|

Fréttir í september 2006
30. september
Martin lofar "showi " !! Obafemi hefur lofað áhorfendum rosalegri sýningu ef hann skori gegn Man Utd. Hann ætlar að taka sitt fræga flikkflakk. GRL
30. september

Newcastle verður án Titus Bramble og Celestine Babayaro á sunnudaginn gegn Manchester United.
GRL
29. september
Scott Parker með í landsleik..
Steve McClaren landsliðsþjálfari hefur valið fyrirliðann Parker í leikinn gegn Macidonia sem fram fer á Old Trafford á laugardaginn. Roeder hefur lýst ánægju sinni með þennan gjörning enda telur hann að Parker muni standa undir öllum væntingum.Roeder hrósar honum í hástert fyrir dugnað, líkamlegan styrk og skinsemi. GRL
Glæsilegur sigur - glæsilegir dómarar
Newcastle 2 ( Martins 47, Martins 50 )
Levadia 1 ( Zelinski 65 ) Hrikalega skemmtilegum leik lauk með sigri Newcastle þar sem Obafemi Martin skoraði bæði mörkin fyrir Newcastle. Karlinn nr 9 er komin í stuð, aðeins liðu um þrjár mínútur á milli markanna hjá kappanum. Þess má geta eins og flestir vita voru Íslenskir dómarar í þessum leik og stóðu þeir sig með stakri príði og eiga mikið hrós skilð. Aðeins voru 27.012 áhorfendur á leiknum sem þykir afar fátt á St. Jamespark. GRL
25. sept 2006
Roeder vill að hinn 21. árs gamli framherji Newcastle rói sig aðeins niður eftir að hann náði ekki að klára leikinn fyrir Newcastle gegn Everton. Roeder finns hann sem of stressaður og ákafur sem hlítur að teljast ósköp eðlilegt, þar sem Martin vill auðvitað sanna sig sem allra fyrst. Roeder bendir á hversu ungur Martin sé og þurfi sinn tíma til að spila sig inn í liðið. Roeder bendir einnig á að hann sé ekki sáttur við það hversu miðjan mati hann lítið af boltum það sem af er. GRL
 Leiknum lauk 1-1 Newcastle og Everton skildu jöfn eftir frábæran leik. Newcastle óð í færum en nýtti þau ekki. Brambel fékk rautt. Rossi kom inná fyrir Obafemi Martin í lokin. Jafn leikur og liðið lofar góðu eins og það spilaði nú. En stigin vantar. GRL
23.sept. 2006
"TILBÚINN Í ORUSTU" !!! Obafemi Martin segist vera tilbúinn í orustu í næsta leik þegar Newcastle mætir Everton. Ástæðan er sú að Everton mun að öllum líkindum vera með nýja leikmanninn og samlanda Martins - Joseph Yobo í liðinu. Martin sagði; " Fyrir mér að leika gegn Yobo er eins og að fara í stríð, ég veit allt um það hvernig hann hugsar, hvað hann mun gera og hvað hann getur ". Mikill titringur þar á ferðinni. GRL
23.sept. 2006
Steve McClaren landsliðsþjálfari Englendinga hefur boðað komu sína á St. Jamespark á morgun. Ástæðan er að hann vill fylgjast náið með Scott Parker fyrirliða Newcastle. GRL
KOSINN BESTI VEFURINN !
Newcastle vefurinn íslenski var kosinn besti klúbbavefurinn af óháðum aðilum fyrir stuttu. Hann þótti best framsetti vefurinn og sá aðgengilegasti. Þetta er að sjálfsögðu mikil ánægja fyrir okkur. GRL
22.sept 2006
Jákvæðar fréttir; Titus Bramble og Steven Taylor verða að öllum líkindum tilbúnir að leika með Newcastle fyrir leikinn á sunnudag. Einnig er talað um að Nobby Solano verði tilbúinn fyrir leikinn gegn Man Utd sunnudaginn eftir viku. Bramble missti af leiknum gegn West Ham og Liverpool eftir að hafa slasast á ökla og hné í UEFA Cup sigurleiknum gegn Levadia Tallinnn í Eistlandi á dögunum. GRL
22.sept 2006
Í 3 leikja bann. Celestine Babayero fær þriggja leikja bann fyrir að slá Kuyt inni í teig í leiknum á móti Liverpool 20. september.Hann fær þó að taka þátt í UEFA Cup leikjum og þar með næsta leik. Aftur á móti missir hann af leikjunum gegn Everton ( HL ), Man Utd ( ÚL) og Bolton ( HL). GRL
22.sept 2006
Roeder vill að Harper gleimi markinu sem hann fékk á sig í leiknum gegn Liverpool. " Steve hefur fullt traust fyrir næsta leik sem verður á sunnudag. Hann er traustsins verður enda frábær markvörður, segir Roeder ".
GRL
 Bráð-fjörugur leikur 2-0
Liverpool og Newcastle léku fínan leik í kvöld. Það verður að segjast eins og er að Liverpool átti meira í leiknum og uppskáru 2-0 sigur.Kuyt 29mín, Xabi Alonso 79mín. Sókn okkar manna var ómarkviss og miðjan var í vandræðum. Annað markið (Xabi Alonso 79mín) sem Newcastle fékk á sig má á vissuleiti skrifa á varamarkvörðinn Harper. Tvö víti voru sannanlega tekin af okkar mönnum. Dómarinn var oft á tíðum afar ósanngjarn í dómgæslunni. Við óskum Liverpool til hamingju með sigurinn - en hann verður ekki svona sætur þegar kappar þeirra koma á St. Jamepark seinna í vetur !! Aðeins nokkur orð um lýsinguna á Skjá Sport: Þar sat við stjórnvölin Guðmundur nokkur Benediktsson. Segja verður það eins og það var að hann ætti heldur að afgreiða bland í poka en að lýsa leikjum. Hann í raun fór á kostum í hlutdrægni og endalausu bulli. Ég sting upp á því að Skjá Sport gefi okkur einnig möguleika á rás þar sem leiklýsendur koma ekki nálægt lýsingu á leik eins og sá fyrrnefndi . Að öðru leiti stendur stöðin sig frábærlega vel. GRL
18.sept
Enn um lélegan fréttafluttning Fréttablaðsins !
Ég sem formaður Newcastleklúbbsins á Íslandi get ekki legið á þeirri skoðun minni að lélegasti íþrótta-fréttafluttningur sé á Fréttablaðinu - og slá þeir þá rækilega út stöð eitt sem ekki er nú upp á marga fiskana. Það er eins og íþróttafréttamenn ef svo er hægt að kalla, sjái aðeins fjögur félög í enska boltanum, eða kunni aðeins að stafa nöfn þeirra félaga. Það er hreint með ólíkindum hvernig svartnættið í augum þeirra er gagnvart öðrum félögum í úrvalsdeild englendinga er. Við skulum bara skoða frábæran árangur Porsmouth manna. Það er nánast ekki einu sinni birt mynd af þeim í blaðinu. Þeir eru jú í fyrsta sæti - eða er það ekki ?? Íþróttir snúast ekki um hegðun trúarbraggða - þær eru um gagnkvæman skilning og virðingu fyrir andstæðingnum . Ég skora á alla aðra áhugamenn um enska fótbolta að senda "íþróttafréttum" blaðsins email og láta í ljós skoðun sína. ritstjorn@visir.is
Guðmundur R Lúðvíksson, form. Newcastle á Íslandi
18.sept
Shey Given á sjúkrahúsi. Shey Given dvelur nú á sjúkrahúsi í London. Ekki hefur enn fengist upp gefið hversu alvarleg meiðsli þessa frábæra markvarðar er. Talið er þó víst að hann verði frá næstu sex vikurnar ??? En eins og allir Newcastle vinir vita er Given hin besti félagi og er sannfærður um að hér hafi verið um mannleg mistök að ræða hjá Harewood. Við skulum bara vona að hér sé ekki um alvarleg meiðsli að ræða hjá einum besta markverði í Englandi. Næstum öruggt er að Harper verður með í leiknum gegn Liverpool. GRL
Duff og Martin með sín fyrstu mörk fyrir Newcastle. Klúbburinn á Íslandi óskar þeim til lukku og vonar að þetta sé aðeins byrjunin hjá þessum frábæru köppum. GRL
17. sept
Roeder fékk orð í eyra ! Roeder gat ekki leynt gleði sinni í miðjum seinni hálfleik og sendi Toon hernum sigurmerki við mikinn fögnuð áhorfenda. En dómarar og eftirlitsmenn voru ekki sáttir við hegðun þjálfarans og fundu sig knúna til að áminna hann. En eins og allir vita er Roeder heiðursmaður og tók þessari ábendingu af stakri ró og með brosi á vör. GRL
17.sept
Glæsilegur útisigur hjá Newcastle ! Newcastle lagði Westham með sannfærandi sigri 0-2
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en þó áttu okkar menn nokkra góða spretti. Newcastle komu sterkir inn í seinnihálfleik og sýndu fljótlega hverjir ætluðu sér sigurinn í þessum leik. Damien Duff kom Newcastle á bragðið með frábæru marki. 0-1. Nokkru síðar átti Martin sprett er hann vann boltann af varnarmönnum Westam rétt fyrir utan miðju og brunaði einn upp með tvo varnarmenn á hælunum. Martin var öruggur og kláraði færið. 0-2
Síðar var brotið gróflega á Shay Given markverði og hann borinn útaf. GRL
Westham 0 Newcastle 2
13. sept.
Vandræði að útvega félagsmönnum miða !!
Bréf frá Hafsteini gjaldkera;
Blessaður Guðmundur.
Svar var að berast frá okkar ágæta klúbbi í norður Englandi.
Skemmst er frá að segja að við erum algjörlega sett út í kuldann, ...
13. sept.
Þessir NUFC leikmenn fóru til Tallin; Given, Harper, Krul, Carr, Bramble, Moore, Ramage, Huntington, Parker, Butt, Duff, Emre, N'Zogbia, Milner, Pattison, Ameobi, Martins, Sibierski, Luque.
Athyglisvert er að þarna vantar menn eins og; Nolberto Solano og Steven Taylor. GRL
13.september
Antoine Sibierski ætlar að sanna sig.

Antoine Sibierski er staðráðinn í að sýna stjóranum að hann hafi gert góð kaup í sér. Antonie mun að öllum líkindum leika með á morgun í UEFA Cup gegn Levadia í Estonia. "I want to show them what I can do - and the best way to do this is to score some goals." "Ég held að Newcastle liðið sé gríðalega sterkt þó við höfum tapað gegn Fulham á Laugardaginn. Ég hef það á tilfynningunni að við eigum eftir að styrkjast verulega og verða betri og betri með tímanum.
GRL
07. september
Michael Owen skrefinu nær ! Michael Owen er sagður á góðri leið með bata eftir aðgerðir sem hann hefur farið í og gera menn nú frekar vonir um að hann eigi eftir að leika með Newcastle á leiktíðinni þótt síðar verði. Hér er þó aðeins vonarglæta. GRL
07.september
Einhver bið í að Ollie leiki ! Newcastle United aðdáendur þurfa að bíða í einhvern tíma eftir að sjá Olivier Bernard leika með þeim svart hvítu eftir endurkomu hans til St James' Park. Bernard mun ekki leika með á laugardaginn gegn Fulham og að öllum líkindum ekki heldur í Eystlandi á þriðjudaginn í UEFA Cup. GRL
07.september
50 - 50 Shola Ameobi hefur sagt að það séu 50-50 möguleikar á að hann spili gegn Fullham á laugardaginn. Hinn 24- ára framherji hefur svo sem komið Roeder á óvart áður, þegar hann lék með í Inter Toto keppninni og það tvívegis. GRL |