Fréttir í júlí 2006

25.07. 2006

Leikur sinn fyrsta leik !

Damien Duff leikur sinn fyrsta leik fyrir Newcastle á laugardaginn 29.júlí á St. James Park. Þá mun fara fram vináttuleikur á milli Newcastle og PSV Eindhoven. Stuðnings menn hafa sent Duff bréf í hundraða tali og óskað honum velfarnaðar með Newcastle og velkominn í hópinn.

En eins og allir vita keypti Newcastle Duff fyrir aðeins 5 m pund, en í bréfi sem við fengum í byrjun var 10 m pund sögð fyrst. Þarna munar ekki nema 5 miljónum ( hvað er það á milli vina ). Það verður spennandi að fylgjast með Duff sem og hvað fer að gerast með önnur kaup hjá Newcastle ??    GRL

 

22.07 2006

Glæsilegur sigur Newcastle komu sáu og sigrðuðu með glæsibrag gott lið Lilleström í Osló.Endaði leikurinn 0-3 samanlagt Nufc 4 - Lille 1.Shola Ameobi fór á kostum og skoraði á 29 og 36 mínútu. Emre bætti svo þriðja markinu við. Engin spurning - frábær liðsheild og eitur beitt framlína með Ameobi í banastuði.  GRL

 

20.07. 2006 kl.21.56

Damien Duff er kominn til Newcastle !!!

Náðst hefur samkomulag upp á 10 miljónir punda fyrir Damien Duff.Þessar fréttir bárust okkur fyrir nokkrum mínútum. Við bjóðum þennan frábæra leikmann velkominn í raðir Newcastle. Nú á hann bara eftir að fara í gegnum læknisskoðun.     GRL

 

20.07. 2006

Damien Duff til Newcastle !

Efstur á lista um þessar mundir hjá Roeder er Damien Duff. Allar líkur eru á að hann gangi í raðir Newcastle næstu daga. Samkv. fréttum hefur Moranio gefið grænt ljós á þennan magnaða Íra, eftir að ljóst er að Wright Philips fæst ekki að láni. Formlegar viðræður eiga að fara fram eftir helgina, en um þessar mundir eru allir helstu Newcastle stjórnendur í Osló að undirbúa leikinn sem fram fer á laugardaginn.    GRL

 

 

 

20.07. 2006

ROEDER RAUÐUR AF ÁHYGGJUM !

Eftir að Lillestrom vann  Lyn Oslo 2-1 í norsku bikarkeppninni í gærkvöldi hefur fiðringur farið um þjálfarann. Hann hefur brínt fyrir mönnum að leikurinn á laugardag sé gríðalega mikilvægur og ekkert annað en sigur og aftur sigur komi til greina.

Liðið gisti nú á glæsihóteli rétt utan við Osló með útsýni yfir golfvöll.    GRL

 

 

19.07. 2006

Millner í fyrsta sinn til Evrópu !

Samkvæmt fréttum er Millner að fara í sína fyrstu ferð til Evrópu þegar hann fer til Noregs um helgina. Að vísu ætlar hann að fara fyrr en félagarnir svona til að njóta og anda að sér norsku lofti fyrir leikinn við Lillerstrom. Við segjum bara góða ferð við þennan mikla Newcastle kappa og vonandi á hann eftir að gera það gott í Noregi.     GRL

18.07 2006

Newcastle hefur gefið upp

á bátinn að fá Tottenham leikmannin Jermain Defoe í sínar raðir. Einnig hefur Newcastle dregið sig til hlés gagnvart Dirk Kuyt eftir að Liverpool hefur boðið um £10miljónir í hann. Mjög miklar líkur á að Hollendingurinn leiki því með Liverpool næsta leiktímabil.

" Ljóst er að Newcastle ( með Graeme Souness í fararbroddi ) gerðu mikil mistök og borguðu allt of hátt verð fyrir Jean Alain Boumsong, Albert Luque og Amady Faye, sem hefur valdið þessum vandræðagangi í leikmannakaupum klúbbsins ", segir Alan Oliver.    GRL

 

18.07 2006

Craig Moore

hefur hafið æfingar með Newcastle á ný og verður líklega með í leiknum á laugardaginn gegn norðmönnum. Craig er nýkomin til Newcastle aftur eftir heimsmeistara keppnina og smá frí í heimalandinu Ástralíu. Craig er fæddur 1975 og kom til Newcastle 2005. Hann hefur leikið m.a fyrir Rangers 93-98, Crystal Palace 98-99 ,Borussia Monchengladbach 05 og nú Newcastle UTD.    GRL

 

 

18.07 2006

Solano hress með Luque

Solano hefur látið það haft eftir sér að honum finnist Luque frábær leikmaður og eigi eftir að skora fullt af mörkum fyrir NUFC.  " Við fáum ekki Alan Shearer aftur til að skora mörkin, svo það er frábært að hafa fengið Luque " segir Solano.   GRL

 

17.07. 2006

Wright Philips frá Chelsea að láni !!

Newcastle gerði ráð fyrir að geta fengið Wright Philips að láni frá Chelsea. En eftir að ákveðið var að selja Damien Duff til Spurs fyrir £10m segir Moranio að það geti verið erfitt fyrir Chelsea að missa tvo kantmenn frá félaginu.

Þessa dagana forðast þeir Freddy Shepherd og Glenn Roeder að nefna nokkur nöfn sem koma til greina sem nýjir leikmenn fyrir Newcastle.    GRL

 

 

16.07. 2006

Scott Parker nýr fyrirliði !

Samkvæmt fréttum er sagt frá því að Scott Parker taki við af Alan sem fyrirliði Newcastle og Given verði númer tvö. Scott sem er 25 ára þakkar fyrir þetta mikla traust sem honum er sýnt. " það er ekkert auðvelt að taka við af Alan" segir Scott og vonast til að geta staðið undir traustinu.   GRL

 

 

 

16.07 2006

Newcastle United 1, Lillestrom 1

Það var ekki bjart yfir "Betlehem" þegar Newcastle náði jafntefli á móti Lillestrom. Albert Luque náð að jafna á 50 mínútu. Heimamenn þjörmuðu þétt að andstæðingunum síðustu mínúturnar. Blöðin í Newcastle eru að vonum ekki par ánægð með þennan árangur okkar manna, en standa þó þétt að baki heimamanna.

" Við höfum þó allavega fengið eitthvað fyrir þessar £9.5 millionir sem greiddar voru fyrir Luque sem bjargaði Newcastle frá skelfilegri martröð

Leikurinn núna: Newcastle - Lillestrom

21. mínúta Lillestom kems 1-0 yfir.

50. mínúta jafnar Newcastle með marki Albert Luque. 1-1

90 mínútur liðnar og leikurinn endaði 1-1

Næti leikur fer fram í Osló Noregi - í næstu viku.    GRL

15.07. 2006

James Milner komin aftur til Newcastle United og leikur með í InterToto Cup gegn Lillestrom á St James' Park . Milner verður fagnað af stuðningsmönnum Newcastle eftir að hafa verið í láni síðustu 12 mánuði hjá Aston Villa. Milner sem er aðein 20 ára er til í slagin hjá Roeder og segist " leika hvaða hlutverk sem þjálfarinn ætli honum hverju sinni ".

Í kvöld fer fram leikur Newcastle og Lillestrom.   GRL

05.07 2006

Fyrsti aðstoðaþjálfari ráðinn.

Newcastle United bossinn Glenn Roeder hefur tilkynnt að aðal aðstöðarþjálfarinn hans Terry Gennoe, sem snýr aftur til síns heima á  St James' Park.

Hann mun sjá um að þjálfa sérstaklega markverðina og segist hlakka til að koma aftur til Newcastle. En Terry vann m.a með Kenny Dalglish og Ruud Gullit á milli 1997 og 1999. Terry hrósar báðum markvörðum Newcastle í hástert og segir Given vera heimsklassa markmann. St James' Park er enn stærri  en þegar ég var hér síðast og er magnaður leikvangur og klúbburinn frábær í alla staði.  GRL

 

05.07 2006

Tvær æfingar á dag..

Roeder hefur sett á tvær æfingar á dag og segist engan séns taka vegna keppninar framundan. Newcastle gerir fastlega ráð fyrir að mæta Norðmönnum eftir 4-1 tap Keflvíkinga úti í Noregi. Fyrsti leikurinn verður á St. James Park 15. júlí.

Roeder var á leiknum í Noregi og segir Norðmennina hafa átt sigurinn fyllilega skilið gegn Íslendingunum. Hann segir einnig að líklega verði þeirJean-Alain Boumsong og Craig Moore ekki með liðinu. Roder áréttar að hann líti mjög alvarlega á Intertoto Cup keppnina.  GRL