|

Fréttir í júní 2009
23.Júní

Æfingaleikirnir komnir á hreint
Newcastle hefur undirbúningstímabilið þann 11 júlí næstkomandi gegn Írska liðinu Shamrock Rovers þar sem Micael O´Neill
fyrrum leikmaður Newcastle er við stjórnvölin. Næstu leikir eru Darlington þann 18 júlí, Huddersfield þann 21 júlí, Leeds þann 29 júlí og svo síðast gegn Dundee United þann 2 ágúst. Allir leikirnir eru á útivelli neme gegn Leeds sem er á St James´ Park.
(FB)
23.Júní

Nýr varabúningur kynntur
Ó MÆ GOD !!!!!!
Bara þegar maður hélt að hlutirnir gætu ekki verið verri þá var kynntur til sögunnar þessi ómyndarlegi varabúningur. Gulur og hvítur er hann og ég verð því miður að segja að þetta er langt frá því að vera flottur búningur. Ég hef lesið um viðbrögð stuðningsmanna Newcastle í ýmsum síðum og þar eru menn ansi duglegir að hrauna yfir þennan búning. En auðvitað vitum við að búningurinn skiptir ekki öllu máli heldur úrslitin á vellinum.
(FB)
17.Júní

Newcastle mætir WBA í fyrsta leik
Fyrsti leikur Newcastle í Championship deildinni verður þann 8 ágúst á The Hawthorns gegn WBA en leikjaplan næsti leiktíðar var kynnt í morgun. Newcastle á svo tvo heimaleiki í röð gegn Reading og Sheffield Wed. Sjá má alla leiki Newcaste næsta tímabil hér.
(FB)
12.Júní

Martins: "Ég elska Newcastle og vill vera hér áfram"
Oba Martins segir í viðtali við The Evening Chronicle að hann vilji vera áfram hjá Newcastle þrátt fyrir að spila í Championship deildinni. "Ég vona að ég verði ekki seldur. Ef klúbburinn ákveður að selja mig þá get ég lítið um það sagt. En mitt markmið er að vera áfram hjá Newcastle og hjálpa liðinu að komast upp næsta tímabil. Ég elska að búa hérna í Newcastle og það eru fáir staðir betri til að búa og spila. Ég veit að klúbburinn er til sölu og það er erfitt fyrir aðdáendur. En ég heyri að það gæti verið ljós í myrkrinu að lokum. Ég hef verið á Ítalíu í meðferð vegna meiðslanna sem hrjáðu mig og þar talaði ég við marga um þegar Juventus var dæmt niður um deild. Þá héldu þeir mörgum góðum leikmönnum eins og Pavel Nedved, Alessandro Del Piero og Gianluigi Buffon. Þeir hjálpuðu liðinu upp um deild, ég get huggað mig við það" sagði Martins að lokum.
(FB)
8.Júní

Newcastle til sölu fyrir 100 milljónir punda
Stjórn Newcastle hefur staðfest að félagið sé til sölu og hefur sett 100 milljón punda verðmiða á félagið eða um 20 milljarða króna.
Keith Harris stjórnarformaður fjárfestingabankans
Seymore Pierce sem sér um söluna á liðinu segir að það séu tveir til þrír aðilar sem hafa áhuga á að kaupa liðið. "Ég er sannfærður um að það komi tilboð fljótlega, fyrir júnílok væri hentugt þar sem félgsskiptaglugginn opnar um mánaðarmótin" sagði Pierce.
(FB)
4.Júní

Slúðrið undanfarna daga
# Alan Smith er orðaður við Blackburn og hittir hann þá Sam Allardyce fyrrum stjóra sinn en það var einmitt Big Sam sem keypti Smith til Newcastle á sínum tíma. Sagt er að Simth (28 ára) verði seldur á um 2,5 milljónir punda.
# Obafemi Martins er eftirsóttur af þremur úrvalsdeildafélögum og hafa Arsenal, Aston Villa og Everton verið nefnd. Hann hefur einnig verið orðaður við Ítalska liðið Fiorentina.
# Phil Brown stjóri Hull vill fá Kevin Nolan til sín. Nolan kom til Newcastle í janúar síðastliðnum.
# Hinn 24 ára gamli sóknarmaður Leeds Jermaine Beckford er orðaður við Newcastle en hann var settur á sölulista eftir að hafa neitað nýjum samning frá Leeds.
# Fyrrum ungmennaliðsmaður Newcastle Bradley Orr er orðaður við Newcastle en hann er á samningi hjá Bristol City.
# Michael Owen er laus allra mála hjá Newcastle og hefur Everton verið á höttunum eftir honum en Owen þarf að taka á sig verulega launalækkun ef hann samþykkir tilboð Everton. Sagt er að honum sé boðið 50.000 pund á viku en hann er sagður hafa verið með yfir 100.000 á viku með Newcastle.
# Danny Simpson leikmaður Man Utd er á óskalista Newcastle. Simpson er 22 ára gamall varnarmaður og hefur verið í láni hjá liðum eins og Antwerpen, Sunderland, Ipswich og Blackburn. Hann á einungis 3 leiki að baki með Man Utd. Hann er sagður kosta um 1 milljón punda.
# Peter Lovenkrands segist vilja vera áfram hjá Newcastle ef Alan Shearer verður áfram stjóri liðsins. "Ég myndi vilja vera áfram hjá Newcastle næsta tímabil. Ég veit að það ríkir mikil óvissa þessa dagana varðandi stjóra liðsins og það hefur enginn sagt neitt við mig ennþá, en ef tækifærið gæfist þá myndi ég taka það" sagði daninn knái.
(FB)
2.Júní
Nile Ranger með fjórða markið fyrir England í gær

U19 ára landslið Englands tryggði sér sæti í úrslitakeppni Evrópumóts U19 ára landsliða sem haldið verður í Úkraínu í sumar með 2-1 sigri á grönnum sínum frá Skotlandi, en leikið var á Bramall Lane heimavelli Sheffield Utd. Nile Ranger er búinn að vera funheitur með landsliðinu og í gær bætti hann fjórða markinu í safnið en hann hefur nú gert fjögur mörk í þrem fyrstu leikjum sínum með landsliðinu þar sem hann hefur byrjað inná.
"Þetta hefur verið sannkallaður draumur þessi vika. Ég er búinn að skora fjögur mörk og við erum komnir í lokakeppnina, við erum allir í skýjunum. Vonandi hef ég gert nóg til að vinna mér sæti í byrjunaliðinu í lokakeppninni og ég get ekki beðið eftir þeirri reynslu" sagði markamaskínan Nile Ranger á heimasíðu Newcastle.
(FB) |