Fréttir í júlí 2007

 

30.Júlí

Stuttar fréttir og slúður

# Íslendingurinn Grétar Rafn Steinsson er orðaður við Newcastle í dag og er sagt að hann muni kosta um 1,5 miljónir.

# Alan Smith leikmaður Man Utd er sagður vera hugsanlega á leið til Newcastle fyrir 6 milljónir.

# Big Sam er að skoða fyrrverandi leikmenn sinn Abdoulaye Faye sem er hjá Bolton.

# Big Sam segir að ekkert hafi breyst í máli Kireon Dyer, hann fer að öllum líkindum frá Newcastle. "Við höfum ekki fengið tilboð í hann sem við getum sætt okkur við" sagði Big Sam. Þá kom sú frétt í morgun að Dyer færi á láni í eitt tímabil.

# Sagt er að Mike Ashley nýi eigandi Newcastle vilji fá Kevin Keegan sem yfirmann fótboltamála hjá félaginu og Big Sam sé ekki sáttur við það.

# Andy Carroll er heppinn að hafa sloppið ómeiddur frá viðskiptum sínum við Buffon markmann Juventus í gær. Big Sam líkir atvikinu við þegar Harald Schumacher braut á Patrick Battiston á HM 1982. "Þetta var meira líkt árás en eitthvað sem menn eiga að sjá á fótboltavellinum" sagðir Big Sam. (Það má sjá mynd af atvikinu hér fyrir neðan umfjöllun um leikinn gegn Juventus)

(FB)

29.Júlí

2-0 sigur gegn Juve

Newcastle og Juventus áttust við í dag á St James Park og endaði leikurinn 2-0 fyrir okkar mönnum. Það voru Albert Luque sem skoraði fyrra mark Newcastle(sjá mynd) á 9 mínútu úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á James Milner innann teigs. Luque þurfti svo að fara útaf vegna meiðsla á 31 mínútu og kom Andy Carroll inná í hans stað. Hann hafði ekki verið inná nema í 5 mínútur þegar hann var búin að skora sitt fyrsta mark fyrir aðallið Newcastle, Martins átti þá fast skot að marki Juve sem Buffon varði en Carroll var mættur á réttan stað og skoraði annað mark Newcastle. Í hálfleik gerði Big sam nokkrar breytingar á liðinu. Þeir Triosi, Pattison, Edgar og Dyer komu inná. Það vakti nokkra athygli að Dyer skyldi spila í dag en það er vegna þess hvað margir miðjumenn eru meiddir þessa dagana. Seinni hálfleikur var nokkuð rólegri en sá fyrri og skiptust liðin á að sækja en ekkert mark var skorað. Michael Owen og Ameobi spiluðu ekki með í dag en að sögn Big Sam ættu þeir að spila  gegn Hull á miðvikudaginn næsta. Þá ætti Mark Viduka að spila einnig með í þeim leik. Nicky Butt og Steven Taylor voru ekki með í dag vegna meiðsla sem þeir hlutu í leiknum gegn Celtic á fimmtudaginn var.

Með því að smella hér má sjá markið hja Luque í dag og hér  til að sjá markið hjá Carroll

 Lið Newcastle í dag:  Shay Given, Stephen Carr, David Rozehnal, Oba Martins, Charles N'Zogbia, Nobby Solano, James Milner, Albert Luque, Geremi, Peter Ramage, Paul Huntington
Varamenn: Kieron Dyer, Steve Harper, David Edgar, Matty Pattison, James Troisi, Andy Carroll, Tim Krul, Charlie Barnett, Alex Francis, Darren Lough

(FB)

Andy Carroll  lendir harkalega á Buffon í leiknum í dag og var nokkuð heppinn að meiðast ekki alvarlega.

 

27.Júlí

Martins verður áfram á St James´ Park

Obafemi Martins segist ekkert vera á förum frá Newcastle en það hefur verið orðrómur um að hann sé hugsanlega á leið til Arsenal. "Ég mun halda munninum mínum lokuðum, ég er ekkert á förum og ég er enn leikmaður Newcastle. Ég er mjög svo ánægður hérna þannig að ég er ekkert á förum. Ég hef trú á samkeppni, við þurfum að spila marga leiki í vetur þannig að alir þurfa að spila saman.

(FB) 

 

27.Júlí

Geremi sannur liðsmaður

Kamerúninn Geremi segir að honum sé alveg sama hvaða stöðu hann spilar á vellinum. "Það er ákvörðun stjórans hvaða stöðu ég spila á vellinum, það mikilvægasta er að  hjálpa liðinu að vinna leiki. Ég er atvinnumaður og ákvörðun mín að koma hingað er að spila og hafa gaman af fótboltanum. Svo lengi sem ég spila þá er ég ánægður, fyrir mér þá er mér alveg sama hvar ég spila" sagði Geremi í viðtali við Newcastle Chronicle í dag.

(FB) 

26.Júlí

Luque vaknaður

Newcastle og Celtic áttust við í æfingarleik í kvöld á St James Park og endaði leikurinn 4-1 fyrir okkar mönnum. Það kom mörgum á óvart að Albert Luque skyldi fá að byrja inná í kvöld og það er óhætt að segja að hann hafi nýtt tækifærið sitt vel því hann skoraði tvö mörk fyrir Newcastle í kvöld. Bæði mörkin hjá honum voru einstaklega vel afgriedd en hann "klobbaði" markmann Celtic í bæði skiptin. Martins skoraði fyrsta markið eftir góðan undirbúning frá Solano. Þá kom að þætti Luque, Milner átti frábæra rispu á vinstri kantinum og sendi svo boltann á Luque sem var einn og óvaldaður á markteig Celtic og setti boltann á milli lappana á markmanni Celtic. Seinna mark Luque kom svo rétt fyrir hlé en þá átti snillingurinn Solano snilldarsendingu á Luque og aftur setti Luque boltann á milli lappana á markmanninum(sjá mynd) og staðan orðin 3-0. Luque var svo skipt útaf í hálfleik ásamt fleirum. í seinni  hálfleik dró aðeins af Newcastle og Celtic sótti hart að marki Newcastle og minnkuðu þeir muninn á 72 mín. Það var svo James Milner sem innsiglaði sigur Newcastle með góðu skoti á 90 mín rétt fyrir utan teig og 4-1 sigur í höfn. Það sem vakti einnig athygli í kvöld að Big Sam lenti í smá vandræðum með varamenn, þegar 10 mínútur voru eftir þá meiddist Nicky Butt og Big Sam var búinn með alla útileikmenn á varamannabekknum og aðeins markmennirnir Harper og Krul á bekknum. Big Sam setti þá Harper inná og spilaði hann síðustu mínúturnar sem framherji og stóð sig bara vel. Taylor þurfti svo að fara útaf þegar um 3 mín voru eftirog kláruðu þeir leikinn einum færri. Góður sigur hjá Newcastle í kvöld en það vantar greinilega uppá breiddina í liðinu. Það vantaði líka marga menn í kvöld t.d var Kireon Dyer ekki látinn spila leikin og ýtir það enn undir þær sögur að hann sé á förum frá Newcastle. Þá má telja menn eins og Owen, Ameobi, Duff, Barton, Babayaro, og Emre sem allir eru frá vegna meiðsla.

Lðið var þannig skipað í kvöld:

Shay Given, Stephen Carr, Paul Huntington, David Rozehnal, Peter Ramage, James Milner, Geremi, Nicky Butt, Nobby Solano, Oba Martins, Albert Luque
Varamenn: Steve Harper, Tim Krul, Matty Pattison, Charles N'Zogbia, Andy Carroll, Steven Taylor, David Edgar, James Troisi.

(FB)

     Framherjinn Steve Harper í leiknum gegn Celtic

26.Júlí

Nýtt gras á St James´

Það er ekki bara ný stjórn og nýr stjóri á St James Park því að í lok maí var grasið á vellinum rifið í burt og nýtt gras sett á völlinn. Það er notuð nýjasta tækni  í gerð á grasi og er þetta einhverskonar blanda af trefjaefni og grasi að mér skilst. Þetta efni á að draga úr meiðslum hjá leikmönnum og veitir ekki af hjá Newcastle þar sem meiðsladraugurinn hefur herjað á leikmenn Newcastle undanfarin ár. 

(FB)

 

25.Júlí

Dyer að fara ?

Á heimasíðu Newcastle í dag greinir Big Sam frá því að sá möguleiki að Kireon Dyer fari frá Newcastle er vissulega fyrir höndum. Dyer hefur sagt að það sé vegna persónulegra ástæðna að hann sé óánægður á St James Park. "Við reynum að leysa þetta vandamál  ef við getum, en ef ekki þá er líklegt að hann fari. Þetta eru vonbrigði fyrir mig en kannski betra fyrir liðið til lengra tíma litið" sagði Big Sam í dag. Dyer hefur verið orðaður við Eggert og félaga í West Ham undanfarið og virðist sem nóg sé til af peningum á Upton Park. Þá hefur hann einnig verið orðaður við Tottenham og Man City.

(FB)

 

25.Júlí

Stuttar fréttir

# Ameobi, Owen og Given verða ekki með gegn Celtic en ættu að vera tilbúnir þegar  Juventus kemur í heimsókn til St James þann 29. júlí

Emre er í  Þýskalandi að hitta sérfræðing vegna meiðsla sem hafa hrjáð hann í sumar.

# Big Sam segist ekki hafa nein áform um að kaupa neinn leikmann frá Kína, en Zheng Zhi

fyrrverandi leikmaður Charlton hefur verið orðaður við Newcastle undanfarið.

# James Milner er orðinn heill af sínum meiðslum og ætti að vera  með í leiknum gegn Celtic

# Mark Viduka er kominn til Newcastle eftir að hafa verið í nokkrar vikur með landsliði sínu í Asíu en það er ólíklegt að hann verði með gegn Celtic.

# Big Sam vonast til að geta ákveðið hver verður fyrirliði liðsins í vetur núna í vikunni.

# Brede Hangeland Norski varnarmaðurinn sem leikur með Fc Kaupmannahöfn er sterklega orðaður við Newcastle. Einnig hefur Nicky Shorey vinstri bakvörður Reading verið orðaður við Newcastle.

# Craig Moore fyrrverandi leikmaður Newcastle hefur samið við Ástralska liðið Queensland Roar til tveggja ára.

 # Newcastle er sagt vera bjóða í Curtis Davies varnarmann WBA en þarf að bjóða betur en 6 milljónir punda.

(FB)

 

25.Júlí

Rétti tíminn til að hætta

Freddy Shephard segir að hans tími hafi verið upprunninn hjá Newcastle eftir að hafa verið 10 ár sem formaður og 15 ár í stjórn liðsins. Ég óska Chris Mort og Sam Allardyce alls hins besta, ég vona líka innilega að þeir nái að landa titli með Newcastle því áðdáendur Newcastle eiga það svo sannarlega skilið. Það hefur verið mikill heiður að fá að vera formaður hjá Newcastle og ég hefði ekki vilja missa af þessu, sagði  Freddy Shephard í viðtali í dag.

(FB)

 

25.Júlí

Steven Taylor mættur á æfingu

Taylor meiddist í leik með u21 árs landsliði Englendinga í sumar á Evrópumóti u21 árs landsliða gegn Hollandi. Taylor mætti til æfinga í vikunni og getur ekki beðið eftir að byrja spila á ný. Taylor segist eiga smá möguleika á að spila leikinn gegn Celtic á fimmtudaginn. Það var mikið áfall að meiðast í sumar og ég hélt að ég myndi missa af byrjun tímabilsins en sjúkraþjálfararnir hjá okkur hafa staðið sig vel og nú þarf ég að fá að spila nokkra æfingarleiki til að komast í leikform

(FB)

 

23.Júlí

 

Nýr stjórnarformaður kynntur

Newcastle tilkynnti í dag að Feddy Shephard væri hættur sem stjórnarformaður klúbbsins og Chris Mort (mynd) væri tekinn við af honum. Mort sagði á heimasíðu Newcastle að hann væri mjög ánægðu að vera orðinn formaður á svona frábærum klúbbi eins og Newcastle. Endurskoðun á klúbbnum gengur vel og þar sem nýtt tímabil nálgast hratt að þá fannst okkur þetta rétti tíminn til að gera breytingar. Ég vil þakka Freddy Shephard fyrir allt sem hann hefur gert fyrir klúbbinn á síðustu 15 árum sem hann hefur starfað hér sagði Chris Mort í dag. Nú er bara að sjá hvaða breytingar þetta hefur í för með sér.

(FB)

 

23.Júlí

Spjallborðið

Ég vil hvetja menn til að nota spjallborðiðokkar til að viðra skoðanir sínar og tak þátt í umræðum um liðið okkar, mér finnst vanta  að það taki fleiri þátt í spjallinu hjá okkur. Þannig að ég hvet menn til að skrá sig á spjallinu og taka þátt í umræðum um liðið okkar og enska boltann almennt.

(FB)

 

23.Júlí

Barton sár og svekktur

Joey Barton er mjög svo sár eftir að hafa ristarbrotnað í leiknum gegn Carlisle um helgina.

Hann mun missa af fyrstu leikjum tímabilsins með Newcastle. "Ég er gjörsamlega eyðilagður og mjög pirraður yfir þessu en því miður er þetta partur af fótboltanum, ég er líka svekktur fyrir hönd áhangenda Newcastle sem hafa tekið mér svakalega vel. Mér hlakkaði svakalega til að spila fyrsta leikinn gegn Bolton í deildinni en af því verður ekki" sagði Barton í viðtali við netmiðil í dag.

(FB)

 

23.Júlí

N´Zogbia vinstri bakvörður ?

Big Sam lét Charles N´Zogbia spila sem vinstri bakvörð í leiknum gegn Carlisle á laugardag og var stjórinn nokkuð ánægður með frammistöðu N´Zogbia um helgina. "Hann gæti hæglega orðið besti vinstri bakvörður í vetur ef hann spilar eins og hann gerði í þessum leik" sagði Big Sam eftir leikinn gegn Carlisle.

(FB)

 

22.Júlí

Joey Barton á sjúkralistann

Barton mun fara í aðgerð  á vinstri fæti á mánudag eftrir að hafa meiðst í leiknum gegn Carlisle í gær. Hann mun verða frá keppni í um sex vikur, þannig að hann mun missa af byrjun tímabilsins með Newcastle. Barton mun hafa brákað ristarbein líkt og Owen gerði stuttu eftir að hann kom til Newcastle.

(FB) 

 

 

 

21.Júlí

Solano bjargvættur Newcastle

Newcastle spilaði við Carlisle í dag á Brunton Park og uppskar aðeins jafntefli. Það var markalaust í hálfleik en á 56 mín komust heimamenn yfir, það var svo ekki fyrr en á 90 mín að Solano jafnaði leikinn fyrir Newcastle eftir góðan undirbúning frá Triosi og Carroll. Geremi spilaði sinn fyrsta leik í dag með Newcastle en hann kom inná í seinni hálfleik. Það vakti athygli að Joey Barton bar fyrirliðabandið í dag í fjarveru Shay Given. Það vantaði einnig Emre, Taylor, Duff, Ameobi, Luque og Owen í lið Newcastle í dag.

Liðið var þannig skipað í dag: Steve Harper (Tim Krul 83m), Stephen Carr (Mark Bertram 83m), David Rozehnal (Paul Huntington 62m), Joey Barton (Darren Lough 68m), Kieron Dyer (James Troisi 75m), Obafemi Martins (Kazenga LuaLua 75m), Charles N'Zogbia, Nolberto Solano, Nicky Butt (Geremi 62m), Peter Ramage (Alex Francis 83m), Andy Carroll.
Varamenn: James Milner, Fraser Forster.

(FB)

 

20.Júlí

Owen á sjúkralistann

Michael Owen meiddist á læri á æfingu  og verður frá í viku til 10 daga. Hann missir þar með af leikjunum gegn Carlisle og Celtic. Owen var að taka þátti í skotæfingu þegar hann meiddist. Big Sam sagði á heimasíðu Newcastle að Owen ætti að vera orðinn klár fyrir leikinn gegn Juventus sem verður þann 29 júlí næstkomandi.

(FB)

 

18.Júlí

Gamlar hetjur   uppfært

Búið er að bæta við myndum af gölmlum leikmönnum og er gaman að skoða þessa gömlu leikmenn Newcastle. Ég mun reyna að ná fleiri myndum og setja inn á heimasíðuna okkar. Myndin hér til hliðar er af Jim Lawrence sem er leikjahæstur leikmanna Newcastle frá upphafi og á hann 496 leiki með Newcastle á árunum 1904 - 1922.

(FB)

 

 

18.Júlí

Owen næsti fyrirliði ?

Það er enn óráðið hver verðu fyrirliði Newcastle í vetur. Scott Parker fyrirliði Newcastle fyrra var seldur til West Ham og í leiknum í gær gegn Hartlepool var Shay Given fyrirliði. En það er ekki þar með sagt að hann verði fyrirliði í vetur, Big Sam hefur sagt að honum lítist ekki á að hafa markmann sem fyrirliða. Owen sagði í viðtali í dag að hann myndi elska það að vera fyrirliði Newcastle. Owen skoraði sitt fyrsta mark fyrir Newcastle  í 19 mánuði eða síðan hann skoraði þrennu gegn West Ham 17 desember 2005 í 4-2 sigri á Upton Park. "Ég hef eiginlega ekkert verið í sumarfríi, jafnvel þegar ég var í smá fríi þá eyddi ég tímanum í þreksalnum. Ég er í betra formi en nokkru sinni fyrr á undirbúningstímabili" sagði Owen í viðtali við vefsíðuna icnewcastle.

(FB)

 

18.Júlí

Big Sam ánægður með sína menn

Þeir Joey Barton og David Rozehnal fengu hrós frá stjóranum sínum eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik með Newcastle í gær. Hann hrósaði reyndar öllu liðinu en tók fram að Barton og Rozehnal hafi komið vel út í gær. "Það eina sem ég er ekki sáttur með það er að hafa fengið mark á okkur, en nú er bara næsti leikur á laugardaginn gegn Carlisle. Sagði Big Sam í viðtali við Sky Sports.

(FB)

 

18.Júlí

Newcastle tekið af hlutabréfamarkaði

Mike Ashley eigandi Newcastle hefur nú tekið félagið af hlutabréfamarkaði í kauphöllinni í London. Ashley hefur eignast 94,5% hlut í félaginu og þar með getur hann tekið félagið af markaðnum. Þeir hluthafar sem enn eiga hlut í félaginu eru nú skyldugir að selja sinn hlut til Ashley.

(FB)

17.Júlí

Sigur í fyrsta leik hjá Big Sam

Newcastle byrjar undirbúningstímabilið vel undir stjórn Big Sam. Þeir mættu Hartlepool á  Victoria Park í kvöld og sigruðu 3-1 með mörkum frá Michael Owen og Shola Ameobi sem skoraði tvö mörk. Ameobi og Owen komu báðir inná í hálfleik. Staðan í hálfleik var 0-0, það var svo Hartlepool sem komst yfir á 49 mín. En sjö mínútum síðar jafnaði Newcastle með marki frá Ameobi og þrem mínútum seinna skoraði Owen annað mark Newcastle. Það var svo á 79 mín að Ameobi innsiglaði sigur Newcastle í kvöld með þriðja marki Newcastle. Þess má geta að fyrrverandi leikmaður Newcastle Robbie Elliott spilar með Hartlepool  var nálægt því að skora í kvöld á lokamínútum leiksins með þrumuskoti  vel fyrir utan teig en boltinn fór rétt framhjá markinu. Það voru nokkrir leikmenn sem spiluðu sinn fyrsta leik með aðalliði Newcastle í kvöld en það voru þeir David Rozehnal, Joey Barton, Kazenga Lua Lua, James Triosi, Mark Bertram, Darren Lough og Alex Francis.

Byrjunarlið Newcastle í kvöld var þannig skipað : Shay Given, Stephen Carr, Paul Huntington, Peter ramage, David Rozehnal, Nicky Butt, Joeu Barton, Kireon Dyer, Charles N´Zogbia, Andy Carroll, Obafemi Martins. 

Varamenn: Steve Harper, Nobby Solano, James Triosi, Shola Ameobi, Michael Owen, Mark Bertram, Kazenga Lua Lua, Darren Lough, Matty Pattison.

(FB)

 

17.Júlí

Fyrsti leikur Newcastle í kvöld

Newcastle leikur gegn Hartlepool í kvöld í sínum fyrsta leik á undirbúningstímabilinu fyrir veturinn. Það  eru nokkrir leikmenn sem verða ekki með í kvöld og má þar nefna menn eins og Viduka sem er að spila með landsliði sínu, Geremi og Luque verða ekki með þar sem þeir fóru ekki í æfingaferðina til Austurríkis um daginn. Milner, Taylor, Emre og Duff verða einnig ekki með.

(FB)

 

17.Júlí

Nýju leikmennirnir komnir með númer

Þeir Mark Viduka, Geremi, David Rozehnal og Joey Barton hafa fengið úthlutað númer hjá Newcastle. Viduka fær númer 36, Geremi númer 20, Rozehnal fær númer 4 og Barton fær númer 7. Solano fær númer 15 þar sem Rozehnal fékk gamla númerið hans. Luque fékk númer 19 þar sem Geremi fékk gamla númerið hans.

(FB) 

 

13.Júlí

Michael Chopra til Sunderland

Erkifjendurnir í Sunderland gengu í dag frá kaupum á fyrrverandi leikmanni Newcastle Michael Chopra fyrir 5 milljónir punda. Newcastle seldi Chopra til Cardiff fyrir um ári síðan á hálfa nilljón punda þannig að hann hefur hækkað ansi mikið í verði enda stóð Chopra sig mjög vel með Cardiff í vetur. Chopra náði aldrei að festa sig í sessi með Newcastle en þess má til gamans geta að eina úrvalsdeildarmark hans er einmitt gegn Sunderland í 4-1 sigri Newcastle í Apríl 2006.

(FB) 

 

13.Júlí

James Milner endurnýjar samning sinn

James Milner hefur endurnýjað samning sinn við Newcastle og gerði hann fjögurra ára samning. Milner átti sitt besta tímabil með Newcastle á síðasta tímabili og hefur hann verið fastamaður í 21 árs landsliði Englendinga. Í samtali við heimasíðu Newcastle sagði Milner að það væru spennandi tímar framundan hjá Newcastle og vill hann taka þátt í því.

(FB)

 

11.Júlí

Ný leikmannaskrá

Búið er að uppfæra leikmannaskrá Newcastle til dagsins í dag

og er hún undir tenglinum Leikmannaskrá NUFC

 

10.Júlí

Sá fimmti á leiðinni ?

Varnarmaður Marseille Habib Beye er sagður vera í samningaviðræðum við Big Sam og yrði hann þá fimmti leikmaðurinn sem kæmi til Newcastle í sumar.Habib þessi er landsliðsmaður Senegal og fyrirliði Marseille.  Það er mikið rætt um að Gabriel Heinze varnarmaður Man Utd sér á leiðinni til Newcastle  í netmiðlum en ég tel ólíklegt að það gangi eftir. Svo hefur einnig verið mikið skrifað um þrjá leikmenn Barcelona sem sagðir eru vera á leið til St James Park en það eru Edmilson, Deco og  Eiður Smári. Það gæti verið nokkuð spennandi að fá þessa leikmenn til Newcastle en maður tekur öllum svona fréttum með fyrirvara. Þessa dagana er lið Newcastle í Austurríki í æfingabúðum og sagt er að Big Sam hafi skroppið heim til Englands til að ganga frá kaupum á leikmanni. Fyrsti leikur Newcastle á undirbúningstímabilinu er á þriðjudag í næstu viku gegn Hartlepool á þeirra heimavelli og vonandi verður búið að bæta við leikmannahópinn fyrir þann leik. Obafemi Martins er mikið orðaður við Arsenal í netmiðlum undanfarið og þessi klásúla í samningi hans um að hann megi fara ef 13 milljón punda tilboð berist í hann virðist hafa freistað Arsenal en við skulum vona að Martins verði um kjurt á St James Park

(FB)

 

9.Júlí

Leiktímabilið 2007-2008

Búið er að setja inn leiki Newcastle á næsta leiktímabili undir tenglinum Leiktímabilið 2007-2008

(FB)

 

9.Júlí

Tveir nýir leikmenn til Newcastle

Á meðan ég var í sumarfríi þá gerði Big Sam tvenn kaup.Rétt fyrir mánaðarmót keypti Big Sam Tékkenska varnarmanninn David Rozehnal (27ára) frá PSG á 2,9 milljónir punda og gerði hann fjögurra ára samning við Newcastle. Þann 3 júlí gerði Kamerúninn Geremi (28 ára) þriggja ára samning við Newcastle en hann kom á frjálsri sölu frá Chelsea. Geremi getur spilað sem hægri bakvörður og einnig á miðjunni.

(FB)