Fréttir í des 2009

 

29.Des

Tvö jafntefli í röð en Newcastle heldur toppsætinu

Leikmenn Newcastle geta nagað sig í handarbökin fyrir að hafa ekki nýtt færin sín í gær gegn Derby þegar liðin gerðu 0-0 jafntefli á St James´ Park í gær. Ryan Taylor átti skot í þverslánna úr aukaspyrnu á 11 mínútu. Taylor slapp svo einn í gegn stuttu seinna en Stephen Bywater varði frá honum. Steven Taylor átti hörku skalla af stuttu færi á 57 mínútu sem Bywater varði. Besta færið fékk svo Nile Ranger á lokamínútum leiksins þegar hann átti fast skot af stuttu færi í innanverða slánna og boltinn skoppaði á marklínunni. Þessir tveir síðustu leikir gegn liðum sem eru í 18 og 23 sæti deildarinnar verða að teljast vonbrigði fyrir Newcastle og bilið í næstu lið fyrir neðan Newcastle styttist óðum. Það er alveg ljóst að Chris Hughton þarf að fá sóknarmann til liðsins í janúar ásamt einum varnarmanni. Marlon Harewood hefur lokið lánstíma sínum og hefur ekki verið rætt um að hann komi aftur til Newcastle.  

Chris Hughton eftir leikinn: "Við erum svekktir með úrslitin. Við náðum að halda hreinu enn einu sinni sem er ánægjulegt, en við nýttum ekki eitt af mörgum færum sem við fengum. Við munum eiga svona leiki og því miður var þetta einn af þeim"

Lið Newcastle í gær: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, R Taylor (Pancrate 70), Nolan, Smith, Jonas, Carroll (Ameobi 65), Lovenkrands (Ranger 78).

Ónotaðir varamenn: Krul, Kadar, Guthrie, Butt.

Gult spjald: Nolan.

Áhorfendur 47,505.

Maður leiksins: Jonas Gutierrez

 

Tölfræði leiksins

NUFC

Der

Skot (á mark)

13(7)

5(2)

Brot

15

21

Horn

12

1

Rangstöður

0

1

Með bolta

55%

45%

Gul spjöld

1

3

Rauð spjöld

0

1

Varin Skot

4

5

(FB)

 

25.Des

Newcastle heppnir að ná jafntefli gegn Sheff Wed

Jólasteikin virðist hafa setið eitthvað í leikmönnum Newcastle í dag þegar þeir náðu aðeins 2-2 jafntefli á Hillsborough. Heimamenn komust yfir  á 14 mínútu en ekki leið á löngu þar til að Newcaslte jafnaði. Kevin Nolan skallaði í mark heimamanna eftir flotta sendingu frá Danny Guthrie á 19 mínútu. Shola Ameobi koma svo Newcastle yfir 1-2 aðeins þrem mínútum seinna en það verður að segja eins og er að það mark hefði aldrei átt að standa því Ameobi var kolrangstæður þegar hann fékk sendinguna. Það má segja að dómari leiksins hafi janfað það út í seinni hálfleik því jöfnunaramark heimamanna á 59 mínútu var einnig kolólöglegt. Það var klárlega brotið á Steve Harper sem ætlaði að grípa nokkuð auðveldan bolta í markteig Newcastle en dómari leiksins sá ekki ástæðu til að dæma brot á sóknarmann Sheff Wed sem hindraði Harper með því að grípa í hendurnar á honum þegar hann stökk upp. Harper mótmælti harðlega en talaði fyrir tómum eyrum. Harper sýndi svo snilldarmarkvörslu stuttu seinna og kom í veg fyrir að heimamenn nældu í öll stigin sem í boði voru.

Sóknarleikur Newcastle batnaði töluvert eftir að Andy Carroll kom inná undir lok leiksins og vonandi að hann byrji inná í næsta leik sem er strax á mánudaginn kl 17:20 gegn Derby.

Chris Hughton eftir leikinn: "Það er ekki sjálfegefið að við vinnum alla leiki og við mættum erfiðum mótherjum í dag. Við byrjuðum leikinn illa. Það er svekkjandi þegar liðið er svo komið yfir að ná ekki að klára dæmið"

Hughton tók þá ákvörðun að hvíla Alan Smith í dag en sagði að hann verði örugglega með á mánudaginn. 

Lið Newcastle í dag: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Guthrie, Nolan, Butt, Jonas (Pancrate 64), Ameobi (Carroll 73), Harewood (Lovenkrands 84)

Ónotaðir varamenn: Krul, Kadar, R Taylor, Ranger.

Mörk leiksins: Nolan 19, Ameobi 22.

Áhorfendur: 30,030

Maður leiksins: Steve Harper.

 

Tölfræði leiksins

SW

NUFC

Skot (á mark)

16(6)

7(6)

Brot

19

8

Horn

9

1

Rangstöður

0

5

Með bolta

47%

53%

Gul spjöld

2

0

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

4

5

(FB)

 

25.Des

Newcastle heimsækir Sheffield Wed 

Chris Hughton og hans menn fara á Hillsborough á annan dag jóla og mæta þar heimamönnum í Sheffield Wed kl 12:45.

Hughton gaf leikmönnum frí í dag til að vera með fjölskyldum sínum þrátt fyrir að eiga leik á morgun. "Þeir eiga þetta skilið, þetta er traustur hópur af leikmönnum og ég hef ekki áhyggjur. Við ræddum þetta fyrir leikinn gegn Boro og tilfinningin var sú að ef við næðum góðum úrslitum í þeim leik að þá ættu menn skilið smá frí" sagði Hughton.

Af leikmannamálum er það að frétta að Andy Carroll snýr til baka eftir að hafa tekið út leikbann gegn Boro. Alan Smith og Shola Ameobi fóru báðir af velli gegn Boro vegna meiðsla en verða báðir leikfærir á morgun.

Marlon Harewood spilar hugsanlega sinn síðasta leik fyrir Newcastle en lánstími hans rennur út núna um helgina. Hann hefur sagt að hann vilji vera áfram hjá Newcastle en það á eftir að koma í ljós hvort af því verður. Danny Simpson hefur einnig sagt að hann vilji vera áfram hjá Newcastle en hans lánstími rennur út þann 18 janúar. Samningur hans við Man Utd rennur út í sumar þannig að hann ætti ekki að kosta mikið. "Ég er ánægður hérna of vonandi leysast málin sem fyrst, ég vill vera áfram. Ég hef ekki heyrt neitt frá Man Utd" sagði Simpson.

Líklegt byrjunarlið: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Guthrie, Smith, Nolan, Jonas, Ameobi, Carroll.

Leikurinn er í beinni á Sky Sports og ætti því að vera auðvelt að ná honum á netinu.

(FB)

 

23.Des

Stuttar jólafréttir

# Alan Smith þurfti að fara af velli gegn Boro um síðustu helgi vegna meiðsla og var óttast að hann yrði frá í nokkrar vikur. En í dag kom í ljós að hann er ekki eins meiddur og óttast var og verður hann með gegn Sheff Wed á annan í jólum.

# Danny Simpson líkar vel við lífið í Newcastle og vonast til að samningar náist í janúar. "Mér líkar vel hérna, liðsfélagarnir, staðurinn, stuðningsmennirnir, fótboltinn, bara allt saman. Ég hef verið í byrjunarliðinu. Okkur hefur gengið mjög vel í fyrri hluta tímabilsins og ég vill vera áfram. Það hefur verið frábært að vera hluti af þessu og vonandi heldur það áfram" sagði Simpson á heimasíðu Newcastle í dag.

# Gleymdi maðurinn í Newcastle Geremi var valinn í landslið Kamerún sem tekur þátt í Afríkukeppninni í byrjun næsta árs. Geremi hefur tekið þátt í 9 leikjum með Newcastle á þessu tímabili og skorað 1 mark.

# Shola Ameobi ætlar sér að ná Kevin Nolan sem er markahæstur leikmanna Newcastle. "Ég get ekki látið miðjumann vera markahæstann. Ég er að stríða honum, en það væri gaman að ná honum. Hann hefur staðið sig virkilega vel. Við viljum skora eins mörg mörk og vip getum. Þetta er bara góð samkeppni, hann á eftir að skora fleiri mörk" sagði Ameobi.

# Mick McCarthy stjóri Wolves segir að hann hafi ekki áhuga á að kaupa Andy Carroll í janúar. "Við höfðum áhuga á honum í síðasta glugga, en Newcastle vildi ekki selja hann. Ég hef ekki spurst fyrir um hann síðan þá. Þeir eru á topp Championship deildarinnar og ég hef ekki trú á að þeir vilji selja hann núna frekar en þá" sagði McCarthy.

# Derek Llambias stjórnarformaður Newcastle segir að leikmenn verði ekki seldir í janúar og að Chris Hughton muni fá stuðning frá stjórninni til að kaupa leikmenn.

 

Að lokum vill ég óska öllum stuðningsmönnum Newcastle gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

(FB)

 

20.Des

10 stiga forysta í jólagjöf

Newcastle sigraði Middlesbrough 2-0 örugglega í grannaslagnum í dag á St James´ Park og fer með 10 stiga forystu á toppi deildarinnar inn í jólatörnina. Þetta var sannkallaður grannaslagur og fór ekki mikið fyrir fallegum fótbolta. Mikið um tæklingar og baráttan í fyrirrúmi. Það má eiginlega segja að Newcastle hafi skorað úr sinni fyrstu sókn á 16 mínútu. Danny Guthrie átti frábæra sendingu úr aukaspyrnu fyrir utan teig og Ameobi skallaði boltann fyrir lappirnar á Harewood sem átti ekki í erfiðleikum með að pota boltanum í markið. Seinna mark Newcastle kom á 59 mínútu einnig eftir sendingu frá Guthrie og núna var það Ameobi sem skallaði í markið. Virkilega vel gert hjá Newcastle í dag og náðu leikmenn Boro ekki að svara fyrir það sem eftir lifði leiks. Fabricio Coloccini átti frábæran leik í dag og stöðvaði margar sóknir gestanna og í heildina var vörn Newcastle mjög sterk í dag. Þess má geta að það var sett áhorfendamet í deildarkeppninni á Englandi í dag á St James´ Park, alls komu 49,644 áhorfendur á SJP í dag og hafa aldrei fleiri mætt á leik fyrir utan úrvalsdeildina. Gamla metið átti Sunderland í leik gegn Stoke árið 2005 en þá mættu 47,350 á Stadium of Light.

Þess má einnig geta að þetta er næst mesti áhorfendafjöldi á Englandi um helgina á eftir leik Arsenal - Hull þar sem 60.000 áhorfendur mættu.

Lið Newcastle í dag: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Jonas, Nolan, Smith (Butt 49), Guthrie, Ameobi (Pancrate 83), Harewood (Ranger 66).

Ónotaðir varamenn: Krul, R Taylor, Lovenkrands, Kadar.

Gult spjald: Simpson.

Mörk leiksins: Harewood 16, Ameobi 59.

Áhorfendur: 49,644.

Maður leiksins: Fabricio Coloccini.

 

Tölfræði leiksins

NUFC

Pet

Skot (á mark)

13(8)

8(4)

Brot

12

14

Horn

3

1

Rangstöður

4

2

Með bolta

56%

44%

Gul spjöld

1

2

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

2

3

(FB)

 

20.Des

Jose Enrique vill klára ferilinn hjá Newcastle

Spánnverjinn knái Jose Enrique hefur verið orðaður við nokkur úrvalsdeildarlið eins og Sunderland og Liverpool, en hann er ánægður hjá Newcastle og vill hvergi fara. "Ég er mjög ánægður hérna, ég hef bara áhuga á Newcastle ekki neinu öðru liði.

Ég á þetta tímabil og svo tvö önnur eftir á mínum samningi og ég vona að vera áfram hérna. Fjölskyldan mín er ánægð og ef það er möguleiki þá vill ég klára ferilinn minn hérna, þá yrði ég mjög ánægður" sagði Enrique í viðtali við Sunday Mirror.

(FB)

 

 

 

 

 

19.Des

Newcastle tekur á móti nágrönnunum í Middlesbrough

Það verður sannkallaður grannaslagur á morgun þegar Boro heimsækir Newcastle á St James´ Park kl 13:00. Það ríkir vetur konungur á Englandi þessa dagana og hefur snjóað mikð undanfarna daga eins og sjá má á myndinni sem tekin var á æfingu í gær. Þegar hafa nokkrir leikir verið frestaðir en litlar líkur eru á að leikur Newcastle og Boro verði frestaður.

Andy Carroll er í leikbanni eftir að hafa fengið sitt fimmta gula spjald í leiknum gegn Barnsley. Danny Guthrie hefur jafnað sig á smávægilegum hnémeiðslum og verður í leikmannahópnum. Það eru aðeins Joey Barton og Haris Vuckic sem eru frá vegna meiðsla.

Chris Hughton: "Við erum ósigraðir heimavelli og viljum halda því áfram. Strákunum okkar hlakkar mikið til vegna þess að við höfum ekki spilað í 8 daga. Við munum spila til sigurs en Boro er ekki auðunnið lið, þeir eru með góðan mannskap".

Líklegt byrjunarlið: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Jonas, Smith, Nolan, Pancrate, Harewood, Lovenkrands.

(FB)

 

15.Des

Stuttar fréttir

# Jack Wilshire 17 ára miðjumaður hjá Arsenal er undir smásjánni hjá Newcastle er möguleiki á að Chris Hughton reyni að fá hann að láni í janúar eða febrúar.

# Kevin Nolan segir að Newcastle getur alveg unnið aðra sjö leiki í röð. "Við höfum sýnt að við getum unnið leiki og markmiðið er að vera ósigraðir sem lengst. Við erum í góðri stöðu núna og þetta er allt undir okkur komið. Við eigum þrjá leiki eftir á þessu ári og við stefnum á að taka öll stigin sem í boði eru" sagði Nolan á heimasíðu Newcastle.

# Andy Carroll verður í leikbanni í grannaslagnum gegn Boro á sunnudaginn kemur. Carroll fékk sitt fimmta gula spjald í síðasta leik og fer því sjálfkrafa í leikbann.

# Chris Hughton segir að það sé ekkert til í því að Steven Taylor sé á leið til Man Utd á láni í skiptum fyrir Federico Macheda sóknarmanni Man Utd. "Steven Taylor fer ekki til Manchester United. Þessar fréttir eru algjörlega út í hött og ég veit ekki hvaðan þær komu og hverjum dreymdi um þetta" sagði Hughton á Sky Sports.

# Zurab Khizanishvili er á leið til Blackburn aftur eftir að lánssamningur hans rennur út núna í vikunni. Ekki er reiknað með að Hughton vilji framlengja samning hans við Newcastle.

# Matthew Kilgallon er enn undir smásjánni hjá Newcastle og er reiknað með að Hughton muni reyna að krækja í þennan varnarmann Sheff Utd í janúarglugganum.

# Adidas hefur verið styrktaraðili Newcastle undanfarin 14 ár en nú gæti orðið breyting á því. Sagt er að Adiddas sé orðið þreytt á neikvæðri umfjöllun um Newcastle og Mike Ashley og vilji því slíta samstarfinu. Newcastle er sagt vera að gera samning vil Puma um að gerast nýr styrktaraðili á næstu árum. Norhern Rock mun einnig hætta að auglýsa á búningum Newcastle eftir þetta tímabil og verður því að öllum líkindum mjög breyttur búningur á næsta tímabili.

(FB)

 

12.Des

Newcastle náði ekki áttunda sigrinum í röð

Mark á lokamínútum leiksins í dag kom í veg fyrir að Newcastle næði áttunda sigrum í röð. Það leit allt út fyrir að Newcastle væri að landa sigri eftir að Marlon Harewood hafði komið Newcastle  1-2 yfir á 78 mínútu leiksins en Bobby Hassell varnarmaður Barnsley skallaði í mark Newcastle eftir hornspyrnu heimamanna á 87 mínútu og 2-2 jafntefli niðurstaðan. Kevin Nolan hafði komið Newcastle yfir á 6 mínútu með góðu skoti eftir undirbúning frá Andy Carroll en það var svo íslendingurinn Emil Hallfreðson sem náði að jafna leikinn fyrir Barnsley og var þetta fyrsta mark sem Newcastle fær á sig í fjórum leikjum. Newcastle náði átta stiga forystu með þessu jaftefli en WBA á einn leik til góða á mánudag gegn QPR. Næsti leikur er grannaslagurinn gegn Middlesbrough á sunnudag eftir viku.

Chris Hughton eftir leikinn: "Þegar maður er 2-1 yfir og það er lítið eftir af leiknum, þá er alltaf svekkjandi að ná ekki öllum þrem stigunum. Það sem við gerðum ekki nógu vel í dag var að verjast föstum leikatriðum á síðustu mínútum leiksins, eitthvað sem við höfum gert mjög vel í vetur"

Lið Newcastle í dag: Harper, R Taylor, S Taylor, Coloccini, Enrique (Khizanishvili 80, Nolan, Smith, Butt, Jonas (Harewood 69, Pancrate (Ranger 79, Carroll.

Ónotaðir varamenn: Krul, Simpson, Lovenkrands, Ameobi.

Gult spjald: Carroll.

Mörk leiksins: Nolan 6, Harewood 78.

Áhorfendur: 20,079

Maður leiksins: Kevin Nolan.

 

Tölfræði leiksins

Bar

NUFC

Skot (á mark)

11(6)

10(3)

Brot

8

13

Horn

11

2

Rangstöður

2

3

Með bolta

54%

46%

Gul spjöld

2

1

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

2

7

(FB)

 

11.Des

Newcastle heimsækir Barnsley

Kevin Nolan snýr til baka eftir að hafa tekið út leikbann gegn Coventry og er því leikmannahópurinn nánast fullskipaður. Þeir Joey Barton og Haris Vuckic eru þeir einu sem eru frá vegna meiðsla. Chris Hughton hefur því úr stórum hóp að velja og verður að segjast eins og er að það er ekki oft sem svona fáir leikmenn eru frá vegna meiðsla. Undanfarin ár hefur Newcastle verið með fjölmarga leikmenn á meiðslalistanum óskemmtilega, en nú virðist vera breyting á því. Newcastle náði sjö stiga forystu með 0-2 (sjá hér) sigrinum á Coventry í vikunni og heimsækir Barnsley á morgun kl 15:00.

Barnsley er í 16 sæti deildarinnar með 25 stig en á einn leik til góða. Newcastle hefur unnið sjö leiki í röð og auðvitað vonum við að sá áttundi komi í hús á morgun.

Síðast mættust þessi lið í ágúst 2007 í deildarbikarnum á St James´ Park og sigruðu okkar menn 2-0.

Líklegt byrjunarlið: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Jonas, Smith, Nolan, Pancrate, Lovenkrands, Ameobi.

Eins og svo oft áður er þessi leikur ekki sýndur beint og er líklegast að ná lýsingu af leiknum á ustream.com.

Andy Carroll var ekki í leikmannahópnum gegn Coventry í vikunni vegna atviks sem hann lenti í um síðustu helgi þar sem hann var handtekinn vegna slagsmála. Tekið hefur verið á því máli innan félagsins og snýr hann til baka í leikmannahópinn á morgun.

(FB)

 

11.Des

Taylor " Ég fer hvergi"

Steven Taylor hefur verið orðaður við nokkur úrvalsdeildarlið undanfarið en hann segir í viðtali við Newcastle Chronicle að hann hafi ekki áhuga á að fara frá Newcastle og vill koma liðinu upp í úrvalsdeildina. "Ég vill pottþétt vera áfram hérna. Ég var hluti af liðinu sem féll og ég vill vera hluti af liðinu sem fer upp aftur. það er svo einfalt. Þetta tímabil hefur verið frábært, við erum allir að njóta fótboltans í botn. Það er mikil samheldni í hópnum. Það var ekki þannig á síðasta tímabili. Það er algjör breyting. Aðalatriðið er að halda þessum leikmannahóp í janúar og vonandi getum við bætt við einum eða tveimur, það væri frábært. Ef ekki þá er þessi leikmannahópur nógu góður til að koma okkur upp. En við sjáum til hvað gerist" sagði Taylor.

(FB)

 

 

 

9.Des

Ranger The Danger opnar loksins markareikninginn

Newcastle sigraði Coventry í kvöld örugglega 0-2 og jók forystuna í 7 stig á toppi deildarinnar. Shola Ameobi var óvænt í byrjunarliðinu og þakkaði hann fyrir sig með því að skora fyrra mark Newcastle á síðustu mínútu fyrri hálfleiks eftir góðan undirbúning Jose Enrique. Nile Ranger skoraði svo annað mark Newcastle á 82 mínútu einnig eftir undirbúning Jose Enrique og er þetta fyrsta mark Ranger fyrir aðallið Newcastle. 0-2 sigur staðreynd og hefur liðið ekki fengið á sig mark í síðustu 4 leikjum, þess má einnig geta að Newcastle hefur nú unnið 7 leiki í röð og hefur það ekki gerst síðan 1996. Svo sannarlega frábær árangur hjá Chris Hughton og strákunum hans.

Lið Newcastle í kvöld: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Smith, Butt, Jonas, Pancrate (R Taylor 76, Lovenkrands (Ranger 64, Ameobi (Harewood 64)

Ónotaðir varamenn: Krul, Guthrie Khizanishvili, Kadar.

Áhorfendur: 21,688.

Mörk leiksins: Ameobi 45, Ranger 82.

Maður leiksins: Jose Enrique

 

Tölfræði leiksins

Cov

NUFC

Skot (á mark)

14(8)

11(7)

Brot

12

7

Horn

4

7

Rangstöður

1

1

Með bolta

53%

47%

Gul spjöld

1

0

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

5

6

(FB)

 

8.Des

Newcastle heimsækir Coventry

Chris Hughton fer með strákana sína á Rioch Stadium heimavöll Arons Gunnarssonar og félaga í Coventry miðvikudagskvöld kl 19:45. Kevin Nolan er í leikbanni eftir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Watford síðasta laugardag. Þeir Nicky Butt, Fabrice Pancrate eða Ryan Taylor gætu komið inn í byrjunarliðið fyrir Nolan sem fékk eins leiks bann. Shola Ameobi gæti verið á bekknum en hann hefur verið að æfa á fullu núna í tvær vikur. Newcastle hefur unnið sex síðustu leiki og hefur það ekki gerst síðan tímabilið 1996/97 í úrvalsdeildinni, en þá var liðið undir stjórn Kevin Keegan og unnu sjö leiki í röð í september og október 1996

Coventry og Newcastle mættust í deildarbikarnum á síðasta tímabili í lok ágúst og unnu okkar menn 2-3 eftir framlengdan leik.

Líklegt byrjunarlið: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Jonas, Smith, Butt, Guthrie, Lovenkrands, Harewood.

Leikurinn er hvergi sýndur svo að ég viti en lílkegast er að ná lýsingu af leiknum á ustream.com

(FB)

 

7.Des

Smith "Vörnin er lykilatriði"

Alan Smith hefur átt frábært tímabil með Newcastle og segir hann að gott gengi liðsins sé varnarleiknum að þakka. "Við erum með eina bestu vörnina í landinu og það er eitthvað sem Newcastle hefur ekki verið þekkt fyrir. Leikurinn gegn Watford var einn sá erfiðasti hingað til".  

Smith hrósaði Fabricio Coloccini fyrir sína frammistöðu í leiknum. "Fólk hefur alltaf sagt að vörnin sé veikasti hlekkurinn, svo að varnarmenn okkar eiga mikið hrós skilið. Sérstaklega miðverðirnir og markmaðurinn, þeir hafa verið frábærir í vetur. Coloccini hefur þróast mjög mikið. Það hefði verið auðvelt fyrir hann að fara síðasta sumar þegar honum gekk ekki svo vel, en núna sjá allir að hann er að gera það sem við allir viljum að hann geri og vonandi verður framhald á því" sagði harðjaxlinn Smith

(FB)

 

5.Des

Sex sigurleikir í röð og Newcastle eykur forystuna á toppnum

Newcastle sigraði Watford 2-0 í dag og jók forystuna á toppnum í fjögur stig þar sem WBA gerði 

aðeins jafntefli í dag. Peter Lovenkrands skoraði fyrra mark leiksins á 20 mínútu og er þetta hans annað mark í síðustu tveim leikjum. Marlon Harewood átti allan heiður af markinu þar sem hann vann boltann af varnarmanni Watford og átti Lovenkrands ekki í vandræðum með að skora framhjá markmanni Watford. Kevin Nolan sem hefur verið besti leikmaður Newcastle í vetur fékk að líta sitt annað gula spjald á 49 mínútu og voru því leikmenn Newcastle einum færri það sem eftir lifði leiksins. En það koma ekki að sök því varamaðurinn Fabrice Pancrate (mynd) skoraði glæsilegt mark á 83 mínútu og gerði út um vonir Watford um að jafna leikinn því þeir höfði sett mikla pressu á mark Newcastle og fór Heiðar Helguson þar fremstur í flokki. Sjá má markið hans hér.

Newcastle hefur þar með unnið sex leiki í röð og ekki fengið á sig mark í síðustu þremur leikjum.  

Chris Hughton eftir leikinn: "Það eiga eftir að koma slæmir tímar, ég er viss um það, en við höfum sýnt mikla seiglu og það er að skila okkur miklu eins og að halda markinu hreinu. Ég er mjög ánægður með það. Strákarnir eiga skilið mikið hrós fyrir daginn í dag"

Þess má svo geta að Chris Hughton var valinn stjóri nóvembermánaðar og er þetta í þriðja sinn sem hann fær þann heiður. Newcastle vann alla sína leiki í nóvember og fékk aðeins á sig eitt mark í fjórum leikjum.

Lið Newcastle í dag: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Guthrie (Pancrate 71), Nolan, Smith, Jonas, Lovenkrands (Butt 65), Harewood (Carroll 56)

Ónotaðir varamenn: Krul, Khizanishvili, R Taylor, Ranger.

Gul spjöld: Nolan ( tvö gul) og þar með rautt.

Áhorfendur: 43,050

Mörk leiksins: Lovenkrands 20, Pancrate 83.

Maður leiksins: Jonas Gutierrez

 

Tölfræði leiksins

NUFC

Wat

Skot (á mark)

11(9)

12(7)

Brot

10

9

Horn

4

8

Rangstöður

1

2

Með bolta

41%

59%

Gul spjöld

1

2

Rauð spjöld

1

0

Varin Skot

7

4

(FB)

 

4.Des

Heiðar Helguson mætir á St James´ Park

Newcastle tekur á móti Heiðari Helgusyni og félögum í Watford á morgun á St James´ Park kl 15:00. Heiðar hefur verið mjög heitur með Watford og hefur hann skorað 5 mörk í 5 leikjum frá því hann kom á láni frá QPR. En auðvitað viljum við að hann láti lítið á sér bera á morgun. Af leikmannamálum Newcastle er það að frétta að Steve Harper hefur jafnað sig á meiðslunum sem hann hlaut í leiknum gegn Swansea um síðustu helgi og verður hann í markinu á morgun. Andy Carroll og Nicky Butt eru líka heilir og verða með. Þá hefur Shola Ameobi verið að æfa í tæpar tvær vikur og verður hugsanlega á bekknum. Það er bara Joey Barton sem er frá vegna meiðsla og hefur því Chris Hughton úr stórum hóp að velja.

 "Við höfum fengið alla þessa leikmenn til baka og ég þarf að taka ákvarðanir en hvaða stjóri vill ekki hafa svona vandamál. Þetta eykur samkeppnina um stöður í liðinu og það er af hinu góða. Desember mánuður er erfiður og við þurfum að spila sex leiki, oft eru þetta erfiðir vellir og við þurfum því á góðum leikmannahóp að halda" sagði Hughton á heimasíðu Newcastle í dag. 

Líklegt byrjunalið: Harper, Simspon, S Taylor, Coloccini, Enrique, Jonas, Nolan, Smith, Lovenkrands, Harewood, Carroll.

(FB)