Fréttir í mars 2009

 

 

31.Mars

Alan Shearer tekur við Newcastle til lok tímabilsins

Þær fréttir berast nú að Alan Shearer muni stýra Newcastle til lok tímabilsins og er honum ætlað að bjarga liðinu frá falli. Shearer hefur nokkru sinnum neitað þjálfarstöðu hjá liðinu en nú lítur allt út fyrir að hann verði settur stjóri liðsins á morgun. Það er enn óvist hvort Joe Kinnear muni snúa til baka en hann á að fara í skoðun á mánudaginn til að skera úr um hvort hann fái grænt ljós frá læknunum. Shearer hefur oft lýst yfir áhuga sínum á að verða knattspyrnustjóri og var hann orðaður við Newcastle þegar Kevin Keegan fór frá liðinu í september síðastliðnum. Reiknað er með yfirlýsingu frá Newcastle á morgun og yrði fyrsti leikur hans þá á laugardaginn gegn Chelsea. Það skal tekið fram að þetta er ekki aprílgabb ef einhver skyldi halda það, enda 1  apríl ekki enn genginn í garð.

(FB)

 

31.Mars

Engin bjartsýni hjá stuðningsmönnum Newcastle

Það ríkir ekki mikil bjartsýni hjá stuðningsmönnum Newcastle fyrir leikinn gegn Chelsea. Í könnuninni sem hefur verið hér á heimasíðunni undanfarið var spurt hvað menn töldu að Newcastle fengi mörg stig í heimaleikjunum gegn Arsenal og Chelsea og eru langflestir á því að Newcastle fái ekkert stig úr þessum tveim leikjum. Fyrri leikurinn gegn Arsenal tapaðist og eru því aðeins þrjú stig sem gætu komið í hús. En Newcastle hefur nú ekki verið að taka mörg stig gegn þessum liðum í gegnum tíðina og kemur þetta kannski ekkert á óvart. Leikirnir sem fylgja í kjölfarið verða hinsvegar að vinnast og ef það mistekst þá er liðið dæmt til að falla í Championship deildina. Úrslit könnunarinnar er svona:

Hvað fáum við mörg stig í næstu tveim leikjum (Heima gegn Arsenal og Chelsea) ?

Sex      13%

Fjögur  8%

Þrjú      10%

Tvö       6%

Eitt       20%

Ekkert  44%

 

Flest atkvæði komu frá Íslandi (125) að sjálfsögðu en það voru 5 atkvæði frá Danmörku, 2 frá Bandaríkjunum og 1 frá Noregi.

(FB)

 

31.Mars

Taylor og Bassong gætu spilað gegn Chelsea

Chris Hughton hefur ekki gefið upp alla von um að þessir tveir verði leikfærir um helgina en þeir höltruðu báðir af velli gegn Arsenal þann 21 mars síðastliðinn. Þá er Damien Duff einnig meiddur og óvist að hann verði með á laugardaginn. "Á þessari stundu höfum við þrjá leikmenn sem eru tæpir. Aðalspurningin er með þá Bassong og Taylor. Báðir hafa tekið framförum, en auðvitað verður það að halda áfram þessa viku. Við höfum ekki útilokað þá, ef þeir ná góðum bata í vikunni Þá er það mikill plús fyrir okkur. Laugardagurinn er möguleiki, sumir leikmenn bregðast betur við meðferð er aðrir. Við vonumst að það eigi við um þá báða" sagði Hughton.

(FB)

 

31.Mars

Danny Guthrie vonast eftir að spila gegn Chelsea 

Danny Guthrie átti fínan leik með varaliðinu gegn Man Utd í gær og vonast hann eftir að fá að spila gegn Chelsea á laugardaginn. Leikurinn í gær endaði 3-3 og skoraði Guthrie þriðja mark Newcastle. Eftir leikinn sagði Guthrie: "Við hefðum átt að vinna leikinn eftir markið mitt en við sváfum á verðinum í lokin. En þetta var fín frammistaða hjá okkur. Það var gaman að skora en það hefði verið enn betra ef það hefði verið sigurmarkið. Þetta hafa verið tveir langir mánuðir og það er frábært að vera komin aftur. Mér leið vel og vonandi fæ ég að spila á laugardaginn. Það var fínt að spila í 90 mínútur og nú hef ég nokkra daga til að jafna mig. Vonandi hef ég heillað Hughton og Calderwood, en ég verð bara að æfa vel og koma mér í betra form. Þetta er búið að vera erfitt en ég get ekki beðið eftir að spila. En undanfarnir mánuðir hafa verið erfiðir fyrir alla og því fleiri sem við höfum þá er líklegra að við náum að bjarga okkur úr þessum vandræðum sem liðið er í ".

(FB)

 

30.Mars

Guthrie, Cacapa og Xisco spila með varaliðinu í kvöld gegn Man Utd

Þessir þrír leikmenn hafa ekki spilað mikið undanfarið og þetta kjörið tækifæri til að fá smá spilatíma. Guthrie hefur ekki spilað síðan Newcastle mætti Blackburn í janúar en hann meiddist á hásin og verður hann að öllum líkindum í leikmannahópnum gegn Chelsea um næstu helgi. Xisco tábrotnaði í leik með varaliðinu gegn Wigan í febrúar en hann skoraði einmitt tvö mörk í 5-0 sigri Newcastle. Cacapa hefur ekki spilað mikið í vetur en meiðsli Steven Taylor og Sebastien Bassong gætu þítt að Cacapa spili gegn Chelsea á laugardaginn. Newcastle hefur ekki enn gefið út hvort þeir Bassong og Taylor verði með á laugardaginn. Þess má geta að ef menn vilja horfa á leikinn í kvöld þá vil ég benda á að hægt er að sjá hann beint á netinu (www.atdhe.net).

(FB) 

 

30.Mars

Newcastle - Man Utd 3-3

Varalið Newcastle og Man Utd mættust í kvöld á St James´ Park og voru skoruð sex mörk sem skipust jafnt á milli liðanna. Þeir Danny Guthrie, Cacapa og Xisco byrjuðu allir inná í kvöld og eru líklegir að vera í leikmannahóp aðalliðsins gegn Chelsea á laugardag. Chris Hughton fylgdist með leiknum í kvöld og sá Guthrie eiga fínan leik. Það var Ítalinn Frederico Macheda sem kom gestunum yfir á 13 mínútu úr vítaspyrnu eftir að Cacapa handlék boltann innan teigs. Newcastle fékk svo einnig vítaspyrnu rétt fyrir leikhlé þegar Gary Neville braut á Xisco. Spánverjinn skoraði sjálfur úr spyrnunni og jafnaði leikinn. Mark Doninger hefur verið duglegur að skora í vetur og hann bætti við tíunda markinu sínu í vetur þegar hann kom Newcastle yfir þegar um 5 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Macheda jafnaði leikinn með sínu öðru marki á 75 mínútu.  En mark kvöldsins kom stuttu seinna þegar maður leiksins Danny Guthrie skoraði glæsilegt mark af 18 metra færi og staðan því 3-2 fyrir Newcastle og stutt eftir af leiknum. En Macheda var ekki búinn að segja sitt síðasta í kvöld, hann jafnaði leikinn á lokamínútunum og fullkomnaði þar með þrennuna sína. Lokatölur því 3-3 í skemmtilegum leik á St James´ Park í kvöld.

NUFC: Forster, Tavarnier, Ferguson, Doninger, Lough, Cacapa (Taylor 76), Godsmark, Guthrie, Ranger, Xisco (Danquah 60) Baheng (Adjei 81).

Ónotaðir varamenn: Inman,Dummett.

Man Utd: Zieler (Devlin 30), Neville (R Brown 58), Dudgeon, Eckersley, De Laet, James, Eikrem, Possebon, Macheda, Martin, Stewart (Norwood 69).

Ónotaðir varamenn: Galbraith, Wooton.

Áhorfendur: 1,277

(FB)

 

30.Mars

Varaliðið mætir Man Utd í kvöld

Varalið Man Utd kemur í heimsókn í kvöld og munu Danny Guthrie, Cacapa, og Xisco taka þátt í leiknum í kvöld. Varaliðið hefur ekki tapað í síðustu sex leikjum en þetta verður örugglega erfiður leikur þar sem Man Utd er aðeins einu stigi fyrir ofan Newcastle í töflunni.

Richard Money hefur úr þessum leimönnu að velja fyrir leikinn í kvöld:

Fraser Forster, Samuel Adjei, Claudio Cacapa, Mark Doninger, Paul Dummett, Shane Ferguson, Jonny Godsmark, Danny Guthrie, Brad Inman, Xisco, Darren Lough, Greg McDermott, Wesley Ngo Baheng, Nile Ranger, James Tavernier, James Taylor, Frank Wiafe Danquah

(FB)

 

30.Mars

Newcastle - Wolves 1-1  (U18)

Ungu strákarnir komu í veg fyrir fjórða tapleikinn í röð í gær þegar Þeir gerðu 1-1 jafntefli við Wolves. Það var Hollendingurinn Frank Wiafe Danquah sem kom heimamönnum yfir strax á 7 mínútu og hann fékk svo gullið tækifæri til að bæta við forystuna þegar Newcastle fékk vítaspyrnu 10 mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks en hann skaut hátt yfir. Gestirnir í Wolves jöfnuðu leikinn í seinni hálfleik og voru þeir betri aðilinn í seinni hálfleiki og jafntefli sanngjörn niðurstaða.

NUFC: Alnwick, Taylor, Dummett, Inman, Morris, Henderson (Bath 46), Williams, McDermott (Spear 85), Adjei, Danquah (Neary 61), Folan.

Ónotaðir varamenn:Robinson.

Næsti leikur hjá strákunum er á föstudaginn en þá mæta þeri Sheffield Wednesday á heimavelli Newcastle.

(FB)

 

27.Mars

Goðsögnin Peter Beardsley gerist þjálfari hjá akademíu Newcastle

Peter Beardsley fyrrum leikmaður Newcastle hefur tekið við þjálfarastarfi hjá akademíunni hjá Newcastle og er það mikill fengur. Beardsley hefur sinnt ambassadorstarfi fyrir Newcastle undanfarið og hefur oft lýst yfir stuðningi við Mike Ashley eiganda Newcastle. Beardsley átti frábæran feril og skoraði yfir 100 mörk fyrir Newcastle þau tvö skipti sem hann var með Newcastle. Hann spilaði með Newcastle árin 1983-1987 og svo aftur 1993-1997. Þeir sem muna eftir honum vita að hann var algjör snillingur og var með frábæra tækni. Richard Money yfirmaður akademíunnar hefur mikla trú á því að Beardsley eigi eftir að kenna ungu strákunum ýmislegt. "Peter er goðsögn hér hjá Newcastle og var toppklassa leikmaður, svo það er frábært að fá hann til liðs við okkur til að vinna með ungu framherjum okkar. Hann hefur svo mikla kunnáttu af fótbolta sem hann getur miðlað til strákanna. Og þeir munu hagnast á því að vinna með honum og með því að hlusta á hvað hann hefur að segja" sagði Money.

(FB)

 

26.Mars

Mark Viduka enn einu sinni að snúa til baka

Ástralinn Mark Viduka er að jafna sig af meiðslum á hásin og hefur sett stefnuna á leikinn gegn Stoke. Hann hefur aðeins spilað sex leiki fyrir Newcastle í vetur og þar af aðeins einn leik í byrjunarliðinu. viduka mun að öllum líkindum fara frá Newcastle í sumar á frjálsri sölu en hann er talinn vera einn launahæsti leikmaður Newcastle. Chris Hughton telur að Viduka eigi eftir að skipta liðinu miklu máli á lokaspretti deildarinnar. "Mark er ennþá í endurhæfingu en við erum vongóðir að hann snúi til baka eftir tvær vikur, þ.e.a.s ef hann fær ekki bakslag. Hann á eftir að styrkja okkur því hann er mjög góður leikmaður" sagði Hughton. Um Joey Barton sagði Hughton: "Það er aðeins lengra í að Joey verði klár í slaginn, það eru þrjár til fjórar vikur í hann".

(FB)

 

 

 

26.Mars

Kazenga LuaLua lánaður til Doncaster í einn mánuð

Hinn 18 ára Kazenga LuaLua hefur verið lánaður til Championship liðsins Doncaster í einn mánuð. Doncaster er í 15 sæti deildarinnar og gæti LuaLua spilað fyrsta leikinn fyrir Doncaster gegn Watford þann 4 apríl. Lua Lua hefur tekið þátt í 9 leikjum fyrir aðallið Newcastle, í öll skiptin hefur hann komið inná sem varamaður. Hann hefur staðið sig vel með U18 og varaliði Newcastle í vetur og hefur skorað sex mörk. Væntanlega er verið að lána hann til að láta hann öðlast meiri reynslu. Það er bara vonandi að strákurinn standi sig og komi reynslunni ríkari til baka.

(FB)

 

24.Mars

Enn beðið eftir fréttum af Sebastien Bassong og Steven Taylor

Þessir tveir fóru báðir meiddir af velli og áttu að fara í skoðun í gær en það hafa engar staðfestar fréttir komið ennþá af þeim. Bassong og Taylor hafa verið bestu varnarmenn Newcastle í vetur og verður það mikill missir ef þeir verða frá í langan tíma. Það eins sem komið er að þeir munu að öllum líkindum ekki spila gegn Chelsea þann 4 apríl næstkomandi. Bassong meiddist á nára og Taylor á ökkla. Chris Hughton um meiðsli þeirra: "Það er enn verið að skoða þetta, það er of snemmt að segja hvað þetta er alvarlegt"

(FB)

 

24.Mars

Ryan Taylor setur stefnuna á hægri bakvörðinn

Ryan Taylor er fjölhæfur leikmaður og getur spilað nokkrar stöður á vellinum en hann vill spila í hægri bakverðinum og hefur sett stefnuna á að vinna fast sæti í þeirri stöðu á næstu árum. "Auðvitað mun ég spila í hvaða stöðu sem er fyrir þetta félag. En hægri bakvörðurinn er staðan sem ég vill spila og taka framförum þar og vera sá leikmaður sem ég vill vera. Ég get ekki beðið um meira en að fá að vera hjá félagi eins og þessu ég vill bara festa mig í sessi hér og vonandi tekst það. Ég verð að leggja hart að mér á æfingum og grípa tækifærið þegar kemur að leikdegi" sagði Ryan Taylor að lokum.

(FB)

 

 

 

 

 

 

 

24.Mars

Terry Venables ekki á leið til Newcastle

Sky Sports greinir frá því að Newcastle hafi ekki i hyggju að fá Terry Venables til sín til á meðan Joe Knnear er að jafna sig eftir hjartaaðgerðina. Sagt er að leikmenn Newcasrtle vilji fá reynslumikinn mann við stjórnvölin í stað þeirra Calderwood og Hughton sem hafa ekki skilað mörgum stigum í safnið. En stjórn Newcastle segist vera sátt við núverandi fyrirkomulag og hefur ekki í hyggju að fá Venables til sín

(FB) 

 

 

 

 

 

 

23.Mars

Nile Ranger kallaður í U19 landslið Englands

Þessi 17 ára strákur hefur heldur betur slegið í gegn hjá Ungmenna og varaliði Newcastle í vetur. Hann er búinn að skora 22 mörk og var valinn í U19 landslið Englands fyrir æfingaleik þeirr gegn Tékkum á miðvikudag. Þetta er í fyrsta sinn sem hann er valinn í landsliðið og við vonum auðvitað að strákurinn fái tækifæri á miðvikudaginn.

Það  eru fleiri leikmenn Newcastle sem hafa verið valdir í landslið sinna landa. 

Damein Duff er í landsliðshópi Íra sem mætir Búlgaríu og Ítalíu.

Jonas Gutierrez er í landsliðshópi Argentínu sem mætir Venesúela og Bólivíu.

Geremi spilar með Kamerún gegn Togo.

Obafemi Martins verður með Nígeríu gegn Mósambik. 

Allt eru þetta leikir í undankeppni HM 2010.

Haris Vuckic verður í U17 landsliði Slóvena en þeir mæta Pólverjum, Grikkjum og Sviss í æfingamóti á Grikklandi.

Andy Carroll er í leikmannahópi U20 Englands sem spilar æfingaleik gegn Ítalíu á Loftus Road í London.

(FB)

 

23.Mars

Er Ignacio Gonzalez maðurinn sem okkur vantar á miðjuna ?

Ignacio Gonzalez eða "Nacho" eins og hann er kallaður kom frá Valencia á láni út þetta tímabil en meiddist illa fljótlega efti að hann kom til Newcastle og hefur aðeins tekið þátt í tveimur leikjum með Newcastle, í bæði skiptin kom hann inná sem varamaður. Miðjuspil Newcastle hefur ekki verið gott í vetur og virðist vanta skapandi og sókndjarfa miðjumenn í liðið. Nacho er örugglega betri en þeir miðjumenn sem hafa verið að spila með Newcastle í vetur og geta menn séð myndbrot með honum á Youtube hér .

Hann virðist vera með góða tækni og er með góðar sendingar (eitthvað sem Butt mætti læra)

Hann er nú að jafna sig af meiðslum á hásin sem hafa hrjáð hann í um 6 mánuði mætir hann á æfingar á næstu vikum. Óvíst er hvað verður um hann þegar lánstími hans er búinn.  

(FB)

 

 

23.Mars

Ungur Slóvaki til reynslu hjá Newcastle

Lubomir Korijkov 16 ára varnarmaður frá MFK Kosice er til reynslu hjá Newcastle í eina viku eftir að útsendarar Newcastle tóku eftir honum. "Koeijkov er frábær miðvörður, sérstaklega miðað við hans aldur. Hann hefur staðið sig vel með sínu landsliði einnig og hafa nokkur stórlið í Evrópu sett sig í samband við MFK Kosice til að spyrjast fyrir um hann" sagði Allen Bula yfirmaður fótboltamála kjá MFK Kosice. Korijkov er fæddur 12.01.1993 og er 181 sm á hæð.

(FB)

 

 

 

 

 

22.Mars

Nolan: "Við verðum að vera miskunnarlausir"

Kevin Nolan hvetur liðsfélaga sína að vera miskunnarlausir ef þeir vilja halda sæti sínu í úrvalsdeildinni. Liðið er nú komið í fallsæti eftir leiki helgarinnar og hefur útlitið ekki verið svartara í vetur. En Nolan hefur trú á að Newcastle haldi sæti sínu í deildinni en þeir verði þá að vera mun grimmari ef það á að takast.

"Það snýst um að vera miskunnarlaus, miskunnarlaus gegn okkur sjálfum og öðrum liðum. En strákarnir er til í slaginn og ég hef svo sannarlega trú á því að við höfum nógu góðan leikmannahóp og ég trúi því ekki að við förum niður. Jafnvel þó að við séum í erfiðri stöðu núna, þá er ég 100% viss um að við tryggjum sæti okkar í deildinni" sagði harðnaglinn Nolan.

(FB)

 

 

 

 

 

 

 

22.Mars

Newcastle- Everton 2-3

Þriðja tapið í röð hjá U18

U18 ára lið Newcastle tapaði sínum þriðja leik í röð og nú var það Everton sem lagði heimamenn í Newcastle á Darsley Park. Gestirnir komust yfir um miðjan fyrri hálfleik með marki frá Adam Forshaw, en strákarnir okkar jöfnuðu stuttu seinna og var þar að verki Michael McCrudden eftir aukaspyrnu frá Nile Ranger. Á 36 mínútu var Ranger nálægt því að koma heimamönnum yfir þegar hann átti hörkuskot í slánna en heppnin var ekki með honum í þetta sinn. Staðan því 1-1 í hálfleik og áttu gestirnir í Everton fyrsta færið þegar Karl Sheppard átti einnig skot á slánna. Þeir komust svo yfir á 48 mínútu með marki úr vítaspyrnu frá Lewis Codling. Þeir bættu svo við forystuna á 52 mínútu og var þar að verki Gerard Kinsella. Newcastle fékk svo vítaspyrnu á 64 mínútu þegar brotið var á Nile Ranger og tók hann sjálfur spyrnuna. Markvörður Everton varði spyrnuna en Ranger fylgdi vel á eftir og skoraði sitt 22 mark á tímabilinu. Fleiri urðu mörkin ekki og þriðja tap U18 ára liðsins staðreynd. 

NUFC:Alnwick, Tavernier, Dummett, Inman, Morris, Taylor, Adjei, Folan, Ranger, Williams (Ferguson 72), McCrudden (McGorrigan 87).

Ónotaðir varamenn: Johnson, Bath.

(FB)

 

 

21.Mars

Newcastle - Arsenal 1-3

(Martins 58) - (Bentner 57, Diaby 64, Nasri 67)

 

(Martins misnotaði vítaspyrnu í dag)

 

Fall blasir við Newcastle

Enn eitt tapið hjá Newcastle og er liðið komið í fallsæti og verður þar allavega næstu tvær vikur þar sem ekki er spilað um næstu helgi í deildinni. Ekkert virðist falla með liðinu og virðist sem það sé dæmt til að falla.

Það var 21 desember á síðasta ári sem Newcastle vann síðast heimaleik í deildinni. Það var 2-1 gegn Tottenham og man ég ekki eftir eins slökum árangri Newcastle á St James´ Park í úrvalsdeildinni.

Liðsuppstilling Newcastle kom nokkuð á óvart í dag. Owen og Jonas báðir á bekknum. Ég get svo sem alveg skilð ákvörðunina með Owen en að Jonas skyldi ekki koma inná í dag er óskiljanlegt. Því miður er það bara þannig að Hughton er ekki maðurinn til að stjórna Newcastle í þessari baráttu. Hann hefur nú stjórnað liðinu í 10 leikjum í vetur og er árangurinn hjá honum ekki til að hrópa húrra fyrir, átta tapleikir og tvö jafntefli (tel ekki leikinn gegn WBA með þar sem Kinnear fór á sjúkrahús nokkrum klukkutímum fyrir leik).

Newcastle spilaði nokkuð vel í fyrri hálfleik og var óheppið að vera ekki yfir í hálfleik. Besta færi heimamanna fékk Martins á 23 mínútu þegar Newcastle fékk dæmda vítaspyrnu en Almunia varði slakt skot Martins nokkuð auðveldlega. Arsenal fékk sín færi einnig en Steven Taylor náði í tvígang að bjarga á síðustu stundu, einnig varði Harper glæsilega frá Van Persie. Frakkinn ungi Sebastien Bassong meiddist undir lok fyrri hálfleiks og varð að fara af velli, vonandi er hann ekki mikið meiddur því hann hefur verið besti varnarmaður Newcastle í vetur. Habib Beye kom inná í hans stað og fór þá Steven Taylor í miðvörðinn ásamt Coloccini. Það er gaman að fá Beye til baka og myndi ég vilja sjá vörnina svona í næsta leik (Beye, S Taylor, Bassong, Enrique). Öll mörk leiksins komu á 10 mínútna kafla í seinni hálfleik. Bentner kom gestunum yfir á 57 mínútu en Martins jafnaði strax í næstu sókn. Stuttu seinna Steven Taylor meiddist lítillega og varð að fá aðhlynningu, á meðan hann var utan vallar skoraði Arsenal annað mark sitt, hann þurfti svo að fara af velli vegna þeirra meiðsla. Michael Owen kom inná í hans stað og gerði ekki mikið á þeim tíma sem hann var inná. Þriðja mark Arsenal kom svo á 67 mínútu og  þar með var sæng Newcastle útbreidd. Svo kom skipting tímabilsins hjá Hughton á 79 mínútu, enn einu sinni fær Slowmobi tækifæri og ég segi það enn einu sinni, hvað er það  sem þjáfarar Newcastle sjá við þennan leikmann ? Að Jonas Gutierrez skuli ekki hafa verið notaður í dag er mér hulin ráðgáta. 

NUFC: Harper, S Taylor (Owen 65), Bassong (Beye 38), Coloccini, Enrique, R Taylor, Butt, Nolan, Duff, Lovenkrands (Ameobi 79), Martins.

Ónotaðir varamenn: Krul, Smith, Geremi, Jonas,

Skot (á mark) Nufc 11 (8) - Ars 15 (10)

Hornspyrnur: Nufc 8 - Ars 4

Áhorfendur: 49,972

Maður leiksins: Steven Taylor (bjargaði frábærlega í tvígang og kom í veg fyrir að Arsenal skoraði)

(FB)

 

21.Mars

Big Sam: "Mikil áhætta tekin með Hughton og Calderwood" 

Fyrrum stjóri Newcastle Sam Allardyce segir að Newcastle taki mikla áhættu á sæti sínu í deildinni með því að Hughton og Calderwood stjórna liðinu í fjarveru Joe Kinnear. "Mitt álit er að þeir þurfa stjóra. Í þessari stöðu, þá þarftu stjóra. Ef Joe hefur ekki náð sér að fullu, sem ég vona að hann geri. Á þessu stigi tímabilsins og í þessari stöðu þá er stjórinn mjög mikilvægur. Þessu er ekki beint gegn Chris Hughton og Colin Calderwood, en leikmenn vita að þeir eru ekki stjórinn þinn. Þú þarft á stjóra að halda vegna þess að hann fer langleiðina með að ákveða hvort þú heldur þer uppi eða fellur. Það er undir honum komið. hvernig hann velur liðið, hvernig hann skiptir inná, hvernig hann undirbýr leikmenn og hvernig hann kemur leikmönnum í gegnum þessa atburðarás. Það er ekki bara þetta. Þú þarft á foringja að halda. Leikmennirnir þurfa að vita hver ræður og það er mjög mikilvægt" sagði Big Sam.

 

Ferill Hughton er ekki glæsilegur með Newcastle, hann hefur aðeins fengið 5 stig í 10 leikjum sem hann hefur stjórnað. Þar með talið fimm leikir sem hann stjórnaði þegar Keegan fór frá liðinu í september þar sem hann tapaði öllum leikjunum. Enn er óvíst hvenær Joe Kinnear snýr til baka og hefur Mike Ashley tekið mikla áhættu með að láta liðið í hendurnar á Hughton og Calderwood.

(FB)

 

20.Mars

Newcastle - Arsenal

Newcastle fær Arsenal í heimsókn á St James´ Park á morgun og hefst leikurinn kl 17:30. Kevin Nolan er búinn að afplána þriggja leikja bann sitt og verður að öllum líkindum í byrjunarliðinu. Það hefur fjölgað aðeins á æfingum Newcastle og eru þeir Danny Guthrie, Habib Beye og Damien Duff allir orðnir leikfærir. Michael Owen spilaði í 73 mínútur gegn Hull um síðustu helgi og verður hann í framlínunni ásamt Martins. Chris Hughton er ánægður með fjölgun manna á æfingum. "Við erum ánægðir að fá þessa leikmenn til baka, en það þarf að taka ákvarðanir. Þó svo að sumir eru komnir til baka þá er spurning um hvað þeir hafa æft mikið. Leikmenn eins og Habib Beye og Danny Guthrie hafa æft á full alla vikun sem er ánægjulegt að sjá". Um endurkomu Kevin Nolan í liðið sagði Hughton: "Hann er mikilvægur okkur og góður karakter að hafa í kring um sig. Hann hefur einnig reynslu af svona stöðu eins og við erum í og það er okkur mikilvægt".

Arsenal liðið er geysilega sterkt og þar hefur Rússinn Andrei Arshavin farið á kostum undanfarið. Það mun því mikið mæða á varnarmönnum Newcastle á morgun.

Líklegt byrjunarlið Newcastle á morgun er svona:

Harper, S Taylor, Coloccini, Bassong, Enrique, R taylor, Butt, Nolan, Jonas, Martins, Owen.

Fyrri leikur liðanna á þessu tímabili endaði með 3-0 sigri Nallana á Emirates Stadium í lok ágúst. Leikur liðanna á SJP á síðasta tímabili endaði með 1-1 jafntefli þar sem Steven Taylor skoraði mark Newcastle.

Leikmannahópur Newcastle: Harper, Forster, Krul, Steven Taylor, Coloccini, Bassong, Jose Enrique, Beye, Edgar, Cacapa, Smith, Ryan Taylor, Butt, Nolan, Guthrie, Geremi, Duff Gutierrez, Owen, Ameobi, Martins, Lovenkrands, Carroll.

Dómari leiksins verður Mark Halsey.

(FB)

 

18.Mars

Butt: "Newcastle á leið afturábak"

Newcastle var að spila í Meistaradeildinni tímabilið 2003/04 og komust í undanúrslit í UEFA keppninni sama tímabil. Þeir komust svo í UEFA keppnina í tvö ár eftir það en síðan þá hefur leiðin legið niður á við og er nú liðið í geysilegri fallbaráttu. Nicky Butt: "Við höfum verið á leið afturábak síðustu ár og við vitum alveg hvað þarf að gera. Við eigum erfiða leiki framundan. Við verðum að halda þessu liði í Úrvalsdeildinni.Við verðum að tryggja okkur og byrja svo á fullu næsta tímabil".

Butt hefur spilað undir stjórn nokkurra stjóra hjá Newcaslte en segir að Joe Kinnear hafi fullt traust allra leikmanna hjá Newcastle en reiknað er með að Kinnear snúi tilbaka í byrjun aprílmánaðar. Butt hrósar Kinnear fyrir að taka þessari áskorun eftir að Keegan fór frá liðinu fyrr á tímabilinu. "Hann kom hérna undir mikilli pressu, hann tók þessu eins og maður. Í boltanum sér maður marga sem tala í kring um hlutina, en Joe er ekki þannig. Hann segir manni hlutina eins og þeir eru, það er það sem leikmönnum líkar vel við" bætti Butt við. 

Butt vill að það verði gerðar miklar breytingar á liðinu í sumar. Aðspurður um hvað Newcastle þarf á að halda sagði hann "Hvað þarf Newcastle á að halda ? Þessa stundina þurfum við að vera eins og atvinnumenn og standa okkur á vellinum. Við þurfum að tryggja okkur í deildinni og byrja ferskir á næsta tímabili. Það er oft sagt hérna í Newcastle. Við þurfum svo einhvern til að breyta liðinu algjörlega".

 

Algjörlega rétt hjá Butt, en að mínu mati væri Butt með fyrstu mönnum í burtu frá liðinu í þessari hreinsun. Í kjölfarið færu menn eins og Ameobi, Viduka, Geremi, Cacapa, Smith, Duff, Owen.

(FB)

 

18.Mars

Kevin Nolan og Michael Owen gætu spilað saman í fyrsta sinn

Það má fastlega reikna með að Nolan og Owen munu spila saman í fyrsta sinn með Newcastle gegn Arsenal um á laugardaginn. Þeir félgagar voru saman hjá akademíu Liverpool á tíunda áratugnum á síðustu öld. Nolan er tveimur og hálfu ári yngri en Owen. Owen náði að komast snemma í aðallið Liverpool tímabilið 1997/98 þá aðeins 17 ára. Owen spilaði svo eftirminnilega með Enska landsliðinu á HM 98 við hlið Alan Shearer. Það var í leik gegn Argentínu í fjórðungúrslitum (leikurinn sem Beckham var rekinn útaf) sem Owen skoraði frábært mark og stimplaði sig hressilega inn aðeins 18 ára. Nolan sagði um Owen: "Ég reyni að læra ýmislegt af honum, hvað hann er sterkur í boxinu. Hann var aðeins eldri þegar við vorum saman hjá Liverpool. Hann spilaði alltaf upp fyrir sig, en maður heyrði alltaf af honum.  Hann sló svo í gegn þegar ég var komin til Bolton. Hann var frábær á HM. Ég hitti hann nokkru sinnum áður en ég kom hingað, það er gaman að kynnast honum sem leikmanni".

Ef Owen ákveður að fara frá Newcastle í sumar þá er Nolan talinn mjög líklegur að taka við fyrirliðabandinu af Owen.

(FB)

17.Mars

Sigurgangan heldur áfram.

Newcastle - Everton 2-1  

Varalið Newcastle tók á móti varaliði Everton á Whitley Park í gær. Meðal áhorfenda í gær voru Chris Hughton og Colin Calderwood sem eru sennilega að spá í því að stokka upp í leikmanna hópi aðalliðsins. Einnig mátti sjá þá Jonas Gutierrez og unga frakkan Sebastien Bassong meðal áhorfenda.

Það voru gestirnir sem komust yfir á 15 mínútu leiksins með marki frá Cory Sinnott en hann pottaði boltanum inn eftir aukaspyrnu frá Eunan O´Kane. Staðan var 0-1 í hálfleik. Það var svo Mark Doninger  sem jafnaði metin á 65 mínútu með skallamarki eftir að James Tavernier vippaði boltanum inn í miðjan vítateig. Þetta var níunda mark hans 

í vetur. Eftir það áttu liðin nokkur færi sem ekkert varð úr. Sigurmarkið kom u.þ.b 10 mínútum fyrir leikslok og var það hinn bráðefnilegi Nile Ranger sem skoraði með skoti af 16 metra færi og tryggði varaliðinu fimmta sigurinn í síðustu sex leikjum.

Nufc: Tim Krul, James Tavernier, Shane Ferguson (Paul Dummett 85m), James Taylor, Darren Lough, Mark Doninger, Kazenga Lualua, Jonny Godsmark, Frank Wiafe Danquah , Nile Ranger, Wesley Ngo Baheng ( Michael McCrudden 87m)

Ónotaðir Varamenn: Ole Sonderberg, Callum Morris, Brad Inman.

(ÞV)

 

16.Mars

Þrír til baka

Þeir Danny Guthrie, Habib Beye og Kevin Nolan verða allir klárir í slaginn gegn Arsenal um næstu helgi. Nolan hefur afplánað þriggja leikja bann og þeir Beye og Guthrie eru búnir að jafna sig á meiðslum og eru byrjaðir að æfa á fullu. Chris Hughton: "Við fáum Kevin Nolan til baka sem eru góðar fréttir, einnig fáum við Danny Guthrie og Habib Beye sem eru byrjaðir að æfa á fullu. Eina vandamálið er að þeir tveir eru búnir að vera frá í nokkurn tíma. En þeir eru búnir að taka þátt í tveimur æfingum og hafa núna heila viku framundan fyrir leikinn gegn Arsenal. Við munum fylgjast náið með þeim en það er auðvitað frábært að fá þá til baka á þessum tíma".

(FB)

 

16.Mars

Steven Taylor: "Við verðum að taka áhættu"

Taylor finnst kominn tími á að fara taka smá áhættu til að stýra liðinu frá hættusvæðinu. Liðið er nú með jafnmörg stig og Stoke sem er í fallsæti og er aðeins markamunur sem heldur liðinu frá fallsætinu. Chris Hughton kaus að spila með varnarsinnaða miðju gegn Hull um helgina með þá Butt, Smith og Geremi. Jonas var svo fjórði maðurinn á miðjunni og er hann sá eini sem er sóknarsinnaður. Það var því ekki úr miklu að moða fyrir Martins og Owen í sókninni. Steven Taylor skoraði eina mark Newcastle í leiknum og var það einkar vel afgreitt. En hann vill að liðið fari að taka meiri áhættu í leikjum til að eiga möguleika á að bjarga liðinu frá falli. Í viðtali við Evening Chronicle sagði hann: "Við bíðum alltaf eftir því hvað gerist. Í fyrri hálfleik, sérstaklega á útivelli, þá er eins og við bíðum eftir að eitthvað gerist. Þegar þeir skoruðu (Hull), þá var eins og menn vöknuðu til lífsins. Skiljanlega eru stuðningsmenn ósáttir. Við skoruðum markið á síðustu 10 mínútum hálfleiksins, og þannig ættum við að spila allan leikinn. Við settum pressu á þá. Við eigum að gera það allt tímabilið, ekki bara núna. Við verðum að taka áhættu, ef við ætlum að ná hagstæðum úrslitum. Við verðum að ná fleiri skotum á markið og vera harðari í teignum. Liðin sem við erum að spila við eru óhrædd að gera þetta og hví ekki við ? 

(FB)

 

16.Mars

Alan Suddick deyr úr krabba aðeins 64 ára

Gömul Newcastle hetja er fallinn, Alan Suddick sem lék með Newcastle á árunum 1961-66 og spilaði 152 leiki og skoraði 43 mörk fyrir Newcastle. Hann var á sínum tíma yngsti leikmaður sem leikið með Newcastle aðeins 17 ára og 158 daga gamall. Suddick eða "Sooty" eins og hann var kallaður spilaði á vinstri kantinum og var mikill grallari. Menn segja að það hafi verið erfitt að vera alvarlegur í kring um hann því hann kom mönnum alltaf til að hlægja. Suddick var svo seldur til Blackpool fyrir 60 þúsund pund og spilaði hann 348 leiki og skoraði 76 mörk fyrir þá. Hann spilaði einnig með Stoke, Southport og Bury. Suddick barðist við krabbamein síðustu árin og eins og oftast vill verða að þá hefur krabbinn yfirhöndina og lauk þeirri baráttu í gær.

(FB)

 

16.Mars

Varalið Newcastle og Everton mætast í kvöld

Varalið Newcaslte hefur spilað fimm leiki í röð án þess að tapa og ætla þeir að reyna bæta í safnið í kvöld þegar þeir mæta Everton á Witley Park í kvöld. Newcastle tapaði fyrri leiknum 1-0 og ætla strákarnir að reyna hefna fyrir tapið. Richard Money hefur úr þessum hóp að velja:Tim Krul, Ole Soderberg, Mark Doninger, Paul Dummett, Shane Ferguson, Jonny Godsmark, Brad Inman, Darren Lough, Kazenga LuaLua, Michael McCrudden, Callum Morris, Wesley Ngo Baheng, Nile Ranger, James Tavernier, James Taylor, Frank Wiafe Danquah.

(FB)

 

 

 

15.Mars

Varaliðið mætir Newcastle Benfield

Varalið Newcastle mætir strákunum í Newcastle Benfield á undanúrslitum Northumberland Senior Cup sem er bikarkeppni Knattspyrnusambands Northumberland (The Northumberland Football Association) Það má segja að þetta sé héraðsbikarinn á þessu svæði. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast stórliðin Ashington og Newcastle Blue Star.

(FB)

 

15.Mars

Annað tapið í röð hjá U18 liðinu

Það hefur ekki verið skemmtilegt að vera í unglingaliði Newcastle í dag. Þeir ferðuðust til Sunderland til þess að spila á móti ungu strákunum þeirra. Leikurinn átti sér stað á Academy of Light vellinum. Sunderland unnu nokkuð sannfærandi 3-1 sigur á Newcastle strákunum. Það Ástralinn Brad Inman sem skoraði eina mark Newcastle á 56 mínútu leiksins. Með sigrinum í dag hafa Sunderland strákarnir ná 11 stig forskoti í deildinni. Newcastle strákarnir eru í nokkurri lægð og hafa tapað tveimur leikjum í röð eftir að hafa farið 12 leiki án taps í Premier Academy league North deildinni. Þeir fara nú vonandi að ná sínu gamla formi.

NUFC:Soderberg, Tavernier, Dummett, Inman, Morris (Taylor 55), Lough, Adjei, Williams, Baheng, Vuckic (McCrudden, 58), Ferguson. 

Ónotaðir varamenn. : Bath, Folan, Alnwick.

(ÞV) 

 

14.Mars

Hull - Newcastle 1-1

(Geovanni 9) - (S Taylor 38)

 

Ellefta jafteflið í vetur

Það verður seint sagt að þetta hafi verið falleg knattspyrna sem boðið var uppá í dag á KC Stadium hjá Hull og Newcastle. Hughton breytti liðinu frá leiknum gegn Man Utd og finnst mér það furðuleg ákvörðun því liðið þótti sína fínan leik gegn Englandsmeisturunum. Nicky Butt og Michael Owen komu inn fyrir þá Peter Lovenkrands og Ryan Taylor. Geremi var færður á hægri kantinn og voru því Smith og Butt á miðjunni.

Hull komst snemma yfir í leiknum með fínu skallamarki frá Geovanni. Upphafið að því var að Jonas tapaði boltanum klaufalega í sókninni og var Newcastle refsað illilega. Oba Martins fékk fínt færi til að jafna stuttu seinna en skaut framhjá. Steven Taylor jafnaði leikinn á 38 mínútu og var afgreiðsla hans einkar glæsileg. Butt átti þá fína sendingu inn á markteig Hull (ótrúlegt en satt) og þar var Taylor mættur og sneiddi boltann glæsilega í markhornið. Seinni hálfleikur var mikil barátta og fengu bæði lið færi til að skora en þau nýttust ekki og 1-1 jafntefli sennilega sanngjörn niðurstaða. Staða liðsins batnaði því alls ekki og er nú liðið með 29 stig eða jafnmörg og Stoke sem er í fallsæti. Framundan eru tveir mjög erfiðir heimaleikir gegn Arsenal og Chelsea. Ég get ekki orða bundist með eina skiptinguna í dag. Ameobi kemur inná fyrir Owen þegar um 20 mínútur eru eftir. Eins og ég hef oft sagt áður að þá get ég ekki skilið hvað menn sjá við þennan leikmann. Hann er svo slakur að það er ekki fyndið. Á þessum stutta tíma sem hann var inná náði hann að brjóta nokkrum sinnum af sér og eyðileggja nokkrar sóknir. Svo er eins og það vanti eitthvað í Ameobi hann er svo latur að sjá á vellinum. Fyrir mitt leiti hefði ég sett Lovenkrands inná frekar en Ameobi eða jafnvel Andy Carroll. Lovenkrands skoraði í síðasta leik og hann er verðlaunaður með sæti á bekknum í næsta leik ! Ég skil ekki svona ákvarðanir.

 

NUFC:Harper, Steven Taylor, Coloccini, Bassong, Jose Enrique, Smith (Ryan Taylor 75), Butt, Geremi, Gutierrez, Owen (Ameobi 73), Martins.
Ónotaðir varamenn: Forster, Duff, Lovenkrands, Edgar, Carroll.

Gul spjöld: Coloccini, Geremi, Smith.

Skot (á mark) Hull 9 (2) - Nufc 9 (3)

Hornspyrnur: Hull 3 - Nufc 3

Áhorfendur: 24,914

Maður leiksins: Steven Taylor (Barðist vel í dag og skoraði flott mark)

(FB)

 

13.Mars

Jonas: "Markmiðið að vera öruggir fyrir lokaleikina"

Argentínumaðurinn snjalli Jonas Gutierrez vill koma í veg fyrir mikla spennu í lokaumferðunum og vill að liðið verði búið að tryggja sér sæti sitt í deildinni. Fyrsta skrefið að því markmiði er að næla í þrjú stig gegn Hull á morgun. "Við erum að reyna kom í veg fyrir að þurfa sigra í síðasta heimaleiknum eða síðasta útileiknum til að vera öruggir. Nú verðum við að ná í þrjú stig gegn Hull og halda áfram að hala inn stigum til að komast frá hættusvæðinu. Ég reyni að hugsa ekki um fallsætin. Ég tel að við munum komast frá  frá því svæði. Við þurfum bara að sigra á morgun og mjaka okkur upp töfluna".

Tap á morgun myndi að öllum líkindum þíða að Newcastle færi í fallsæti og þetta verður alveg örugglega erfiður leikur því eins og menn vita þá hefur Newcastle ekki enn unnið Hull í vetur þrátt fyrir að hafa mætt þeim þrisvar. 

Jonas bætti við: "Tilfinningin þessa stundina er ekki kvíði, við viljum spila við Hull strax. "Bring it on" það er sú tilfinningin fyrir leikinn. Við vitum hvað þessi leikur mikilvægur fyrir okkur og hvað hann skiptir miklu máli þegar upp er staðið í lok tímabilsins. Þeir spila fast. En við erum með leikmenn til að taka á móti þeim. Það sem við höfum eru leikmenn sem skora mikilvæg mörk og særa þá".

Jonas hefur tekið þátt í fallbaráttu áður, á Spáni með Real Mallorca. Hann segir að það sé ekki líkt þeirri baráttu.

"Þetta er öðruvísi hér en á Spáni. Taflan hér er svo þétt og staðan er fljót að breytast. Fyrstu tvö tímabilin á Spáni með Real Mallorca var fallbarátta. Svo að ég veit hvað þarf að gera. Ég er ekki að bera saman lífið hér og á Spáni og hvernig staðan er hér núna. Ég veit að það er mikið í húfi og við erum einn stærsti klúbburinn hér á Englandi" sagði Jonas að lokum.

(FB)

 

13.Mars

Hull - Newcastle

Það verður sannkallaður sex stiga fallbaráttuslagur á morgun kl 15:00 þegar Newcastle heimsækir Hull á KC Stadium. Leikmannahópur Newcastle er aðeins að stækka og snúa þrír leikmenn til baka í hópinn. Michael Owen, Damien Duff og Nycky Butt eru allir leikfærir og verða með. Þeir Habib Beye og Danny Guthrie eru mættir til æfinga en eru ekki klárir í þennan leik en gætu verið með gegn Arsenal um næstu helgi. Þeir leikmenn sem eru enn meiddir eru: Mark Viduka, Xisco, Joey Barton, Ignacio Gonzalez en það er stutt í að þeir verði allir klárir í slaginn.

Kevin Nolan tekur út síðasta leikinn af þriggja leikja banni sínu eftir rauða spjaldið gegn Everton í síðasta mánuði. 

Chris Houghton um endurkomu Owen: "Þetta er mikil lyftistöng. Hann er okkar fyrirliði, hann er leikmaður sem skorar alltaf mörk. Við höfum alltaf sagt að við viljum hafa sterkan varmannabekk. Sterkari varamannabekkur þíðir bara sterkari lið og eykur samkeppni um stöður í liðinu. Að fá leikmann eins og Owen til baka er því mikil lyftistöng fyrir okkur".

Newcastle á harma að hefna gegn Hull því þeir hafa tvisvar sigrað á St James´Park í vetur í deild og bikar. Þessum tveimur liðum hefur ekki gengið sem best á þessu ári. Hull vann sinn fyrsta leik í 11 leikjum um síðustu helgi þegar þeir unnu  0-1 Fulham á Craven Cottage með marki á síðustu mínútu leiksins. Newcastle hefur aðeins unnið einn leik af síðustu tólf og var það gegn WBA þann 7 febrúar. Líklegt byrjunarlið Newcastle: Harper, S Taylor, Coloccini, Bassong, Enrique, R Taylor, Butt, Smith, Jonas, Martins, Lovenkrands. Sá möguleiki er einnig að Geremi verði á miðjunni með Butt og að Owen verði í byrjunarliðinu en ég reikna með að Owen byrji á bekknum.

Leikmannahópurinn:

Harper, Krul, Forster, S Taylor, Bassong, Coloccini, Enrique, Edgar, Cacapa, Butt, Duff, Geremi, R Taylor, Lovenkrands, Ameobi, Jonas, Smith, Owen, Martins, Carroll, LuaLua.

Dómari leiksins verður Howard Webb.

(FB)

 

13.Mars

Real Madrid á höttunum eftir Haris Vuckic

Fregnir herma að stórlið Real Madrid vilji fá hinn efnilega Slóvena Haris Vuckic til sín. Vuckic sem er aðeins 16 ára kom til Newcastle í janúar frá Slóvenska liðinu NK Domzale og hefur átt góða leiki með unglingaliði og varaliði Newcastle. Hann mun að öllum líkindum spila með aðalliði Newcastle á næsta tímabili. Vuckic er talin vera einn sá efnilegasti miðjumaður í Evrópu í dag. Hann er með þriggja ára samning við Newcastle og vilja þeir örugglega halda honum hjá sér hvað sem það kostar.

(FB)

 

 

 

 

 

13.Mars

Habib Beye mættur til æfinga

Senegalinn Habib Beye mætti á æfingu í dag og gæti spilað gegn Arsenal um næstu helgi. Hann meiddist í leik gegn Wigan í desember og hefur ekkert spilað síðan. Chris Hughton: Habib er mættur á æfingu sem er mikil lyftistöng fyrir okkur. Hann er ekki bara frábær leikmaður heldur er hann líka mjög skemmtilegur karakter og hann er líke einstaklega vinsæll. Við þurfum á manni eins og Habib að halda og við erum mjög ánægðir að fá hann til baka.

(FB) 

 

 

 

12.Mars

Andy Carroll skrifar undir nýjan samning

Heimamaðurinn hefur gert nýjan þriggja og hálfs árs samning við Newcastle. Samningur hann mun því renna út sumarið 2012. Carroll hefur fengið að spila nokkuð á þessu tímabili og hefur hann skorað 2 mörk í 5 leikjum sem hann hefur verið í byrjunarliðinu. Alls hefur hann spilað 9 leiki á þessu tímabili. Andrew Thomas Carroll eins og hann heitir fullu nafni er fæddur og uppalinn í Newcastle. Hann er 191 sm á hæð. Hann á 8 landsleiki og 4 mörk að baki með U19 ára liði Englendinga. Hann er að vonum mjög ánægður með samninginn og í viðtali á heimasíðu Newcastle sagði hann: "Ég er í skýjunum að framtíð mín er ráðin og það var aldrei neinn vafi í mínum huga að ég myndi skrifa undir nýjan samning. Hérna vill ég spila fótbolta og þetta tímabil hefur verið sannkallaður draumur fyrir mig. Ég kom inn í liðið fyrr á tímabilinu og skoraði tvö mörk í sex leikjum. Fyrsta markið fyrir mitt heimalið var gegn West Ham og það var frábært og vonandi mun ég skora mörg mörk í framtíðinni. En markmið mitt núna er að komast aftur í liðið og hjálpa liðinu við að halda sér í deildinni".

Carroll hefur verið kallaður í U20 landslið Englands sem spilar æfingaleik gegn Ítalíu á Loftus Road þann 31 mars næstkomandi.

(FB)

 

11.Mars