Fréttir í sept 2008

 

 

30.Sept

Lækkað verð á Newcastle ?

Þær raddir gerast enn háværari að samsteypa frá Nígeríu sé búinn að gera formlegt tilboð í Newcastle og að Mike Ashley hafi lækkað verðið á félaginu. Ashley keypti liðið á 134 milljónir punda og ætlaði sér að fá um 450 milljónir fyrir það en hefur lækkað verðið í 280-300 milljónir. Nígeríumennirnir hafa sagt að þeir vilji fá Kevin Keegan aftur til starfa ef þeir kaupa liðið og jafnvel að fá Alan Shearer með honum. En Shearer hefur neitað þessum orðrómi og segir að ekkert sé til í þessu. Sagt er að það séu fleiri aðilar sem hafa áhuga á að kaupa Newcastle og málið ætti að fara skýrast fljótlega.

(FB)

 

30.Sept

Tveir til baka

Joe Kinnear fær tvo leikmenn til baka fyrir næsta leik. Danny Guthrie hefur lokið þriggja leikja banni og verður með gegn Everton og svo er Jose Enrique búinn að ná sér af meiðslum og er klár í slaginn. Þrír aðrir leikmenn byrjuðu að æfa aftur eftir meiðsli í í vikunni en verða sennilega ekki klárir í næsta leik. Það eru þeir Jonas Gutierrez, Andy Carroll og Kazenga Lua Lua.

(FB)

28.Sept

Guðmundur R Lúðvíksson, skrifar

Pirringur.

Það er eðlilegt að stuðningsmenn Newcastle hafi verið pirraðir að undanförnu. Svo rammt er málið að harðir stuðningsmenn í Newcastle borg, sjá ekki ástæðu til að mæta á völlinn til að hvetja sína menn. Auðvitað verðum við einnig varir við þennan pirring hér heima. Allt sem á undan er gengið - og við erum þá að tala um nokkur síðustu ár, hefur verið með ólíkindum frá hendi æðstu manna innan Newcastle. Ekki er ástæða hér að fara yfir þá hluti. Ég trúi því að þessu fari að ljúka. Ég trúi því að við munum fara að sjá betri tíma og betra lið. Áfram Newcastle !!

 

27.Sept

Newcastle - Blackburn 1-2

(Owen 51 vsp)-(Samba 31, Santa Cruz 41)

Neyðarkall frá St James´ Park 

Ég tek það fram strax að ég sá ekki leikinn í dag en er búinn að lesa um hann og þetta er bara það sama og hefur verið í síðustu leikjum. Að þessir menn skuli kalla sig atvinnumenn er ótrúlegt. Búnir að skíta upp á bak í fimm leikjum í röð og þar af þrem síðustu heimaleikjum. Liðið er í frjálsu falli og ekki öfunda ég Joe Kinnear að taka við þessum hóp leikmanna sem líta skelfilega út á vellinum. Ég sá tölfræðina í hálfleik og þá hafði Blackburn átt sjö skot á mark Newcastle en okkar menn áttu ekki eitt einasta skot á markið.

Vonandi að Ashley drullist til að selja liðið sem fyrst svo það sé hægt að fara horfa fram á veginn.

Lið Newcastle:

Given, Bassong, Taylor, Coloccini, Cacapa, Geremi (Ameobi 71), Butt, Duff, N'Zogbia (Edgar 82), Xisco, Owen.
Varamenn: Harper, Tozer, Doninger, Donaldson, Ranger.

Skot á mark: Nufc 4(2) - Bla 9(8)

Horn: Nufc 5 - Bla 5

Áhorfendur: 44,935 

Maður leiksins: Samkvæmt einkunargjöf Sky Sports hefur Shay Given komið í veg fyrir stærra tap.

(FB)

 

26.Sept

Newcastle - Blackburn

Chris Houghton stýrir Newcastle í síðasta sinn á morgun gegn lærisveinum Paul Ince í Blackburn kl 14:00 á morgun laugardag.

Joe Kinnear mun svo taka við á mánudag. Í viðtali við BBC sagði Kinnear: "Mér skilst að fjárfesta séu við það að kaupa félagið, Mike Ashley sagði mér það allavega. Ég mun stjórna liðinu í sex til átta leikjum. Ég geri mér grein fyrir að nýir eigendur séu með Kevin Keegan og hugsanlega Alan Shearer í startholunum". Af leikmannamálum er er það að frétta að Martins, Enrique, Beye, Smith, Viduka, Jonas eru allir frá vegna meiðsla og Barton og Guthrie eru enn að taka út leikbann. Guthrie er að taka út síðasta leikinn sinn og ætti því að vera klár í næsta leik sem er gegn Everton um næstu helgi. Barton á enn þrjá leiki af sex leikja banni sínu og gæti því spilað gegn grönnunum í Sunderland þann 25 okt. Newcastle hefur tapað fjórum leikjum í röð og ekki er hægt að segja að Newcastle hafi gengið vel á heimavelli gegn Blackburn á undanförnum árum. Síðustu þrjár viðureignir hafa endað með sigri Blackburn 07/08 = 0-1, 06/07 = 0-2, 05/06 = 0-1. Eftir að hafa horft á leik Newcastle gegn Tottenham á miðvikudag þá er maður ekkert sérstaklega bjartsýnn á góð úrslit og virðist sem ekkert sé Newcastle í hag þessa dagana. Liðið spilaði skelfilega og hefur maður ekki séð það svartara í fjöldamörg ár. En ég held að botninum sé náð hjá okkar mönnum og nú sé komin tími á sigur hjá Newcastle. Ég hreinlega trúi því ekki að leikmenn Newcastle spili annan svona leik í röð á sínum heimavelli.

Leikmannahópurinn: Given, Harper, Edgar, N'Zogbia, Taylor, Coloccini, Cacapa, Bassong, Tozer, Butt, Geremi, Duff, Donninger, Owen, Xisco, Ameobi, Donaldson, Ranger, Danquah.

Dómari leiksins verður Steve Tanner.

(FB)

26.Sept

Joe Kinnear ráðinn í stjórastarf Newcastle

Newcastle hefur staðfest að Joe Kinnear mun taka við stjórastarfinu tímabundið. Kinnear er best þekkur fyrir að hafa stjórnað Wimbledon á árunum 1992 - 1999. Hann hefur einnig stjórnað Luton og Nottingham Forest.

,,Ég er mjög spenntur. Úrslitin hafa ekki verið góð að undanförnu en það er mikið af góðum leikmönnum í hópnum og ég er mjög vongóður um að leikmenn geti hjálpað liðinu að klifra upp töfluna.

Newcastle United er stór klúbbur og þegar ég var stjóri hjá Wimbledon þá man ég eftir því hversu frábær St James´ Park er. Þetta er mikil áskorun on mig hlakkar mikið til að takast á við hana" sagði Kinnear að lokum.

(FB) 

 

24.Sept

Martins frá í allt að sex vikur

Chris Houghton staðfesti að Martins væri meiddur og gæti verið frá keppni í allt að sex vikur. Hann meiddist á hné í bikarleiknum gegn Tottenham á miðvikudag. Martins spilaði allan leikinn gegn Tottenham en eftir leikinn bólgnaði hann upp á hnénu með fyrrgreindum afleiðingum. Houghton neitaði þeim sögum að Nacho Gonzalez yrði frá keppni til febrúar vegna meiðsla á hásin. "Nacho á við meiðsli að stríða en hann er í meðferð við því núna og ég veit ekki hvaðan þessi frétt kom" sagði Houghton.

(FB)

 

24.Sept

Newcastle - Tottenham 1-2

(Owen 90) - (Pavlyuchenko 62, O´Hara 66)

 

Hörmulega lélegir leikmenn Newcastle

Það er alveg skelfilegt að horfa á liðið sitt spila þessa dagana. Í kvöld tóku þeir á móti Tottenham í þriðju umferð Carling bikarsins. Til að gera langa sögu stutta þá vann Tottenham fyllilega sanngjarnan sigur gegn hörmulega lélegum leikmönnum Newcastle. Það sást greinilega þegar O´Hara skoraði annað mark Tottenham hvaða sjálfstraust leikmenn Newcastle hafa. Steven Taylor sem á að heita okkar efnilegasti og jafnvel besti varnarmaður var alveg úti á túni þegar Coloccini gaf auðvelda sendingu til hans og O´Hara þakkaði fyrir sig og skoraði auðveldlega framhjá Given. Svo er maður að horfa á menn eins og N´Zogbia og Geremi sem geta ekki tekið almennilega hornspyrnur. Ég sé leikmenn á Íslandi taka betri hornspyrnur en þeir. Eins og liðið er að spila þá er ég viss um að toppliðið á Íslandi (Keflavík) myndi ná að sigra þetta lið okkar.

Eins og þetta leit vel út í byrjun tímabils, með Keegan í brúnni og allt leit vel út. En þetta tímabil er að snúast í algjöra martröð.

Ég á varla fleiri orð til að lýsa vonbrigðum mínum með liðið.

Liðið í kvöld:

Given, Geremi, Coloccini, Taylor, Bassong, Cacapa (Edgar 72), Butt, N´Zogbia, Duff (Xisco 72), Martins, Owen.

Varamenn: Harper, Ameobi, Tozer, Doninger, Donaldson.

Gult spjald: Butt

Skot á mark: Nufc 12 (9) - Tot 11(7)

Horn: Nufc 9 - Tot 4

Áhorfendur: 20,577 !!! Tómlegur St James´ Park og engin stemming á vellinum. Ekki sá heimavöllur Newcastle sem maður þekkir. (sjá mynd)

Maður leiksins: Sebastien Bassong (Var skásti maðurinn í ömurlega lélegu liði í kvöld.

(FB)

 

23.Sept

Félagsgjaldið

Ekki hefur gengið vel að fá félagsmenn til að greiða ársgjaldið í klúbbinn hingað til. Það hafa innan við 10 manns greitt félagsgjaldið sem er alveg ömurlega lélegt af um 300 manna hópi. Ég setti inn grein hér þann 28 ágúst (hana má lesa hér)og hvatti menn til að greiða gjaldið sem eru aðeins 2500 krónur sem er nú ekki mikið (tvær bjórkippur) en það skilaði ekki tilætluðum árangri. Það er algjört lykilatriði að fá menn til að greiða gjaldið því annars deyr þessi síða út og ég trúi því ekki að Newcastle stuðningsmenn á Íslandi vilji það. Það er EKKI sjálfsagður hlutur að þessi síða sé í gangi fyrir ekki neitt. Ég legg alveg geysilega mikinn tíma og vinnu í að halda henni gangandi og nú hvet ég Newcastle stuðningsmenn til að greiða gjaldið svo ég þurfi ekki að vera væla svona í ykkur. Eins og þið vitið að þá er alltaf eitthvað að gerast í kringum þetta lið okkar og það er mjög gott að geta lesið fréttir um liðið sitt á íslensku frekar en á ensku.

Allar upplýsingar um bankanúmer ofl. má sá hér til hliðar fyrir neðan Sám frænda.

(FB)

23.Sept

Newcastle - Tottenham

Obafemi Martins snýr til baka eftir meiðsli og er það mikill fengur fyrir liðið sem spilar í þriðju umferð Carling bikarsins annað kvöld. En þeir sem eru enn frá eru: Danny Guthrie, Joey Barton (báðir í banni), Jose Enrique, Habib Beye, Mark Viduka og Jonas Gutierrez eru allir meiddir. Leikmannahópurinn ætti því að vera sá sami og gegn West Ham um síðustu helgi að viðbættum Martins.Leikurinn verður í beinni á Stöð2 Sport.

(FB)

 

22.Sept

Enn ein yfirlýsing frá Newcastle

Newcastle sendi frá sér einn eina yfirlýsinguna í dag. Í þetta sinn er það varðandi söluna á félaginu. Hún er eftirfarandi: "Stjórn Newcastle getur staðfest að fjárfestingabanki í London, Seymour Pierce hefur fengið umboð til að selja félagið. Allt sem viðkemur söluna á félaginu, þar meðtalið þeir sem hafa áhuga á að kaupa liðið, mun fara í gegnum Seymour Pierce. Félagið mun ekki tjá sig meira að sinni" 

Stjórnarformaður Seymour Pierce er Keith Harris en hann sá um söluna á Chelsea til Roman Abromavich árið 2003. Hann var einnig ráðgjafi þegar Randy Lerner keypti Aston Villa og þegar Thaksin Shinawatra keypti Man City. 

(FB)

 

22.Sept

Taylor: "Leikmenn með ekki á förum"

Heimamaðurinn Steven Taylor segir ekkert til í þeim sögusögnum þess efnis að leikmenn séu að bíða eftir að komast í burtu frá liðinu. Taylor sem skrifaði undir þriggja ára samning í sumar segir: "Þetta er bara bull. Það hafa flest allir leikmenn verið nefndir varðandi flótti frá liðinu og í dag var komið að mér. Það kemur ekki til greina. Ég er nýbúin að skrifa undir nýjann samning og ég verð hér næstu þrjú árin allavega. Allir leikmennirnir verða að standa saman og við erum ákveðnir í að snúa við blaðinu".

(FB)

20.Sept

West Ham - Newcastle 3-1

(Di Michele 8, 37 Etherington 53) - (Owen 67)

 

Þriðja tapið í röð

Enn eitt tapið hjá Newcastle leit dagsins ljós í dag þegar þeir heimsóttu West Ham. Liðið er gjörsamlega í molum og Chris Houghton virðist ekki geta peppað leikmenn upp. Lið með Nicky Butt og Cacapa á miðjunni á ekki von á mörgum sóknum. Það ríkir mikil óvissa í kringum Newcastle bæði hvað varðar eigendaskipti og næsta stjóra. Sú óvissa skilar sér greinilega til leikmanna á vellinum sem hafa greinilega ekkert sjálfstraust og úrslit leikjanna sýna það.

Það þarf að leysa þetta mál sem fyrst, það gengur ekki að vera með bráðabirgðastjóra í langan tíma. Það þarf að ráða stjóra sem fyrst og einhvern sem nær að rífa liðið upp. Týpur eins og Faith Terim, Martin O´Neil sem eitthvað líf er í og ná því besta úr mönnum. Er ekki Souness og Allardyce á lausu ? Nei ef það myndi gerast þá hætti ég að sjá um þessa síðu.

 Ég get ekki fyrirgefið Mike Ashley fyrir að hafa ekki staðið við bakið á Kevin Keegan og reynt að styrkja liðið með fleiri leikmönnum.

 Ég held að allir séu sáttir við Coloccini og Gutierrez, Guthrie er ungur og efnilegur en á ekki að vera burðarás í liðinu. Vissulega setja meiðsli strik í reikninginn en klúbbur eins og Newcastle á að þola það og vera með breiðan leikmannahóp. Það hefur margsannað sig að ef menn ætla að ná árangri þá þarf leikmannahópurinn að vera stór og sterkur.

Það sást berlega hvað leikmannahópurinn er þunnskipaður í dag. Þar voru ungir strákar á bekknum eins og Tozer, Doninger og Donaldson og hafði því Chris Houghton því ekki úr miklu að velja. En ég skil samt ekki af hverju Gonzalez var ekki í byrjunarliðinu frekar en Cacapa (sem er miðvörður) en spilaði á miðjunni í dag. En var miðjan frekar þunglamaleg og skapaðist ekki alvöru færi fyrr en í seinni hálfleik.

Fyrsta mark leiksins kom snemma leiks og var í samræmi við allt sem er í gangi hjá Newcastle, skot fyrir utan teig í Taylor og boltinn sveif yfir Given í markinu sem ekkert gat gert. Di Michele bætti svo við öðru marki West Ham á 37 mínútu og var enn einu sinni mikill sofandaháttur í vörn Newcastle. Di Michele fékk tvo eða þrjú tækifæri til að klár færið sitt og gerði það að lokum. Í seinni hálfleik voru okkar menn örlítið skárri en það var ekki fyrr en West Ham hafði bætt við þriðja markinu. Eftir að Owen hafði minnkað munin fyrir Newcastle þá sóttu okkar menn nokkuð að marki West Ham og hefðu átt að bæta við mörkum. En það varð ekkert úr því og þriðja tapið í deildinni í röð staðreynd. Liðið er nú í næst neðsta sæti með fjögur stig eftir fimm leiki og markatalan 4:9. Sigri Tottenham Wigan á morgun sem verður að teljast líklegt, þá er botninum náð í orðsins fyllstu merkingu.

 

Lið West Ham:

Green, Behrami, Upson, Neill, Ilunga, Faubert, Noble, Parker(Mullins 72), Etherington(Boa Morte 73), Di Michele, Cole (Sears 87).

Varamenn: Lastuvka, Lopez, Davenport, Reid.

Gult spjald: Neill

Lið Newcastle:

Given, Edgar (Bassaong 59), Taylor, Coloccini, N'Zogbia, Geremi, Cacapa (Gonzalez 81) , Butt, Duff, Owen, Xisco.

Varamenn: Harper, Ameobi, Tozer, Doninger, Donaldson.

Gul Spjöld: Taylor, N´Zogbia

Skot á mark: WH 12 (6) - Nufc 11(8)

Hornspyrnur: WH 2 - Nufc 6

Áhorfendur: 34,743

Maður leiksins: Michael Owen (Skoraði mark en fær ekki þá þjónustu frá miðjumönnum sem hann þarf á að halda)

(FB)

 

19.Sept

Ferðasaga Smára

Hann Valur Smári Heimisson félagi í Newcastle klúbbnum fór í pílagrimsferð á St James´ Park um síðustu helgi. Smári eins og hann er kallaður er eyjapeyji í húð og hár og spilar með þriðju deildar liði KFS í Vestmannaeyjum. Hann fékk ferðina að gjöf frá kærustu sinni Tinnu Ósk Þórsdóttir sem er einnig frá Eyjum og auðvitað fór hún með. Hann sendi mér smá pistil um ferðina sem var alveg ógleymanleg enda varð hann vitni af allsvaklegum mótmælum fyrir utan St James´ Park en þótt úrslitin hafi verið óhagstæð þá er hann Smári alveg í skýjunum með ferðina. Það er gaman að fá svona pistla frá þeim sem fara svona ferðir og hvet ég alla klúbbmeðlimi að fylgja fordæmi Smára og senda mér smá ferðasögu frá Newcastle þegar farið er í ferð þangað.

Ferðasögu og myndir Smára má lesa hér.

(FB)

 

19.Sept

Ný könnun

Sett hefur verið inn ný könnun og nú er spurt "Hversu oft kíkir þú á heimasíðu Newcastle 

klúbbsins ?" Í síðustu könnun var spurt hvað stjóra þeir vildu fá til Newcastle og voru nokkur nöfn í boði en enginn fékk afgerandi kosningu. Niðurstaðan er svona :

Einhver annar

42%

Alan Shearer

20%

Didier Deschamps

18%

Dennis Wise

12%

Gustavo Poyet

6%

David Moyes

2%

(FB)

 

19.Sept

West Ham - Newcastle

 

Newcastle mætir West Ham á Upton Park á morgun kl 14:00 og eftir sárt tap á heimavelli gegn Hull um síðustu helgi, þá þurfa leikmenn Newcastle að rífa sig upp og reyna að krækja í öll stig sem eru í boði. Gianfranco Zola stýrir West Ham í sínum fyrsta leik sem stjóri þeirra og mun þetta eflaust vera erfiður leikur fyrir okkar menn. Af leikmannamálum er það að frétta að Alan Smith verður frá í þrjá mánuði eftir að það kom í ljós að sprunga væri í fæti hans og þarf hann á skurðaðgerð að halda. En það er nú enginn svakalegur missir í honum að mínu mati.

Damien Duff hefur æft á fullu alla vikuna og verður með. Obafemi Martins á smá möguleika að spila en hann byrjaði að æfa á fullu í gær. Danny Guthrie fékk þriggja leikja bann fyrir brot sitt á Craig Fagan leikmanni Hull í síðasta leik. Hann slapp þó við frekari refsingu frá enska knattspyrnusambandinu.Joey Barton heldur áfram að taka út leikbann sitt og á hann fimm leiki eftir. Mark Viduka er ekki orðinn klár og gæti verið nokkrar vikur í að hann verði leikfær. Það má reikna með að Nacho Gonzales muni því byrja inná því ekki eru margir miðjumenn í boði fyrir Chris Houghton. Leikmanna hópurinn er svona:

Given, Harper, Edgar, N'Zogbia, Taylor, Coloccini, Cacapa, Bassong, Tozer, Butt, Geremi, Duff, Gonzalez, Donninger, Owen, Xisco, Ameobi, Donaldson, Ranger, Danquah

 

Dómari leiksins verður Phil Dowd.

Leikur liðana á Upton Park í fyrr endaði með jafntefli 2-2 þar sem Martins og Geremi skoruðu mörk Newcastle.

(FB)

 

17.Sept

Yfirlýsing Mike Ashley á íslensku

Hann Þórður Valdimar (Doddi) tók það að sér að þýða yfirlýsinguna sem Mike ashley sendi frá sér fyrir stuttu og hana má lesa hér. Þetta er góð lesning og menn geta myndað skoðun sína á Ashley eftir á. Yfirlýsingin er þýdd eftir bestu getu og þið verðið bara að afsaka ef stafsetningavillur finnast.

(FB)

15.Sept

Hver er líklegur til að kaupa Newcastle ?

Eins og komið hefur fram þá vill Mike Ashley selja Newcastle og eru nokkrir aðilar taldir líklegir til að kaupa félagið.

# Anil Ambiani  Indverjinn Ambiani og fyrirtæki hans (Reliance Group) hefur verið sterklega orðað við kaup á Newcastle undanfarið en er sagður hafa snúið sér að Everton. Sjötti ríkasti maður í heimi. 

Líkur: 7/10 - Gætu snúð sér aftur að Newcastle ef Everton dæmið gengur ekki upp.

 

# Microsoft  Bill Gates sem eigandi Newcastle ? The Sun greinir frá því að hann hafi áhuga á að kaupa sér eitt stykki fótboltalið. Einn ríkasti maður í heimi.

Líkur 3/10 Ekki miklar líkur á þessu.

 

# DIC  Dubai International Capital hefur áður verið orðað við kaup á Newcastle en voru taldir líklegir að kaupa Liverpool. En þar sem Ashley vill ólmur selja eru þeir taldir hafa mikinn áhuga á að kaupa Newcastle. Eiga sand af seðlum.

Líkur: 9/10 Lang líklegastir eins og staðan er í dag. 

 

# Xu Rongmao  Kínverji sem leiðir samsteypu sem hafa áhuga á að kaupa Newcastle. Ekki er mikið vitað um Rongmao en hann eins og hinir er talin eiga nóg af peningum.

Líkur: 6/10 Áætlanir hans eru ekki á hreinu og er hann því ekki talinn líklegur.

 

# Aðdáendur Mike Ashley bauð aðdáendum Newcastle að kaupa félagið og reka það. Það hljómar kannski vel en myndi aldrei ganga upp.

Líkur: 2/10 Fín hugmynd en mun aldrei gerast.

 

Fleiri hafa verið nefndir til sögunnar eins og Freddy Shephard, InterMedia Partners, Ken Bates, Polygon Investment Parners ofl. en það verður spennandi að fylgjast með framgangi mála á næstu dögum.

(FB)

 

14.Sept

Yfirlýsing frá Mike Ashley: "Newcastle til sölu"

Mike Ashley eigandi Newcastle hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann vilji selja félagið. Samband hans við stuðningsmenn hefur verið frekar slæmt undanfarna daga og í gær hefur hann fengið nóg eftir mikil mótmæli fyrir utan St James´ Park og á leiknum í gær. Hann sendi frá sér yfirlýsingu á heimasíðu Newcastle í dag þar sem hann útskýrir sín sjónarmið. ,,Félagið er til sölu. Ég vona að stuðningsmennirnir fái það sem þeir vilja og að næsti eigandi sé einhver sem getur eytt þeim peningum í félagið sem stuðningsmennirnir vilja,"

,,Ég ber hag Newcastle fyrir brjósti. Ég hef hlustað á ykkur. Þið viljið mig burt og það er það sem ég er að reyna að gera en það gerist ekki á einni nóttu og það gæti alls ekki gerst ef að enginn kaupandi kemur," segir Ashley meðal annars í yfirlýsingu sinni. Hana má lesa í heild sinni hér á ensku.

(FB) 

13.Sept

Newcastle - Hull City 1-2

(Xisco 82) - (King 34 vsp, 55)

 

Newcastle hörmulega slakir í dag

Ekki hélt ég að ég ætti eftir skrifa um að Newcastle hefði tapað fyrir Hull City á St James´ Park, en það gerðist nú samt í dag. og það sem meira er að sigurinn var sanngjarn, leikmenn Hull höfðu miklu meiri áhuga á að vinna þennan leik en leikmenn Newcastle. Það má vera að mótmæli áhangenda bæði fyrir utan St James´ Park fyrir leik og á leiknum sjálfum hafi haft áhrif á leikmenn sem virtust gjörsamlega ekki í sambandi. Newcastle náði ekki að skapa sér mikið af færum en Danny Gurthrie fékk þó besta færi heimamanna í fyrri hálfleik en hitti boltann illa. Hull fékk svo vítaspyrnu á silfurfati og Marlon King nýtti vítaspyrnuna en Given var ekki langt frá því að verja spyrnu hans. King var svo aftur á ferðinni á 55 mínútu þegar vörn Newcastle svaf fasta svefni, King slapp einn í gegn og átti hann ekki í miklum erfiðleikum að skora annað mark Hull. Danny Guthrie átti svo skot á slánna stuttu seinna en það var ekki fyrr en á 82 mínútu að Xisco sem var að spila sinn fyrsta leik skoraði af stuttu færi eftir að N´Zogbia átti skot í stöngina. Newcastle náði ekki að skapa sér hættulegt færi á loka mínútum leiksins. Danny Guthrie hagaði sér svo eins og asni á lokamínútu leiksins þegar hann sparkaði viljandi í lappir Craig Fagan leikmann Hull og fékk rautt spjald að launum. Hann mun væntanlega fá þriggja leikja bann fyrir þetta brot.

Lið Newcastle:

Given, Edgar (Bassong 68), Taylor, Coloccini, N'Zogbia, Geremi, Butt, Guthrie, Xisco, Owen, Ameobi (Gonzalez 61).
Varamenn: Harper, Cacapa, Danquah, Doninger, Donaldson.

 

Rautt spjald: Guthrie

 

Lið Hull:

Myhill, McShane, Turner, Gardner, Dawson, Mendy (Folan 73), Marney (Hughes 78), Ashbee, Halmosi, King (Zayatte 83), Fagan.
Varamenn: Duke, Windass, Geovanni, Ricketts.

Gul spjöld: Folan, Halmosi

 

Skot á mark: Nufc 13 (4) - Hull 8(4)

Horn. Nufc 5 - Hull 3

Áhorfendur: 50.242

Dómari leiksins: Andre Marriner

Maður leiksins: Xisco (Barðist nokkuð vel og skoraði mark í sínum fyrsta leik.)

 

(Mótmæli stuðningsmanna á St James´ Park)

 

Það voru mikil mótmæli fyrir leikinn í dag og beindust þau gegn Mike Ashley og Dennis Wise sem eru sennilega óvinsælustu menn í Newcastle. Mér finnst það alveg óskiljanlegt að skoðanir Dennis Wise skuli vera teknar fram yfir King Kev og það er alveg svakalega pirrandi að enn eitt tímabilið er komið í algjört rugl. Eini stjórnarmaðurinn sem lét sjá sig í stúkunni var Derek Llambias stjórnarformaður og ekki sást til bjórþambarans Mike Ashley.

(FB)

12.Sept

Newcastle - Hull City

Chris Houghton bíður það erfiða verkefni að stýra Newcastle gegn Hull á morgun, en búast má við miklum mótmælum gegn Mike Asheley fyrir utan St James´ Park.

Það er nokkuð um meiðsli í leikmannhóp Newcastle og má þar nefna: Martins, Duff, Viduka. Svo eru Habib Beye og Jonas Gutirrez tæpir og mun það koma í ljós á morgun hvort þeir verða með eða ekki. Joey Barton byrjar að afplána sex leikja bann sem hann fékk fyrir árásina á Ousmane Dabo. Ljósu punktarnir eru að Geremi og Cacapa eru orðnir leikfærir, svo munu nýju mennirnir Xisco og Nacho vera í leikmannahópnum sem er svona: Given, Harper, Beye, N'Zogbia, Taylor, Coloccini, Cacapa, Bassong, Tozer, Edgar, Butt, Geremi, Guthrie, Smith, Gonzalez, Owen, Xisco, Donaldson, Ranger.

Fyrirliðinn Micael Owen segir í viðtali á BBC að leikmennirnir verði að einbeita sér að leiknum. "Við erum

í þessu saman og við verðum að standa saman og gera það besta fyrir klúbbinn. Þrátt fyrir atburði síðustu daga þá erum við erum allir atvinnumenn og fáum borgað fyrir þetta, við verðum því að fara út á völlinn og standa okkur".

Síðasti leikur Newcastle gegn Hull var í deildarbikarnum tímabilið 1997/98 og sigruðu okkar menn 2-0 með mörkum frá Ian Rush og Des Hamilton. Lið Newcastle var skipað þessum mönnum í leiknum:

Hislop, Barton, Beresford (Watson 67), Peacock, Howey, Rush, Barnes, Ketsbaia, Tomasson, Hamilton (Brayson 90), Albert.

(FB)

11.Sept

Stuttar fréttir

# Jonas Gutierrez meiddist á öxl í leik Argentínu og Perú  í gær og er óvíst hvort hann verður með gegn Hull. Hann þurfti að fara af velli eftir aðeins 16 mínútur og var talið í fyrstu að hann hefði farið úr axlarlið en upplýsingafulltrúi Argentínu Anders Ventura taldi meisðlin ekki vera alvarleg en hann þarf að fara í frekari læknisskoðun til að meta hversu alvarleg meiðslin eru. Leikurinn endaði 1-1.

Mike Ashley ætlar ekki að vera á meðal áhorfenda á leiknum gegn Hull, hann ætlar heldur að vera í boxi stjórnarmanna.

# Guus Hiddink þjálfari Rússneska landsliðsins og Dick Advocat stjóri Zenit eru sagðir vera á lsitanum yfir næsta stjóra hjá Newcastle. 

# Slaven Bilic þjálfari Króata sagði eftir leik þeirra gegn Englendingum að hann hefði ekki áhuga á að taka við Newcastle. Hans hugur er með Króatíska landsliðinu. 

(FB)

9.Sept

Er Mike "wow signing" Ashley næsti  Jerry Bruckheimer ?

Mike Ashley hefur verið í Hollywood, New York og Miami undanfarnar viku(ur) að koma sér upp samböndum við stórkalla í heimi kvikmyndanna. Samkvæmt heimildarmönnum er hann tilbúinn að selja Newcastle á morgun fyrir 250 miljónir punda, sem eru mjög góðar fréttir að mínu mati. Hann hefur svo áhuga á að kaupa eða koma sér upp kvikmyndaveri í Ameríkunni. Mike hefur ekki farið leynt með þetta og hefur verið að halda veislur fyrir fólk í bransanum eða eins og fjölmiðlar þar ytra segja "Mike has thrown a few parties and had meetings to show he means business". Ef mig minnir rétt er ekkert að marka orð hans og ég er enn að bíða eftir "wow signing".

Hann segist hafa orðið ástfangin af Hollywood og verið að vinna í þessu meira en ár.

Til gamans má geta að Mike hefur smá reynslu af kvikmyndum, er hann leikur sjálfan sig í nýrri mynd sem ber nafnið Goal 3. Hver man ekki eftir Goal myndinni sem var að mestu tekinn upp í herbúðum Newcastle árið 2005 sem skartaði ekki minni manni en kónginum Alan Shearer. 

(ÞVV)

 

Greinina ritaði gallharður Newcastle maður og félagi nr 272 í Newcastle klúbbnum Þórður Valdimar Valdimarsson. Vænta má fleiri greinum frá honum á næstunni um ýmislegt sem tengist Newcastle.

Á myndinni má sjá Mike Ashley þamba bjór á Emirates vellinum.Tekinn var tími á honum og var hann rétt rúmar 13 sekúndur að þamba bjórinn sem verður að teljast nokkuð gott.

Hann er allavega töluvert betri í bjórþambi en að stjórna Newcastle United.)

(FB)

9.Sept

Zico og Gus Poyet líklegir

Þeir sem eru líklegastir í stjórastarfið hjá Newcastle eru Brasilíumaðurinn Zico og Gus Poyet frá Uruguay aðstoðarþjálfari Tottenham. Allmargir hafa verið nefndir sem eftirmaður Keegan og má þar nefna Fatih Terim, Slaven Bilic, Gerard Houllier, Frank Rijkard, Roberto Mancini, Didier Dechamps ofl. Zico segir í viðtali á Sky Sports að hann hafi mikinn áhuga á að taka við stjórastarfi Newcastle. "Ég hef alltaf haft áhuga á úrvalsdeildinni og ég hef trú á að ég nái góðum árangri í Englandi. Stjórastarfið hjá Newcastle er eitthvað sem ég hefði mikinn áhuga á að taka að mér. Ég er vanur að vinna með yfirmanni fótboltamála (technical director) þannig að það er ekki vandamál að minni hálfu" sagði Zico sem er stjóri tyrkneska liðsins Fenerbahce. En það segja margir miðlar frá því að Gus Poyet sé næsti stjóri Newcastle og hefur hann átt í viðræðum við Tottenham um að losna þaðan.

Stuðningsmenn Newcastle vilja ekki sjá Mike Ashley á áhorfendapöllunum á leikjum og allra síst í Newcastle treyjunni. Hann hefur verið að grafa sína eigin gröf með aðgerðum sínum undanfarna daga. Á myndinni má sjá mótmælaaðgerðir stuðningsmanna fyrir utan St James´ Park sem eru ekki sáttir við gang mála og hafa ritað á borðann "Ashley not so Wise"

(FB)

 

8.Sept

McDermott og Sadler látnir fara

Terry McDermott og Adam Sadler voru í dag látnir fara frá félaginu. McDermott var aðstoðarmaður Keegan og Sadler þjálfaði varaliðið.Þá hefur Chris Houghton tekið við Newcastle tímabundið.

Richard Money og Alan Thompson úr akademíu Newcastle munu vera honum til aðstoðar. McDermott kom fyrst til Newcastle árið 1992 þegar Keegan tók við í fyrra skiptið og var einnig þegar Kenny Dalglish tók við. Hann var svo látin taka pokann sinn þegar Ruud Gullit (1998) tók við af Dalglish. Það var svo Graeme Souness sem fékk McDermott til að koma aftur til Newcastle árið 2005 og hefur hann starfað hjá Newcastle þar til dagsins í dag. Adam Sadler tók við varaliðinu af Lee Clark í janúar á þessu ári en hann hafði starfað hjá akademíu Newcastle.Þeir eru báðir miklir stuðningsmenn Kevin Keegan.

Mike Ashley heldur áfram að gera í buxurnar og er nokkuð ljóst að hann lætur ekki sjá sig í stúkunni á næstunni enda orðinn óvinsælasti maðurinn í Newcastle.

(FB)

7.Sept

Given: "Ringulreið hjá Newcastle"

Shay Given hefur áhyggjur af ástandinu sem er þessa dagana hjá Newcastle. Keegan segir óvænt af sér og Mike Ashley gagnrýnir Keegan harðlega í yfirlýsingu í gær. Keegan svarar svo gagnrýninni, þannig að skotin ganga manna á milli. Given sem hefur spilað í 11 ár með Newcastle segir að liðið verði að ná sér á strik aftur. "Já ég var virkilega  undrandi. Hann er frábær stjóri og frábær náungi. Hans verður virkilega saknað hjá bæði hjá leikmönnum og aðdáendum. Við viljum allir liðið taki framförum og vonandi gerum við það. Við viljum allir að félagið nái sér á strik og taki skref í rétta átt. En í augnablikinu er ringulreið hjá félaginu". Sagði Given í viðtali á Sky Sports.

Og til að bæta gráu ofan á þá fékk Joey Barton 6 leikja bann fyrir árásina á Ousmane Dabo fyrir einu og hálfu ári síðan. Hann fær þó aðeins sex leikja bann til að byrja með, en ef hann brýtur aftur á sér þá fær hann sjálfkrafa auka sex leiki til viðbótar í bann.

(FB)

 

5.Sept

Ný könnun

Hver verður næsti stjóri Newcastle ?  Er spurningin í könnunni og eru þeir menn sem nefndir eru hér í fréttinni hér að neðan í boði.

Í síðustu könnun var spurt "Viltu Mike Ashley og stjórn hans í burtu ?" og var niðurstaðan nokkuð afgerandi, 70% vildu fá Mike Ashley og hans menn í burtu en 30% vildu gefa honum lengri tíma.

(FB)

   

5.Sept

Hver er næstur ?

Þetta er orðið á hverju tímabili sem maður þarf að velta þessari spurningu fyrir sér "hver verður næsti stjóri Newcastle ?" Það geta ekki verið margir sem vilja taka þetta starf að sér ef vinnubrögðin eru þannig að stjórinn hafi lítið sem ekkert að segja varðandi leikmannakaup og sölur. Dennis Wise og Mike Ashley eru sennilega óvinsælustu menn í Newcastle þessa dagana og þeirra bíður erfitt verkefni í að finna eftirmann King Kev. Þeir sem hafa verið nefndir til sögunnar eru David Moyes, Didier Deschamps, Alan Shearer, Gustavo Poyet og Dennis Wise.

(FB)

5.Sept

Keegan hættur

Kevin Keegan er hættur sem stjóri Newcastle eftir aðeins átta mánuði í starfi. Framtíð hans hefur verið í mikilli óvissu síðustu daga en nú í dag er það staðfest að hann sé hættur. "Ég hef lagt mjög hart að mér til að finna leið fram á við með stjórnarmönnunum en því miður hefur það ekki reynst mögulegt," sagði Keegan í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag. ,,Það er mín skoðun að knattspyrnustjórar verði að hafa réttinn til að stjórna og að félagið eigi ekki að þröngva leikmanni upp á stjórann sem hann vill ekki fá..Það er mín heitasta ósk að Newcastle United muni vegna vel í framtíðinni og ég er mjög leiður fyrir hönd leikmannanna, starfsfólksins og aðallega stuðningsmannanna. Ég á ekki annars kostar völ en að hætta" sagði Keegan í yfirlýsingu sinni.

Það er alveg ljóst að það verður mikil óánægja með þessi málalok og sagt er að stuðningsmenn Newcastle muni ekki mæta á næsta leik til að mótmæla Mike Ashley og stjórn Newcastle.

Mín skoðun er að þetta fer að verða ansi þreytandi, þessi sápuópera sem er alltaf í gangi hjá Newcastle.Að vera sífellt að skipta um stjóra er ekki boðlegt fyrir lið í efstu deild. Það næst aldrei árangur með þetta lið með svona rugli. Til dæmis er Charles N´Zogbia nokkrum öðrum leikmönnum að fá sinn sjötta stjóra á fjórum árum !!!!! Sir Bobby Robson 2004 (rekinn), Souness 2004/06 (rekinn), Glen Roeder 2006/07 (rekinn), Sam Allardyce 2007/08 (rekinn), Kevin Keegan 2008 (hættur) og svo kemur einhver nýr stjóri á næstu dögum væntanlega.

Mike Ashley og stjórn hans með Dennis Wise í fararbroddi hafa heldur betur gert í buxurnar og vonandi mun einhver koma með kauptilboð í Newcastle og koma þessum pappakössum sem lengst í burtu.

Enn eitt tímabilið komið í algjöra steypu og maður sér fram á strögl í vetur. Og ef Ashley ræður Wise sem stjóra þá yrði ég gjörsamlega orðlaus. Það skal tekið fram að þetta er ritað í smá reiðikasti og það gæti tekið nokkra daga að renna af mér.

Sælir að sinni

(FB)

 

4.Sept

Aldrei fleiri heimsóknir

Á þriðjudaginn síðasta (2 sept) var aðsókarmet á Newcastleis.com slegið. Alls voru 484 sem kíktu á síðuna og var fyrra met slegið frá 8 ágúst 2007, en þá voru 455 sem kíktu inn á síðuna. Það má reikna með því að dramtíkin sem er nú í gangi hjá Newcastle hafi mikið að segja hvað þetta met varðar en aðsókn á síðuna hefur engu að síður farið vaxandi á undanförnum vikum. Að meðaltali voru 210 á dag sem kíktu á síðuna í ágústmánuði en það sem af er september eru 401 sem hafa sótt síðuna að meðaltali.

Þetta er ánægjulegt að sjá enda hef ég lagt mikla vinnu í að halda síðunni vel uppfærði. Ég myndi samt vilja að Newcastle menn væru svolítið duglegri að tjá sig á spjallborðinu. Ég trúi ekki öðru en að menn hafi sínar skoðanir á því sem er að gerast hjá Newcastle þessa dagana.

TOON ARMY

(FB)

3.Sept

Önnur yfirlýsing frá Newcastle

Ný yfirlýsing var send frá Newcastle nú fyrir stundu og er hún svona: "Newcastle United getur staðfest að viðræður eru í gangi milli stjórnarinnar og Kevin Keegan. Bæði félagið og Kevin vilja ítreka að Kevin er enn stjóri liðsins. Hann er ekki hættur og honum hefur ekki verið sagt upp störfum, eins og staðfest hefur verið af viðkomandi yfirlýsingu frá Kevin og Newcastle United."

Það er greinilega mikið í gangi hjá Newcastle og við skulum vona að málið leysist á farsælan hátt og að Keegan verði áfram stjóri hjá Newcastle.

(FB)

 

3.Sept

Ungu strákarnir við það að snúa til baka

Adam Sadler þjálfari varaliðs Newcastle vonast til að fá Tamas Kadar og Andy Carroll í lið sitt fljótlega. Kadar sem kom til Newcastle í janúar stóð sig mjög vel á síðasta tímabili en hann meiddist á hné undir lok tímabilsins og hefur ekkert spilað síðan þá. "Hann er bara rétt byrjaður að skokka en það styttist í að hann fari að sparka í bolta. Andy Carroll er einnig byrjaður að skokka. Líkamsstyrkur Andy og reynsla Tamas mun bara auka styrk liðsins og það mun verða meiri samkeppni um stöður í liðinu, þannig að það er mjög ánægjulegt að fá þá til baka" sagði Adam Sadler að lokum,

(FB) 

 

2.Sept

Xisco: "Frábært að vera komin til Newcastle"

Spánverjinn Xisco sem Newcastle keypti á lokadegi félagskiptagluggans segir í viðtali á heimasíðu Newcastle að hann sé mjög ánægður að vera komin til Newcastle. Xisco sem er 22 ára gerði fimm ára samning segir: " Ég hef beðið eftir þessu tækifæri í langan tíma og ég vill sýna hvað í mér býr. Ég elska úrvalsdeildina og hún hentar mér vel. Mig hlakkar til að hitta liðsfélagana. Ég þekki þá Colo og Jose Enrique vel, ég talaði við Colo og hann sagði mér allt um klúbbinn og borgina. Það eru líka fleiri spænskumælandi þarna og það mun hjálpa mér í fyrstu. En ég ætla að læra enskuna á næstu mánuðum svo ég kynnist öllum hér betur" sagði Xisco að lokum.

(FB) 

 

2.Sept

Ný könnun

Það er komin ný könnun og er spurt hvort menn vilji fá Mike Ashley og hans hafurtask í burtu frá félaginu. Í síðustu könnun var spurt hvort menn vildu semja vil Owen og var niðurstaðan þannig að 86% vildu semja við hann en 14% vildu losna vil hann.

(FB)

 

2.Sept

Yfirlýsing frá Newcastle "Keegan ekki rekinn"

Stjórn Newcastle sendi út yfirlýsingu varðandi Kevin Keegan nú fyrir stundu og þar kemur fram að það hafi verið haldnir fundir með Keegan í gær og í dag. Klúbburinn vill halda áfram langtímaáætlun sinni og leggur áherslu á að Keegan er mjög mikilvægur fyrir Newcastle, bæði núna og fyrir framtíðina. Newcastle metur mikið það sem Keegan hefur gert fyrir klúbbinn frá því hann snéri aftur til St James´ Park. og vill að hann haldi áfram því starfi sem stjóri félagsins. Til að taka allan vafa af þá hefur Kevin Keegan EKKI verið rekinn sem stjóri Newcastle.

Það á svo eftir að koma í ljós hvort Keegan heldur áfram sem stjóri. Hann gæti hætt, enda eru greinileg ósætti milli hans og stjórn félagsins. 

(FB) 

2.Sept

Keegan hættur ?

Ýmsir netmiðlar hafa greint frá því að Kevin Keegan sé hættur sem stjóri hjá Newcastle. Keegan hefur setið á fundi með stjórnarmönnum Newcastle í allan morgun í stað þess að stjórna æfingu liðsins, en hann er afar ósáttur við stefnu stjórnarinnar í leikmannamálum. Enn eru þessar fréttir óstaðfestar og beðið er eftir yfirlýsingu frá Newcastle. BBC greinir frá því að Keegan sé hættur með Newcastle eftir aðeins átta mánuði við stjórnvölin. Keegan er sagður ósáttur við hvað hann hefur litla stjórn á leikmannakaupum og sölum, þó sérstaklega varðandi söluna á James Milner. Reiðir stuðnigsmenn Newcastle hafa safnast saman fyrir utan St James´ Park og mótmælt brottför Keegan enda er hann geysilega vinsæll í Newcastle.

(FB)

 

1.Sept

Félagskiptaglugganum lokað

Nú hefur félagskiptglugganum verið lokað og staðfestar fréttir eru að Newcastle náði að landa tveimur leikmönnum, einn keyptur og annar fengin að láni út tímabilið. Sóknarmaðurinn Xisco (22 ára Spánverji) var keyptur frá spænska liðinu Deportivo La Coruna og miðjumaðurinn "Nacho" Gonzalez (26 ára frá Uruguay) ára var fenginn að láni frá Valencia

(FB)

  

1.Sept

Síðasti dagur félagskiptagluggans

Nú er síðasti dagur félagskiptagluggans og verður fróðlegt að sjá hvort Keegan næli í þessa 3 - 4 leikmenn eins og hann talaði um í síðustu viku. Sett verður inn helstu tíðindi hvað varðar leikmennakaup en það er mikið af sögusögnum í dag. Sett verður "Staðfest" fyrir aftan fréttina ef satt reynist.

Kl:23:30 Newcastle hefur keyptsóknarmanninn Xisco frá Deportivo La Coruna. Þessi 22 ára Spánverji gerði fimm ára samning við Newcastle og hefur fengið úthlutað númerið 19 hjá Newcastle. Hjá Newcastle hittir hann Coloccini, fyrrum liðsfélaga sinn frá Deportivo. Kaupverð er ekki uppgefið, en það er talið vera um rétt undir 6 milljónum punda. STAÐFEST

Kl:22:30 Joey Barton segir í viðtali á Sky Sports að hann ætli að vera áfram hjá Newcastle. Hann hafði verið orðaður við Aston Villa og Portsmouth en segist skulda Newcastle að vera áfram hjá þeim. "Ég vill ekki fara frá Newcastle vegna þess að ég skulda þeim og aðdáendum þeirra svo mikið vegna þess hvað ég hef sett þá í gegnum undanfarið".

Kl:19:40 Feyenoord hefur boðið 1,5 milljónir punda í hollenska markmanninn Tim Krul hjá Newcastle.

Kl:19:30 Joey Barton gæti verið á förum frá Newcastle. Aston Villa og Portsmouth eru sögð vilja fá þennan vandræðagemling til sín.

Kl.12:55 Everton vill fá Michael Owen til sín og ætla að bjóða 6 milljónir punda í hann.

Kl:12:30 Ignacio Gonzalez er kominn til Newcastle á láni frá Valencia. "Nacho" eins og hann er kallaður verður í láni út þetta tímabil. Nacho er 26 ára og leikur á miðjunni. STAÐFEST

Kl:08:40 Alan Smith er sagður vera á leið til Everton fyrir 3 milljónir punda.

Kl:08:37 Newcastle hefur einnig boðið í Oliver Kapo leikmann Wigan en hann kom til þeirra í júli frá Birmingham.

Kl:08:35 Newcastle hefur boðið 8 milljónir í  Florent Malouda kantmann Chelsea.

Kl:08:30 Emile Heskey er sagður vera á leið til Newcastle, en það fer eftir því hvort Wigan nær að landa Mido frá Middlesbrough.

Kl:08:25 Xisco 22 ára sóknarmaður Deportivo La Coruna er sagður vera á leið til Newcastle fyrir 5,7 milljónir punda.  Francisco Jiménez Tejada eins og hann heitir fullu nafni hefur verið orðaður við Aston Villa en Newcastle virðist ætla hafa betur í baráttunni um hann. Xisco hefur gert 12 mörk í 44 leikjum með Deportivo. Hann á 4 leiki með U21 landsliði Spánverja og hefur skorað eitt mark.

(FB)