Stjórnar og aðalfundargerðir

í Newcastle klúbbnum á Íslandi frá upphafi

Fundargerð

 

 

Fundur haldinn í Golfskálanum Leiru 10. sept 2007 kl. 20.00.

 

Mættir eru Guðmundur R.Lúðvíks formaður, Hafsteinn gjaldkeri, Már ritari, Guðni Guðnason og einnig Jóhann B.Elíasson varformaður sem og okkar ágæti vefstjóri, Friðrik Bergmanns.

 

Formaður setti fundinn og byrjaði á því að þakka varamönnum fyrir góð störf í þágu félagsins um leið og hann opnaði fyrir almennar umræður.

                                               

Umræður voru líflegar á fundinum og staða liðsins í deildinni sem og framtíðarsýn í ljósi mannabreytinga, bæði í liði Newcastle og í brúnni, talsvert rædd og þá á léttu nótunum.

 

 

  1. Heimasíða – Töluðu menn um að lagfæra lítillega aðgang að heimasíðunni þar sem hægt væri að loka á ákveðna þætti sem eru eingöngu fyrir meðlimi klúbbsins og ættu lítið erindi til almennings, og þá aðallega sem öryggisþátt, eins og t.d. að “blokkera”  á e-mail félagsmanna sem gætu verið misnotuð. Rætt var einnig um kostnað við úthald síðunnar og lén, og ákveðið að halda öllu óbreyttu um sinn.

 

  1. Vefstjórn – Hugmynd kom fram um að greiða vefstjóra í formi umbunar fyrir óeigingjörn störf, fría ferð á einn heimaleik Newcastle, flug og miða á leik.      Var það einróma samþykkt.

 

  1. Innheimtumál – Hafsteinn gjaldkeri lagði fram greinagerð um fjármál félagsins sem eru góð. Rætt var um gjöld og félagaskrá og einnig kom Guðmundur formaður með sýnishorn af nýja félagaskírteininu sem fundarmenn samþykktu með lítilli breytingu og var þá aðallega um útfærsluatriði að ræða.                             Til að auka skil félagsgjalda var ákveðið að senda út greiðsluseðla sem birtast í heimabanka félagsmeðlima og ætti það að vera frekari hvatning til skila. Útsending greiðsluseðla var ákveðin að yrði fyrir 1.otkóber 2007.

 

  1. Ferð á leik –  Friðrik vefstjóra var falið að velja líklegan leik til handa félagsmönnum og birta á vefsíðunni til að vekja áhuga félagsmanna með þeim hætti á að fara á heimaleiki NUFC, og kom það fram hjá Hafsteini gjaldkera, að við höfum mögulega til umráða 15 miða á heimaleiki Newcastle, hvort sem er að hausti eða vori.

 

Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 21.40.

 

                                                                                    10.september 2007

                                                                                    - - - - - - - - - - - - - - -

Már Elíson ritari

                                                                                    Newcastle klúbbsins á Íslandi

 

 

 

 

Newcastle klúbburinn

Fundargerð   stjórnarfundar  16.april 2007

 

Fundarstaður Players Kópavogi

Mættir:  Guðmundur Rúnar Lúðvíksson,  Hafsteinn Þórðarson og Mikael Thorarensen.

Fundur settur kl.19.00

  1. Rætt var m.a um næsta aðalfund. Ákveðið að hann skuli fara fram við síðasta leik Newcastle á leiktíðinni á Players Kópavogi.
  2. Borðfánar. Formður kynnti hugmynd að gerð borðfána fyrir klúbbinn. Áætlaður kostnaður p.r fána er ca. 500-600.-kr. Samþ. að láta gera fána og kanna hvort fyrir næstu leiktíð verði félögum sendur fáni þegar félagsgjöld hafa verið greidd.
  3. Fréttabréf. Formaður lagði til að sent yrði út fréttabréf til félagha fyrir aðalfund og hvatti stjórn til að skrifa stuttar greinar í það. Greinar skulu berast formanni fyrir næstu helgi. Samþykkt.
  4. Rætt um stjórnarkjör. Ljóst er að kjósa á um nokkrar srjórnarsetur samkv. lögum félagsins þar sem sumir eru kosnir til tveggja ára í senn.
  5. Ýmis mál. Rætt var m.a um heimasíðuna, spjallið og fleyra sem viðkemur rekstri klúbbsins. Staða fjármála er þokkanleg en ljóst er að kostnaður við útsendingu fréttabréfs er um 12.000.- - rekstur heimasíðu er nokkur ( isnic 9000.- á ári, lén. 5000.- á ári og vodafone um 3000.- á mánuði ), heildarkostnaður um ca; 50.000.- Einnig var rætt um síðustu hópferð á leik á St. James Park.
  6. Fundi slitið kl. 20.30 - Veitingar voru í boði Players til stjórnarmanna.

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Sent út vegna netfundar:

Heilir og sælir kæru stjórnarmenn.

            Það gengur brösulega að koma saman stjórnarfundum vegna ýmissa ástæðna. Hvað um það !

Mig langar að reyfa nokkur mál við ykkur. Það fyrsta er hvernig ykkur líst á að koma á fót fundum í gegnum netið annan hvern mánuð og við mundum hittast svo hinn mánuðinn á móti. Þetta gæti farið þannig fram að ég mundi setja upp dagskrá fundar og menn mundu síðan senda, til allra, skriflega það sem hver og einn vill leggja til málsins ?Hvernig líst ukkur á það ??

            Þann 18.febúar 2007 verður klúbburinn 4 ára. Ég legg til að við hittumst á Players kl.20.00  laugardaginn 17. feb svona til að halda upp á þennan dag.Það væri einnig gott að fá hugmyndir frá ykkur hvort við eigum að gera eitthvað annað þarna um kvöldið !

            Fréttabréf;

Nú þegar seinnihlutinn er að detta á leiktíðina og félagsgjöld eiga að hafa verið greidd er rétt að við tökum til í félagaskránni. Það eru mjög margir skráðir félagar sem sumir hafa aldrey greitt eða hafa ekki greitt eitt til tvö ár. Ég legg til að við tökum alla sem ekki hafa greitt tvö eða fleyri ár út af félaga listanum. EN áður en við gerum það væri gott að geta sent öllum fréttabréf þar sem leitað væri eftir því við alla sem skráð hafa sig hvort þeir vilji vera áfram skráðir og hvort þeir muni greiða félagsgjaldið ? 

            Hvað segið þið um þetta kæru stjórnarmenn ?

            Miðar á leiki; Ég og Hafsteinn áttum príðis fund úti í Newcastle með konunni sem sér um miðasölu hjá Newcastle UTD. Þar kom fram m.a að klúbburinn úti væri algjörlega hættur að þjónusta klúbba og aðra aðila varðandi miða. Þetta er vegna svartamarkaðs brasks margra á miðum. Það jákvæða er að hún “lofaði” okkur því að útvega 15 miða á tvo heimaleiki Newcastle, annan fyrir áramót og hinn eftir áramót – ár hvert. Þetta er gert í algjöru trausti þess að við / klúbburinn selji miðana til félaga á því verði sem okkur eru seldir á.

            Við eigum að fá 15 miða nú á leik Newcastle gegn Arsenal um páskana. Þá miða seljum við eingöngu til félagsmanna sem greitt hafa félagsgjöld. Eru menn ekki sammála því ?

            Að lokum. Stjórnarmenn mættu vera duglegri að skrifa smá pistla sem hægt væri að birta á netinu !! Endilega sendið okkur sem sjáum um heimasíðuna einhverjar greinar, hvatningar eða skammir !!  newcastle@newcastle.is  eða  rikki@hn.is

Með bestu kveðju,

Guðmundur R Lúðvíksson, formaður

Newcastle á Íslandi

----------------------------------------------------------------------------------------

12.02. 2007

Svar frá Mikka;

Sælir, ég var í vinnuferð í Danmörku sorry. Ég er til í að hittast ef það er svona

Um 4 því ég era ð fara að blóta helvítis þorranum. HEY til hamingju með sigurinn

Allveg frábært að geta loks hringt í púllara og gortað J

Kv. Mikki

---------------------------------------------------

12.02.2007

Svar frá Jóhanni

Sæll formaður list vel á stroka þá út sem ekki hafa borgað og að aðeins þeir sem eru fullgildir meðlimir geti notfært sér þjónustu klúbbsins,  það er miða og heimasíðu . Varðandi sunnudagskvöldið hef ekki spáð neitt en skal gera það asap
og vera svo í bandi við þig . Kveðja Jóhann Björn
 
----------------------------------------------------
16.02. 2007
 
Svar frá Hafsteini
 
Blessaður Guðmundur.
Hef verið á haus frá því ég kom heim !!!
 
svör við vangaveltum / spurningum.
Mér líst vel á að menn skili áliti og hafi samskipti á netinu frekar en að halda ekki fundi, en tel að persónuleg samskipti séu ávalt betri kostur.
Mun að sjálfsögðu mæta til samfagnaðar á Players á laugadaginn komi ekkert annað uppá.   Það má hins vegar alltaf velta upp hugmynd um hvað á svona afmælishátíð að skila klúbbnum.
Vona að sem flestir sjái sér fært að koma þó að um laugadagskvöld sé að ræða.
Mér líst vel á útgáfu fréttabréfs, því þar má ná til félagsmanna sem ekki eru á netinu alla daga.
Félagsgjöld skila sér hægt. Rétt finnst mér að láta bankann senda út eina aðvörun / ítrekun og gefa því síðan örfára vikur og fara í framhaldinu í útstrikanir.  þ.e. stefna á að félagafaltið verði rétt í upphafi næsta tímabils.s
Ég vara við sölu og of mikillar bjartsýni á leikinn gegn Arsenal. !!!
Hef ekki enn fengið staðfestingu frá þeim úti varðandi miðana.
Ef þeir koma mun ég sjálfur væntanlega taka 3-6 miða fyrir mig og "familíjan"
Annað.
Þakka tækifærið og hvattninguna að fara í útsendingu á Skjá sport, var sérlega gaman af því að leikurinn vannst. þar sem ég var eini aðilinn í öllu húsinu sem hélt með Newcastle.
kv.
Hafsteinn
 

 

Newcastle klúbburinn

Fundargerð   stjórnarfundar  23.nóv. 2006 

 

 

 

 

Fundarstaður  //   Fjóluhvammur 13,  220  Hafnarfjörður

Mættir  //   Guðmundur Rúnar Lúðvíksson,  Hafsteinn Þórðarson og Mikael Thorarensen.

 

 

1.        Fundur settur

Guðmundur Rúnar setti fund kl. 18,20 og bað Hafstein um að rita fundargerð þar sem Már hefði boðað forföll og einnig kom fram að ekki hafði náðs í Jóhann.

 

2.        Nokkur orð frá Formanni.

Guðmundur Rúnar   Gat þess mikið hefði verið að gera hjá sér í haust og því hefði hann ekki haft þann tíma sem hann hefði vilja í starf fyrir kúbbinn.   Hann hefði þó um daginn sent út félagsskírteini til þeirra sem þá þegar höfðu greitt félagsgjöld.   Einnig hefði hann sett inn á heimasíðuna fréttir þ.e. raunverulegar fréttir en ekki slúðurfréttir  Hann gat þess að mikil vinna væri við síðuna og nú væri kominn nýr fréttamaður sem ætlaði að fylgjast með og setja inn fréttapirsla.

 

 

3.        Gjalkeri hefur orðið.

Hafsteinn dreifði skýrslu sem innihélt tölur um fjármagnshreyfingar hjá klúbbnum frá aðalfundi og félagatalog greiðslustöðu félaga við klúbbinn.  

Hann sagði frá  ferð sinni til Newcastle á leik gegn Charlton en hann hefði send inná heimasíðuna grein um þá ferð sem reyndar var ferð á 3 leiki.

 

 

4.        Aðrir stjórnamenn hafa orðiið

Mikael sagði frá áhuga sínum á að koma inná netið Frétum / slúðurfréttum sem hann læsi daglega á fréttavef félagsins og hjá fréttastöðvum á Bretlandi.

Ákveðiið var að Guðmundur og Mikael færu betur inná leiðir til að aðgang fyrir hann inná heimasíðu klúbbsins.

 

 

5.        Félagsgjöld og félagatal.

Umræður fóru fram undi lið gjaldkera en ákveðið var að taka til í félagatalinu eftir áramót lþégar ljóst verðu hvaða greiðslur skila sér frá félagsmönnum fyrir janúgarlok.

 

6.        Spjallið og heimasíðan.

Guðmundur sagði frá upphringingum sem hann hefði fegið varðandi kvartanir og spurningar um hver bæri ábyrð á skrifum sem færu fram á spjallsíðu sem tengdist heimsíðu klúbbsins.

Hann dreifi til fundarmanna hverjir væru að nota spallið og skrifa þar inn og reyndist í öllum tilfellum vera að ræða um dulnefni greinarhöfunda.  Hann las upp nokkuð af því sem þar var skrifað og óskaði eftir áliti stjórnarmanna.   Stjórnarmenn harma þau skrif, þar sem ráðist er á einstaka persónur  og með þvi farið langt út fyrir þau siðamörk sem teljast geta verið skrifuð í nafni Klúbbsins og eða í tengingu við hann.

Guðmundur sagðist hafa hringt í Pálma Ívar sem er annar umsjónarmanna nú rétt fyrir fundinn og rætt við hann um stöðuna.

Ákveðið var að fela Guðmundi að ræða við umsjónaraðila aftur og fara fram á þeir reyni að stemma stigu við óæskilegum skrifum að öðrum kosti verði að losa klúbbinn undan þeirri ábyrgð að utanaðkomandi aðilar tengi þessi skrif og ábyrgð þeirra við stjórn klúbbsins,  sér í lagi þar sem eins og fyrr segir að öll skrif fara fram undir dulnöfnum.

 

Guðmundur ítrekaði síðan kynnigu á nýjum fréttamanni síðunnar og að hann og aðrir stjórnarmenn þurfi að síðan að finna sér tíma til að læra að setja inn fréttir og tengt efni.

 

7.        Hópferð á leik

Umræður urðu um hugsanlega leiki en ákveðið að formaðurinn fari út á leik þann 30.jan og í tenglum við þann leik reynt að ná fundi með stjórnaraðilum úti varðandi samskiptamál .

Rétt er að bjóða félögum að nýta þennann leik til að fara með til Newcastle.    Þessi leikur er á miðvikudagskvöldi og möguleikar að ná 2 leikjum í sömu ferð þar sem Newcastle spilar síðan á laugadeginum við Fulham í London.

 

8.        Önnur mál.+

Næsti fundur ákveðinn 15.jan. 2007

Ekki komu fram önnur mál og fóru Guðmudnur og Hafsteiinn að fundi loknum á Payers til að fylgjast með seinni hálfelik okkar manna í evrópuleik.

 

9.        Fundarslit 

Guðmundur sleit fundi  kl. 20.35

 

 

 

Fundargerð

 

 

Fundur haldinn á Players 14. ágúst 2006 kl. 20.00. 

 

 

 

 

Geta tveir karlmenn viðhaldið mannkyninu eða geta tvæt konur gert það ?

Getur verið að þessi spurning sé í raun grundvallar spurningin um “rétt” samkynhneigðra einstaklinga “gegn”  gagnkynhneigðum einstaklingum eða öfugt ? Ég segi já.

Þetta er spurningin sem við þurfum að klást við og svar með einfölu jái eða neii – og komast þá að niðurstöðu ?

Þetta er í raun grundvallar spurningin um sjálft mannkynið, réttindi mannsins, og í raun allt mannlegt samskiptaferli sem viðvíkur þjóðfélagið, fjölskyldur og skyldum manna til hvers annars.

Þetta er ekki spurningin um að vera með eða á móti, heldur hvað erum við og afhverju erum við svona eins og við erum.

                Það er afar einfalt og jafnvel einfaldningslegt  fyrir samkynhneigða að benda á þá sem gagnrýna hið neikvæða við samkynhneigð að það sé sprottið af því að einhver sé á móti viðkomandi einststaklingi, eða að samkynhneigðir eigi sama “rétt” og gagnkynhneigðir.

Því einfaldlega er það þannig að gagnkynhneigðir hafa skapa það þjóðfélag, það munstur og þau fjölskyldutengsl sem verða að vera til ef manneskjan á að vera til.

Það að berjast eða að vera á móti ákveðnum kröfum samkynhneigðara þýðir ekki að einhver sé á móti einstaklingnum sem þar býr að baki.

Einföldun: Ef þér fynnst blár litur fallegri en rauður er ekki þar með sagt að þú sérst á móti öllum þeim sem fynnst rauður fallegri, eða er það svo ?

Því miður hefur baráttufólki samkynhneigðra tekist að setja málið þannig upp. Fyrir vikið hefur fjöldi fólks sem málið varðar ekki kært sig um að taka þátt í umræðunni. Það kýs einfaldlega að taka þátt í að búa til sín börn, ala þau upp og mæta í gay göngu af því að sumarið er svo stutt á Íslandi og það er svo gaman að sjá hverjir eru þar á ferð. Það felst í sjálfu sér engin stuðningur á bak við það að fólk fylkist í bæinn á viðburðarsnauðum sumarnóttum á Íslandi.

Ekki frekar en þegar Bónus auglýsir ódýra mjólk einn dag á ári. Það er engin stuðningsyfirlýsing við Jóhannes í Bónus þótt fólk mæti einmitt þá hvað flest í Bónus á Íslandi.

                Æði oft gleimist það þegar samkynhneigðir halda á börnum sínum frá fyrri tilhneigingu / hjónabandi, að segja frá því að þar er líka annað foreldri sem hefur ekki sama möguleika á að tjá tilfynningar sínar. Jafnvel biturð, hatur eða ást sem aldrei fær að komast til skila. Aldrei spyrja menn hvað ef allir væru samkynhneigðir, hvar er þá hið mannlega samfélag, hvar er velferðin, hvar er þá kirkjan eða þá hvenær verða endalokin ? Hverjir skapa velferðina ?  Eru það einmitt ekki börnin sem fæðast og koma út í samfélagið á hverjum tíma ? Hvað ef amma þín og afi hefðu verið samkynhneigð – þau hefðu verið hommi og lespía – hvar værir þú þá. Getur það verið að gagnkynhneigðir skapi það samfélag, þá velferð, það skólakerfi, það umhverfi eða bara allt mannlegt sem aðrir gera tilkall til, og fynnst sjálfsagt að eiga hlutdeild í ?

                Af hverju tölum við ekki hreint út – segjum hlutina eins og þeir eru ?

Afhverju segja samkynhneigðir ekki börnum sínum frá fyrri sambúð, að börnin þeirra eigi ekki möguleika á að eignast systir eða bróður ? Afhverju þurfa hinir að segja þeim það ?

Afhverju segja samkynhneigðir ekki  frá því að ef  við hættum að geta einstaklinga sem halda samfélaginu gangandi að þá deyji við út  án “réttinda” ?

                Með öðrum orðum sagt; tölum saman á því tungumáli sem báðir skilja. Spyrjum einfaldra spurninga og svörum á eifaldan mannlegan hátt.

                Hvað er samkynhneigð og hvað þýðir hún fyrir mannkynið, hvað er gagnkynhneigð og hvað þýðir hún fyrir mannkynið?

 

Eðlilega, vegna fámennis, voru umræður um málefni félagsin á óformlegum nótum, en málefni klúbbsins reifuð eftir bestu getu sem og framtíðarsýn.

 

  1. Heimasíða – Töluðu menn um að fá aðgang að heimasíðunni þar sem hægt væri að létta formanni störf og setja sjálfir inn greinarstúfa eða fréttir undir nafni. Eins fannst Má, að létta mætti yfirbragð síðunnar lítilsháttar til að auðvelda læsi hennar og aðgang að innihaldi. Fréttir ætti að uppfæra oftar og seilast innar í málefni félagsins (fyrstir með fréttirnar) af málefnum “stóra félagsins” - NUFC.

 

  1. Fréttabréf – Hugmynd kom fram um að senda öðru hvoru heftaðan einblöðung með pósti auk þess sem að ítreka notkun á heimasíðunni og tilgang hennar.

 

  1. Innheimtumál – Hafsteinn gjaldkeri lagði fram stöðu mála , greidd gjöld sem og yfirlit og félagaskrá.- Finna leiðir og hvatningu til að auka skil félagsgjalda og gera greiðsluna áhugaverða og fljótvirkari. Rifjuð upp hugmyndin með bréfsefnið frá NUFC, límmiða o.fl.

 

  1. Ferð á haustleik – T.d. London 18. nóv – ARS-NEWCASTLE á nýja velli Arsenal. Már ætlar að tala við formann Arsenal klúbbsins um að fá miða og auka slíka samvinnu við klúbbana almennt.

 

  1. Áhorf á leiki – Reifuð hugmynd um að vera á PLAYERS – Nokkrir vinklar á því máli komu fram og þarf það aukaumræðu með tillliti til hversu mikla áherslu viðkomandi staðir (Ölver / Players) vilja leggja á sig til að þjónusta okkur.

 

  1. Tippari klúbbsins – Rætt um að taka aftur upp á þessari leiktíð þáttinn um tippara klúbbsins eins og við höfðum haft áður.

 

  1. Skjár 1 Sport – Hafa samband við Skjá 1 vegna komandi leiktíðar og taka upp sama samband við þá sem áður, - sbr. bókin um Enska boltann o.fl.

 

Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 22.30.

 

                                                                                   

Már Elíson ritari

                                                                                    Newcastle klúbbsins á Íslandi

 

 

Stjórnarfundur
13. mars 2005

Viðstaddir: Guðmundur, Daníel, Hafsteinn, Svavar, Pálmi.
Ritari: Pálmi.

Formaður setur fund kl:15:00

Formaður lagði fram markmið stjórnar fyrir 2005-2006.

Stjórnarmenn lesa upp embættisbref frá formanni og eru þau lítilega rædd í kjölfarið og svo samþykkt af öllum stjórnarmönnum.

Rætt var um að fyrirspurnir sem kæmu til vefstjóra www.newcastle.is, sem tengdust klúbbstarfi, ættu að áframsendast til stjórnarmanna svo allir vissu hvað væri í gangi hverju sinni. Einnig að ef stjórnarmenn eru að sinna einhverjum störfum í þágu klúbbsinns að allir fréttu af því, þá með tölvupósti helst.

Næst fór fram umræða um næstu hópferðir klúbbsinns til Newcastle. Reynt verður að fara tvær ferðir á ári, ein að hausti og önnur að vori, og reyna að fá um 20 manns í hverja ferð.
Viljum við að ferðirnar verði betur skipulagðar framvegis og jafnvel að einn stjórnarmaður fái styrk fyrir að fara í svona ferð, og mundi þá vera eins konar fararstjóri.

Rætt var um breytingar á heimasíðu okkar, þá helst að gera klúbbþáttinn sýnilegri og var því seinn komið til skila til vefstjóra.

Talað var um að reyna að setja sig í samband við klúbbmeðlimi sem ekki hafa greitt félagsgjöld og komast að því hvers vegna ekki var greitt og hvað betur mætti fara.

Svavar sagði okkur frá manni frá Newcastle sem hann hitti hérlendis. Virtist hann hafa góð tengsl við Newcastle United og vildi sem mest gera fyrir okkar klúbb. Viljum við að sjálfsögðu virkja tengsl okkar við hann í framtíðinni.

------------------------------------------------------------------------------------------.

Aðalfundur Newcastle klúbbsins á Íslandi
Ölveri, föstudaginn 18. febrúar 2005 kl 20:00

Formaður setti fund.
Ritari: Pálmi Ívar Jóngeirsson
1. Formaður flutti skýrslu stjórnar.
2. Gjaldkeri lagði fram endurskoðaða reikninga en vildi taka fram að
ógreitt og óskuldfært er kostaður vegna vistunar heimasíðu því
reikningar bárust ekki til gjaldkera. Reikningar voru annars samþykktir
samhljóða.
3. Umræða hófst um skýrslu stjórnar og ársreikninga. Talað var um hvað
hægt væri að gera fyrir félaga á næstu misserum, en engar stórar
áhvarðanir voru teknar þar.
Klúbbskírteinum var komið til félaga sem mættir voru á fundinn og var
skoðað með hvaða hætti væri hægt að koma skírteinum til hinna
félagsmannana. Verða þau afhent þeim meðlimum sem mæta á leiki á Ölver, á
staðnum, en restin verður send í pósti.
Stjórnin vildi koma sérstökum þökkum á framfæri til Glerborgar fyrir veittan stuðning.
Ákveðið var að aðalfund yrði framvegis haldinn á þessum degi, 18 febrúar.
Einnig var samþykkt að næsti stjórnarfundur yrði um miðjan mars n.k..
4. Næst hófst kosning formanns til tveggja ára. Daníel K. Ármannsson
bauð sig fram á móti Guðmundi R. Lúðvíkssyni, héldu báðir aðilar stutta
framboðsræðu og svöruðu nokkrum spurningum. Svo tók kosningin við og
taldi Ölversmaðurinn Steini Spurs atkvæðin. Kosningin fór 4-4 og hélt
formaðurinn, Guðmundur R. Lúðvíksson, sæti sínu á jöfnu.
5. Kosið var um stöðu tveggja stjórnarmanna (til tveggja ára) og
tveggja skoðunarmanna (til eins árs) og varð engin breyting þar.
6. Ákveðið var að halda félagsgjaldi óbreyttu.
7. Gjaldkeri lagði fram fjárhagsáætlun fyrir 2005. Umræður fóru fram og
lýsti fundurinn ánægju með störf og framsetningu gjaldkera á reikningum
og fjárhagsáætlun hans.

------------------------------------------------------------------------

Sunnudagur 22. janúar 2005, Ölver

Mættir: Guðmundur, Daníel, Hafsteinn, Pálmi, Jón Ármann, Júlíus.

18:00 Fundur settur

1.Vistun heimasíðu: Fyrir lá tilboð OgVodafone til vistunar www.newcastle.is. Tilboðið var samþykkt.
Verður þá heimasvæðið stækkað úr 20MB í 50MB og er klúbburinn skráður fyrir síðunni en ekki formaðurinn eins og áður var. Með þessum samningi lækkar vistunarkostnaður heimasíðunnar til muna.

2. Aðalfundur, afmæli og árshátíð: Ákveðið var að halda afmælið með aðalfundi föstudaginn 18. febrúar. Þetta verður tilkynnt nánar á heimasíðu klúbbsins þegar nær dregur.
Árshátíðin verður haldin laugardaginn 2. apríl, sama dag og leikur Newcastle og Aston Villa fer fram.

3. Fjármál klúbbsins: Mjög lauslega var farið í það vegna skorts á gögnum frá gjaldkera og var því ákveðið að skoða þau vel á aðalfundi. Þó kom fram að um 90 meðlimir hafa greitt félagsgjöld.

4. Félagsskírteini: Ekki hefur enn verið sent út skírteini fyrir tímabilið 2004-2005. Var ákveðið að láta útbúa þau í snatri. Skírteini verða afhent skilvísum félagsmönnum á aðalfundi 18. febrúar en þeir sem ekki sjá sér fært að mæta fá þau send í pósti í kjölfar aðalfundarins.
Maggi í Ölveri kom við á fundinum en Ölver mun styrkja gerð skírteinanna með 25.000 kr framlagi. Glerborg styrkir klúbbinn með sama hætti.
Rætt var um að rukka félagsgjöld fyrir næsta tímabil í sumar, og skal stefnt að því að hafa félagsskírteini næsta tímabils tilbúin í september eða október. Þá yrðu þau afhent skilvísum klúbbmeðlimum.

5. Viðurkenningar: Spurt var hvort einhver ætti að fá viðurkenningar frá klúbbnum þetta árið en engar tilnefningar bárust. Ef menn telja að einhver klúbbmeðlimur eigi skilið að fá viðurkenningu fyrir vel unnin störf er þeim bent á að hafa samband við formann klúbbsins.

6. Viðurkenningar leikmanna: Ákveðið var að veita 3 leikmönnum Newcastle United viðurkenningar frá klúbbnum. Verða þær veittar fyrir leik Newcastle og Liverpool þann 5. mars en 20 manna hópur verður þá á vegum klúbbsins á SJP.
Viðurkenningar eru veittar eftirtöldum:
Alan Shearer var valinn leikmaður ársins 2004 en hann var einnig valinn leikmaður ársins 2003.
Darren Ambrose fær viðurkenningu fyrir mark ársins en það skoraði hann í 1-2 tapleik gegn Bolton á Reebok 31. október. Laurent Robert fékk þessa viðurkenningu árið 2003.
Kosið var um þessar viðurkenningar á netinu og á leikjum í Ölveri. Nánar verður greint frá úrslitunum á newcastle.is.

Að auki ákvað stjórnin að veita Steven Taylor viðurkenningu sem besta ungliða ársins. Stjórnarmeðlimir voru sammála um að hann ætti þetta skilið fyrir að vera skært ljós á frekar myrku ári.

7. Stjórnarseta: Á aðalfundi klúbbsins, þann 18. febrúar verður kosið í stöðu formanns, varaformanns og gjaldkera. Meðlimir klúbbsins eru hvattir til að bjóða sig fram.

8. Samþykkt var að næsti fundur sem er jafnframt aðalfundur verði haldinn þann 18. febrúar nk..

Pálmi Ívar Jóngeirsson ritari

-------------------------------------------------------------------------------------------------------

Stjórnarfundur sunnudagur 3 október 2004, Ölver kl:18.30

Mættir: Guðmundur formaður, Daníel varaformaður, Hafsteinn gjaldkeri, Svavar almannatengslafulltrúi, Pálmi Ívar ritari, vefstjóri og Jón Ármann skoðunarmaður.

Formaður setti fund.
Gjaldkeri leggur fram erindin sem afgreiða skal á fundinum.

Frá aðalfundi 6. mars hafa aðeins 35 greitt félagsgjald. Ástæðan fyrir þessu var sú að meðlimum var boðið að greiða félagsgjöld á internetinu en engir greiðsluseðlar voru sendir út. Samþykkt var að senda greiðsluseðlana á þá sem enn eru skráðir í klúbbinn en hafa ekki borgað.

Ákveðið var að færa hýsingu á www.newcastle.is frá OgVodafone yfir á Vefsýn. Vefsýn virðist geta hýst síðuna fyrir helmingi lægri upphæð á ári. Einnig var ákveðið að færa reikninginn fyrir þessa þjónustu af nafni formanns, heldur setja það á Klúbbinn.

Rætt var um hvernig hægt væri að bæta samskiptin við klúbbinn í Newcastle og lofuðu Formaðurinn og Gjaldkerinn að reyna að ná tali við rétta menn úti er þeir fara út á leik Newcastle United gegn Manchester United, sem er þann 14. nóvember.

Næst var ákveðið að skipuleggja hópferð á leik Newcastle og Liverpool sem spilaður verður 5. mars að öllu óbreittu. Pálmi Ívar tekur að sér að reyna að fá 20-30 miða á þennan leik, var svo samþykkt að þeir stjórnarmenn sem ætla sér á leikinn munu skipa vinnuhóp sem mun sjá um skipulagningu á ferðinni.

Því næst tók við sjóðheit umræða um númer stofnmeðlima og hvort bjóða skuli laus númer til aðra félagsmanna. Samþykkt var að láta númerin standa óbreytt því þá yrði enginn skaði skeður. Sjónarmið formanns er skýrt: Númer stofnfélaga eru heilög og þeim má ekki breyta.

Að lokum var ákveðið að halda annan stjórnarfund fljótlega.

Pálmi Ívar Jóngeirsson, ritari.

---------------------------------------------------------------------------------------------

Aðalfundur Newcastle klúbbsins á íslandi.
Haldinn í Ölver 6. mars 2004 kl. 20.00.


Formaður setti fund og bauð félaga velkomna.
Fundarstjóri var samhljóða kosinn Magnús Lárusson.
1. Formaður flutti skýrslu stjórnar og fór þar yfir helsta starf stjórnar sem var að koma starfsemi klúbbsins á rek.
2. Gjaldkeri klúbbsins lagði fram endurskoðaða reikninga og voru þeir samþykktir samhljóða.
3. Umræður fóru fram um reikninga og þó aðallega um innheimtu á félagsgjöldum. Fram kom að rekstur klúbbsins var öfugu megin við núllið og munaði þar mestu um gerð félagsskírteina til félaga sem skráð höfðu sig í klúbbinn en ekki greitt félagsgjöld.
4. Fundarstjóri las upp tillögu stjórnar að lagabreytingum og voru þær allar samþykktar samhljóða. Nokkur umræða fór þó fram um 16. grein er ný grein.
5. Því næst fór fram kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára og gáfu kost á sér Svavar Hávarðarson sem var endurkjörinn og Pálmi Jóngeirsson sem er nýr stjórnarmaður.
6. Kosning tveggja skoðunarmanna. Eiður K Magnússon hlaut samhljóða endurkosningu og Jón Ármann Jónsson sem kemur inn sem nýr skoðunarmaður skv. nýsamþ. lagabreytingu.
7. Gjaldkeri klúbbsins lagði fram tillögu að félagsgjöld fyrir næsta ár yrðu kr. 2.500.- og var það samþykkt samhljóða.
8. Gjaldkeri lagði fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Umræður fóru fram og lýsti fundurinn ánægju með störf og framsetningu gjaldkera á reikningum og fjárhagsáætlun hanns.
9. Önnur mál. Formaður tók til máls og afhenti fyrir hönd stjórnar þremur einstaklingum heiðursfélaga viðurkenningu. Viðurkenningin er sandblásið gler í ramma sem Glerborg gerði og gjaldkeri sá um.
Þeir sem hana hlutu og eru fyrstu heiðursfélagar Newcastle klúbbsins á Íslandi, eru: Gunnar Helgason (félagi númer 3), Knútur Hallsson Jónasson (félagi númer 4) og Júlíus Heimir Ólafsson (félagi númer 46). Þá voru einnig kynntar viðurkenningar klúbbsins til leikmanna Newcastle United FC. Alan Shearer fær viðurkenningu sem leikmaður ársins en Laurent Robert fyrir fallegasta markið. Verða viðurkenningar þessar afhentar í páskaferð klúbbsins á St James' Park. Sir Bobby Robson fær einnig sérstaka heiðursviðurkenningu klúbbsins.

Gunnar Helgason tók til máls og þakkaði fyrir hönd síns og Knúts. Rakti hann í stuttu máli ástæðu þess að þeir félagar hefðu orðið aðdáendur Newcastle. Bað hann um kveðju frá Ellerti Schram til klúbbsins.

Næstur tók til máls Júlíus Heimir Ólafsson og þakkaði fyrir sig. Jafnframt rakti hann sögu sína og hvernig það kom til að hann varð Newcastle aðdáandi.

Hafsteinn Þórðarson kvaddi sér hljóðs og afhenti formanni klúbbsins viðurkenningu fyrir hönd klubbsins fyrir frumkvæði að stofnun klúbbsins.

Formaður þakkaði fyrir sig.

Næstur kvaddi sér hljóðs Svavar Hávarðarson og rakti hann í skemmtulegu máli upplifun sína tengda því að vera stuðningsmaður Newcastle. Hvatti hann menn til þess að standa vörð um klúbbinn og að heimsækja St. James’ Park ef þess væri nokkur kostur. Það væri upplifun sem engin myndi gleyma.

Þar með var eiginlegum aðalfundi slitið en árshátíð tók við. Bornar voru fram veitingar og menn spjölluðu um starfsemina.

Því næst fór fram spurningakeppni sem Júlíus Heimir stóð að. Lágu frammi krossaspurningar sem félagar tóku þátt í að svara. Svavar Hávarðarson og Jón Ármann Jónsson kepptu síðan sín á milli þar sem þeir gátu svarað flestum spurningum rétt.
Í þeirri viðureign sigraði Svavar og telst hann því „Fróðasti Newcastle félaginn 2004“.
Hlaut hann í verðlaun smá glaðning frá félaginu.

Heimir Karlsson heiðraði fundinn og árshátíð klúbbsins með nærveru sinni og lögðu félagar fram margar spurningar til hanns. Heimir var gagnorður og var almenn ánægja með innlegg hans.

Fundurinn og hátíðin fóru vel fram og það eina sem skyggði á gleðina var hversu slök mætingin var.

Ritun,
Guðmundur R Lúðvíksson, formaður.

---------------------------------------------------------------------------------------------------

Stjórnarfundur í Newcastle klúbbnum fimmtudaginn 4.3.2004 haldinn í Ölveri Reykjavík kl. 20:00.

Mættir: Formaður, varaformaður og gjaldkeri.
Forföll boðuðu Júlíus og Svavar.
Varaformaður tók að sér fundarritun.

Formaður setti fund.
Gjaldkeri lagði fram endurskoðaða reikninga ásamt blaði þar sem stjórnarmenn skrifuðu upp á reikninga. Fram kom að endar ná ekki alveg saman og munar þar m.a um að nokkur fjöldi hefur ekki greitt félagsgjöldin. Einnig það að klúbburinn lét gera félagsskírteini fyrir alla skráða félagsmenn og liggur nú með ógreidd skírteini.
Gjaldkeri lagði einnig fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár þar sem gert er ráð fyrir rekstrarafkomu.
Samþykkt var að leggja til á aðalfundi að félagsgjald fyrir næsta ár yrði kr. 2.500.-
Jafnframt fóru fram umræður um nokkrar breytingar á lögum félagsins. Samþykkt að leggja þær fram á aðalfundi þann 6.mars næstkomandi.

Klúbburinn hefur látið gera sérstaka sandblásna viðurkenningarplatta samkv. tillögu formanns til handa Boby Robson, Shearer og Robert sem félagar munu taka með sér út til Newcastle og afhenda í fyrirhugaðri ferð á leik Arsenal og Newcastle.
Gjaldkeri hefur alfarið séð um verkið og Glerborg gefið félaginu allan kostnaðinn varðandi gerð þeirra.

Nokkur umræða fór fram um kosningar til stjórnar á næsta aðalfundi.

Umræður fóru fram um skipulag og framkvæmd aðalfundar. Varaformaður upplýsti að sérlegir gestir fundarins yrðu Heimir Karlsson og Guðni Bergsson. Jafnframt samþ. stjórnin að reikna með ca. 40 félögum á fundinn vegna veitingapöntunar.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið um kl. 21:30.


Fundarritun. Daníel K Ármannsson, varaformaður.

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Stuðningsmannafélag Newcastle á Íslandi
Stjórnarfundur félagsins haldinn í Smalaskála 11. febrúar 2004. Viðstaddir voru Guðmundur, Daníel, Hafsteinn og Svavar. Júlíus og Már sáu sér ekki fært að mæta. Fundur hófst kl. 19:00. Eftirfarandi mál voru rædd á fundinum:

1. Afmæli félagsins 18. febrúar nk.
Formaðurinn bar fram þá tillögu að hafa opið hús miðvikudaginn 18. febrúar í tilefni eins árs afmælis félagsins. Samþykkt var að boða til samsætis í Ölver og bjóða félagsmönnum upp á kaffi og afmælistertu.

2. Umgjörð og skipulag stjórnarfunda
Rætt var um umgjörð stjórnarfunda félagsins. Undanfarið hafa fundarsetur stjórnar verið svolítið í lausu lofti og því ekki gefist nægilega gott tóm til að ræða mál félagsins í þaula. Samþykkt var að hittast reglulegar og undirbúa fundina betur en verið hefur. Þar er ástæða til að fylgja fordæmi Hafsteins gjaldkera sem ávallt kemur vel undirbúinn til funda stjórnar.

3. Samskiptaörðugleikar við Newcastle Utd.
Rætt var um stærsta hagsmunamál félagsins sem eru samskipti/tengsl við félagið ytra. Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir til að endurvekja þau tengsl sem við nutum í byrjun hafa þær allar verið til lítils. Stjórnin var sammála um að áhugaleysi félagsins til að mynda heilbrigð samskipti við stuðningsmannaklúbbinn séu með ólíkindum. Samþykkt var að leita allra leiða til að vinna bug á þessu vandamáli sem nú ógnar því að fyrsta ferð félagsins til Newcastle verði eins vegleg og efni stóðu til. Í þessu sambandi komu upp hugmyndir um að finna íslenska tengiliði við félagið. Guðmundur ætlaði í þessum tilgangi að ræða við aðila sem hann þekkir persónulega auk þess sem ástæða er til að hafa samband við alla þá sem þekkja til borgarinnar og geta veitt upplýsingar um landa okkur ytra. Eins var ákveðið að hafa samband við önnur stuðningsmannafélög Newcastle á Norðurlöndum; ekki síst með samskiptamál við félagið í huga.

4. Samstarf við aðra stuðningsmannaklúbba á Íslandi
Samþykkt var að fylgja eftir samtali við formann stuðningsmannafélags Liverpool á Íslandi þar sem hann viðraði þá skoðun sína að auka beri samskipti og samvinnu íslenskra stuðningsmannafélaga hér á landi. Slíkt samstarf gæti tekið á sig ýmsar myndir og augljósir hagsmunir okkar hljóta að liggja í samstarfi við stóru félögin hér á landi.

5. Fjárhagur félagsins – leiðir til fjáröflunar – rekstrarkostnaður félagsins
Mikið var rætt um fjárhagsstöðu og fjáröflun félagsins og eftirfarandi hugmyndir voru viðraðar:
a. Augljóslega þarf að keppast við að fjölga félögum til að auka innkomu af greiddum félagsgjöldum. Eins var samþykkt að hækka félagsgjöldin úr 2000 kr. á ári í 2500 eins og tíðkast hjá öðrum stuðninsmannafélögum hér á landi.
b. Reyna að selja auglýsingar á heimasíðu.
c. Hafsteinn kom fram með hugmyndir um tippleik.
d. Svavar kom fram með hugmynd um að félagsmenn gætu valið að greiða hefðbundin félagsgjöld eða skrifa undir áheitasamning við félagið. Það gæti t.d. falist í því að greiða vissa upphæð fyrir hvert skorað mark félagsins á einu tímabili eða einu félagsári (1. jan. – 31. des.). Þetta gæti gefið félaginu umtalsverðar tekjur ef einhver hluti félagsmanna gengjust undir slíka skuldbindingu og ekki ólíklegt að 10-20 félagar væru tilbúnir að láta aðeins stærri upphæð renna til starfsins á þennan hátt.
e. Samþykkt var að gera átak til að selja varning félagsins sem bindur töluverða peninga eins og staðan er nú.
Hafsteinn telur að rekstrarkostnaður félagsins eins og það er statt í augnablikinu sé u.þ.b. 320.000 kr. og því nauðsynlegt að auka verulega tekjur félagsins.

6. Aðalfundur –árshátíð
Samþykkt var að halda aðalfund félagsins og árshátíð þann 6. mars nk. Haft verður samband við Ölver um að félagið fái litla salinn til afnota og auk þess verður kannað hjá þeim hvernig best verður að haga veitingum. Auk hefðbundinna fundarstarfa og veitinga var samþykkt að standa fyrir getraunaleik, happdrætti og að sýna myndir frá leikjum félagsins. Einnig var samþykkt að reyna að fá Guðna Bergsson eða Bjarna Jóhannsson til að halda fyrirlestur um enska boltann. Þetta yrði hápunktur hátíðarinnar. Inngangseyrir var ákveðinn 2000 kr.

7. Heiðursfélagar
Upp kom sú hugmynd að veita nokkrum félögum heiðursnafnbót fyrir störf fyrir félagið. Einnig að veita aldursforsetum félagsins slíka nafnbót.

8. Afsláttarmál félagsmanna
Samþykkt var að kanna hvort að mögulegt væri að tryggja félagsmönnum afslætti sem fengjust með því að framvísa félagsskírteini.

9. Félagsárið – félagsskírteini – greiðsla félagsgjalda
Samþykkt var að starfsár/reikningsár félagsins væri 1. jan. – 31. des. ár hvert í stað 18. feb. – 17. feb. Þetta einfaldar alla umsýslu fyrir gjaldkera.

10. Heimasíða
Rætt var um heimasíðu félagsins og sem fyrr kom fram ánægja stjórnar með þróun þeirra mála. Eina sem þarf að ræða við vefstjóra er hvort mögulegt sé að tilkynningar frá félaginu séu greinilegri á forsíðu síðunnar – að hún sé þannig úr garði gerð að tilkynningar frá félaginu séu það fyrsta sem fyrir augu félagsmanna ber þegar þeir fara inn á síðuna. Þetta þarf vefstjóri að meta hvort sé æskilegt og mögulegt.

Fundi slitið kl. 21.30

Í fjarveru ritara,
Svavar Hávarðsson

----------------------------------------------------------------------------------------------------

25.3.2003

2. stjórnarfundur Newcastle stuðningsmannaklúbbsins haldinn í Smalaskála við Suðurlandsveg, hjá Guðmundi formanni 25.mars 2003 kl. 19.15.

Mættir eru stjórn félagsins, Guðmundur, hundur Guðmundar, Svavar, Hafsteinn, Már og Daníel varaformaður, sem kom er liðið var á fundinn.

Formaður setti fundinn, sem var óformlegur og opinn, enda haldinn í frábæru umhverfi.

Farið var yfir stöðu mála á fyrsta mánuði félagsins, fyrstu greiðslur félagsgjalda sem berast strax í upphafi gjaldatímabils greitt og örugglega.

Hafsteinn gjaldkeri kynnir fyrir okkur form innheimtu, nýstofnaðan hlaupareikning félagsins svo og kennitölu og færir stjórnarmönnum eintak af skrá yfir félagsmenn eru strax á upphafsmánuði félagsins orðnir 148 talsins og fjölgar ótt.

Ritari dreifir fundargerðum síðasta fundar félagsins og stjórn ákveður að setja fundargerðir jafnóðum inn á vef félagsins, félagsmönnum til fróðleiks og lesningar og auka þannig aðgengi að því hvað er að gerast innan félagsins.

Daníel varaformaður færir okkur ýmsar fróðlegar fregnir frá NUFC í Bretlandi, en hann er nýkominn að utan með fróðleik og fréttabréf félagsins þar ytra sem fjallaði ítarlega um stofnun stuðnings-mannaklúbbsins á Íslandi í máli og myndum.

Formaður mælir fyrir og óskar eftir umræðum og samþykki fyrir því að leitað verði eftir tilboðum á 2 heimaleiki fyrir félagsmenn, einn í haust og annan eftir áramót 2004.

Samþykkt að hafa samband við Philip í almannatengslum NUFC úti og reyna að öðru leyti að sjá sem mest um þessar ferðir og gistingu sjálfir.

Samkvæmt hugmynd og ósk Hafsteins gjaldkera var ákveðið að setja “link” frá NUFC á vefsíðuna hjá okkur þar sem félagsmenn geta skoðað St.James Park, völlinn sjálfan og umhverfi hans á skemmtilega myndrænan hátt.

Einnig var ákveðið að efla innra félagsstarf með því að félagið gerist áskrifandi að leikjaskrám, fréttabréfum, kaupi myndbönd og bækur og annan fróðleik um félagið, safn sem félagsmenn geti haft aðgang að sér til skemmtunar og fróðleiks.

Formaður leggur fram hugmynd sem hvatningu til yngri meðlima félagsins í formi einhverslags styrkjar til ferðar á heimaleiki NUFC þar sem þeir yngri fái strax í upphafi beina og óbeina kynningu á starfi klúbbsins erlendis.

Svavar alm.tenglafulltrúi leggur fram frábæra hugmynd að merki íslenska stuðningmanna-klúbbsins, skyssu sem hann hafði látið útbúa og fóru fram umræður um merkið og endanlegan frágang þess.

Ekki var á þessum fundi tekin ákvörðun um næsta fund og eftir líflegar umræður var fundi slitið kl. 21.50

Már Elísson, ritari

------------------------------------------------------------------------------------------------

25.2.2003
1.stjórnarfundur hins nýstofnaða Newcastle klúbbs á Íslandi haldinn á Café Bleu, Kringlunni 25.febrúar 2003 kl. 19.30.

Mættir eru stjórn félagsins sem kosin var á stofnfundi félagsins 18.febrúar 2003 sem haldinn var á Players, Kópavogi, á 70 ára afmælisdegi Sir Bobby Robsons.

1. stjórn félagsins er skipuð eftirfarandi:

Guðmundur Rúnar Lúðvíksson formaður

Daníel K.Ármannsson varaformaður

Már Elíson ritari

Hafsteinn Þórðarson gjaldkeri
Svavar Hávarðarson almannatengslafulltrúi.

Formaður setur stjórn formlega, kynnir henni skyldur sínar og verkefnaskrá.

Strax í upphafi fundarins voru reifaðar hugmyndir um ferðir á mikilvæga leiki félagsins sem eru framundan og komu þá helst fram ferð um páskana svo og seinna í haust.

Rætt var um félagatal, samskipti og vítt og breitt um framtíðaráform félagsins. Ákveðið var að slá af hugmyndir um sérstakt húsnæði fyrir félagið og stjórnarfundum þess í stað valinn staður í hvert sinn og einnig ákveðið að fyrst um sinn myndu félagar vera hvattir til að mæta á Players sportbar fyrir helstu leiki Newcastle Utd. og fengum við góðar undirtektir hjá eiganda Players, Árna, sem vill allt fyrir okkur gera.

Rætt um að tala við innflutningsaðila Newcastle Brown Ale til að fá þann góða mjöð á góðu verði fyrir félagsmenn fyrir leiki og á öðrum hátíðlegum stundum í sögu félagsins.

Ákveðið var að tala við vefstjóra fyrir heimasíðu, stungið var upp á Brynjari Björgvinssyni og var það einróma samþykkt. - Sérstakar E-mail adressur stjórnarmanna ákveðnar og ákveðið að fyrst um sinn og jafnvel í framtíðinni yrði fréttabréfið okkar á vefnum nema eitthvað sérstakt komi til.

Hafsteinn, settur gjaldkeri, birti okkur og las upp á fundinum ítarlega skýrslu um markmið félagsins sem hann hafði sett saman og var hún frábær í alla staði og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.

Daníel varaformaður sýndi okkur bréf sem honum hafði borist frá almannatengslafulltrúa Newcastle í Bretlandi. Okkur hafa einnig borist hamingjuóskir og hvatningar frá ýmsum stuðningsklúbbum á Íslandi og sérstaklega frá Chelsea klúbbnum og fá þeir sérstakar þakkir frá okkur stjórnarmönnum.

Farið var yfir ýmsar leiðir til að koma félaginu á framfæri, t.d. að koma fram á leikjalýsingum í sjónvarpi og hafði Daníel varaformaður hug á því að koma fram í næsta sinn er bein útsending yrði og Guðmundur formaður dreif sig í 4-4-2, þátt Þorsteins Joð á Stöð 2 og kynnti klúbbinn rækilega.

Einnig kemur fram að félagar skrá sig ótt og títt inn á vef félagsins og eru strax um 100 manns búnir að skrá sig þegar þessi fundur er haldinn. Markið er sett hátt hjá okkur og stefnum við á 200 félaga fyrir haustið.

Næsti fundur í félaginu fyrirhugaður 15.mars 2003 næstkomandi nema annað óvænt komi upp og fundi slitið kl. 21.30.

Már Elísson, ritari

 

 

 

Heim