|

Fréttir í Júní 2006

Verða þrír Hollendingar í Newcastle ???
Það nýjasta í ævintýrinu um kaup og sölur til og frá Newcastle er að hugsanlega eru Nistelrooy og Dirk Kuyt inni í myndinni á kaupum til félagsins - og þá sérstaklega Kuyt. Sá síðarnefndi var oftlega nefndur sem arftaki Nistelroy hjá Man.Utd. Nú eru litlar líkur á að Man.Utd hafi áhuga, og því eru meiri líkur á að Newcastle nái í kappan frá Feyenoord. Talað er um litlar £14 miljónir fyrir þennan 25 ára kappa.
Aðrar fréttir eru að mjög miklar líkur eru á að Marseille geri tilboð í kaup á Jean-Alain Boumsong og að hann fari örugglega frá Newcastle fyrir næstu leiktíð. GRL
27.06 2006
Verður fyrstur til að skrifa undir !
Samkvæmt fréttum frá Newcastle mun Jimmy Floyd Hasselbaink verða fyrstur til að skrifa undir samning hjá Newcastle. Einnig er sagt að til klúbbsins sé Darren Bent að koma til að skrifa undir. GRL
Nokkrar staðreindir um Hasselbaink.
Fæddur: 27 mars 1972 Fæðingastaður: Paramaribo (Surinam) Hæð: 180 cm Þyngd: 85 kg Klúbbur: Middlesbrough Leikið áður með: Telstar (Holland), AZ Alkmaar (Holland), Neerlandia (Holland), Campomaiorense (Portugal), Boavista FC (Portugal), Leeds United (England), Atletico Madrid (Spain), Chelsea (England).
25.06 2006
Njósnarar á ferð !
Alan Shearer og Shepherd munu í kvöld vera á leik Hollendinga og Portugala til þess að fylgjast með Dirk Kuyt.
Nú eru þessi nöfn helst inni í myndinni; Jermain Defoe Tottenham, Henri Camara Wigan, og Jimmy-Floyd Hasselbaink Middlesbrough... GRL
25.06 2006
Næsti landsliðsþjálfari ??
Þessa dagana eru enskir fjölmiðlar fullir af vangaveltum um hvort Shearer taki við landsliði englendinga. " Þeir geta hringt í mig " segir kóngurinn sem lítið gefur færi á sér. GRL
ÍBK gerði jafntefli:
Keflvíkingar gerðu jafntefli og eru þar með komnir áfram geng Lillestrom Noregi, og einu skrefi nær að leika á móti Newcastle... fari svo að ÍBK leggi Norðmennina !
22.06. 2006
Fer Hasselbaink til Newcastle?
Enska knattspyrnufélagið Newcastle hefur hug á að fá hinn reynda sóknarmann Jimmy Floyd Hasselbaink frá grannliðinu Middlesbrough í sínar raðir, í kjölfar þess að Michael Owen verður frá keppni til áramóta eftir að hann sleit krossband í hné.
Hasselbaink er með lausan samning og vill helst semja til tveggja ára, en forráðamenn Middlesbrough hafa verið hikandi við að bjóða 34 ára leikmanni slíkt. Skosku meistararnir Celtic hafa líka áhuga á að krækja í Hollendingin marksækna. Umboðsmaður hans staðfesti við Daily Mirror í dag að Newcastle væri komið inn í myndina.
Vegna fjarveru Owens þarf Newcastle að ná sér í tvo sóknarmenn, þar sem Alan Shearer lagði skóna á hilluna í vor. Hollenski landsliðsmiðherjinn Dirk Kuyt hefur verið sterklega orðaður við félagið undanfarnar vikur. MBL frétt
22.06. 2006

Craig Bellamy til liðs við Liverpool
Enska knattspyrnufélagið Liverpool gekk í dag frá kaupum á velska sóknarmanninum Craig Bellamy frá Blackburn Rovers fyrir 6 milljónir punda, um 800 milljónir króna. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið.
Bellamy er 26 ára og kom til Blackburn frá Newcastle síðasta sumar, en þar hafði hann lent upp á kant við Graeme Souness knattspyrnustjóra og var um skeið lánaður til Celtic í Skotlandi. Bellamy blómstraði hjá Blackburn í vetur og skoraði 15 mörk fyrir félagið. Hjá Liverpool leysir hann af hólmi Fernando Morientes sem er farinn heim til Spánar. MBL frétt
21.06 2006
Owen frá til áramóta !!
Nú er ljóst að Owen verður frá í a.m.k átta mánuði. Ljóst er að þetta er mikið áfall fyrir enska landsliðið sem og ekki síður fyrir Newcastle, sem ekki ríður feitum hesti hvað varðar framherja. Gárungar segja, að Shearer sé farinnað máta skóna aftur, eða allavega búinn að taka þá niður úr hillunni aftur. GRL
20.06. 2006
Ný félagaskrá - Greiðum félagsgjaldið.
Nú er rétti tíminn til að greiða félagsgjaldið 2.500.- kr inn á reikning klúbbsins; KT: 520303-3670
Reikningur: 1101- 05- 486996. Frá og með 19.águst kemur seðilgjald ofan á félagsgjaldið. Ca 20 dögum eftir að menn hafa greitt félagsgjaldið verður félagsskírteinið sent til viðkomandi ásamt "nafnspjald " hanns verður inni á félaskránni. Sendið okkur myndir af ykkur merktar félagsnúmerinu ykkar ásamt nafni og emaili.
17.06.2006
Yfirnjósnari Newcastle United mætir í Keflavík Yfirnjósnari Newcastle United, David Mills, hefur boðað komu sína á leik Keflavíkur og Dungannon 17. júní nk. Sigurvegari úr leikjum Keflavíkur og
Dungannon mun mæta Lilleström frá Noregi en sigurvegari úr þeirri viðureign mætir Newcastle United
Á myndinni; Guðmundur Lúðvíksson form. Newcastle á Íslandi
David Mills Njósnari Newcastle og form. stuðningsm klubbs IBK
17.06. 2006

Vonir Mick Quinns !
Mick Quinn segir að það þurfi að finna einhvern góðan til að klæðast númer 9 hjá UTD. Hann segir að aðein David Kelly, Andy Cole, Les Ferdinand og Alan Shearer hafi klæðst þessu númeri síðustu 17 ár. Og hann segir " ég gæti alveg hugsað mér að Fernando Torres klæddist þessu númeri í okkar röðum . Fyrir mig væri hann frábær fjárfesting. Annar leikmaður sem ég sé fyrir okkur er Toni, Ítalskur framherji sem skorða hefur 30 mörk fyrir Fiorentina " .
17.06. 2006
Shola Ameobi fer ekki undir hnífinn.
Í morgun um átta leitið kom fréttatilkynning um að Shola Ameobi færi ekki undir hnífinn, og tekur því þátt í Inter Toto Cup keppninni. " Mikill léttir" segir Roeder.
16.06. 2006
Shola Ameobi undir hnífinn.
Ameobi er á leið undir hnífinn eftir langvarandi meiðsli sem hrjáð hafa kappann. Það eru því miklar líkur á að hann geti ekki leikið með Newcastle í InterToto Cup. Newcastle hefur þá aðeins tvo framherja eða strigera á móti Lillestrom frá Noregi. Roeder segir að það verði erfitt fyrir Owen ef Englendingar nái langt í heimsmeistarakeppninni þar sem hún lýkur ekki fyrr en 9. júlí og Inter Toto keppnin hefjist 5 dögum seinna. " Það er því ekkert víst að einu sinni hann geti leikið fyrir okkur " segir Roeder svekktur. GRL
16.06. 2006
Stephen Carr á förum ?
Stephen Carr hefur óskað eftir því að lonsna frá félaginu. Hann hefur tjáð klúbbnum að hann vilji komast aftur til London. Það er greinilegt að mikið er í gangi hjá Newcastle fyrir næsta tímabil. En lítið hefur verið gefið út hverjir komi í staðinn. Það eru því spennandi tímar framundan hjá okkur sem fylgjumst grant með gangi mála.GRL
16.06. 2006
Chopra á förum
Þá er ljóst að Chopra leikur ekki með Newcastle á næstu leiktíð. Hann er þriðji leikmamðurinn sem tilkynnt hefur verið um að leiki ekki með Newcastle. Aðrir sem nefndir eru og eru líklega á förum eru: Jean-Alain Boumsong, Albert Luque og Nicky Butt. GRL
09.06.2006
Kaupir Newcastle Steed Malbranque ?
Háværar raddir eru um það að í seilingu hjá Newcastle séu kaup á Steed Malbranque frá Fullham þar sem Le Bowyer sé á förum til West Ham. Þrjú lið eru nú að slást um þennan 26 ára kappa.GRL
09.06.2006 SAGAN ENDALAUSA
Lee Bowyer á leið til West Ham
Jæja. þá er það ljóst að Le Bowyer leikur ekki með Newcastle . Hann fer til West Ham fyrir 500.000.- £. Þessi umdeildi leikmaður og hörkutól hefur verið lengi í eldlínunni og á milli tannanna hjá pressunni. Fyrir stuttu sögðum við frá því að líkur væru á að hann yrði áfram með Newcastle. En fljótt skipast veður í lofti. Allar þessar hrókeringar hanga á sömu spítunni. Roeder er á höttunum eftir leikmönnum og eru margir nefndir til sögunnar. En greinilegt er að um einhverjar hrókeringar verða á milli liða og manna, en örugglega verða einhverjir keyptir beint. GRL
03.06.2006
Hinn 22 ára Chopra
verður með Newcastle allavega næstu 12 mánuði. Glenn Roeder hefur boðið honum 12 mánaða samning sem hann hefur þegið. Eiður Guðjónsen virðis alveg út úr myndinni samkvæmt fréttum frá Newcastle. Um tíma var hann alvarlega inni myndinni hjá Roeder, en er það greinilega ekki lengur samkvæmt fréttum frá klúbbnum nýlega. Leitin að nýjum mönnum heldur áfram, og heildarmyndin ætti að skýrast fljótlega eftir heimsmeistaramótið. GRL |