|

Fréttir í maí 2007
28.Maí

Smá slúður
# Mike Ashley er segist stefna á að vinna úrvalsdeildina innan þriggja ára og er tilbúinn að eyða 270 milljónum punda í Newcastle næstu 3 árin.
# Sami Hyypia er orðaður við Newcastle en erkifjendurinr í Sunderland hafa einnig áhuga á hinum 33 ára Finnska landsliðsmanni.
# Alan Curbishley stjóri West Ham hefur mikinn áhuga á að fá fyrirliða Newcastle Scott Parker til sín og hyggst nota
Nigel Reo Coker sem skiptimynt.
# Leighton Baines bakvörður Wigan er undir smásjánni hjá Big Sam. Baines er metinn á 5 milljónir punda.
# Nolberto Solano vill vera eitt tímabil í viðbót hjá Newcastle
23.Maí

133 milljón punda yfirtöku tilboð í Newcastle.
Mike Ashley enskur milljónamæringur keypti í dag 41,6% hlut í Newcastle af Sir John Hall fyrrum stjórnarmanni að verðmæti 55 milljónir punda og hefur boðið öðrum hluthöfum að kaupa þeirra hlut á sama verði sem er 100 pence á hlut, heildarverðmæti tilboðsins er 133,1 milljón punda. Nú er bara spurning hvort Freddy Shephard selji sinn hlut í félaginu sem er 29,8% að verðmæti 40 milljónir punda. Mike Ashley er 25 ríkasti maður Bretlands. Félagið er frábærlega byggt upp og þar eiga John og stjórn félagsins stærstan heiður. Newcastle er með stórkostlegan bakgrunn og sögu og ástríða stuðningsmanna félagsins er víðfræg. Ég er viss um að þeir eru, eins og ég, afar spenntir fyrir því sem bíður okkar á næsta tímabili undir forystu nýs knattspyrnustjóra," sagði Ashley en Sam Allardyce tók á dögunum við sem knattspyrnustjóri Newcastle.
18.Maí

Steven Taylor valinn í landsliðið
Steve McClaren landliðsþjálfari Englendinga
hefur valið varnarmann Newcastle Steven Taylor í B landslið Englands sem mætir Albaníu þann 25 maí næstkomandi á Turf Moor heimavelli Burnley. Þar hittir hann félaga sína úr Newcastle Owen og Dyer sem einnig voru valdir í landliðshópinn. Scott Parker var einnig valinn en þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.
(Rikki)
16.Maí

Úthreinsun hafin hjá Big Sam
Newcastle hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að fimm leikmenn muni yfirgefa félagið í sumar en þetta eru þeir Titus Bramble, Craig Moore, Pavel Srnicek, Oliver Bernard og Oguichi Onyweu. Þeir eiga það allir sameiginlegt að vera samnigslausir í sumar og verður ekki endurnýjaðir samningar við þá. Bramble kom til Newcastle í júlí 2001 og spilaði 157 leiki. Moore kom í júlí 2005 og spilaði 31 leik. Gooch kom á láni frá Standard Liege í janúar 2007 og spilaði 11 leiki. Srnicek spilaði tvo leiki en Bernard kom ekki við sögu í vetur með aðalliði Newcastle.
(Rikki)
13.maí
Sam næsti þjálfari.
Sam Allardyce mun skrifa undir fjögurra ára samning að virði, £12millj. í þessari viku við Newcastle. Þá er ljóst að hver kemur til með að stjórna á næstu leiktíð . Mikill eltingaleikur fréttamanna kom upp um samninginn, en Shepherd og Sam hittust á sama hóteli við M6 og þegar samningurinn við Kenny Dalglish 1997 var gerður.
Watford og Newcastle gerðu jafntefli í lokaleiknum 1-1.
Dyer skoraði á 29. mín
Newcastle endaði í 13. sæti.
9.Maí
 
Eriksson eða Big Sam ?
Það hafa verið mikllar vangaveltur varðandi næsta stjóra hjá Newcastle og eru þeir Sven Goran Eriksson og Sam Allardyce taldir líklegastir í stjórastöðu Newcastle. Athole Still umboðsmaður Eriksson sagði í viðtali við bbc að svíinn hefði áhuga á stjórastöðunni. "Newcastle er stórt félag, hefur frábæra aðdáendur og er með frábæran völl." sagði Still.
Big Sam er samt talinn vera líklegastur að taka við af Roeder. Það hafa fleiri verið nefndir til sögunar eins og Gerald Houllier stjóri Lyon, Luis Van Gaal stjóri AZ Alkmaar, Juande Ramos stjóri Sevilla, Mark Hughes stjóri Blackburn, Alan Shearer kóngurinn á St James Park.
(Rikki)
6.Maí

Roeder segir upp störfum
Glenn Roeder, knattspyrnustjóri Newcastle, hætti störfum í kvöld, samkvæmt frétt Sky Sports sem kveðst hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því. Áður hafði verið sagt frá neyðarfundi á St. James' Park sem Roeder var kallaður á í dag. Félagið hefur ekki tilkynnt neitt opinberlega enn sem komið er. Sam Allardyce, sem sagði upp hjá Bolton á dögunum, er sterklega orðaður við starfið.
Stuðningsmenn Newcastle voru mjög óhressir með frammistöðu liðsins í gær þegar það tapaði 0:2 fyrir Blackburn á heimavelli og fjölmargir kröfðust þess að Roeder yrði látinn víkja.
Roeder er 51 árs gamall og hefur stýrt liði Newcastle síðan í febrúar 2006 og hann var síðan ráðinn til tveggja ára í maí sama ár. (mbl.is)
6.Maí
Newcastle - Blackburn 0-2
(McCarthy 14, Roberts 73)

Sorglegt lið
Enn eitt tapið leit dagsins ljós hjá sorglegu liði Newcastle í gær þegar þeir töpuðu enn einum heimaleiknum og er hann sá fimmti í vetur í deildinni. Leikur liðsins í gær var vægast sagt lélegur og það er ekki að sjá eins og sumir leikmenn séu að spila uppá áframhaldandi samning hjá félaginu. Blackburn skoraði snemma í leiknum og var það Benni McCarthy sem skoraði markið sem sumir vilja meina að hafi verið rangstaða en í endursýningu má sjá að Bramble spilar hann réttstæðann. Dyer fékk reyndar gott færi til að koma Newcastle yfir rétt áður en McCarthy skoraði en Brad Friedel varði vel frá honum. Blackburn skoraði svo annað mark í fyrri hálfleik sem var ranglega dæmt af vegna rangstöðu þannig að Newcastle mátti teljast heppið að vera bara 0-1 undir í hálfleik. Í seinni hálfleik fékk Owen gott færi á að jafna leikinn en varnarmaður Blackburn náði að bjarga með ótrúlegum hætti á marklínu. Blackburn bætti svo við öðru marki sínu þegar um 17 mínútur voru eftir af leiknum og lið Newcastle ógnaði ekki marki Blackburn það sem eftir lifði leiks. Ég held að Roeder hljóti að vera orðinn valtur í sessi eftir frammistöðu liðsins undanfarna leiki. Má þar nefna að Newcastle hefur ekki skorað mark á heimavelli í úrvalsdeildinni síðan byrjun febrúar þegar við unnum Liverpool og verður það að teljast skelfilegur árangur að það skuli líða 3 mánuðir á milli marka á heimavelli. Þá fór ég að minnast á það í umfjöllun um leikinn á föstudag að Newcastle hafi ekki tapað síðasta heimaleik á tímabilnu í 16 ár og viti menn auðvitað tapa þeir síðasta heimaleiknum núna. Við skulum bara vona að það verði allavega önnur 16 ár þangað til við töpum aftur síðasta heimaleik í deildinni.
Liðið í gær var þannig skipað: Harper, Solano, Onyewu, Bramble (Ramage 70), Carr, Dyer (Ameobi 70), Parker, Butt, Milner, Owen, Martins. Varamenn: Srnicek, N'Zogbia, Carroll.
Skot á mark: Nufc 14- Bla 8
Hornspyrnur: Nufc 5 - Bla 2
Áhorfendur: 51.226
Maður leiksins: James Milner
(Rikki)
5.Maí
Er Bobby að koma aftur ?
Þeir sem horft hafa á beinar útsendingar af síðustu leikjum hafa eflaust tekið eftir því að Bobby "gamli" Robson situr alltaf við hlið Shepards á leikjum. Hvað það merkir er ekki gott að segja? En sumir eru að spá því að hann muni stjórna liðinu á næstu leiktíð, áður en kóngurinn taki við ??? Spennandi ekki satt ! Þeir sem sáu leikinn í dag geta örugglega tekið þessum tíðindum vel - alla vega ég.
GRL
4.Maí
Newcastle - Blackburn
St James Park
Laugardaginn 5 Maí Kl. 14.00

Liðsfréttir
Þetta er síðasti heimaleikur Newcastle á tímabilinu og það eru liðin 16 ár síðan Newcastle tapaði síðasta heimaleik í deildinni og var það 11 Maí 1991 geng Hull í gömlu 2 deildinni fyrir framan 17.940 áhorfendur á St James Park. Það var núverandi þjálfari Newcastle Lee Clarke sem skoraði eina mark heimamanna, það var Argentínumaðurinn Osvaldo Ardiles sem þá var stjóri Newcastle. En að leiknum um helgina þá verða þeir félagar Owen og Ameobi með en enn er óvíst með þá Butt og Parker. Sibierski, Duff, Emre og Given verða ekki með. Ef James Milner spilar á morgun þá verður það leikur nr 100 með Newcastle og ef Steven Taylor spilar þá verður það leikur nr 50 í byrjunarliði Newcastle. Fyrri leikur liðanna í vetur á Eawood Park endaði með 1-3 sigri okkar manna og skoruðu þeir Taylor og Martins (2) mörkin. Blackburn vann hinsvegar á St James Park á síðasta tímabili 0-1 með mjög svo ólöglegu marki frá Pedersen en hann hreinlega sló boltann inn í markið og fagnaði mikið og hef ég ekki þolað manninn eftir það enda mjög óheiðarlegt af honum. Það er vonandi að leikmenn Newcastle ná að gleðja mann aðeins með góðum leik um helgina eftir frekar slakt gengi undanfarið.
Hópurinn er eftirfarandi: Harper, Srnicek, Solano, Carr, Babayaro, Taylor, Bramble, Onyewu, Moore, Ramage, Butt, Parker, Milner, Dyer, N'Zogbia, Martins, Owen, Ameobi, Luque, Carroll.
(Rikki)
1.Maí

Owen segist vera mun sterkari en áður
"Ég bjóst ekki við að spila allan leikinn" sagði hinn 27 ára sóknarmaður Newcastle. "Ég lít að það sem mjög jákvætt og ég veit að ég er mun sterkari en þegar ég fór af velli í Þýskalandi í fyrra. það stóð til að ég myndi spila í klukkutíma en eins og leikurinn þróaðist að þá misstum við tvo menn útaf vegna meiðsla, við vorum einu marki undir og ég treysti mér alveg að spila 90 mínútur". Owen mun spila næstu tvo leiki gegn Blackburn og Watford, þá er mjög líklegt að hann spili með Englandi í sumar þann 1 júní gegn Brasilíu og gegn Eistlandi þann 6 júní á nýja Wembley. " Þetta hefur verið langur tími en vel þess virði að bíða, ég hlakka til að spila restina af tímabilinu og einnig til næsta tímabils".
(Rikki)
1.Maí

Emre og Sibierski ekki með í tveimur síðustu leikjunum
Þeir félagar Antione Sibierski og Emre verða ekki með í síðustu tveimur leikjunum gegn Blackburn og Watford vegna meiðsla sem þeir hlutu í leiknum í gær gegn Reading. Sibierski er handarbrotinn og Emre er meiddur á ökkla eftir tæklingu frá Kitson. Scott Parker, Nicky Butt (báðir ökklameiðsli) og Shay Given (nárameiðsli) vöru allir frá í gær og kom það í hlut Kireon Dyer að bera fyrirliðabandið í gær. Glenn Roeder sagði á heimasíðu Newcastle að þetta tímabil hefur verið ótrúlegt varðandi meiðsli hjá félaginu og td. hafa verið 25 mismunandi útgáfur af vörn Newcastle í vetur.
(Rikki) |