Fréttir í nóv 2009

 

30.Sept

Stuttar fréttir

# Chris Hughton var ánægður með Fabrice Pancrate í sínum fyrsta leik með Newcastle á laugardaginn. "Ég vona að þetta sé merki um það sem við munum sjá frá honum á næstunni vegna þess að hann stóð sig mjög vel. Hann er leikmaður sem áhorfendur eiga eftir að líka vel við vegna þess hvað hann er fljótur og vill taka menn á".

# Fabricio Coloccini er ánægður hjá Newcastle og segist hafa hafnað nokkrum tilboðum fyrr í vetur. "Ég var pirraður, fólk var að segja að eina ástæðan fyrir því að ég var ennþá hérna væri vegna þess að það hafi ekki komið nein tílboð í mig. Það var ekki rétt. Klúbburinn og ég fengum nokkur tilboð en ég hafnaði þeim" sagði hárprúði Argentínumaðurinn.

Coloccini hefur átt mjög gott tímabil og er stjórinn ánægður með hann. " Hann er klassa varnarmaður og að hann skyldi vera valinn maður leiksins gegn Swansea var fyllilega verðskuldað" sagði Hughton. 

(FB)

 

30.Nóv

Newcastle mætir Plymouth

Dregið var í þriðju umferð FA bikarsins í gær og þarf Newcatle að heimsækja Plymouth á Home Park 2 eða 3 janúar næstkomandi. Liðin mættust í deildinni þann 19 sept síðastliðin á St James´ Park og unnu okkar menn 3-1.

(FB)

 

28.Nóv

Harewood loksins í gang

Newcastle sigraði Swansea nokkuð örugglega 3-0 í dag á St James´ Park og heldur því toppsæti deildarinnar.

Marlon Harewood hrökk loksins í gang og skoraði tvö mörk en hann hefur verið gagnrýndur undanfarið fyrir frammistöðu sína. Peter Lovenkrands skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu og vonandi að hann fari að sýna sitt rétta andlit. Þessi þrjú mörk komu öll á fyrstu 28 mínútum leiksins og vöru þau öll með skalla. Það má segja að leikurinn hafi klárast eftir þessi þrjú mörk Newcastle en leikmenn Swansea vöru örlítið sprækari þegar leið á leikinn en náðu ekki að setja mark á heimamenn. Það bar helst til tíðinda að Steve Harper þurfti að fara af velli í hálfleik og kom Tim Krul inná í hans stað og stóð vaktina vel í markinu. Fabrice Pancrate spilaði sinn fyrsta leik í dag þegar hann kom inná fyrir Danny Guthrie þegar um 15 mínútur voru til leiksloka.

Chris Hughton var mjög ánægður með sína menn í dag og sagði: "Ég bað um að menn myndu byrja leikinn af miklum krafti og eftir hálftíma leik var ég mjög ánægður, ég hefði ekki getað beðið um meira. Að ná að skora þrjú mörk á þessum tíma var frábært og það vann leikinn fyrir okkur" 

Lið Newcastle í dag:

Harper (Krul 46), Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Guthrie (Pancrate 76), Nolan, Smith, Jonas, Harewood (Ranger (68), Lovenkrands.

Ónotaðir varamenn: Khizanishvili, R Taylor, Kadar, LuaLua.

Áhorfendur: 42,616

Mörk leiksins: Harewood 8, Lovenkrands 21, Harewood 28.

Maður leiksins: Marlon Harewood.

 

Tölfræði leiksins

NUFC

Swa

Skot (á mark)

9(6)

15(7)

Brot

8

11

Horn

4

9

Rangstöður

7

0

Með bolta

45%

55%

Gul spjöld

0

1

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

7

2

(FB)

 

27.Nóv

Swansea mætir á St James´ Park

Newcastle tekur á móti Swansea City á morgun laugardag kl 15:00.

Lið Swansea er sýnd veiði en ekki gefin því þeir hafa unnið þrjá síðustu leiki og hafa ekki tapað leik síðan 12 september eða í síðustu 11 leikjum og eru sem stendur í fjórða sæti deildarinnar.

Þeir unnu t.d WBA 0-1 á The Hawthorns heimavelli WBA sem verður að teljast nokkuð gott. Þetta er því verðugt verkefni fyrir Chris Hughton og hans menn.

Hughton er vongóður um að Danny Simpson og Ryan Taylor verði orðnir klárir en þeir þurftu báðir að fara af velli gegn Preston síðasta mánudag vegna meiðsla. Andy Carroll er tæpur fyrir leikinn gegn Swansea en hann hefur verið veikur undanfarna daga en mætti á æfingasvæðið í gær en tók ekki þátt í æfingunni.

Shola Ameobi er byrjaður að æfa á fullu en verður ekki með en hann ætti að vera tilbúinn í heimaleikinn gegn Watford þann 5 des næstkomandi.

Zurab Khizanishvili er búinn með þriggja leikja bannið sitt og verður í leikmannahópnum.

Nicky Butt er meiddur á kálfa og verður ekki með.

Þeir Joey Barton og Haris Vuckic eru enn meiddir og er þó nokkuð í að þeir verði klárir í slaginn. Talið er að þeir verði tilbúnir í febrúar eða mars.

Fabrice Pancrate gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Newcastle og verður spennandi að sjá til hans.

Líklegt byrjunarlið á morgun: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Jonas, Smith, Nolan, Guthrie, Harewood, Ranger.

(FB)

 

24.Nóv

Hughton "Nolan er funheitur"

Chris Hughton stjóri Newcastle er mjög sáttur við framlag Kevin Nolan í vetur en hann hefur verið sjóðandi heitur og skorað níu mörk, átta í deildinni og eitt í bikarnum. "Við vissum alltaf að hann gæti skorað mörk þegar við keyptum hann síðasta vetur. Við erum bara að sjá hversu góður hann er fyrir framan markið og hann er funheitur þessa dagana. Þetta var frábær afgreiðsla, yfirvegað og flott. Hann er frábær atvinnumaður og hann nýtur sín mjög vel. Hann hefur góð áhrif á alla og er í topp formi" sagði Hughton. Mark Nolan má sjá hér

 

Leikurinn í gær var ekki alveg án meiðsla hjá Newcastle því Ryan Taylor átti að byrja inná í gær en 15 mínútum fyrir leik meiddist hann á kálfa og er nú tæpur fyrir leikinn gegn Swansea á laugardag. Marlon Harewood kom inn í hans stað í gær. Danny Simpson þurfti að fara af velli á 65 mínútu ef hann meiddist lítillega á læri en vonast er til að það sé ekki til að hafa áhyggjur af. Andy Carroll þurfti líka að fara af velli í gær en hann var hálf slappur fyrir leikinn en harkaði af sér.

(FB)

 

23.Nóv

Nolan skaut Newcastle á toppinn á ný

Newcastle sigraði Preston á Deepdale 0-1 í kvöld og skoraði Kevin Nolan eina mark leiksins á 74 mínútu. Þetta var hans níunda mark í vetur og er hann langmarkahæstur hjá Newcastle. Það verður seint sagt að þetta hafi verið skemmtilegur leikur á að horfa en það eru stigin þrjú sem skipta öllu máli. Newcastle skaust þar með á topp deildarinnar á ný og er nú tveimur stigum fyrir ofan WBA.

Lið Newcastle í kvöld: Harper, Simpson (Kadar 65), S Taylor, Coloccini, Enrique, Smith, Jonas, Guthrie (Lovenkrands 90), R Taylor, Harewood, Carroll (Ranger 62).

Ónotaðir varamenn: Krul, Pancrate, Geremi, Donaldson.

Gult spjald: Smith

Áhorfendur: 16,924

Maður leiksins: Kevin Nolan

 

Tölfræði leiksins

Pre

NUFC

Skot (á mark)

16(8)

14(3)

Brot

13

7

Horn

6

5

Rangstöður

1

3

Með bolta

49%

51%

Gul spjöld

0

1

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

5

9

(FB)

 

22.Nóv

Newcastle heimsækir Preston mánudagskvöld á Deepdale

Newcastle getur endurheimt toppsætið í Championship deildinni með sigri á Deepdale annað kvöld, en WBA skaust upp fyrir Newcastle í gær með sannfærandi sigri á Bristol City 4-1. Það munar aðeins einu stigi á liðunum en WBA er með betri markatölu þannig að jafntefli dugar ekki til að ná toppsætinu.

Jonas Gutierrez er leikfær eftir smávægileg meiðsli sem hann hlaut í síðasta leik. Enn er óvíst hvort Fabrice Pancrate verður með en hann á enn eftir að fá leikheimild. Shola Ameobi er byrjaður að æfa en verður ekki til fyrr en um næstu helgi gegn Swansea. Zurab Khizanihvili tekur út leikbann og er þetta síðasti leikurinn af þremur.

Líklegt byrjunalið: Harper, Simpson, S Taylor, Coloccini, Enrique, Smith, Jonas, Guthrie, R Taylor, Harewood, Carroll.

Leikurinn hefst kl 19:45 og verður í beinni á Sky Sports þannig að það ætti að vera nokkuð auðvelt að ná honum á netinu. Síður eins og atdhe.net, livevss.net, myp2p.eu og ustream.tv eru þær bestu sem vitað er um.

(FB)

 

22.Nóv

Newcastle semur við Fabien Pancrate

Newcastle hefur gengið frá samningi við Frakkann Fabrice Pancrate út þetta tímabil, en hann hefur verið til reynslu  undanfarnar tvær vikur og kemur á frjálsri sölu.

Samningur hans verður svo endurskoðaður eftir að tímabilinu líkur. Pancrate hefur fengið treyju nr 21 en óvíst er hvort hann geti verið með gegn Preston á mánudagskvöld þar sem ekki hefur fengist staðfesting á skráningu hans. Pancrate er 29 ára gamall og var síðast á mála hjá Paris SG og spilaði 91 leik með þeim og skoraði 10 mörk. Hann spilar sem vængmaður en getur einnig verið á miðjunni.

(FB)

 

 

 

 

20.Nóv

Fraser Forster framlengir lánið hjá Norwich út tímabilið

Hinn 21 árs gamli markmaður Fraser Forster hefur verið á láni hjá Norwich frá því í byrjun tímabilsins og hefur hann nú framlengt lánsamninginn við Norwich út tímabilið. 

Forster hefur hann staðið sig mjög vel með Norwich og haldið hreinu í 8 af þeim 12 leikjum sem hann hefur spilað fyrir Norwich sem leikur í 1 deildinni. (Deild nr 3). Liðið er í 5 sæti deildarinnar og verður í baráttu um að komast upp um deild í vetur.

(FB)

 

18.Nóv

Fabrice Pantcrate til reynslu hjá Newcastle 

Franski miðjumaðurinn Fabrice Pancrate (29 ára) hefur verið til reynslu hjá Newcastle undanfarna daga og spilaði hann með varaliðinu í gær í 3-2 sigri gegn Hartlepool þar sem Peter Lovenkrands skoraði eitt mark og Phil Airey skoraði hin tvö. Chris Hughton var ánægður með frammistöðu hans og er talið líklegt að honum verði boðinn samningur. Pancrate er á frjálsri sölu og myndi því ekki kosta neitt. "Hann stóð sig vel, við vildum sjá hann í leik svo við gáfum honum þetta tækifæri. Hann verður áfram hjá okkur næstu daga og við munum skoða hann enn betur. Við höfum góða menn á hægri kantinum með þá Jonas, Ryan taylor og Danny Guthrie, en hann gefur okkur eitthvað nýtt með sínum hraða. Hann helsti kostur er að hann hefur góða reynslu, hann getur einnig spilað nokkrar stöður á vellinum, góður með boltann og vinnusamur og ég hef haft gaman af því að fylgast með honum" sagði Hughton. 

(FB)

 

18.Nóv

Jonas Gutierrez setur hátt markmið

Newcastle er eins og menn vita í topp sæti deildarinnar og vill Jonas Gutierrez að liðið verði kominr með þægilega forystu um áramótin. "Við getum tekið skrefið áfram eftir þrjá sigra undanfarið. Um jól og áramót vill ég að við séum komnir með þægilega forystu á topp deildarinnar. Við erum nógu góðir til að verða ekki í basli með að komast upp á síðustu vikunum í vor. Við eigum að vera vinna flest alla leiki. Ef við gerum það þá verðum við í sterkri stöðu eftir tvo mánuði. Þó svo að það gerist þá vitum við að það er mikil vinna framundan en við verðum með mikið sjálfstraust" sagði Argentínumaðurinn snjalli.

(FB)

 

16.Nóv

Stuttar fréttir

# Tamas Kadar slapp ómeiddur úr bílslysi í heimalandi sínu Ungverjalandi. Hann var á heimleið með foreldrum sínum eftir leik Ungverja og Ítala þegar hjörð af Villigöltum hljóp fyrir bíl þeirra með þeim afleiðingum að bíllinn var talinn ónýtur. Þau sluppu hinsvegar öll ómeidd. Kadar spilaði allann leikinn með U21 landsliði Ungverja í 2-1 sigri gegn Ítalíu í undankeppni evrópumótsins.

# Arsenal, Athletico Madrid, Real Madrid og Barcelona eru öll sögð vera fylgjast með Tim Krul markmanni Newcastle og U21 landsliði Hollendinga. Hann hefur haldið hreinu í síðustu fjórum landsleikjum og er farinn að vekja mikinn áhuga stóru liðanna. Samningur hans við Newcastle rennur út næsta sumar.

#  Danny Simpson segist vilja vera áfram hjá Newcastle og vonast til að Hughton kaupi hann í janúarglugganum. "Skiljanlega er ég að njóta fótboltans hérna og ef ég stend mig nógu vel til að þeir geri tilboð mun ég örugglega skoða það. Ég vill bara spila sem flesta leiki og svo sjáum við til hvað gerist í janúar" sagði Simpson.

# Það er sagður vera mikill áhugi frá stuðningsmönnum að kaupa Newcastle og segir talsmaður NUST að herferðin hafi farið val af stað.

(FB)

 

10.Nóv

Stuðningsmenn Newcastle vilja kaupa félagið

Newcastle United Supporters Trust hefur formlega byrjað söfnun til að reyna kaupa liðið af Mike Ashley.

"Yes We Can" er herferðin kölluð og vonast er til að fá stuðning frá aðdáendum, fyrirtækjum og fjármálastofnunum til að kaupa félagið. "Hugmyndin er að stuðningsmenn fjárfesti í félaginu" sagði Mark Jensen talsmaður stuðningsmanna. "Barcelona er með þannig kerfi að stuðningsmenn eiga félagið, og við teljum að það sé raunhæfur kostur. Það er alveg ljóst að við höfum engan sem kemur og endar þessa vitleysu sem er i gangi hjá félaginu, svo við verðum að skoða okkar möguleika sjálfir. Félagið er frábær fjárfesting ef það er vel rekið.  Við ætlum okkur að draga að okkur fjárfesta sem vilja fá aftur heiðarleika og heilindi. Við höfum átt viðræður við alvöru menn hér í borginni og víðar, þeir hafa sett það í okkar hönd að leiða lestina" sagði Jensen.

Ashley tók félagið af sölu fyrir stuttu eftir að nokkrir kaupendur drógu tilboð sitt til baka. Stuðningsmenn eru vægast sagt mjög ósáttir við núverandi stjórn félagsins og má segja að ákvörðun Mike Ashley að endurnefna St James´ Park hafi fyllt mælinn hjá stuðningsmönnum.

Þeir stuðningsmenn hér á landi sem vilja taka þátt í þessu er bent á heimasíðu Newcastle United Supporters Trust. 

(FB)

 

10.Nóv

Ed Harrison hættur með síðuna

Ed Harrison hefur rekið þessa flottu síðu síðan 23 apríl 2007 og er þetta ein besta stuðningsmannasíða  Newcastle sem er þarna úti. Ég kíki nánast daglega á hana er oft gaman að lesa bloggið hans. Á þessum 30 mánuðum hefur síðan fengið tæpar 23 milljónir heimsóknir sem er ansi gott. Hann mun hætta síðar í vikunni með síðuna og segir hann vera sáttur að skilja við síðuna með Newcastle á topp deildarinnar.

Ég mun allavega sakna síðunnar og vona að hann muni snúa til baka síðar.

(FB)


9.Nóv
Nýr vefstjóri: Innan tíðar mun nýr vefstjóri taka við yfirumsjón með heimasíðu Newcastle klúbbsins. Sá er hámenntaður vefstjóri og harður stuðningsmaður Newcastle. En eins og allir vita þá hefur Friðrik Bergmannsson séð að mestu um síðuna síðustu ár af miklilli kostgæfni, og gert það í sjálboðavinnu fyrir klúbbinn. Sú vinna er all veruleg. Newcastle klúbburinn færir honum bestu þakkir fyrir frábærlega vel unnin störf og vonum við að við fáum að njóta krafta hans áfram fyrir klúbbinn. Félagar meiga gera ráð fyrir nokkrum breytingum á síðu klúbbsins þegar hún verður tilbúin. M.a verður síðan að mestu lokuð nema fyrir félagsmenn. Félagar munu fá sent aðgangsorð að síðunni um leið og hún verður sett upp, sem og frekari kynning verður send til félagsmanna. Gera má ráð fyrir að það geti tekið um einn mánuð að koma nýju síðunni í gagnið.
Þess má geta að stjórnin hefur ákveðið að heiðra Friðrik Bergmanns með því að gera hann að heiðursfélaga til næstu tveggja ára, og verður honum afhentur sérstakur gripur því til staðfestingar á aðalfundi klúbbsins sem fram fer innan tíðar.

 

8.Nóv

Mörkin úr leiknum í gær

Newcastle hélt toppsætinu í gær með 3-1 sigri gegn Peterborough. Það voru Jonas Gutierrez, Andy Carroll og Danny Simpson sem skoruðu mörk Newcastle. Hér má sjá mörkin úr leiknum í gær, þarna má einnig sjá mótmæli stuðningsmanna gegn Mike Ashley.

(FB)

 

8.Nóv

Stuðningsmenn Newcastle mótmæla nafnabreytingunni á St James´ Park

Það voru nokkur hundruð stuðningsmenn Newcastle söfnuðust saman fyrir utan Milburn stúkuna á St James´ Park og mótmæltu ákvörðun Mike Ashley að breyta nafninu á vellinum í sportsdirect.com@St James´Park Stadium. Stuðningsmenn sungu "Get out of our club", "Newcastle United will never be defeted" og "If you love St James clap your hands"  svo fylgdi í kjölfarið "If you hate Mike Ashley clap your hands".

Stuttu eftir að flautað var til leiks sungu stuðningsmenn "Stand up if you hate Make Ashley" og Get out of our club"

Mike Ashley sat í stúkunni og fann fyrir andúð stuðningsmanna í hans garð.

Það er skiljanlega mikil óánægja með þessa ákvörðun Mike Ashley og er þetta eitt fáránlegasta nafn á fótboltavelli sem sögur fara af. E-mail addressa og heimasíða blandað saman við St James´ Park !!!!!!

Þetta fer í topp sætið hvað varðar heimskulegar ákvarðanir Mike Ashley.

(FB)

 

7.Nóv

Jonas með sitt fyrsta mark fyrir Newcastle 

Argentínumaðurinn Jonas Gutierrez skoraði sitt fyrsta mark fyrir Newcastle í 3-1 sigrinum í dag gegn Peterborough. Það tók hann 45 leiki að skora sitt fyrsta mark og voru menn spenntir að sjá hvort hann tæki upp Spiderman grímuna frægu en það gerði hann ekki. Stuttu eftir að hann skoraði þurfti hann að fara af velli vegna meiðsla en Chris Hughton segir að það sé ekkert til að hafa áhyggjur af. "Jonas hefur verið frábær leikmaður fyrir okkur. En við vitum að hann getur bætt sig hvað markaskorun varðar, og hann veit það líka. Hann var virkilega ánægður og ég fyrir hans hönd. Hann hefur misst af nokkrum leikjum með okkur og það hefur sennilega tekið smá tíma fyrir hann að komast í gang, en hann byrjaði leikinn mjög vel í dag. Það var því svekkjandi að hann þurfti að fara af velli. Þetta eru smávægileg meiðsli, en við þurfum að skoða það betur engu að síður. En það var nóg til að hann þurfti að koma af velli" sagði Hughton.

Markið hjá Jonas var sérlega glæsilegt, hann vann boltann á sínum vallarhelming og brunaði upp völlinn og fór framhjá 4-5 leikmönnum Peterborough og skoraði svo framhjá markmanni þeirra.

Þess má geta að Danny Simpson skoraði einnig sitt fyrsta mark fyrir Newcastle í leiknum gegn Peterborough.

(FB)

 

7.Nóv
Newcastle   3 - 1   Peterborough
Newcastle sigraði Peterborough örugglega í dag 3 - 1. Leikurinn fer í sögubækurnar vegna gríðalegrar óánægju stuðningsmanna Newcastle með hugmynd Mike Ashley  að breyta nafninu á St. James Park í - sportsdirect.com@St James' Park Stadium -
Já þið lásuð rétt !
Annars var þetta fyrsti sigur leikur Newcastle undir formlegri stjórn Chris Hughton's . Nokkuð var um bókanir og skiptingar í leiknum. Peterborough náði að skora sitt eina mark á 79 mínútu ( Keates ), en rétt áður sóttu þeir fast að marki Newcastle og m.a bjargaði S. Taylor marki heimamanna og rétt síðar varði Steve Harper  snildarlega. Fyrir Newcastle skoruðu;  Gutierrez (15 min )  - Carroll  (18 min ) og Simpson 52 ( min ).

Lið Newcastle í dag: Harper, Simpson, Coloccini, S Taylor, Enrique, Guthrie, Smith, Nolan, Jonas ( R Taylor 21), Andy Carroll (Lovenkrands 78), Harewood (Ranger 77)

Áhorfendur 43,067

Maður leiksins: Alan Smith

 

Tölfræði leiksins

NUFC

Pet

Skot (á mark)

18(10)

11(5)

Brot

5

8

Horn

8

4

Rangstöður

5

3

Með bolta

59%

41%

Gul spjöld

0

1

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

 

6.Nóv

Newcastle tekur á móti Peterborough

Heimamenn í Newcastle taka á móti Peterborough á morgun laugardag kl 15 á St James´ Park.

Af liðinu er það að frétta að Steven Taylor snýr til baka eftir meiðsli og eru þá aðeins Joey Barton og Shola Ameobi frá vegna meiðsla. Nýjustu fréttir af Ameobi er að hann verði klár um næstu mánaðarmót. Barton hefur sett stefnuna á að verða klár í janúar.

Zurab Khizanishvili tekur út leikbann og á hann þá einn leik eftir af þriggja leikja banninu sem hann fékk á dögunum.

Af næstu fjórum leikjum Newcastle eru þrír þeirra á heimavelli, því er mjög mikilvægt að landa þremur stigum á morgun og halda efsta sætinu.

Newcastle mætti Peterborough í deildarbikarnum fyrr í vetur og tapaði 2-0. Þeir eiga því harma að hefna gegn strákunum hans Darren Ferguson. Peterborough er í næst neðsta sæti deildarinnar en eru sýnd veiði en ekki gefin.

Líklegt byrjunarlið er svona: Harper, Simpson, Colo, S Taylor, Enrique, R Taylor, Smith, Nolan, Jonas, Carroll, Ranger.

(FB)

 

4.Nóv

Stuttar fréttir

# Kevin Nolan er leikmaður mánaðarins í Championship deildinni fyrir október mánuð. Hann hefur byrjað tímabilið mjög vel og er markahæstur í liði Newcastle með 8 mörk. Kevin Nolan fékk 24,56 % atkvæða í fyrsta sæti, á eftir honum komu Matt Fryatt (Leicester) 21,85 %,

Peter Wittingham (Cardiff) 12,21 %

Alan Smith (Newcastle) 9,63 %

Michael Chopra (Cardiff) 3,66 %

Aðrir leikmenn 28,09 %

# Steven Taylor hefur jafnað sig á meiðslum og verður með gegn Peterborough á laugardaginn. Chris Hughton ákvað að taka ekki áhættu með hann gegn Sheff Utd og hvíldi hann. "Steven hefði sennilega getað spilað gegn Sheff Utd en við ákváðum að taka ekki áhættu með hann og það borgaði sig, hann verður því klár fyrir helgina og við fögnum því að fá hann til baka" sagði Hughton. 

# Derek Llambias segir að stjórnin muni styðja Chris Hughton á leikmannamarkaðnum í janúar. Mike Ashley setti 20 milljónir punda inn í klúbbinn í síðustu viku og er það til að dekka ýmsan kostnað hjá klúbbnum. "Peningurinn sem Mike setti í liðið í síðustu viku er til að dekka launakostnað og ýmislegt annað vegna þess að við viljum halda þessum leikmannahópi sem gefur okkur mikla möguleika á að komast upp í úrvalsdeildina á ný. Peningurinn er ekki til leikmannakaupa. En við höfum haldið fund með Chris og sagt honum að við munum gera allt sem við getum til að hjálpa honum þegar á þarf að halda. Við erum að skoða málin núna, þessa stundina erum við að skoða leikmenn sem hann hefur áhuga á. Þessa stundina höfum við meiri áhuga á að fá leikmenn lánaða en ef Chris sér leikmann sem hann vill kaupa fyrir milljón eða svo þá munum við styðja hann"  sagði Llambias.

# Chris Hughton er ánægður með frammistöðu varnarmannins unga Tamas Kadar í síðustu leikjum. Kadar sem er aðeins 19 ára hefur byrjað inná í síðustu tveim leikjum í stöðu miðvarðar og staðið sig með mikilli prýði. "Tamas Kadar var frábær í vörninni, hann er ungur og er enn að læra í hverjum leiknum sem hann spilar. Það var mikill bónus að fá Fabricio Coloccini til baka og mér fannst þeir standa sig mjög vel í vörninni" sagði Hughton.  

(FB)

 

2.Nóv

Steve Harper maður kvöldsins

Newcastle sigraði Sheffield Utd 0-1 á Bramall Lane í kvöld og skaust á toppinn á ný. Það var Ryan Taylor sem skoraði eina mark leiksins á 54 mínútu. Kevin Nolan vann boltann á miðjum vallarhelmingi heimamanna og Ryan Taylor skaut á markið langt fyrir utan teig, boltinn breytti töluvert um stefnu á leið sinni í markið, markmaður Sheff Utd átti því ekki möguleika að verja skot hans. Heimamenn pressuðu töluvert á Newcastle á lokamínútunum og þá kom að þætti Steve Harper sem varði í tvígang stórglæsilega og bjargaði stigunum þremur. Newcastle er komið á topp deildarinnar á nýjan leik og eiga heimaleik gegn Peterborough um næstu helgi. 

Lið Newcastle í kvöld:

Harper, Simpson (Ranger 76), Coloccini, Kadar, Enrique, R Taylor, Butt, Smith, Jonas (Harewood 84), Nolan, Carroll.

Ónotaðir varamenn: Krul, Guthrie, Geremi, Tozer, Donaldson.

Gul spjöld: R Taylor, Carroll.

Áhorfendur: 26,536 

Maður leiksins: Steve Harper

 

Tölfræði leiksins

SU

NUFC

Skot (á mark)

21(12)

10(4)

Brot

10

18

Horn

7

6

Rangstöður

1

3

Með bolta

48%

52%

Gul spjöld

1

2

Rauð spjöld

0

0

Varin Skot

6

8

(FB)