27.Júní
Tilkynning
Vefstjóri hefur verið í sumarfríi undanfarið og verður í fríi alla næstu viku, þess vegna má búast við að síðan verði ekki uppfærð reglulega. En ég geri mitt besta meira get ég ekki :-)
Ég hvet alla til að nota spjallborðið til að viðra skoðaninr sínar.
(FB)
27.Júní

Big Sam fær 50 milljónir punda til leikmannakaupa
Samkvæmt netmiðlum á Englandi fær Sam Allardyce stjóri Newcastle 50 milljónir punda til að styrkja leikmannahóp Newcastle og koma þeim í topp baráttu í úrvalsdeildinni. Big Sam hefur þegar fengið til sín Joey Barton (5,8 milljónir) og Mark Viduka (frjáls sala). Þá er mjög líklegt að Tékkneski varnarmaðurinn David Rozehnal sé að semja við Newcastle og er verðið á honum um 3 milljónir. Í morgun var svo Kamerúninn Geremi orðaður við Newcastle en hann er með lausan samning hjá Chelsea og leikmaður Marseille Habib Beye sem er einnig varnarmaður hefur einnig verið orðaður við Newcastle. Nicky Shorey vinstri bakvörður Reading er einnig orðaður við Newcastle.
(FB)
27.Júní

Alan O´Brien til Hibernian
Írski kantmaðurinn Alan O´Brien hefur sammþykkt að ganga til liðs við skoska liðið Hibernian þann 1 júlí á frjálsum samning. O´Brien spilaði einn leik og kom átta sinnum inná sem varamaður með aðalliði Newcastle á sínum sex árum á St James Park. Hjá Hibs hittir hann fyrrum þjálfara sinn Tommy Craig."Ég hef haft mjög gaman af því að vera hérna á St James Park en ég hef trú á því að það sé kominn tími á að hugsa um landsliðferilinn minn og hjá Hibs fæ ég einnig að spila meira" sagði O´Brien í viðtali á heimasíðu Newcastle.
(FB)
27.Júní

Úthreinsun á stjórn Newcastle
Fjórir meðlimir í stjórn Newcastle hafa sagt upp störfum. Douglas Hall, Allison Antonopoulos, Bruce Shephard og Tim Revill létu af störfum en Freddy Shephard heldur sínu starfi sem stjórnarformaður Newcastle. Tveir nýir stjórnarmenn eru Chris Mort og Steve Hayward.
(FB)
20.Júní

Reynt að myrða Obafemi Martins
Nígeríski framherji Newcastle Obafemi Martins slapp naumlega þegar hann ásamt félaga sínum stoppuðu á bensínstöð í Lagos í Nígeríu. Þrír grímuklæddir byssumenn hófu skothríð á bíl hans og slapp Martins ómeiddur en félagi hans fékk skot í öxlina og liggur á sjúkrahúsi í Lagos. Martins sagði í viðtali við BBC að hann hélt að hann myndi deyja. "Þessir menn vildu drepa mig og höfðu engan áhuga á að ræna okkur. Ég þakka guði fyrir að vera á lífi. Þetta var eins og í bíómynd. Ég kom hérna til að spila fyrir landsliðið mitt og eyða nokkrum tíma með fjölskyldu og vinum en ég átti alls ekki von á þessu. Ég held að fólk skilji núna afhverju margir leikmenn Nígeríu séu smeykir að koma heim frá Evrópu og spila fyrir landsliðið sitt. Martins er kominn til Ítalíu og er ekkert sérstaklega spenntur fyrir því að spila fyrir landslið Nígeríu á næstunni.
(FB)
14.Júní

Joey Barton til Newcastle
Það hefur verið langur aðdragandi að því að Jeoy Barton (24 ára) gæti gengið frá samningum við Newcastle, en í dag gekk Barton frá fimm ára samning við Newcastle. Kaupverðið er 5,8 milljónir punda. Barton er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Newcastle í sumar. Mark Viduka gekk til liðs við Newcastle fyrir viku síðan á frjálsri sölu. Tal Ben Haim samdi við rússaveldið Chelsea í dag en hann hafði verið sterklega orðaður við Newcastle undanfarna daga.
(Rikki)
12.Júní
Stuttar fréttir
# Nolberto Solano hefur gert eins árs samning við Newcastle og verður hann þá á St James Park á næsta tímabili sem verður væntanlega hans síðasta með félaginu.
# Tim Krul hefur einnig framlengt samning sinn við Newcastle en Krul gerði fjögurra ára samning.
# Einhver töf virðist vera kominn á kaup Newcastle á Joey Barton en Man City neitar að greiða Barton 300 Þúsund pund sem hann á rétt á samkvæmt samning sínum.
# Newcastle er með tilboð í tvo varnarmenn en það eru þeir Ben Haim (frjáls sala) og David Rozehnal leikmaður PSG sem er metinn á 2 - 3 milljónir punda. Big Sam hefur gefið út að hann ætli að endurnýja vörn Newcastle.
# Dagar Celestine Babayaro hjá Newcastle virðast taldir og er líklegt að hann verði látinn fara frá liðinu í sumar.
# Steven Taylor og James Milner standa í ströngu þessa dagana en þeir félagar eru að keppa með 21 árs landliði Englendinga í lokakeppni evrópumótsins.
# Big Sam óttast að missa Michael Owen og segir að hann geti lítið gert ef hann vill sjálfur fara. Owen er með klásúlu í samningi sínum að ef tilboð uppá 9 milljónir punda berst í hann þá megi hann fara.
(Rikki)
7.Júní

Mike Ashley búinn að ná yfirtöku í Newcastle
Freddy Shephard hefur samþykkt að selja 28% hlut sinn í Newcastle. Ashley borgar 37 milljónir punda fyrir hlut Shephards og á núna tæplega 70% í Newcastle en hann keypti 41,8% hlut á 55 milljónir punda af Sir John Hall fyrir stuttu síðan. Hann hefur svo sent út tilboð í þau hlutabréf sem eftir eru og er mjög líklegt að því tilboði verður tekið og þegar hann hefur eignast 75% hlut þá getur Ashley tekið Newcastle af hlutabréfamarkaði. Ashley hefur alltaf reynt að forðast sviðsljósið og er ekki mikið fyrir að koma fram í fjölmiðlum. Freddy Shephard sendi frá sér yfirlýsingu í dag og sagði hann að sem stjórnarformaður Newcastle hefur hann alltaf reynt að gera það sem þjónar félaginu best og ef rétti aðilinn kæmi fram og leiddi liðið áfram inní framtíðina þá myndi hann styðja þann aðila að fullu. Ég hef trú á því að Mike Ashley ásmat nýja stjóranum Sam Allardyce muni gera nýja og spennandi hluti fyrir Newcastle og vonandi munum við njóta þess saman sagði Freddy Shephard á heimasíðu Newcastle í dag.
(Rikki)
7.Júní

Mark Viduka til Newcastle
Fyrstu kaup Newcastle í sumar gengu í gegn í dag þegar Ástralinn Mark Viduka (31árs) samþykkti 2 ára samning. Viduka kemur á frjálsri sölu frá erkifjendunum Middlesbro. Viduka skoraði 19 mörk fyrir Middlesbro á síðasta tímabili. Í viðtali við heimasíðu Newcastle sagði Viduka að það sem hafi gert útslagið var hvað honum leist vel á Big Sam og áform hans með Newcastle liðið. Það er nokkuð ljóst að það verður hörð samkeppni um framherjastöðurnar á næsta tímabili en hann ásamt Owen, Martins og Ameobi munu berjast um stöðurnar.
(Rikki)
7.Júní
Hver verður fyriliði á næsta tímabili ?
Nú þegar Scott Parker hefur verið seldur til West Ham fyrir 7 miljónir þá kemur upp sú spurning hver verður fyrirliði Newcastle á næsta tímabili ? Parker hefur verið fyrirliði frá því að Alan Shearer hætti fyrir síðasta tímabil og þeir sem koma til greina sem fyriliðar eru Shay Given, Michael Owen, Nicky Butt og kannski Kireon Dyer. Sennilega verður það annaðhvort Owen eða Given sem koma til með að bera fyrirliðabandið á komandi tímabili.
(Rikki)
6.Júní
3 Leikmenn á leið til Newcastle ?
Samkvæmt fréttum Sky Sports er Joey Barton búinn að samþykkja 5 ára samning við Newcastle og gekkst undir læknisskoðun í gær. Barton kostar 5,5 milljónir punda. Mark Viduka og Tal Ben Haim eru mjög líklega að ganga til liðs við Newcastle báðir á frjálsum samningi en það ætti að skýrast núna í vikunni.
(Rikki)
6.Júní


Bramble og Sibierski til Wigan
Titus Bramble og Antione Sibierski eru báðir búinir að semja við Wigan en þeir kostuðu Wigan ekki krónu því þeir fóru báðir á frjálsum samningi frá Newcastle. Bramble samdi til þriggja ára en Sibierski til tveggja ára. Siberski kom til Newcastle frá Man City í ágúst í fyrra á síðasta degi félagaskiptagluggans og varð fljótlega mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum Newcastle og hann hafði áhuga á að vera áfram hjá félaginu og Newcastle bauð honum eins árs samning en Sibierski vildi fá samning til tveggja ára. Sir Bobby Robson keypti Bramble til Newcastle frá Ipswich fyrir um 5 milljónir punda í júlí 2002 og þótti hann mjög efnilegur varnarmaður en náði aldrei að stíga skrefið uppávið og verða góður varnarmaður og var oft á tíðum frekar klaufalegur í vörninni. Samningur hans við Newcastle rann út í maí og var ekki áhugi að framlengja þann samning við Bramble.
(Rikki)
6.Júní
David Rozehnal á óskalista Big Sam
þessi 26 ára gamli tékkneski varnarmaður PSG í Frakklandi hefur lýst yfir áhuga sínum á að ganga til liðs við Newcastle og Big Sam gerði sér ferð til Cradiff um síðustu helgi til að skoða kappann í landsleik Tekka og Wales. Þýska félagið Dortmund hefur einnig áhuga á að fá Rozehnal til sín en samkvæmt netmiðlum hefur hann frekar áhuga á að fara til Newcastle. Rozehnal var valinn leikmaður ársins hjá PSG og var valinní lið ársins í Frakklandi.
(Rikki)
1.Júní

Scott Parker til West Ham ?
Eggert Magnússon og félagar hafa boðið 7 milljónir punda í fyrirliða Newcastle Scott Parker og er mjög líklegt að samningar takist á milli félaganna. Þar hittir Parker fyrrum stjóra sinn Alan Curbishley en þeir voru saman hjá Charlton í nokkur ár en leiðir þeirra skildu þegar Parker var seldur til Chlesea í janúar 2004 fyrir um 10 milljónir punda. Hann fékk ekki mörg tækifæri hjá Chelsea vildi breyta til. Það var svo Graeme Souness sem keypti hann til Newcastle á 6,5 milljónir í júní 2005.
(Rikki)