|

Fréttir í desember 2008
28.Des

Ný könnun
Það er komin ný könnun og er nú spurt "Hver er leikmaður desembermánaðar ?" Það eru fjórir leikmenn í boði og eru það Sebastien Bassong, Shay Given, Charles N´Zogbia, Michael Owen og Jonas Gutierrez. Þessir leikmenn hafa staðið sig best í desember og verður erfitt að gera upp á milli þeirra. Kjósa hér.
Í síðustu könnun var spurt hvaða lið menn telja að verði Englandsmeistari og er flestir á því að Chelsea verði meistari þetta tímabil. Úrslit í síðustu könnun er svona:
|
Chelsea |
44.26% |
|
|
|
Man Utd |
22.95% |
|
|
|
Liverpool |
16.39% |
|
|
|
Newcastle ,óraunhæft en maður veit aldrei ;) |
9.84% |
|
|
|
Arsenal |
3.28% |
|
|
|
Aston Villa |
3.28% |
|
|
(FB)
28.Des
Newcastle - Liverpool 1-5
(Edgar 45) - (Gerrard 31,66, Hyypia 36,
Babel 50, Alonso 77 vsp)

Leikur kattarins að músinni á St James´ Park
Það var aldrei spurning í dag hvort liðið myndi sigra í dag á SJP. Strax í byrjun sýndu leikmenn Liverpool að þeir voru staðráðnir í að taka öll stigin sem í boði voru. Hver sóknin af fætur annari dundi á marki Newcastle og ef við hefðum ekki besta markmann deildarinnar þá hefði Liverpool verið komið í 0-5 eftir 25 mínútna leik. Shay Given sýndi stórkostlega markvörslu hvað eftir annað en eitthvað varð eftir að láta og Gerrard kom Liverpool yfir á 31 mínútu eftir að vörn Newcastle var sundurspiluð og Gerrard skaut í stöng og inn, algjörlega óverjandi fyrir Given. 5 mínútum seinna var Liverpool komið í 0-2 og var þar Sami Hyypia að verki með skallamark. Newcastle náði að minnka muninn á lokamínútu fyrri hálfleiks og var það David Edgar sem skoraði gott skallamark eftir hornspyrnu frá Danny Guthrie. Satðan 1-2 í hálfleik og Kinnear gerði eina breytingu á liðinu í hálfleik, Shola Ameobi kom inná fyrir Jose Enrique sem var frekar slakur í fyrri hálfleik eins og reyndar allir leikmenn Newcastle (fyrir utan Given) Okkar menn byrjuðu seinni hálfleik nokkuð vel og pressuðu nokkuð á gestina. En svo kom rothöggið á 50 mínútu. Liverpool fékk hornspyrnu og úr henni skoraði Ryan Babel af stuttu færi eftir klafs í teignum. Í endursýningu sást greinilega að Lucas fékk boltann greinilega í höndina þegar hornspyrnan var tekin. Þetta mark hefði því aldrei átt að standa en dómararnir hafa ekki verið á okkar bandi undanfarið. Liverpool bætti svo við tveimur mörkum í viðbót. Gerrard bætti við öðru marki sínu þegar hann slapp einn í gegn og Alonso skoraði úr vítaspyrnu eftir að Edgar hafði brotið á Ngog sóknarmanni Liverpool. Given endaði svo leikinn eins og hann byrjaði með frábærri markvörslu og kom í veg fyrir að Liverpool bætti við sjötta markinu.
Niðurlægingin algjör og ég get ekki skilið okkar leikmenn þegar þeir mæta liði eins og Liverpool og láta gjörsamlega yfirspila sig frá fyrstu mínútu. Það er eins og menn mæti inná völlinn með kúkinn í buxunum þegar þeir mæta þessu svokölluðu toppliðum. Það er alveg ljóst að Mike Ashley sem lýsti því yfir fyrir leik að hann væri hættur við að selja félagið þarf að styrkja liðið nokkuð ef ekki á illa að fara í vetur. Það þarf að kaupa Vinstri og hægri bakvörð, tvo góða miðjumenn og henda Nicky Butt í ruslatunnuna. Mikið djö...... var hann slakur í dag og líka gegn Wigan, svo á að fara semja við hann um eitt ár í viðbót !!! Hvað eru menn að hugsa eiginlega ?
NUFC: Given, Edgar, Taylor, Coloccini, Jose Enrique (Ameobi 46), Gutierrez, Guthrie, Butt (Geremi 56), N'Zogbia, Duff, Owen (LuaLua 79). Ónotaðir varamenn: Harper, Xisco, Kadar, Carroll.
Gul spjöld: Taylor, Given
Skot á mark: Nufc 10(7) - Lfc 17(12)
Hornspyrnur: Nufc 4 - Lfc 9
Áhorfendur: 52,114 (Fullur völlur í fyrsta sinn á þessu tímabili)
Maður leiksins: Shay Given (þrátt fyrir að hafa fengið á sig fimm mörk var Given klárlega langbesti maður Newcastle í dag og sýndi heimsklassamarkvörslu hvað eftir annað í dag)
(FB)
28.Des

Mike Ashley hættur við að selja Newcastle
Ashley staðfesti á heimasíðu Newcastle í morgun að félagið hefur verið tekið af markaði og hann ætlar að einbeita sér að liðinu sem eigandi þess. "Ég er ánægður að binda endi á þessa óvissu sem stuðningsmenn hafa um framtíð liðsins" Ég veit hversu mikilvægt það er. Í mínum huga er árið 2009 árið þar sem við keyrum félagið áfram í sameiningu," sagði Ashley í ávarpi til stuðningsmanna Newcastle sem birtist í leikskránni fyrir leikinn gegn Liverpool. „Þegar ég ákvað að auglýsa félagið til sölu í september setti ég tvö skilyrði. Í fyrsta lagi yrði sá sem hefði áhuga á að kaupa félagið að sýna að hann hefði bestu hagsmuni Newcastle að leiðarljósi og hefði bæði áhuga og fjármagn til að vera verðugur eigandi félagsins. Í öðru lagi gaf ég ykkur það loforð að svo lengi sem ég væri sjálfur eigandi Newcastle myndi ég tryggja að félagið yrði rekið á ábyrgan hátt á öllum sviðum. Ég vona að þið séuð sammála mér í því að það hef ég gert," sagði Ashley ennfremur.
(FB)
27.Des

Topplið Liverpool í heimsókn
Newcastle mætir Liverpool kl 12:00 á morgun sunnudag.
Hann var nokkuð dýrkeyptur leikurinn gegn Wigan í gær. Beye, Viduka og Enrique meiddust allir og Bassong var rekinn útaf og verða þeir því ekki með gegn Liverpool. Enn er beðið eftir fréttum um hversu alverleg meiðsli Habib Beye eru en þetta leit allavega ekki vel út í gær. Þess má geta Lee Cattermole (sá sem braut á Beye) braut einnig á Joey Barton í fyrri leik liðanna á St James´ Park í nóvember með þeim afleiðingum að Barton er frá fram í febrúar.
Ameobi og Martins eru tæpir og er óvíst hvort þeir verða með. Andy Carrol stóð sig mjög vel þegar hann kom inná gegn Wigan og er líklegt að hann fái tækifæri gegn Liverpool með Owen í framlínunni.
Eins og stuðningsmenn Newcastle vita þá hefur okkur ekkert gengið sérstaklega vel gegn Liverpool í gegnum árin og töpuðum við 0-3 á síðasta tímabili gegn þeim. Leikmannahópurinn gegn Liverpool verður einhvernvegin svona :
Given, Coloccini, Gutierrez, Butt, Guthrie, N'Zogbia, Duff, Owen, Harper, Taylor, Geremi, Edgar, Xisco, Carroll, LuaLua, Ameobi ?, Martins ?.
Dómari leiksins er Mark Halsey
(FB)
26.Des
Joe Kinnear ekki sáttur við Mike Dean
Í viðtali á BBC segir Kinnear að Mike Dean hafi tekið vægast sagt furðulegar ákvarðanir í leiknum í dag gegn Wigan. "Síðustu fimmtán mínúturnar voru nokkuð góðar hjá okkur og við hefðum getað fengið eitthvað út úr leiknum. Vítaspyrnan sem þeir fengu var furðulegur dómur. Ef þetta var víti sem Heskey fékk, því fékk Andy Carroll ekki víti í lokin ? Jafnvel Steve Bruce viðurkennir það og það segir ýmislegt um dómarann" sagði Kinnear ósáttur eftir leikinn.
Viðtalið í heild má sjá hér.
(FB)
26.Des
Wigan - Newcastle 2-1
(Taylor 29, Zaki vsp 73) - (Guthrie vsp 88)

Enn eitt tapið gegn Wigan
Það ætlar að reynast erfitt fyrir Newcastle að vinna þetta blessaða Wigan lið á JJB Stadium. Í fjórða skiptið í röð tapar Newcastle á þeirra heimavelli en í þetta skiptið endaði leikurinn 2-1. Joe Kinnear þurfti að gera breytingar á liðinu rétt fyrir leik því Jose Enrique meiddist í upphitun og kom það í hlut Mark Viduka að byrja inná í hans stað. N´Zogbia var þá settur í vinstri bakvörðinn og Duff á vinstri kantinn.
Enn einu sinni er það Ryan Taylor sem nær að skora gegn Newcastle og er þetta í þriðji leikurinn sem hann nær að skora gegn Newcastle. Taylor skoraði beint úr aukaspyrnu á 29 mínútu og fannst mér að Given hefði átt að gera betur. Habib Beye meiddist illa á 38 mínútu eftir ljóta tæklingu frá Cattermole og var hann borinn af velli sárþjáður. Væntanlega mun það koma í ljós á morgun hversu slæm meiðslin eru. Steven Taylor kom inná fyrir Beye og leysti hann það hlutverk nokkuð vel. Leikmenn Newcastle náðu ekki að skapa sér nein alvöru færi í fyrri hálfleik en Owen fékk besta færið en var of seinn að láta vaða á markið. Vendipunktur leiksins var svo á 73 mínútu þegar arfaslakur dómari leiksins rak Bassong útaf og dæmdi vítaspyrnu sem Zaki skoraði svo úr. Emile Heskey virtist vera sleppa einn í gegn en Bassong braut á honum á miðjum vallarhelmingi Newcastle og línuvörðurinn stoppaði og veifaði eins og brjálæðingur en Mike Dean lét leikinn halda áfram og þeir Bassong og Heskey héldu áfram að berjast um boltann og Heskey lét sig svo falla frekar auðveldlega þegar hann var kominn inn í teiginn. Leikmenn Newcastle mótmæltu dóminum harðlega en Mike Dean stóð fast á sínu. Eftir þetta fóru leikmenn Newcastle að vakna til lífsins og fóru að berjast eins og menn. Andy Carrol sem hafði komið inná fyrir Mark Viduka stuttu áður en Bassong var rekinn af velli virkaði nokkuð sprækur í framlínunni. Hann krækti svo í vítaspyrnu á 88 mínútu þegar Chris Kirkland braut á honum. Danny Guthrie tók vítaspyrnuna vegna þess að Owen hafði verið skipt útaf. Guhtrie skoraði af öryggi og staðan því 2-1 og tvær mínútur eftir plús uppbótartími. Damien Duff fékk gullið tækifæri til að jafna leikinn en hann skaut framhjá. Að mínu mati hefði Carroll átt að fá aðra vítaspyrnu á lokamínútu leiksins en Dean dómari gaf honum gult spjald fyrir leikaraskap. Joe Kinnear verður því í smá vandræðum fyrir leikinn gegn toppliði Liverpool á sunnudag því þrír leikmenn meiddust í þessum leik og einn fer sennilega í þriggja leikja bann.
NUFC: Given, Beye (Taylor 38), Coloccini, Bassong, N'Zogbia, Gutierrez, Butt, Guthrie, Duff, Owen (Edgar 77), Viduka (Carroll 68). Ónotaðir varamenn: Harper, Xisco, Geremi, LuaLua
Gul spjöld: Duff, Butt, Carroll
Rautt spjald: Bassong
Skot á mark: Nufc 5 (3) - Wig 11(6)
Hornspyrnur: Nufc 4 - Wig 7
Áhorfendur: 20,266
Maður leiksins: Jonas Gutirrez (Geysilega vinnusamur og hjálpaði vörninni mikið í þessum leik.
(FB)
25. Des
Joe Kinnear talar um leikmannamál
Kinnear segir að Newcastle sé í sambandi við nokkra leikmenn um kaup á þeim í janúarglugganum.
"Við höfum haft samband við fjóra leikmenn og erum bara að bíða eftir svari frá þeim".
Um þær sögusagnir um að N´Zogbia vilji fara frá Newcastle sagði Kinnear: "Strákurinn skammast sín fyrir það sem hann átti að hafa sagt. Hvað mig varðar þá hefur hann staðið sig mjög vel og lagt mjög hart að sér að komast í liðið. Á meðan leikmenn spila vel þá eru þeir í liðinu".
Og að samningsmálum Owen sagði Kinnear:
"Michael er ekki viss sjálfur hvað hann vill gera og þess vegna vill hann taka góðan tíma í að ákveða sig. Hann var mjög ánægður með það sem við buðum honum og þakkaði mér fyrir að bjóða honum þriggja ára samning, eitthvað sem hann bjóst ekki við. En hann þarf tíma til að ákveða sig og ég skil hans ákvörðun vel. Hann er mjög ákveðinn að spila og gera sitt besta fyrir Newcastle, það er það eina sem ég hafði áhyggjur af".
(FB)
25.Des
 
Wigan Athletic - Newcastle United
Newcastle hefur ekki tapað í síðustu sex leikjum og á morgun (föstudag) heimsækja þeir lærisveina Steve Bruce í Wigan. Þau þrjú tímabil sem Wigan hefur verið í úrvalsdeildinni hefur Newcastle alltaf tapað á JJB Stadium og hafa þeir allir endað 1-0 fyrir heimamönnum. Af leikmannönnum er það að frétta að Shola Ameobi og Obafemi Martins verða ekki með en Joe Kinnear segir að það séu góðar líkur á að þeir verði klárir í leikinn gegn Liverpool á sunnudaginn. Alan Smith, Nacho Gonzalez og Joey Barton eru frá í lengri tíma.
Newcastle hefur ekki fengið á sig mark á útivelli í 294 mínútur eða síðan Danny Murphy skoraði úr vítaspyrnu 9 nóvember síðastliðin. Newcastle náði síðast að halda hreinu í þrem útiileikjum í röð í maí 1997. Eins og áður kom fram þá endaði leikur liðanna á síðasta tímabili 1-0 og var það Ryan Taylor sem skoraði sigurmarkið. Fyrri leikur liðanna á þessu tímabili endaði 2-2 og voru það Owen og Martins sem skoruðu mörk okkar manna en Ryan Taylor og Titus Bramble skoruðu fyrir Wigan.
Leikmannahópurinn er svona:
Given, Harper, Beye, Enrique, N,Zogbia, Bassong, Coloccini, Taylor, Cacapa, Edgar, Butt, Guthrie, Duff, Gutierrez, Geremi, Owen, Viduka, Carroll, Xisco, LuaLua.
Dómari leiksins verður Mike Dean.
(FB)
23.Des

Stuttar fréttir
# Michael Owen hefur ákveðið að bíða með ákvörðun sína um framtíð sína hjá Newcastle þangað til næsta vor þetta staðfesti Joe Kinnear á heimasíðu Newcastle í gær.
# Bobby Moncur fyrrum fyrirliði Newcastle segir að ákvörðun Owen sé ekki endilega svo slæm fyrir Newcastle. "Ég sé ekki að þetta séu endalok Owen hjá Newcastle, þetta var alltaf erfið ákvörðun hjá honum og skiljanlega þarf hann góðan tíma til að taka ákvörðun. Það er bara þessi óvissa sem er í kringum félagið sem er ástæða þess að hann ætlar að bíða með ákvörðun sína. Ég hef ekki trú á því að þetta snúist um peninga hjá honum" sagði Moncur.
# Tim Krul hefur framlengt lánssamning sinn við Carlisle United til 18 janúar næstkomandi. Hann hefur spilað fimm leiki með Carlisle og er Greg Abbot stjóri þeirra mjög ánægður með frammistöðu Krul.
# Charles N´Zogbia vonast eftir að Newcastle komist í hóp 10 efstu liða núna um jólin. "Við sjáum svo til hvernig okkur gengur seinni part mótsins og vonandi eru slæmu dagarnir að baki"
# Sebastien Bassong er ánægður með lífið í Newcastle og hefur hann komið virkilega á óvart. "Mér líður vel í minni uppáhaldsstöðu og mér líður vel hérna í Newcastle. Þetta er frábært félag og égf vill bara fá að spila fleiri leiki. Joe hefur gefið mér sjálfstraust, hann er góður stjóri og hefur gert góða hluti hérna. Hann ráðleggur mér í leikjum og veit að ég er ungur".
(FB)
21.Des
Newcastle - Tottenham 2-1
(N´Zogbia 12, Duff 90) - (Modric 29)

(Damien Duff fagnar sigurmarkinu í dag)
Varamaðurinn Damien Duff hetja dagsins
Newcastle sigraði Tottenham í dag 2-1 og var það Írinn Damien Duff sem skoraði sigurmarkið á 90 mínútu leiksins. Þetta er kærkomin jólagjöf til okkar stuðningsmanna Newcastle og er liðið komið upp í 12 sæti deildarinnar með 22 stig.
Obafemi Martins stóðst ekki læknisskoðun í morgun og lék ekki með. Shola Ameobi kom inn í byrjunarliðið í hans stað og var það eina breytingin á byrjunarliðinu frá síðustu leikjum.
Charles N´Zogbia kom Newcastle yfir strax á 12 mínútu eftir sendingu frá Shay Given og kláraði N´Zogbia færið sitt mjög vel. Tottenham jafnaði á 29 mínútu og var það frekar ódýrt mark. Ameobi fékk sendingu í lappirnar á miðju vallarins en lét taka af sér boltann frekar klaufalega og Modric slapp einn í gegn og átti ekki í erfiðleikum að skora framhjá Given í markinu. Ameobi var skipt útaf strax eftir jöfnunarmark Tottenham og kom Mark Viduka inná í hans stað. Staðan 1-1 í hálfleik og leikurinn búinn að vera frekar jafn. Seinni hálfeleikur var einnig nokkuð jafn en Owen fékk sannkallað dauðafæri á 71 mínútu en skaut yfir af stuttu færi.
Joe Kinnear gerði svo aðra breytingu á liðinu á 88 mínútu þegar hann setti Damien Duff inná fyrir Enrique og átt sú skipting heldur betur eftir að skila sér. Á 90 mínútu voru það varamennirnir Viduka og Duff sem tryggðu Newcastle stigin þrjú. Duff sendi boltann á Viduka sem var á vítateigslínunni með varnarmann í bakinu og Viduka átti frábæra hælspyrnu beint fyrir lappir Duff sem skoraði sigurmark Newcastle við geysilegan fögnuð heimamanna. Enn einn sigurinn gegn Tottenham og bara ef við fengjum að spila við þá í hverri viku ;)
NUFC: Given, Beye, Enrique (Duff 88), Bassong, Coloccini, Guthrie, Butt, Gutierrez, N'Zogbia, Ameobi (Viduka 30), Owen. Ónotaðir varamenn: Harper, Geremi, Taylor, Edgar, Carroll.
Gul spjöld: Enrique, Gutirrez, Duff.
Skot á mark: Nufc 7 (4) - Tot 11 (6)
Hornspyrnur: Nufc 4 - Tot 7
Áhorfendur: 47,982
Maður leiksins: Charles N´Zogbia (Virkilega ógnandi á vinstri kantinum í dag og klárði færið sitt mjög vel)
(FB)
19.Des

Newcastle United - Tottenham Hotspur
ATH Á sunnudag kl 15:00 ATH
Newcastle fær lærisveina Harry Redknapp í heimsókn á sunnudaginn en þessi lið mættust í Carling bikarnum fyrr í vetur og þá sigruðu Tottenham 1-2 á St James´ Park. Þá var Juande Ramos stjóri Spurs og reyndist þetta vera síðasti sigur Spurs undir hans stjórn.
Það eru nokkur tengsl á milli þessara liða, Jonathan Woodgate og Jermaine Jenas leikmenn Spurs eru báðir fyrrum leikmenn Newcastle en þeir eiga báðir við meiðsli að stríða og verða sennilega ekki með. Chris Houghton og Joe Kinnear eru báðir fyrrum leikmenn Spurs. Houghton spilaði 297 leiki með Spurs á árunum 1977-1990 og skoraði 12 mörk. Kinnear spilaði 196 leiki með Spurs á árunum 1965-1975 og skoraði 2 mörk.
En af leikmönnum okkar er það helst að frétta að Martins er tæpur fyrir leikinn og mun það ráðast á sunnudagsmorgun hvort hann verði með eða ekki. Það eru engin ný meiðsli sem hafa komið upp nú í vikunni og má því reikna með að leikmannahópurinn verði svipaður og um síðustu helgi. Martins hefur skorað gegn Spurs í síðustu fjórum viðureignum þeirra í úrvalsdeildinni og vonum við því innilega að hann verið búinn að jafna sig á meiðslum sínum. Shay Given mun spila sinn 350 leik fyrir Newcastle í deildinni á sunnudaginn og Nicky Butt mun spila sinn 100 leik fyrir Newcastle. Síðustu þrír deildarleikir gegn Spurs á St James´ Park hafa endað með 3-1 sigri okkar manna og vonandi verður ekki breyting á því. Leikur liðanna í fyrra endaði eins og áður sagði 3-1 og voru það Martins, Cacapa og Milner sem skoruðu mörkin.
Newcastle eru jafntefliskóngarnir í deildinni og hafa gert 7 jafntefli í 17 leikjum og þeir hafa ekki unnið lið frá London í efstu deild síðan þeir unnu Spurs 1-4 á White Hart Lane þann 30 mars síðastliðin.
Joe Kinnear í viðtali á BBC: „Deildin er mjög jöfn þessa stundina og við megum ekki misstíga okkur. Við erum ósigraðir í síðustu fimm leikjum, þar af þrír útileikir en við verðum að halda þessu formi áfram. Ég er mjög ánægður með hvernig hlutirnir eru þessa stundina og sjálfstraust okkar er mikið. Við getum ekki beðið eftir leiknum gegn Spurs og vonandi munum tala um sex leiki ósigraðir á sunnudaginn“
Leikmannahópurinn er svona:
Given, Harper, Beye, Enrique, N,Zogbia, Bassong, Coloccini, Taylor, Cacapa, Edgar, Butt, Guthrie, Duff, Gutierrez, Geremi, Owen, Martins(ef hann sleppur í gegnum læknisskoðun), Viduka, Ameobi, Carroll, LuaLua.
Dómari leiksins verður Andre Marriner
(FB)
18.Des
Richard Money til Swindon ?
Yfirmaður unglingastarfs Newcastle Richard Money hefur verið boðið stjórastarfið hjá Swindon Town sem leikur í fyrstu deild (deild nr 3). Money kom til Newcastle fyrir sex mánuðum en han var áður stjóri hjá Walsall sem leikur einnig í fyrstu deild. Hann hefur gert frábæra hluti fyrir unglingastarfið hjá Newcastle og er U18 ára lið Newcastle að standa sig mjög vel í vetur. En Money er ekki einn um stjórastarfið hjá Swindon. Stjórnarformaður Swindon Nick Watkins hefur staðfest að það séu tveir sem koma til greina í stjórastarfið en Money er talinn líklegastur. Newcastle þarf þá hugsanlega að leita sér að nýjum þjálfara fyrir unglingana.
Það eru óstaðfestar fréttir sem segja að Money hafi sagt starfi sínu lausu hjá Newcastle í dag en það hefur ekki verið staðfest á heimasíðu Newcastle.
(FB)
17.Des
Owen boðin 4 ára samningur ?
Samkvæmt ýmsum miðlum þá hefur Newcastle boðið Owen 4 ára samning. Tony Stephens umboðsmaður Owen hafði þetta um málið að segja: "Michael hefur sagt að hann er uppi með sér hvað Newcastle hefur mikla löngun að halda sér á St James´ Park. Og það er enginn tilviljun að hann er búinn að finna sitt besta form undanfarið og er að skora mörk aftur. Allir sem sáu andlitið á honum þegar hann kom Newcastle yfir gegn Portsmouth mun sjá hversu ákveðinn hann er að koma Newcastle upp stigatöfluna. Michael er að æfa fyrir leikinn gegn Tottenham og hann er að einbeita sér að Því núna. Hann lætur ráðgjafa sína skoða fjármálahliðina, þó svo hann viti að þær upphæðir sem hafa verið nefndar í fjölmiðlum séu langt frá raunveruleikanum þá er hann að einbeita sér að því að vera í góðu formi og gera það sem hann gerir best, að skora mörk"
(FB)
17.Des

Martins ekki með um jólin ?
Obafemi Martins haltraði af velli eftir að hafa skorað annað mark Newcastle gegn Portsmouth um síðustu helgi og virtist hafa meitt sig í náranum enda tók hann ekki sitt fræga heljarstökk eins og hann gerir þegar hann skorar. Chris Houghton er ekki viss um að hann verði með í leikjunum um jólin. "Oba var hjá sjúkraþjálfara í gær. Við ættum að vita hversu alvarleg meiðsli hans eru á næstu dögum. Auðvitað viljum við hafa alla leikmenn leikfæra um hátíðirnar þar sem við eigum þrjá leiki á átta dögum. Að frátöldum Oba, þá er enginn annar leikmaður með smávægileg meiðsli og það sást á bekknum okkar í leiknum gegn Portsmouth. Ameobi kom inná af bekknum og lagði upp markið fyrir Danny Guthrie og það viljum við sjá" sagði Houghton.
(FB)
17.Des
Andy Carroll með þrennu í 1-6 sigri
Varalið Newcastle spilaði í kvöld gegn Carlisle á Brunton Park í totesportcasino.com League Cup og sigruðu okkar menn 1-6 eftir að hafa verið 1-0 undir í hálfleik. Í seinni hálfleik vöknuðu menn til lífsins og skoruðu sex mörk. Andy Carroll gerði þrennu, Sam Ameobi, Jonny Godsmark og Kazenga LuaLua skoruðu allir eitt hver. Þessi bikarkeppni er með riðlafyrirkomulagi og er Newcastle með sex stig eftir þrjá leiki. Þeir mæta grönnum sínum í Sunderland um miðjan janúar og er það síðasti leikurinn í riðlakeppninni og mun sá leikur ráða úrslitum hvort Newcastle kemst áfram eða ekki.
Newcastle United: Ole Soderberg, James Tavernier, Darren Lough, Mark Doninger, David Edgar (Jeff Henderson 78m), Tamas Kadar, Jonny Godsmark, Frank Wiafe Danquah (Shane Ferguson 45m), Fabio Zamblera (Sam Ameobi 45m), Andy Carroll, Kazenga LuaLua. Ónotaðir varamenn: Max Johnson, Greg McDermott.
(FB)
15.Des
Joe Kinnear vill halda Owen
Kinnear segir að hann muni gera allt sem hann getur til að sannfæra Owen um að skrifa undir nýjan samning við Newcastle þegar þeir hittast núna í vikunni. "Michael veit mína skoðun, hann veit að ég vill halda honum hér hjá Newcastle. Ég á gott samband við Michael og hann er góður drengur, góður fyrirliði sem skilur leikinn og er frábær markaskorari. Michael mun hafa marga möguleika en ég mun gera mitt besta til að fá hann til að skrifa undir hjá okkur. Ég vona innilega að hann geri það"
Það mun alltaf vera vangaveltur í fjölmiðlum um framtíð hans en Kinnear hefur trú á að fyrirliði hans muni halda áfram að skora mörk í svart hvíta búningnum".
Kinnear hefur einnig sagt að Owen muni ekki verða seldur í janúar skrifi hann ekki undir nýjan samning heldur muni hann spila út tímabilið með Newcastle.
(FB)
15.Des
Danny Guthrie fagnar sínu fyrsta marki fyrir Newcastle
Guthrie skoraði sitt fyrsta mark fyrir Newcastle gegn Portsmouth í gær en litlu mátti muna að hann yrði ekki með en hann meiddist í leiknum gegn Stoke helgina áður. Í viðtali við The Chronicle sagði Guthrie: "Ég fór á fyrstu æfinguna í vikunni á laugardag og ég var orðinn nokkuð aumur í lok leiksins. Um markið sagði hann: "Boltinn flaug inn og ég naut þess mjög mikið, sérstaklega fyrir framan okkar stuðningsmenn og vonandi mun ég skora fleiri mörk. Allir bestu miðjumenn heims skora mörk og það er markmið mitt"
(FB)
15.Des

Shay Given er leikmaður nóvember
Stuðningsmenn Newcastle hafa kosið Shay Given leikmann nóvembermánaðar.
Það var ansi jöfn kosning á milli Shay Given og Sebastien Bassong. En Given er vel að þessu kominn, hann hélt hreinu í þrem leikjum af fimm í nóvember og þessi snjalli markmaður okkar er sá besti í deildinni að mínu mati. Varnarleikur Newcastle hefur líka skánað mikið og þar eiga þeir Bassong og Coloccini stóran þátt. Séamus John James Given eins og hann heitir fullu nafni er 32 ára og kom til Newcastle árið 1997 frá Blackburn fyrir 1,5 milljónir punda og hefur spilað 456 leiki fyrir Newcastle og nálgast leikjamet Jim Lawrence óðfluga en hann spilaði 496 leiki í byrjun síðustu aldar.
Ný könnun er komin og er nú spurt hvaða lið menn telja að verði Englandsmeistari. Smellið hér til að kjósa.
Lokastaðan í kosningunni:
Shay Given 44,9%
Sebastien Bassong 42,86%
Fabricio Coloccini 8,16%
Obafemi Martins 4,08%
Danny Guthrie 0%
(FB)
14.Des
Barnsley U18 0-0 Newcastle U18.
Newcastle U18 liðið náði ekki að landa níunda sigrinum í röð þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Barnsley U18. Newcastle strákarnir voru með yfirhöndina nánast allan leikin og voru óheppnir að skora ekki þegar Sam Ameobi átti skot í stöngina á 10 mínútu. Stuttu seina átti Nile Ranger skot af U.þ.b. 25 metra færi sem einnig fór í stöngina. Ungu strákarnir eru hressir þessa stundin og hafa bara tapað tveimur af síðustu 16 leikjum og það eru nokkrir strákar sem eru mjög efnilegir og ég mæli með að menn kynni sér þá t.d. Nile Ranger og Kazenga Lua Lua.
Newcastle U18: Soderberg, Airey, Henderson, Tavernier,, Ferguson, Newton (McLaughlin 63), McDermott (Taylor 49), Inman. McCrudden, Ameobi (Dummett 67),Ranger.
Ónotaðir varamenn: Spear og McGorrigan.
(ÞV)
14.Des

Ashley: "Enginn eftirsjá"
Eigandi Newcastle Mike Ashley viðurkennir að hafa gert mistök við stjórnun félagsins en sér ekki eftir því að hafa keypt félagið. Eins og allir vita þá hefur Ashley verið að reyna selja félagið í nokkurn tíma en það hefur gengið illa. Í viðtali við News of the world segir Ashley "Ég hef gert mistök, en sé ég eftir að hafa keypt Newcastle ? Alls ekki. Ég átti frábært ár sem eigandi frábærs félags. Þetta var eins og æskudraumur fyrir mig. Um tíma naut ég hverrar mínútu".
Áhugi frá Dubai, Abu Dhabi, Kína og Quatar á Newcastle hefur ekki gengið upp.
"Ég hef ekki fengið neitt trúverðugt tilboð" bætti Ashley við.
Aðspurður um áhuga frá Pini Zahavi um áhuga á Newcastle sagði Ashley: "Einhver sagði mér að þeir hafi áhuga á að kaupa Portsmouth eða West Ham. Af hverju ætti Newcastle að vera í þriðja sæti á listanum ? Við erum miklu stærra lið en þessi tvö".
(FB)
14.Des
Portsmouth - Newcastle 0-3
(Owen 52, Martins 77,
Guthrie 89)

(Owen og Guthrie skoruðu báðir í dag)
Fyrsti útisigurinn í höfn
Loksins náði Newcaslte tryggja sér stigin þrjú sem í boði voru, en liðið hafði gert fjögur jafntefli í röð. Þetta var jafnframt þriðji útileikurinn í röð sem liðið fær ekki á sig mark sem verður að teljast nokkuð gott.
Bæði lið áttu ágætis færi til að skora í fyrri hálfleik en inn vildi boltinn ekki. Meðal annars átti Martins glæsilegt skot í stöngina af löngu færi. En í seinni hálfleik voru okkar menn mun sprækari og gerðu þrjú mörk. Afmælisbarn dagsins Michael Owen (29 ára)skoraði það fyrsta á 52 mín af stuttu færi eftir sendingu frá Gutirrrez. Martins gerði annað markið eftir góðan undirbúning frá Enrique, stuttu áður hafði Martins misnotað upplagt færi. Hann var farinn að haltra örlítið og var búinn að byðja um skiptingu en náði að pota inn boltanum áður honum var skipt útaf. Ameobi kom inná fyrir Martins og átti hann stoðsendinguna á Guthrie á lokamínútum leiksins.
0-3 sigur staðreynd og var þetta í fyrsta skipti í langan tíma sem maður stendur upp sáttur við sína menn frá sjónvarpinu og vonandi verður framhald á því um jólin. Newcastle stökk úr þriðja neðsta sætinu í það fjórtánda með sigrinum í dag upp fyrir Tottenham, West Ham og moldríka félagið Man City.
Joe Kinnear eftir leikinn: "Við spiluðum mjög vel og stjórnuðum leiknum mest allan tímann. Það eru ekki mörg lið sem koma hingað skora þrjú mörk þar sem þetta er erfiður heimavöllur. Þetta er búið að vera ágætt hjá okkur undanfarið og gefur okkur sjálfstraust fyrir leikinn gegn Tottenham um næstu helgi".
Lið Newcastle í dag:
Given, Beye, Bassong, Coloccini, Jose Enrique, Gutierrez, Butt, Guthrie, N'Zogbia, Martins (Ameobi 79), Owen. Ónotaðir varamenn: Harper, Cacapa, Duff, Geremi, Taylor, Viduka.
Gult spjald: Gutierrez
Skot á mark: Nufc: 10(5) - Por 18(6)
Hornspyrnur: Nufc 5 - Por 8
Áhorfendur 19,416
Maður leiksins: Sebastien Bassong (Enn einu sinni flottur leikur hjá Bassong í vörninni og er þessi strákur að koma virkilega á óvart.
(FB)
14.Des
Barnsley U18 0-0 Newcastle U18.
Newcastle U18 liðið náði ekki að landa níunda sigrinum í röð þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Barnsley U18. Newcastle strákarnir voru með yfirhöndina nánast allan leikin og voru óheppnir að skora ekki þegar Sam Ameobi átti skot í stöngina á 10 mínútu. Stuttu seina átti Nile Ranger skot af U.þ.b. 25 metra færi sem einnig fór í stöngina. Ungu strákarnir eru hressir þessa stundin og hafa bara tapað tveimur af síðustu 16 leikjum og það eru nokkrir strákar sem eru mjög efnilegir og ég mæli með að menn kynni sér þá t.d. Nile Ranger og Kazenga Lua Lua.
Newcastle U18: Soderberg, Airey, Henderson, Tavernier,, Ferguson, Newton (McLaughlin 63), McDermott (Taylor 49), Inman. McCrudden, Ameobi (Dummett 67),Ranger.
Ónotaðir varamenn: Spear og McGorrigan.
(ÞV)
12.Des

Portsmouth - Newcastle
Það eru fimm leikmenn tæpir fyrir leikinn gegn Portsmouth á sunnudaginn. Nicky Butt, Danny Guthrie, Shola Ameobi, Damien Duff og Sebastien Bassong eiga allir við smávægileg meiðsli að stríða og kemur það í ljós á morgun hvort þessir leikmenn verða tilbúnir í slaginn eða ekki. Það er því ómögulegt að segja til um hvernig Kinnear mun stilla upp liðinu gegn Pompey. Mitt ráð til hans er að stilla upp Owen fyrir aftan þá Martins og Viduka, það virkaði vel á síðasta tímabili þegar meiðslavandræði voru og hví ekki núna ?
Shay Given og Fabricio Coloccini eru einu leikmennirnir sem hafa spilað allar mínútur í öllum leikjum Newcastle á tímabilinu.
Newcastle hefur nú gert fjögur jafntefli í röð og sigur í þessum leik yrði því kærkominn.
Ef þessi leikiur endar með jafntefli mun Newcastle setja félagsmet með því að gera fimm jafntefli í röð.
Eins og menn vita þá hefur Newcastle ekki unnið útileik á tímabilinu en vonandi kemur hann á sunnudaginn.
Hér er ein athyglisverð staðreynd: Newcastle hefur ekki unnið Portsmouth á heimavelli í efstu deild síðan 11 mars 1959 en þá sigruðu okkar menn 1-5 með mörkum frá George Eastham, Harry Taylor og Bill Curry sem gerði þrennu.
Leikur liðanna á síðasta tímabili endaði með 0-0 jafntefli.
Hópurinn er svona ef þessir leikmenn komast heilir í gegnum læknisskoðun:
Given, Harper, Beye, Enrique, N,Zogbia, Bassong, Coloccini, Taylor, Cacapa, Edgar, Butt, Guthrie, Duff, Gutierrez, Geremi, Owen, Martins, Viduka, Ameobi, Carroll, LuaLua.
Dómari leiksins verður Chris Foy
(FB)
12.Des

Kinnear óttast að Owen sé á förum
Joe Kinnear viðurkennir að hann sé ekki viss um að geta sannfært Owen um að skrifa undir nýjan samning við Newcastle. Owen sem er einn af nokkrum leikmönnum Newcastle sem rennur út á samning næsta sumar mun setjast niður með Kinnear næsta þriðjudag og ræða framtíð hans hjá félaginu. Kinnear segir að möguleikar Owen séu margir en vonast auðvitað að hann vilji vera áfram hjá Newcastle. "Ég er nokkuð sannfærður um hina leikmennina en ekki Owen. Við höfum heyrt margskonar orðróm þess efnis að umboðsmaður hans sé með nokkur félög sem vilja fá hann til sín. Auðvitað vilja þau félög vita hvernig samning við munum bjóða honum. Ég mun ekki ræða þau smáatriði núna, en við munum bjóða honum mjög góðan samning miðað við það sem er að gerast hjá öllum liðum. En það verður undir Michael komið hvort hann mun taka því tilboði eða ekki" sagði Kinnear.
Nicky Butt, Steve Harper og Shola Ameobi eru einnig að bíða eftir samningstilboði frá Newcastle. Kinnear er sannfærður um að þeir muni samþykkja nýjan samning.
Þetta líst mér ekki á. Að missa Owen og framlengja samning við Butt og Ameobi ! Þetta er furðuleg stjórnun þarna hjá þessum mönnum. Butt og Ameobi mega alveg fara mín vegna enda hafa þeir verið veikir hlekkir í liðinu undanfarin ár.
(FB)
11.Des
Newcastle (U18) mætir QPR í bikarnum
Dregið var í fjórðu umferð FA Youth Cup í morgun og þurfa strákarnir okkar að skreppa til London og mæta QPR. Leikurinn fer fram 17 janúar.
(FB)
11.Des

Stuttar fréttir
# Lee Clark fyrrum leikmaður og þjálfari Newcastle hefur verið ráðinn stjóri fyrstu deildar liðsins (deild nr 3) Huddersfield. Clarke gerði þriggja og hálfs árs samning.
# Newcastle er orðað við Perúmanninn Juan Vargas sem leikur með Fiorentina. Vargas (25 ára) er vinstri bakvörður en getur spilað á miðjunni og á vinstri kantinum. Hann er talinn kosta um 8 milljónir punda.
# Newcastle, Everton og Aston Villa er öll á höttunum eftir sóknarmanni Inter Milan David Suazo (29 ára). Hann er í láni hjá Benfica og hefur skorað 4 mörk í 6 leikjum með Portúgalska liðinu.
# Kazenga Lua Lua yngri bróðir Lomana Lua Lua gerir tilkall í sæti í aðalliði Newcastle eftir frábæra frammistöðu með ungmennaliði Newcastle í vikunni gegn Oldham í bikarnum. Hann skoraði tvö mörk og tryggði strákunum 2-1 sigur.
# Joe Kinnear segir að Nicky Butt og Danny Guthrie verði klárir í leikinn gegn Portsmouth á sunnudaginn.
# Ef Steve Harper verður boðinn nýr samningur þá eru miklar líkur taldar á að Hollendingurinn ungi og efnilegi Tim Kruul verði seldur.
# Joe Kinnear segir að Newcastle muni ekki falla, en viðurkennir að seinni helmingur tímabilsins verður mjög erfiður ef hann fær ekki styrkja leikmannahópinn í janúar.
(FB)
10.Des
Hvað er til ráða ?
Ég fór í netta fýlu út í Newcastle eftir jafnteflið gegn Stoke og hætti að fylgjast með fréttum af liðinu í nokkra daga en er núna fyrst aðeins að jafna mig eftir þessi hræðilegu úrslit um síðustu helgi. Ég held að allir stuðningsmenn Newcastle geti verið sammála að þetta tímabil er búið að vera hrein hörmung fyrir okkar menn og er orðið mjög langt síðan leikmenn liðsins hafa glatt sína stuðningsmenn með góðum leik. Það er ekki gott þegar maður gengur alltaf svekktur og pirraður frá sjónvarpinu eftir að hafa horft á sína menn drulla upp á bak leik eftir leik. Í leiknum gegn Stoke kom greinilega í ljós hversu slakur leikmannahópur Newcastle er. Á miðjunni voru Geremi og Danny Guthrie. Með þessa miðju getur maður ekki átt von á miklu, Geremi hefur ekki spilað vel í nokkur ár, Guthrie bara ungur og efnilegur strákur en á ekki að vera burðarás í liðinu. Á bekknum voru svo þrír sóknarmenn (Xisco, Viduka,Carroll) og þrír miðherjar (Edgar, Cacapa,Taylor). Að eiga ekki allavega einn frambærilegan miðjumann á bekknum er skelfilega lélegt. Að vísu eru Butt, Barton og Gonzales meiddir en það hlýtur að vera einhver miðjumaður úr vara eða unglingaliðnu sem hægt er að nota í svona hallæri.
Taylor kom svo inná fyrir Guthrie í hálfleik og Cacapa kom inná fyrir Geremi undir lok leiksins. Liðið endaði leikinn sem sagt með fjóra miðherja inná en fékk samt á sig jöfnunarmark úr föstu leikatriði á lokamínútu leiksins.
Liðið hefur nú ekki unnið leik síðan 3 nóv (gegn Villa 2-0) en hefur gert fjögur jafntefli í röð og þau telja ekki mikið þegar upp er staðið. Það eru erfiðir leikir í desember framundan gegn Portsmouth (Ú), Tottenham (H), Wigan (Ú), Liverpool(H). Því miður sé ég ekki fram á að Newcastle taki mörg stig úr þessum leikjum. Það verður fróðlegt að sjá hvað Joe Kinnear gerir í leikmannamálum þegar janúarglugginn opnar. Þeir leikmenn sem ég vill halda eru Given, Beye, Coloccini, Bassong, Taylor, Zog, Jonas, Guthrie, Owen, Martins og kannski Enrique. Restin er haugamatur og má fara mín vegna. Það þarf algjörlega að endurnýja miðjuna hjá þessu liði og ég vona svo innilega að Kinnear fái einhvern skapandi og skemmtilegan miðjumann til Newcastle í janúar. Miðjumann sem getur skotið á markið og er að skora nokkur mörk á tímabili. Það er enginn ógn í þessum miðjumönnum sem eru til staðar núna og ég finn til með framherjum okkar manna að þurfa spila með þessa miðju fyrir aftan sig. Kinnear á bara að gera það sama og Keegan gerði á síðasta tímabili, láta Owen spila fyrir aftan Martins og Viduka. Það virkaði vel í síðast og hví ekki núna ?
(FB)
10.Des

Newcastle United (U18) 2 – 1 Oldham Athletic (U18)
Unglingalið Newcastle tók á móti ungu strákunum frá Oldham í þriðju umferð FA Youth cup. Strákarnir okkar eru að standa sig vel og var þetta níundi sigur þeirra í röð. Það var ungstirnið, Kazenga LuaLua (mynd), sem sem skoraði bæði mörk Newcastle. Kaz (eins og Kazenga er kallaður) kom Newcastle yfir á 20 mínútu með skoti af u.þ.b 30 metra færi. Oldham jafnaði leikinn á 50 mínútu en svo kom sigurmarkið frá Kaz á 87 mínútu sem dugði til að senda strákana áfram í fjórðu umferð FA Youth cup. Það er ekki slæmt að loka sautjánda árinu sínu á því að skora tvö mörk því Kazenga varð 18 ára í dag þann 10.12.2008.
NEWCASTLE UNITED: Johnson; Airey, Henderson, Tavernier, Ferguson; McCrudden, Donaldson (McDermott, 62), Inman, LuaLua; Ranger, S Ameobi (Newton, 59).
Ónotaðir varamenn: Alnwick, Taylor, Spear. OLDHAM ATHLETIC: Ollershaw; Rose, Esdaile, Dawson (Cowan, 46), McCall; Benbo-Leta, Rowney, Kilcourse, McGrath (Crompton, 80); Brooke (Chinthengan, 88), Eaves.
Ónotaðir varamenn: White, Zaicevs. Mörk: LuaLua 20, 87, Brooke 50. Gult spjald: Rowney 42´
Áhorfendur : 1,161
(ÞV)
8.Des

8 sigurleikir í röð hjá U18
Ungmennalið Newcastle er að standa sig töluvert betur en aðalliðið þessa dagana og hefur nú unnið 8 leiki í röð. Síðasta laugardag unnu þeir ungmenna lið Sheffield United á útivelli 1-3 og voru það Ryan Donaldson, Dan Williams (v) og Nile Ranger sem skoruðu mörk Newcastle eftir að heimamenn höfðu komist yfir. Ranger (mynd) hefur nú gert 13 mörk fyrir u18 ára liðið á tímabilinu. Liðið er nú í efsta sæti D riðils með 3 stiga forystu á næsta lið. Næsti leikur þeirra í deildinni er á útivelli gegn Barnsley um næstu helgi. Þeir eiga hinsvegar að spila annað kvöld á heimavelli gegn Oldham í þriðju umferð FA Youth Cup.
Liðið gegn Sheff Utd
Newcastle U-18: Johnson, Airey, Donaldson, Tavernier, Ferguson; Newton ( Williams 65), Inman, McDermott ( Taylor 45), McCrudden (McLaughlin 55), Ranger, Ameobi.
Ónotaðir varamenn: Folan, Leadbitter.
(FB)
6.Des
Newcastle - Stoke City 2-2
(Owen 8,24) - (Sidibe 60, Faye 90)
AUMINGJAR
Lið Newcastle í dag:
Given, Beye, Coloccini, Bassong, Jose Enrique, N'Zogbia, Geremi (Cacapa 82), Guthrie (Taylor 46), Gutierrez, Owen, Martins (Viduka 74). Ónotaðir varamenn: Harper, Xisco, Edgar, Carroll.
Skot á mark: Nufc 9(6) - Sto 12(4)
Hornspyrnur: Nufc 6 - Sto 3
Áhorfendur: 47,422
(FB) Er í brjáluðu skapi útaf þessum úrslitum og hef ekki áhuga á að skrifa um þessa aumingja.
5.Des
 
Newcastle - Stoke City
Það eru næstum 24 ár síðan Stoke heimsótti St James´ Park í efstu deild. Þá sigraði Newcastle 2-1 með mörkum frá John Anderson og Chris Waddle. En að leiknum á morgun, þá eru Ameobi, Barton, Smith, Xisco og Gonzalez frá vegna meiðsla. Damien Duff er tæpur og er óvist hvort hann verði með.
Joe Kinnear hefur sent sínum mönnum skýr skilaboð fyrir leikinn gegn Stoke, sókn sókn og aftur sókn. "Ég tel að við munum sækja hart gegn þeim. Við erum með nógu sterka sóknarmenn til að fá eitthvað út úr leiknum. Ég hef verið mjög ánægður með síðustu heimaleiki okkar, fyrir utan jöfnunarmark WIgan á síðustu mínútum leiksins. En leikirnir gegn Aston Villa og Chelsea er eitthvað sem við verðum að byggja á. Við höfum horft á þessa leiki og eru sífellt að minna leikmenn á endurheimta frammistöðu sína úr þeim leikjum og ná því formi í hverri viku" sagði Kinnear.
Það verður fróðlegt að sjá hvað Kinnear gerir varðandi Viduka. Mun hann stilla honum upp í byrjunarliðinu ? Og hver á þá að detta út ? Martins var mjög ósáttur við að vera tekinn útaf gegn Boro um síðustu helgi og skildi ég hann mjög vel. Owen þarf að fara sína eitthvað á vellinum til að verðskulda sæti sitt í byrjunarliðinu.
Sebastien Bassong og Fabricio Coloccini hafa spilað vel í síðustu leikjum og verður Steven Taylor væntanlega að sætta sig við sæti á bekknum líkt og í síðustu leikjum.
Stoke hefur ekki unnið útileik á tímabilinu ásamt Fulham og Newcastle. Einu stigin sem Stoke hefur fengið á útivelli eru gegn Liverpool og Wigan.
Leikmannahópurinn:
Given, Harper, Beye, Enrique, N,Zogbia, Bassong, Coloccini, Taylor, Cacapa, Edgar, Butt, Guthrie, Gutierrez, Geremi, Owen, Martins, Viduka, Carroll.
Dómari leiksins verður Mike Riley
(FB)
3.Des
Ný könnun
Í síðustu könnun var spurt hvort menn vildu fá Alan Shearer sem stjóra hjá Newcastle og voru 56% sem vildu fá hann í stjórastarfið. 30% sögðust vilja fá einhvern reyndan mann í starfið en 14% vildu halda í Joe Kinnear.
Nú er spurt "Hver er leikmaður nóvembermánaðar ?"
Þeir leikmenn sem eru í boði eru: Coloccini, Bassong, Given, Martins og Guthrie.
(FB)
2.Des
Leikurinn gegn Sunderland færður
Grannaslagurinn gegn Sunderland sem átti að fara fram laugardaginn 31 janúar næstkomandi hefur verið færður aftur um einn dag og mun hann fara fram sunnudaginn 1 febrúar kl 13:30.
(FB)
2.Des

Í fyrsta sinn í 3 ár
Það er alveg óhætt að segja að Newcastle hefur ekki verið þekkt fyrir að spila góðan varnarleik en
í tveimur síðustu leikjum í deildinni hefur Newcastle haldið hreinu á útivelli og þarf að fara aftur til ársins 2005 síðan það gerðist síðast. Í september 2005 vann Newcastle Blackburn á Eawood Park 0-3 og gerði svo jafntefli gegn Portsmouth tveim vikum seinna.
"Ef við getum komið í veg fyrir að andstæðingar okkar skori, þá eigum leikmenn frammi sem geta skorað fyrir okkur. En þetta er mjög ánægjulegt einnig fyrir Shay Given. Markmaður vill alltaf hafa sterka vörn fyrir framan sig og það hefur verið þannig í síðustu leikjum hjá okkur. Nú snýst þetta um að halda hreinu oftar og síðustu tveir leikir hafa aukið sjálfstraust manna mikið" sagði Kinnear í viðtali á heimasíðu Newcastle.
Joe Kinnear er þá kannski að gera eitthvað rétt.
(FB)
2.Des
Leikurinn gegn Man City frestaður
Varaliðsleikurinn gegn Man City sem átti að fara fram í kvöld hefur verið frestaður um óákveðinn tíma vegna slæmra veðurskilyrða. Leikurinn átti að fara fram á Sport City í Manchester. Miðjumaðurinn Ryan Donaldson átti að spila sinn fyrsta leik síðan í október en hann sleit liðband í hné í leik gegn Wigan. Óttast var í fyrstu að hann myndi ekki spila fyrr en í byrjun næsta árs.
(FB) |