Dregið var í þriðju umferð FA-bikarsins á Englandi í dag og mun Newcastle mæta Hull City á KC Stadium helgina 3/4 janúar næstkomandi.
Hull hefur byrjað tímabilið mjög vel og verður þetta erfitt verkefni fyrir Joe Kinnear og leikmenn hans. Þetta verður því kjörið tækifæri fyrir Newcastle að hefna fyrir tapið gegn Hull á St James´ Park fyrr á þessu tímabili.
Hér er svo allur drátturinn:
Portsmouth v Bristol City Sheffield Wed v Fulham Preston v Liverpool Birmingham v Wolves West Ham v Barnsley Middlesbrough v Barrow Hull City v Newcastle Hartlepool v Stoke Chelsea v Southend Manchester City v Nottingham Forest Cardiff v Reading Ipswich v Chesterfield eða Droylsden Charlton v Norwich West Brom v Peterborough eða Tranmere Torquay v Blackpool Leyton Orient v Sheffield United Southampton v Manchester United Millwall v Carlisle eða Crewe Histon v Swansea Forest Green Rovers v Derby QPR v Burnley Leicester v Crystal Palace Tottenham v Wigan Morecambe eða Cheltenham v Doncaster Arsenal v Plymouth Notts County eða Kettering v Eastwood Town Bournemouth eða Blyth Spartans v Blackburn Macclesfield v Everton Watford v Scunthorpe Sunderland v Bolton Coventry v Kidderminster Gillingham eða Stockport v Aston Villa
(FB)
29.Nóv
Middlesbrough - Newcastle 0-0
Steindautt jafntefli
Þeir sem sáu ekki leikinn í dag hafa ekki misst af miklu, því þetta var vægast sagt STEINDAUTT jafntefli.
Það var tvennt sem gladdi augað í dag, innkoma Mark Viduka í dag og frammistaða varnarinnar með Sebastien Bassong í broddi fylkingar. Annað var skelfilegt hjá okkar mönnum. Liðið skapaði sér mjög fá færi og leikmenn áttu mjög erfitt með að halda boltanum innan liðsins. Sendingar á milli manna voru hræðilegar og miðjumenn okkar voru mjög hugmyndasnauðir. Hættulegasta færi Newcastle kom á 34 mínútu þegar Martins átti skot í slá Boro manna. Heimamenn voru örlítið hættulegri í heildina og fengu nokkur ágætis færi en vörn Newcastle með Bassong sem besta mann náðu að stöðva sóknarmenn Boro. Shay Given stóð fyrir sínu eins og alltaf en það sama er ekki hægt að segja um nokkra aðra leikmenn. Ég vonaði svo innilega að N´Zogbia myndi nýta tækifærið í dag enda í fyrsta sinn í byrjunarliðinu eftir að Kinnear tók við, en hann átti ekki góðan dag. Jonas Gutirrez var aðeins skugginn af sjálfum sér og er þetta slakasti leikur sem ég hef séð með honum. Miðjan með þá Butt og Guthrie var eins og áður sagði mjög hugmyndasnauð og sást greinilega hvað liðinu vantar skapandi miðjumann. Michael Owen virkaði áhugalaus og skapaði sér ekki eitt einasta færi og var alveg óskiljanlegt af hverju Kinnear tók Martins útaf frekar en Owen. Martins hafði þó verið að reyna á fullu og virkaði hættulegri en Owen. Viduka kom inná fyrir Martins á 65 mínútu og var Nígeríumaðurinn alls ekki sáttur við þá ákvörðun stjórans og rauk beint inn í búningsklefann. Innkoma Viduka var ánægjuleg og var hann nokkuð sprækur í sókninni. Vonandi að hann komi sér í topp form sem fyrst því ekki veitir af samkeppni um stöðu í sókn Newcastle.
Þessi leikur var mikil vonbrigði og ef þetta er það sem koma skal í vetur er ekkert annað en fallbarátta framundan hjá okkar mönnum.
Þetta eina stig sem Newcastle fékk í dag varð til þess að þeir fóru upp um eitt sæti og þar með upp fyrir Sunderland sem situr nú í fallsæti.
Maður leiksins: Sebastien Bassong (átti mjög góðan leik í dag og virkaði traustur í vörninni, hann átti einnig frábæran leik gegn Chelsea síðustu helgi)
(FB)
28.Nóv
Middlesbrough - Newcastle
Newcastle fer í stutta ferð til Middlesbrough og það sem er helsta að frétta af leikmannmálum er að Damien Duff og Shola Ameobi eru tæpir eftir að hafa orðið fyrir smávægilegum meiðslum í vikunni, en það kemur í ljós á morgun hvort þeir verða með eða ekki. Mark Viduka er orðinn klár og verður á bekknum gegn fyrrum félögum sínum í Boro. Þá er Steven Taylor einnig orðinn leikfær og má reikna með því að hann verði á bekknum einnig. Spánverjinn ungi Xisco er búinn að jafna sig á meiðslum og er í leikmannahópnum. Leikur liðanna á síðasta tímabili endaði með 2-2 jafntefli og voru það Charles N´Zogbia og Mark Viduka sem skoruðu mörk Newcastle.
Það fór eins og spáð var í gær að Kinnear fengi ráðningu út tímabilið.
"Ég hef notið þess gífurlega að vera hérna frá því að ég kom hingað. Við eigum mikla áskorun framundan í vetur en ég hef fulla trú á því að okkur muni vegna vel. Við erum með góða leikmenn en þurfum að styrkja okkur í janúar og ég mun vinna náið með stjórn félagsins til að ná settu markmiði" sagði Kinnear á heimasíðu Newcastle í dag. Kinneaer sagði einnig að hann vill fá þrjá nýja leikmenn til Newcastle í janúar og hann staðfesti að hann hefði peninga til umráða til leikmannakaupa. "Þetta var eitt af því fyrsta sem ég spurði um og ég er með ákveðna leikmenn í huga. Við þurfum að styrkja okkur á ákveðnum stöðum á vellinum og ég mun skoða málin vandalega og vonandi munum við fá þrjá leikmenn til okkar í janúar" sagði Kinnear að lokum. Hér má sjá viðtal við Kinnear þar sem hann ræðir við frétta menn um stöðu mála hjá Newcastle.
(FB)
27.Nóv
Steven Taylor klár í slaginn
Joe Kinnear verður að velja á milli Sebastien Bassong og Steven Taylor í miðvarðarstöðuna næsta laugardag þegar Newcastle mætir grönnunum í Middlesbrough. Taylor hefur ekki spilað síðan Newcastle vann Aston Villa
2-0 þann 3 nóvember en hann hefur nú jafnað sig á nárameiðslum sem hafa hrjáð kappann. En Bassong spilaði sinn besta leik fyrir Newcastle gegn Chelsea um síðustu helgi og verður því erfitt fyrir Kinnear að gera upp á milli þeirra. Kinnear í viðtali á heimasíðu Newcastle: "Bassong sýndi hversu góður leikmaður hann er þegar hann spilar sína stöðu". Kinnear var einnig ánægður með aðra varnarmenn og sagði "Við spiluðum við nokkra af bestu leikmönnum Evrópu síðasta laugardag og við vorum vel skipulagðir. Habib Beye spilaði sinn besta leik síðan ég tók við liðinu. En bæði hann og Coloccini hafa verið góðir í vetur og svo verð ég að segja að mér fannst Enrique halda Joe Cole algjörlega niðri".
Þá er Mark Viduka farinn að æfa á fullu og gæti verið í leikmannahópnum á laugardag.
Mín skoðun er sú að Kinnear á ekki að gera breytingu á liði Newcastle annað en að ég væri alveg til í að sjá N´Zogbia fá smá tækifæri á kostnað Duff á vinstri kantinum. Byrjunarliðið að mínu mati ætti að vera eftirfarandi: Given, Beye, Coloccini, Bassong, Enrique, Gutirrez, Butt, Guthrie, N´Zogbia, Owen, Martins.
(FB)
27.Nóv
Kinnear boðin samningur út tímabilið ?
The Daily Mail greinir frá því að Mike Ashley muni bjóða Joe Kinnear samning út þetta tímabil. Enda gengur Ashley ekkert að selja félagið. Sagt er að Bandarískir fjárfestar séu þeir einu sem hafa áhuga á að kaupa félagið en eru ekki tilbúnir að greiða þá upphæð sem Ashley vill fá fyrir félagið. Samningur Kinnear rennur út í lok desember en hann hefur ekki farið leynt með þá skoðun sína að hann vill stýra liðinu lengur en það. Kinnear er nú þegar farinn að spá í hvaða leikmenn hann getur fengið til Newcastle í janúar og hefur hann sagt að hann hafi áhuga á að fá til sín nokkra leikmenn Arsenal (Denilson, Djourou og Song) að láni en það verður að teljast ólíklegt þar sem Arsenal þarf á öllum sínum leikmönnum að halda í þeim keppnum sem þeir eru í. Aðrir leikmenn sem Kinnear er talinn hafa áhuga á að fá til Newcastle eru John Arne Riise (Roma), Cristopher Samba og Steven Warnock (báðir hjá Blackburn)
(FB)
27.Nóv
Er kraftaverkamaðurinn Temuri Ketsbaia rétti maðurinn fyrir Newcastle ?
Hver man ekki eftir þessum snjalla Georgíumanni sem spilaði með Newcastle á árunum 1997-2000. Flestir muna eftir honum fyrir eitt furðulegasta fagn allra tíma. Það var árið 1998 í leik gegn Bolton á St James´ Park, hann gekk hreinlega af göflunum eftir að hann skoraði og henti treyju sinni upp í stúku og réðist svo á auglýsingaskilti og sparkaði í það nokkrum sinnum (sjá hér).
Hann er nú stjóri hjá Famagusta á Kýpur og var aðeins einni mínútu frá því í gær að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum meistaradeildarinnar. Þeir gerðu
2-2 jafntefli við Werder Bremen á Kýpur og jafnaði Bremen á lokamínútu leiksins. Famagusta hefur komið virkilega á óvart í meistaradeildinni í vetur og hefur aðeins tapað einum af fimm leikjum í sínum riðli. Með sigri í síðasta leiknum gegn gríska liðinu Olympiakos tryggja þeir sér sæti í 16 liða úrslitum.
Ketsbaia segir að hann myndi stökkva á tækifærið að stjórna Newcastle.
(FB)
25.Nóv
Keith Harris talar um söluna á Newcastle
Keith Harris stjórnarformaður fjárfestingabankansSeymour Pierce var í viðtali hjá BBC Radio 5 Live’s Sportsweek og hafði þetta að segja um væntanlega sölu á Newcastle.
„Ég hef sagt það áður, ef þú ætlar að gera þig líklegan til að eignast Newcastle eða annað fótboltafélag viltu vera í þeirri stöðu að geta unnið með stjóranum í málum sem varðar leikmenn sem á að fá til félagsins og leikmenn sem þarf að losa sig við. Ef ekki þá myndir þú fresta því þangað til í febrúar til að sjá hvað núverandi eigendur myndu gera á leikmannamarkaðnum. Við erum að vonast eftir að það fari eitthvað að gerast upp úr miðjum nóvember eða á næstu tveimur til þremur vikum. Ef ekki þá er líklegt að þetta dragist til febrúar þegar félagsskiptaglugganum lokar. Einnig vonast menn til að fjármálamarkaðurinn sé búinn að rétta sig af því að ekki hefur þessi niðursveifla hjálpað.Þetta er bara eins og ég sé hlutina, ég hef enga heimildir fyrir þessu, þetta er bara tilfinningin sem ég hef á þessu máli. Málið með Newcastle er tiltölulega einfalt. Síðustu vikur eru verstu vikur í fjármálaheiminum sem elstu menn muna og er ekkert sem bendir til þess að það fari batnandi. Fjárfestarnir sem leituðu til okkar og þeir sem við höfðum samband við, hafa líka orðið fyrir þessari fjármálalægð og allir eru varkárir. En það jákvæða í þessu er hvað dollarinn er sterkur miðað við pundið og þá er ódýrara fyrir suma að kaupa enskt félag.“
(ÞVV)
25.Nóv
Joe Kinnear segir að N´Zogbia sé ekki á förum frá Newcastle
Kinnear blæs á þær sögusagnir að hann ætli sér að selja Charles N´Zogbia í janúar. Hann hefur verið orðaður við franska liðið Paris SG og Arsenal í gær og í dag. „Ég hef lesið fréttir þess efnis að ég ætli mér að selja Charles í janúar. Ég veit ekki hver birtir svona fréttir, en það er ekkert til í þessu. Við eigum erfitt tímabil fyrir höndum og við gerum okkur allir grein fyrir því. Charles er mikilvægur okkar liði og er í mínum áætlunum með liðið. Maður vill bæta við leikmönnum á borð við Charles en ekki losa sig við þá" sagði Kinnear á heimasíðu Newcastle.
(FB)
25.Nóv
Andy Carroll til bjargar
Varalið Newcastle gerði 1-1 jafntefli við varalið Liverpool í gær á Witley Park. Það var heimamaðurinn Andy Carroll sem jafnaði leikinn á 93 mínútu eftir að Liverpool komst yfir í uppbótartíma í fyrri hálfleik. Leikurinn fór fram við erfiðar aðstæður en völlurinn var mjög blautur eftir mikla rigningu fyrr um daginn. Leikmenn beggja liða áttu erfitt með að spila á rennblautum vellinum en Newcastle skapaði sér þó nokkur færi áður en Carroll jafnaði í lokin.
Richard Money þjálfari varaliðsins var nokkuð sáttur við sína menn engu að síður. "Mér fannst við spila vel miðað við aðstæður og sköpuðum okkur fín færi" sagði Money eftir leikinn.
NUFC: Steve Harper, Phil Airey, Darren Lough, Mark Doninger (James Tavernier, 60m), David Edgar, Tamas Kadar, James Marwood, Brad Inman, Andy Carroll, Fabio Zamblera (Nile Ranger, 67m) Sammy Ameobi Varamenn: Jeff Henderson, Ole Soderberg
24.Nóv
Harper í markinu í kvöld
Varaliðið á leik gegn Liverpool í kvöld og verður Steve Harper í markinu. David Edgar og Andy Carroll spila líka báðir en gaman er að minnast á það að viðvera Harpers þýðir að meðalaldurinn í varaliðinu hækkar um rúmt eitt ár.
Byrjunarliðið: Steve Harper, Phil Airey, Darren Lough, Mark Doninger, David Edgar, Tamas Kadar, James Marwood, Brad Inman, Andy Carroll, Fabio Zamblera, Shane Ferguson.
Varamenn: Jeff Henderson, Ole Soderberg, Sammy Ameobi, James Tavernier, Nile Ranger.
(Davíð Daníelsson)
24.Nóv
Tap gegn Everton
Varaliðið tapaði á þriðjudaginn gegn reyndu liði Everton en í því voru Tony Hibbert, Leighton Baines, Segundo Castillo og Victor Anichebe. Leikurinn var hnífjafn og hefði bæði Fabio Zamblera og Mark Doninger geta skorað en hinumegin átti Anichebe tvö klúðruð færi. Sigurmarkið kom á 25. mín með skalla frá Lukas Jutkiewicz eftir sendingu Hibberts. Andy Carroll hefði síðan átt að skora en hann skallaði framhjá. Liðið stóð sig vel í heildina en erfitt að keppa á móti varaliði sem er t.d. með 2 leikmenn sem hafa spilað fyrir enska landsliðið. Lið Newcastle: Fraser Forster, Philip Airey, Darren Lough, Mark Doninger (Sammy Ameobi, 71m), James Tavernier, Tamas Kadar, Jonny Godsmark, Kazenga LuaLua (Brad Inman, 60m) Andy Carroll, Fabio Zamblera (Nile Ranger, 46m) James Marwood Ónotaðir varamenn: Ole Soderberg, Jeff Henderson
Everton: Carlo Nash, Tony Hibbert, Leighton Baines, Moses Barnett, James McCarten, James Wallace, Daniel Gosling, Segundo Castillo, Lukas Jutkiewicz, Victor Anichebe, John Paul Kissock Ónotaðar skiptingar: Lars Stubhaug, Thomas McCready, Kieran Agard, Lee Molyneux, Aristote Nsiala.
(Davíð Daníelsson)
24.Nóv
Per Skjelbred orðaður við Newcastle
Þessi ungi norðmaður var fyrst orðaður við Newcastle í sumar en ekkert varð úr kaupunum á honum. Nú er sagt að Newcastle ásamt öðrum liðum á Englandi ætli að reyna krækja í hann í janúar. Sagt er að núverandi lið hans Rosenborg og Newcastle hafi nú þegar komist að samkomulagi um kaup á honum í janúar.
En Andreas Ekker umboðsmaður Skjelbred segir í viðtali við TV2 að ekkert sé til í þeim orðrómi. "Ég hef ekkert heyrt frá Newcastle. Ég veit ekki hvaðan þessi saga kemur því ég hef ekki talað við forsvarsmenn Newcastle". Ekker viðurkenndi hinsvegar að nokkur ensk lið hafá sýnt honum áhuga. Þau lið eru talin vera Bolton, Blackburn, Hull og Tottenham.
Per Skjelbred er 21 árs sóknarmiðjumaður og leikur með Rosenborg í Noregi og hefur hann spilað 70 leiki og skorað 8 mörk fyrir norska liðið. Hann á einnig 5 landsleiki að baki með norska A landsliðinu. Skjelbred á þann vafasama heiður að vera yngsti leikmaður norsku deildarinnar til að rekinn útaf. En hann var rekinn af velli í leik gegn Molde í maí 2005 aðeins 17 ára. Hann varð svo fyrir alvarlegum meiðslum í leik gegn Olympiakos í meistaradeildinni í nóvember 2005. Hann tvíbrotnaði eftir tæklingu frá leikmanni Olympiakos og var frá keppni til mars 2006.
(FB)
24.Nóv
Kinnear: "Given sá besti í deildinni"
Joe Kinnear segir að Newcastle sé með besta markmanninn í úrvalsdeildinni. Given átti stórleik gegn toppliði Chelsea á laugardaginn og varði oft frábærlega frá mönnum eins og Lampard, Anelka, Deco og Malouda.
"Hann er sá besti í deildinni, án nokkurs vafa. Skallinn sem hann varði frá Lampard var frábær, hann varði svo í nokkur skot í viðbót og ef maður ætlar sér stig á velli eins og Stamford Bridge þá þarf maður á markmanni eins og Given að halda. En við' vörðumst líka mjög vel sem lið og ég er stoltur af mínum mönnum" sagði Kinnear að lokum.
Þess má svo geta að bæði Given og Bassong voru í liði vikunnar hjá Sky Sports og hefur það nú ekki oft komið fyrir í vetur að Newcastle eigi menn í liði vikunnar. Sebastien Bassong átti sinn besta leik fyrir Newcastle gegn Chelsea og verður erfitt fyrir Steven Taylor að vinna sæti sitt aftur í byrjunarliðinu þegar hann hefur jafnað sig á meiðslunum.
(FB)
22.Nóv
Chelsea - Newcastle 0-0
(Given bjargar á marklínu og Terry vill meina að boltinn hafi farið yfir línuna)
Sjaldgæft stig sótt á Brúnni
Shay Given sýndi hvers hann er megnugur í dag og átti stórleik á Stamford Bridge.
Chelsea náði ekki að brjóta varnarmúr Newcastle í dag. Joe Cole náði að vísu að koma boltanum í markið en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Lampard átti aukaspyrnu sem Given bjargaði en liðsmenn Chelsea vildu meina að boltinn hafi farið yfir línuna. Chelsea sótti nær látlaust allan leikinn en vörn Newcastle ásamt Given í markinu áttu frábæran leik og sóttu sjalgæft stig á Brúnni. Eins og menn sjá á tölfræði leiksins hér fyrir neðan að þá átti Chelsea 25 skot að marki Newcastle og þar af lentu 14 á markinu gegn aðeins 2 skotum og 0 á markið hjá Newcastle.
Joe Kinnear staðfesti svo eftir leikinn að hann myndi stjórna liðinu þar til klúbburinn verður seldur.
Leikmenn Newcastle bíður það erfiða verkefni að fara á Stamford Bridge á morgun kl 15:00. Chelsea er í efsta sæti deildarinnar og eru í svakalega góðu formi undanfarnar vikur og hafa oft hreinlega slátrað andstæðingum sínum.
Steven Taylor hefur ekki enn jafnað sig á nárameiðslum og verður ekki með. Hann verður sendur til sérfræðings í næstu viku til að meta nánar meiðslin. Joe Kinnear á enn eftir að ákveða hvort hann lætur Michael Owen byrja inná en hann var harðlega gagnrýndur eftir leikinn gegn Wigan að hafa ekki látið Owen vera i byrjunarliðinu. Eins og menn vita þá er Joey Barton frá næstu tvo mánuði og tekur Danny Guthrie líklega stöðu hans í byrjunarliðinu. Charles N´Zogbia átti góða innkomu í leiknum gegn Wigan og er alveg kominn tími á að gefa honum tækifæri. Hann hefur ekki fengið að spila mikið eftir að Kinnear tók við. Mark Viduka er byrjaður að æfa á fullu en er ekki klár í slaginn.
Joe Kinnear: "Chelsea er með frábært lið, topp klassa leikmenn, það er enginn vafi á því en þetta er frábært tækifæri fyrir okkur að fá að spila við þá bestu. Ég mun segja leikmönnum að njóta leiksins, en við eigum alveg tækifæri á að sækja stig frá leiknum. Mér finnst við hafa hraða í liðinu til að hræða þá og við munum mæta þangað til að sækja stig. Við erum með leikmenn sem geta skorað mörk og við munum sært lið og það ætlum við að gera"
Leikur liðanna á síðasta tímabili enda'i með 2-1 sigri Chelsea og ef menn muna rétt þá voru bæði mörk Chelsea í þeim leik vægast sagt umdeilanleg þó sér í lagi seinna markið. Það var skólabókardæmi um hvernig á að dæma rangstöðu en Kalou var um tvo metra fyrir innan vörn Newcastle og skoraði auðveldlega. Þetta gerðist á 87 mínútu.
Hollendingurinn Tim Kruul hefur verið lánaður til fyrstu deildar (deild nr 3) liðsins Carlisle United í einn mánuð. Kruul sem er 20 ára er ætlað að öðlast reynslu hjá Carlisle líkt og hann gerði síðasta tímabil hjá skoska liðinu Falkirk. Hann hefur spilað einn leik með aðalliði Newcastle, það var gegn Palermo í UEFA keppninni 2006 og hélt hann hreinu í 1-0 sigri.
(FB)
18.Nóv
Rob Lee: "Shearer tilbúinn í stjórastarfið"
Fyrrum leikmaður Newcastle Robert Lee segir að Alan Shearer sé tilbúinn að taka við Newcastle. Lee býst við að Shearer taki við Newcastle einn daginn og segir að hann myndi stökkva á tækifærið á að bjarga sökkvandi skipi á St James´ Park. Í viðtali í The Mag vinsælasta aðdáendablaði í Newcastle segir Lee: "Þangað til núna hef sagt að hann myndi taka við einn daginn, en ég hef trú á að hann myndi taka við starfinu á hans forsendum, án þessu rugli sem hefur verið í gangi þarna hjá klúbbnum". Goðsögnin Shearer hefur oft verið nefndur til sögunnar sem framtíðarstjóri Newcastle en hann hefur alltaf neitað því að hafa áhuga á starfinu og segist vera ánægður með starf sitt hjá BBC en hann starfar þar í þættinum Match of the day. Lee segir að Mike Ashley gæti unnið til baka stuðningsmenn með því að ráða Shearer í stjórastarfið en eins og allir vita er Shearer geysilega vinsæll í Newcastle. "
Mike Ashley myndi leysa mörg vandamál með því að ráða Shearer og viðurkenna að hann hafi gert mistök. Nú er tíminn til að koma liðinu á þann stað sem allir vilja" sagði Lee
Aðspurður hvort hann myndi vilja starfa með Shearer sagði Lee "Já ég myndi glaður vilja starfa með honum".
Alan Shearer í viðtali á BBC í september: "Ég vil verða stjóri á ákveðnum tímapunkti á mínum ferli en ég vill stjórna því hverjir koma og fara frá liðinu" . Núverandi stjórn er þannig að Dennis Wise hefur mikið um það að segja varðandi kaup á leikmönnum og það er eitthvað sem Shearer myndi ekki sætta sig við.
(FB)
18.Nóv
Leikur í kvöld hjá varaliðinu
Varalið Newcastle leikur á útivelli gegn Everton í kvöld á Halton stadium. Hið unga varalið Newcastle eru með góð úrslit í farteskinu enda hafa þeir unnið 3 af síðustu 4 leikjum. Kazenga LuaLua er kominn í form eftir ökklameiðsli sem hann fékk í ágúst. Fraser Forster kemur aftur inn eftir gott lánstímabil með Stockport County. Búist er líka við að Nile Ranger verði með. Hópurinn sem fer til Everton: Andy Carroll, Mark Doninger, Fraser Forster, Jonny Godsmark, Tamas Kadar, Darren Lough, Kazenga LuaLua, James Marwood, Ole Soderberg, Fabio Zamblera, Phil Airey, James Tavernier, Bradden Inman, Nile Ranger, Conor Newton, Sammy Ameobi
17.Nóv
Kinnear óvinsæll á St James´ Park
Joe Kinnear er ekki vinsælasti maðurinn á St James´ Park eftir leikinn gegn Wigan um helgina. Um miðjan leik hljóp stuðningsmaður inn á völlinn og hraunaði yfir Kinnear, hann var svo leiddur af vellinum af lögreglunni (sjá mynd). Þegar hann skipti Jonas Gutirrez af velli þá var baulað mikið á þessa skiptingu. Hann lét Owen byrja á bekknum og er mikið rætt um að Owen sé alls ekki sáttur að verma varamannabekkinn (og skil ég það vel).
Kinnear segir að gengið verði frá sölu félagsins innan tveggja vikna og einhver annar fái stjórastarfið.
"Það hefur ýmislegt gengið á hér og eftir leikinn gegn Chelsea mun þetta skýrast betur" sagði Kinnear.
Um skiptinguna á Jonas sagði hann: "Stuðningsmenn bauluðu vegna þess að hann er í miklu uppáhaldi hjá þeim, en ég er hérna til að ná úrslitum og mér fannst hann vera þreyttur á vellinum". Jonas og Coloccini hafa báðir verið valdir í Argentínska landsliðið sem mætir Skotum í næstu viku á Hampden Park.
(FB)
17.Nóv
Barton frá í tvo mánuði
Joey Barton þurfti að fara meiddur af velli gegn Wigan á laugardaginn eftir að Lee Cattermole braut á honum á 16 mínútu og í morgun kom það í ljós að hann verður frá í tvo mánuði. Liðband í hægra hné er rifið og læknateymi Newcastle staðfesti þetta eftir skoðun í morgun. Þetta eru slæmar fréttir fyrir Newcastle því mðjuspilið hafði stórbatnað eftir að hann kom í byrjunarliðið.
„Þetta er á engan hátt Lee að kenna, við áttum jafna möguleika í boltann og fórum báðir í hann. Svona gerist í fótboltanum en þetta er svekkjandi og mikil vonbrigði. Það eina sem ég hugsa nú um er að ná mér eins fljótt og hægt er og komast af stað á ný," sagði Barton.
(FB)
17.Nóv
Ný könnun
Það er komin ný könnun og nú er spurt hvort menn vilji fá kónginn Alan Sheaer í stjórastarfið. Í síðustu könnun var spurt "Hvaða leikmann viltu losna við frá Newcastle?" og var niðurstan eftirfarandi:
16.Nóv
6 í röð hjá unglingaliðinu
Þótt að aðalliðinu gangi illa þá er U-18 liðið að standa sig frábærlega og unnu þeir Sheffield Wednesday 3-1 á Middlewood Road í gær. Þetta var 6 leikurinn í röð sem þeir vinna. Newcastle byrjaði vel og skoraði miðvörðurinn Jeff Henderson með skalla eftir sendingu fyrir frá Phil Airey á 12 mínútu. Eftir 24 mínútna leik þá skoraði Nile Ranger 13 markið sitt fyrir U-18 liðið með að fara framhjá Nick Wood varnarmanni Sheffield og skora fallegt mark. Eftir um klukkutíma leik þá skoraði Conor Newton fallegt mark eftir gott spil við Sam Ameobi yngri bróður Shola Ameobi. Á 80 mínútu skaut Newton boltanum í slá eftir sendingu Shane Fergusson. En rétt undir lok leiksins fékk Jeff Hendersson á sig víti og rautt spjald eftir brot á Nathan Modest. Liam Palmer skoraði örugglega úr vítinu framhjá Ole Sodeberg sem er allur að koma tilbaka eftir meiðsli. Lið Newcastle: Soderberg, Airey, Ferguson, Inman, Henderson, Tavernier, Newton, McDermott (Williams 39), Ranger (Bath 61), Ameobi, McCrudden. Ónotaðar skiptingar: Leadbitter, Bell, Johnson.
(Davíð Daníelsson)
15.Nóv
Newcastle mætir Oldham í FA Youth Cup
Newcastle u-18 mætir Oldham 9 Desember í þriðju umferð FA Youth Cup. Vegna þessa, þá verður leiknum gegn Manchester frestað en hann átti að eiga sér stað 8 Desember, en hann verður leikinn 30 Mars í staðinn. Vonum bara að Nile Ranger haldi áfram að skora en hann og Michael McGrudden hafa verið frábærir í framlínu unglingaliðsins undanfarið og skorað 13 mörk í síðustu 5 leikjum.
(Davíð Daníelsson)
15.Nóv
Fréttir af varaliðinu og ungmennaliði Newcastle
Davíð Daníelsson nýr félagi í Newcastle klúbbnum hefur tekið það að sér að fjalla um ungmenna og varalið Newcastle og verður reglulega settar inn fréttir um liðin hér á síðuna. Fréttadálkur hefur verið settur fyrir neðan stöðuna í deildinni hér til hægri og þá geta menn fylgst með því helsta sem er að gerast hjá þessum liðum.
Davíð eða dabbidanna eins og kannski sumir kannast við hann er 19 ára Kópavogsbúi og hefur haldið með Newcastle frá 2001 og hreifst af liðinu í stjórnartíð Sir Bobby Robson og uppáhaldsleikmaður hans á þeim tíma var Laurent Robert. Ég fagna því að fá svona aðstoð og vona að okkar stuðningsmenn séu ánægðir með hans framtak.
Nú er bara að standa sig Davíð og vera duglegur að koma með ferskar fréttir ;)
(FB)
15.Nóv
Newcastle - Wigan 2-2
(Owen 80, Martins 87) - Taylor 3, Bramble 89)
Titus Bramble af öllum mönnum
Ég ætla að taka það strax fram að ég sá ekki leikinn í dag frekar en aðrir.
Það er svo margt sem pirrar mig núna varðandi þetta blessaða lið okkar.
1. Að vinna ekki Wigan á heimavelli þó að liðinu vanti sína tvo bestu sóknarmenn (Zaki og Heskey) og einnig að Wigan er einum færri frá 54 mínútu en það dugði ekki til.
2. Að nota ekki Michael Owen í byrjunarliðinu frekar en flækjufótinn Ameobi. Hvenær ætla menn að koma því í hausinn á sér að Owen og Martins eru okkar bestu sóknarmenn og það á að láta þá spila frammi.
3. Að láta Titus Bramble jafna leikinn er óásættanlegt.
4. Þessi helv.... óvissa með söluna á liðinu og endalaus stjóraskipti pirrar mig alveg svakalega.
5. Að horfa á stigatöfluna þessa dagana er ömurlegt. Newcastle er einn af stærstu klúbbum á Englandi og á heima í hópi sex efstu liða án nokkurs vafa. Metnaðarleysi hjá klúbbnum er algjört.
Síðast en ekki síst, þegar ég sá að leikurinn var ekki sýndur á einum af 5 sportrásum Stöðvar 2 í dag átti ég ekki orð. Ef ég væri í áskrift hjá þessum drullupésum þá væri ég búinn að segja upp áskriftinni strax. Að sýna Blackburn - Sunderland frekar en Newcastle - Wigan er ótrúleg ákvörðun. Með fullri virðingu fyrir stuðningsmönnum Blackburn og Sunderland þá held ég að stuðningsmenn Newcastle séu mun fleiri hér á landi. Ég hvet alla Newcastle stuðningsmenn að hringja inn á Stöð 2 og láta í sér heyra og segja upp áskrift sinni.
Ég ætla ekki að skrifa neit um leikinn vegna þess hvað ég er pirraður en læt hér fylgja smá tölur úr leiknum.
Áhorfendur: 47, 657 (En hefur ekki tekist að fylla St James´ Park á þessu tímabili sem segir ýmislegt um ónægju stuðningsmanna)
Maður leiksins: Eins og áður sagði þá sá ég ekki leikinn í dag en samkvæmt Sky Sports þá fær Michael Owen þá nafnbót.
(FB)
14.Nóv
Newcastle - Wigan
Steve Bruce og lærisveinar hans í Wigan mæta á St James´ Park á morgun kl 15:00. Af leikmannmálum hjá Newcastle er það að frétta að Steven Taylor hefur ekki jafnað sig á nárameiðslum og verður ekki með. Það eru ekki góðar fréttir því Cacapa náði engan vegin að fylla skarð hans í leiknum gegn Fulham um síðustu helgi. Joe Kinnear þarf að velja á milli Cacapa og Bassong í vörnina með Coloccini og vona ég innilega að Bassong verði fyrir valinu. Michael Owen er orðinn leikfær og vona ég einnig að hann verði í byrjunarliðinu á kostnað Ameobi, við þurfum bara að fá Owen í form því eins og menn vita þegar hann er í góðu formi þá skorar hann alltaf mörk. Og þó hann sé helmingi minni en Ameobi þá er hann mun betri skallamaður en hann.Mark Viduka byrjaði að æfa í dag (sjá mynd) en það eru nokkrar vikur í að hann verði klár í slaginn. Hann hefur ekki spilað síðan á síðasta degi síðustu leiktíðar. Joe Kinnear í viðtali á heimasíðu Newcastle: "Þetta er leikur sem við verðum að vinna, það er enginn vafi. Við verðum að vinna heimaleikina okkar og vonandi fáum við góðan stuðning frá stuðningsmönnum okkar. Ég hef verið mjög hrifinn af stemmingunni hér á St James´ Park og við þurfum á því að halda aftur á morgun".
Leikur liðanna á síðasta tímabili endaði með 1-0 sigri okkar manna og var það Michael Owen sem skoraði sigurmarkið á lokamínútum leiksins.
Fyrrum leikmaður Newcastle Titus Bramble spilar væntanlega með Wigan og vonandi verður hann í því formi sem við þekkjum hann best fyrir ;)
Joe Kinnear hefur varað Harry Redknapp stjóra Tottenham við því að reyna krækja í Shay Given og segir að hann sé alls ekki til sölu. Redknapp hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á Given og vill ólmur fá hann til Tottenham. En Kinnear segir: "Ég get sagt Harry að ekki einu sinni hafa fyrir því að taka upp símann því það er ekki möguleiki að Shay verði seldur. Við viljum byggja upp okkar lið og krækja í góða leikmenn, en ekki láta góða leikmenn frá okkur. Og af hverju ætti hann að vilja fara til Tottenham ? Newcastle er stærri klúbbur. Shay minnir mig mikið á Pat Jennings, sem ég spilaði mikið með þegar ég var hjá Tottenham.
Ég ber mikla virðingu fyrir Shay Given, eins og flest allir í boltanum. Hann býr yfir mikilli reynslu og er okkur mjög mikilvægur og fyrir utan það þá er hann frábær náungi".
(FB)
13.Nóv
"Ranger the danger"
Hinn bráðefnilegi Nile Ranger (17 ára) sem kom til Newcastle frá Southampton síðasta sumar hefur heldur betur slegið í gegn hjá ungmenna og varaliði Newcastle. Ranger hefur skorað 15 mörk fyrir ungmenna og varalið Newcastle í vetur og hann gerði þrennu með 18 ára liðinu um síðustu helgi í leik gegn Huddersfield. Ranger hefur fengið viðurnefnið "Ranger the danger hjá þjálfurum og leikmönnum Newcastle.
Ungmennalið Newcastle er í efsta sæti deildarinnar með 23 stig eftir 11 leiki. Hann skoraði í sínum fyrsta leik gegn Leicester þann 23 ágúst og hefur verið óstöðvandi síðan. Hann hefur verið á bekknum hjá aðalliðinu í nokkur skipti en ekki komið inná ennþá, en það styttist væntanlega í það. Þetta er mjög efnilegur strákur og vonandi rætist úr honum fyrir okkur Newcastle stuðningsmenn. The Guardian birti grein um 20 efnilegustu ensku leikmenn á Englandi og er Nile Ranger einn af þeim. Greinina má sjá hér.
(FB)
12.Nóv
Philip Anschutz neitar orðrómi um kaup á Nufc
Eigandi LA Galaxy Philip Anschutz hefur neitað orðrómi þess efnis að hann hafi áhuga á að kaupa Newcastle. Eitt af fyrirtækjum hans AEG sem á O2 tónleikahöllina í London sendu frá sér yfirlýsingu í dag að hvorki þeir né einhver tengdur þeim hafi í hyggju að kaupa Newcastle. Annar Bandaríkjamaður sem hefur verið orðaður við kaup á Newcastle sendi einnig frá sér yfirlýsingu um að hann hafi ekki áhuga á að kaupa Newcastle. Sá er Clark Hunt eigandi FC Dallas í MLS deildinni.
Sá möguleiki er þá fyrir hendi að Mike Ashley nái ekki að selja klúbbinn á þessu ári og verður þetta tímabil frekar furðulegt fyrir okkur stuðningsmenn. Samningur Joe Kinnear rennur út í lok þessa mánaðar og líkurnar aukast að hann verði ráðinn út þetta tímabil með degi hverjum.
(FB)
11.Nóv
Alan Shearer næsti stjóri Newcastle ?
Veðbankar segja að Alan Shearer sé líklegastur að taka við Newcastle ef félagið verður selt til Bandaríska milljarðamæringsins Philip Anschutz sem er eigandi LA Galaxy. Fyrirtæki hans Anschutz Entertainment Group á hlut í um 100 fyrirtækjum og má þar helst nefna, LA Galaxy, Houston Dynamo (bæði lið í MLS deildinni í USA), Los Angeles Kings (lið í NHL deildinni), Los Angeles Lakers, sænska liðinu Hammarby og svo mætti lengi telja. Hann er sagður vera tilbúinn að greiða 230 milljónir punda fyrir Newcastle, það er bara spurning hvort Mike Ashley sé tilbúinn að selja fyrir þetta verð. Breskir miðlar telja að Alan Shearer muni taka við stjórastarfinu ef af þessu verður og er John Carver fyrrum aðstoðarmaður Sir Bobby Robson talinn vera líklegur sem aðstoðarmaður Shearer.
Nú er bara að bíða og sjá hvort af þessu verður, það er allavega alveg ljóst að stuðningsmenn Newcastle eru orðnir óþreyjufullir á þessu óvissuástsandi með liðið sitt og vilja fara fá niðurstöðu í þetta allt saman.
Það skal tekið fram að þetta eru óstaðfestar fréttir en mikið rosalega væri ég til í þetta :)
(FB)
11.Nóv
Ignacio Gonzalez frá í fjóra mánuði
Nacho hefur átt við meiðsli á hásin að stríða undanfarið og þurfti hann að fara í uppskurð vegna þess. Talið er að hann verði frá keppni í fjóra mánuði. Hann kom til Newcastle á láni út tímabilið frá Valencia á lokadegi félagsskiptagluggans í ágúst og hefur hann aðeins spilað 38 mínútur með aðalliði Newcastle. Það á eftir að koma í ljós hvort hann verður sendur til baka til spænska liðsins enda er óvíst hvort hann komi til með að spila fleiri leiki með Newcastle.
(FB)
9.Nóv
Fulham - Newcastle 2-1
(Johnson 23, Murphy 66 vsp) - (Ameobi 57)
Cacapa skaðvaldur
Eftir tvo sigurleiki í röð tapaði Newcastle í dag gegn Fulham á Craven Cottage. Steven Taylor fór ekki með hópnum til London vegna meiðsla og kom það í hlut Cacapa að fylla skarð hans í vörn Newcastle. Hann átti vægast sagt ekki góðan dag og átti stóran þátt í báðum mörkunum sem Fulham gerði. Heimamenn byrjuðu betur og áttu nokkur færi sem þeir nýttu ekki. Á 23 mínútu virtist vera lítil hætta á ferðum þegar það kom sending inn í teig Newcastle en Cacapa náði á einhvern furðulegan hátt að skalla boltann í Coloccini og féll boltinn beint fyrir lappirnar á Andy Johnson sem átti ekki í erfiðleikum að skora framhjá Given í markinu. Newcastle skapaði sér ekki mörg færi í fyrri hálfleik og fer ég aldrei af þeirri skoðun að Shola Ameobi á ekki heima í þessu liði og er alveg skelfilegt að horfa á sóknarleik Newcastle með hann þarna frammi. Ég hef sagt það áður að móttaka hans á boltanum er alveg skelfileg, það er alveg vonlaust að gefa á manninn, boltinn skýst í allar áttir og ekkert verður úr sókninni.
Hann jafnaði þó leikinn á 57 mínútu en það mark þótt mjög vafasamt og í endursýningu mátti sjá að hann var rangstæður.
Í kjölfarið á jöfnunarmarki Newcastle sóttu okkar menn nokkuð hart að marki Fulham og manni leist nokkuð vel á þetta. En þá kom Cacapa aftur til sögunnar, Andy Johnson fékk sendingu rétt fyrir utan teig og var Cacapa furðulega staðsettur og átti Johnson ekki í vandræðum að snúa hann af sér, Coloccini braut þá klaufalega á honum og vítaspyrna dæmd. Danny Murphy skoraði örugglega úr vítaspyrnunni og staðan orðin 2-1. Michael Owen kom inná stuttu seinna og sást ekki mikið til hans það sem eftir lifði leiks ef frá er skilið eitt færi sem hann fékk og var það sannkallað dauðafæri sem hann á óskiljanlegan hátt náði að klúðra illilega. Einn eitt tapið á útivelli staðreynd og ætlar það að vera erfið fæðing að ná í þrjú stig á útivelli en liðið hefur ekki enn unnið útileik á tímabilinu. Newcastle hefði með sigri farið upp í 10 sæti en situr í þriðja neðsta sæti deildarinnar eftir tapið í dag.
Maður leiksins: Habib Beye (átti nokkuð góðan leik og flottustu tæklingu leiksins en slakur dómari leiksins dæmdi brot á hann og gaf honum gult spjald fyrir sem átti ekki við rök að styðjast.)
(FB)
9.Nóv
Stuttar fréttir og smá slúður
# Newcastle hefur enn áhuga á Aidan McGready miðjumanni hjá Celtic.
# Amerískir fjárfestar eru taldir líklegir að kaupa Newcastle fyrir um 280 milljónir punda.
# Nicky Butt vill fá framlengingu á samningi sínum næsta sumar. Butt í viðtali á Sky Sports: "Það er pirrandi að spila fyrir þetta félag, undir lok síðasta tímabils og byrjun þessa vorum við að hugsa, við erum með frábæran stjóra Keegan sem öllum líkar við og við fengum nokkra góða leikmenn til liðsins. Við gerðum jafntefli á Old Trafford og unnum Bolton og það leit út fyrir að við myndum vera í efri hluta deildarinnar.En allt í einu BANG Keegan er farinn og við hrynjum niður deildina. Það er pirrandi fyrir leikmenn og ekki síst fyrir aðdáendur. En þetta er klúbbur sem hefur færst nær hjarta mínu. Mér finnst ég vera Newcastle maður og ég vill hjálpa liðinu að komast þangað þar sem það á að vera".
# Joe Kinnear vill fá stjórastarfið hjá Newcastle hver svo sem kaupir félagið. Hann hefur sett upp óskalista fyrir janúargluggann. "Ég held að við þurfum fjóra leikmenn og þurfum að selja fjóra" sagði Kinnear.
(FB)
7.Nóv
Fulham - Newcastle
Joe Kinnear mun að öllum líkindum stilla upp óbreyttu liði frá síðasta leik gegn Fulham á sunnudaginn. Michael Owen þarf þá að sætta sig við að verma varamannabekkinn en hann hefur náð sér að fullu eftir nárameiðsli. Það eru engin ný meiðsli í leikmannahóp Newcastle, þannig að hópurinn er nokkuð góður. Obafemi Martins hefur vaknað til lífsins í síðustu tveim leikjum og skorað þrjú mörk og vonandi verður framhald á því.
Joe Kinnear: "Tveir sigrar í röð hjá okkur haf gert mikið fyrir sjálfstraust leikmanna. En nú er ný áskorun fyrir okkur, að taka sex stig í næstu tveim leikjum, gegn Fulham og Wigan. Þetta verður erfitt gegn Fulham en við góða möguleika á sigri. Maichael Owen æfði aðeins í tvo daga í síðustu viku og hann hefur æft betur þessa viku. Hann mun kama við sögu og ef við náum 45 mínútum eða hálftíma út úr honum þa´gerum við það. Við verðum að fara varlega með Michael".
Með Fulham leikur fyrrum leikmaður Newcastle Aaron Hughes, en hann spilaði 278 leiki fyrir Newcastle á árunum 1997-2005 en hann var svo seldur til Aston Villa í maí 2005.
Leikur liðanna á síðasta tímabili endaði með sigri okkar manna 0-1 og var það enginn annar en Joey Barton sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á síðustu mínútu leiksins.
Steven Taylor segir í viðtali við Evening Chronicle að Joe Kinnear eigi hrós skilið fyrir breytingar á liðsandanum hjá Newcastle. Vonandi höfum við fengið stuðningsmenn okkar til brosa aftur eftir þessi úrslit og góða frammistöðu gegn Villa á mánudagskvöld.
Það var magnað í búningsklefanum eftir leikinn og það er mikil samheldni í hópnum núna sem við höfðum saknað mikið. Þetta var frábær vika hjá okkur, að ná í sex stig.
Deildin er svo jöfn þannig að með nokkrum sigrum ertu kominn í efri hluta deildarinnar. Nú viljum við sækja nokkur stig og láta önnur lið reyna ná okkur"
(FB)
5.Nóv
450 leikir hjá Given
Írski markmaðurinn Shay Given lék sinn 450 leik fyrir Newcastle þegar þeir unnu Aston Villa 2-0 á St. James´ Park á mánudagskvöld. Þetta var góður sigur þar sem Aston Villa eru búnir að standa sig vel á leiktíðinni og áttu möguleika á að ná 3 sætinu með sigri.
NucfTV fékk Shay Given í viðtal og þetta hafði hann að segja um leikinn.
Það mikilvægasta við leikinn var sigurinn og hann var okkur leikmönunum mikilvægur.
Við áttum þessi þrjú stig skilið. Aston Villa er gott lið og vegnar vel í deildinni. Þeir eru búnir að vera á mikili siglingu og það gerði sigurinn sætan.
Það er ekki gott að mæta til leiks á botninum og þess vegna var þessi sigur mikilvægur til að koma
okkur upp úr þremur neðstu sætunum.
Oba (Obafemi Martins) á hrós skilið fyrir sín framistöðu. Fyrra markið hjá honum var gott og eftir seinna markið gátum við andað aðeins léttar.
En þegar Given var spurður um að hafa haldið hreinum, glotti hann
Það er nokkuð síðan það gerðist, en það er alltaf frábært að halda hreinu.
Það er eitthvað sem við verðum að byggja á því við viljum fyrir alla muni fá fleiri leiki þar sem við höldum hreinu.
Given sem er 31 árs er nú aðeins 46 leikjum frá Jimmy Lawrence sem á leikjametið hjá Newcastle en hann spilaði 496 leiki á árunum 1904-1922. Lawrence var einnig markmaður.
Þetta snérist ekki um að ég væri að spila 450 leikinn minn, heldur um klúbbinn því þetta var mjög mikilvægur leikur fyrir okkur til að koma okkur úr fallsætunum.
Nú einbeitum við okkur að næsta leik sem er gegn Fulham og reynum að vinna þriðja leikinn okkar í röð sagði hinn frábæri markmaður Shay Given.
(ÞVV)
4.Nóv
Tveir aðilar hafa mikinn áhuga á að kaupa Newcastle
Keith Harris maðurinn sem á að sjá um söluna á Newcastle segir að það séu tveir sem hafa virkilegan áhuga á að kaupa liðið. Upphaflega höfðu sjö aðilar áhuga en nú eru þeir aðeins tveir. Hann vildi ekki gefa upp hverjir þeir eru en annar þeirra er talin vera Nasser Al-Kharafi 48 ríkasti maður í heimi en það er samt ekki vitað með vissu. Harris gaf til kynna að salan gæti tafist fram á næsta ár þannig að janúarglugginn kemur ekki til með að nýtast til leikmannakaupa. Samningur Joe Kinnear rennur út seinna í þessum mánuði og er framtíð hans óráðin.
(FB)
4.Nóv
Mörkin úr leiknum í gær
Glæsilegur sigur Newcastle í gær gegn mjög sterku liði Aston Villa og hefur Obafemi Martins þakkað Joe Kinnear fyrir fyrirskipanir hans fyrir leikinn í gær. "Stjórinn sagði við mig að ég yrði að vera eigingjarnari á boltann og vera duglegur að skjóta á markið, þannig að í framtíðinni mun ég reyna meira upp á eigin spýtur og vonandi skora ég fleiri mörk" sagði Martins.
Mörk hans ásamt nokkrum atvikum úr leiknum má sjá hér.
(FB)
3.Nóv
Newcastle - Aston Villa 2-0
(Martins 60, 83)
(Leikmenn Newcastle fagna seinna marki Martins)
Obafemi Martins maður kvöldsins
Tveir sigrar í röð hjá Newcastle og liðið stökk upp um sex sæti í deildinni úr því neðsta í fjórtánda. Gestirnir áttu hættulegri færi í fyrri hálfleik og áttu t.d skalla í stöngina og Given varði glæsilega úr dauðafæri Villa manna. Newcastle skapaði sér ekki mikið af færum í fyrri hálfleik og var ekki mikið að gera hjá Brad Friedel í markinu. Staðan var 0-0 í hálfleik og var allt annað að sjá til okkar mann í seinni hálfleik. Vörn Newcastle átti frábæran leik og gáfu þeir ekki færi á sér. Jose Enrique hélt fyrrum liðsfélaga sínum James Milner algjörlega niðri og sást ekki mikið til hans í kvöld. Fyrra mark leiksins kom á 60 mínútu og var vel að verki staðið hjá Martins sem fékk sendingu frá Barton, Martins sem var rétt fyrir utan vítateig Villa manna snéri glæsilega á varnarmann Villa og skaut í markhornið. Ekkert sérlega fast skot hjá Martins en hnitmiðaða og Friedel átti ekki möguleika að verja skot hans. Villa átti ekkert svar við leik okkar manna og undir lok leiksins bætti Martins við öðru marki og átti Jonas Gutierrez allan heiðurinn að því marki. Hann lék á varnarmann Villa á vinstri kantinum og stakk hann hreinlega af og sendi boltann beint á lappir Martins sem gat ekki annað en skorað af eins meters færi. Sex stig í síðustu tveimur leikjum og eru mikil batamerki á liðinu. Þessir sigrar gefa leikmönnum aukið sjálfstraust nú er bara að fá Owen fram með Martins og þá verður sóknarleikurinn mun betri.Martins er nú kominn með 3 mörk í síðustu tveim leikjum og verður gaman að fylgjas með houm ínæstu leikjum. Owen kom inná í lokin og fékk ekki nema um 2 mínútur en vonandi verður hann orðinn klár í næsta leik sem er gegn Fulham á sunnudaginn.
Dómari leiksins var Steve Bennett og átti hann vægast sagt slakan leik, lét leikinn ekkert ganga og var síflautandi og gaf leikmönnum beggja liða gul spjöld fyrir litlar sakir.