Fréttir í maí 2008

 

 

31.Maí

Stuðningsmenn Newcastle á Íslandi velja Habib Beye leikmann ásrins

Stuðningsmenn Newcastle á Íslandi og á Englandi eru sammála um kjör á leikmanni ársins. Habib Beye var með nokkra yfirburði í kosningunni hér og hlaut hann 40% atkvæða. Michael Owen var í öðsru sæti hér líkt og í kosningunni á heimasíðu Newcastle. Annars er kjörið svona :

 

Habib Beye

40%

Michael Owen

17%

Steven Taylor

10%

Martins

10%

Steve Harper

10%

Nicky Butt

6%

James Milner

6%

Shay Given

2%

(FB)

 

31.Maí

Emre á förum ?

Tyrkneska liðið Fenerbahce segir á heimsíðu sinni að þeir hafi náð samkomulagi við Newcastle um kaup á Emre og muni gera þriggja ára samning við hann. Talið er að hann muni kosta tyrkneska félagið um 8 milljónir punda. Emre hefur ekki fest sig í sessi hjá Newcastle en hann hefur aðeins spilað 58 leiki frá því að hann kom til liðsins í júlí árið 2005 og skorað 5 mörk.

(FB)

 

24.Maí

Habib Beye leikmaður ársins

Senegalinn Habib Beye hefur verið kosinn leikmaður ársins að mati stuðningsmanna Newcastle. Kosnigin fór fram á heimasíðu Newcastle og fékk Beye flest atkvæði eða 33,6%.

Það var á síðasta degi félagskiptagluggans síðasta sumar sem gengið var frá kaupum á Beye frá Marseille. Hann átti mjög gott tímabil í vetur og sannaði sig einn allra besti hægri bakvörður úrvalsdeildarinnar. Af þeim 9000 sem kusu þá fékk Beye þriðjung atkvæðana. Annar í kjörinu var fyrirliðinn Michael Owen með 19,9% atkvæða. Það er einmitt kosning í gangi hér á okkar heimasíðu og er Beye í efsta sætinu eins og er með 36% og Owen í öðru sæti með 20%. Þeirri kosningu lýkur um mánaðamótin.

En annars eru fimm efstu sætin í kosningunni á heimasíðu Newcastle eftirfarandi:

Habib Beye     33,6%

Michael Owen 19,9

Nicky Butt      18,1%

Martins           10,1%

Steve Harper   6,7%

(FB)

 

16.Maí

 ATH Ný könnun

Það er komin ný könnun og nú er spurt hvaða leikmaður mönnum finnst hafa staðið sig best í vetur.

Útkoman úr síðustu könnun er svona:

 

Hvað hefur þú farið á marga leiki með Newcastle ?

1-5

55%

Hef ekki enn séð leik með Newcastle

22%

Ætla að skella mér á St James´ Park næsta tímabil

13%

11 +

7%

6-10

3%

(FB)

 

16.Maí

Zog ánægður á St James´ Park

Frakkinn ungi Charles N´Zogbia segir í viðtali á Sky Sports að hann sé ánægður með lífið í Newcastle og vilji hvergi fara.

Hann hefur verið orðaður við Arsenal undanfarið og er sagt að hann sé óánægður og vilji komast í burtu. Það hafa einnig verið fréttir þess efnis að hann og Abdoulaye Faye hafi slegist á æfingasvæði félagsins.

N´Zogbia neitar þessum fréttum alfarið. “Ég er ánægður hjá Newcastle í sannleika sagt og hef alltaf verið það".

"Ég hef verið hérna frá því að ég var 17 ára og hef aldrei slegist við neinn".

"Og af hverju ætti ég að slást við Abdoulaye Faye ? Ekki aðeins er hann  góður vinur minn, þá er hann líka töluvert stærri en ég".

(FB)

 

13.Maí

Ramage til QPR

Peter Ramage gerði í dag þriggja ára samnging við QPR sem leikur í Championship deildinni (gömlu 1 deild). Ramage spilaði sinn síðasta leik fyir Newcastle gegn Everton um síðustu helgi þegar hann kom inná undir lok leiksins, en samningur hans við Newcastle var að renna út og stóð ekki til að endurnýja hann. Ramage er 24 ára varnarmaður og spilaði hann 69 leiki fyrir heimaliðið sitt Newcastle, fyrsti leikur hans með Newcastle var gegn gríska liðinu Olympiakos í mars 2005.

(FB)

11.Maí

Everton - Newcastle 3-1

(Yakubu 28, 82 vsp, Lescott 70) - (Owen 47 vsp)

 

(Owen skorar úr vítaspyrnunni í dag)

 

Tímabilið endaði með tapi á Goodison Park

Síðasti leikur tímabilsins fór fram í dag á heimavelli Everton og voru heimamenn töluvert betri og áttu skilið öll stigin sem í boði voru. Leikurinn var hvergi sýndur þrátt fyrir að leikurinn skipti Everton miklu máli, en þeir tryggðu sér sæti í UEFA keppninni á næsta tímabili með þessum sigri í dag. Keegan stillti upp töluvert breyttu liði frá því sem verið hefur í undanförnum leikjum. Andy Carroll fékk að byrja inná í fyrsta sinn í vetur og spilaði hann frammi ásamt Michael Owen. Charles N´Zogbia fékk einnig að byrja inná á miðjunni og Damien Duff spilaði í stað Martins sem fékk frí í dag.

Yakubu kom Everton yfir með skallamarki á 28 mínútu en Owen jafnaði strax eftir leikhlé úr vítaspyrnu eftir að Joseph Yobo hafði brotið á N´Zogbia í teignum. Everton tryggði sér öll stiginn með mörkum frá Lescott og Yakubu og eins og áður sagði þá áttu þeir sigurinn skilið. Charles N´Zogbia átti skínandi leik í dag og spurningin er bara hvort þetta hafi verið hans síðasti leikur með Newcastle. Steve Harper átti einni mjög góðan leik og bjargaði Newcastle frá stærra tapi.

Keegan eftir leik: “Everton eru fyrirmynd annarra liða, Þeir eru ekki með stóran leikmannahóp, en þeir hafa gert góð kaup undanfarið. Þeir enduðu í fimmta sætinu sem er frábær árangur. Samheldni þeirra er mikil og þeir eru miklir atvinnumenn. Við þurfum að taka þá til fyrirmyndar. Ef Everton getur náð fimmta sætinu þá eigum við að geta það einnig. Við erum með stærri völl og fleiri áhangendur, en þeir spila fyrir hvorn annan, það er eitthvað sem við gerum ekki. Ef við náum slíkri samheldni hjá okkur með þessa leikmenn þá sé ég ekki af hverju við eigum ekki að vera keppast um fimmta sætið næsta tímabil”     

Lið Newcastle í dag:

Harper, Beye, Faye (Cacapa 46), Taylor (Ramage 90), Jose Enrique (LuaLua 79), Smith, Butt, N'Zogbia, Owen, Carroll, Duff.
Varamenn: Forster, Tozer.

Skot á mark: Eve 20 (11) - Nufc 3 (2)

Hornspyrnur: Eve 6 - Nufc 2

Gul spjöld: Duff, Smith.

Áhorfendur: 39,592

Maður leiksins: Steve Harper og Charles N´Zogbia (Samkvæmt einkunargjöf Sky Sports)

(FB)

9.Maí

Everton - Newcastle

Goodison Park

Sunnudaginn 11 maí kl 14:00 

Síðasti leikur tímabilsins er á sunnudaginn kemur gegn Everton sem hefur átt mjög gott tímabil og er í fimmta sæti deildarinnar. Keegan þarf að gera breytingar á liði sínu þar sem Viduka er meiddur og Barton má ekki spila í Liverpool borg vegna ákvæðis í  

tryggingarfyrirkomulagi hans. James M;ilner hefur ekki jafnað sig að fullu á sínum meiðslum og Keegan mun ekki taka áhættu á að spila honum. Leikur liðanna á síðasta tímabili á Goodison Park endaði með 3-0 sigri Everton. Fyrri leikur liðanna í vetur endaði hinsvegar með 3-2 sigri Newcastle þar sem Butt, Emre og Owen gerðu mörk Newcastle en Andy Johnson og skrautlegt sjálfsmark Shay Given skoruðu fyrir Everton. Ef Charles N´Zogbia spilar þá verður það 100 leikur með Newcastle frá því að hann kom til félagsins.

Dómari leiksins verður Peter Walton. 

Árangur Newcastle á Goodison Park í úrvalsdeildinni:

Everton 7 sigrar, Newcastle 4 sigrar, jafntefli 3

Leikmannahópurinn:

Harper, Forster, Beye, Enrique, Taylor, Faye, Edgar, Cacapa, Diatta, Butt, N'Zogbia, Duff, Geremi, Owen, Smith, Martins, Carroll.

(FB)

 

8.Maí

Viduka frá í  þrjá til sex mánuði

Ástralinn Mark Viduka verður frá í allt að 6 mánuði vegna meiðsla á hásin sem hefur verið að angar hann undanfarið. Kevin Keegan staðfesti þetta á heimasíðu Newcastle í dag. "Við vitum meira eftir tvær vikur. Mark hefur leikið frábærlega fyrir okkur svo þetta er áfall. Ef að þetta verða þrír mánuðir þá er þetta hins vegar ekki mjög mikið áfall, en ef þetta verða sex mánuðir þá er þetta mikið áfall" sagði Keegan í dag. Hann mun þá missa af öllu undirbúningstímabilinu í sumar og byrjun næsta tímabils. Viduka hefur skorað 7 mörk í þeim 21 leikjum sem hann hefur byrjað inná með Newcastle í vetur.

 

Þess má einnig geta að hinn ungi frakki Wesley Ngo Baheng sem kom frá Le Havre í janúar meiddist illa í leik með ungmennaliði Newcastle og verður hann frá keppni í 10 - 12 mánuði. Hann sleit krossbönd og mun hann fara í aðgerð nú þegar tímabilinu líkur. Adam Sadler þjálfari ungmennaliðsins: "Wesley hefur verið frábær síðan hann kom til okkar og það er virkilega gaman að vinna með honum. Þetta er mikið áfall fyrir hann, en hann er ungur og ég er sannfærður að hann kemur sterkur til baka".

(FB) 

6.Maí

Ramage, Carr og Triosi fara frá Newcastle í sumar

Kevin Keegan hefur staðfest að þessir þrír leikmenn munu fara frá félaginu í sumar. Samningur þeirra við félagið rennur út í sumar og þeim verður ekki boðinn nýr samningur.  ,,Við vildum halda Rammy en hann vill spila reglulega og ég gat ekki tryggt það hérna. Við óskum honum alls hins besta" sagði Kevin Keegan. Peter Ramage spilaði 68 leiki fyrir Newcastle en skoraði ekkert mark. Hann kom upp úr unglingastarfi félagsins. Stephen Carr spilaði 107 leiki fyrir Newcastle og skoraði eitt mark. Carr kom frá Tottenham árið 2004. James Triosi náði aldrei að spila leik með aðalliði Newcastle.

(FB)

 

6.Maí

Keegan: “Það er mjög erfitt að komast í topp fjögur”

Kevin Keegan segir að það sé að verða nánast ómögulegt að komst í hóp topp fjögurra liðana í deildinni.

Eftir tapið gegn Chelsea  viðurkenndi Keegan að það besta sem Newcastle gæti vonast eftir næsta tímabil er fimmta sætið í deildinni.

Keegan finnst yfirráð topp fjögurra liðana deildinni sé að gera hana að þeirri leiðinlegustu og fyrirsjáanlegustu deild í heimi. 

“Topp fjögur liðin þetta tímabil munu vera topp fjögur næsta tímabil einnig. Ég vil segja aðdáendum að við munum reyna ná fimmta sætinu. Við munum reyna vinna hina deildina sem er í gangi”.

“Þetta er bara sannleikur. Ég er ekki vonsvikinn. Að vera kominn til baka undirstrikar það sem ég hélt. Chelsea  kom með Shevchenko (28 milljónir punda) og Frank Lampard inná af bekknum. Þeir voru ekki með Shaun Wright Phillips. Þeir voru ekki með Ashley Cole. Ég gæti haldið áfram. Ég get ekki sagt Newcastle aðdáendum að við séum með leikmenn eins og þetta.

Einu leikirnir sem þessi lið tapa eru gegn hvor öðru. Það eru ekki mörg önnur lið fyrir utan topp fjögur sem vinna þau.

Þau tapa um þrem leikjum á tímabili, þegar ég var hjá Liverpool, ef við töpuðum átta leikjum þá áttum við frábært tímabil.

Þetta er bara raunveruleikinn, svona er deildin, gjáin á milli liða er of mikil.

Ég vil ekki blekkja aðdáendur. Við munum gera okkar besta og ef eitt af þeim gengur eitthvað illa þá verð ég ánægður. En það er erfitt að sjá eitthvað annað lið komast í topp fjögur.

Við erum fimmta stærsta liðið í deildinni ef við skoðum aðdáendur, veltu og slíka hluti. Tottenham er nokkuð nálægt okkur.

Þó svo að einhver moki peningum í þig, þá verður maður að vera hreinskilinn og segja að maður fær ekki bestu leikmennina. Svona er goggunarröðin. Bestu leikmennirnir fara þar sem titlarnir koma.

Ef við náum fimmta sætinu þá verður það frábær árangur fyrir klúbbinn. Og það er mjög góður árangur að ná fimmta sætinu.

Við munum gera okkar besta og ég er enn bjartsýnn fyrir hönd klúbbsins. Raunsæislega, þá getum við náð fimmta sætinu og það væri frábær árangur miðað við hvar við erum núna. Og ef við næðum fjórða með því að spila vel þá yrði ég mjög glaður.

Áhugi minn er enn sá sami. Ég elska þetta félag. En ég vill ekki lenda í sömu vandamálum og þegar ég var hérna í fyrra skiptið. Þegar stjórnarformaðurinn Sir John Hall lét hann ekki fá þá peninga sem hann hafði lofað honum. "

Mér og Mike Ashley kemur vel saman vegna þess að ég tala aldrei við hann. Það er betra en sumir stjórar hafa það. Engin samskipti eru góð þessa stundina.

Hann (Ashley) mun styðja okkur peningalega. Ég held að það sé ekkert vandamál með það. En að ná leikmönnum til sín er mjög erfitt. Ef það eru mjög góðir leikmenn í boði þá hafa þeir þrjá til fjóra kosti í stöðunni”. Sagði Keegan að lokum.

(FB)

5.Maí

Newcastle - Chelsea 0-2

                               (Ballack 61, Malouda 82)

 

Terry bjargar á línu eftir skot frá Owen 

 

Slakur seinni hálfleikur varð Newcastle að falli

Síðasti heimaleikur Newcastle á þessu tímabili fór fram í dag fyrir framan fullu húsi á St James´ Park (52,305) og voru það gestirnir í Chelsea sem tóku öll stigin sem í boði voru. Keegan hélt sig við sama byrjunarliðið og hann hefur gert undarfarið og byrjuðu okkar menn töluvert betur. Strax á fimmtu mínútu fékk Owen gott færi eftir að Butt átti góða sendingu á hann en hann hitti boltann illa og skaut yfir markið.

Obafemi Martins var mjög líflegur í sókninni og áttu varnarmenn Chelsea fullt í fangi með hann. Á 28 mínútu átti Newcastle sitt besta færi í leiknum þegar John Terry bjargaði á línu eftir skot frá Owen. Vörn Newcastle var virkilega sterk í fyrri hálfleik og fengu Drogba og Anelka ekki úr miklu að moða. En í seinni hálfleik var allt annað að sjá til gestanna, þeir voru töluvert betri og John Terry átti hörku skalla í slánna í byrjun seinni hálfleiks. Á 61 mínútu kom fyrsta mark leiksins en þá átti Drogba góða sendingu beint á kollinn á Ballack sem skallaði framhjá Harper í markinu og staðan því 0-1. Owen fékk ágætis færi til að jafna stuttu seinna þegar Butt átti skot að markinu en hann náði ekki til boltans. Chelsea gerði út um leikinn á 82 mínútu þegar Ballack, Essien og Lampard náðu frábæru spili saman og sem endaði með góðu marki frá Malouda og 0-2 sigur Chelsea staðreynd sem heldur enn í vonina um að verða Englandsmeistarar.

Keegan eftir leik: "Við vorum aðeins betri en þeir í fyrri hálfleik og sköpuðum okkur tvö góð færi sem nýttust ekki. En við misstum Viduka í hálfleik vegna meiðsla og hann spilar ekki síðasta leikinn gegn Everton. Ég sagði að þeir myndu mæta grimmir í seinni hálfleikinn og þeir gerðu það. Þeir voru betri og við hörfuðum til baka. Það var enginn Shaun Wright Phillips og enginn Ashley Cole hjá þeim og svo eru menn eins og Lampard, Alex, Joe Cole og Shevchenko á bekknum hjá Chelsea. Keegan bætti við "Chelsea yrðu verðugir meistarar en ég held að þeir verða það ekki, ég held að Man Utd muni taka titilinn, ég sé þá ekki gera nein mistök gegn Wigan um næstu helgi".

Lið Newcastle:

Harper, Beye, Taylor, Faye, Jose Enrique (N'Zogbia 77), Geremi (Duff 71), Butt, Barton, Viduka (Smith 46), Owen, Martins.
Varamenn: Forster, Cacapa.

Skot á mark: New 13 (5) - Che 18 (9)

Hornspyrnur: New 1 - Che 6

Gul spjöld: Faye, Enrique

Áhorfendur: 52,305

Maður leiksins: Steven Taylor (Átti mjög góðan leik í vörninni og stöðvaði margar sóknir hjá Chelsea)

(FB)

 

4.Maí

Hefur N´Zogbia spilað sinn síðasta leik fyrir Newcastle ?

Ekki hefur farið mikið fyrir Charles N´Zogbia á leikvellinum undarfarið með Newcastle. Hann vildi ólmur fara frá liðinu í janúarglugganum en Keegan sem var þá nýtekinn við stjórastarfinu vildi ekki selja hann þá. En hann hefur ekki verið í leikmannahóp Newcastle í undanförnum fimm leikjum þrátt fyrir að vera orðin heill eftir meiðsli sem hann hlaut í byrjun mars. Hann kom síðast við sögu í heimaleiknum gegn Fulham þann 22 mars þegar hann kom inná sem varamaður. Keegan sagði í viðtali við The Chronicle "Hann meiddist á slmæum tíma þegar liðinu var byrjað að ganga vel, sama má segja um Smith og Duff sem hafa ekki fengið mikið af tækifærum". Honum hefur verið sagt bæði af leikmönnum og mér að við viljum halda honum hér en hans hugur verður að vera með Newcastle". Keegan hefur ekki sagt að hann sé á förum. en hann virðist ekki vera inní myndinni þessa dagana hjá stjóranum. N´Zogbia skrifaði undir framlengingu á samningi sínum undir lok síðasta árs og rennur hann út árið 2012. Hann hefur verið orðaður við Arsenal og Tottenham.

(FB)

 

2.Maí

Newcastle - Chelsea

St James´ Park

(ATH) Mánudaginn kl 15:00 (ATH)

Síðast heimaleikur Newcastle á tímabilinu fer fram á mánudaginn þegar rússaveldið Chelsea kemur í heimsókn.

Það er svolítið furðulegur leiktími á leiknum gegn Chelsea, en hann er næstkomandi mánudag kl 15:00. Leikurinn var færður fyrir nokkrum vikum síðan og er það vegna beinnar útsendingar hjá Sky Sports. Það er frídagur hjá Englendingum á mánudaginn og er hann því um miðjan dag. Þetta verður mjög erfiður leikur fyrir okkar menn enda Chelsea í harðri baráttu við Man Utd um titilinn. Mark Viduka ætti að vera leikfær en hann á við smávægileg meiðsli í hásin að stríða. James Milner, Abdoulaye Faye, Cacapa og David Edgar eru orðnir klárir og verða í leikmannahópnum sem er svona:

Harper, Forster, Beye, Enrique, Taylor, Faye, Edgar, Cacapa, Butt, N'Zogbia, Duff, Barton, Geremi, Milner, Owen, Smith, Martins, Viduka, Carroll.

Leikur liðana á St James´ Park í fyrra fór 0-0 en fyrri leikur liðana í vetur endaði með sigri Chelsea 2-1, þar sem eitt mesta rangstöðumark sögunar gerði út um leikinn á lokamínútum leiksins. Chelsea hefur ekki unnið á St James´ Park síðan 2001 þegar Eiður Smári skoraði bæði mörk Chelsea. Steve Harper mun spila sinn 100 leik fyrir Newcastle í byrjunarliði. Newcastle hefur unnið þrjá síðustu heimaleiki sína Fulham (2-0), Reading (3-0) og Sunderland (2-0) og vonandi nær Harper að halda hreinu gegn Chelsea einnig.

Dómari leiksins verður Steve Bennett.

(FB)