Fréttir í maí 2009

31.Maí

Newcastle aftur sett á markaðinn ?

Mike Ashley hefur enn einu sinni sett framtíð Newcastle í óvissu og samkvæmt fréttum í enskum miðlum þá hefur hann sett Newcastle aftur á sölu og nú fyrir enn lægra verð en hann greiddi fyrir liðið á sínum tíma.

Sagt er að félagið sé nú til sölu á um 100 milljónir punda. Þetta setur líka spurningarmerki um hvort Alan Shearer verði stjóri áfram hjá Newcastle en hann hefur átt í viðræðum við stjórn liðsin undanfarna viku.

Mike Ashley í viðtali hjá the Sunday Times: "Þetta er búið að vera hræðilegt fyrir alla. Ég hef tapað peningum og tekið ömurlegar ákvarðanir. Núna vill ég selja eins fljótt og hægt er, ráðgjafar verða ráðnir fljótlega. Auðvitað sé ég eftir að hafa keypt liðið, ég hef aldrei sagt að ég sé sérfræðingur í rekstri knattspyrnuliða. Ég var bara stuðningsmaður, mjög ríkur stuðningsmaður. En núna er ég ekki svo ríkur. Ég er búinn að setja mikinn pening í klúbbinn og reynt mitt besta, ég viðurkenni að það var ekki nógu gott. Ég biðst fyrirgefningar á öllu sem hefur gerst"

 

Ashley borgaði 134 milljónir punda fyrir öll hlutabréf í Newcastle fyrir tveimur árum síðan og hefur sett um 110 milljónir í félagið síðan, hans stefna var að koma liðinu í baráttu um titilinn á fimm árum en sú stefna er algjörlega hrunin. Hann reyndi mikið að selja klúbbinn síðast vetur en það gekk ekki upp og hætti hann við að selja, en nú virðist sem hann ætli að koma sér út úr þessum rekstri og því fyrr því betra fyrir alla aðila.

(FB)

 

31.Maí

Tim Krul setur pressu á Steve Harper

Hollendingurinn ungi Tim Krul hefur ekki í hyggju að fara frá Newcastle þrátt fyrri fall úr Úrvalsdeildinni og hefur sett stefnuna á að verða markmaður númer eitt hjá Newcastle. Krul hefur aðeins einu sinni spilað með aðalliði Newcastle og var það tímabilið 2006/07 í UEFA keppninni gegn Palermo á Ítalíu og átt hann þá mjög góðan leik í 0-1 sigri okkar manna. "Ég sé enga ástæðu til að fara frá Newcastle, hvers vegna ætti ég að gera það ? Það er mitt forgangsatriði að byrja nýtt tímabil sem markmaður númer eitt. Ég er tilbúinn í þá áskorun. Við viljum komast sem fyrst upp í Úrvalsdeildina og vonandi mun ég eiga stóran þátt í því, það væri gaman. Það er mikið áfall fyrir liðið að falla og ég held að það verði að byggja liðið upp frá grunni. Þetta gerðist ekkert á stuttum tíma, það voru fjórir stjórar hér á einu tímabili sem segir ýmislegt. En á endanum eru það leikmenn sem eru ábyrgir. Við höfum nógu góða leikmenn en samt sem áður náðum við ekki saman sem lið" sagði markmaðurinn ungi að lokum.

Þarna er enn einn ungur leikmaður sem ég myndi vilja sjá fá tækifæri með Newcastle á næsta tímabili.

(FB)

 

30.Maí

Ranger the danger skorar tvö fyrir England

Nile Ranger heldur áfram að skora fyrir U19 ára landslið Englands. Í gær skoraði hann tvö mörk í 4-1 sigri gegn Slóvakíu og hefur hann nú skorað 3 mörk í tveim leikjum þar sem hann hefur byrjað inná. Ranger er leikmaður framtíðarinnar, það er enginn spurning og við eigum örugglega eftir að sjá hann spila með aðalliði Newcaslte á næsta tímabili og ég er á því að hann hefði átt að fá tækifæri í vetur. Ég hef mikla trú á ungu strákunum eins og Ranger og Vuckic og er það ljósið í myrkrinu þessa dagana að það séu ungir og bráðefnilegir strákar að koma upp úr ungmennaliðinu.

(FB)

 

28.Maí

Nile Ranger skorar sitt fyrsta landsliðsmark 

Ranger var í fyrsta sinn í byrjunarliði U19 ára liði Englands í gær og skoraði seinna mark Englands í 2-0 sigri á Bosníu á Keepmoat Stadium heimavelli Doncaster (leggið þetta nafn á minnið því Newcastle spilar á þessum velli á næsta tímabili) Ranger sem er aðeins 18 ára skoraði 22 mörk fyrir Newcastle í vetur og hann er með allt  sitt á hreinu. "Að spila fyrir England getur bara hjálpað mér hjá Newcastle. Þetta hefur verið frábært tímabil fyrir mig persónulega, ég skoraði 22 mörk fyrir Newcastle og að skora fyrir England er ótrúlegt" sagði Ranger á heimasíðu Newcastle. Leikur Englands var sá fyrsti af þremur í útsláttarkeppni Evrópumótsins sem verður haldið í Úkraínu í sumar. Enska liðið spilar gegn Slóvakíu og Skotlandi á næstu dögum.

(FB)

 

 

 

28.Maí

Haris Vuckic stjarna framtíðarinnar ?

Hinn 16 ára Slóveni Haris Vuckic hefur spilað mjög vel með varaliði og ungmennaliði Newcastle frá því hann kom til Newcastle frá Slóvenska liðinu NK Domzale í janúar. Og hann bætti einni rós í hnappagatið fyrir stuttu þegar U18 ára lið Newcastle tók þátt í átta liða æfingamóti í Bosníu. Newcastle sigraði Levski Sofia 4-1 í úrslitaleik og sigruðu þar með mótið. Vuckic var markahæstur á mótinu með fimm mörk og var kosinn besti leikmaður mótsins. Þessi ungi og efnilegi miðjumaður á vonandi eftir að blómstra með Newcastle í framtíðinni og veitir Newcastle ekki af að fá svona stráka upp úr ungmennaliðinu. Og Richard Money yfirmaður akademíu Newcastle hefur mikla trú á Vuckic í framtíðinni.

"Hann er byrjaður að aðlagast hérna núna. Að koma hingað frá Slóveníu getur verið erfitt, sérstaklega með þær væntingar sem til hans eru gerðar. En hann hefur verið að aðlagast öllu hér mjög vel og hann gerir sér grein fyrir því hvað við viljum. Hann hefur alla burði til að verða topp  klassa leikmaður, það sannaðist í þessu móti í Bosníu og hann hefur einnig gert mjög góða hluti með okkur í vetur".

Þegar Money var spurður um hvort Vuckic ætti möguleika á sæti í aðalliðinu á næsta tímabili sagði hann: "Ég held að hann sé ekki langt frá því ef ég á að vera hreinskilinn. Hann hefur allt sem til þarf, góða hæð, sterkur líkamlega, hraðaskiptingu og hann hefur mjög góða boltatækni. Ég tel að með réttu umhverfi og réttri uppbyggingu þá á hann mjög bjarta framtíð fyrir sér"

(U18 ára liðið með verðlaunagripinn frá Bosníu)

 

Hópurinn sem fór til Bosníu:

Jak Alnwick, Dan Leadbitter, James Taylor, Jeff Henderson, Shane Ferguson, James Tavernier, Patrick McLaughlin, Samuel Adjei, Haris Vuckic, Michael McCrudden, Ryan Donaldson, Paul Dummett, Ben Robinson, Richard Archer, Aaron Spear, Stephen Folan, Ryan Page, Andy Mogwo.

 

Og hver veit nema við eigum eftir að sjá einhverja stráka úr þessum hópi með aðalliðinu á næsta tímabili.

(FB)

 

26.Maí

Stuttar fréttir

# Habib Beye er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Newcastle og í dag sagði hann að hann ætlaði að vera áfram hjá Newcastle. "Ég með, ég er leikmaður Newcastle. Ég er vonsvikinn eins og allir aðrir. Ég er á samning hérna og ég verð hérna næsta tímabil til að hjálpa liðinu upp í úrvalsdeildina á ný. Ég hef spilað fyrir Newcastle í tvö ár og ég elska þetta félag. Það eru allir ábyrgir fyrir stöðu liðsins. Allir leikmenn eru ábyrgir. Það verða allir að skilja að þetta er ekki bara um 11 leikmenn eða 18 leikmenn. Þetta snýst um borgina, stuðningsmennina og heilan helling af fólki sem vinnur hjá félaginu".

# Steven Taylor og Damien Duff hafa sagt það sama og Beye og ætla að vera áfram hjá Newcastle. "Það á að vera heiður að fá að spila fyrir Newcastle. Ég veit að það verða breytingar en ég veit ekki hvað gerist. Sem leikmenn, þá vitum við ekki neitt en ég bið stuðningsmenn að styðja við bakið á okkur næsta tímabil. Ég er Geordie og Newcastle United er mitt lið og ég verð hérna áfram" sagði Taylor.

# Alan Shearer er í viðræðum við stjórn Newcastle þessa dagana og er mikill vilji fyrir því að ráða Shearer í stjórastarfið. Derek Llambias sagði þetta í dag: "Við viljum fá hann sem stjóra alveg 110%. Hann er mjög góður í því sem hann gerir og hann talar beint út, okkur líkar það. Hann væri fullkominn kostur. Við munum byrjað viðræður í dag (þriðjudag) og við munum skoða málið rækilega. Við erum að reyna leysa ýmisleg mál og við munum láta stuðningsmenn vita eins fljótt og við getum. Alan hefur lagt mikla vinnu í starfið hjá Newcastle og við erum að ræða við hann núna"

# Sebastien Bassong hefur verið valinn í A landslið Kamerún. Bassong sem er fæddur í Frakklandi á foreldra frá Kamerún og má því spila fyrir Kamerún. Bassong er einn af fáum leikmönnum sem við stuðningsmenn vonum að verði áfram í herbúðum liðsins enda hefur hann verið einn af bestu leikmönnum Newcastle í vetur.

#  John Carver fyrrum þjálfari Newcastle er talinn á leið til Newcastle á ný. Rob Lee er einngi talinn vera á leið í þjálfarateymi Newcastle og er talið líklegt að hann verði aðstoðarmaður Shearer á næsta tímabili. Þetta þykir benda til þess að Colin Calderwood og Chris Hughton verði látnir fara frá liðinu.

(FB)

 

 

24.Maí

Shearer: "Ömurleg tilfinning"

Alan Shearer er eins og allir Newcastle menn niðurbrotinn eftir fall úr úrvalsdeildinni í dag. "Þetta er hræðileg tilfinning. Þetta er sárt. Við féllum vegna þess að við vorum ekki nógu góðir yfir þessa 38 leiki. Við fengum tækifæri til að bjarga okkur hérna á Villa Park og ég hafði alltaf trú á að sigur og jafnvel jafntefli myndi bjarga okkur. En við sköpuðum okkur ekki nógu mörg færi í seinni hálfleik en fengum ágæt færi í þeim fyrri. En við höfum engar afsakanir. Við finnum til með stuðningsmönnum, þeir eiga betra skilið. Ég er mjög svekktur skiljanlega. Ég er sár og reiður" sagði Alan Shearer eftir leikinn í dag. Staða hans hjá Newcastle er óviss þar sem óvist er hvort Joe Kinnear snúi til baka í stjórastólinn.

Um stöðu sína hjá Newcastle sagði hann: "Ég mun tala við Mike Ashley í vikunni og segja mína skoðun á hvað hefur verið gert rétt og rangt hérna, en núna er ekki rétti tíminn til að ræða mína framtíð hjá félaginu. Liðið þarf mikla breytingu, það sjá allir. Þetta er frábært félag með frábæra stuðningsmenn, en það þarf mikla vinnu fyrir þann sem tekur við liðinu. Það þarf að byggja liðið upp frá grunni"

(FB)

 

 

 

 

 

24.Maí

Aston Villa - Newcastle 1-0

                      (Duff sjm 38)

 

(Duff og Taylor sorgmæddir í leikslok)

 

Newcastle fallið eftir 16 ár í úrvalsdeildinni

Leikmenn Newcastle sáu sjálfir um að koma sér niður um deild í dag. Damien Duff skoraði sjálfsmark á 38 mínútu og var það eina mark leiksins. Newcastle hefði nægt jafntefli í dag til að tryggja sæti sitt í deildinni þar sem Hull tapaði á heimavelli fyrir Man Utd allt kom fyrir ekki og liðið tapaði enn einum leiknum. Newcastle byrjaði leikinn af miklum krafti og fengu nokkur fín færi til að komast yfir en inn vildi boltinn ekki. Það var svo á 38 mínútu að Gareth Barry átti slakt skot að marki Newcastle og stefndi boltinn vel framhjá marki Newcastle en Damien Duff setti fótinn í boltann og hann breytti töluvert um stefnu og beint í markið, óverjandi fyrir Harper. Maður hélt nú að leikmenn Newcaste kæmu dýrvitlausir inn í seinni hálfleikinn en þeir sköpuðu sér varla færi í seinni hálfleik. Ég fék æluna upp í kok þegar Ameobi kom inná og hef ég fengið mig full saddann á þessum leikmanni, HANN GETUR EKKI NEITT.

Ég skil ekki af hverju Jonas Gutierrez sat á bekknum í dag og fékk ekki tækifæri, ekki það að hann hefði bjargað einhverju en hann er mun duglegri og hættulegri leikmaður en margir aðrir leikmenn Newcastle.

Það er bara þannig að menn verða að nýta færin sín og sannaðist það svo sannarlega í dag. Það verður bara að segjast eins og er að Newcastle átti skilið að falla, þeir hafa verðið alveg skelfilega slakir á þessu tímabili og burtséð frá öllum vandræðum í kring um stjórn liðsins þá eiga leikmennirnir mest alla sök á slöku gengi liðsins.

Það er sorglegt að lið falli með leikmenn á borð við Owen, Martins, Viduka, Gutierrez, Duff, Nolan, Beye, Geremi, Coloccini ofl. En sannleikurinn er bara sá að þessir leikmenn sem hafa spilað fyrir Newcastle í vetur eru einfaldlega ekki nógu góðir.

Fall í Championsip deildina er því staðreynd og það verður ekkert sjálfgefið að Newcastle fari upp á fyrsta ári. Newcastle þarf að spila við lið eins og Peterbrough, Scunthorpe, Doncaster, Plymouth, Blackpool ofl.

Nú vona ég svo innilega að það verði ruslað út á St James´ Park það þarf að byggja þetta lið alveg upp frá grunni og vonandi verður Alan Shearer áfram sem stjóri Newcastle og hendir út ruslinu.

Lið Newcastle í dag:

Harper, Coloccini, Steven Taylor, Edgar, Duff, Guthrie, Nolan (Owen 66), Butt, Lovenkrands (Jose Enrique 57), Viduka (Ameobi 75), Martins.~
Ónotaðir varamenn: Krul, Smith, Gutierrez, Ryan Taylor.  

Gul spjöld: S Taylor, Edgar

Rautt spjald: Edgar (tvö gul)

Skot (á mark): AV 15 (5) - Nufc 8 (3)

Hornspyrnur: AV 5 - Nufc 3

Áhorfendur: 42,585

Maður leiksins: Stuðningsmenn Newcastle fá þennan heiður í dag fyrir að standa með liðinu í gegnum súrt og sætt.

(FB)

 

23.Maí

 

Aston Villa - NEWCASTLE

 

 

Síðasti leikur tímabilsins er á Villa Park gegn Aston Villa á Villa Park á morgun kl 15:00 og eins og allir vita þarf Newcastle á sigri að halda í þessum leik til að eiga von í að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni. Þeir verða einnig að treysta á að annað hvort Hull eða Sunderland tapi stigum í sínum leik. Hull á heimaleik gegn Man Utd og Sunderland á heimaleik gegn Chelsea. Jafntefli gæti þó dugað Newcastle ef Hull tapar sínum leik þar sem markatala Newcastle er mun hagstæðari. Middlesbrough á einnig tækifæri að bjarga sér en þá þarf bæði Newcastle og Hull að tapa sínum leik og Boro að vinna West Ham á Upton Park.

Af meiðslum leikmanna er helst að frétta að Habib Beye verður ekki með vegna meiðsla aftan í læri og er slæmt að missa hann í þessum mikilvæga leik. Enn er óvíst hvort Michael Owen verði með en hann er meiddur í nára og á það að skýrast núna um helgina hvort hann verði með eða ekki. En Jose Enrique er búinn að jafna sig á sínum meiðslum og verður með. Alan Smith er einnig orðinn klár eftir smávægileg meiðsli. Sebastien Bassong er í banni eftir að hafa fengið rautt spjald í leiknum gegn Fulham um síðustu helgi.

(Enrique, Martins, Jonas, Nolan og Viduka á æfingu í gær)

 

Alan Shearer er vongóður um að Newcastle bjargi sér í síðasta leiknum þrátt fyrir erfiða stöðu: "Ég er 100% viss um að við björgum okkur úr þessu. Ég hef fengið góð viðbrögð frá leikmönnum í vikunni og við eigum þetta eina tækifæri til að bjarga okkur. Við verðum að gleyma leiknum um síðustu helgi og þessum 37 leikjum. Þetta snýst allt um sunnudaginn núna. Ég hef trú á að mínir leikmenn meðhöndli pressuna og því þetta á eftir að vera stressandi ástand. En við munum berjast og leggja okkur alla fram" sagði stjórinn.

 

Shearer þarf að breyta vörn liðsins þar sem bæði Bassong og Beye verða ekki með og má því reikna með að Coloccini og Enrique komi inn í stað þeirra. Ryan Taylor verður hugsanlega í hægri bakverðinum og Duff verður þá færður á vinstri kantinn. Líklegt byrjunarlið er því svona:

-----------------------------Harper-----------------------------

  ----R Taylor----- S Taylor----- Coloccini------ Enrique----

                ----Jonas----- Nolan----- Butt-----Duff----

Martins--------Viduka

Peter Lovenkrands gæti alveg eins verið í byrjunarliðinu á kostnað Jonas Gutierrez en þetta er liðið sem ég held að Shearer stilli upp gegn Villa á morgun.

Newcastle vann fyrri leik liðanna í vetur á St James´ Park 2-0 og var það Oba Martins sem skoraði bæði mörk Newcastle. Aston Villa sigraði 4-1 síðasta tímabili í leik liðanna á Villa Park og skoraði Owen eina mark Newcastle.

Leikmannahópurinn gegn Villa:

Harper, Forster, Krul, Enrique, Coloccini, S Taylor, Edgar, Cacapa, Butt, Duff, R Taylor, Gutierrez, Nolan, Guthrie, Lovenkrands, Geremi, LuaLua, Smith, Martins, Owen, Viduka, Carroll, Xisco, Ranger.

Dómari leiksins verður Chris Foy.

(FB)

 

21.Maí

Bassong gefur til kynna að hann fari ef Newcastle fellur

Í viðtali við The Telegraph segir Sebastien Bassong að hann verði einn af mörgum leikmönnum sem fari frá Newcastle ef þeir falla í Championship deildina. Hann hefur spilað mjög vel á sínu fyrsta ári í úrvalsdeildinni og hefur verið orðaður við Arsenal í vetur. Bassong sem er aðeins 22 ára var keyptur á aðeins 500 þúsund pund frá franska liðinu Metz síðasta sumar og á tvö ár eftir af samningi sínum. "Ef Newcastle fellur þá mun ég ræða við félagið eftir síðasta leikinn. Allir vita að ég er framagjarn og að spila í Championship deildinni hefur mér aldrei dottið í hug. Að spila í næst efstu deild væri skref aftur á við. Ég vona að Alan Shearer verði áfram hvað svo sem gerist á sunnudaginn. Mér skilst að honum líki vel við starfið og nýtur þess að sitja í stjórastólnum. Hann hefur mikil áhrif á leikmannahópinn. Auðvitað eru margir stjórar að velta sér meira upp úr taktík en hann fær mann til að gleyma svo kölluðu reynsluleysi hans þökk sé reynslu hans á vellinum"

Bassong hefur verið besti leikmaður Newcastle í vetur en hann verður í banni í síðasta leiknum gegn Aston Villa. Alan Shearer þarf því að breyta vörninni töluvert því Habib Beye er meiddur og verður sennilega ekki með á sunnudaginn.

(FB)

 

 

20.Maí

Stuttar fréttir

# Habib Beye er í kapphlaupi við tímann um að vera klár í leikinn mikilvæga á sunnudag gegn Aston Villa. Hann meiddist aftan í læri í leiknum gegn Fulham. "Það eru 50% líkur á að hann verði með eins og staðan er núna" sagði Ian Dowie.

 

# Andy Carroll  meiddist á ökkla á æfingu núna í vikunni og verður frá í nokkrar vikur. Hann verður því ekki með gegn Villa á sunnudaginn.

 

# Ástralinn ungi Brad Inman hefur verið valinn í U19 landslið Skota. Móðir hans er frá Skotlandi og þess vegna getur hann spilað fyrir landslið Skota. Hann gæti hinsvegar enn spilað fyrir Ástrala þar sem hann hefur ekki spilað fyrir U21 landslið Skota. Reglur Fifa segja einmitt að leikmaður sem hefur spilað fyrir U21 landslið er þá orðinn skuldbundinn því landsliði. Inman hefur staðið sig vel með ungmennaliði Newcastle í vetur og var á bekknum með aðalliðinu í leiknum gegn Man City í janúar.

 

# Nile Ranger verður sennilega á bekknum gegn Villa þar sem Owen og Carrol eru meiddir. Shola Ameobi sem er orðinn leikfær var á bekknum gegn Fulham og verður það einnig gegn Villa

 

# Ian Dowie hafði þetta að segja um meiðsli leikmanna: "Michael Owen fór í skoðun og hún kom vel út. Við erum vongóðir um að hann verði með um helgina. Hann hefur ekki æft ennþá en þetta mun skýrast í vikunni. Við viljum fá hann til baka, hann er fyrirliði liðsins og mikill markaskorari. Ef hann spilar ekki þá verður bara að hafa það. Við höfum Martins og Viduka. Jose Enrique er byrjaður að æfa á fullu og hann gefur okkur aðra möguleika. En Damien Duff hefur staðið sig mjög vel í hans stöðu"

(FB)

 

17.Maí

Shearer: Dómarinn klikkaði á ögurstundu

Alan Shearer er ekki sáttur við Howard Webb dómara leiksins í gær enda gerði hann afdrifarík mistök þegar hann dæmdi mark af Newcastle á 50 mínútu sem gætu kostað Newcastle sæti í úrvalsdeildinni þegar upp er staðið. Shearer gaf til kynna að Webb hafi verið undir áhrifum af markinu sem Steven Taylor skoraði gegn Boro síðasta mánudag. Sumir vildu meina að Nolan hafi hindrað varnarmann Boro og þar með gefið Taylor meira pláss til að athafna sig betur í teignum. "Sennilega hefur markið á mánudag verið mikið í umræðunni og þeir (dómararnir) hafa ákveðið að taka á þessu  um þessa helgi. En ég er geysilega svekktur með markið sem dæmt var af, ég er búinn að sjá það og get ekki séð neitt athugavert við það. Mér finnst hann hafa gert stór mistök, og þegar hann skoðar þetta sjálfur þá er hann sennilega sammála" sagði Shearer á heimasíðu Newcastle í dag.

(FB)

 

17.Maí

Michael Owen meiddur  

Enn einu sinni er  Owen meiddur og er nárinn ennþá að angra hann. Hann var ekki með í leiknum í gær gegn Fulham og hafði Alan Shearer þetta um málið að segja: "Michael meiddist á æfingu á föstudag og hann stóðst ekki læknisskoðun í gær fyrir leikinn. Við munum láta skoða hann betur á morgun (mánudag) og þá munum við vita meira um málið"

(FB)

 

 

 

 

 

 

 

17.Maí

Newcastle - Fulham 0-1

                    (Kamara 41)

 

(Leikmenn Newcastle voru svekktir í leikslok)

 

Gríðarleg vonbrigði á St James´ Park

Það fór ekki eins og vonast var eftir, að lið Newcastle myndi tryggja sér dýrmæt þrjú stig í fallbaráttunni fyrir framan troðfullann St James´ Park í gær. Enn einu sinni valda leikmenn Newcastle sínum stuðningsmönnum gríðarlegum vonbrigðum og nú eru örlög þeirra í deildinni úr þeirra eigin höndum. Hull náði jafntefli gegn Bolton á Reebok Stadium í gær og eru nú einu stigi fyrir ofan Newcastle. Meira að segja Middlesbrough á enn tækifæri á að halda sér uppi en þeir gerðu jafntefli á Riverside gegn Aston Villa. Hull á nú eftir heimaleik gegn Man Utd sem tryggði sér Englandsmeistartitilinn í gær og munu að öllum líkindum ekki mæta með sitt sterkasta lið gegn Hull í síðasta leik þar sem þeir eiga að spila í úrslitum meistaradeildarinnar þrem dögum seinna í Róm. Leikurinn í gær var eins og áður sagði mikil vonbrigði og kom sigurmark leiksins eftir slæm mistök í vörn Newcastle. Í seinni hálfelik bar það helst til tíðinda að dómari leiksins Howard Webb gerði afdrifarík mistök þegar hann dæmdi mark af Newcastle. Mark Viduka skallaði glæsilega í mark Fulham en á einhvern óskiljanlegan hátt dæmdi Webb markið af. Hann taldi að Nolan hafði brotið á Mark Schwarzer en svo var alls ekki. Tvímælalaust vendipunktur leiksins því Newcastle hafði stjórnað leiknum fram að því. Stuttu seinna var svo Bassong rekinn útaf eftir að hann braut á Kamara sem var að sleppa einn í gegn. Leikmenn Newcastle reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn og fengu gott færi á lokamínútnni en Schwarzer varði glæsilega og 0-1 tap staðreynd.

NUFC: Harper, Beye, Steven Taylor, Bassong, Duff, Guthrie (Ryan Taylor 62), Butt, Nolan, Gutierrez (Lovenkrands 76), Martins, Viduka (Carroll 80).

Ónotaðir varamenn: Krul, Coloccini, Smith, Ameobi.

Rautt spjald: Bassong (60 mín)

Skot (á mark): Nufc 12 (6) - Ful 12 (5)

Hornspyrnur: Nufc 6 - Ful 2

Áhorfendur: 52,114

Maður leiksins:  Mark Viduka

(FB)

 

15.Maí

  

 

NEWCASTLE - Fulham

 

Síðasti heimaleikurinn og sá allra mikilvægasti

Þessi leikur verður mun erfiðari en leikurinn gegn Boro síðasta mánudag enda er Fulham í harðri baráttu um sæti í Evrópukeppni félagsliða. En með sigri í þessum leik gæti Newcastle farið langt með að tryggja sæti sitt í deildinni. Af leikmönnum er það að frétta að Jose Enrique er enn meiddur og verður ekki með. Alan Smith er tæpur og eru 50% líkur á að han verði í hópnum.  Líklegt byrjunarlið á morgun er svona: Harper, Beye, S Taylor, Bassong, Duff, Guthrie, Butt, Nolan, Lovenkrands, Owen, Viduka.

Ég reikna alveg með að Lovenkrands komi inn í byrjunarliðið í stað Jonas Gutierrez enda stóð Daninn sig einkar vel þegar hann kom inná gegn Boro. Oba Martins æfði ekkert í dag en hann á við smávægileg meiðsli í nára að stíða en hann verður pottþétt á bekknum og tilbúinn að koma inná eins og hann gerði svo eftirminnilega síðasta mánudag. Fyrri leikur liðanna í vetur endaði með 2-1 sigri Fulham og skoraði Ameobi mark Newcastle. Á síðasta tímabili sigraði Newcastle leik liðanna á St James´ Park

2-0 og skoruðu Viduka og Owen mörk Newcastle.

 

Leikmannahópurinn:

Harper, Forster, Krul, Beye, Bassong, Coloccini, S Taylor, Edgar, Cacapa, Butt, Duff, R Taylor, Gutierrez, Nolan, Guthrie, Lovenkrands, Geremi, Smith, Martins, Owen, Viduka, Carroll, Xisco, Ranger.

 

Dómari leiksins verður Howard Webb.

 

Vonandi að leikmenn Newcastle sýni sömu baráttu og þeir gerðu gegn Boro og tryggji liðinu þrjú dýrmæt stig í fallbaráttunni.

TOON TOON