Fréttir í febrúar 2010

28.Feb

Watford - Newcastle 1-2

 

Carroll og Coloccini skoruðu báðir í gær

 

Þrír sigrar í röð og átta stig í Þriðja sætið

Newcastle sigraði Watford 1-2 á Vicarage Road í gær og skoruðu Fabricio Coloccini og Andy Carroll mörk Newcastle í sitt hvorum hálfleiknum, bæði mörkin með skalla. Coloccini kom Newcastle yfir strax á 4 mínútu leiksins eftir góðan undirbúning Andy Carroll.

Carroll kom svo Newcastle í 0-2 á 50 mínútu eftir hornspyrnu frá Danny Guthrie. Þetta var hans sjöunda mark í síðustu átta leikjum og er hann kominn með 11 mörk í vetur.

Watford náði að klóra í bakkann á lokamínútu leiksins en voru aldrei nálægt því að jafna leikinn. Fimm leikmenn Newcastle fengu að líta gula spjaldið í gær en það voru þeir Williamson, Van Aanholt, Nolan, Smith og Best.

Newcastle er nú með sex stiga forystu á WBA sem er í öðru sæti en það sem meira máli skiptir að það eru átta stig í N Forest sem er í þriðja sætinu. Forest sem tapaði í gær hefur spilað einum leik meira en WBA og Newcastle.

Lið Newcastle í gær: Harper, Simpson, Coloccini, Williamson, Van Aanholt, Nolan, Guthrie (Pancrate 89), Jonas (R Taylor 88) Best (Ranger 74), Carroll.

Ónotaðir varamenn: Krul, Hall, Kadar, Donaldson.

Áhorfendur: 17,120

 

20.Feb

 

Newcastle - Preston 3-0

 

(Ryan Taylor fagnar marki sínu í dag ásamt Kevin Nolan)

 

Sannfærandi sigur á Preston í dag

Newcastle heldur áfram frábæru gengi á heimavelli og unnu sinn fjórtánda leik á St James´ Park í vetur. Liðið er taplaust á heimavelli og hefur unnið fjórtán leiki og gert fjögur jafntefli.

Lið Preston var fórnarlambið í dag og sigruðu okkar menn sannfærandi 3-0 sigur. Daninn Peter Lovenkrands kom Newcastle yfir strax á 3 mínútu en þurfti svo að fara af vell stuttu seinna vegna meiðsla, við skulum bara vona að þau meiðsli séu ekki alvarleg því hann hefur verið ansi sprækur í undanförnum leikjum. Annað mark Newcastle koma ekki fyrr en á 55 mínútu og var það Kevin Nolan sem skoraði. Ryan Taylor skoraði svo þriðja og síðasta mark Newcastle á lokamínútum leiksins líkt og hann gerði í síðasta leik gegn Coventry í vikunni.

Newcastle er þar með komið með fimm stiga forystu á toppnum og á einn leik til góða á Forest sem situr í öðru sæti. WBA er hinsvegar sex stigum á eftir í þriðja sætinu með einum leik færri en Newcastle.

Lið Newcastle í dag: Harper, Simpson, Coloccini, Williamson, Van Aanholt, Guthrie (Pancrate 89), Smith, Nolan, Jonas (R Taylor 75), Carroll, Lovenkrands (Best 14).

Ónotaðir varamenn: Krul, Kadar, Ranger, Hall.

Áhorfendur: 45,525

Mörk leiksins: Lovenkrands 3, Nolan 55, R Taylor 90. 

 

18.Feb

(Lovenkrands fagnar marki sínu í gær)

 

Newcastle - Coventry 4-1

 

Aftur á sigurbraut

Newcastle sigraði Coventry sannfærandi 4-1 í gærkvöldi á St James´ Park og tyllti sér á topp deildarinnar á nýjan leik. Coventry komst yfir í fyrri hálfleik en sú forysta stóð ekki nema yfir í tvær mínútur og var það Wayne Routledge sem jafnaði fyrir okkar menn á 37 mínútu. Í seinni hálfleik tóku leikmenn Newcastle öll völd á vellinum og skoruðu þrjú mörk. Andy Carroll kom Newcastle yfir á 53 mínútu með sínu níunda marki í vetur. Peter Lovenkrands skoraði þriðja mark Newcastle úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Routledge og í kjölfarið var Leon Barnett varnarmanni Coventry vikið af velli. Ryan Taylor gerði svo fjórða og síðasta mark Newcastle á lokamínútum leiksins og gulltryggði glæsilegan 4-1 sigur á Aroni Gunnarssyni og félögum í Coventry.

Lið Newcastle í gær:

Harper, Simpson, Coloccini, Williamson, Van Aanholt, Routledge (R Taylor 83), Nolan, Guthrie, Jonas (Pancrate 82), Carroll, Lovenkrands (Best 72).

Ónotaðir varamenn: Krul, Hall, Smith, Ranger.

Áhorfendur: 39,334

 

13.Feb

Swansea - Newcastle 1-1

Andy Carroll bjargaði Newcastle frá tapi í dag þegar hann jafnaði leikinn á 87 mínútu en heimamenn höfðu komist yfir á 56 mínútu. Swansea voru mun sterkari aðilinn í þessum leik og máttu leikmenn Newcastle þakka fyrir að ná stigi úr þessum leik. Útivallarformið virðist enn vera vandamál hjá Newcastle og hafa þeir ekki unnið útileik síðan 9 des þegar þeir unnu Coventry 0-2. Liðið steinlá í vikunni fyrir Derby 3-0 og þarf Chris Hughton að stappa stálinu í sína leikmenn ef ekki á illa að fara. Næstu tveir leikir eru á St James´ Park gegn Coventry og Preston og þarf liðið á sex stigum að halda í þessum tveim leikjum.

Lið Newcastle í dag:

Harper, Simpson, Hall, Coloccini, Van Aanholt, Guthrie, Nolan, Smith, Routledge,

Lovenkrands (Best 66), Carroll.

Ónotaðir varamenn: Krul, Williamson, R Taylor, Pancrate, Kadar, Ranger.

Áhorfendur: 15,188

 

5.Feb

Newcastle - Cardiff 5-1

Newcastle heldur fast í toppsætið í deildinni og valtaði yfir Cardiff í kvöld sem situr i fjórða sæti deildarinnar. Andy Carroll og Peter Lovenkrands skoruðu báðir tvö mörk og gestirnir gerðu eitt sjálfsmark. Newcastle var komið í 3-0 eftir aðeins 15 mínútna leik og eftir þessa frábæru byrjun Newcastle áttu gestirnir aldrei möguleika gegn sprækum leikmönnum Newcastle.

Lið Newcastle í kvöld:

Harper, Simpson, Williamson, Hall(Kadar 82), Van Aanholt, Routledge, Guthrie, Nolan, Jonas (R Taylor 79), Carroll, Best (Lovenkrands 60).

Ónotaðir varamenn: Krul, Pancate, Ranger, Ameobi.

Áhorfendur 44,028

Mörk leiksins: Carroll 3, Gyepes (sjm) 6, Carroll 15, Lovenkrands 69,82. - Wildig 89.

 

1.Feb

Við eigum eftir að sjá það besta frá Best segir Hughton

Newcastle keypti í dag Leon Best frá Coventry City. Best er aðeins 23 ára gamall og er í landsliði Íra þrátt fyrir að vera fæddur í Nottingham. "Hann er á góðum aldri aðeins 23 ára, hann á sín bestu ár framundan. Hann á eftir að þróast mikið sem leikmaður. Þetta tímabil hefur verið gott hjá honum og er hann búinn að skora 10 mörk. Ég held að hann muni auka möguleikana okkar í framlínunni og ég er mjög ánægður að fá hann til okkar" sagði Hughton á heimasíðu Newcastle í dag.

 

1.Feb

Leon Best á leið til Newcastle ?

Sóknarmaður Coventry Leon Best er sagður vera á leið til Newcastle í dag og mun gangast undir læknissoðun í dag. Hann er sagður gera þriggja og hálfs árs samning við Newcastle

Samningur hans við Coventry rennur út í sumar þannig að hann kemur ekki til með að kosta mikið.

Best er 23 ára og byrjaði ferilinn sinn með Southampton og spilaði sinn fyrsta leik einmitt gegn Newcastle árið 2004.

Hann hefur síðan verið á svolitlu flakki á milli liða og hefur verið lánaður til liða eins og QPR, Sheff Wed, Bournemouth, og Yeoville. Hann var svo seldur til Coventry í júlí 2005 fyrir 650 þúsund pund. Best hefur spilað 102 leiki og skorað 22 mörk fyrir Coventry. Hann hefur hinsvegar skorað 10 mörk í 26 leikjum með Coventry á þessu tímabili.

 

1.Feb

Geremi seldur til Tyrklands

Newcastle hefur staðfest að Geremi hafi verið seldur til Tyrkneska liðsins Ankaragucu. Geremi kom til Newcastle í júlí 2007 og var það Sam Allardyce sem keypti hann til liðsins. Geremi spilaði aðeins 54 leiki fyrir Newcastle og skoraði 3 mörk. Hann náði sér aldrei virkilega á strik með liðinu og var á háum launum. það er því bara hið besta mál að hafa losnað við hann. Kaupverð er ekki uppgefið.