Fréttir í janúar 2010

31.Jan

Leicester - Newcastle 0-0

Newcastle hafði möguleika á að ná sex stiga forystu í gær þegar þeir heimsóttu lærisveina Nigel Pearson fyrrum þjálfara Newcastle á Walkers Stadium í gær. En þrátt fyrir að vera einum fleiri frá 29 mínútu náðu leikmenn Newcastle ekki að tryggja sér öll stigin sem voru í boði. En engu að síður náðu þeir að auka forskot sitt í fjögur stig á topp deildarinnar þar sem N Forest tapaði gegn Derby í gær. Á bekknum hjá Leicester sat hinn 35 ára Nolberto Solano sem á 240 leiki að baki með Newcastle og kom hann inná undir lok leiksins (sjá mynd).

Patrick Van Aanholt 19 lánsmaður frá Chelsea var í byrjunarliðinu í stöðu vinstri bakvarðar í gær og átti strákurinn fínan leik. Wayne Routledge byrjaði einnig inná í fyrsta sinn og átti hann einnig góðan leik. Mike Williamson spilaði með Coloccini í hjarta varnarinnar og virðist sem hann sé sterkur varnarmaður og veitir Newcastle ekki af því vegna þess að Steven Taylor verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla.

Lið Newcastle í gær: Harper, R Taylor, Coloccini, Williamson, Van Aanholt, Routledge, Butt, Smith (Ranger 63), Nolan (Pancrate 75), Guthrie, Carroll.

Ónotaðir varamenn: Krul, Hall, Kadar, Jonas Lovenkrands.

Áhorfendur: 29,067

 

29.Jan

Tveir á láni til Newcastle

Newcastle fékk í dag tvo leikmenn að láni. Fitz Hall 29 ára varnarmaður frá QPR kemur á láni út þetta tímabil og Patrick Van Aanholt 19 ára vinstri bakvörður frá Chelsea kemur á láni í einn mánuð. Aanholt er í 21 árs landsliði Hollendinga eins og Tim Krul varamarkvöður Newcastle. Jose Enrique meiddist í leiknum gegn Crystal Palace og er því kærkomið að fá vinstri bakvörð til liðsins. Newcastle keypti þá Mark Williamson og Wayne Routledge fyrr í vikunni of hefur þá Newcastle fengið til sín fjóra leikmenn núna í þessari viku og er það bara flott mál. Það ætti að styrkja leikmannahópinn í þeirri baráttu sem framundan er.

Það er mikið ritað um að Newcastle vilji fá Victor Moses framherja Palace til sín og vona ég að það gangi upp því sá strákur er gífurlega efnilegur.

 

   

Fitz Hall                              Patrick Van Aanholt              Mike Williamson                      Wayne Routledge

 

27.Jan

Newcastle - C Palace 2-0

 

Ranger The Danger með sitt fyrsta mark á St James´ Park

Newcastle sigraði Crystal Palace 2-0 í kvöld og náði þriggja stiga forystu á toppnum og eiga að auki einn leik til góða. Það sem meira máli skiptir að Newcastle er nú 8 stigum frá þriðja sætinu, en eins og flestir vita að þá fara aðeins tvö lið beint upp í úrvalsdeild en liðin í sætum 3-6 fara í umspil um það  hverjir fylgja tveim efstu liðunum.

Palace gerði sjálfsmark á 20 mínútu og það var svo Nile Ranger sem skoraði annað mark Newcastle á 90 mínútu og tryggði þeim öll stigin sem voru í boði. Þetta var hans fyrsta mark á St James Park með aðalliðinu. Það spiluðu tveir nýir leikmenn með Newcastle í kvöld. Mike Williams 26 ára varnarmaður sem keyptur var frá Portsmouth í dag og Wayne Routledge 25 ára vængmaður sem keyptur var frá QPR í gær.

 Þar með hefur Newcastle keypt þrjá leikmenn í janúar en varnarmaðurinn Danny Simpson sem hefur verið á láni frá Man Utd í vetur var keyptur til Newcastle í síðustu viku.

 Meiðslalisti Newcastle sem hefur verið óvenju lítill í vetur hefur nú stækkað undanfarið og í kvöld bættist Jose Enrique í hópinn. Þeir Danny Simpson, Steven Taylor, Shola Ameobi og Joey Barton eru allir frá vegna meiðsla. Ryan Taylor var ekki með í kvöld þar sem hann tók út leikbann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn WBA í bikarnum um síðustu helgi.

Lið Newcastle í kvöld: Harper, Kadar, Williamson, Coloccini, Enrique (Pancrate 25), Guthrie, Nolan, Smith, Jonas (Ranger 73), Carroll, Lovenkrands (Routledge 62).

Ónotaðir varamenn: Krul, Butt, Tozer, Donaldson.

Áhorfendur: 37,886.

 

 

18.jan
Newcastle 2 - West Brom 2
Bráð fjörugum leik Newcastle gegn West Brom lauk með jafntefli. Leikurinn var jafn og bæði lið í fanta formi. Jonas Olsson  skoraði fyrir W B eftir aðeins 13 mínútur en Danny Guthrie jafnaði 12 mínútum síðar með glæsilegri aukaspyrnu. Í seinni hálfleik komu gestirnir grimmir til leiks og Roman Bednar skoraði strax á 46 mínútu fyrir WB ( 1-2 ). Á 54 mín skoraði síðan Peter Lovenkrands jöfnunarmarkið. En eins og áður sagði var þetta hörkuleikur og bæði lið hefðu getað skorað fleyri mörk en litu dagsins ljós. 7 gul spjöld voru gefin í leiknum W B 5 og NUFC 2.  Fátt var á leiknum miðað við heimaleik NUFC eða rúmlega 39þús manns.

 

13.jan 2010

Newcastle 3 - Plymouth 0


Peter Lovenkrands skoraði þrennu þegar Newcastle lagði Plymouth á heimavelli í FA bikarnum í kvöld. Mörkin skoraði Peter á 10, 40 og 72. mínútu. Newcastle var mun betra lið í leiknum og átti 13 skot að marki á móti 5 skotum Plymouth.


Tölfræði leiksins

NUFC

Ply

Skot (á mark)

13(6)

5(1)

Brot

7

15

Horn

3

0

Rangstöður

2

4

Með bolta

59%

41%

Gul spjöld

0

0

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

3

7


 

3.Jan

Síðasta færslan mín

Þetta verður síðasta færslan mín hér á heimasíðu Newcastle klúbbsins. Ég byrjaði að skrifa hér í desember 2006 og nánast alfarið séð um að uppfæra síðuna síðan þá með smá hjálp frá Guðmundi formanni. En það liggur geysilega mikil vinna á bakvið svona síðu og nú er ég orðinn fullsaddur á þessu og vonandi mun einhver gallharður stuðningsmaður gefa sig fram og taka að sér síðuna. Þangað til það gerist mun formaðurinn sjá um að uppfæra síðuna.

En ég hef haft gaman af þessu engu að síður og vonandi að stuðningsmenn Newcastle hér á landi sem og annarstaðar hafi haft gaman af mínum skrifum.

 

TOON kveðjur

Friðrik Bergmanns

 

3.Jan

Dregið í fjórðu umferð FA bikarsins

Newcastle mætir WBA á The Hawthorns 23 eða 24 janúar í fjórðu umferð FA bikarsins nái þeir að slá út Plymouth.  Liðin eiga að mætast í deildinni þann 18 janúar næstkomandi þannig að þau mætast tvisvar í sömu vikunni.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli í deildinni í byrjun tímabilsins á heimvelli WBA.

(FB)

 

2.Jan

0-0 jafntefli og liðin mætast á ný

Plymouth og Newcastle gerðu 0-0 jafntefli í þrðju umferð FA bikarsins í dag á Home Park heimavelli Plymouth og þurfa liðin því að mætast á aftur og núna á St James´ Park. Chris Hughton gerði nokkrar breytingar á liðinu og gaf Tim Krul, Tamas Kadar og Nile Ranger tækifæri í byrjunarliðinu. Kevin Nolan, Jose Enrique, Steven Taylor, Jonas Gutierrez og Steve Harper fengu að smá hvíld í dag.

Newcastle var nokkuð sterkari aðilinn í dag og fengu Ameobi, Pancrate, Coloccini og Guthrie ágæt færi en nýttu þau ekki. Nicky Butt fékk svo besta færið í seinni hálfleik og var nálægt því að tryggja Newcastle áfram í fjórðu umferðina en markvörður Plymouth varði skot hans í slánna.

Lið Newcastle í dag: Krul, R Taylor, Coloccini, Kadar, Simpson, Guthrie, Butt, Smith (Jonas 71), Pancrate (Lovenkrands 79), Ameobi, Ranger (Carroll 68).

Ónotaðir varamenn: Harper, Tozer, Donaldson, Enrique.

Gul spjöld: R Taylor, Ranger.

Áhorfendur: 16,451

Maður leiksins: Alan Smith.

 

Tölfræði leiksins

Ply

NUFC

Skot (á mark)

7(2)

11(6)

Brot

19

10

Horn

1

6

Rangstöður

4

1

Með bolta

47%

53%

Gul spjöld

3

2

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

7

2

(FB)

 

1.Jan

Stuttar fréttir

# Chris Hughton mun gera nokkrar breytingar á liðinu þegar Newcastle heimsækir Plymouth í FA bikarnum á morgun kl 15:00. Tim Krul, Tamas Kadar og Nile Ranger munu að öllum líkindum fá tækifæri í byrjunarliðinu.

# Portsmouth er í miklum fjárhagsvandræðum og þarf að selja leikmenn í janúar til að brúa bilið. Varnarmaðurinn Nadir Belhadj er orðaður við Newcastle og gæti því Jose Enrique fengið samkeppni um stöðu vinstri bakavarðar.

# Mattew Kilgallaon varnarmaður Sheff Utd og Jermaine Beckford sóknarmaður Leeds eru orðaðir við Newcastle. Þeir eru báðir að renna út á samningi sínum næsta sumar og er talið líklegt að Newcastle nái að fá þessa tvo til sín í janúar.

# Newcastle er sagt hafa áhuga á að fá Heiðar Helguson til sín ef þeir ná ekki að landa Jermaine Beckford frá Leeds.

# Það styttist óðum í að Joey Barton nái sér að fullu og byrji að æfa. Hann meiddist á fæti í september í leik gegn Plymouth og fór í uppskurð í byrjun október.

(FB)