|

Fréttir í október 2007
30.Okt

Big Sam "Er enn að reyna finna þá 11 bestu"
Ég hef ekki enn fundið út þá 11 bestu en er að nálgast það með hverjum leiknum. Þetta er mikið púsluspil þar sem að það er mikið af nýjum leikmönnum í hópnum og þetta getur tekið tíma. Okkur hefur gengið mjög vel á heimavelli og það er frábært, en árangur okkar á útivelli er ekki góður. Ég var nokkuð bjartsýnn eftir útileikina gegn Bolton og Middlesbrough í byrjun tímabils en síðan þá höfum við tekið dýfu niðrá við. Þetta er einfaldur leikur, en þú verður að gera undirstöðuatriðin rétt í 70-80% tilfella, sérstaklega á útivelli. Þetta snýst einfaldlega um það að vera liðið sem gerir færri mistök varnarlega. Af Steven Taylor er það að frétta að Big Sam telur hann hafa rétta karakterinn til að vinn sæti sitt í byrjunarliðinu aftur en Taylor hefur ekki verið í leikmannahóp Newcastle í undanförnum leikjum eða síðan í tapleiknum gegn Man City. Cacapa og Faye hafa spilað í vörninni í síðustu leikjum. "Steven hefur sýnt rétta hugarfarið á æfingum og ég er sannfærður um að hann vinni sæti sitt aftur. Ég spjallaði við hann á laugardagsmorgunn fyrir leikinn gegn Reading og hann tók því vel. Ég veit að hann er vonsvikinn að vera ekki inní myndinni núna, en hann er
framtíðarleikmaður hjá okkur og þegar hann kemst í liðið aftur þá vona ég að hann haldi því sæti. Því hefur verið haldið fram að Sam hafi kennt Taylor um tapið gegn Man City en Sam segir að svo sé ekki. Þetta snérist ekki bara um Taylor heldur þá Rozehnal og N´Zogbia líka þennan dag. Mér fannst vörnin einfaldlega ekki nógu góð í þessum leik og ég varð að gera breytingar" Sagði Sam Allardyce að lokum.
(FB)
30.Okt

Big Sam "Endurkoma Barton það eina jákvæða úr leiknum"
Leikurinn gegn Reading var slæmur en það eina jákvæða sem ég get séð úr leiknum er að Joey Barton skyldi spila 90 mínútur. Hann á bara eftir að verða betri og betri þegar líður á veturinn, því fleiri leiki sem hann spilar því betri leikæfingu fær hann. Það er nógu mikill kraftur í honum en hann hékk stundum aðeins of mikið á boltanum en þetta var fyrsti leikurinn hans í byrjunarliðinu og eftir tvo til þrjá leiki verður hann miklu skarpari.
(FB)
27.Okt
Reading - Newcastle 2-1
(Kitson 53, Long 84) - (Duberry sjm 76)

3 tapleikir í röð á útivelli
Það gengur illa að ná í sigur á útivelli hjá Big Sam en í dag töpuðu Newcastle þriðja leiknum í röð á útivelli. Reading vann sanngjarnan sigur í dag á Madejski Stadium. Leroy Lita hefði átt að koma heimamönnum yfir í fyrri hálfleik en hann hitti ekki boltann í upplögðu færi einn á markteig. Dave Kitson kom Reading yfir með flottu marki á 53 mínútu sem Given átti ekki möguleika í að verja. Big Sam gerði í kjölfarið tvær breytingar, hann setti þá N´Zogbia og Smith inná fyrir Butt og Martins. Milner kom svo inná fyrir Faye á 74 mínútu og vann hann aukaspyrnu út við hornfánann rétt eftir að hann kom inná. Emre tók aukaspyrnuna og sendi fasta sendingu þvert fyrir markið. Michael Duberry varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark og staðan því 1-1. Newcastle virtist ætla krækja sér í öll stigin því þeir sóttu meira eftir jöfnunarmarkið en þá kom Shane Long inná og skoraði hann strax í næstu sókn. Newcastle náði ekki að ógna marki Reading mikið eftir það og þriðja tap Newcastle í röð á útivelli staðreynd. 4 stig af 15 mögulegum á útivelli er ekki góður árangur og Big Sam veit það vel, hann er því væntanlega ekki sáttur við leik sinna manna í dag. Liðið í dag: Given, Beye. Faye (Milner 74), Cacapa, Enrique, Butt (N´Zogbia 58), Geremi, Barton, Emre, Martins(Smith 58), Owen.
Varamenn: Harper, Rozehnal.
Skot á mark: Rea 13 - Nufc 6
Gul spjöld: Faye
Áhorfendur 24,119
Maður leiksins: Emre.
26.Okt
Reading - Newcastle
Madejski stadium
Laugardaginn 27 Okt kl 14:00

Mark Viduka verður ekki orðinn klár um helgina en hann hefur átt við smávægileg meiðsl að stríða í kálfa. Alan Smith verður með eftir að hafa tekið út leikbann gegn Tottenham. Ýmsar getgátur hafa verið um að Big Sam ætli að láta Smith spila frammi með Martins og láta Owen á bekkinn. Þess má einmitt geta að bæði Smith og Martins eiga afmæli á sunnudaginn. Martins verður 23 ára og Smith 27 ára. Charles N´Zogbia er klár eftir að hafa þurft að fara útaf í hálfleik gegn Tottenham vegna veikinda. Shola Ameobi spilaði 90 mínútur með varaliðinu gegn varaliði Liverpool í gær fimmtudag en sá leikur tapaðist 1-2. Celestine Babayaro spilaði í 67 mínútur í þessum sama leik. Það verður fróðlegt að sjá hvort Big Sam haldi sig við liðið sem sigraði Tottenham síðasta mánudag og spili Owen og Martins aftur frammi. Það verður að teljast líklegt að hann haldi sig við sömu vörnina og þeir Rozehnal og Taylor verða að bíða þolinmóðir eftir sínu tækifæri. Hópurinn: Given, Beye, Faye, Cacapa, Enrique, Rozehnal, Taylor, Geremi, Butt, Emre, Barton, N'Zogbia, Martins, Owen, Smith, Milner, Ameobi, Harper.
Liðin hafa mæst aðeins einu sinni í úrvalsdeildinni á Madejski Stadium og var það í apríl á þessu ári. Þar töpuðum við 1-0 með marki frá Kitson.
(FB)
23.Okt

Big Sam ánægður með sína menn
"Þetta er besta byrjun hjá Newcastle í 11 ár. Við erum með 17 stig af 27 mögulegum og ég segi að við erum á undan áætlun með liðið. Þetta er þriðji heimaleikurinn í röð sem við skorum þrjú mörk og nú vill ég fara sjá liðið taka þrjú stig á útivelli gegn Reading næsta laugardag. Ég er mjög ánægður með framförina hjá liðinu og sjálfstraustið hjá liðinu er að aukast. Árangur okkar á heimavelli er frábær og en við verðum að sjá til þess að öll erfiðisvinnan verði ekki til einskis á laugardaginn" sagði stjórinn að lokum.
(FB)
23.Okt
Mörkin úr leiknum
Smellið hér til að sjá mörkin úr leiknum í gær
(FB)
22.Okt
Newcastle - Tottenham 3-1
(Martins 45, Cacapa 51, Milner 73) - (Keane 57)

Cacapa með fyrsta markið sitt fyrir Newcastle
Newcastle tryggði sér þrjú stig í kvöld með 3-1 sigri gegn lánlausu liði Tottenham. Leikurinn var ekkert sérstaklega skemmtilegur á að horfa en þrjú stig er það sem skiptir máli. Faye átti hörku skalla í stöng og Owen átti hættulegt færi í fyrri hálfleik sem Cerny varði vel. Martins skapaði mikla hættu upp við mark Tottenham og á síðustu mínútu fyrri hálfleiks skoraði hann eftir að Enrique átti langa sendingu fram völlinn á Martins og Dawson klikkaði í vörninni og Martins nýtti sér það og kom Newcastle yfir 1-0. Á 51 mínútu skoraði Cacapa sitt fyrsta mark fyrir Newcastle þegar Emre átti flotta sendingu á hann úr hornspyrnu beint á kollinn á Cacapa sem gerði enginn mistök og skallaði beint í markið. Tottenham minnkaði muninn stuttu seinna þegar Bent átti skalla í stöng og Keane fylgdi vel á eftir og skaut í autt markið. Það var svo Milner sem tryggði sigur Newcastle þegar hann skoraði með glæsilegu vinstri fótar skoti á vítateigslínu. Þetta var fyrsta mark hans með Newcastle í vetur. Tottenham átti enginn færi það sem eftir lifði leiks og sanngjarn sigur Newcastle í höfn. Newcastle er nú komið í 8 sæti deildarinnar og eiga einn leik til góða á nokkur lið. Liðið spilaði nokkuð vel í kvöld þó svo að margt mætti betur fara. Það var ánægjulegt að sjá Barton koma inná í sínum fyrsta leik og er nokkuð ljóst að hann á eftir að styrkja liðið. Vörnin var nokkuð góð með þá Cacapa og Feye fremsta í flokki. Butt var mjög góður á miðjunni í kvöld og var barátta hans til fyrirmyndar. Martins var sterkur í framlínunni og gerði gott mark. Owen spilaði í 79 mínútur og átti hann ágætan leik en það hafa margir beðið eftir að sjá Martins og Owen spila saman. Skoða má myndir úr leiknum hér
Lið Newcastle í kvöld: Shay Given, Habib Beye, Jose Enrique, Abdoulaye Faye, Cacapa, Charles N'Zogbia (James Milner 46), Emre (Joey Barton 71), Nicky Butt, Geremi, Oba Martins, Michael Owen (David Rozehnal 79)
Varamenn: Steve Harper, Ameobi.
Skot á mark: NUFC 15 - Tot 11
Gul spjöld: Butt, Beye
Áhorfendur: 51,411
Maður Leiksins: Nicky Butt.
(FB)
20.Okt
Newcastle - Tottenham
St James´ Park
Mánudaginn 22 okt kl 19:00

Joey Barton gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Newcastle en hann hefur verið að spila með varaliðinu undanfarið og verður hugsanlega á bekknum en Big Sam gæti alveg eins ákveðið að hvíla hann í einn leik í viðbót. Það er mjög líklegt að þeir Owen og Martins byrji inná saman í framlínunni í fyrsta sinn en Big Sam hefur verið tregur á að spila þeim saman þar sem hann telur þá of líka leikmenn. Margir stuðningsmenn hafa beðið eftir því að sjá þá tvo spila saman og verður fróðlegt að sjá hvort hann lætur verða af því. Mark Viduka og Claudio Cacapa eru tæpir vegna meiðsla en Ameobi verður pottþétt ekki með. Celestine Babayaro er byrjaður að æfa á fullu en það er ólíklegt að hann komist í hópinn. Alan Smith tekur út leikbann vegna fimm gulra spjalda. Newcastle hefur ekki tapað á heimavelli á tímabilinu og Tottenham hefur ekki unnið á útivelli, við skulum vona að það breytist ekki. Slæmu fréttirnar eru að Paul Robinson verður ekki í markinu hjá Tottenham en hann hefur verið ansi mistækur í vetur. Radek Cerny mun standa á milli stangana hjá Spurs. Hópurinn sem mætir Tottenham: Given, Harper, N'Zogbia, Enrique, Rozehnal, Taylor, Cacapa, Faye, Edgar, Beye, Milner, Geremi, Butt, Emre, Barton, Pattison, Viduka, Martins, Owen.
Leikir liðanna á St James´ Park frá stofnun úrvalsdeildarinnar.
2006/07: 3-1 Dyer, Martins, Parker 2005/06: 3-1 Bowyer, Ameobi, Shearer 2004/05: 1-0 Kluivert (FA Bikar) 2004/05: 0-1 2003/04: 4-0 Shearer 2, Robert 2 2002/03: 2-1 Speed, Shearer 2001/02: 0-2 2000/01: 2-0 Speed, Cordone 1999/00: 6-1 Shearer 2, Speed, Dabizas, Ferguson, Dyer (FA Bikar) 1999/00: 2-1 Glass, Dabizas 1998/99: 1-1 Ketsbaia 1997/98: 1-0 Barton 1996/97: 7-1 Shearer 2, Ferdinand 2, Lee 2, Albert 1995/96: 1-1 Ferdinand 1994/95: 3-3 D.Peacock, Gillespie, Beardsley 1993/94: 0-1
(FB)
19.Okt

Ameobi byrjaður að æfa
Shola Ameobi meiddist í bikarleiknum gegn Arsenal og hefur ekkert spilað síðan. Hann verður samt ekki tilbúinn í leikinn gegn Tottenham á mánudagskvöld. Mark Viduka, Celestine Babayaro og Cacapa eru einnig mættir til æfinga og verða sennilega í leikmannahópnum gegn Tottneham. Babayaro byrjaði að æfa síðasta mánudag en hann hefur ekkert spilað á þessu tímabili og verður að segjast eins og er að það verður erfitt fyrir hann að slá út Enrique og N´Zogbia sem hafa spilað vel í vinstri bakverðinum í vetur. Alan Smith verður hinsvegar ekki með gegn Tottenham þar sem hann verður í banni eftir að hafa fengið fimm gul spjöld. Smith hefur átt við smávægileg meiðsli að stríða í hné og spilaði ekki með Englendingum í síðustu tveimur leikjum, en hann er byrjaður að æfa á fullu aftur og verður klár í leikinn gegn Reading þann 27 okt.
(FB)
19.Okt

Rozehnal og félagar tryggja sæti sitt í Euro 2008
Tékkar gerðu sér lítið fyrir og unnu Þjóðverja 3-0 á heimavell þeirra síðarnefndu og tryggðu sér farseðil í lokakeppni Evrópumótsins á næsta ári. David Rozehnal spilaði allan leikinn með Tékkum. Englendingar eru í slæmum málum í sínum riðli og eiga í hættu á að komast ekki í lokakeppnina eftir 2-1 tap gegn Rússum á gervigrasinu í Rússlandi. Michael Owen spilaði allan leikinn og kemur heill til baka úr landsleikjatörninni. Alan Smith spilaði ekki með Englendingum enda á hann við smávægileg meiðsli að stríða. Emre og félagar hans í Tyrklandi töpuðu 0-1heima fyrir Evrópumeisturum Grikkja. Það tap var ansi dýrkeypt því Tyrkir eru komnir í þriðja sæti riðilsins tveimur stigum á eftir Norðmönnum. Shay Given spilaði með Írum sem gerðu 1-1 jafntefli gegn Kýpur og eiga Írar ekki möguleika að komast áfram úr sínum riðli.
(FB)
17.Okt

Ekkert ákvæði í samningi Owen
Chris Mort stjórnarformaður Newcastle segir að það sé ekkert ákvæði í samningi Michael Owen að hann geti farið fyrir ákveðna upphæð eins og nokkrir fjölmiðlar hafa haldið fram. "Það var ákvæði í hans samningi í síðasta félgsskiptaglugga og sumrinu þar á undan líka en það er ekki lengur til staðar hjá honum. Við viljum sjá Owen skora mörk fyrir Newcastle á komandi árum og hann er mikill fengur fyrir Newcastle og við viljum honum vel. Við kunnum að meta að hann vilji spila fyrir England líka" sagði Chris Mort að lokum.
(FB)
17.Okt

Eiður enn einu sinni orðaður við Newcastle
Barcelona er sagt ætla losa sig við nokkra leikmenn í janúar og kemur það engum á óvart að Eður er einn af þeim. Hann hefur ekki spilað með Barcelona á þessu tímabili enda er hann að keppa um stöðu sína við menn eins og Ronaldinho, Henry, Messi og Eto. Man Utd og West Ham hafa einnig verið orðuð við hann. Txiki Beguiristain yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona segir að Eiður telji sig geta unnið sæti sitt í liðinu aftur en þjálfarar eru að gefa ungum mönnum eins og Giovani og Bojan meiri athygli þannig að það verður að telja líklegt að Eiður verði látinn fara ef Barcelona fær tilboð í hann. Annar leikmaður Barcelona Edmilson að nafni er einnig sagður vera á förum til Newcastle í janúar fyrir lítið fé. Edmilson er samningslaus næsta sumar þannig að hann hann er ekki dýr. Edmilson var orðaður við Newcastle í sumar en þá meiddist hann á hné og er hann að jafna sig á þeim meiðslum. Talið er að félögin séu búin að semja um kaupverð fyrir hann.
(FB)
17.Okt

Milner heitur með U21 landsliðinu
James Milner skoraði eitt mark þegar U21 landslið Englands sigraði Íra 3-0 í Cork á Írlandi í gær. Þeir félgar Steven Taylor og James Milner spiluðu allan leikinn og stóðu sig með prýði. Englendingar hafa unnið alla leiki sína hingað til og eru efstir í sínum riðli með 12 stig eftir 4 leiki. Charles N´Zogbia spilaði með U21 liði Frakka gegn Rússum í Rússlandi og gerðu liðin 0-0 jafntefli. Frakkarnir eru einnig efstir í sínum riðli.
(FB)
16.Okt

Kóngurinn hefur engu gleymt
Alan Shearer hefur greinilega engu gleymt því kappinn gerði þrennu í góðgerðarleik sem var spilaður á St James Park á sunnudag. Leikurinn endaði 5-3 og voru um 18.000 manns á vellinum til að sjá kappa eins og Les Ferdinand, Rob Lee, Scott Sellars, Paul Gascoigne og Peter Beardsley sem gerði eitt af mörkum liðsins. Shearer sagði að honum leiddist aldrei að skora mörk og einnig að það hafi verið gaman að spila með Les Ferdinand aftur. "Ég blés aðeins meira úr nös en ég gerði fyrir nokkrum árum en það var frábært að spila aftur. Við skemmtum okkur allir vel og það var frábært að sjá öll þessi gömlu andlit" sagði kóngurinn að lokum. Það er spurning um að skella honum í þann röndótta ef illa gengur að skora í vetur ;-)
(FB)
16.Okt

Martins á skotskónum með Nígeríu
Obafemi Martins gerði tvö mörk þegar Nígería og Mexíkó gerðu 2-2 jafntefli í vináttuleik í Mexíkó á sunnudagskvöld. Habib Beye og Abdulaye Faye og félagar í Senegal sigruðu hinsvegar Gíneu 3-1 einnig í vináttuleik, sá leikur var spilaður í Rouen í Frakklandi.
(FB)
13.Okt

Landsleikja yfirferð
U21ára landslið Englands sigraði Serbíu á föstudagskvöld 1-0 og var það James Milner sem lagði upp markið fyrir Matt Derbyshire. Steven Taylor fyrirliði U21 ára liðsins spilaði allan leikinn. Milner bætti enn einu sinni landsleikjametið en hann hefur spilað 32 landsleik með U21 ára landsliðinu. Charles N´Zogbia spilaði með U21 ára liði Frakka í 4-0 sigri gegn Bosníu á föstudagskvöld. Andy Carroll sem er í láni hjá Preston skoraði eitt mark í 5-1 sigri U19 ára landsliði Englands gegn Íslandi á föstudagskvöld. Alan Smith kom ekki við sögu í leik Englands gegn Eistlandi sem endaði 3-0 en Michael Owen spilaði í 70 mínútur. Owen var ekki á meðal markaskorara Englands. Emre spilaði 90 mínútur með Tyrkjum í 1-1 jafntefli gegn Moldavíu. Shay Given hélt marki sínu hreinu þegar Írar gerðu 0-0 jafntefli gegn Þjóðverjum í Dublin. Stephen Carr þurfti að draga sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla. Martins, Faye og Beye spila með landsliðum sínum í dag sunnudag. David Rozehnal og félagar hans í Tékklandi spila á miðvikudaginn gegn Þjóðverjum.
(FB)
11.Okt

Stuttar fréttir
# Big Sam segir að það sé enn nokkuð í að Damien Duff verði tilbúinn. "Hann er á áætlun og er byrjaður að æfa létt. Hann heldur áfram að bæta sig en er ekki tilbúinn strax"
# Michael Owen segir að það sé ekkert ósætti milli hans og Sam Allardyce vegna landsliðsins.
# Gary Speed gæti hugsanlega verið á leiðinni aftur til St James Park sem þjálfari.
# Newcastle hefur samið við Wesley Ngo Baheng, 18 ára strák frá Le Havre og kemur hann í janúar. Baheng er franskur og er sóknarmaður. Charles N´Zogbia kom einmitt frá Le Havre árið 2004.
# Big Sam útskýrði afhverju hann tók Rozehnal úr byrjunarliðinu. "Hann hefur staðið sig mjög vel jafnvel betur en ég átti von á. En stundum þurfa menn á hvíld að halda og eftir leikinn gegn Man City fannst mér það rétta í stöðunni.
(FB)
10.Okt

Barton spilaði í 90 mínútur gegn Rangers
Newcastle spilað æfingaleiki við Rangers í kvöld fyrir luktum dyrum á St James Park. Barton hafði spilað tvo leiki með varaliðinu undanfarna 8 daga en þetta var í fyrsta sinn sem hann spilar 90 mínútur síðan hann ristarbrotnaði á undirbúningstímabilinu. Leikurinn endaði 3-1 fyrir Rangers og var það Mark Doninger sem skoraði mark Newcastle eftir sendingu frá Barton. Amdy Faye fyrrverandi leikmaður Newcastle spilaði með Rangers í kvöld (sjá mynd). Sam Allardyce hrósar Barton fyrir viðhorf sitt. " Hann elskar fótbolta og síðan hann kom hingað þá hefur hann ekki misst úr leik þó svo að hann sé búinn að vera meiddur. Hann hefur verið með í rútunni í öllum leikjum og er mjög vinsæll á meðal leikmanna. Að fá hann í form er mjög mikilvægt en við verðum að gera það rétt og almennilega. Maður vill alltaf hafa sína bestu leikmenn í formi. Hans árangur með Man City segir sig sjálfur og vonandi mun hann gera svipað hjá okkur" sagði Big Sam að lokum.
(FB)
10.Okt

"Nautið" er tilbúið
Jose Enrique segist vera orðinn 100% tilbúinn og ætlar sér að halda stöðunni í byrjunarliðinu. Spánverjinn ungi spilaði sinn fyrsta heila úrvalsdeildarleik á tímabilinu gegn Everton síðasta sunnudag. Enrique meiddist lítillega Í leik gegn Barnsley í ágúst en er nú orðinn 100% leikfær. "Ég hafði mjög gaman af leiknum gegn Everton og áhangendurnir voru frábærir. Ég spilaði á St James Park með Villareal í fyrra og ég vissi að það væri frábært að spila hérna. Ég held að við verðum með sterkan heimavöll í vetur og það var mjög mikilvægt að vinna leikinn gegn Everton vegna landsleikjanna sem eru framundan. Ég elska borgina og mér líður mjög vel hérna. Nú ætla ég að berjast fyrir sæti mínu í liðinu og sýna áhangendum hvað í mér býr" sagði nautið frá Spáni.
(FB)
8.Okt
Joey Barton á skotskónum með varaliðinu
Varalið Newcastle og Wigan spiluðu á Kingston Park í kvöld og sigraði Newcastle 3-1. Það var Joey Barton sem skoraði fyrsta markið á 18 mínútu með góðu hægri fótar skoti í vítateignum. Frank Danquah og Matty Pattison skoruðu svo sitthvort markið áður en blásið var til leikhlés. Wigan minnkaði muninn rétt fyrir leikslok og lokastaðan því 3-1. Barton spilaði í 65 mínútur og er greinilegt að hann er allur að koma til og með þessu áframhaldi verður hann til í slaginn gegn Tottenham þann 22 þessa mánaðar. Liðið sem spilaði í kvöld: Fraser Forster, Mark Bertram, Darren Lough, Mark Doninger, Matthew Grieve, Callum Morris, Kazenga LuaLua, Matty Pattison, Frank Danquah, Joey Barton (James Marwood 65), Jonny Godsmark. Varamenn: Kieran Wrightson, Alex Patterson, Patrick McLaughlin, Jeff Henderson.
(FB)
8.Okt
15 landsliðsmenn frá Newcastle
það eru 15 leikmenn frá Newcastle sem taka þátti í þeim landsleikjum sem framundan eru næstu 10 daga.
Euro 2008
Írland- Shay Given og Stephen Carr Lau 13.10.07: Írland v Þýskaland Mið 17.10.07: Írland v Kýpur
Tékkland - David Rozehnal
Mið 17.10.07: Þýskaland v Tékkland
England - Michael Owen og Alan Smith Lau 13.10.07: England v Eistland Mið 17.10.07: Rússland v England
Tyrkland - Emre Lau 13.10.07: Moldavía v Tyrkland Mið 17.10.07: Tyrkland v Grikkland
Undankeppni Evrópumóts U-21
England - Steven Taylor og James Milner Fös 12.10.07: England v Svartfjallaland Þri 16.10.07: Írland v England
Frakkland - Charles N'Zogbia Fös 12.10.07: Frakkland v Bosnía Þri 16.10.07 Rúmenía v Frakkland
Undankeppni Evrópumóts U-19
England - Andy Carroll Fös 12.10.07: England v Ísland Sun 14.10.07: England v Rúmenía Mið 17.10.07: England v Belgía
Undankeppni Evrópumóts U-17
England - Ryan Donaldson Sun 21.10.07: Malta v England Þri 23.10.07: Eistland v England Fös 26.10.07: Portúgal v England
Undankeppni Ólympíuleikana 2008 í Peking
Ástralía - James Troisi Mið 17.10.07: Líbanon U23 v Ástralía U23
Vináttuleikir
Nígería - Obafemi Martins Lau 13.10.07: Mexíkó v Nígería
Senegal - Habib Beye og Abdoulaye Faye Sun 14.10.07: Gínea v Senegal
(FB)
7.Okt
Newcastle - Everton 3-2
(Butt 42, Emre 86, (Johnson 53,
Owen 90) Given (sjm) 90)

Emre fagnar marki sínu í dag
Emre með frábæra innkomu
Leikurinn í dag á St James´ Park var mikil skemmtun fyrir áhorfendur þar sem Newcastle hafði sigur gegn Everton í fimm marka leik. Newcastle byrjaði leikinn mun betur og
Martins fékk gott færi í upphafi leiks en hitti boltann illa í upplögðu færi og skaut framhjá. Nicky Butt kom heimamönnum yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks með yfirveguðu skoti úr vítateignum. Staðan 1-0 í hálfleik og Andy Johnson jafnaði leikinn þegar átta mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Mikil barátta var á milli liðanna og það var ekki mikið að gerast hjá okkar mönnum, þá skipti Big Sam þeim Emre og Owen inná á 74 mínútu fyrir þá Milner og Martins og átti sú skipting heldur betur eftir að borga sig. En 11 mínútum fyrir leikslok átti Cacapa frábæra tæklingu þegar Anichebe átti aðeins eftir að skjóta á markið í upplögðu færi. En þá kom að þætti Emre og Owen þegar fjórar mínútur voru eftir skoraði Emre frábært mark með skoti vel fyrir utan teig og átti Howard í markinu hjá Everton ekki möguleika að verja skot hans. Svo á lokamínútum leiksins átti Emre snilldar sendingu á Owen úr aukaspyrnu sem skoraði eiginlega með öxlinni en engu að síður gott mark hjá honum. Í uppbótartíma gerði Given frekar klaufalegt sjálfsmark, í fyrirgjöf frá vinstri kanti breytti boltinn um stefnu af varnarmanni og Given ætlaði að slá boltan útaf en sló hann í markið. Ekki alveg nógu hjá Given en það kom ekki að sök því stuttu seinna blés dómarinn til leiksloka og þrjú stig í hús handa Newcastle. Það kom svolítið á óvart að Owen skyldi vera á bekknum í dag en hann fór í uppskurð um síðustu helgi og verður hann örugglega með Englendingum í komandi landsleikjum. Big Sam hefur greinilega ekki verið sáttur við vörnina í leiknum gegn Man City og var Beye sá eini sem hélt stöðu sinni í byrjunarliðinu. Inn komu þeir Cacapa, Faye og Enrique. N´Zogbia var færður á vinstri kantinn og kom það bara vel út. Emre átti frábæra innkomu en hann hefur átt við meiðsli að stríða síðan í apríl og virðist hann staðráðinn í að sanna sig fyrir nýja stjóranum sínum. Lið Newcastle í dag: Given, Beye, Cacapa, Faye, Jose Enrique, Milner (Emre 74), Geremi (Rozehnal 88), Butt, N'Zogbia, Martins (Owen 74), Smith. Varamenn: Harper, Taylor.
Skot á mark: Nufc 15 - Eve 11
Gul spöld: Butt, Smith (kominn með fimm gul og verður í banni gegn Tottenham)
Áhorfendur: 50,152
Maður leiksins: Emre (Skoraði frábært mark og átti snilldarsendingu á Owen í þriðja marki Newcastle Þó svo að hann hafi aðeins spilað ca 20 mínútur þá fær hann mitt atkvæði)
(FB)
5.Okt
Newcastle - Everton
St James´ Park
Sunnudaginn 7 okt kl 14:00

Claudio Cacapa er byrjaður að æfa aftur eftir smávægileg meiðsli. Emre, Jose Enrique og Abdulaye Faye spiluðu allir 90 mínútur með varaliðinu í vikunni og eru í hópnum. Það er ólíklegt að Barton verði í hópnum þó svo að hann hafi spilað með varaliðinu í vikunni. Owen er mættur á æfingu aftur en það er ólíklegt að hann verði með gegn Everton. Þeir leikmenn sem eru pottþétt ekki með eru Ameobi (nárameiðsli), Babayaro (meiðsli aftan í læri), Carr (ný byrjaður að æfa), Duff (stutt í að hann byrji að æfa) og Ramage (verður ekki meira með í vetur). Hópurinn er því svona: Harper, Given, N'Zogbia, Rozehnal, Cacapa, Taylor, Enrique, Faye, Emre, Edgar, Beye, Milner, Geremi, Butt, Smith, Pattison, Viduka, Martins.
Leikir liðana á St James´ Park í úrvalsdeildinni frá upphafi :
2006/07 1-1 Ameobi 2005/06 2-0 Solano 2 2004/05 1-1 Bellamy 2003/04 4-2 Bellamy, Dyer, Shearer 2 2002/03 2-1 Shearer, Bellamy 2001/02 6-2 Shearer, Cort, O'Brien, Solano 2, Bernard 2000/01 0-1 1999/00 1-1 Shearer 1998/99 1-3 Shearer 1997/98 1-0 Lee 1996/97 4-1 Ferdinand, Lee, Shearer, Elliott 1995/96 1-0 Ferdinand 1994/95 2-0 Fox, Beardsley 1993/94 1-0 Allen
(FB)
4.Okt

Emre að komast í form
Sam Allardyce hefur trú á því að hæfileikar Emre geti breytt miðjuspili Newcastle til hins betra. Hann spilaði 90 mínútur með varaliðinu á þriðjudag og átti mjög góðan leik þar sem hann skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu. "Að mörgu leiti er Emre einstakur vegna sendingargetu hans og hann er öðruvísi en hinir miðjuleikmennirnir. Þetta er bara spurning um að hann sé í 100% formi og haldi sér þannig. Ég hef ekki það stóran hóp leikmanna þannig að það er ekki möguleiki að Emre sé á leið í burtu frá okkur enda vill ég ekki selja Emre" sagði Sam Allardyce. Emre segir í viðtali á heimasíðu Newcastle að hann ætli sér að komast í byrjunarliðið og blés á þær sögusagnir um að hann ætli aftur til Tyrklands í janúar. "Allir leikmenn vilja spila, en aðeins 11 leikmenn byrja. Ég ber mikla virðingu fyrir leikmönnunum og stjóranum, en ég mun gera mitt besta til að vinna sæti í byrjunarliðinu" sagði Emre sem er óðum að komast í form eftir langvarandi meiðsli.
(FB)
4.Okt

Liðsmynd 2007-08
Loksins er komin liðsmynd fyrir þetta tímabil. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana betur eða setja hana sem "wallpaper"
(FB)
3.Okt

2-2 hjá varaliðinu gegn Man City
Joey Barton spilaði 45 mínútur með varaliðinu í gær á heimavelli City (sjá mynd) og þótti standa sig vel. Big Sam segir að barton þurfi þrjá til fjóra æfingaleiki til að koma sér í stand fyrir aðalliðið. Það voru þeir Emre og Doninger sem skoruðu mörk liðsins í gær. Emre skoraði flott mark úr aukaspyrnu og Enrique lagði upp markið fyrir Doninger. Faye, Emre og Enrique spiluðu allan leikinn.
(FB)
1.Okt

Barton snýr til baka annað kvöld
Joey Barton snýr til baka eftir að hafa ristarbrotnað á undirbúningstímabilinu í leik gegn Carlisle í júlí síðastliðnum. Það hafa komið fréttir á nokkrum netmiðlum að Barton yrði lengur að jafna sig og væri jafnvel frá í einn mánuð í viðbót, en þær fréttir eru ekki réttar. Big Sam hefur ákveðið að Barton spili með varaliðinu annað kvöld gegn varliði Man City á heimavelli City og verða þeir Emre, Jose Enrique og Aboulaye Faye einnig með í leiknum. Lee Clark þjálfari varaliðsins hefur valið þá leikmenn sem spila þennan leik og verður liðið svona: Fraser Forster, Mark Bertram, Jose Enrique, Abdoulaye Faye, David Edgar, Emre, Matty Pattison, Joey Barton, James Troisi, Jonny Godsmark, Frank Wiafe Danquah. Varamenn Mark Cook, Darren Lough, Callum Morris, Kazenga LuaLua, Mark Doninger.
(FB) |