Fréttir í nóvember 2006

Enn fjölgar í Newcastle klúbbnum.

Nýjasti félagi okkar í Newcastle klúbbnum heitir Davíð Daníelsson og fær hann félagsnúmerið 263. Klúbburinn býður hann velkominn.

Gauti á leið á leik !

Guðlaugur Gauti ( nr. 238 ) verður á leik Chelsea-Newcastle þann 13. des. Newcastlesíðan óskar  honum góðrar ferðar og vonandi á hann eftir að senda okkur  ferðapistil hér inn á síðuna.

Kosningasíðan                                       

Allnokkur þátttaka er í kosningasíðunni.Efstur er Shay Given yfir leikmann ársins. Scott Parker kemur fast á hæla hans í öðru sæti.Vefurinn hvetur alla til að taka þátt og kjósa.

UEFA keppni

Frankfurt 0    Newcastle 0

     Þeir sem sáu leik Newcastle gegn Frankfurt geta verið sammála um að 0-0 voru afar sanngjörn úrslit. Í seinni hálfleik átti Frankfurt dauðafæri en sem betur fer fór boltinn yfir markið. Það jákvæða í þessum leik var að vörn Newcastle sem var að spila glimrandi vel. Háar og misheppnaðar sendingar voru alltof margar sem og að Martins var einn í framlínunni og fékk lítinn stuðning, var helsti veikleiki okkar manna. Jafntefli er þó ásættanlegt og Newcastle heldur áfram - það er fyrir öllu.

30.nóv

Liðið Gegn Eintracht Frankfurt

Lið Newcastle var þannig skipað: Given, Ramage, Bramble, Taylor, Solano, Emre, Milner, Butt, N´Zogbia, Sibierski, Luque. Varamenn: Forster, Martins, Huntington, Pattison, Carroll, Edgar, Troisi.  Obafemi Martins er þar elstur varamannanna  22 ára að aldri.

29.nóv

Luque í árekstri

Albert Luque slapp með skrekkinn í árekstri sem hann lenti í á leiðinni til flugvallarins en hann var á leiðinni til Þýskalands ásamt félögum sínum í Newcastle. Luque missti reyndar af vélinni sem flaug með liðið til Frankfurt og þurfti því að fljúga seinna um daginn einn síns liðs.

28.nóv                             

 Steve Harper í uppskurð

Steve Harper fór á mánudag til Þýskalands þar sem hann mun far í uppskurð vegna kviðslits og mun því verða frá keppni í einhvern tíma. Það lítur því út fyrir að hinn ungi Fraser Forster muni vera varamarkvörður í leiknum gegn Frankfurt þar sem Krul er meiddur og Srnicek er ekki löglegur í evrópukeppninni.

28.nóv

Hrós handa Dyer

Shay Given og Peter Ramage hrósa Dyer og áhrif hans á liðið eftir að hann séri til baka eftir langvarandi meiðsl. "Þetta er eins og fá nýjan leikmann"  sagði Given um félaga sinn. Ég er nokkuð viss að það hafa margir tekið andköf þegar Dyer lenti á auglýsingaskiltinu í leiknum á sunnudag, enda leit það ekki vel út við fyrstu sýn en hann hristi þetta af sér og kláraði leikinn með miklum stæl. Roeder hefur samt gefið út að hann muni hvíla Dyer í leiknum gegn Frankfurt enda mun mikilvægari leikur í næstu viku gegn Reading í deildinni.

28.nóv

Skráðir félagar í Newcastle klúbbnum á Íslandi. Samkvæmt félagaskrá dags 28. nóvember eru 259 skráðir félagar í klúbbnum. Nokkrir hafa sagt skilið við klúbbinn á þessu ári en samt  fjölgar okkur jafnt og þétt. Nýjasti félagi klúbbsins er Valur Smári Heimisson frá Vestmannaeyjum og bjóðum við hann velkominn í okkar raðir.  

28.nóv

Newcastle félagar á Suðurnesjunum ætla að hittast og horfa á leik saman á næstunni. Á Suðurnesjunum þ.e.a.s í Grindavík, Njarðvík, Keflavík,Garði og Sandgerði eru 22 Newcastle félagar. Hugmyndin er að þeir hittist einhverstaðar á góðum stað og horfi saman á leik. Pælingin er að sjá leikinn gegn Reading sem fram fer 6. des. Tilkynning verður hér á heimasíðunni síðar hvar Newcastle félagarnir muni hittast.

27.nóv

 Fleiri á sjúkralistann

Enn stækkar sjúkralistinn hjá Newcastle. Í leiknum gegn Portsmouth urðu Parker,Milner og N´Zogbia fyrir smávægilegum meiðslum og verður að telja líklegt að Roeder hvíli þá í leiknum gegn Frankfurt á fimmtudag. Fyrir eru þeir Duff, Moore, Babayaro, Bernard, Ameobi, Carr, Krul og að ógleymdum Owen. Eins og staðan er núna þá eru semsagt 11 leikmenn á sjúkralista Newcastle og erum við á toppi deildarinnar hvað meiðsli varðar.

26.nóv

Newcastle 1  Portsmouth 0

     Glæsilegur sigur í höfn. Newcastle bar sigur á Portsmouth 1-0 og enn og aftur sannar Sibierski hversu öflugur hann er fyrir liðið. Hann skoraði eina mark leiksins á 69 mínútu. Newcastle voru með boltann 57% og áttu 13 skot á markið á móti 7 hjá Portsmouth.

       Annars var Newcastle að spila mjög vel og baráttan frábær í liðinu. Mark var dæmt af Martin þar sem hann var dæmdur rangstæður ( sem hann var ekki ) og síðar var hann  klaufi að skora ekki úr dauðafæri en nokkur færi önnur fóru forgörðum. Það er álit flestra nú sem fjalla um Newcastle, að liðið sé að ná sér á strik og meiri festa og betra spil sjáist hjá liðinu. Varnarjaxlinn Bramble stóð sig vel og Solano var valin maður leiksins.

25.nóv

Hópurinn sem Roeder hefur úr að velja gegn Portsmouth er eftirfarandi. Given, Harper, Srnicek, Carr, Ramage, Bramble, Taylor, Huntington, Parker, Butt, Emre, Dyer, Solano, Milner, N'Zogbia, Pattison, O'Brien, Martins, Sibierski, Luque, Carroll.

25.nóv

Solano spilar salsa !

Newcastle leikmaðurinn Solano er frábær blásari og spilar með salsabandi þegar hann á frístundir. Hér á þessum link getið þið séð hann leika og spila með hljómsveitinni. Skoða   GRL

25.nóv

4 mörk í 7 leikjum ! Antoine Sibierski hefur leikið í byrjunarliði Newcastle sjö sinnum og þar af hefur hann skorða 4 mörk fyrir klúbbinn. Þeir sem voru á móti kaupunum á þessum kappa hafa þurft að éta orð sín því hann hefur sannað sig í liðinu og verður örugglega með í byrjunarliðinu á morgun. Haft er eftir Sibierski að hann sé ánægður með Roeder og að hann einn skilji hvernig hann nýtist best fyrir félagið.   GRL

25.nóv

Roeder skoðar Pólskan leikmann. Sagt er frá því að Roeder sé að skoða Pólska leikmanninn Matusiak sem er 24 ára og talinn einn sá heitasti framherji í Póllandi. Matusiak hefur leikið með GKS Belchatów. GRL

24. nóv

Í 20. skiptið á leik í Newcastle !

Engin maður hefur farið eins oft á leiki til Newcasle og Hafsteinn Þórðarson gjaldkeri kúbbsins. Hann er einn af alhörðustu stuðningsmönnum Newcastle og hér segir hann ferðasögu sína  frá nokkrum síðustu leikjum. Skoða nánar GRL

22.nóv

Milner;  "Verður einn sá allra besti !" Milner lætur hafa það eftir sér að hann telji að Martin eigi eftir að verða einn af allra bestu framherjum í ensku deildinni. Milner segist hafa spilað með mönnum eins og Mark Viduka, Robbie Fowler og Alan Smith hjá Leeds , einnig Milan Baros hjá  Aston Villa, og svo að sjálfsögðu Alan Shearer síðastliðin 5 ár með Newcastle.  " Ég held að Oba verði einn af þeim. Hann er frábær og ungur ennþá eins og allir vita."    GRL

22.nóv

Ameobi skorinn upp ! Framherjinn hjá  Newcastle Ameobi fór undir hnífinn hjá einum fremsta skurðlækni í Bandaríkjunum doktor Richard Steadman's í Colorado. Roeder hefur lýst ánægju sinni með að Ameobi hafi fengið frábæra umönnun en býður eftir að læknir liðsins Dr Philippon gefi honum nánari skýrslu.  GRL

 

21.nóv

Albert Luque á leið til Spánar ! Eins og fram hefur komið vill Albert Luque fara frá Newcastle. Líklega verður hann lánaður til Real Betis og fær Newcastle 400.000 pund fyrir lánið þar til leiktíðinni líkur.  GRL

21.nóv

Newcastle ætlar að bjóða £15 millijónir í framherja ! Sagt er frá því á fréttavef að Newcastle muni bjóða 15 milljónir punda í framherjann Klaas Jan Huntelaar  sem nú leikur með Ajax í Hollandi. Aftur á móti segir Ajax að framherjnn sé ekki til sölu. Roeder hefur sagt það að hann þurfi öflugan framherja í ljósi þess að Owen og Shola Ameobi  komi líklega ekki með að leika með liðinu á þessari leiktíð vegna meiðsla. Einnig hefur fréttst að  Glenn Roeder sé með ýmis önnur nöfn uppi á borðinu þegar salan opnast eftir áramótin. Nafn sem þar kemur sterklega til greina er t.d  hinn 26-ára gamli Concha sem leikur með Sænska liðinu Djurgardens.

Arsenal 1, Newcastle 1 Glæsimark Dyer tryggði okkar mönnum 1-1 jafntefli gegn Arsenal. Þau gleðitíðindi voru einnig að Shay Given er aftur komin í markið.

 

 

Watford 2           Newcastle 2

04.11. 2006

Komnir í fallsæti !

Newcastle 0Sheffield Utd1

50188 áhorfendur á St. James Park , sáu enn eitt tapiði hjá Newcastle á heimavelli. Það á ekki yfir Newcastle að ganga þetta leiktímabilið. Nánast allir framlínu mennirnir á sjúkralista sem og margir aðrir. Harper lék þó í markinu nokkuð óvænt eftir frammistöðu Tim Kurl í evrópuleiknum.Þá er ljóst að Newcastle er komið í næstneðsta sætið og þar með í fallbaráttunni. Það er örugglega eitthvað sem menn geta ekki sætt sig við og taka verður til hendinni.

4.nóv 2006

Ný stjarna í markinu !!

Hinn 18 ára Tim Kurl frá Hollandi sló rækilega í gegn í leiknum í gærkvöldi gegn Palermo, þegar Newcastle vann 1-0. Tim varði eins og hetja og átti þvílík tilþrif í markinu að á erlendum stöðvum var honum gerð sérstök skil og menn áttu ekki orð yfir drenginn. Það er ljóst að Newcastle verður ekki á flæðiskeri statt með þennan dreng í markinu. Talað er um í fullri alvöru eftir leikinn að bæði Harper og Given þurfi nú að spila sig inn í liðið. Roeder segir að Tim hafi ekki komið sé á óvart. En eitt er víst að hjá fréttamönnum og áhorfendum kom þessi magnaði piltur öllum á óvart og það verður gaman að fylgjast með baráttunni um markmannssætið hjá Newcastle á næstunni.

 

Annars var leikurinn jafn á köflum og var það mikið gleðiefni að Albert Luque  skildi skora sigurmarkið sem skildu liðin að eftir frábæra sendingu frá Nobby Solano . Til hamingju Newcastle og til hamingju Tim. Velkominn í hópinn .

 

04.nov. 2006

Eriksson brjálaður !!

Sven Eriksson er arfa brjálaður yfir pressunni að bendla sig við Newcastle. Hann hefur engan áhuga á að ráðast á garðinn þar sem frábær þjálfari sé við stjórnvölin. Hann hefur mikla trú á Roeder og segir stöðu liðsins ekkert segja um getu þess. Newcastle hafa verið ótrúlega óheppnir - skoðið bara veikinda listann þeirra segir Eriksson og sparar ekki fínu orðinn. Newcastle er frábært lið og leiktíðinni er ekki lokið. Sá hlær best sem síðast hlær segir Eriksson foks yllur út í pressuna.