31.3.2006
Bow fyllir skarð
Lee Bowyer fær líklega það erfiða verkefni að fylla skarð Scott Parker út tímabilið. Bowyer hefur svo sem leikið þokkalega upp á síðkastið en þrátt fyrir það verður hann að bæta töluvert í til að verða jafnoki Parkers. Erfitt er að segja til um hvernig Roeder stillir upp liðinu gegn Spurs. Emre hefur verið frekar slakur að undanförnu og því kann vel að fara svo að Kieron Dyer verði á miðjunni með Bowyer. Þá hefur Nol Solano ekki heldur verið upp á sitt besta í síðustu leikjum eftir magnaðan sprett. Roeder hefur svo það erfiða verkefni að hvetja menn til dáða á lokaspretti sem virðist skipta harla litlu máli. Þó má alltaf benda á stoltið og það að menn séu að sýna sig fyrir næsta stjóra. Spurningin er bara hvort sumum sé ekki nokk sama. Vonandi er það ekki raunin því það er fátt leiðara en að sjá andlaust lið Magpies að störfum. Áhangendur krefjast þess að sjá menn gefa allt í þessa leiki sem eftir eru og hala inn eins mörg stig og mögulegt reynist.
30.3.2006
Vélstjórinn úr leik
Líkur eru á að Scott Parker verði ekki við störf á miðjunni það sem eftir lifir tímabils. Parker hefur verið sendur í blóðprufu þar sem óttast er að hann sé með einkirningasótt (glandular fever) en James Milner hefur verið frá vegna sama krankleika. Ef þetta reynist rétt er talið víst að Parker verði skipað að hvíla út tímabilið. Glenn Roeder hefur verið tjáð að búa sig undir það versta og reyndar er talið að Parker hafi þjáðst af veikindunum í rúman mánuð. Menn fór að gruna að ekki væri allt með felldu þegar leikmaðurinn kvartaði yfir gríðarlegri þreytu eftir leikinn gegn Charlton.
Roeder segir að menn bíði eftir niðurstöðu úr greiningu en allar líkur séu á að þetta sé málið. „Þegar ég lít til baka á leikinn gegn Bolton (4. mars) þá sá ég ekki þann Scott Parker sem ég þekki fyrstu 15 mínúturnar, hann var ekki hlaupandi um af sínum hefðbundna krafti og ég var að reyna að hvetja hann áfram frá hliðarlínunni, það virkaði og hann reif sig upp og átti mjög góðan leik. Ef að hann hefur þjáðst af þessu allan þennan tíma þá segir það allt um hann sem mann. Margir gefast upp af minnsta tilefni en það gerir Scott ekki. Hann hefur haldið áfram þrátt fyrir verkina, verið að niðurlotum kominn en aldrei gert mikið úr því. Þegar ég fylgdist með honum á sunnudaginn tók ég eftir því að hann var hættur að komast til baka síðustu 15 mínúturnar. Þegar ég kom inn í búningsklefann sat hann niðurlútur og alveg búinn á því. Þá var skynsamlegt að senda hann í blóðprufu,“ segir stjórinn.
Roeder segir að baráttuhugur Parkers sé einstakur og að það væri mun auðveldara að stýra liðinu ef hann hefði 20 menn eins og miðjumanninn sterka. Það verður gríðarlegt áfall að missa Parker en ekkert við því að gera. Nú mun sannarlega reyna á aðra leikmenn því Parker hefur verið langbesti miðjumaður Newcastle á tímabilinu og í raun er hann eini leikmaðurinn sem ógnar Shay Given í vali á leikmanni ársins. Roeder segir að menn verði bara að vona að Parker eigi eftir mörg góð ár hjá Newcastle United og víst er að þar eru stuðningsmenn félagsins sammála.
30.3.2006
Spilar Bramble?
Titus Bramble mætti á æfingu í morgun og svo kann að fara að hann verði látinn spila gegn Spurs. Roeder segist vilja gefa Peter Ramage frí en það hefur ekki verið hægt sökum manneklu. Roeder segir reyndar óvíst að Bramble verði leikfær en þetta séu engu að síður mjög góðar fréttir. Ef leikmaðurinn komist vandalaust í gegnum æfingar í dag og á morgun komi hann sannarlega til greina. Ekki megi hins vegar senda hann í leik of snemma, það geti þýtt þrjár til fjórar vikur í viðbót í endurhæfingu og í raun stútað leiktíðinni fyrir Bramble. Robbie Elliott tekur væntanlega vinstri bakvarðarstöðuna gegn Spurs og ef Bramble verður heill mun Roeder væntanlega gefa Ramma frí. Líklega kæmi þá Bramble inn í liðið í stað Craig Moore sem átti slæman dag gegn Charlton. Roeder segir Babayaro verða kláran um miðjan næsta mánuð og þá ætti Albert Luque einnig að verða orðinn heill en meiðslin sem hann varð fyrir í varaliðsleiknum á dögunum reyndust ekki eins slæm og óttast var í fyrstu.
30.3.2006
Aftur til Frans?
Jean-Alain Boumsong hefur ekki náð að standa undir háum verðmiða. Nú berast þær fregnir frá Frakklandi að Monaco hafi hug á að fá hann til liðs við sig í sumar. Væntanlega yrði Boumsong kátur með að komast heim því hann hefur mátt þola gríðarlega gagnrýni í Englandi, á stundum verðskuldaða en stundum heldur ósanngjarna. Annars hlýtur óvissan með stjóramálin hjá Newcastle að hafa þau áhrif að leikmenn eru í fullkominni óvissu um framtíð sína hjá félaginu. Slíkt getur ekki verið gott, allra síst í svo langan tíma. Það er þó á hreinu að áhangendur félagsins myndu ekki sjá sérstaklega eftir Boumsong, flestir eru búnir að fá meira en nóg af furðulegum mistökum leikmannsins. Það er þó verst að Fransmennirnir munu aldrei borga nema brot af þeirri upphæð sem Souness greiddi fyrir Boumsong en slíkt er nú að verða regla með Newcastle United. Félagið virðist tapa á leikmannaviðskiptum í nær öllum tilvikum.
John Beresford skrifar um Boumsong í Chronicle í dag og biður menn að koma með ástæðu þes að leikmaðurinn hafi spilað svo illa sem raun ber vitni. Staðsetningar hans í leikjunum gegn Charlton og Liverpool hafi á köflum verið alveg ótrúlegar og engu líkara en maðurinn væri alveg búinn að missa allt skyn á sparkmennsku. Bez segist í raun hata að skammast út í einstaka leikmenn en hann segist hafa rætt þetta við menn á borð við Gary Pallister, Colin Cooper og Kevin Ball og þeir séu sammála. Allir viti að Boumsong sé frábær íþróttamaður og franskur landsliðsmaður og í miklum metum sem slíkur. Einhverja hluta vegna fari bara allt í vaskinn hjá manninum þegar hann klæðist búningi Newcastle.
Bez segist hafa gert mistök þegar hann var varnarmaður félagsins en Boumsong virðist gera sömu mistökin aftur og aftur. Þau séu af öllum gerðum, hvort sem hann sé að dekka menn, staðsetja sig eða einfaldlega taka ákvörðun. Hann geri allt vitlaust. Það sé þó verst að mistökin séu einna líkust þeim sem menn geti búist við af 14 eða 15 ára gömlum krökkum.
Bez segir menn ræða mikið um varnarmennskuna og að það verði að fá nýtt blóð fyrir næsta tímabil. Menn hafi nefnt Woodgate en hann segist ekki geta reiknað með að Woody hafi hug á að breyta til strax. Hann ætli sér áreiðanlega að ná sér fullkomlega af meiðslum og halda sínu striki. Hvað restina af þessu tímabili varði þá verði bara að vona að Boum reyni nú að taka sig saman í andlitinu og spila eins og maður. Þá megi kannski gera eitthvað gott á lokasprettinum og best væri að byrja bara á laugardaginn gegn Spurs.
30.3.2006
Ekki aftur
Kieron Dyer segist ekki ætla að taka sæti í enska HM hópnum nema hann verði 100% heill. Dyer lék síðast með landsliðinu gegn Azerbaijan fyrir u.þ.b. ári en hefur síðan mestmegnis verið frá vegna meiðsla og veikinda. Dyer hefur aðeins náð að spila 10 leiki með Magpies á tímabilinu en hann er að komast í form og sumir telja að hann eigi enn séns á að komast í landsliðið. Dyer var með í síðustu heimsmeistarakeppni og kom þá þrisvar inná sem varamaður. „Ég lærði mikilvæga lexíu 2002. Ég var ekki í lagi, ég var ekki 100% heill og maður kemst ekki upp með slíkt í keppni landsliða. Ég sagði þá að ef ég lenti aftur í sömu stöðu myndi ég ekki fara. Ef ég yrði spurður hvort ég væri til í að fara myndi ég gefa heiðarlegt svar. Og ef ég væri ekki í fullkomnu lagi þá myndi ég segja það. Ég vil ekki ganga aftur í gegnum það sama og gerðist síðast,“ segir Dyer.
30.3.2006
Houllier langar
Fréttir herma að Gerard Houllier vilji taka við stjórnartaumum á SJP. Houllier er stjóri Lyon sem í gær gerði markalaust jafntefli við AC Milan í fyrri leik liðanna í meistaradeildinni. Roberto Mancini stjóri Inter Milan hefur reyndar einnig verið orðaður við Magpies en Inter vann Vilarreal í gærkvöldi. Samkvæmt Alan Oliver hjá Chronicle hafa fulltrúar Mancinis haft samband við stjórn Newcastle og eins á Houllier að hafa talað við Fredda. Freddi er enn þögull sem gröfin en áhangendur bíða í ofvæni. Samkvæmt fregnunum frá Frakklandi semur Houllier ekki vel við stjórnanda sparkmála hjá Lyon og hefur stjórinn sagt að sig dauðlangi til að komast aftur í ensku úrvalsdeildina. Oliver segist samt harður á því að mestar líkur séu á að Martin O’Neill verði ráðinn. Hann sé númer eitt á óskalistanum. Hann heldur fast við þá sögu að Shepherd hafi rætt við Martin þann 11. febrúar og aðeins hafi þurft að ganga frá nokkrum lausum endum. Það hafi ekki breyst. Martin O’Neill sé enn sá sem áætlun A miðist við en síðan sé auðvitað B áætlun ef eitthvað komi í veg fyrir að hann taki við. Og Oliver segist bara vona að í varaáætluninni séu menn að hugsa um nöfn á borð við Stuart Pearce, Mark Hughes og Roeder en ekki Moyes, Allardyce, Hitzfeld, Bruce, McClaren, Graham eða O’Leary.
29.3.2006
Farinn að tækla
Steven Taylor er farinn að æfa með félögunum eftir langt meiðslahlé. Glenn Roeder segist telja að drengurinn muni spila á ný eftir 3-4 vikur. Heyrst hafði að hann yrði ekkert meira með á tímabilinu en Roeder segir ekkert til í því. Stjórinn sagði Taylor hafa verið með í fyrsta sinn á föstudaginn og þá hafi hann sagt leikmönnum að forðast alla árekstra við hann. „En í gær var þetta komið út í alvöruna og hann var ekki bara nærri búinn að skera Lee Clark í tvennt heldur nærri því búinn að tækla mig útaf því ég stóð þarna rétt hjá honum. Ég get séð reiðina í augum hins unga Stevens, reiðina yfir því að hafa misst af svo mörgum leikjum og ég get ekki annað en hugsað hve mikið við þyrftum á honum að halda núna. Hann er farinn að hlaupa og sparka bolta og færist nær því að vera 100% heill en það sem vantar uppá er að hann geti hreyft öxlina eðlilega. Hann er gríðarlegt efni og bíður eftir því að komast aftur í svörtu og hvítu treyjuna og ég get ekki séð ástæðu til að ætla annað en hann spili eftir þrjár eða fjórar vikur,“ segir Roeder.
Það er eins gott að menn geri ekki aftur þau mistök að taka sénsa með Taylor en hann hefur ekki leikið frá því á annan dag jóla er hann meiddist gegn Liverpool. Titus og Baba verða enn fjarri góðu gamni næsta laugardag en Roeder mun þó geta valið úr fimm varnarmönnum sem er nú betra en stundum áður.
28.3.2006
Ó Lukki!
Það á ekki af Albert Luque að ganga. Í kvöld meiddist hann í leik með varaliði Magpies gegn Aston Villa og það eftir aðeins um tíu mínútur. Markmiðið var að Luque gæti náð að efla formið en hann lenti í tæklingu gegn Gary Cahill og meiddist á ökkla. Eftir að læknir liðsins hafði reynt að lappa upp á Luque haltraði hann af velli. Leikurinn var annars slakur hjá Newcastle því Villa var komið í 2-0 áður en Luque fór útaf. Gabriel Agbonlahor skoraði á 3. mínútu og fjórum mínútum síðar bætti Tobias Mikaelsson við marki. Newcastle var reyndar sterkari aðilinn í seinni hálfleik en á 74. mínútu skoraði Craig Gardner þriðja mark Villa úr víti. Þetta var síðasti útileikur Newcastle á tímabilinu en vonandi nær liðið einhverjum stigum heima áður en yfir lýkur. Varalið Villa hefur leikið vel á tímabilinu og er við toppinn en Newcastle nokkru neðar. Amdy Faye lék einnig að þessu sinni og var skipt útaf eftir 70 mínútur.
Lið Newcastle: Forster, Baxter, Cave (Shanks 57), Edgar, Huntington, Gate, Brittain, Faye (Marshall 70), Chopra, Luque (Farman 13), O'Brien.
28.3.2006
Uppselt!
Það er ekki á hverjum degi að uppselt er á heiðursleiki knattspyrnumanna. Sannarlega er það því við hæfi að þegar er orðið uppselt á lokaleik Alan Shearer þann 11. maí en þá mun úrvalslið leika gegn Celtic á SJP. Í dag var svo tilkynnt að snillingarnir Les Ferdinand, Rob Lee, Gary Speed og Steve Watson myndu allir verða með í leiknum. Víst er að þessi leikur kemur til með að verða einstakt sjónarspil og áreiðanlega stór stund í sögu Newcastle United þó svo að engu sé að keppa. Þarna lýkur ferli sínum einn magnaðasti leikmaðurinn í sögu enska boltans. Ágóðinn rennur til góðgerðarmála og er vonast til að yfir ein milljón punda komi í kassann. Shearer segir þetta verða eina stærstu stund lífs síns. Hann segist mjög ánægður með að fjórmenningarnir hafi þekkst boð sitt um að verða með. Shearer segir að Celtic muni mæta með sitt sterkasta lið og að hann vilji að þetta verði alvöru leikur.
28.3.2006
Fer Chops til Oldham?
Sagt er að Oldham hafi hug á að fá Michael Chopra í sínar raðir. Chops verður áreiðanlega látinn fara frá Newcastle enda virðist sýnt að hann hafi ekki það sem til þarf í úrvalsdeildarbaráttunni. Nýlega hafnaði Newcastle lánsbeiðni frá Yeovil en víst þykir að mörg lið vilji fanga framherjann í sumar. Oldham hefur staðið sig ágætlega á tímabilinu og gæti enn komist í play-off keppni 1. deildar.
28.3.2006
Ekki á förum?
Albert Luque segist staðráðinn í að bæta stuðningsmönnum upp slaka frammistöðu sína á tímabilinu. Nokkuð hefur verið um sögusagnir þess efnis að hann muni flýja til Spánar í sumar en Luque hefur hug á að sanna sig í Englandi. Glenn Roeder telur að framherjinn eigi eftir að sanna sig í búningi Magpies, ef hann geri það ekki á lokaspretti tímabilsins þá muni hann mæta öflugur í slaginn næsta haust. „Ég hef sannarlega ekki misst trúna á hann og ég nýt þess að vinna með honum daglega,“ segir Roeder sem fundaði með Luque og ráðgjöfum hans ásamt Fredda Shepherd í síðustu viku. „Ég talaði við Albert og hann er mjög ákveðinn maður. Við náum vel saman og hann viðurkennir fyrstur manna að hann hafi átt erfitt uppdráttar á fyrstu leiktíð í úrvalsdeild. Hraðinn í enska boltanum hefur komið honum á óvart. Í úrvalsdeildarboltanum er alltaf allt á fullu allan tímann en í spænska boltanum skiptist þetta í hratt-hægt-hratt-hægt-hratt-hægt. Ekki hjálpaði að hann skyldi meiðast hroðalega illa á fyrstu vikunum hér og það hefur tekið hann langan tíma að ná sér.“
Roeder ætlar að reyna að koma Albert á skrið á næstunni og ætlar meira að segja að redda einhverjum æfingaleikjum í þeim tilgangi. Þá mun Spánverjinn væntanlega spila með varaliðinu til vors og reyna að styrkja sig þannig. Roeder telur að hann muni mæta öflugur í júlí.
26.3.2006
Sveltur sitjandi kráka
Newcastle tapaði á The Valley í dag. Fjórða tap liðsins í röð og allt bendir til að það endi fyrir neðan miðja deild. Á heldur ekkert meira skilið. Enn eina ferðina varð herfilegur varnarleikur liðinu að falli og þó að Toonarar næðu að stjórna leiknum á löngum köflum gekk ekkert að setja lokahnykk á sóknir. Fyrsta mark Charlton kom úr víti sem var dæmt á Craig Moore eftir að Ramage hafði gert hræðileg mistök. Scott Parker jafnaði með gullmarki en aðeins um mínútu síðar gerði Lee Bowyer sjálfsmark sem var alveg dæmalaust slysalegt. Undir lokin tryggði svo varamaður Charlton sínum mönnum sigurinn úr vænu skyndiupphlaupi. Það er bara vonandi að Freddi geti farið að drífa í að fá nýjan mann í brúna svo uppbyggingarstarf geti hafist sem allra allra fyrst. Það er svo þreytt að horfa upp á ólánsmáfana sveima yfir félaginu.
25.3.2006
Vilja Martin
Shay Given sendir stjórn Newcastle skýr skilaboð í fjölmiðlum í dag. Hann segir að Martin O’Neill myndi hafa gríðarlegan stuðning leikmanna ef hann yrði ráðinn. Stuðningsmenn hafa eðlilega áhyggjur af því að missa toppmenn á borð við Given en hann hefur frestað samningsviðræðum fram á sumar. Í gær sagði svo Emre að hann vissi ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér en væntanlega réðist framtíð hans af því hvaða metnað stjórn Newcastle myndi sýna í sumar. Það er því á hreinu að ráðning næsta stjóra kemur til með að skipta sköpum fyrir Newcastle.
Given segir um Martin O’Neill: „Ég myndi elska að fá hann um borð. Martin stóð sig frábærlega með Celtic. Hann vann meira að segja bikar hjá Leicester og hver hefði trúað því? Hann hefur náð framúrskarandi árangri, er frábær gaur og elskar fótboltann. Ég veit ekki hvað er í gangi á bak við tjöldin eða hvað stjórnarformaðurinn er að gera en ég er viss um að hann vinnur hörðum höndum að því að reyna að fá einhvern af slíku kalíberi. Ég veit auðvitað ekki hver það verður en ef þið spyrjið leikmenn og áhangendurna á götunni þá sjáið þið að menn eru mjög spenntir fyrir að Martin O’Neill fái djobbið.“
25.3.2006
Númer 400
Alan Shearer mun leika 400. leik sinn fyrir Newcastle gegn Charlton á morgun. Hreint ótrúlegur áfangi enn eina ferðina hjá meistaranum mikla. Annars eru stór skörð í hópinn. Robbie Elliott verður í leikbanni og Babayaro er frá vegna meiðsla. Titus Bramble er enn ekki leikfær en Charles N’Zogbia er í hópnum. Þeir átján sem fóru til Lundúna eru eftirtaldir: Shola Ameobi, Jean Alain Bomsong, Lee Bowyer, Stephen Carr, Michael Chopra, Lee Clark, Kieron Dyer, Emre, Amady Faye, Shay Given, Steve Harper, Craig Moore, Charles N'Zogbia, Scott Parker, Matty Pattison, Peter Ramage, Alan Shearer, Nobby Solano
25.3.2006
Er hann að horfa?
Glenn Roeder hefur sagt leikmönnum sínum að næsti stjóri Newcastle sé þegar farinn að fylgjast náið með liðinu til að móta framtíðarhugmyndir sínar um klúbbinn. Roeder segir að hann viti ekki hvenær nýr maður verði ráðinn, hann hugsi bara um næsta leik því hann kunni að verða sinn síðasti. Vel kunni að fara svo að hann stýri liðinu út tímabilið. „En það hljóta að vera menn þarna úti með metnað til að stýra þessu fótboltaliði og þeir munu fylgjast grannt með þessum síðustu átta leikjum. Ef leikmennirnir standa sig ekki get ég ekki ímyndað mér að nýi stjórinn vilji halda þeim. Ef svo verður þá mun það þýða skref niður á við fyrir viðkomandi leikmann, hver sá sem hann er. Þú ferð ekki frá Newcastle til betri félags, þetta er svo maður vitni í Jose, einstakur klúbbur,“ segir Roeder.
Og stjórinn er með skýr skilaboð varðandi framhaldið. „Ef ég væri leikmaður Newcastle, sem ég er því miður ekki, þá myndi ég telja að við gætum unnið alla fjóra heimaleikina og alla fjóra útileikina sem eftir eru. Ég myndi vilja halda stuðningsmönnunum heitum og efla trú þeirra á að þeir sjái liðið spila með sigurvilja. Ég vil ekki hafa leikmenn hér sem trúa því að þeir hafi ekki að neinu að keppa út tímabilið. Hver sem stjórinn verður þá myndi hann ekki heldur vilja þá hér. Maður fær slíka menn en það er algjörlega óviðunandi.“
25.3.2006
Skrúfan hert
Michael Owen hefur gengist undir aðra aðgerð vegna beinbrotsins. Reiknað hafði verið með að hann gæti spilað á ný gegn Boro þann 9. apríl en nú er orðið ólíklegt að hann spili fyrr en undir lok mánaðarins. Þetta er slæmt, ekki bara fyrir Newcastle, heldur einnig England, því ljóst er að hann fær ekki langan tíma til að koma sér í form fyrir HM. Í raun kom ekki upp neitt vandamál, heldur var verið að herða skrúfu til að hraða bata. Owen segir að sérfræðingarnir hafi fullvissað sig um að hann yrði kominn á skrið með Magpies áður en tímabilinu lyki.
25.3.2006
Ókyrrð
Greinilegt er að biðin eftir nýjum stjóra er farin að valda nokkurri ókyrrð á Tyneside. Shay Given frestar samningaviðræðum, Emre segist bíða átekta og Albert Luque virðist ekki vera að reyna að komast í liðið þó hann segist ætla að sanna sig. Allir vita svo að Michael Owen sættir sig ekki við eitthvað varaskeifudót. Staða Fredda er erfið. Krafan er sú að hann reddi málum fljótt og örugglega en einnig sú að hann velji rétt. Í raun er seinna atriðið það mikilvægasta, það væri hroðalegt fyrir Newcastle að ráða stjóra sem ekki ríkir nánast algjör sátt um, á meðal leikmanna og stuðningsmanna. Líklega hefur stjóraráðning sjaldan verið jafn mikilvæg í sögu Newcastle. Við getum ekkert annað en beðið og vonað að Freddi reddi rétta manninum.
23.3.2006
Annar bikardraumur á enda
U18 lið Magpies féll í kvöld úr bikarnum, rétt eins og aðalliðið í gær. Drengirnir gerðu 1-1 jafntefli í seinni leiknum gegn Man City en það dugði ekki þar sem City hafði unnið 3-2 á SJP. City mætir Liverpool í úrslitum en Liverpool vann Southampton í vítakeppni. City náði forystu í leiknum í kvöld þegar Daniel Sturridge skallaði í mark eftir 16 mínútna leik. Nicky Deverdics jafnaði metin af stuttu færi á 35. mínútu. Skoraði eftir langt innkast Lewis Marr. Newcastle tókst hins vegar ekki að bæta við markinu sem þurfti til að knýja fram framlengingu.
Lið Newcastle: Forster; Cowan, Deverdics, Huntington(c), Marr, Lua Lua (Doninger 57), Godsmark (Troisi 46), Cavener, Critchlow, Carroll.
23.3.2006
Ágætis byrjun
Craig Moore getur verið sáttur með fyrsta leik sinn í aðalliði Newcastle. Moore kom inná snemma í seinni hálfleik og stóð sig vel í vörninni. Moore segist staðráðinn í að berjast af hörku fyrir sæti í liðinu og nýta vel tímann til vors. Átta leikir eru eftir og stefna Newcastle hlýtur einfaldlega að vera að hirða eins mörg stig og frekast er unnt. Ljúka leiðu tímabili á jákvæðum nótum. „Þetta var langþráð en hefði verið skemmtilegra ef við hefðum náð hagstæðum úrslitum,“ sagði Moore. „Strákarnir börðust vel, við gáfumst aldrei upp þrátt fyrir áfall snemma leiks og það var ólán að þetta var ekki okkar dagur. Hvað innkomu mína varðar þá var þetta bara spurningin um að halda þéttleikanum í vörninni því við vorum auðvitað að reyna að finna okkur aftur leið inn í leikinn. Þá er alltaf hættan á skyndisóknum en við létum þá ekki komast upp með að bæta við og það var bara synd að við gætum ekki borað inn marki. Markið í upphafi gerði okkur gríðarlega erfitt fyrir og við náðum ekki að leysa verkefnið. Okkur skorti bara þetta litla sem þurfti til að opna vörnina þeirra. Nú er markmið mitt að ná eins mörgum leikjum og ég get áður en tímabilinu lýkur. Ég hef verið á bekknum síðustu tvo leikina og fékk svo fyrsta tækifærið gegn Chelsea. Þetta var síðasti sénsinn okkar á að vinna bikar en þar sem enn eru eftir átta leikir þá eru enn stig í pottinum og við getum enn lokið tímabilinu af krafti. Það væri synd að láta tímabilið bara koðna niður en ég held að það muni ekki gerast því við erum allir að berjast fyrir sæti okkar á næsta tímabili.“
23.3.2006
Skammarlegur
Alan Shearer og Robbie Elliott sameinuðust í gagnrýni á Shaun Wright Phillips eftir dýfingar hans í leiknum í gær. Robbie segir að rauða spjaldið kunni að hafa bundið endi á tímabil hans. „Ég verð í banni gegn Charlton á sunnudaginn og þar sem Jean Alain Boumsong og Titus Bramble koma aftur og Craig Moore er kominn á skrið þá er ekki víst ég komist aftur í liðið. Ég er sem stendur að spila fyrir nýjum samningi og að berjast fyrir framtíð minni og þetta gæti eyðilagt hana. Ég hætti við að fara í Wright-Phillips og samt dettur hann í grasið. Þetta eru mikil vonbrigði og ég bar mikla virðingu fyrir stráknum en svo er ekki lengur. Vonandi mun dómarinn skoða þetta og sýna þann heiðarleika að fella spjaldið niður,“ segir Robbie og er óhætt að taka undir þau orð.
Alan Shearer fékk spjald fyrir að mótmæla brottrekstrinum og hann segir: „Þetta hafði ekki úrslitaáhrif í leiknum en þetta var hörmuleg dýfa. Það var nákvæmlega engin snerting og það leit þannig út fyrir mér. Nú er ég búinn að sjá þetta aftur og það er á hreinu.“
Roeder er sammála drengjunum og segist telja að faðirinn Ian Wright sé ekki ánægður með strákinn.
23.3.2006
Í höndum Bennetts
Newcastle verður að treysta á að Steve Bennett endurskoði ákvörðun sína um að gefa Elliott seinna gula spjaldið gegn Chelsea. Ekki er hægt að áfrýja en ef Bennett er heiðursmaður kann hann að breyta afstöðu sinni. Bennett ákvað að breyta rauðu spjaldi Jenas gegn Arsenal í gult eftir fyrsta leik tímabilsins svo kannski er von. Glenn Roeder segir að Babayaro kunni að verða frá í einhvern tíma og eins og staðan sé nú verði liðið án Elliotts á sunnudaginn. Vinstri bakverðir séu því einfaldlega ekki til staðar og því verði menn að vona að dómarinn skoði atvikið og sjái að sér. Nánast allir hafi séð að Robbie vék sér í raun frá og hleypti Phillips framhjá. Roeder hefur aldrei verið þekktur fyrir að mögla í dómurum en eftir leikinn í gær ræddi hann lengi við Bennett. „Ég ræddi við dómarann og ég veit að þetta er alltaf að verða erfiðara fyrir þá og það er sérlega erfitt að taka ákvörðun um svona atvik. Ef hann skoðar þetta aftur þá er ég viss um að hann verður óánægður, ekki bara með sjálfan sig, heldur einnig Chelsea-manninn. Robbie er reyndur varnarmaður sem hafði þegar verið bókaður og hann vissi að betra væri að láta manninn sleppa en að brjóta á honum,“ sagði Roeder.
Eitt það jákvæðasta við leikinn í gær var framganga Craig Moore og Roeder var sammála því. „Craig Moore naut greinilega fyrsta leiksins með aðalliðinu og hann nýtti alla sína leikreynslu.“
23.3.2006
Tökum ofan hattinn
Bikardraumurinn er úti. Shearer kveður Newcastle án þess að hampa. Í raun bjóst enginn við því að Newcastle gæti fellt Chelsea úr bikarnum annað árið í röð. 1-0 tap var þó ekki slæmt og það er óhætt að taka ofan fyrir liðsmönnum Magpies sem áttu ágætan leik og börðust allan tímann af krafti. Það er hins vegar jafn ljóst að nú verður að fá nýjan stjóra sem allra fyrst og fara að leggja línur fyrir næsta tímabil. Því fyrr því betra.
21.3.2006
Sendur í frí
Jean Alain Boumsong var sendur heim til Frakklands í frí eftir axarskaftið gegn Liverpool. Stuðningsmenn Magpies eru óðum að missa þolinmæðina gagnvart þessum rándýra leikmanni sem hefur hreint ekki verið sannfærandi þetta tímabilið. Roeder leyfði Boumsong að fara heim til Parísar og vera með ófrískri konu sinni. Líklega hefur stjórinn viljað leysa Frakkann undan þeirri áþján að fá á sig holskeflu gagnrýnisradda en enskir miðlar hafa farið háðulegum orðum um varnarmanninn. Boum snýr heim annað kvöld og mætir á æfingu á fimmtudag en Newcastle leikur gegn Charlton á sunnudaginn.
21.3.2006
Hverjir spila?
Menn velta nú fyrir sér hvernig Roeder ætli að stilla upp liðinu gegn Chelsea á morgun. Babayaro er öruggur í sinni stöðu en annars er fátt öruggt með vörnina. Ef Carr verður klár í byrjunarlið verður Ramage áreiðanlega miðvörður með Elliott en Craig Moore á bekknum. Ef Carr verður ekki klár verður Ramage að taka bakvörðinn og Moore miðvörðinn með Elliott. Allt bendir því til að Elliott sé einnig öruggur með sitt sæti.
Albert Luque fór ekki með liðinu til Lundúna nú síðdegis og greinilegt að Spánverjinn á langt í land með að ná leikformi. Charles N’Zogbia var hins vegar í hópnum en alls ekki er víst að hann verði í byrjunarliði eftir slappa frammistöðu í síðustu leikjum. Það er allt eins líklegt að Kieron Dyer fái að byrja að þessu sinni, nú eða Lee Bowyer. Líklega mun Roeder ekki greina frá uppstillingu fyrr en rétt fyrir leik og það sama gildir um Móra. Hann er ekki vanur að kynna uppstillingu sína fyrr en á síðustu stundu. Það er þó ljóst að þeir Arjen Robben og William Gallas verða í banni.
21.3.2006
Borur teknar í nefið
Varalið Magpies vann í gær sannfærandi sigur á grönnum sínum frá Middlesbrough. Leikið var í Newcastle og fóru heimamenn með 3-0 sigur af hólmi en Boro var í 2. sæti deildarinnar fyrir leikinn. Daryl Smylie skoraði fyrsta markið eftir aðeins þrjár mínútur og er óhætt að segja að markmaðurinn Bradley Jones hafi átt sök á því. Missti boltann klaufalega í netið. Tíu mínútum síðar gerði markmaðurinn svo annað axarskaft, missti boltann frá sér eftir skot Chopra og Matty Pattison setti í netið. Varamaðurinn Michael Terrell bætti svo þriðja markinu við í seinni hálfleik, með viðstöðulausu skoti úr teignum eftir hornspyrnu. Fyrsta snerting þessa 18 ára stráks í leiknum.
Lið Newcastle: Caig, Baxter (Marshall 79), Cave, Farman, Edgar, Gate, Smylie, Pattison, Finnigan, Chopra (Terrell 65), O'Brien.
21.3.2006
Smá hreyfing en?
Þó Freddy og félagar hafi eflaust verið önnum kafnir í stjóraleit á bak við tjöldin hefur lítið heyrst af þeim málum síðustu dagana. Einhver hreyfing kom þó á málin í dag því nafn David Moyes bættist skyndilega á listann yfir mögulega stjóra. Samkvæmt The Journal er Martin O’Neill efstur á óskalistanum en menn bíða átekta þar sem hann á að funda með enska sparksambandinu á næstunni. Fréttirnar um Moyes bárust frá Liverpool og sagt var að Freddy vildi hafa nokkra til vara þar sem allt sé í óvissu varðandi Martin, ekki bara vegna landsliðsins heldur einnig vegna veikinda konu hans. Þá var sagt í The Journal að fregnir frá Loerrach, heimabæ Ottmar Hitzfeld, hermi að Newcastle menn hafi orðað þann möguleika að hann komi til félagsins.
Talið er að Martin O’Neill hafi verið efstur á óskalista Fredda alveg frá því hann rak Souness. Einhverjir stjórnarmenn eru hrifnir af Stóra Sam en Freddi ku ekki vera sannfærður um að hann sé sá rétti. Þó svo að Shepherd hafi sagt að hann geti beðið fram á sumar þá er alveg ljóst að betra væri að fá nýjan mann sem allra fyrst. Ráðningin kann að skipta sköpum varðandi framtíð lykilmanna á Tyneside og nægir þar að nefna Shay Given og Michael Owen.
Ekki kom á óvart að Newcastle og Everton skyldu svo sameinast í því að afneita sögunni um Moyes síðdegis. Freddy Shepherd sagði ekki á döfinni að ræða við hann, fréttirnar væru algjör uppspuni.
20.3.2006
Carr til bjargar?
Brottrekstur Boumsongs þýðir leikbann gegn Chelsea á miðvikudag og það er ekki gott því meiðslastandið er mikið á varnarmönnum. Líklega verða þeir Stephen Carr og Craig Moore þó klárir í slaginn og líklegast er þá að Carr komi í bakvarðarstöðuna og Ramage verði miðvörður við hlið Elliotts. Leikurinn á Brúnni verður áreiðanlega svaðalega erfiður enda Chelsea sært dýr eftir tap gegn Fulham um helgina. Þá á Lundúnaliðið harma að hefna gegn Newcastle í bikarkeppninni. Það er í raun hræðilegt að geta ekki mætt Chelsea með öflugasta liðinu en þetta er svo sem í takt við tímabilið hingað til.
19.3.2006
Boum Boum Krass!
Pling búmm krass argh gisp! Klang krakk, Zzzzzz, hmmmm,gúlp gisp! Úff púff. Úlp! SPRAMM! Þetta er tilraun til að lýsa mistökum þeim er Jean Alain Boumsong gerði sig sekan um gegn Liverpool á SJP í dag. Tilraunin er líklega jafn misheppnuð og varnarleikur þessa lánlausa Frakka sem minnir á löngum köflum einna helst á Vilhjálm Vandráð með leikfimiæfingar sínar í hinni mögnuðu bók Hergés, Flugrás 714 til Sidney. Það er þó einföldun að kenna Boumsong alfarið um tapið því liðsmenn Newcastle voru steinsofandi allan fyrri hálfleikinn og heppnir að vera aðeins 2-1 undir í hléi. Mark Shola Ameobi undir lok hálfleiksins gaf hins vegar von og Boumsong sá um að drepa hana algjörlega. Ekki nóg með að hann gæfi víti heldur lét hann reka sig af velli en reyndar var vörnin alls ekki verri eftir að hann fór. Líklega geta Newcastle menn endanlega kvatt Evrópudrauminn, það virðist ekki nokkur von til að liðið nái að hala inn nægilega mörg stig til að komast mikið ofar í deildinni. Annars bera fæst orð minnsta ábyrgð og því líklega best að segja bara SPRAMM KRASS BÚNK PLANK PRÖMM.
19.3.2006
Roeder vill innkaupastjóra
Glenn Roeder segir að menn verði að gæta sín á leikmannamarkaðnum því það sé alltof mikið um að menn kaupi ketti í sekkjum. Newcastle menn ættu að vita þetta manna best því miklum fjármunum hefur verið eytt í leikmenn sem litlu hafa skilað. Nægir þar að nefna Marcelino, Silly Maric, Christian Bassedas, Diego Gavilan, Carl Cort, Hugo Viana og nú síðast Boumsong og Luque sem menn hljóta að vera sammála um að hafi ekki staðið undir gríðarlegum verðmiðum. Roeder segir þá Shearer hafa verið að ræða þetta og að Shearer hafi sagt að sér þætti furðulegt að menn eyddu miklu fé í leikmenn sem þeir virtust ekki hafa grænan grun um hvaða mann hefði að geyma. Þar á Shearer við að ekki sé nóg að kunna nokkuð fyrir sér í sparkfræðum, menn verði að hafa rétta hugarfarið til að standa sig vel. Það sé hreinlega fráleitt að ráða ekki einhvern til að skoða þennan þátt. Roeder segir að þetta væri afar skynsamlegt. Hann segist hafa tjáð Shearer að menn á borð við Marcello Lippi geri þetta, hann kaupi ekki leikmann nema vera viss um að hausinn sé í lagi. Roeder segist alltaf hafa verið með aðferð Lippis í huga síðan hann las um þetta í HM 1998. Hann segist hafa gert nokkur mistökin í stjórastólnum hjá West Ham og segist hafa lofað sér því að vinna heimavinnuna vel ef hann verði einhvern tímann aftur í stjórasæti. Roeder segir að menn verði að innleiða nýjan hugsunarhátt í nútímafótbolta og starfið sé alltof flókið til að stjórinn geti sinnt þessu einn. „Ég er fullkomlega sammála Alan. Það þarf að vera einhver sem metur karakterinn,“ segir Roeder og er á því að menn eins og Frank Arnesen geti gert gæfumuninn og nánast komið í veg fyrir að keyptir séu sekkjarkettir. Roeder segir Martin Jol framúrskarandi þjálfara en því megi ekki gleyma að Arnesen hafi bent á marga af þeim leikmönnum sem séu að gera það gott með Tottenham. Meistarinn í innkaupum sé hins vegar Arsene Wenger, hann hafi einstakt nef fyrir því að finna hæfileikadrengi og leggi sig fram um að meta persónuleika þeirra. Það skipti hann engu máli hvaðan mennirnir séu, ef réttu drengina sé ekki að finna í Englandi sé bara leitað annað. Það eina sem máli skipti sé að þeir þjóni þeim tilgangi að gera Arsenal að góðu liði.
19.3.2006
Slæmt gengi
U18 liði Newcastle gengur illa þessa dagana. Í gær tapaði liðið 1-3 heima fyrir Blackburn og var það þriðji tapleikurinn í röð í deildinni. Blackburn er reyndar með hörkulið og í efsta sæti. Josh Keefe skoraði fyrir gestina eftir aðeins 4 mínútur og á 18. mínútu bætti Jamie Clark við. Kenny Wharton bætti í sóknina í leikhléi og varð seinni hálfleikurinn jafnari. Finnigan minnkaði muninn þegar 11 mínútur voru til leiksloka, eftir að Carroll hafði skallað boltann til hans. En þrátt fyrir ágætar tilraunir tókst ekki að jafna metin og gestirnir gulltryggðu sigur á 91. mínútu þegar Junior Dadson skoraði.
Lið Newcastle: Cook, Baxter, Deverdics (Huntington 46), Grieve, Edgar, Cowan, Terrell, Little, Finnigan, Reay (Francis 46), LuaLua (Carroll 46).
19.3.2006
Sunnudagsleikur
Leikurinn gegn Middlesbrough í Smoglandi hefur verið færður frá laugardegi til sunnudags. Leikið verður sunnudaginn 9. apríl og flautað til leiks klukkan 15:00. Þetta var gert að beiðni Smoggies sem eru að spila í fjórðungsúrslitum Uefa bikarsins á fimmtudegi.
18.3.2006
Steypustöðin
Glenn Roeder segir ekkert til í sögusögnum um að Newcastle sé að undirbúa tilboð í hina ýmsu framherja en fréttir hafa flogið grimmt um netheima síðustu daga. Þannig hafa þeir Ruud van Nistelrooy, Diego Forlan og Fernando Torres allir verið orðaðir við liðið. Glenn Roeder segir ekkert til í þessu en er reyndar ekkert hissa á að slíkir menn séu orðaðir við klúbbinn. Hann segir ekki raunhæft að ætla að neitt gerist varðandi nýja leikmenn fyrr en nýr stjóri hefur verið ráðinn. Roeder segir ljóst að klúbburinn þurfi markaskorara þar sem Alan Shearer sé að hætta. Það sé ekki hægt að fá sams konar mann en það verði að fá markaskorara sem geti sett 20 stykki eða meira á ári. Þrátt fyrir ummæli Roeders má reikna með að Steypustöðin verði starfandi enn um sinn og því verði ekkert lát á leikmannafregnum er tengjast Newcastle.
16.3.2006
Rammi í miðvörðinn?
Glenn Roeder segist hafa hug á að prufa Peter Ramage í miðvarðarstöðu hjá Newcastle. Það verður þó ekki alveg á næstunni því ekki er hægt að reikna með Stephen Carr aftur í slaginn fyrr en í fyrsta lagi gegn Chelsea í bikarnum. Reikna má með að Titus Bramble verði leikfær um helgina og vel kann að vera að hann komi inn í liðið. Ramage hefur staðið sig afar vel í vetur þó hann hafi átt afar slæman dag gegn Manchester United. Það gæti því allt eins farið svo að Roeder kysi að nota Carr sem bakvörð og Ramma sem miðvörð. Roeder segir frábært að fá þá Bramble og Carr aftur í slaginn því samkeppnin sé af hinu góða, hún hafi ekki verið fyrir hendi að undanförnu. „Ég væri ekkert hræddur við að láta Peter spila sem miðvörð,“ segir Roeder. „Peter hefur komið mörgum á óvart með góðri frammistöðu í aðalliðinu og ég er verulega ánægður með hann. Það er mjög gott að vinna með honum og með svona hugarfar þá á hann bara eftir að bæta sig. Þar sem Titus og Stephen eru að koma til baka þá er allt í einu gríðarleg samkeppni um varnarstöðurnar og það getur bara verið gott fyrir klúbbinn. Robbie hefur staðið sig mjög vel í síðustu leikjum og ekki brugðist. Ég held að á þessu stigi ferilsins henti það honum betur að spila sem miðvörður en vinstri bakvörður, þetta er líklega besta staðan hans núna og hann er því annar kostur fyrir okkur.“
Líklega vona margir Toonherjar að þeir Steven Taylor og Peter Ramage eigi eftir að sanna sig enn frekar og blómstra hlið við hlið í miðvarðarstöðunum.
16.3.2006
Nobby vill aftur í landsliðið
Nobby Solano segist hafa áhuga á að spila aftur með landsliði Perú. Nýr landsliðsþjálfari Franco Navarro hefur hvatt Nobby að enduskoða afstöðu sína og taka landsliðsskóna úr hillunni. Nobby hætti vegna deilna við fyrrverandi þjálfara en Navarro segist þurfa reynda kappa á borð við hinn ættleidda Geordie. Navarro mun stýra Perúmönnum í nokkrum æfingaleikjum á árinu og verður spilað gegn liðum sem leika á HM. Það má því allt eins reikna með því að Nobby verði á ferðinni í rauðu treyjunni í sumar.
16.3.2006
Á sín bestu ár framundan
Glenn Roeder segir að Shay Given eigi sín bestu ár eftir. Shay hefur átt stórkostlegt tímabil með Newcastle og líklega eru flestir á því að hann sé í rauninni leikmaður ársins hjá félaginu. Newcastle menn ætla sér að reyna að gera nýjan samning við Shay í sumar en markmaðurinn er sagður bíða átekta. Hann ku vilja vita hver taki við liðinu. Roeder segist sannfærður um að Shay eigi enn eftir að bæta sig. Hann sé augljóslega í hópi þeirra bestu en það sem geri útslagið sé hvernig hann nálgist starfið. „Hann er án efa mjög stoltur Íri og ákaflega stoltur fulltrúi síns lands en ef hann væri enskur og ætti að fara að standa milli stanganna í Þýskalandi í sumar held ég að við ættum mun meiri möguleika á að vinna HM,“ segir Roeder.
Given hefur leikið fleiri landsleiki en nokkur annar liðsmaður Newcastle og hann gæti reyndar átt eftir að stimpla sig inn í sögubækurnar sem leikjahæsti maður félagsins. Shay mun spila sinn 368. leik fyrir Magpies gegn Liverpool og getur því náð 400 leikja markinu á næsta tímabili. Markvörðurinn Jimmy Lawrence á félagsmetið, 496 leiki. Alan Shearer nær líklega 400 leikja markinu gegn Charlton en Given á væntanlega eftir að sigla fram úr honum á næsta tímabili. Shearer verður áttundi leikmaðurinn til að rjúfa 400 leikja múrinn hjá Newcastle.
16.3.2006
Enn af framherjum
Fjölmargir netmiðlar greindu frá því í morgun að Newcastle hefði gert 15 milljóna punda tilboð í framherjann Fernando Torres hjá Atletico Madrid. Sagt er að klúbburinn megi eiga von á harðri samkeppni og félög á borð við Spurs, Arsenal og Chelsea komi einnig til greina. Torres er 21 árs og er talið að hann verði seldur í sumar. Sagan af tilboði Newcastle kemur reyndar frá leikmanninum sjálfum en hann segir að forráðamenn Atletico hafi látið sig vita af þessu. „Það hefur alltaf verið talað mikið um alls kyns klúbba en ég veit bara um eitt tilboð og það er frá Newcastle, ég veit þetta af upplýsingum frá Atletico. Ég hef aldrei hugsað um að hlusta á tilboð. Ég lít á Atletico sem mitt heimili og ég er hamingjusamur en maður getur ekki verið viss um hvað kunni að gerast,“ segir Torres.
Það kann vel að vera að njósnasveinar Newcastle telji Torres góðan sem arftaka Shearers. Torres hefur skorað 59 mörk í 128 leikjum í La Liga og verður væntanlega í framlínu Spánverja á HM í sumar.
15.3.2006
Tap í 5 marka leik
Unglingalið Magpies er sennilega á leið út úr bikarnum. Liðið tapaði fyrri undanúrslitaleiknum heima gegn Man City, 2-3. Gestir komust yfir á 26. mínútu með marki frá Calvin Etuhu. Tveimur mínútum fyrir hlé jafnaði Jonathan Godsmark eftir sendingu frá Andy Carroll. Þeir félagar voru aftur á ferð fjórum mínútum eftir hlé, markvörður City missti boltann frá sér eftir skot Carrolls en Godsmark var vel vakandi og skoraði. Ashley Williams jafnaði um hæl og á 57. mínútu skoraði Michael Johnson eftir misskilning Huntingtons og markmannsins Fraser Forsters.
Lið Newcastle: Fraser Forster, Ross Cowan, Nicky Deverdics, Paul Huntington, Lewis Marr, Dean Critchlow, James Troisi, Rob Cavener, Andy Carroll, Mark Doninger (Kazenga LuaLua 60), Jonathan Godsmark (Callum Little 71).
15.3.2006
Vinarhjal
Michael Owen segist ekki hafa átt von á öðru en Steven Gerrard talaði fallega um sig. Hann segir Gerrard góðan vin sinn og að hann myndi sjálfur fara fögrum orðum um hann. „Það er fallegt af honum að segja þetta um mig en eins og ég hef alltaf sagt þá er ég ánægður með þá ákvörðun sem ég tók síðasta sumar um að koma til Newcastle United og ég hef notið hverrar mínútu síðan sú ákvörðun var tekin,“ segir Owen. Hann segist vera á góðu róli varðandi meiðslin og reiknar með að verða klár í slaginn í byrjun apríl.
Owen segir að Newcastle menn verði að sýna þolinmæði. Klúbburinn eigi enn nokkuð í land með að geta reiknað með að geta tekið þrjú stig á völlum á borð við Old Trafford. Það vanti hins vegar engin ósköp upp á og ef rétt sé haldið á spilum kunni það að takast áður en langt um líður.
Annars velta margir fjölmiðlar fyrir sér stöðu Ruud van Nistelrooy hjá Man United og samkvæmt Chronicle fylgist Newcastle grannt með málinu. Sagt er að Ruud hugsi sér til hreyfings og víst er að mörg félög hafa hug á að hremma karlinn enda fer þar markahrókur hinn mesti. Newcastle mun áreiðanlega reyna að kaupa framherja í sumar til að fylla í skarðið sem Shearer skilur eftir sig.
15.3.2006
Milner úr leik?
Svo kann að fara að James Milner spili ekki meira með Aston Villa á tímabilinu. Fréttir herma að hann hafi greinst með einkirningasótt (glandular fever) og kunni að verða lengi frá. Milner hefur ekki spilað tvo síðustu leiki og hefur hans verið sárt saknað á Villa Park. Margoft hefur David O’Leary sagt að hann vilji halda í Milner en Newcastle menn hafa ekki sagt neitt um að þeir vilji selja hann. Það skýrist væntanlega ekki fyrr en nýr stjóri hefur verið ráðinn á SJP. Þá er heldur alls ekki víst að David O’Leary verði stjóri Villa á næsta tímabili, a.m.k. eru stuðningsmenn félagsins margir hverjir á því að hann ætti að segja af sér hið snarasta.
15.3.2006
Vænstu drengir
Kenny Wharton ungmennaþjálfari segir að það að U18 liðið sé komið í undanúrslit bikarsins sýni og sanni að nú sé unglingastarfið hjá Newcastle loksins að komast í almennilegt horf. Newcastle hefur ekki unnið þennan bikar síðan Paul Gascoigne fór fyrir sínum mönnum í sigurliði fyrir tveimur áratugum. Liðið í ár er afar ungt og reyndar yngra en hin liðin í undanúrslitunum. Wharton vonast til þess að einhverjir drengjanna í liðinu eigi eftir að feta í fótspor manna á borð við Ameobi, Taylor og Ramage sem hafa allir gert góða hluti með aðalliðinu. Í kvöld mætir liðið Man City í fyrri leik liðanna og verður það væntanlega mikil barátta.
Wharton segir það mikið afrek hjá svo ungu liði að komast í undanúrslitin og menn séu afar stoltir yfir því. Hann segir Man City alltaf hafa verið með sterk ungmennalið og þetta verði gríðarlega erfitt. Brighton hafi verið með fínt lið líka en Newcastle náð að sigra. Hann segir að það yrði frábært fyrir leikmennina að komast í úrslitin og eins fyrir klúbbinn allan.
Leikurinn í kvöld fer fram á St James’ Park og er vonast eftir því að áhorfendur fjölmenni og styðji drengina.
14.3.2006
Þrír heiðursmenn
Alan Shearer, Shay Given og Matty Pattison voru allir verðlaunaðir í árlegum íþróttadinner Newcastle borgar. Shearer fékk Wilkinson Sverðið fyrir einstakt framlag sitt til íþrótta. Shay var hins vegar verðlaunaður sem íþróttamaður ársins í Newcastle. Matty fékk Wor Jackie verðlaunin. Shearer sagði gestum að sú stund þegar hann setti markamet félagsins hefði verið ein sú stærsta í sínu lífi og tilfinningin einstök. Hann hefði beðið lengi eftir augnablikinu og það sé mikill heiður að fara uppfyrir Milburn sem skipi svo stóran sess hjá fólkinu.
Given sagðist stoltur yfir sínum verðlaunum. Hann sagðist hafa notið áranna níu í Newcastle vel og vonast til að eiga mörg ár enn þar. Matty gat ekki verið í veislunni þar sem hann var að leika með varaliðinu gegn Baggies. Glenn Roeder tók við verðlaununum fyrir hans hönd. Matty sagði síðar í samtali við nufc.co.uk að sér fyndist þetta mikill heiður. Sumir þeirra sem hefðu fengið þau hefðu náð að standa sig sérlega vel í framhaldinu og hann vonaðist til að geta fetað í þeirra fótspor.
14.3.2006
Aumt
Varalið Magpies tapaði í gær 2-0 á útivelli fyrir WBA. Baggies komust yfir á 16. mínútu þegar Williams Martinez skoraði með skalla eftir horn. Fjórum mínútum síðar bætti Stuart Nicholson við marki og þar við sat. Baggies tefldi fram öflugu liði en Newcastle varð fyrir áfalli á 24. mínútu þegar Martin Brittain haltraði af velli. Craig Moore spilaði allan leikinn og fékk gult spjald á 31. mínútu. Newcastle hafði undirtökin síðasta hluta leiksins en tókst ekki að koma bolta í mark.
Lið Newcastle: Caig; Shanks, Farman, Moore, Edgar, Gate, Brittain (Atkin 24), Pattison, O'Brien, Chopra, Cave.
14.3.2006
Enn einn áfanginn
Alan Shearer nær enn einum áfanganum á glæstum ferli sínum á sunnudag. Alan kemst þá upp fyrir Jackie Milburn á lista yfir leikjahæstu menn Newcastle. Milburn lék á sínum tíma 397 leiki í deild og bikar og Shearer jafnaði þá tölu gegn Man United. Ætla má að hann komist í 400 leikja klúbbinn þegar liðið heimsækir Charlton þann 26. mars. Aðeins sjö leikmenn hafa náð að komast yfir 400 leikina og þeir eru:
496 Jimmy Lawrence (1904-22)
472 Frank Hudspeth (1910-29)
457 Frank Clark (1962-75)
432 Bill McCracken (1904-23)
431 Alf McMichael (1949-63)
412 David Craig (1962-78)
408 Bobby Mitchell (1949-61)
14.3.2006
Fjölgar í vörninni
Glenn Roeder hefur ekki getað valið á milli varnarmanna að undanförnu vegna meiðsla. Hann vonast til að þrír varnarmenn verði klárir í slaginn þegar kemur að leiknum gegn Liverpool. Þetta eru þeir Titus Bramble, Stephen Carr og Craig Moore. Ef þetta gengur eftir verða aðeins þeir Owen og Taylor á meiðslalista. Roeder sagði í dag að Titus og Carr væru alveg við það að verða leikhæfir og ef þeir næðu ekki í Liverpool leikinn væri öruggt að þeir yrðu klárir fyrir bikarslaginn á Brúnni.
14.3.2006
Haltu kjafti maður!
Bob Moncur sendir Steven Gerrard tóninn í Evening Chronicle í dag. Hann spyr hvers vegna maðurinn haldi sér ekki bara saman. Moncur segir fráleitt að Gerrard sé að tjá sig um það að Michael Owen eigi að koma aftur til Liverpool. Hann segir Gerrard fínan leikmann, með Liverpool og landsliðinu, en það sé einfaldlega ekki hans starf að ræða um hverja eigi að kaupa. Þarna fari hann yfir strikið og sé bara að reyna að skapa óróa í kringum Owen, leikmann sem eigi eftir að verða Newcastle gríðarlega mikilvægur á næsta tímabili og jafnvel í lok þessa tímabils. Hann segist ekki vita hvort Gerrard hafi verið fenginn til að segja þetta en ljóst sé að menn megi bara ekki haga sér svona enda sé Owen á fjögra ára samningi. Og Moncur telur að Gerrard geti bara kennt sjálfum sér um ef hann fái á baukinn frá áhangendum Magpies um helgina. Sannarlega orð í tíma töluð hjá Moncur og vonandi fer þessu sífellda tuði Liverpool manna um Owen að linna. Þetta er einfaldlega orðið skammarlegt.
12.3.2006
Rooney stöðvaði Roederinn
Wayne Rooney var í miklu stuði á Old Trafford í dag og það var hann öðrum fremur sem sá til þess að sigurganga Newcastle undir stjórn Glenn Roeders var stöðvuð. Rooney nýtti sér mistök Peter Ramage snemma leiks, slap einn innfyrir og skoraði laglega yfir Given. Hann bætti svo við öðru marki af harðfylgi skömmu síðar. Manchester liðið var miklu sterkari aðilinn í leiknum og hefði getað skorað mörg mörk. Rooney fékk dauðafæri til að fullkomna þrennu en skaut í stöng fyrir opnu marki. Luis Saha og varamaðurinn Sörli fengu líka mjög góð færi en klúðruðu. Þá varði Shay að venju nokkrum sinnum vel. Þetta var einfaldlega alls ekki dagur Newcastle. Þeir stóðu að vísu vel í heimamönnum þar til Ramage gerði mistökin og markið var sem súr slumma í andlit. Það þýðir svo sem ekkert að vera að sýta þetta tap, næst er það Liverpool heima og vonandi verða menn tilbúnir í að taka vel á því þá.
12.3.2006
Gafst upp!
Graeme Souness hefur loksins tjáð sig um endalok sín á Tyneside. Hann segist hafa vitað að dagar sínir í starfi væru taldir þegar Michael Owen meiddist. Hann segir einnig að liðið hafi alla burði til að ná meistaradeildarsæti á næsta tímabili ef það verði styrkt með þremur til fjórum sterkum leikmönnum. „Miðað við eðli starfsins þá vissi ég þennan dag í Tottenham þegar Michael meiddist að það væri bara spurning um tíma varðandi mig. Þetta er nokkuð sem maður hugsar um þegar maður skrifar undir samninginn á fyrsta degi, maður hugsar um að maður verði rekinn einhvern tímann. Afar fáir stjórar sleppa við brottrekstur,“ segir Souness.
Það er nú frekar aumt að viðurkenna uppgjöf á þeim tímapunkti þegar Owen meiddist og þá hefði nú eiginlega verið heiðarlegra að segja bara af sér. Miðað við þessi ummæli er engin furða að liðinu gengi illa í framhaldinu. Souness segist hins vegar ekki hafa gert mörg mistök, heppnin hafi bara alls ekki verið með honum.
12.3.2006
Hvað ef?
Oft hefur verið rætt um það þegar Alan Shearer hafnaði Man United. Menn hafa mismunandi skoðanir á því hvort hann hafi gert rétt þar en flestir telja Shearer hafa sýnt stálvilja í því að hafna boði Alex Fergusons í tvígang. Glenn Roeder bendir hins vegar á að menn geti horft á þetta í öðru ljósi. „Það hefði verið rosalega erfitt að hafna tækifærinu til að koma aftur til heimaliðsins og spila fyrir framan stuðningsmenn sem dýrka þig. Menn verða að ákveða hvað hafi forgang í lífinu og hver svo sem skýringin er þá vildi hann spila fyrir sitt fólk, fólk sem er eins og hann og hann hefur staðið sig stórkostlega,“ segir Roeder.
Nobby Solano segir: „Al ákvað að hafna Manchester United, hann veit það betur en nokkur annar hvers vegna hann ákvað það en hann elskar þennan klúbb, þess vegna kom hann hingað. Hann er mikill fagmaður, hann reynir ávallt að standa sig og gefur alltaf 100% í þetta, engu skiptir hvort spilað er á Old Trafford eða Anfield. Í dag verður síðasta skiptið hans á Old Trafford svo það verður mjög sérstakt og vonandi getum við gefið honum færi til að skora. Allir vilja skora á Old Trafford en það er mikilvægara að vinna leikinn ef við viljum enda á meðal sex efstu. Ég held að baul áhorfenda muni engu skipta, hann er fagmaður. Hann er sterkur karakter með alla reynsluna og er í góðu formi. Manchester United er með góða leikmenn en það erum við líka. Við erum stór klúbbur og eigum að vera sterkir.“
12.3.2006
Er hann að snúast?
Glenn Roeder hefur hingað til ekki viljað ýta undir umræðu um að hann haldi áfram með Newcastle. Hann sagði þegar hann tók við til bráðabirgða að hann hefði engan áhuga á að fá djobbið og reyndar sagðist hann ekki vera að fara að stýra neinu öðru liði heldur, hann væri ánægður með unglingastarfið á SJP. Nú virðist að koma annað hljóð í strokkinn því þegar hann er spurður hvort hann vilji gerast framkvæmdastjóri á nýjan leik aftekur hann það alls ekki. „Ég hef aldrei efast um hæfileika mína til að ræða við leikmenn og vinna með þeim og það hefur hreinlega aldrei verið neitt vandamál. Ég tók því eins og maður þegar ég fór frá West Ham, hélt mínu lífi bara áfram og það fer alltaf illa í mig þegar stjórar sem hverfa frá félögum fara að gagnrýna þau. Það er lélegt,“ segir Roeder.
Roeder segir einnig að veikindi sín hafi verið þess eðlis að hann hefði getað sest í helgan stein. Það sé hins vegar ekki í eðli sínu að gera slíkt. Hann hafi hreinlega orðið að rísa upp og komast aftur á skrið.
11.3.2006
Ef þú smælar framan í heiminn…
Emre segist ekki hafa þekkt neitt til Glenn Roeder þegar hann kom til Newcastle. Þangað hafi hann komið út af Graeme Souness. Hann hafði jú heyrt nafnið en vissi ekki neitt um manninn. Tyrkinn segir hins vegar að hann sé mjög ánægður með Roeder enda sé hann alltaf brosandi og það hafi smitað leikmennina sem vinni störf sín með bros á vör. Emre segir Souness vera mikinn vin sinn. Það hafi verið áfall þegar hann var rekinn en svona sé lífið, það skiptist á skin og skúrir.
„Ég vil spila með bros á vör. Það hef ég gert síðustu 16 árin. Glenn er alltaf brosandi þegar hann kemur inn í búningsklefann og alltaf jákvæður. Við æfum mjög vel með honum og Windy (Paul Winsper). Lífið er stutt og maður verður að brosa. Það er svo sem ekkert mál ef maður vinnur en ef maður tapar verður maður líka að brosa,“ segir Emre en hann hefur reyndar ekki enn tapað undir stjórn Roeders og ekki víst að stjórinn taki tapi með bros á vör.
„Við unnum fyrsta leikinn hans og það var afar mikilvægt. Það gerir gæfumuninn að sigra. Tveimur dögum eftir að Glenn tók við spiluðum við gegn Portsmouth og það var mjög erfitt því við höfðum ekki unnið lengi. Við unnum og ástandið batnaði í búningsklefanum.“
Emre segir að Roeder hafi meira en bara brosið enda myndi það líklega ekki gera mikið fyrir stjóra eitt og sér. Hann hafi gert meira en að færa mönnum sínum leikgleðina. Hann segir Glenn einbeita sér að smáatriðum í þjálfun, það sé gott. Eins og staðan sé núna þá sé hann besti maðurinn í djobbið. Emre segir hins vegar ekkert um það hver eigi að taka við. Hann mun tæplega mæla með Roberto Mancini, manninum sem seldi hann til Newcastle. „Ég spilaði ekkert síðustu þrjá mánuðina undir hans stjórn hjá Inter. Hann er góður maður en kannski vildi hann ekkert hafa með mig þessa síðustu þrjá mánuði.“
11.3.2006
Illa slegnir
Ungmennalið Newcastle steinlá í dag í Birmingham en þar tapaði liðið 3-0 fyrir WBA. Kenny Wharton kaus að hvíla suma af lykilmönnum fyrir undanúrslit bikarsins gegn Man City og því fór sem fór. Bakvörðurinn Alex Patterson og framherjinn Daniel Neary léku þannig sinn fyrsta leik sem verður varða sætur í minningunni. Rob Elvins gerði tvö fyrstu mörk Baggies, á 16. og 21. mínútu en Ibrahim Sissoko gerði það þriðja undir lok leiksins.
Lið Newcastle: Mark Cook, Alex Patterson (Dean Critchlow 46), Darren Lough, Chris Shanks, David Edgar, Michael Terrell, James Troisi (Rob Cavener 46), Callum Little (Nicky Deverdics 62), Chris Farman, Glenn Reay, Daniel Neary
11.3.2006
Upp og niður
-athugið að þessi grein kemur NEWCASTLE ekkert við-
Oft hefur verið talað um hversu erfitt sé að stíga skrefin milli deilda í Englandi. Þetta hefur greinilega átt við um þau lið sem komast upp í úrvalsdeild því oft lenda þau í miklu basli. Stundum ná þau reyndar ágætum árangri á sínu fyrsta ári en oft liggur leiðin niður á ný áður en mörg ár líða þó auðvitað séu undantekningar frá þessu öllu. Eins er ljóst að fall reynist félögum oft á tíðum gríðarlega erfitt því það hefur tekið sum stórlið mörg ár að ná sér eftir fall úr úrvalsdeild. Öðrum virðist ekki ætla að takast það en síga lengra niður á við.
Það er athyglisvert að skoða stöðutöflurnar í Englandi með þetta í huga. Byrjum á úrvalsdeildinni. Þar hafa West Ham og Wigan staðið sig mjög vel en Sunderland hörmulega. Portsmouth stóð sig vel á sínum fyrstu árum í úrvalsdeild en er sennilega á leið niður að þessu sinni. Miðað við reynslu undanfarinna ára kann að líða langur tími áður en liðið fer aftur upp. WBA bjargaði sér ævintýralega síðasta vor og er í stórhættu núna.
Í Championship deildinni er Crystal Palace líklegast til að endurheimta sæti sitt í úrvalsdeild. Liðið er sem stendur í play-off sæti. Norwich gæti hugsanlega náð í play-off en þá þarf allt að ganga upp. Southampton á ekki séns og gæti reyndar enn lent í fallbaráttu. Af þeim liðum sem komust upp í deildina stendur Luton best og býr þar að mjög góðri byrjun. Hull og Sheffield Wednesday eru hins vegar í fallbaráttunni. Þau lið sem náðu í play-off á síðasta tímabili hafa ekki náð að bæta sig. Preston lafir í play-off sæti og Ipswich gæti mögulega náð þangað. Derby er hins vegar í heljarbasli.
Töflurnar eru athyglisverðari í neðstu deildunum tveimur. Í 1. deild trónir Southend á toppnum en liðið kom upp síðasta vor eftir sigur í play-off. Swansea kom einnig upp og er nú í play-off sæti. Scunthorpe siglir lygnan sjó en Yeovil gæti lent í basli. Liðin sem komu úr deildinni fyrir ofan hafa ekki náð að standa sig vel. Nottingham Forest er í 10. sætinu og á aðeins veika von um play-off. Gillingham er neðarlega í deildinni. Verst er þó staðan hjá Rotherham sem er í næstneðsta sætinu og líklega á leið í 2. deild þó stutt sé á milli liða í botnbaráttunni. Play-off lið síðasta árs hafa öll verið í neðri hlutanum nema Brentford sem er í toppbaráttunni.
Í 2. deild er Carlisle í efsta sæti en liðið komst upp í deildakeppnina síðasta vor. Barnet hefur hins vegar átt í basli og er í harðri fallbaráttu. Af liðunum sem féllu í deildina stendur Peterborough best, er í 6. sætinu. Stockport og Torquay virðast hins vegar í frjálsu falli, verma tvö af þremur neðstu sætunum. Northampton og Lincoln voru í play-off sætum síðasta vor og eru líkleg til að berjast aftur um að komast upp.
Slíkur uppgangur liða í neðri deildum er athyglisverður en líklega á hann sér oftast þá skýringu að klúbbarnir verða sér út um aukið fjármagn. Munur á getu liðanna í neðstu deildunum er líklega ekki svo mikill og því getur verið stutt á milli 2. deildar og Championship deildarinnar. Um skrefið upp í úrvalsdeildina gegnir svo allt öðru máli. Þar er erfiðara að fóta sig nema menn fái verulegar upphæðir eða þá hafi hefðina með sér líkt og í tilfelli West Ham. Þar fer lið sem hefur oftar en ekki barist á meðal þeirra bestu.
Það sem er svo kannski athyglisverðast í öllu þessu töflufargi er að sjá stórveldi á borð við Nottingham Forest í 10. sæti 1. deildar. Lið sem lengi vel var besta lið Englands, stórveldi í Evrópu og löngu eftir að þeim stórveldistíma lauk, þekkt fyrir að ala upp framúrskarandi knattspyrnumenn. Staða Forest sýnir svo ekki er um að villast að gæfan í sparkinu er fallvölt svo ekki sé meira sagt. Það sama á í raun við um Sheffied Wednesday sem er sannarlega félag sem á glæsilegan leikvang og hefur gríðarlegan stuðning á bak við sig. Það er einhvern veginn furðulegt að á sama tíma og þessi félög eiga sitt niðurlægingartímabil séu smálið á borð við Wigan að slá í gegn. En þetta er auðvitað það sem gerir sparkið líka svo skemmtilegt. Það er ekki hægt að ganga að neinu sem vísu. Þannig má segja að engin regla sé í þessu. Stundum vaða lið upp milli deilda eins og að drekka vatn og ná að festa sig í sessi á ótrúlega skömmum tíma. Önnur sem hafa svo kannski alla burði til að komast upp en mistekst það geta hrunið niður um deildir á næstu tímabilum. Kannski hefur þá verið tekin áhætta sem ekki borgaði sig og menn greiða það dýru verði næstu árin. Svo eru það auðvitað ævintýrin sem eru alltaf að gerast og eru lyginni líkust. Það er sennilega ekki síst þeirra vegna að fótboltinn er jafn vinsæll og raun ber vitni.
Að lokum er svo rétt að hvetja menn til að fylgjast með skemmtilegri baráttu neðri deildanna. Play-off keppnin þar býður upp á hreint magnaða spennu og að margra mati gerat fótboltaleikir í Englandi hreint ekki skemmtilegri en þar. Þessir leikir hafa iðulega verið sýndir beint á boltakrám hér en oft mæta einungis örfáar hræður. Síðan stappfylla menn alla sali til að horfa á hundleiðinlega meistaradeildarleiki þar sem yfirborguð sparkmenni sem hafa fyrir löngu misst öll tengsl við raunverulega ástríðu í boltanum lullast um vellina þó þau virðist oft heldur vilja vera að gera eitthvað allt annað.
Hér er ekki verið að halda því fram að play-off keppni neðri deilda í Englandi bjóði upp á betri knattspyrnu en meistaradeildin. Því verður hins vegar ekki á móti mælt að sjaldséð er meiri ástríða. Í meistaradeild eru vissulega og eðlilega mun betri knattspyrnumenn sem ráða yfir gríðarlegri tækni og á góðum degi eru leikir þar hrein meistarastykki. Það er aftur á móti leitt þegar íþróttafréttamenn og sparkspekúlantar tala á niðrandi hátt um keppni á borð við þá sem fer fram í play-offinu. Það er ákaflega leitt þegar menn hafa leiðst svo langt frá upprunalega boltanum að þeir kunna ekki lengur að meta alvöru bardaga tveggja liða sem bæði leggja allt í sölurnar. Fótbolti á ekki að snúast um einhverjar tískusendingar og það að menn geti dæst og gapað yfir óheyrilegum tilþrifum einstakra manna þó þau geti vissulega verið skemmtileg. Þegar allt kemur til alls eru þeir leikir þar sem allt er gefið og í raun meira til sem verða eftirminnilegastir en vissulega er best ef þetta er svona í nettri blöndu.
Menn ættu að fara varlega í að gera lítið úr sönnum baráttuliðum í boltanum, slík lið bera kyndil sparkmennskunnar á stundum af meiri glæsileika en helstu táfetaliðin. Það er sorglegt þegar menn tala um ósigur knattspyrnunnar eftir að minni spámenn hafa lagt tískudrengina með playboy hárgreiðslurnar og eyrnalokkana, rétt eins og gerðist þegar Grikkir urðu Evrópumeistarar (ekki það að vel má vera að grísku guðirnir hafi verið með playboy lúkk og eyrnalokka). Og það er allra sorglegast að heyra slíkt frá Íslendingum sem aldrei hafa getað blautan skít í fótbolta, a.m.k. aldrei landað neinum sigrum nema berjast af fullum krafti.
11.3.2006
Hu-GO!
Þá er það opinbert að Newcastle hefur samþykkt að selja Hugo Viana til Valencia á 1,2 milljónir punda. Félagið keypti þennan sama leikmann á 8,5 milljónir sumarið 2002 og því er tapið verulegt. Sagt er að Viana fái fimm ára samning á Mestalla. Javier Subirats segir hann góðan kost fyrir félagið, hann sé ungur og efnilegur, mjög spennandi leikmaður. Hann muni spila á HM og því hafi verið ákveðið að ganga frá málum áður en að því kæmi.
Russel Cushing segir að fréttir um 7 milljóna punda tap Newcastle á leikmanninum séu rangar þar sem liðið hafi tryggt sér hlut af hagnaði sem Valencia kunni að ná ef félagið selur Viana síðar. Þar er nú svo sem ekkert í húsi.
Freddy Shepherd segist vera mjög ánægður með þá leikmenn sem hann hafi vinstra megin á miðjunni, þá Emre og Zog. Báðir hafi aflað sér vinsælda meðal stuðningsmanna og stjórnendur séu afar ánægðir með frammistöðu þeirra. Hann segir Valencia hafa kosið að nýta sér kauprétt á Hugo og óskar honum góðs gengis.
Hugo náði ekki að heilla áhangendur á Tyneside þó hann hafi sýnt nokkuð góða takta og átt nokkrar rispur. Ljóst var að hann naut sín ekki almennilega í enska boltanum. Hann spilaði 27 leiki sem byrjunarliðsmaður með Newcastle og kom inná í 33 að auki. Skoraði fjögur mörk. Hann var lánsmaður hjá Sporting Lissabon á síðasta tímabili en þaðan var hann einmitt keyptur á sínum tíma. Í upphafi þessa tímabils var hann svo lánaður til Valencia.
10.3.2006
Tíminn flýgur hratt
Alan Shearer segist ekki sjá eftir því að hafa hafnað Manchester United, liðinu sem Newcastle hefur ekki tekist að leggja á útivelli síðan 1972. Shearer segir að á ferlinum hafi hann notið alls þess besta sem hann óskaði og reyndar hefði allt farið fram úr björtustu vonum. „Fólk verður að reyna að skilja stöðu mína og það hvaðan ég kem og hvaða þýðingu það hefur og hafði fyrir mig að koma aftur til Newcastle og spila fyrir þá og skora mörk. Ég var keyptur til að skora mörk og sem betur fer hef ég getað það. Ég mæti bara í leiki og geri það sem ég verð að gera og nýt þess því það er rétt sem þeir segja þegar maður byrjar í boltanum. Þegar ég kom inn í búningsklefann hjá Southampton voru þeir þar Jimmy Case og Peter Shilton og einn eða tveir aðrir og þeir snéru sér við og sögðu: Njóttu þess bara því það verður búið áður en þú veist af. Maður hugsar sem svo að þeir segi þetta nú bara af því þeir séu að ljúka ferlinum. En nú er ég farinn að segja þetta við menn sem hugsa líklega það sama og ég gerði. En þetta er ekki einu sinni hálfur sannleikurinn. Það er ótrúlegt hvernig þetta flýgur hjá. Ég er ekki viss um að menn geti planað neitt í fótbolta. Maður verður bara að bíða og sjá til hvað gerist og taka ákvarðanir þegar það gerist. En það sem ég veit er að ég hætti að spila í maí og þá mun ég fá tíma til að verja með fjölskyldunni og til að spila golf og njóta lífsins aðeins og vinna í fjölmiðlum og halda áfram að vinna mér inn þjálfararéttindi,“ segir Shearer.
Shearer spilar væntanlega síðasta leik sinn á Old Trafford á sunnudaginn og þar verður líklega baulað á hann enn eina ferðina. Áhangendur ManU hafa nefnilega aldrei fyrirgefið Shearer höfnunina. Vonandi tekst Shearer að sulla svona einu marki á Djöflana í kveðjuskyni.
9.3.2006
Tekst Roeder að vinna?
Glenn Roeder er staðráðinn í að stýra liði Newcastle til sigurs á Old Trafford á sunnudaginn. Newcastle hefur ekki unnið þar í 34 ár og því sannarlega kominn tími til að vinna Djöflana. Roeder mætti með West Ham á Old Trafford árið 2001 og fagnaði 1-0 sigri en það var Jermaine Defoe sem skoraði sigurmarkið. Árangur Magpies á Old Trafford hefur verið skelfilegur. Liðið hefur aðeins náð sex stigum af 66 mögulegum frá 1972. Roeder segir sína menn ekki óttast Man United. „Ég segi mínum mönnum að ef þeir trúi því ekki að þeir geti unnið sé enginn tilgangur í að fara út úr rútunni. Það hefur enga þýðingu að mæta með minnimáttarkennd, þá tapa menn bara,“ segir Roeder.
9.3.2006
Finnigan með þrennu
Carl Finnigan setti þrennu í seinni hálfleik þegar varalið Newcastle komst í úrslit Northumberland Senior Cup en þar mun liðið spila gegn Blyth Spartans. Newcastle vann Bedlington Terriers 5-0 eftir að hafa lent í basli lengi framan af leik. Fjögur markanna komu á síðustu 29 mínútunum. Miðvörðurinn David Edgar skoraði fyrir Newcastle eftir aðeins sex mínútna leik en þrátt fyrir nokkur ágæt færi sem flest komu eftir undirbúning Alan O’Brien gekk illa að bæta við. Á 61. mínútu bætti Martin Brittain við úr víti eftir að brotið hafði verið á Matty Pattison. Fimm mínútum síðar sendi O’Brien á Finnigan sem skoraði af stuttu færi. Þegar um korter var eftir skoraði Finnigan aftur og þegar tvær mínútur voru til leiksloka setti hann sitt þriðja mark. O’Brien sprengdi vörn Bedlington upp með fínni stungu og Finnigan skoraði laglega.
Lið Newcastle: Forster (Cook 55), Baxter, Cave, Edgar, Farman, Atkin, Brittain (Huntington 68), Gate, Finnigan, O'Brien, Pattison (Marshall 77).
9.3.2006
Tekur hann við mackems?
Graeme Souness þykir nú líklegastur allra til að verða næsti stjóri Sunderland. Souness fór frá Newcastle með skít og skömm enda má segja að hann hafi verið á góðri leið með að eyðileggja fínt lið. Menn efast um að Souness taki við liði Sunderland á þessu tímabili en líklegt þykir að hann stýri því í baráttunni um að komast aftur upp á næstu leiktíð. Það efast líklega fáir Toonherjar um að Sunderland sé fínn vettvangur fyrir niðurrifsstarfsemi Souness. Veri hann velkominn þangað.
8.3.2006
Við vissum þetta
Aldrei er góð vísa of oft kveðin. Við vissum auðvitað að Alan Shearer væri einn sá allra flottasti í sparksögunni en það er ágætt að fleiri hafa auga fyrir fótbolta. Eusebio hefur það greinilega því hann segir Big Al besta enska framherja sinnar kynslóðar. Eusebio segir reyndar að Al sé einn sá besti sem hefur spilað og segist vonast til að geta séð hann á SJP áður en ferlinum lýkur.
Hinn frægi Eusebio segir: „Ég held að Alan Shearer sé besti enski framherji sinnar kynslóðar og jú einn af þeim bestu sem hafa spilað. Ég veit að hann er nýbúinn að slá markamet Newcastle United og það er fínn árangur. Ég á Benfica metið 727 mörk í 715 leikjum of ég veit hvernig tilfinning það er að eiga slíkt met. Ég vildi sjá leik í Newcastle einn daginn þar sem Alan Shearer spilar en kuldinn fer illa í hnéð á mér svo ég get það ekki sem stendur.“
Vel kann að vera að Eusebio mæti á ágóðaleikinn í maí en talið er að allir stjórar sem hafa unnið með Shearer mæti á svæðið nema hollenski brjálæðingurinn Rudd Gullit.
8.3.2006
Lofsorð
Nobby Solano hefur margsannað að hann er með vænan knattspyrnuheila. Nobby telur að Newcastle eigi framtíðarstjörnu í Charles N’Zogbia og er viss um að þeir sem stjórna franska landsliðinu eru þegar farnir að fylgjast með honum. „Það er erfitt að komast í franska landsliðshópinn, það er eins og með ítalska hópinn því það er úr svo mörgum góðum að velja. Ég vona fyrir hönd Newcastle að hann eigi eftir að spila fyrir Frakkland því hann við ættum að vera með toppmennina hér og Charles getur orðið einn þeirra. Hann á eftir að verðskulda það ef hann heldur áfram að leggja svona mikið á sig,“ segir Perúmaðurinn snjalli.
Nobby segir að Zog hafi spilað vel enn eina ferðina gegn Bolton, það hafi reyndar allir gert. Hann hafi átt margar góðar sendingar inn á hættusvæðið og einnig varist vel. Strákurinn öðlist reynslu með hverjum leik, hann sé sterkur og vinni vel fyrir liðið. Solano segir Zog í toppklassa miðað við aldur og vonast til að hann muni ná langt.
Gary Speed fer svo lofsamlegum orðum um Scott Parker en Parker var einmitt fenginn til að fylla upp í skarðið sem Speed skildi eftir sig og Butt mistókst herfilega að fylla. Speed segir: „Scotty Parker er frábær leikmaður og hefur alltaf verið og hann sýnir svo mikinn stöðugleika. Hann er einn þeirra sem gefa alltaf 100% í leiki og það er þess vegna sem stuðningsmenn Newcastle United elska hann svo mikið. Það getur enginn spilað vel í öllum leikjum en þegar menn eru að gera sitt besta eins og hann getur fólk ekki farið fram á meira.“
Speed segir hafa verið frábært að leika með Shearer í sjö ár en það sé ferlegt að spila á móti honum. „Hann er svo leikreyndur og hann skoraði svo sannarlega verðskuldað mark gegn okkur. Hann leiddi sína menn áfram, vann aukaspyrnur hér og þar og hann er svo góður leikmaður að hann verðskuldaði allt það sem honum tókst að gera gegn okkur. Og í sannleika sagt þá verðskuldaði Newcastle þennan sigur. Þeir voru betra liðið. Mín reynsla segir mér að liðið sem skorar fyrst í leikjum á SJP vinnur venjulega og ef við hefðum skorað fyrst hefðu þeir kannski orðið stressaðir en þetta varð öfugt að þessu sinni. Ég hef aldrei hitt Glenn Roeder áður en hann er að vinna frábært starf og ég óska honum alls hins besta.“
8.3.2006
Þriðja skiptið
Nobby Solano er í Actim liði vikunnar hjá Premier League. Solano var einnig í liðinu fyrir viku en þá voru fimm leikmenn Newcastle valdir. Þetta er reyndar í þriðja sinn sem Nobby kemst í liðið á leiktíðinni. Michael Owen hefur einnig verið valinn þrisvar en þeir Peter Ramage og Shay Given tvisvar. Aðrir sem hafa komist í þetta úrvalslið eru Babayaro, N’Zogbia, Boumsong, Carr, Emre, Ameobi og Elliott.