Fréttir í júlí 2008

 

31.Júlí

FA kærir Barton.

Yfirlýsing frá Newcastle

Á heimasíðu Newcastle er staðfest að enska knattspyrnusambandið hefur kært Joey Barton fyrir atvikið gegn Ousmane Dabo, þegar hann var leikmaður Man City í maí 2007. Newcastle hefur farið fram á skýringar á því afhverju þessi ákvörðun er tekin núna, 15 mánuðum eftir að atvikið átti sér stað. Barton mun fara fram á að koma sinni skoðun á framfæri við knattspyrnusambandið. 

(FB) 

30.Júlí

Sebastien Bassong semur við Newcastle

Newcastle hefur keypt franska varnarmanninn Sabastien Bassong (22 ára) frá Metz. Bassong hefur samþykkt samning og staðist læknisskoðun. Frá þessu var greint á heimasíðu Newcastle í gær. Hann fór því með Newcastle til Spánar að taka þátt í æfingamótinu á Mallorca. Bassong hefur verið til reynslu undanfarna daga og hefur greinilega náð að heilla Keegan og hans þjálfarteymi. Sebastien Bassong er fæddur í París þann 9 júlí 1986 en byrjaði sinn fótboltaferil hjá Metz. Þar spilaði hann 79 leiki á árunum 2005 til 2008 og skoraði eitt mark. Hann hefur einnig spilað fyrir U 21 landslið frakka. Bassong er örfættur og getur spilað sem miðvörður eða vinstri bakvörður. Þar með hafa þrír leikmenn verið keyptir til Newcastle í sumar. Danny Guthrie, Jonas Gutierrez og svo Sebastien Bassong.

Keegan segir að Gutierrez muni spila sinn fyrsta leik fyrir Newcastle gegn Hertha Berlin en hann mun svo ekki spila gegn fyrrum félögum sínum í Real Mallorca. Newcastle liðið flaug til Spánar í gær og spilar svo á morgun gegn þýska liðinu Hertha Berlin.

Hópurinn sem fór til Spánar er eftirfarandi:

Shay Given, Steve Harper, Tim Krul, Fraser Forster, Jose Enrique, Claudio Cacapa, Danny Guthrie, Oba Martins, Damien Duff, Charles N'Zogbia, James Milner, Alan Smith, Jonas Gutierrez, Geremi, Habib Beye, Nicky Butt, Shola Ameobi, Steven Taylor, David Edgar, Ben Tozer, Sebastien Bassong, Frank Wiafe Danquah, Ryan Donaldson, Mark Doninger, Jonny Godsmark.

Þeir Michael Owen, Joey Barton og Andy Carroll eru ekki á meðal þeirra leikmanna sem taka þátt í þessu æfingamóti og eru heima í Newcastle að koma sér í form.

(FB)

27.Júlí

Slúðrið

# Newcastle er tilbúið að greiða 7 milljónir punda fyrir Julio Baptista (26 ára) leikmann Real Madrid en spænska liðið vill fá um 12 milljónir.

# Keegan vill fá tvo Argentínumenn í viðbót til Newcastle. Fabo Coloccini hjá Deportivo La Coruna og Nicolas Burdisso hjá Inter Milan sem eru báðir varnarmenn.

# Steve Warnock varnarmaður hjá Blackburn er einnig líklegur til að koma til St James´ Park en Newcastle þarf að hækka tilboð sitt í hann.

# Joey Barton losnar úr fangelsi í næstu viku og Keegan ætlar að gefa honum annað tækifæri til að sanna sig.

# Philppe Senderos er undir smásjánni hjá Keegan og er hann sagður kosta um 4 milljónir.

# Svisslendingurinn Gokhan Ilner er sagður vera á leið til Newcastle eða Arsenal. Þessi miðjumaður spilar með Udinese á Ítalíu og er sagður kosta um 6 milljónir.

# Man Utd, Barcelona, AC Milan, Man City og Newcastle eru öll sogð vera á eftir Dimitar Berbatov sóknarmanni Tottenham.

(FB)

 

27.Júlí

Keegan sannfærður um að fá fleiri leikmenn

"Vonandi verðum komnir með einn eða tvo nýja leikmenn í næstu 2 vikum.

Okkur vantar í leikmenn í stöðu vinstri og hægri bakvarðar, það er forgangsatriði í mínum huga. Við höfum aðeins einn í hvorri stöðu. Við erum að skoða tvo til þrjá leikmenn þessa stundina, en við erum orðaðir við svo marga leikmenn þessa dagana að það er ótrúlegt". Sagði Keegan um leikmannmálin. Sebastian Bassong hefur verið til reynslu hjá Newcastle undanfarið og Keegan var nokkuð sáttur við frammistöðu hans í gær. "Hann er enginn krakki lengur, hann á um 70 leiki að baki í frönsku deildinni og hefur einnig spilað með u21 landsliði frakka. Við höfum haft hann í rúma viku og höfum fylgst með honum á æfingum og við vildum sjá hann spila heilan leik. Miðað við hvað hann hefur verið stutt hjá okkur þá fannst mér hann standa sig vel í gær". sagði stjórinn að lokum.

(FB)

26.Júlí

1-0 tap gegn Doncaster

Kevin Keegan mætti með Newcastle í heimabæinn sinn Doncaster og sótti ekki gull í greipar. Newcastle tapaði 1-0 fyrir Championship liðinu og kom sigurmarkið í lok leiksins eftir mistök frá Jose Enrique.

Sebastian Bassong lék í dag sinn fyrsta leik með Newcastle en hann er í reynslu hjá Newcastle og þótti hann standa sig nokkuð vel í dag. Danny Guthrie og Charles N´Zogbia þóttu samt standa sig best í dag. Ameobi fór illa með nokkur færi og hefði hann átt að vera búinn að koma Newcastle yfir fyrr í leiknum. Tim Krul kom svo inná fyrir Steve Harper en þetta var fyrsti leikur hans með aðalliði Newcastle frá því hann spilaði gegn Palermo í Uefa bikarnum þann 

2 nóvember 2006. Newcastle lék án Jonas Gutierrez sem er ekki enn komin með leikheimild. Michael Owen, Obafemi Martins, Habib Beye, James Milner, Joey Barton, Shay Given, Abdulaye Faye, Nicky Butt, Andy Carroll og Mark Viduka léku einnig ekki með.

Þess má svo geta að Tomi Ameobi kom inná í hálfleik  fyrir Doncaster. En hann er einmitt yngri bróðir Shola Ameobi

Lið Newcastle í dag:

 Harper (Krul 57), Taylor, Bassong, Cacapa (Edgar 64), Enrique, Geremi (Tozer 78), Guthrie, N’Zogbia, Duff, Ameobi, Smith.

Varamenn: Morris, Tozer, Danquah, Doninger ,Donaldson, Godsmark.

(FB)

24.Júlí

Owen fyriliði áfram

Kevin keegan hefur sagt að Owen muni halda fyrirliðabandinu næsta tímabil sama hvaða leikmaður kemur til með að koma til Newcastle.  ,,Hann er frábær leiðtogi og sýnir fordæmi og það er góður leiðtogi. Hann er ekki hræddur við að segja sína skoðun eða segja hvernig honum líður."  Hann hefur  hrifið alla með sér, er frábær atvinnumaður og æfir á fullu alla daga". Sagði Keegan. Owen er mættur til æfinga aftur eftir að hafa fengið hettusótt undir lok síðasta tímabils og missti þar með af æfingaferð enska landsliðsins til Karabíska hafsins í júní. "Þetta hafði svolítil á mig, ég var nokkuð veikur og mátti ekki gera neitt í fjórar vikur. Og í stað þess að fara beint í æfingarnar með restinni af hópnum þegar ég kom aftur til Newcastle þá vildi læknir liðsins að ég byrjaði hægt og rólega. Þess vegna var ég ekki með gegn Hartlepool um síðustu helgi og verð sennilega ekki með gegn Doncaster um næstu helgi. En kannski verð ég með í leikjunum á Spáni og ég verð örugglega með í fyrsta heimaleiknum gegn PSV".  Sagði Owen að lokum.

Þess má svo geta að Emre hefur loksins gengið til liðs við Fenerbache.

(FB)

21.Júlí

Guthrie ánægður með viðtöku Newcastle aðdáenda

Danny Guthrie (21 árs) sem spilaði sinn fyrsta leik fyrir Newcastle er geysilega ánægður með móttökuna sem hann fékk frá aðdáendum Newcastle.

"Aðdáendurnir voru ótrúlegir, að fá svona móttöku í æfingaleik er sérstakt. Maður fær ekki svona hjá hvaða klúbbi sem er. Að spila á St James´ Park þegar hann er fullur er eitthvað sem mig hlakkar mikið til. Að spila fyrir framan Liverpool aðdáendur er svipað en völlurinn hjá Newcastle er stærri, svo að ég reikna með þeir verði háværari og ég get ekki beðið eftir að spila þar" sagði Danny Guthrie að lokum.

(FB)

 

21.Júlí

Keegan reiknar með að N´Zogbia verði áfram hjá Newcastle

Kevin Keegan er sannfærður um að Charles N´Zogbia verði áfram hjá Newcastle en hann hefur verið orðaður við Tottenham og Arsenal frá lok síðasta tímabils. "Ég spilaði ekki mikið undir lok síðasta tímabils svo að ég fór að velta því fyrir mér að spila annars staðar. Framtíð mín mun skýrast þegar ég ræði við stjórann" sagði Zog. En Keegan er hinsvegar sannfærður um að hann verði áfram og hrósar honum fyrir hvað hann hefur lagt mikið á sig á undirbúningstímabilinu. "Það er mikil upplyfting fyrir mig því ég var ekki viss um hvernig hann kæmi til baka eftir sumarið. En hann hefur verið frábær. Hann hefur lagt mikið á sig og er okkur mjög mikilvægur, vegna þess að hann getur spilað þrjár stöður á vellinum. Ég hef ekki talað við hann. Ég spyr ekki leikmenn hvort þeir vilji vera áfram. Þeir eru með samning. Hans viðhorf segir mér að hann ætli að vera áfram hjá okkur". sagði Keegan.

N´Zogbia kom til Newcastle árið 2004 og er að nálgast 100 leiki í byrjunarliðinu. Hann spilaði í leiknum gegn Hartlepool um helgina og er greinilega í framtíðarplaninu hjá Keegan.

(FB)

 

20.Júlí

Mörkin úr leiknum í gær

Damien Duff sýndi í gær að hann ætlar sér að mæta til leiks í toppformi og gerði kappinn þrennu gegn Hartlepool. Keegan sagði í viðtali eftir leik að Duff væri í fyrsta sinn í þrjú ár að taka þátt í undirbúningstímabili og það skiptir miklu máli fyrir komandi tímabil.

Danny Guthrie skoraði mark í sínum fyrsta leik með Newcastle og lagði upp eitt mark fyrir Duff. Jonas Gutirrez var í áhorfendastúkunni en Michael Owen og Habib Beye áttu við smávægileg meiðsli að stríða og léku því ekki með. Mörkin úr leinum má sjá hér 

(FB)

19.Júlí

Damien Duff með þrennu í fyrsta æfingaleiknum

Newcastle spilaði gegn Hartlepool í dag og er það fyrsti æfingaleikurinn á þessu tímabili. Leikurinn fór fram á Victoria Park heimavelli Hartlepool og voru það heimamenn sem komust yfir á  16 mínútu. En Newcastle svaraði með fjórum mörkum og voru það Damien Duff og Danny Guthrie sem skoruðu mörk Newcastle. Duff skoraði þrennu og Guthrie eitt. Lið Newcastle var þannig skipað :

Shay Given, David Edgar, Jose Enrique, Steven Taylor, Claudio Cacapa, Damien Duff, James Milner, Nicky Butt (Fyrirliði), Charles N’Zogbia, Oba Martins, Alan Smith
Varamenn: Fraser Forster, Danny Guthrie, Shola Ameobi, Frank Wiafe Danquah, BenTozer, Callum Morris, Mark Doninger, Jonny Godsmark, Darren Lough.

Næstu æfingaleikir eru sem hér segir:

26 júlí Doncaster - Newcastle

1 Ágúst Hertha Berlin - Newcastle ( mót á Spáni)

3 Ágúst Real Mallorca - Newcastle  ( mót á Spáni)

6 Ágúst Newcastle - PSV

9 Ágúst Newcastle - Valencia

(FB)

 

19.Júlí

Tveir leikmenn komnir til Newcastle

Jæja það gerðist þó allavega eitthvað á meðan ég var í fríi. Tveir leikmenn voru keyptir til Newcastle. Argentínumaðurinn Jonas Gutierrez (mynd) var keyptur frá Real Mallorca. Gutierrez sem er 25 ára spilar á hægri kantinum og fær því James Milner verðugan keppinaut um stöðu hægri kantmanns á næsta tímabili. Kaupverð er ekki uppgefið en það er talið vera á bilinu 7 - 10 milljónir punda. Kevin keegan nældi svo í einn ungan og efnilegan miljumann frá Liverpool, Danny Guthrie að nafni. Guthrie er 21 árs gamall og var í láni hjá Bolton á síðasta tímabili. Hann er sagður hafa kostað um 2,5 milljónir punda.

Keegan hefur sagt að hann sé mjög ánægður með þessa tvo og það standi til að bæta við leikmannahópinn enn frekar.

(FB)

1.Júlí

Sumarfrí hjá vefstjóra

Vefstjóri hefur ákveðið að taka sér smá sumarfrí næstu tvær til þrjár vikurnar. Það er óhætt að segja að litið hafi verið að gerast í leikmannmálum Newcastle það sem af er sumri. Það vantar ekki að leikmenn séu orðaðir við liðið en ekkert gerist. Það bar þó helst til tíðinda í dag að Joey Barton komst einn einu sinni á forsíður fjölmiðla fyrir allt annað en fótboltahæfleika og er löngu orðið tímabært að losa sig við þetta illkynja æxli. Ég vil benda öllum á að nota spjallborðið til að viðra skoðanir sínar og endilega koma með fréttir þangað ef eitthvað gerist. Þar er einmitt góð grein eftir einn spjallverjann (GunnarNUFC) þar sem hann lýsir furðu sinni á framtaksleysi stjórnarmanna Newcastle. Greinina má lesa hér . 

Ég ætla að skella mér til Akureyrar og horfa á strákana mína keppa fyrir hönd Keflavíkur á N1 mótinu og hver veit nema þeir verði komnir í svart hvítan búning áður en langt um líður. Þá er ég EKKI að meina KR ;)

En vonandi verður nóg fyrir mig að skrifa um þegar ég kem úr fríi. Allir þessir kallar komnir til okkar Arshavin, Turan, Gomis, Crouch, Shaun Wright Phillips og svo mætti lengi telja. Við skulum nú vona að Mike Ashley fari nú að opna veskið sitt og styrkja leikmannahópinn fyrir næsta tímabil, sem er mikil þörf á.

(FB)