögu fyrir framan vítateig Derby þar sem Alan Smith gerði vel og vann boltann. Viduka var á réttum stað og skaut góðu skoti í hornið hjá Bywater í markinu. Newcastle átti nokkur færi í viðbót en vörn Derby stóð fyrir sínu. Newcastle fékk annað rothögg í byrjun seinni hálfleiks þegar Miller skoraði annað mark Derby þegar um 7 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Vörn Newcastle leit ekki vel út þar. Mark Derby virtist slá heimamenn útaf laginu og voru gestirnir líklegri til að bæta við marki en Newcastle að jafna. Það var ekki eins mikið um færi hjá Newcastle í seinni hálfleik eins og í þeim fyrri, en undir lok leiksins náði Viduka að bjarga andliti Newcastle þegar Given átti langa sendingu fram völlinn á Martins sem náði að koma boltanum á Viduka sem skoraði gott mark. Það sem eftir lifði leiks sótti Newcastle án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Eitt stig í vetur gegn botnliði Derby er ekki góður árangur og sennilega vita leikmenn Newcastle það manna best. Það eina sem gladdi augað í dag var endurkoma Damien Duff í lið Newcastle og átti hann nokkra góða spretti. Það er nokkuð ljóst að hann á eftir að styrkja lið Newcastle töluvert þegar hann er kominn topp form.

Lið Newcastle í dag: Given, Beye, N,Zogbia, Rozehnal (Taylor 58), Cacapa, Milner, Smith, Butt (Duff 68), Barton (Emre 75), Viduka, Martins.

Ónotaðir varamenn: Harper, Geremi.  

Skot á mark Nufc 23 (13) - Derby 9 (6)

Hornspyrnur: Nufc 9 - Derby 2

Gul Spjöld: Butt, N´Zogbia

Áhorfendur: 51,386

Maður leiksins: Mark Viduka

(FB)

21.Des

Newcastle - Derby

St James´ Park

Sunnudaginn 23 des kl 14:00

Newcastle á harma að hefna frá fyrri leik liðanna í vetur en þá sigraði Derby 1-0, og er það eini sigur þeirra í úrvalsdeildinni í vetur. Steven Taylor er orðinn leikfær eftir að hafa misst af leiknum gegn Fulham vegna meiðsla. En það er ekki gefið mál að hann verði í byrjunarliðinu eftir að vörn Newcastle hélt hreinu í langan tíma. Michael Owen, Shola Ameobi, Abdoulaye Faye, Stephen Carr og Damien Duff eru enn frá en gætu allir verið með í næstu leikjum. Enda veitir ekkert af öllum þessum mönnum í þeirri leikjatörn sem er framundan. 

Hópurinn er svona:  Given, Harper, Beye, N'Zogbia, Rozehnal, Cacapa, Taylor, Geremi, Butt, Barton, Milner, Smith Martins, Emre, Viduka, Edgar, Enrique.

Leikir gegn Derby á St James´ Park frá tímabilnu 1996/97

2001/02  1-0 Shearer (v)
2000/01  3-2 Cort, Cordone, Glass
1999/00  2-0 Eranio (sjm), Shearer
1998/99  2-1 Dabizas, Glass
1997/98  0-0
1996/97  3-1 Elliott, Ferdinand, Shearer

(FB)

 

21.Des

Nicky Butt gerir nýjan samning

Samningur Butt átti að renna út næsta sumar en Newcastle bauð honum samning í eitt ár í viðbót sem hann þáði. Butt Kom til Newcastle árið 2004 frá Man Utd fyrir 2,5 milljónir punda  og hefur spilað 93 leiki með Newcastle. Hann var lánaður til Birmingham  tímabilið 2005/06 en hann hefur spilað 17 leiki með Newcastle það sem af er þessu tímabili. "Nicky hefur verið frábær fyrir okkur þetta tímabil og reynsla hans er ómetanleg. Það er mjög gott að hafa hann í hópnum og hann er frábær fyrirmynd fyrir ungu strákana. Vonandi heldur hann áfram að spila eins og hann hefur gert hingað til" sagði Sam Allardyce stjóri Newcastle.

(FB)

 

19.Des

Slúðrið

Alan Hutton (23 ára) hægri bakvörður hjá Rangers hefur verið undir smásjánni hjá Big Sam en Man Utd og Lazio eru líka sögð hafa áhuga á Hutton.

Ben Tozer 17 ára varnarmaður hjá Swindon er sagður vera við að ganga frá samningi við Newcastle. Big Sam segir að hann sé efnilegur leikmaður og hugsanlega muni þeir lána hann til Swindon strax í janúar til að öðlast reynslu.

Wes Brown er sterklega orðaður við Newcastle þessa dagana. Brown rennur út á samning næsta sumar og sagt er að Alan Smith og Nicky Butt séu að sannfæra fyrrum liðsfélaga sinn að koma til Newcastle.

Big Sam segir að Jonathan Walters miðjumaður hjá Ipswich sé ekki á leið til Newcastle og það sama má segja um Tamas Kadar 17 ára ungverja sem hefur verið til reynslu hjá Newcastle.

Bruno Alves 26 ára varnarmaður hjá Porto er orðaður við Newcastle og Bolton.

(FB)

 

19.Des

Sam Allardyce vonast til að næla í tvo til þrjá leikmenn í janúar

Newcastle missir fjóra leikmenn í allt að sex vikur þegar Afríkukeppnin fer fram í byrjun næsta árs. Geremi, Habib Beye, Abdoulaye Faye og Obafemi Martins verða allir með gegn Man City þann 2 janúar en gætu ekki snúið til baka fyrr en seint í febrúar. "Við þurfum tvo til þrjá leikmenn og við erum að skoða þau mál. En við þurfum góða leikmenn og ég vona að það gangi upp" sagði Big Sam.

(FB)

 

19.Des

Duff spilaði með varaliðinu í gær

Það styttist í að Damien Duff spili sinn fyrsta leik undir stjórn Sam Allardyce. Duff spilaði 90 mínútur og skoraði eitt mark með varaliðinu í gær gegn Middlesbro sem tapaðist  1-4. Duff er þó ekki enn klár í leik með aðalliðinu.  Abdoulaye Faye, Shola Ameobi og Steven Taylor spiluðu einnig í gær en Sam Allardyce sagði að Taylor væri sá eini af þessum þremur sem væri klár í leikinn gegn Derby. 

(FB) 

18.Des

Owen sennilega ekki með gegn Derby

Sam Allardyce að það sé aðeins 50% möguleiki að hann verði með gegn Derby á sunnudaginn. "Vonandi verður Michael mættur á æfingu í þessari viku þannig að leikurinn gegn Derby er sennilega of snemmt fyrir hann, en maður veit aldrei. En það eru meiri líkur á að Steven Taylor verði orðinn klár og vonandi Faye og Carr einnig. Við ætlum að reyna láta þá æfa eins fljótt og hægt er því það er mikið að leikjum framundan" sagði Sam í viðtali við Newcastle Chronicle.

(FB) 

 

18.Des

Barton hrósar liðsandanum

Joey Barton segir að liðsandinn hafi hjálpað þeim upp úr þeirri lægð sem liðið var komið í. Newcastle hefur krækt í 7 stig í síðustu þremur leikjum eftir að hafa nælt í 1 stig í fimm leikjum þar á undan. Hann segir að ferð sem liðið fór í til Edenborgar fyrir stuttu hafi þjappað liðinu saman og menn hafi kynnst hvor öðrum svolítið betur. "Það er mikil samkennd í hópnum og það hefur sést í síðustu leikjum. Liðið er byrjað að hafa trú á sjálfum sér og við ætlum okkur að halda áfram að klifra upp töfluna. Það var frábært að skora fyrsta markið mitt fyrir Newcastle en ég er ánægðari fyrir liðið þar sem við unnum leikinn. Tvö sigurmörk á síðustu mínútunni í tveim síðustu leikjum og það verður að hrósa strákunum fyrir að halda áfram að berjast fram á síðustu mínútu" sagði Barton.

(FB)

 

15.Des

Fulham - Newcastle 0-1

             (Barton 90 vsp)

(Aaron Hughes og Joey Barton berjast um boltann)

 

 Barton tryggir Newcastle sigur á síðustu stundu

Annar útisigur Newcastle á þessu tímabili leit dagsins ljós í kvöld þegar Newcastle heimsótti Fulham á Craven Cottage. Líkt og í leiknum gegn Birmingham kom sigurmarkið á síðustu mínútu leiksins. Það er óhætt að segja að þessi leikur hafi ekki verið mikil skemmtun fyrir áhorfendur. Fyrri hálfleikur var vægast sagt tíðindalítill og fengu liðin sitthvort færið í fyrri hálfleik. Barton átti skalla að marki Fulham á 14 mínútu sem Niemi varði vel. Nokkrum mínútum áður hafði Given varið vel frá Healy. Seinni hálfleikur var örlítið skárri en sá fyrri en samt ekki mikið um færi á báða bóga. Það var ekki fyrr en Emre kom inná að Newcastle fékk sitt hættulegasta færi í seinni hálfleik þegar hann tók aukaspyrnu fyrir miðjum vallarhelmingi Fulham og hitti beint á kollinn á Butt sem skallaði beint í fangið á Niemi í markinu. Það var svo ekki fyrr en á lokamínútu leiksins það dró til tíðinda þegar Smith fékk boltann frá Viduka og Omuzusi varnarmaður Fulham braut klaufalega á honum innan teigs og Howard Webb dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu. Kannski svolítið harður dómur en það er alveg kominn tími á að Newcastle fái eitthvað með sér. Joey Barton tók vítaspyrnuna og skoraði örugglega framhjá Niemi í markinu sem valdi rétt horn en átti ekki möguleika að verja skot hans. Þetta var fyrsta mark Barton fyrir Newcastle og nokkuð mikilvægt. Dómari leiksins flautaði til leiksloka stuttu seinna og fögnuðu leikmenn Newcastle mikið.

Newcastle náði að halda marki sínu hreinu í fyrsta sinn síðan  1 september eða síðan þeir spiluðu gegn Wigan á St James Park og unnu 1-0. Það er líklega eini plúsinn úr þessum leik. 7 stig í síðustu þrem leikjum er bara nokkuð gott og næsti leikur heima gegn botnliði Derby og eigum við harma að hefna gegn þeim. Eini sigur þeirra í vetur var einmitt gegn Newcastle þann 17 september.

Lið Newcastle í kvöld:

Given, N'Zogbia, Rozehnal, Cacapa, Beye, Geremi (Emre 59), Butt, Barton, Milner, Smith, Martins (Viduka 77).
Ónotaðir varamenn: Harper, Jose Enrique, Edgar.

Skot á mark: Ful 10 (5) - Nufc 6 (4)

Hornspyrnur: Ful 7 - Nufc 6

Gult spjald: Emre

Áhorfendur: 24,959

Maður leiksins: Habib Beye (Stóð sig mjög vel í vörninni)

(FB)

14.Des

Fulham - Newcastle

Craven Cottage

Laugardaginn 15 des kl 17:15

Það eru engin ný meiðsli í leikmannhóp Newcastle frá því í leiknum gegn Birmingham. Nicky Butt þurfti að fara af velli gegn Birmingham vegna smávægilegra meiðsla en hann er orðinn klár í slaginn á ný. Claudio Cacapa gæti hugsanlega komið inn í hópinn eftir að hafa spilað með varaliðinu í gær. Það má reikna með að Big Sam stilli upp svipuðu liði og hann gerði gegn Birmingham en þó er aldrei að vita. Hópurinn er svona:  Given, Harper, Beye, Enrique, Rozehnal, Taylor, Cacapa, Edgar, Butt, Milner, Geremi, Emre, N'Zogbia, Barton, Smith, Viduka, Martins, Ameobi.

Newcastle á Craven Cottage síðan 2001/02

2006/07:  1-2 Martins
2005/06:  0-1
2004/05:  3-1 Ambrose, Kluivert, Ameobi
2003/04:  3-2 Robert, Shearer 2*
 
2002/03:  1-2 Shearer*

2001/02:  1-3 Speed

* Á Loftus Road.

(FB)

14.Des

Damien Duff spilaði í 90 mínútur

Írinn snjalli Damein Duff spilaði í 90 mínútur með varaliðinu í gær gegn Hartlepool fyrir luktum dyrum. Þessi leikur var settur sérstaklega á fyrir Duff sem þakkaði fyrir sig og skoraði eitt mark í 4-1 sigri Newcastle. Duff mun þó ekki verða í hópnum sem mætir Fulham um helgina. Claudio Cacapa spilaði einnig í gær og kemur hann til greina á varamannabekkinn gegn Fulham. Big Sam sagði í gær að Duff þyrfti tvo til þrjá leiki í viðbót með varaliðinu áður enn hann kemur til greina í aðalliðið. "Hann spilaði allan leikinn og skoraði, en við munum ekki taka neina óþarfa áhættu með hann. Hann er bara virkilega ánægður með að vera kominn út á völl að spila fótbolta eftir erfið meiðsl" sagði stjórinn.

(FB)

 

11.Des

Big Sam "Edmilson kemur ekki í janúar"

Sam Allardyce hefur staðfest að hann muni ekki reyna næla í Edmilson leikmann Barcelona í janúar. "Hann hefur ekkert spilað á þessu tímabili og það væri alltof mikil áhætta að fá hann til okkar núna. En það er hinsvegar mun ég skoða það í sumar að fá hann til okkar" sagði Sam.

Edmilson sem er enn í endurhæfingu rennur út á samning hjá Barcelona næsta sumar, hann hefur staðfest að þetta sé síðasta tímabil hans með Barcelona. Edmilson og Claudio Cacapa er miklir félagar og hafa mikinn áhuga á að spila saman.

(FB)

11.Des

Lance Davids til reynslu hjá Newcastle

Samkvæmt frétt hjá Sky Sports þá hefur Newcastle boðið Lance Davids 22 ára gömlum Suður Afríkubúa að æfa með liðinu í viku til reynslu. Davds spilar á miðjunni með Djurgarden í Svíþjóð en er spenntur fyrir því að komast í úrvalsdeildina. Yfirmaður íþróttamála hjá Djurgarden Bosse Andersen staðfesti að þeir hefðu leyft honum að ferðast til Englands og vera hjá Newcastle þessa viku. "Hann var hjá Blackburn í síðustu viku og þeir voru ánægðir með hann og nú verður hann hjá Newcastle en við höfum ekki fengið nein tilboð ennþá, honum hefur bara verið boðið að koma til reynslu" sagði Andersen. Davids kom til Djurgarden frá 1860 Munchen í byrjun árs 2006 og átti erfitt uppdráttar með sænska liðinu í byrjun en festi sig í sessi í byrjunarliðinu á þessu ári hjá Sigurði Jónsyni stjóra Djurgarden. Davids spilaði 22 leiki og skoraði eitt mark á þessu tímabili. 

Djurgarden endaði í þriðja sæti sænsku deildarinnar þremur stigum frá toppliði Gautaborg.

(FB) 

 

11.Des

Virkið St James´ Park

Þótt ótrúlegt megi virðast þá er byrjunin á þessu tímabili sú besta á SJP í fimm ár. Newcastle hefur fengið 17 stig á heimavelli í níu heimaleikjum. Það þarf að fara til tímabilsins 2002/03 til að finna betri árangur en nú, það var þegar Sir Bobby Robson var við stjórnvölin. Þá krækti Newcastle í 24 stig í níu fyrstu heimaleikjum sínum. Nú er bara að krækja í 3 stig í næsta heimaleik en það er gegn Derby þann 23 des og er ég hræddur um að Newcastle aðdáendur verði illa svekktir ef það tekst ekki.

(FB)

11.Des

Stuttar fréttir

# Michael Owen hefur sett stefnuna á að verða orðinn leikfær fyrir leikinn gegn Derby á Þorláksmessu.

# Það hefur verið settur á æfingaleikur fyrir luktum dyrum til að koma þeim  Damien Duff, Abdoulaye Faye, Claudio Cacapa og Shola Ameobi í leikform.

# Celestine Babayaro hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Newcastle samkvæmt mörgum netmiðlum. Babayaro hefur aðeins byrjað 66 leiki frá því hann kom til Newcastle frá Chelsea fyrir 1milljón punda í Janúar 2005.

# Aston Villa, Sunderland og Newcastle eru orðuð við Wes Brown varnarmann Man Utd sem rennur út á samning næsta sumar.

# Í öðru slúðri er sagt að Newcastle ætli að bjóða 10 milljónr í Diego leikmann Werder Bremen. Diego er Brasilískur miðjumaður sem var kosinn leikmaður Bundesligunnar í fyrra.

# Luis Garcia leikmaður Espanyol segist ekki vera á förum frá liðinu en hann hefur verið orðaður við Newcastle í janúar.

(FB)

8.Des

Newcastle - Birmingham 2-1

(Martins 37 vsp, Beye 90) - (Jerome 9)

Martins fagnar marki sínu í dag.

 

Loksins sigur á  hjá Newcastle

Eftir 6 leiki án sigurs þá náði Newcastle loksins að tryggja sér þau þrjú stig sem í boði voru í dag þegar Birmingham kom í heimsókn á St Jmaes´ Park. Eins og svo oft áður þá byrjaði leikurinn ekki vel fyrir Newcastle, Jerome hafði komið Birmingham yfir eftir aðeins 9 mínútna leik. Vörn Newcastle illa á verði þegar löng sending frá aftasta varnarmanni Birminham náði alla leið á Jerome sem slapp einn í gegn og átt ekki í erfiðleikum að koma boltanum framhjá Given í markinu. Líkt og í leiknum gegn Arsenal þá vöknuðu heimamenn við þetta mark og pressuðu stíft á mark gestanna það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Martins krækti í vítaspyrnu á 37 mínútu þegar Matthew Sadler felldi Martins á markteig og réttilega dæmd vítaspyrna þrátt fyrir kröftug mótmæli leikmanna Birmingham.

Martins tók sjálfur spyrnuna og skoraði úr henni. Maik Taylor markmaður Birmingham valdi rétt horn en sló boltann í stöng og inn. Eftir jöfnunarmarkið hefðu Newcastle getað með smá heppni gert 2-3 mörk fyrir hlé. Maik Taylor bjargaði í tvígang frá Martins og Milner. Milner átti svo glæsilegt skot í slánna rétt fyrir leikhlé og staðan því 1-1 í hálfleik. Í byrjun seinni hálfleiks gerðu gestirnir harða hríð að marki Newcastle og áttu nokkur góð færi en náðu ekki að nýta þau. En þegar leið á seinni hálfleikinn þá náði Newcastle undirtökunum í leiknum án þess þó að skapa sér hættuleg færi ef frá eru skilin tvö skot frá Milner og Martins. Það var ekki fyrr en undir lok leiksins að sú pressa skilaði sér. Mínútu fyrir leikslok fékk Newcastle aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Emre tók spyrnuna og boltinn fór greinilega í höndina á einum varnarmanna Birmingham en Rob Styles veifaði burt kröfum Newcastle um vítaspyrnu. Þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma vann Habib Beye hornspyrnu sem Emre tók. Hann hitti beint á kollinn á Beye sem skoraði sigurmark leiksins við mikinn fögnuð á St James´ Park enda langt síðan að leikur hefur unnist þar (22 Okt gegn Tottenham). Stuttu seinna var flautað til leiksloka og þrjú stig loksins í höfn. Sam Allardyce sagði að þetta væru geysilega mikilvæg stig og ekkert annað skipti máli í dag en stgin þrjú. "Við höfum unnið geysilega hart að okkur undanfarna daga gegn Blackburn, Arsenal og nú Birmingham og loksins fengum við það sem við áttum skilið" sagði stjórinn.

Liðið í dag: Given, Beye, Taylor, Rozehnal, N´Zogbia, Milner, Barton, Butt (Viduka 31), Geremi (Emre 72), Martins (Enrique 90), Smith.

Varamenn: Harper, Edgar.

Gult spjald: Barton

Skot á mark: Nufc 17 (9) - Bir 7(4)

Hornspyrnur: Nufc 6 - Bir 5

Áhorfendur: 49,948

Menn leiksins: Habib Beye og James Milner (Beye fyrir að skora geysilega mikilvægt mark og Milner fyrir að vera mjög ógnandi á kantinum) 

Svo má sjá margar skemmtilegar myndir úr leiknum á myndasíðunni okkar.

(FB) 

7.Des

Newcastle - Birmingham

St James´ Park

Laugardag kl 15:00

Það verður væntanlega óbreytt lið frá leiknum gegn Arsenal sem mætir Birmingham á laugardaginn. Það eru enginn ný meðsli sem hafa komið upp í leikmannahópi Newcastle. Þeir sem eru enn frá vegna meiðsla eru : Owen, Cacapa. Carr, Faye, Babayaro og Ramage. Birmingham mætir á SJP með nýja stjórann sinn Alex McCleish en þeir byrjuðu vel undir hans stjórn og sigruðu Tottenham á White Hart Lane 2-3 um síðustu helgi. Við verðum að vona að okkar menn sýni sömu baráttu og gegn Arsenal því ekki má vanmeta neitt lið í deildinni. Newcastle á ekki góðar minningar frá síðasta tímabili þegar þeir mættu Birmingham í Fa bikarnum á SJP, en þá hreinlega valtaði Birmingham yfir Newcastle 1-5 og gerðu bikarvonir heimamanna að engu

Hópurinn er svona: Given, Harper, Beye, Enrique, Rozehnal, Taylor, Edgar, Butt, Milner, Geremi, Emre, N'Zogbia, Barton, Smith, Viduka, Martins, Ameobi.

Dómari leiksins verður Rob Styles

Leikir Birmingham á SJP síðan 1992/93

2006/07:  1-5 Milner (FA Bikar)
2005/06:  1-0 Emre

2004/05:  2-1 Ameobi, Bowyer
2003/04:  0-1
2002/03:  1-0 Viana
1992/93:  2-2 Cole, Lee

(FB)

6.Des

Furðuleg fréttamennska hjá Fréttablaðinu

Þegar ég las umsögn Fréttablaðsins í morgun um leik Newcastle gegn Arsenal sem fór fram í gær þá spyr ég sjálfan mig, á hvaða leik var viðkomandi blaðamaður að horfa á ? Eða sá hann ekki leikinn og giskaði bara í eyðurnar ? Sá sem skrifar um leikinn (ÓÞ) byrjar greinina á því að segja að leikurinn hafi verið tilþrifalítill ! Persónuleg fannst mér hann mjög skemmtilegur á að horfa, mikil barátta hjá liðunum þó sérstaklega heimamönnum og fullt af færum, 5 gul spjöld á loft, vafasöm atriði á bæði lið, geysileg stemming á vellinum og bara skemmtilegur leikur. ÓÞ segir að Gilberto hafi átt sendinguna á Adebayor þegar Arsenal skoraði markið sitt en hið rétta er að Eboue átti þessa sendingu. Svo kórónar hann vitleysuna með því að segja (Í lokin var farið að draga af leikmönnum Newcastle, en þeir náðu að halda út og jafntefli því niðurstaðan) Þeir sem horfðu á leikinn sáu að það dró ekkert af leikmönnum Newcastle og pressuðu þeir stíft á mark Arsenal undir lokin. Það væri nær að segja að það hefði dregið af leikmönnum Arsenal í lokin. Það er óþolandi þegar maður les svona bull eftir menn sem giska bara í eyðurnar og hafa engan áhuga á að gera vera með faglega umfjöllun um enska boltann.

(FB)  

 

5.Des

Newcastle - Arsenal 1-1

(Taylor 60) - (Adebayor 4)

Arsenal náði jafntefli gegn Newcastle

Newcastle átti mjög góðan leik í kvöld gegn toppliði deildarinnar og eru mikil batamerki á leik liðsins eftir slæma útreið í undanförnum leikjum.

En það leit nú ekki vel út í byrjun þegar Adebayor var búinn að koma Arsenal yfir eftir aðeins fjórar mínútur. Markið kom eftir slæm mistök hjá N´Zogbia en hann gaf nánast á Eboue sem átti góða sendingu á Adebayor og afgreiðsla hans var frábær og átti Given ekki möguleika að verja skot hans. En það sem eftir lifði leiks var Newcastle mun betra liðið á vellinum. Geremi var næstum búinn að jafna leikinn stuttu seinna þegar hann átti skalla rétt framhjá marki Arsenal. Hann átti svo gott skot á mark Arsenal úr aukaspyrnu en Almunia varði vel.

Steven Taylor var nálægt því að jafna þegar hann skallaði á mark Arsenal en boltinn hrökk af varnarmani og í stöngina. Taylor hefði með réttu átt að fá vítaspyrnu þegar honum var greinilega haldið í markteignum en Mike Dean sá ekk ástæðu til að dæma neitt. Strax í byrjun seinni hálfleiks átti N´Zogbia ágætt skot á mark Arsenal en Almunia var vel staðsettur og átti ekki í erfiðleikum að verja skot hans. Newcastle var eins og áður sagði mun betri aðilinn á vellinum og náði loks að jafna leikin á 60 mínútu. Líkt og í markinu hjá Arsenl þá náðu varnarmenn þeirra ekki að hreinsa nógu vel frá vítateig þeir og boltinn féll fyrir Habib Beye sem sendi boltann inn á teiginn, Alan Smith skallaði boltann áfram sem féll fyrir fætur Martins en hann lét hann fara á milli fóta sinna og þar var MR. Newcastle mættur á réttan stað og skaut í stöng og inn. Fyllilega verðskuldað mark hjá Newcastle eftir mikla pressu á mark Arsenal. Shay  Given bjargaði svo vel stuttu seinna þegar Arsenal átti eina af fáum sóknum sínum í leiknum.

Adebayor var næstum sloppinn einn í gegn en Habib Baye sá við honum og bægði hættunni frá. Undir lok leiksins var mikil pressa á mark Arsenal og fengu heimamenn t.d fjórar hornspyrnur í röð. Í einni þeirra munaði litlu að Taylor hefði náð að tryggja Newcastle stigin öll en varnarmenn Arsenal voru vel á verði. Jafntefli heima gegn besta liðinu í deildinni staðreynd og eftir leik sagði Big Sam að hans menn hefðu átt að takka öll stigin sem í boði voru. Það var gaman á sjá til liðins í kvöld, mikil barátta í liðinu og með yfir 50 þúsund áhorfendur með sér skapaðist mkil stemming á vellinum.

Það áttu allir leikmenn nokkuð góðan leik í kvöld þó sérstaklega Alan Smith sem átti klárlega sinn besta leik með Newcastle, hann var einstaklega duglegur í framlínunni og vann nánast alla skallabolta sem hann reyndi við. Það var líka gaman að sjá Steven Taylor aftur í liðinu og átti hann mjög góðan leik einnig.

Liðið í kvöld:

Given, Beye, Taylor, Rozehnal, N'Zogbia, Milner, Barton, Butt, Geremi (Viduka 77), Martins, Smith.
Varamenn: Harper, Enrique, Emre, Edgar.

Gul spjöld: Barton, Given, Beye.

Skot á mark: Nufc 12 (8) - Ars 6 (2)

Áhorfendur: 50,305

Maður leiksins: Alan Smith (átti mjög góðan leik í sókninni, vann nánast öll skallaeinvígi, sýndi mikla baráttu og spilaði sinn besta leik fyrir Newcastle)

(FB) 

4.Des

Newcastle - Arsenal

St James´ Park

Miðvikudaginn 5 des kl 19:45

Efsta lið deildarinnar mætir á SJP annað kvöld og verður þetta erfiður leikur fyrir Newcastle þar sem Arsenal hefur ekki tapað leik í deildinni í vetur og haf þeir verið að spila frábæran fótbolta. En ef einhvern tíman er tækifæri fyrir leikmenn Newcastle að rífa sig upp eftir hörmulegt gengi í undanförnum leikjum þá er það í þessum leik. Faye og Carr fóru báðir meiddir af velli gegn Blackburn og verða ekki með. Cacapa er ekki orðinn heill af sínum meiðslum ásamt Owen. Damien Duff er ekki enn tilbúinn en hann á enn eftir að spila með varaliðinu til að koma sér í leikform. Steven Taylor er hinsvegar að ná sér af bakmeiðslum sem hann hlaut með landsliðinu fyrir nokkrum dögum.  Það er óhætt að segja að það hafi ekki gengið vel að skora gegn Arsenal á SJP undanfarin ár. Newcastle hefur aðeins náð að koma boltanum þrisvar sinnum í netið hjá Arsenal frá tímabilinu 2000/01. En það má líka benda á það að Arsenal hefur heldur ekki skorað mikið gegn Newcastle, því Arsenal hefur á sama tíma gert aðeins fjögur mörk á SJP. Markatalan því 2-4 í sjö síðustu leikjum liðanna á SJP. Í þessum sjö leikjum er Newcastle með einn sigur, Arsenal tvo sigra og fjórum sinnum hafa liðin gert jafntefli. En frá stofnun úrvalsdeildarinnar hafa lekir liðana farið svona:

2006/07:  0-0 
2005/06:  1-0 Solano
2004/05:  0-1
2003/04: 
0-0
2002/03:  1-1 Robert
2001/02:  1-1 Robert
(FA Bikar)
2001/02:  0-2
2000/01:  0-0
1999/00:  4-2 Speed 2, Shearer, Griffin
1998/99:  1-1 Hamann
1997/98:  0-1
1996/97:  1-2 Shearer
1995/96:  2-0 Ginola, Ferdinand
1994/95:  1-0 Beardsley
1993/94:  2-0 Cole, Beardsley

(FB)

 

4.Des

Yfirlýsing frá leikmönnum Newcastle

Shay Given og Steve Harper sendu frá sér yfirlýsingu í dag í kjölfar frétta sem hafa verið birtar í morgun þess efnis að nokkrir að eldri leikmönnum liðsins hafi farið á fund hjá Big Sam og gagnrýnt vinnubrögð hans. Yfirlýsingin er svona :

Eftir að hafa lesið fréttir í blöðum í morgun fannst okkur sem höfum verið lengst hjá klúbbnum rétt að koma með þessa yfirlýsingu. Þessi frétt sem birtist er algjör þvæla. Sam Allardyce hefur fullan stuðning hvers einasta leikmanns Newcastle United og við vinnum saman allir sem einn til að félagið nái árangri."
,,Hjá Newcastle United er nefnd leikmanna sem Geremi fyrirliði okkar leiðir og í henni eru líka James Milner, Mark Viduka og við."
,,Mörg mál hafa verið rædd hreint út milli leikmanna og stjórans sem er eðlilegt hjá hvaða félagi sem er."
,,Það er langt frá því að vera völd leikmanna eða einhver fáránleg lýsing, þetta er eðlileg og uppbyggileg nefnd og lykill í því ða hjálpa okkur að byggja sterkara fótboltafélag sem mun komast áfram."
,,Það er hægt að segja að við erum báðir brjálaðir yfir því sem við höfum lesið í dag. Þetta skaðar okkar og virðist gert til að koma okkur úr jafnvægi daginn fyrir stórleik okkar gegn Arsenal á miðvikudagskvöld."

Shay Given og Steve Harper
4. desember 2007

(FB)

 

4.Des

Stuttar Fréttir

# Stephen Carr og Abdoulaye Faye meiddust báðir í leiknum gegn Blackburn og verða ekki með gegn Arsenal. 

# Steven Taylor verður mjög líklega með gegn Arsenal eftir að hafa jafnað sig á bakmeiðslum.

# Nicky Shorey vinstri bakvörður hjá Reading er orðaður við Newcastle í janúar, en það eru fleiri lið sem vilja fá kappann eins og Man Utd og West Ham.

# Það er mikið skrifað um framtíð Big Sam hjá Newcastle og sagt að hann fái tækifæri til áramóta til að koma liðinu á beinu brautina og að Alan Shearer taki við liðinu takist Big Sam það ekki.

# Rúmenski varnarmaðurinn Dorin Goian (26 ára) sem spilar með Steaua Bucharest er undir smásjánni hjá Big Sam. Hann er sagður kosta 3,5 milljónir punda. Man City, Man Utd, Dortmund og Stuttgart hafa einnig áhuga á honum.

# Luis Garcia sóknarmaður hjá Espanyol er sagður einnig undir sjásjánni hjá Newcastle.

(FB)

2.Des

Newcastle mætir Stoke í þriðju umferð FA bikarsins

Í dag var dregið í þriðju umferð FA bikarkepninnar og Newcastle fékk útileik gegn Stoke á Brittania Stadium. Leikurinn fer fram helgina 5/6 janúar næstkomandi. "Þetta verður erfiður leikur, Stoke hefur gegnið nokkuð vel í deildinni og eru sem stendur í 7 sæti. En auðvitað mætum við einbeittir til leiks og ætlum okkur áfram í þessari keppni" sagði Big Sam um bikardráttinn.

Drátturinn er svona:

Preston v Scunthorpe
Port Vale/Chasetown v Cardiff
Colchester v Peterborough
Bolton v Sheffield United
Blackburn v Coventry
Brighton v Mansfield
Northampton/Walsall v Millwall
Charlton v West Brom
Watford v Crystal Palace
Luton/Nottingham Forest v Liverpool
Plymouth v Hull
Aston Villa v Manchester United
Tranmere v Hereford
Tottenham v Reading
Burnley v Arsenal
Bristol City v Middlesbrough
Fulham v Bristol Rovers
Huddersfield v Birmingham
Horsham/Swansea v Havant & Waterlooville
Sunderland v Wigan
Oxford/Southend v Dagenham & Redbridge
Everton v Oldham
Derby v Sheffield Wednesday
Southampton v Leicester
West Ham v Manchester City
Ipswich v Portsmouth
Wolves v Cambridge
Barnsley v Blackpool
Chelsea v QPR
Stoke v Newcastle
Swindon v Burton Albion/Barnet
Norwich v Bury

(FB)

 

1.Des

Blackburn - Newcastle 3-1

(Bentley 54,67 Tugay 90) - (Martins 47)

Enn eitt tapið

Newcastle hefur nú ekki unnið í fimm leikjum í röð í deildinni og ekki verða mótherjarnir í næsta leik auðveldir, Arsenal topplið deildarinnar sem er taplaust eftir 14 leiki. Það voru mikil batamerki á leik Newcastle í þessum leik ef miðað er við undanfarna leiki. Fyrri hálfleikur var þó tíðindalítill en Santa Cruz fékk þó besta færi heimamanna þegar hann átti skot rétt framhjá marki Newcastle. En strax í byrjun seinni hálfleiks skoraði Martins gott skallamark eftir góða fyrirgjöf frá Geremi úr aukaspyrnu. Það tók heimamenn ekki langan tíma að jafna metin, David Bentley skoraði glæsilegt mark á 54 mínútu úr aukaspyrnu rétt sem Given átti ekki möguleika að verja. Í stöðunni 1-1 fengu Barton og Martins góð færi til að koma Newcastle yfir aftur en heppnin virðist ekki vera með okkur þessa dagana. Bentley skoraði annað mark Blackburn á 67 mínútu með öðru góðu skoti fyrir utan teig í stöng og inn. Newcastle menn reyndu allt sem þeir gátu til að jafna en við það opnaðist vörnin og á síðustu mínútu leiksins bætti Tugay við þriðja marki Blackburn. Heldur ósanngjarnt eftir nokkuð góðan leik hjá Newcastle. Bæði lið hefðu með réttu átt að fá vítaspyrnu í leiknum þegar varnarmenn beggja liða handléku boltann greinilega í vítateignum en Martin Atkinson dómari leiksins sáu ekki ástæðu til að dæma neitt. Eins og sagði

þá var mikil breyting á spilamennsku Newcastle í leiknum og í lok leiks fengu leikmenn Newcastle mikið klapp frá þeim 6000 stuðningsmönnum Newcastle sem fylgdu liðinu á Eawood Park ólíkt því í leiknum gegn Liverpool þar sem leikmenn fengu það óþvegið frá stuðningsmönnum á St James´ Park.

Lið Newcstle í dag: Given, Beye, Rozehnal, Faye (Carr 24), N'Zogbia, Geremi, Butt, Barton, Martins, Smith, Milner, Carr (Viduka 72).
Ónotaðir varamenn: Harper, Jose Enrique, Emre.

Skot á mark Bla 13 (6) Nufc 20 (8)

Gul spjöld: Barton, Butt, Milner

Áhorfendur: 27,477

(FB)