www.newcastleis.com

Gagnabankinn

Greinar og samantekt - Júlíus Heimir Ólafsson

Takkaförin á St James' Park

Eins og nærri má geta eru þær orðnar margar hetjurnar sem hafa sýnt snilli sína í hinum fræga búningi Newcastle United. Auðvitað er ansi mismunandi hve hetjuleg frammistaða leikmanna er og ávallt er það svo að aðeins fáir þeirra sem koma við sögu hjá stóru knattspyrnufélagi ná að marka spor sín svo eftir verði munað. Það hefur alltaf þótt mikill viðburður í Newcastle þegar nýr leikmaður stígur sín fyrstu spor með liðinu og áhangendur fylgjast ætíð grannt með þeim sem eru nýir á St James' Park. Stuðningsmennirnir bera mikla virðingu fyrir félaginu sínu, búningnum og öllu því sem tengist Newcastle United FC. Þeir ætlast til þess að leikmenn geri slíkt hið sama og geta á stundum verið dómharðir ef þeim finnast menn ekki leggja sig fram og gera sitt besta.

Hér á síðunni er hægt að fræðast um leikmenn sem eiga það sameiginlegt að hafa spilað fyrir Newcastle. Sumir gerðu garðinn frægan og nutu feikilegra vinsælda á meðal stuðningsmanna. Þá ættu allir stuðningsmenn Newcastle að þekkja. Aðrir stóðu sig vel þó þeir nytu ekki viðlíka frægðar. Enn aðrir áttu litlu láni að fagna. Það eru semsagt engar reglur fyrir því hvaða leikmönnum verða gerð skil hér, það verða bæði hetjur og skúrkar. Það eitt nægir að hafa skrýðst hinum glæsilega búningi félagsins.

Hér fyrir neðan er listi yfir leikmennina. Listinn er í stafrófsröð en einnig kemur fram hvenær þeir léku fyrir félagið. Ef þið hafið óskir um leikmenn sem þið hafið áhuga á að lesa um getið þið sent beiðni með vefpósti. Góða skemmtun!

Andrew Aitken(1895-1906)

Ivor J. Allchurch (1958-1962)

Albert Bennett (1965-1969)

John Bird (1975-1980)

Frank Brennan (1946-1956)

Kevin S. Brock(1988-1994)

Michael E. Burns(1974-1978)

Joe Butler (1960-1965)

Paul A. Cannell (1972-1978)

Franz Carr(1991-1993)

Robert G. Cowell(1943-1956)

Ronald J. McGarry (1962-1967)

David J. Craig (1960-1978)

Tommy Craig (1974-1978)

Wyn Davies (1966-1971)

James Denmark(1937-1946)

George Eastham (1956-60)

William I. Foulkes (1951-1954)

Alan E. Gowling(1975-1978)

Anthony Green (1971-1973)

John G. Hendrie(1988-1989)

Brian Kilcline (1992-1994)

Terry Hibbitt(1971-1975 og 1978-1981)

Frank Hudspeth (1910-1929)

David McCreery (1982-1989)

Alf McMichael (1949-1963)

John McNamee(1966-1971)

Gordon Marshall(1963-1968)

Dennis William Martin (1977-1978)

Francisco Mirandinha(1987-1990)

Kenneth Mitchell(1975-1981)

Irving Nattrass (1970-1979) Alan Neilson (1991-1995) Darren Peacock (1994-98) William Penman(1963-66)
Scott Sellars(1993-1995)

James Scott(1967-1970)

Alan Suddick (1961-1966)

Ernest Taylor(1942-1951)

Robert B. Templeton (1903-1904)

Martin R. Thomas (1983-1988)

John Tudor(1971-1976)

Chris Waddle(1980-1985)


 STJÓRARNIR Á TYNESIDE

Framan af var Newcastle ekki með eiginlegan framkvæmdastjóra heldur var liðinu stjórnað af sérstakri nefnd. Þannig var þetta frá 1892 til 1930 þó að aðalritarinn Frank G. Watt væri höfuð stjórnarinnar og réði mestu. Það var árið 1930 að fyrsti eiginlegi stjórinn var ráðinn til félagsins en þrátt fyrir það voru breytingarnar litlar. Stjórnin réði eftir sem áður. Hún sá um leikmannakaupin, valdi liðið og gerði allt það sem mestu máli skipti. Sá sem var ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra var eiginlega þjálfari sem átti að sjá um að leikmenn væru í nægilega góðu líkamsstandi. Það var ekki fyrr en á sjöunda og áttunda áratugnum að stjórastarfið fór að líkjast því sem þekkist í dag og maðurinn við stýrið fór að hafa fullt vald.

Frá því árið 1930 hafa margir reynt fyrir sér sem stjórar Magpies og með æði misjöfnum árangri. Sumir hafa látið hafa það eftir sér að starf framkvæmdastjóra Newcastle sé erfiðasta starfið í enska boltanum og þó víðar væri leitað. Pressan er ávallt mikil á þeim er taka starfið að sér því áhangendurnir eru kröfuharðir. Þeir vilja að lið þeirra sé borginni til sóma og leiki skemmtilega og árangursríka knattspyrnu.
Hér fyrir neðan er listi yfir framkvæmdastjóra Newcastle United FC frá upphafi og með því að smella á nöfn þeirra hér til hægri er hægt að fræðast um þessa heiðurskarla.


 

6.11.2003

Snilldarsigur
Newcastle vann í kvöld góðan sigur á FC Basel í Uefa keppninni. Shola Ameobi tryggði Magpies 3-2 sigur og góða stöðu fyrir heimaleikinn, eftir að liðið hafði tvívegis lent undir. Leikurinn var frábær skemmtun og fer áreiðanlega í sögubækurnar sem einn af þeim eftirminnilegri í Evrópusögu Newcastle.

Þetta var 49. leikur Newcastle í Uefa keppni, en þar hóf félagið einmitt Evrópureisur sínar árið 1969, þegar keppnin hét reyndar Inter City Fairs Cup. Eins og við var að búast varð baráttan gegn hinu hávaxna liði Basel, afar erfið.
Fyrri hálfleikur var frábær og Mario Cantaluppi gerði fyrsta markið með þrumufleyg á 11. mínútu Jermaine Jenas náði ekki að hreinsa nægilega vel frá teignum og Cantaluppi bombaði óverjandi í mark, afar glæsilega. Það fór um stuðningsmenn Magpies en þeir gátu glaðst fljótt aftur því Laurent Robert jafnaði metin tveimur mínútum síðar með listafallegu marki. Ameobi gaf þá harnákvæma sendingu á Frakkann sem stormaði að marki. Þegar hann átti tæpa 20 metra eftir lét hann vaða með vinstri í hægra markhornið. Frábært og sjötta mark Roberts í níu síðustu leikjum.
Ekki þurfti að bíða lengi eftir næsta marki. Andy O’Brien skallaði þá út úr teignum, en beint fyrir fætur Scott Chipperfield sem skoraði með ágætu skoti. Boltinn hafði viðkomu í Jenas og Given kom engum vörnum við. Þrjú mörk á korteri og sannarlega frábær fótbolti.
Basel hafði verið sterkari aðilinn fram að þessu og Chipperfield sérlega góður. Aaron Hughes átti í miklu basli í hægri bakvarðarstöðunni og hvað eftir annað brutust liðsmenn Basel upp vænginn hans. Þó kom að því að lekmenn United fóru að koma meira inn í leikinn og eftir um hálftíma leik var stungið inn á Robert sem var að sleppa í gegn. Philipp Degan braut á Frakkanum og mátti teljast heppinn að sleppa með gula spjaldið.
Á 37. mínútu jafnaði svo Newcastle. Robert tók hornspyrnu, Alan Shearer reyndi að ná til boltans en hann féll fyrir Ameobi. Strákurinn náði eitthvað að pota í boltann sem fór fyrir fætur Titus Bramble. Hann var ekkert að hika en dumpaði knettinum í gegnum varnarpakkann og í netið. Staðan 2-2 í lekhléi.

Heimamenn hófu seinni hálfleik af krafti og ætluðu sér greinilega að gera út um leikinn. Vörn Magpies stóð vaktina hins vegar mun betur en í fyrri hálfleik og Titus stoppaði margar sóknir. Robert hélt áfram að skapa hættu og á 75. mínútu kom sigurmarkið. Nobby Solano fékk tíma og pláss til að renna á Shola Ameobi sem var við vítateiginn. Shola snéri laglega á Marco Zwyssig og renndi boltanum á milli fóta markmannsins Pascal Zuberbuhlers og í mark. Gott mark og gaman fyrir strákinn sem hafði farið illa með gott tækifæri fyrr í leiknum. Það sem eftir lifði leiks skiptust liðin á að sækja. Newcastle hefði getað gert fleiri mörk en það hefðu liðsmenn Basel einnig getað gert.

Sigurinn hlýtur að vera mikill léttir fyrir Robson og hans menn en varla þarf að minna þá á að þeir unnu 1-0 í Belgrad en féllu samt úr meistaradeildinni. Það er því ljóst að enn getur allt gerst.

Shay var góður að venju. Hann gat lítið að mörkunum gert en var öruggur eins og ávallt. Ekki spurning að hann er einn albesti markmaður Evrópu og ljóst að liðsmenn Magpies eru farnir að leggja mikið traust í hans hendur. Enda stendur Shay svo sannarlega undir því. Frábær markmaður.

Aaron Hughes átti erfiðan fyrri hálfleik og virtist hreinlega ekki valda verkefni sínu. En hann var miklu betri í þeim seinni og stóð sig ágætlega í heildina. Andy O’Brien átti þokkalegan dag og mun betra að hafa hann í vörninni en Steve Caldwell. Titus Bramble var frábær. Hann átti svo sem í nokkrum vanda í fyrri hálfleik, rétt eins og aðrir varnarmenn liðsins, en í þeim seinni var hann stórfenglegur. Hvað eftir annað skallaði hann vel frá og náði að komast fyrir sendingar leikmanna. Hann sendi boltann mjög vel frá sér og gerði fínt mark. Ollie Bernard var sterkur að venju.

Solano fékk langþráð tækifæri og nýtti það ágætlega. Hann sást að vísu ekki mikið í fyrri hálfleik og hefði líklega mátt hjálpa Hughes meira. En hann var mun betri í seinni hálfleik og sýndi enn eina ferðina hvað hann er góður spilari, þegar hann lagði knöttinn á Ameobi í sigurmarkinu. Þeir Jenas og Speed áttu í erfiðleikum framan af leik en smám saman tókst þeim að ná völdum á miðjunni. Þegar upp var staðið má hrósa báðum, sérstaklega þó Speed sem var mjög duglegur að hjálpa vörninni.
Laurent Robert er snillingur. Hann hefur leikið mjög vel að undanförnu og átti sannkallaðan stjörnuleik að þessu sinni. Markið var glæsilegt og þar að auki var hann sífellt ógnandi. Ef Robert er í slíkum ham eiga varnarmenn ekki von á góðu.

Shearer spilaði vel eins og hann gerir raunar alltaf. Enn eina ferðina sýndi hann hve mikilvægur liðsmaður hann er. Margoft náði hann að létta pressunni af vörn Magpies, með því að hirða boltann á miðjunni, fiska aukaspyrnur eða halda knettinum og snúa vörn í sókn. Einfaldlega ómetanlegur kappi.
Shola var hreint ágætur. Það er reyndar merkilegt með drenginn að á köflum finnst manni hann ekkert geta. En svo tekur hann rispurnar sínar og sannfærir mann um allt annað. Shola virðist vera farinn að láta meira til sín taka líkamlega og er það vel. Hann leikur af skynsemi, heldur knettinum vel og hefur gott auga fyrir spilinu. Það sýndi hann þegar hann sendi á Robert í fyrsta markinu. Markið hans var líka geysilega vel gert.
Varamennirnir Ambrose og Viana komu lítið við sögu og verða þeir því ekki dæmdir af þessum leik.

Maður leiksins: Titus Bramble. Erfitt að velja á milli hans og Roberts en Titus á þetta skilið.


6.11.2003
St Jakob Park

FC Basel (SVI)- Newcastle 2-3 (2-2)
Mörk Basel: Cantaluppi 11, Chipperfield 15
Mörk Newcastle: Robert 14, Bramble 37, Ameobi 75


Lið Basel: Zuberbuhler, Degan, M Yakin, Zwyssig, Atouba, Cantaluppi, Huggel, H Yakin (Rossi), Chipperfield, Gimenez (Barberis 82), Streller
Gult spjald: Degen 28
Lið Newcastle: Given, Hughes, O’Brien, Bramble, Bernard, Solano (Ambrose 85), Jenas, Speed, Robert (Viana 90), Shearer, Ameobi

Áhorfendur: 30.000
Dómari: T Ovrebo


 

16.10.2003

Sigur númer 100
Sir Bobby Robson var ánægður með lið sitt eftir sigurinn á NAC Breda í gær. Newcastle vann 1-0 og var þetta 100. sigurinn undir stjórn Bobbys. Laurent Robert skoraði eina markið skömmu fyrir leikslok og það tryggði 6-0 sigur samanlagt.

„Við ætluðum okkur að sýna Breda virðingu og ég tel að við höfum gert það,“ sagði Robson sem hvíldi Shearer, Speed og Given. „Ég veit að ég breytti liðinu og hvíldi leikmenn en við tefldum samt fram mjög góðu liði. Við breyttum taktíkinni aðeins til að reyna að stoppa þá á miðjunni. Það tókst að nokkru leyti og þetta var jafn leikur. Það var mikilvægt að leyfa þeim ekki að skora fyrst, því það hefði gefið þeim mikið sjálfstraust. Svo lengi sem við gerðum ekkert heimskulegt, yrði þetta í góðu lagi, og við lögðum okkur fram og sýndum fagmennsku. Þegar á heildina er litið verð ég að vera ánægður með liðið því við unnum erfiðan leik. Breda spilaði mun betur en í Newcastle og virkaði sterkt lið. Þetta var ekki auðvelt og við rétt mörðum leikinn. Við unnum þetta auðvitað í Newcastle en þessi leikur var ekta Evrópuleikur, mjög jafn.“

Leikurinn var reyndar ekkert merkilegur af hálfu Newcastle og mark Roberts líklega það eina sem gladdi augað. Steve Harper stóð sig vel í markinu og það var sannarlega gott að halda hreinu.
Greinilegt var að leikmenn Magpies höfðu ekki miklar áhyggjur af leiknum, enda staðan örugg. Þetta er vissulega skiljanlegt en þó verður að teljast sorglegt að þeir menn sem fengu sjaldgæft tækifæri virtust ekki hafa mikinn áhuga á að nýta það.

Fyrirliðinn Rob Penders lét reyna á markmanninn Steve Harper strax í upphafi leiks, Harper mátti geysast út í teig til að verða á undan Stefano Seedorf í knöttinn. Harper var snar að senda fram, Shola Ameobi náði knetti og renndi aftur á Viana sem skaut en Gabor Babos varði.

Þessi frábæra byrjun var ekki í takti við framhaldið en leikmenn Breda voru sterkari. Orlando Engelaar var áberandi sterkur á miðjunni, sannkallaður turn. Engelaar átti hörkuskot rétt yfir og skömmu síðar varði Harper frá honum. Engelaar og félagar tóku völd á miðjunni og Viana var oft á tíðum eins og áhorfandi. Heimamenn áttu skalla rétt framhjá og annan í stöng og þegar leikmenn gengu til búningsklefa sinna í hléi var ljóst að þeir höfðu verið sterkari.

Minnstu munaði að Breda tæki forystu strax í byrjun seinni hálfleiks. Haper kom út til að hreinsa en skaut beint í Johan Elmander. Markmaðurinn langt úti á velli en Jermaine Jenas var snar til bjargar. Elmander var nú orðinn sprækur og Seedorf hefði átt að nýta sér betur góða sendingu frá Svíanum, en skaut framhjá úr sannkölluðu dauðafæri.

Sóknartilburðir Magpies voru ekki merkilegir en á 80. mínútu sáust loksins taktar. Ameobi lagði boltann á Dyer sem kom á ferðinni en markmaður Breda bjargaði vel. Skömmu síðar kom sigurmarkið. Jenas fékk boltann á miðjunni og stakk glæsilega inn á teig þar sem Laurent Robert kom aðvífandi og setti knöttinn af öryggi í netið. Laglegt mark. Lomana Lua Lua hefði svo átt að bæta við marki eftir góðan undirbúning Ameobis en á einhvern óskiljanlegan máta renndi hann knetti í stöng og framhjá. Klaufaskapur sem varla bætir stöðu hans í hópnum.

Niðurstaðan var því sigur í óeftirminnilegum leik. Gott að vinna en ljóst að menn verða að spila miklu betur á laugardag gegn Boro.

Maður leiksins: Jermaine Jenas, var sívinnandi og lagði upp sigurmarkið með mjög góðri sendingu.


15.10.2003

MyCom Stadium
NAC Breda – Newcastle 0-1 (0-0)
Mark Newcastle: Robert 86

Lið NAC Breda: Babos (Coutinho 37), Penders, Gudelj, Collen, Engelaar, Slot, Koning (Vos 69), Seedorf, Stam, Boussaboun (Barakat 69), Elmander.
Gul spjöld: Slot 52, Stam 57
Lið Newcastle: Harper, Griffin, O'Brien, Bramble (Caldwell 78), Bernard, Solano (Ambrose 78), Jenas, Viana, Robert, Dyer (LuaLua 84), Ameobi.
Gult spjald: Bernard 89

Dómari Espen Berntsen
Áhorfendur: 16.400


27.7.2005

Bomba Bowyers
Laskað lið Newcastle gerði þokkalega ferð til Spánar. Liðið tapaði að vísu fyrir Deportivo en glæsimark Lee Bowyers þýðir að 1-0 sigur á SJP myndi nægja til að komast áfram í úrslit Intertoto keppninnar. Newcastle átti í vök að verjast lengst af en menn börðust vel og stóðu allir fyrir sínu. Lazio og Marseille gerðu 1-1 jafntefli á Ítalíu og því hafa Frakkarnir náð yfirhönd í því einvígi.

Souness kom ekkert á óvart enda möguleikar ekki margir varðandi uppstillingu. Given í marki, Carr, Boum, Taylor og Baba mynduðu varnarlínuna. Milner var hægra megin og Zog vinstra megin en þeir Bowyer, Butt og Faye miðsvæðis. Shearer einn fremstur. Heimamenn tóku völdin í byrjun og fyrstu 20 mínúturnar virtust þeir líklegir til að valta yfir gestina. Boltinn gekk vel milli manna og leikmenn Newcastle eltu. Á 11. mínútu kom fyrsta markið. Tristan fékk pláss í teignum og renndi út á Ruben Castro sem skoraði af yfirvegun með nákvæmu skoti í markhorn. Skömmu síðar munaði minnstu að Sergio bætti við og Castro fór illa með annað færi. Seinni hluta hálfleiksins vörðust liðsmenn Magpies betur en staðan í leikhléi 1-0.

Newcastle hóf seinni hálfleik í sókn og á 47. mínútu var staðan orðin jöfn. Stephen Carr tók hornspyrnu og skallað var frá á nærstöng, boltinn datt vel fyrir Lee Bowyer sem tók hann viðstöðulaust á lofti og þrumaði í netið. Glæsimark og sérlega ánægjulegt fyrir bardagahundinn Bowyer. Heimamenn náðu fljótlega yfirhönd á ný. Miðvörðurinn Jorge Andrade fékk boltann á miðju vallarins og fór óáreittur alla leið inn í teig þar sem hann skoraði með hnitmiðuðu skoti. Stórfallegt mark en varnarleikur Newcastle hreint ekki til fyrirmyndar. Menn tóku að þreytast þegar á leik leið. Munitis átti gott skot og hinum megin var varamaðurinn Chopra nálægt því að koma tá í fyrirgjöf N’Zogbia.

Leikmenn Newcastle geta talist frekar heppnir að sleppa með eins marks tap. Þeir voru lengst af undir í baráttunni og spilið gekk miklu betur hjá heimamönnum. Shay Given gat ekkert að mörkunum gert. Hann stóð sig vel að vanda og varði einu sinni afar vel í seinni hálfleiknum. Carr átti fínan leik og lét ekki margt fara framhjá sér en fékk óþarfa spjald. Þeir Boumsong og Taylor voru sömuleiðis mjög góðir og sérlega gaman að sjá Taylor leika svona vel. Babayaro virtist alls ekki kominn í leikform og var slakasti maður liðsins að þessu sinni. Alltof auðvelt fyrir leikmenn Depor að vaða framhjá honum. Faye og Butt bötnuðu eftir því sem á leikinn leið en Milner varð snemma fyrir hnjaski og varð að lokum að fara af velli. N’Zogbia barðist vel en sendingar hans voru ekki alltaf nægilega góðar. Það sama má reyndar segja um marga aðra liðsmenn. Bowyer sást ekki mikið framan af en markið hans var gull af marki og seinni hálfleikurinn mjög góður. Shearer var einmana frammi og fékk ekkert gefins hjá dómaranum sem reyndar leyfði afar litlar snertingar. Chops barðist vel en fékk ekki teljandi færi sóknarlega. Það verður spennandi viðureign á SJP næsta miðvikudag.

Maður leiksins: Lee Bowyer


27.7.2005
Riazor

Deportivo - Newcastle 2-1 (1-1)
Mörk Depor: Castro 11, Andrade 58
Mark Newcastle: Bowyer 47

Lið Depor: Molina, Manuel Pablo, Andrade, Romero, Capdevila, Munitis, Duscher (Victor 70), Sergio, Luque (Scaloni 61), Ruben Castro, Tristan (Valeron 56).
Gul spjöld: Ruben Castro, Capdevila.
Lið Newcastle: Given, Carr, Boumsong, Taylor, Babayaro, N'Zogbia, Bowyer, Butt, Faye, Milner (Chopra 71), Shearer.
Gul spjöld: Carr, Taylor.

Áhorfendur: 16.000
Dómari: Serge Gumienny (Belgíu)


 

17.7.2005

Létt í Slóvakíu
Newcastle ætti að vera öruggt áfram í Intertoto keppninni eftir 3-1 útisigur á Dubnica í Slóvakíu í dag. Liðið náði að komast í 2-0 á fyrstu 6 mínútunum en eftir það voru heimamenn síst verri aðilinn. Þeir náðu að minnka muninn í 2-1 skömmu fyrir hlé en James Milner gulltryggði svo sigurinn í seinni hálfleik.

Michael Chopra var ekki lengi að setja sitt fyrsta mark fyrir Newcastle. Hann fékk fína stungusendingu frá Milner á 4. mínútu og setti boltann af öryggi framhjá markverði Dubnica. Aðeins tveimur mínútum síðar komst Charles N’Zogbia upp að endamörkum vinstra megin og hugðist senda fyrir, boltinn fór í Robert Novak og virtist kominn innfyrir línuna áður en Alan Shearer tryggði markið við fjærstöng. Spurning hvort Shearer fær markið skráð á sig. Heimamenn gáfust ekki upp og undir lok fyrri hálfleiks minnkaði Tesak muninn með skalla eftir fína fyrirgjöf frá Igor Drzik.
Snemma í seinni hálfleik varði Steve Harper vel frá Marian Zimen en það var svo James Milner sem tryggði öruggan sigur Magpies þegar hann vippaði laglega yfir markvörðinn af löngu færi á 70. mínútu.

Það var gott að rúlla létt í gegnum þennan leik enda liðsmenn langt frá því að vera komnir í form. Souness gaf Harper séns í markinu og átti hann fínan leik og varði nokkrum sinnum vel. Vörnin var ekki sérlega stöndug. Taylor var vinstri bakvörður og þeir Boumsong og Elliott miðverðir en Babayaro hægra megin. Á miðjunni voru Faye og Butt en Milner á hægri væng og N’Zogbia þeim vinstri. Chops og Shearer fremstir. Eina skipting Souness kom á 58. mínútu þegar Martin Brittain kom inná fyrir Chopra.
Það er svo sem erfitt að dæma menn af þessum leik en N’Zogbia var líflegur framan af og Milner átti góðan seinni hálfleik. Þeir Butt og Faye stóðu sig hins vegar ekki nægilega vel.
Það verður að telja mestar líkur á að Newcastle leiki gegn Deportivo í næstu umferð en þess ber þó að geta að Spánverjarnir lentu í basli og unnu fyrri leik sinn aðeins 1-0 á heimavelli.

Maður leiksins: James Milner sást ekki mikið í fyrri hálfleik en var fínn í þeim seinni.


17.7.2005
Mestsky

Dubnica – Newcastle 1-3 (1-2)
Mark Dubnica: Tesák 42
Mörk Newcastle: Chopra 4, Novak sjm. 6, Milner 70

Lið Dubnica: Pernis, Pleva, Drzik (Filo 85), Novák. Kopacka, Kiska (Brusko 79), Svestka, Izvolt (Grendel 69), Marián, Adam
Lið Newcastle: Harper, Taylor, Boumsong, Elliott, Babayaro, Milner, Butt, Faye, N’Zogbia, Shearer, Chopra (Brittain 58)

Áhorfendur:
Dómari: Alon Yefet (Ísrael)

 


 

MAGPIES Í EVRÓPU

Newcastle United lék fyrst í Inter Cities Fairs Cup keppninni árið 1968. Liðið hafði aðeins náð 10. sæti í deildinni en undarlegar reglur komu því inn. Keppni þessi var undanfari UEFA keppninnar og var sá háttur á að ekki mátti senda lið frá borg sem átti annan fulltrúa í Evrópukeppni. Þannig áttu lið frá London og Liverpool minni möguleika en okkar menn.

Fæstir áttu von á góðu gengi Newcastle í keppninni en reiknað var með Leedsurum sterkum. Þeir steinlágu fyrir ungverska liðinu Ujpest Dozsa en Newcastle gerði sér lítið fyrir og skellti sama liði í úrslitaleik. Þar með var fyrsti og eini Evrópubikar Magpies kominn í hús. Síðan hefur Newcastle tíu sinnum tekið þátt í Evrópukeppni með afar misjöfnum árangri


INTER CITIES FAIRS CUP 1968-69

11.9.1968:
NUFC - Feyenoord (HOL) 4-0 (Davies, Gibb, Robson, Scott)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, McNamee, Burton, Scott, Robson, Davies, Elliott, Allen.
Áhorfendur: 46.348

17.9.1968
Feyenoord - NUFC 2-0
Liðið: McFaul, Craig, Clark (Iley), Gibb, McNamee, Burton, Scott, Robson, Davies, Elliott, Allen.
Áhorfendur: 45.000

30.10.1968
Sporting Lissabon (POR) - NUFC 1-1 (Scott)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, Winstanley, Burton, Scott, Robson, Davies, Moncur, Foggon (Dyson).
Áhorfendur: 9.000

20.11.1968
NUFC - Sporting Lissabon 1-0 (Robson)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Scott, Robson, Davies, Elliott, Dyson (Bennett).
Áhorfendur: 53.747

1.1.1969
Real Zaragoza (SPÁ) - NUFC 3-2 (Davies, Robson)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Dyson, Robson, Davies, Scott, Foggon.
Áhorfendur: 22.000

15.1.1969
NUFC - Real Zaragoza 2-1 (Gibb, Robson)
Liðið: McFaul, Craig (Guthrie), Clark, Gibb, Burton, Moncur, Dyson, Robson, Davies, Scott, Foggon.
Áhorfendur: 56.055

12.3.1969
NUFC - Vitoria Setubal (POR) 5-1 (Davies, Foggon, Gibb, Robson 2)
Liðið: McFaul, Craggs, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Robson, Horsfield (Sinclair), Davies, Scott, Foggon.
Áhorfendur: 57.662

26.3.1969
Vitoria Setubal - NUFC 3-1 (Davies)
Liðið: McFaul, Craggs, Clark, Gibb, Burton (McNamee), Moncur, Sinclair, Robson, Davies, Scott, Foggon.
Áhorfendur: 34.000

14.5.1969 (Undanúrslit)
Glasgow Rangers (SKO) - NUFC 0-0
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, McNamee, Moncur, Scott (Sinclair), Robson, Davies, Arentoft, Foggon.
Áhorfendur: 75.580

21.5.1969 (Undanúrslit)
NUFC - Glasgow Rangers (H) 2-0 (Scott, Sinclair)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Scott, Robson, Davies, Arentoft, Sinclair.
Áhorfendur: 59.303

29.5.1969 (Úrslit)
NUFC - Ujpest Dozsa (UNG) 3-0 (Moncur 2, Scott)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Scott, Robson, Davies, Arentoft, Sinclair (Elliott).
Áhorfendur: 59.234

11.6.1969 (Úrslit)
Ujpest Dozsa - NUFC 2-3 (Arentoft, Foggon, Moncur)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Scott (Foggon), Robson, Davies, Arentoft, Sinclair.
Áhorfendur: 34.000

 


INTER-TOTO CUP 2001-02

 

14.7.2001
Lokeren (BEL) - NUFC 0-4 (Quinn, Lua Lua, Ameobi 2)
Liðið: Given, Barton, Elliott, Solano, Bassedas, Speed, Quinn, Bellamy, Hughes, Ameobi, Dabizas. (Varamenn: Lua Lua, McClen, S Caldwell).
Áhorfendur: 3.000

21.7.2001
NUFC - Lokeren 1-0 (Bellamy)
Liðið: Given, Barton, Elliott, Solano, Bassedas, Speed, Quinn, Bellamy, Hughes, Ameobi, Dabizas. (Varamenn: Bernard, McClen, Lua Lua).
Áhorfendur: 29.021

25.7.2001
TSV München (ÞÝS) - NUFC 2-3 (Solano 2, Hughes)
Liðið: Given, Barton, Elliott, Solano, Bassedas, Speed, Quinn, Bellamy, Hughes, Ameobi, Dabizas. (Varamenn: Bernard, Green, Lua Lua).
Áhorfendur: 15.000

1.8.2001
NUFC - TSV München 3-1 (Solano, Speed, Lua Lua)
Liðið: Given, Barton, Elliott, Solano, Lee, Speed, Quinn, Bellamy, Hughes, Ameobi, Dabizas. (Varamenn: Acuna, S Caldwell, Lua Lua).
Áhorfendur: 36.635

7.8.2001
Troyes (FRA) - NUFC 0-0
Liðið: Given, Barton, Elliott, Solano, Lee, Speed, Quinn, Bellamy, Hughes, Ameobi, Dabizas. (Varamenn: Bassedas, Lua Lua).
Áhorfendur: 10.414

21.8.2001
NUFC - Troyes 4-4 (Elliott, Solano, Speed, Ameobi)
Liðið: Given, Barton, Elliott, Solano, Lee, Speed, Quinn, Bellamy, Hughes, Ameobi, Dabizas. (Varamenn: Bernard, O'Brien, Lua Lua).
Áhorfendur: 29.021

 


CHAMPIONS LEAGUE 2002-03

FORKEPPNI

14.8.2002
Zeljeznicar (BOS) - NUFC 0-1 (Dyer)
Liðið: Given, Hughes, Dabizas, Bramble, Bernard (Quinn 89), Solano, Dyer, Jenas, Viana (Elliott 89), Shearer, Lua Lua (Ameobi 83).
Gul spjöld: Lua Lua, Dabizas
Áhorfendur: 35.000

28.8.2002
NUFC - Zeljeznicar 4-0 (Dyer, Lua Lua, Viana, Shearer)
Liðið: Given, Hughes, Bramble, Dabizas (O'Brien 71), Bernard, Solano (Kerr 75), Dyer, Speed, Viana, Shearer, Lua Lua (Ameobi 51).
Gult spjald: Dabizas
Áhorfendur: 34.067

RIÐLAKEPPNI 1

18.9.2002
Dynamo Kiev (ÚKR) - NUFC 2-0
Liðið: Given, Dabizas, O'Brien, Griffin, Hughes (Solano 69), Dyer, Speed, Viana (Robert 69), Bernard, Shearer (Ameobi 79), Bellamy.
Gult spjald: Hughes
Áhorfendur: 42.500

24.9.2002
NUFC - Feyenoord (HOL) 0-1
Liðið: Given, Griffin, Dabizas, O'Brien, Hughes, Solano, Dyer, Speed, Robert, Bellamy (Lua Lua 77), Shearer.
Áhorfendur: 40.540

1.10.2002
Juventus (ÍTA) - NUFC 2-0
Liðið: Given, Griffin (Ameobi 79), O'Brien, Dabizas, Hughes, Solano (Viana 70), Jenas (Lua Lua 79), Speed, Robert, Dyer, Shearer.
Gult spjald: Dabizas
Áhorfendur: 41.424

23.10.2002
NUFC - Juventus 1-0 (Griffin)
Liðið: Harper, Griffin, Bramble, O'Brien, Hughes, Solano, Jenas, Speed, Robert (Viana 85), Shearer, Lua Lua (Ameobi 85).
Áhorfendur: 48.370

29.10.2002
NUFC - Dynamo Kiev 2-1 (Speed, Shearer)
Liðið: Harper, Griffin, O’Brien (Bernard 46), Bramble (Dabizas 27), Hughes, Solano (Dyer 82), Jenas, Speed, Robert, Ameobi, Shearer.
Gult spjald: Ameobi
Áhorfendur: 40.185

13.11.2002
Feyenoord - NUFC 2-3 (Bellamy 2, Viana)
Liðið: Given, Griffin, Hughes, O'Brien, Dabizas, Jenas, Dyer, Speed, Viana (Bernard 83), Shearer, Ameobi.
Gul spjöld: Griffin, Bellamy
Áhorfendur: 45.00

RIÐLAKEPPNI 2

26.11.2002
NUFC - Inter Milan (ÍTA) 1-4 (Solano)
Liðið: Given, Griffin, O'Brien, Hughes (S Caldwell 85), Dabizas, Solano, Dyer, Speed, Viana (Robert 46), Shearer, Bellamy.
Rautt spjald: Bellamy
Áhorfendur: 50.108

11.12.2002
Barcelona (SPÁ) - NUFC 3-1 (Ameobi)
Liðið: Given, Griffin, O'Brien, Hughes, Bernard, Solano, Speed, Dyer, Robert, Ameobi, Lua Lua (Chopra 84).
Áhorfendur: 45.100

18.2.2003
Bayer Leverkusen (ÞÝS) - NUFC 1-3 (Ameobi 2, Lua Lua)
Liðið: Given, Hughes, Bramble, O'Brien, Bernard, Jenas, Speed, Dyer, Robert, Lua Lua (Chopra 84), Ameobi (Cort 84).
Áhorfendur: 22.500

26.2.2003
NUFC - Bayer Leverkusen 3-1 (Shearer 3)
Liðið: Given, Griffin, Bernard, S Caldwell, Bramble, Kerr (Viana 82), Dyer (Solano 70), Speed, Robert, Ameobi, Shearer (Lua Lua 80)
Áhorfendur: 40.508

10.3.2003
Inter Milan - NUFC 2-2 (Shearer 2)
Liðið: Given, Bernard, Bramble, Griffin, O’Brien (Hughes 59), Jenas, Speed, Robert (Viana 83), Solano (Lua Lua 83), Bellamy, Shearer.
Gul spjöld: Bramble, Bellamy, Shearer, LuaLua.
Áhorfendur: 53.459

19.3.2003
NUFC - Barcelona 0-2
Liðið: Given, Griffin, O'Brien, Bramble, Bernard, Solano (Ameobi 67), Dyer, Jenas, Robert (Viana 67), Shearer, Bellamy
Gult spjald: Bernard
Áhorfendur: 51.883

 


 

CHAMPIONS LEAGUE 2003-04


FORKEPPNI CHAMPIONS LEAGUE

13.8.2002
Partizan Belgrad (SER) - NUFC 0-1 (0-1) (Solano 38)
Liðið: Given, Griffin, O'Brien, Woodgate, Bernard, Solano (Jenas 83), Dyer, Speed, Robert (Ameobi 64), Shearer, Bellamy.
Gul spjöld: Bellamy, O'Brien, Ameobi, Shearer, Bernard
Áhorfendur: 32.000

27.8.2003
St James’ Park
Newcastle - Partizan Belgrad 0-1 (0-0)
Mark Partizan: Iliev 50
Lið Newcastle: Given, Hughes, Woodgate, O'Brien, Bernard, Solano (LuaLua 117), Dyer, Speed (Jenas 91), Viana (Robert 85), Ameobi, Shearer.
Gult spjald: O’Brien
Lið Partizan: Kralj, Dordevic, West, Nadj, Malbasa, Duljaj, Sasa Ilic, Cirkovic, Delibasic (Cakar 117), Iliev, Radakovic.
Áhorfendur: 37.239


UEFA CUP


27.8.2003
St James’ Park

Newcastle – NAC Breda (HOL) 5-0 (2-0)
Mörk Newcastle: Bellamy 31, 36, Bramble 58, Shearer, 76, Ambrose 88
Lið Newcastle: Given, Hughes, O’Brien, Bramble, Bernard (Viana 83), Jenas, Speed, Dyer (Ambrose 77), Robert, Shearer, Bellamy (Ameobi 83)
Lið NAC Breda: Babos, Feher, Penders, Schenning, Gudelj, Peto, Engelaar, Slot (Koning 60), Diba (Boussaboun 72), Elmander, Seedorf
Gul spjöld: Gudelj, Peto

Dómari: N Ivanov (Rússlandi)
Áhorfendur: 36.004


15.10.2003
MyCom Stadium

NAC Breda – Newcastle 0-1 (0-0)
Mark Newcastle: Robert 86

Lið NAC Breda: Babos (Coutinho 37), Penders, Gudelj, Collen, Engelaar, Slot, Koning (Vos 69), Seedorf, Stam, Boussaboun (Barakat 69), Elmander.
Gul spjöld: Slot 52, Stam 57
Lið Newcastle: Harper, Griffin, O'Brien, Bramble (Caldwell 78), Bernard, Solano (Ambrose 78), Jenas, Viana, Robert, Dyer (LuaLua 84), Ameobi.
Gult spjald: Bernard 89

Dómari Espen Berntsen
Áhorfendur: 16.400


6.11.2003
St Jakob Park

FC Basel (SVI)- Newcastle 2-3 (2-2)
Mörk Basel: Cantaluppi 11, Chipperfield 15
Mörk Newcastle: Robert 14, Bramble 37, Ameobi 75


Lið Basel: Zuberbuhler, Degan, M Yakin, Zwyssig, Atouba, Cantaluppi, Huggel, H Yakin (Rossi), Chipperfield, Gimenez (Barberis 82), Streller
Gult spjald: Degen 28
Lið Newcastle: Given, Hughes, O’Brien, Bramble, Bernard, Solano (Ambrose 85), Jenas, Speed, Robert (Viana 90), Shearer, Ameobi

Áhorfendur: 30.000
Dómari: T Ovrebo


27.11.2003
St James’ Park

Newcastle - FC Basel 1-0 (1-0)
Mark Newcastle: Smiljanic sjm. 14

Lið Newcastle: Given, Hughes, O’Brien, Bramble, Bernard, Dyer (Solano 79), Jenas, Speed, Robert (Ambrose 79), Shearer, Ameobi
Gult spjald: Shearer 1
Lið Basel: Zuberbuhler, P Degen, Quennoz, Zwyssig (Smiljanic 5), Atouba, Barberis (D Degen 53), Cantaluppi, H Yakin, Chipperfield, Rossi (Tum 62), Streller
Gult spjald: Cantaluppi 26

Áhorfendur: 40.395
Dómari: K Fisker


26.2.2003
Valhall, Osló

Valerenga – Newcastle 1-1 (0-1)
Mark Newcastle: Bellamy (39)
Mark Valerenga: Normann (54)

Newcastle United: Given, O'Brien, Jenas, Bellamy, Speed, Ambrose(Dyer 50'), Hughes, Bramble, Ameobi (Bridges 73') Bernard, Viana (Robert 73')
Gult spjald: Bernard 37
Bekkurinn: Harper, Elliott, Shearer,Taylor

Valerenga: Bolthof, Brocken, Hagen, Dos Santos, Rekdal, Berre, Hovi(Edvardsen 24' (Krogstad 87')), Gashi, Hanssen, Normann (Ovrebo 81'), Fredheim Holm
Gult spjald: Hanssen 78
Bekkurinn: Hjulstad, Bohinen, Naess Lund

Áhorfendur: 17.039
Dómari: Grzegorz Gilewski (Poland)


3.3.2004
St James’ Park

Newcastle - Valerenga 3-1 (1-1)
Mörk Newcastle: Shearer 19, Ameobi 47, 89
Mark Valerenga: Hagen 25

Lið Newcastle: Given, Hughes, Bramble, O’Brien, Woodgate, Jenas, Robert, Speed, Bridges (Brittain 76), Bellamy (Ameobi 45), Shearer
Gul spjöld: Bramble 27, Hughes 36
Lið Valerenga: Bolthof, Brocken, Hagen, Hovi, Santos, Gashi, Hanssen (Waehler 65), Jalland, Rekdal (Normann 70), Berre, Holm
Gul spjöld: Hagen 45, Brocken 74, Gashi 83

Áhorfendur: 38.531
Dómari: E Braamhaar


11.3.2004
St James’ Park

Newcastle - Real Mallorca 4-1 (0-0)
Mörk Newcastle: Bellamy 67, Shearer 71, Robert 74, Bramble 84
Mark Mallorca: Correa 57

Lið Newcastle: Given, Hughes, O’Brien, Bramble, Bernard, Dyer (Ambrose 87), Jenas, Speed, Robert, Shearer, Bellamy
Gult spjald: Dyer 69
Lið Mallorca: Franco, Cortes, Moya, Lussenhoff, Nino, Campano, Colsa (Marcos 65), Nagore, Nene, Correa (Finidi 65), Eto’o
Gul spjöld: Correa 35, Moya 35, Campano 45, Cortes 59, Lussenhoff 62, Colsa 65, Nagore 75
Rautt spjald: Moya 83

Áhorfendur 38.012
Dómari: A Hamer


25.3.2004
San Moix

Real Mallorca - Newcastle 0-3 (0-0)
Mörk Newcastle: Shearer 46, 90, Bellamy 78

Lið Mallorca: Miki, Lussenhoff, Poli, Ramis (Eto'o 52), Nagore, Nene, Toni Gonzalez (Nino 45), Marcos (Campano 38), Finidi, Bruggink, Perera.
Gul spjöld: Finidi 10, Ramis 39, Lussenhoff 48
Lið Newcastle: Given, Bramble, O'Brien (Taylor 81), Woodgate, Bernard, Ambrose, Speed (Bellamy 77), Jenas, Robert (Viana 66), Shearer, Ameobi.
Gul spjöld: Jenas 41, Ameobi 45

Áhorfendur: 11.500
Dómari: Konrad Plautz (Austurríki)


8.4.2003
Philipsstadion

PSV Eindhoven - Newcastle 1-1 (1-1)
Mark PSV: Kezman 15
Mark Newcastle: Jenas 45+

Lið PSV: Waterreus, Bogelund, Bouma, Colin, de Jong (Rommedahl 67), Lee, van Bommel, van der Schaaf (Vogel 66), Kezman, Park, Hesselink
Gul spjöld: van der Schaaf 13, de Jong 45, Waterreus 87
Lið Newcastle: Given, Hughes, Woodgate, Bramble, Bernard, Ambrose, Jenas, Speed, Robert, Shearer (Ameobi 89), Bellamy
Gult spjald: Jenas 68

Áhorfendur: 35.000
Dómari: Gilles Veissiere (Frakkland)


14.4.2004
St James’ Park

Newcastle - PSV Eindhoven 2-1 (1-0)
Mörk Newcastle: Shearer 10, Speed 66
Mark PSV: Kezman v. 50

Lið Newcastle: Given, Hughes, Woodgate, Bramble (O'Brien 78), Bernard, Ambrose (Ameobi 81), Jenas, Speed, Robert (Viana 90), Shearer, Bellamy.
Lið PSV: Waterreus, Bogelund, Colin, Bouma, Lee, De Jong, Vogel (Vonlanthen 75), Van Bommel, Park, Kezman, Rommedahl (Vennegoor of Hesselink 45).

Áhorfendur: 50.083
Dómari: Manuel Enrique Mejuto Gonzalez (Spánn)


22.4.2004
St James’ Park

Newcastle - Marseille 0-0
Lið Newcastle: Given, Hughes, O'Brien, Woodgate, Bernard, Ambrose, Viana, Speed, Robert, Ameobi (Bridges 78), Shearer
Lið Marseille: Barthez, Beye, Hemdani, Meite, Ferreira, Flamini, N'Diaye, Dos Santos, Batlles (Celestini 90), Meriem, Drogba.
Gult spjald. Beye

Áhorfendur: 52.004
Dómari: Valentin Ivanov (Rússland)


6.5.2004
Velodrome Stadium

Marseille - Newcastle 2-0 (1-0)
Mörk Marseille: Drogba 18, 82

Lið Marseille: Barthez, Beye, Hemdani, Meite, Ferreira, Dos Santos, Flamini, N'Diaye, Meriem, Marlet (Batlles 81), Drogba (Vachousek 90).
Gul spjöld: Beye 55, Flamini 75
Lið Newcastle: Given, Hughes, O'Brien, Bramble, Bernard, Ambrose, Viana (Bowyer 65), Speed, Robert, Shearer, Ameobi.
Gul spjöld: O'Brien 12, Viana 23, Bowyer 79.

Áhorfendur: 57.500
Dómari: M Lubos (Slovakía)

 


 

UEFA CUP 2004-05


14.4.2005
Jose Alvalade Stadium

Sporting - Newcastle 4-1 (1-1)
Mörk Sporting: Niculae 40, Sa Pinto 71, Beto 77, Rochemback 90
Mark Newcastle: Dyer 20

Lið Sporting: Ricardo, Anderson Polga, Rogerio, Rui Jorge, Beto, Carlos Martins (Pedro Barbosa 67), Rochemback, Joao Moutinho, Sa Pinto (Custodio 89), Niculae (Pinilla 75), Douala.
Gul spjöld: Beto, Anderson Polga.
Lið Newcastle: Given, Carr, Bramble (Andrew O'Brien 57), Taylor, Babayaro, Jenas (Milner 46), Faye, Bowyer, N'Zogbia, Dyer (Kluivert 60), Shearer.
Gul spjöld: Bowyer, Taylor.

Áhorfendur: 45.000
Dómari: Peter Frojdfeldt (Svíþjóð)


7.4.2005
St James’ Park

Newcastle – Sporting Lissabon 1-0 (1-0)
Mark Newcastle: Shearer 37

Lið Newcastle: Given (Harper 45), Carr, Andrew O'Brien, Taylor, Hughes, Dyer (Bowyer 63), Jenas, Faye, Robert (Milner 57), Shearer, Ameobi.
Gul spjöld: Hughes, Bowyer.
Lið Sporting: Ricardo, Rogerio, Beto, Anderson Polga, Rui Jorge, Rochemback, Carlos Martins (Mota 67), Pedro Barbosa (Tello 82), Joao Moutinho, Liedson, Sa Pinto.
Gult spjald: Liedson.

Áhorfendur: 36.753
Dómari: Yuri Baskakov (Rússland)


16.3.2004
St James’ Park

Newcastle - Olympiakos 4-0 (2-0)
Mörk Newcastle: Dyer 18, Shearer 45, Bowyer 54, Shearer 69

Lið Newcastle: Given, Carr (Ramage 67), Taylor, Andrew O'Brien, Hughes, Jenas, Bowyer, Butt, Robert (N'Zogbia 58), Dyer (Milner 58), Shearer
Lið Olympiakos: Nikopolidis, Mavrogenidis, Vallas, Anatolakis, Pantos, Maric, Stoltidis (Taralidis 79), Kafes, Djordjevic (Okkas 60), Giovanni (Filipakos 67), Castillo.
Gult spjald: Vallas

Áhorfendur: 32.163
Dómari: Konrad Plautz (Austurríki)


10.3.2005
Karaiskakis Stadium

Olympiakos - Newcastle 1-3 (1-2)
Mark Olympiakos: Djordjevic v. 16
Mörk Newcastle: Shearer v. 12, Robert 34, Kluivert 69

Lið Olympiakos: Nikopolidis, Mavrogenidis, Schurrer, Kostoulas, Anatolakis, Maric, Stoltidis, Djordjevic (Kafes 76), Georgatos, Rivaldo (Giovanni 65), Okkas (Pantos 65)
Gul spjöld: Kostoulas 25, Djordjevic 74
Rauð spjöld: Georgatos 11, Kostoulas 44
Newcastle: Given, Carr, Andrew O'Brien, Bramble, Hughes, Dyer (Jenas 60), Butt, Faye (N’Zogbia 84), Robert (Milner 60), Shearer, Kluivert.

Áhorfendur: 33.000
Dómari: Arturo Dauden Ibanez (Spánn)


24.2.2005
St James’ Park

Newcastle - Heerenveen 2-1 (2-0)
Mörk Newcastle: Breuer sjm. 10, Shearer 25
Mark Heerenveen: Bruggink 80 v.

Lið Newcastle: Given, Carr, Andrew O'Brien (Taylor 78), Bramble, Hughes, Dyer (Jenas 45), Faye, Butt, Robert, Ameobi, Shearer (Milner 65).
Lið Heerenveen: Vandenbussche, Bakkati, Hansson, Breuer (Seip 74), Rzasa, Yildirim, Vayrynen, Radomski, Hestad, Bruggink (Sikora 80), Huntelaar (Samaras 68).

Áhorfendur: 26.156
Dómari: Dejan Delevic (Serbía & Svartfjallaland)


17.2.2005
Abe Lenstra Stadion

Heerenveen - Newcastle 1-2 (1-0)
Mark Heerenveen: Huntelaar 24
Mörk Newcastle: Shearer 69, Bowyer 82

Lið Heerenveen: Vandenbussche, Bakkati, Hansson, Breuer, Rzasa, Vayrynen, Hestad, Huntelaar (Samaras 78), Prager (Rose 89), Bruggink (Sikora 79), Yildirim.
Gult spjald: Hansson.
Lið Newcastle: Given, Carr, Andrew O'Brien, Bramble, Faye, Babayaro (Hughes 52), Bowyer, Jenas, Kluivert, Ameobi (Robert 62), Shearer (Taylor 89).
Gul spjöld: Bowyer, Ameobi, Jenas
Rautt spjald: Bowyer
Sent Off: Bowyer (86).

Áhorfendur: 19.500
Dómari: Zsolt Szabo (Ungverjaland)


16.9.2004
St James’ Park

Newcastle - Hapoel Bnei Sakhnin 2-0 (2-0)
Mörk Newcastle: Kluivert 4, 42

Lið Newcastle: Given, Carr, Elliott, O'Brien, Hughes (Bernard 15), Dyer (Butt 58), Bowyer, Jenas, Robert, Ameobi (Milner 69), Kluivert.
Gult spjald: Bowyer
Rautt spjald: Butt 60
Lið Bnei Sakhnin: Murambadoro, Kasum (Edri 84), Etchi Oben, Danan, Basem Genaiem (Salameh 80), Elyahu, Soan, Hamud (Cleber 54), Rabbah, Masudi, Agoye.
Subs Not Used: Hilik, Abu Saleh, Khalaila, Shalaata.
Gul spjöld: Rabbah, Soan, Basem Genaiem, Danan, Cleber
Rautt spjald: Soan 60

Áhorfendur: 30.221
Dómari: Antonio Almeida Costa (Portúgal)


30.9.2004
Ramat Gan Stadium

Hapoel Bnei Sakhnin - Newcastle 1-5 (1-3)
Mark Hapoel: Masudi 13
Mörk Newcastle: Kluivert 9, 42, Shearer 38, 52(v), 90

Lið Bnei Sakhnin: Murambadoro, Kasum, Etchi Oben, Danan, Basem Genaiem, Elyahu, Rabbah, Khalaila (Rodrigues 80), Masudi, Arshid (Edri 45), Agoye (Abu Saleh 71)
Gul spjöld: Khalila, Kasum, Masudi
Rautt spjald: Murambadoro (88).
Lið Newcastle: Given (Harper 45), Carr, Bernard, Hughes, O'Brien, Jenas, Bowyer, Robert (Ambrose 62), Bellamy, Kluivert (Milner 62), Shearer.
Gul spjöld: Hughes, Ambrose.

Áhorfendur: 12000
Dómari: Julian Rodriguez Santiago (Spáni)


21.10.2004
Panionios Stadium

Panionios - Newcastle 1-0 (0-0)
Mark Newcastle: Shearer v. 87

Lið Panionios: Colceag, Dodd, Vlcek, Giannopoulos, Zimonjic (Goundoulakis 69), Parodi (Lagonikakis 75), Makos, Domoraud, Spiropoulos, Breska, Tsiolis.
Gul spjöld: Zimonjic 68, Lagonikakis 86.
Lið Newcastle: Given, Carr, O'Brien, Elliott, Bernard, Milner (Ameobi 67), Jenas, Bowyer, Robert, Bellamy, Shearer.
Gul spjöld: Carr 24, Bowyer 56.

Áhorfendur: 8000
Dómari: Roberto Rosetti (Ítalía)


4.11.2004
St James’ Park

Newcastle - Dinamo Tbilisi 2-0 (1-0)
Mörk Newcastle: Shearer 38, Bellamy 56

Lið Newcastle: Given, Hughes, Elliott (Bramble 69), O'Brien, Bernard, Jenas, Bowyer (Ambrose 64), Robert, Kluivert, Shearer (Milner 74), Bellamy.
Lið Tbilisi: Mamaladze, Kashia (Silagadze 62), Salukvadze, Shashiashvili, Kandelaki, Nemsadze, Aladashvili (Akhalaia 62), Kankava, Kvirkvelia, Melkadze (Goncharov 81), Mikheil Kakaladze.
Gul spjöld: Shashiashvili, Kankava.

Áhorfendur: 27.218
Dómari: Espen Berntsen (Noregi)


25.11.2004
Auguste-Bonal

Sochaux - Newcastle 0-4 (0-1)
Mörk Newcastle: Bowyer 29, Ameobi 46, Bellamy 75, Robert 90

Lið Sochaux: Richert, Paisley, Diawara, Daf, Mathieu, Pitau, Lonfat (Boudarene 17), Oruma, Isabey (Diarra 84), Ilan, Menez (Santos 57)
Lið Newcastle: Given, Bernard, Bramble, Hughes, Elliott, Bowyer (Dyer 62), Butt, Ambrose (Taylor 90), Milner (Robert 80), Ameobi, Bellamy.
Gul spjöld: Bowyer, Bernard.

Áhorfendur: 15.173
Dómari: Carlos Megia Davila (Spánn)


16.12.2004
St James’ Park

Newcastle - Sporting 1-1 (1-1)
Mark Newcastle: Bellamy 5
Mark Sporting: Custodio 40

Lið Newcastle: Given, Taylor (O'Brien 78), Bramble, Elliott, Hughes, Milner, Ambrose, Jenas, Bernard, Bellamy (Guy 79), Ameobi.
Gul spjöld: Bramble, Ameobi, Hughes.
Lið Sporting: Ricardo, Beto (Tello 83), Anderson Polga, Enakahire, Paito, Rogerio, Rochemback, Custodio, Tinga, Pinilla (Douala 66), Liedson.
Gul spjöld: Liedson, Beto.

Áhorfendur: 28.017
Dómari: Paul Allaerts (Belgíu)

 


 

INTER-TOTO 2005-06


3.8.2005
St James’ Park

Newcastle - Deportivo 1-2 (1-1)
Mark Newcastle: Milner 39
Mörk Deportivo: Andrade 45, Munitis 48

Lið Newcastle: Given, Carr, Elliott, Boumsong, Taylor, Bowyer, Faye (Ameobi 53), Milner (N'Zogbia 72) Parker, Emre (Brittain 90), Shearer.
Gul spjöld: Parker, Shearer, Taylor, Elliott
Lið Deportivo: Molina, Manuel Pablo, Andrade, Capdevila, Romero, Duscher, Scaloni, Sergio (Valeron 72), Munitis, Ruben Castro (Juanma 63), Tristan (Luque 55).
Gul spjöld: Tristan, Munitis, Manuel Pablo, Juanma.

Áhorfendur: 35.200
Dómari: Helmut Fleischer (Þýskaland)


27.7.2005
Riazor

Deportivo - Newcastle 2-1 (1-1)
Mörk Depor: Castro 11, Andrade 58
Mark Newcastle: Bowyer 47

Lið Depor: Molina, Manuel Pablo, Andrade, Romero, Capdevila, Munitis, Duscher (Victor 70), Sergio, Luque (Scaloni 61), Ruben Castro, Tristan (Valeron 56).
Gul spjöld: Ruben Castro, Capdevila.
Lið Newcastle: Given, Carr, Boumsong, Taylor, Babayaro, N'Zogbia, Bowyer, Butt, Faye, Milner (Chopra 71), Shearer.
Gul spjöld: Carr, Taylor.

Áhorfendur: 16.000
Dómari: Serge Gumienny (Belgíu)


23.7.2005
St James’ Park

Newcastle - Dubnica 2-0 (0-0)
Mörk Newcastle
: Shearer 71, 90
Lið Newcastle: Given, Carr, Boumsong, Taylor, Babayaro, Milner, Jenas (Chopra 46, (Brittain 58)), Bowyer, Faye, N'Zogbia, Shearer
FK ZTS Dubnica: Pernis, Pleva, Drzik, Kopacka (Skultety 82), Kiska (Augustini 68), Novak, Svestka, Izvolt, Zimen, Tesak, Adam (Svikruha 86)

Áhorfendur: 25.135
Dómari: Knut Kircher (Þýskaland)


17.7.2005
Mestsky

Dubnica – Newcastle 1-3 (1-2)
Mark Dubnica: Tesák 42
Mörk Newcastle: Chopra 4, N'Zogbia 6, Milner 70

Lið Dubnica: Pernis, Pleva, Drzik (Filo 85), Novák. Kopacka, Kiska (Brusko 79), Svestka, Izvolt (Grendel 69), Marián, Adam
Lið Newcastle: Harper, Taylor, Boumsong, Elliott, Babayaro, Milner, Butt, Faye, N’Zogbia, Shearer, Chopra (Brittain 58)

Áhorfendur:
Dómari: Alon Yefet (Ísrael)


EUROPEAN FAIRS CUP 1969-70

15.9.1969
Dundee United (SKO) - NUFC 1-2 (Davies 2)
Liðið: McFaul, Craggs, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Robson, Dyson, Davies, Arentoft, Smith.
Áhorfendur: 21.000

1.10.1969
NUFC - Dundee United 1-0 (Dyson)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, McNamee, Moncur, Robson, Dyson, Davies, Smith, Foggon (Arentoft).
Áhorfendur: 37.470

18.11.1969
FC Porto (POR) - NUFC 0-0
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Robson, Dyson, Davies, Arentoft, Guthrie (Scott).
Áhorfendur: 25.000

26.11.1969
NUFC - FC Porto 1-0 (Scott)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Scott, Robson, Davies, Arentoft, Foggon.
Áhorfendur: 44.833

17.12.1969
NUFC - Southampton 0-0
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, Burton, Moncur, Robson, Dyson, Davies, Arentoft, Scott (Foggon).
Áhorfendur: 38.163

14.1.1970
Southampton - NUFC 1-1 (Robson)
Liðið: McFaul, Craig, Clark, Gibb, McNamee, Moncur, Robson, Smith, Davies, Young (Gibb), Ford.
Áhorfendur: 25.182

11.3.1970
RSC Anderlecht (BEL) - NUFC 2-0
Liðið: McFaul, Craggs, Guthrie, Gibb, McNamee (Burton), Moncur, Robson, Dyson, Davies, Smith (Elliott), Foggon.
Áhorfendur: 30.000

18.3.1970
NUFC - RSC Anderlecht 3-1 (Dyson, Robson 2)
Liðið: McFaul, Craig, Clark (Young), Gibb, Burton, Moncur, Robson, Dyson, Davies, Guthrie, Foggon.
Áhorfendur: 59.309

 


EUROPEAN FAIRS CUP 1970-71

23.9.1970
Inter Milan (ÍTA) - NUFC 1-1 (Davies)
Liðið: McFaul, Craig, Guthrie, Gibb, Burton, Moncur, Robson, Dyson, Davies, Arentoft, Young.
Áhorfendur: 14.460

30.9.1970
NUFC - Inter Milan 2-0 (Davies, Moncur)
Liðið: McFaul, Craig, Guthrie, Gibb, Burton, Moncur, Robson, Dyson, Davies, Arentoft, Young.
Áhorfendur: 56.495

21.10.1970
NUFC - Pecsi Dozsa (UNG) 2-0 (Davies 2)
Liðið: McFaul, Craig, Guthrie, Gibb, Young, Moncur, Robson, Dyson, Davies, Smith, Ford.
Áhorfendur: 50.550

4.11.1970
Pecsi Dozsa - NUFC 0-2
Liðið: McFaul, Craig, Guthrie, Gibb, McNamee, Moncur, Robson, Dyson (Mitchell), Davies, Young, Ford (Hindson)
Áhorfendur: 25.000

 


UEFA CUP 1977-78

 

14.9.1977
Bohemians (ÍRL) - NUFC 0-0
Liðið: Mahoney, D Craig, Kennedy, Cassidy, Bird, Nattrass, Barrowclough, Cannell, Burns, Callachan, T Craig.
Áhorfendur: 25.000

28.9.1977
NUFC - Bohemians 4-0 (T Craig 2, Gowling 2)
Liðið: Mahoney, D Craig, Kennedy, MacLean, McCaffery, Nattrass, Barrowclough, Callachan, Burns, Gowling, T Craig.
Áhorfendur: 19.046

19.10.1977
Bastia (FRA) - NUFC 2-1 (Cannell)
Liðið: Hardwick, Kelly, Nattrass, Cassidy, McCaffery, Nulty, Barrowclough, Cannell, Burns, Gowling, T Craig.
Áhorfendur: 8.500

2.11.1977
NUFC - Bastia 1-3 (Gowling)
Liðið: Hardwick, Blackhall, Nattrass, Cassidy, McCaffery, Nulty (Bird), Barrowclough, Cannell (Hudson), Burns, Gowling, T Craig.
Áhorfendur: 34.560

 


UEFA CUP 1994-95

 

13.9.1994
Royal Antwerpen (BEL) - NUFC 0-5 (Lee 3, Sellars, Watson)
Liðið: Srnicek, Hottiger, Beresford, Venison, Peacock, Albert, Lee, Beardsley (Watson), Cole (Jeffrey), Fox, Sellars.
Áhorfendur: 19.700

27.9.1994
NUFC - Royal Antwerpen 5-2 (Cole 3, Beardsley, Lee)
Liðið: Srnicek, Hottiger, Beresford, Howey, Peacock, Albert, Lee (Watson), Beardsley (Clark), Cole, Fox, Sellars.
Áhorfendur: 31.383

18.10.1994
NUFC - Atletico Bilbao (SPÁ) 3-2 (Cole, Beardsley, Fox)
Liðið: Srnicek, Hottiger, Beresford, Howey, Peacock, Albert, Clark, Beardsley, Cole, Fox, Sellars.
Áhorfendur: 32.440

1.11.1994
Atletico Bilbao - NUFC 0-1
Liðið: Srnicek, Hottiger, Beresford, Howey, Peacock, Albert, Clark, Beardsley, Watson, Fox (Jeffrey), Sellars (Clark).
Áhorfendur: 47.000

 


 

UEFA CUP 1996-97

10.9.1996
NUFC - Halmstad (SVÍ) 4-0 (Beardsley, Asprilla, Ferdinand, Albert)
Liðið: Srnicek, Peacock, Watson, Howey, Asprilla, Clark, Lee, Shearer, Ferdinand, Ginola, Beardsley. (Varamenn: Albert, Gillespie, Barton)
Áhorfendur: 28.124

24.9.1996
Halmstad - NUFC 2-1 (Ferdinand)
Liðið: Srnicek, Beresford, Batty, Peacock, Barton, Albert, Lee, Gillespie, Shearer, Ferdinand, Asprilla. (Varamenn: Kitson, Clark).
Áhorfendur: 7.847

15.10.1996
Ferencvaros (UNG) - NUFC 3-2 (Shearer, Ferdinand)
Liðið: Srnicek, Watson, Beresford, Peacock, Batty, Albert, Lee, Gillespie, Shearer, Ferdinand, Beardsley. (Varamaður: Ginola).
Áhorfendur: 18.000

29.10.1996
NUFC - Ferencvaros 4-0 (Asprilla 2, Ferdinand, Ginola)
Liðið: Srnicek, Batty, Albert, Lee, Peacock, Gillespie, Ferdinand, Ginola, Beardsley, Elliott, Asprilla.
Áhorfendur: 35.740

19.11.1996
Metz (FRA) - NUFC 1-1 (Beardsley)
Liðið: Srnicek, Beresford, Batty, Albert, Lee, Gillespie, Ginola, Beardsley, Asprilla, Peacock, Barton. (Varamaður: Elliott).
Áhorfendur: 23.000

3.12.1996
NUFC - Metz 2-0 (Asprilla 2)
Liðið: Srnicek, Batty, Albert, Lee, Gillespie, Shearer, Ginola, Beardsley, Elliott, Asprilla, Peacock. (Varamenn: Watson, Clark).
Áhorfendur: 35.641

4.3.1997
NUFC - Monaco 0-1
Liðið: Hislop, Watson, Batty, Albert, Lee, Gillespie, Ginola, Elliott, Clark, Peacock, Barton.
Áhorfendur: 36.215

18.3.1997
Monaco - NUFC 3-0
Liðið: Hislop, Watson, Batty, Albert, Lee, Ginola, Beardsley, Elliott, Asprilla, Peacock, Barton. (Varamenn: Beresford, Gillespie, Clark).
Áhorfendur: 18.500

 


CHAMPIONS LEAGUE 1997-98

FORKEPPNI

13.8.1997
NUFC - Croatia Zagreb (KRÓ) 2-1 (Beresford 2)
Liðið: Given, Beresford, Batty, Lee, Asprilla, Pearce, Ketsbaia, Tomasson (Gillespie), Watson, Pistone, Albert (Howey).
Áhorfendur: 34.465

27.8.1997
Croatia Zagreb - NUFC 2-2 (Asprilla, Ketsbaia)
Liðið: Given, Barton, Beresford (Gillespie), Batty, Lee, Asprilla, Pearce (Howey), Tomasson (Ketsbaia), Watson, Pistone, Albert.
Áhorfendur: 34.000

RIÐLAKEPPNI 1

17.9.1997
NUFC - Barcelona (SPÁ) 3-2 (Asprilla 3)
Liðið: Given, Barton, Beresford, Batty, Lee, Barnes (Ketsbaia), Asprilla, Tomasson (Peacock), Gillespie, Watson, Albert.
Áhorfendur: 35.274

1.10.1997
Dynamo Kiev (ÚKR) - NUFC 2-2 (Beresford 2)
Liðið: Given, Barton, Beresford, Batty, Peacock, Lee (Ketsbaia), Barnes, Asprilla (Tomasson), Gillespie, Watson, Albert.
Áhorfendur: 100.000

22.10.1997
PSV Eindhoven (HOL) - NUFC 1-0
Liðið: Given, Barton (Albert), Beresford (Ketsbaia), Batty, Peacock, Howey, Lee, Rush, Tomasson, Gillespie, Watson.
Áhorfendur: 29.200

5.11.1997

 


EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA 1998-99



17.9.1998
NUFC - Partizan Belgrad (JÚG) 2-1 (Shearer, Dabizas)
Liðið: Given, Pearce, Charvet, Glass, Watson, Dabizas, Lee, Barnes, Speed, Shearer, Ketsbaia, Andersson. (Varamaður: Solano).
Áhorfendur: 26.599

1.10.1998
Partizan Belgrad - NUFC 0-1
Liðið: Given, Pearce, Batty, Speed, Ketsbaia, Charvet, Glass, Solano, Dabizas, Griffin, Shearer. (Varamaður: Albert).
Áhorfendur: 26.000

 


UEFA CUP 1999-2000

 

16.9.1999
CSKA Sofia (BÚL) - NUFC 0-2 (Solano, Ketsbaia)
Liðið: Harper, Domi, Dabizas, Goma, Barton, Speed, Lee, Dyer, Solano (Hamilton), Shearer, Ferguson (Ketsbaia).
Áhorfendur: 25.000

30.9.1999
NUFC - CSKA Sofia 2-2 (Shearer, Robinson)
Liðið: Harper, Barton, Marcelino, Goma, Domi, Dabizas, Solano, Lee (McClen), Speed, Maric (Robinson), Shearer (Glass).
Áhorfendur: 36.200

21.10.1999
FC Zurich (SVI) - NUFC 1-2 (Maric, Shearer)
Liðið: Harper, Barton, Dabizas, Hughes, Domi, Solano (McClen), Dyer (Serrant), Lee, Speed, Shearer, Maric (Robinson).
Áhorfendur: 9.500

4.11.1999
NUFC - FC Zurich 3-1 (Maric, Ferguson, Speed)
Liðið: Harper, Barton, Domi, Lee (McClen), Marcelino, Dabizas, Solano, Ferguson (Robinson), Shearer, Maric (Glass), Speed.
Áhorfendur: 34.502

25.11.1999
AS Roma (ÍTA) - NUFC 1-0
Liðið: Harper, Barton, Charvet, Dabizas, Hughes, Pistone, Lee, Speed, Solano, Shearer, Ketsbaia (Robinson).
Áhorfendur: 45.655

9.12.1999
NUFC - AS Roma 0-0
Liðið: Harper, Dumas (Hughes), Charvet, Dabizas, Pistone, Dyer (Ferguson), Speed, Solano, Lee, Shearer, Ketsbaia (Glass).
Áhorfendur: 35.739

 


30.9.2004

Kóngurinn telur
Alan Shearer setti þrennu þegar Newcastle vann léttan sigur á Sakhnin í kvöld. Patrick Kluivert gerði fyrsta mark leiksins en heimamenn jöfnuðu skömmu síðar við fögnuð. Alan Shearer náði forystu á ný eftir að markmaður Sakhnin missti boltann frá sér og Kluivert setti þriðja markið fyrir hlé. Shearer gerði það fjórða úr víti og það fimmta með glæsilegu vinstrifótarskoti undir lokin. Þar með er Newcastle komið áfram í Uefa bikarnum og nú er að vita hvaða mótherjar bíða í riðlakeppninni sem tekur við.

Souness mátti gera breytingar á síðustu stundu þar sem Robbie Elliott var með magakveisu og tók Aaron Hughes stöðu hans. Annars var vörnin eins skipuð og í síðustu leikjum. Bellamy var enn á hægri væng og JJ og Bowyer á miðju en Robert á vinstri vængnum. Shearer og Kluivert frammi.
Newcastle byrjaði af krafti og ljóst að menn vildu skora útimark til að tryggja stöðuna. Bellamy olli usla með hraða sínum og Newcastle komst yfir eftir aðeins níu mínútur. Jenas og Kluivert spiluðu inn í teig og sendi JJ laglega með hælnum út á Kluivert sem skoraði af öryggi. Adam var þó eigi lengi í Paradís því aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Masudi fyrir heimamenn. Vörnin var illa á verði og Kassum náði að senda á óvaldaðan Masudi sem skaut óverjandi í netið.
Leikmenn Sakhnin voru við sama heygarðshornið og í fyrri leiknum og spiluðu afar fast og voru sumar tæklingarnar skrautlegar í meira lagi. Gestirnir reyndu samt að spila góðan bolta og minnstu munaði að Bowyer skoraði eftir að Shearer hafði skallað til hans en sá fyrrnefndi rétt missti af sendingunni. Skömmu síðar stakk Bowyer sér inn og náði sæmilegu skoti á mark. Markvörðurinn Energy Murambadoro hafði ekki kraft til að halda skotinu og boltinn lak fyrir markið. Þar var Alan Shearer mættur eins og gammur og sendi hann í netið.
Og nú voru gestirnir komnir í gang. Skömmu fyrir hlé gerði Kluivert út um leikinn með ágætu marki eftir laglegan undibúning Roberts.

Souness skipti um markvörð í hléi svo að Steve Harper fékk langþráð tækifæri. Shearer var greinilega á því að bæta við marki en það tókst þó ekki fyrr en liðið fékk vítaspyrnu. Brotið var klaufalega á Jenas við vítateigshornið og dómarinn gat ekki annað en flautað víti. Shearer skoraði auðvitað af öryggi.
Kluivert fékk ekki séns til að ná þrennu því Souness skipti honum útaf ásamt Robert en sendi Milner og Ambrose til leiks. Bellamy langaði að vera með í markaveislunni en Murambadoro varði glæsilega fallegt klippiskot framherjans. Bellamy var svo nálægt því að komast í gegn en fékk dæmda á sig hendi. Murambadoro varði skot frá Bowyer en þegar þrjár mínútur voru eftir var markmaðurinn rekinn af velli fyrir að verja með hendi utan teigs þegar Bellamy var að fara að setja í netið. Shearer náði svo að klára þrennuna með síðustu spyrnu leiksins, fékk boltann frá Milner, lagði hann fyrir sig og þrumaði í netið með vinstri utan teigs. Mjög laglegt mark og sætt fyrir karlinn. Lokastaðan 1-5 og Newcastle vann því samtals 7-1.

Það er hreint ekki auðvelt að dæma lið Newcastle af þessum leik. Lið Sakhnin er líklega eitt það slakasta sem félagið mun nokkru sinni leika gegn í Evrópumóti. Það eina sem leikmenn liðsins gátu var að brjóta á mönnum og má í raun þakka fyrir að enginn skyldi meiðast illa. Með réttu hefðu leikmenn Sakhnin átt að fá fleiri rauð spjöld og ekki orð um það meir.
Það var þó margt jákvætt við leik Newcastle. Vörnin stóð sig þokkalega en Bernard var þó að hleypa of miklu upp sinn væng. Hughes fékk líka á sig óþarfa spjald. Robert var líflegur á köflum og Bellamy afar sprækur. Hefði átt skilið að setja mark. Þeir Bowyer og JJ voru mjög góðir á miðjunni og sérlega gaman að fylgjast með þeim síðarnefnda. Bowyer hefði líka átt skilið að skora mark.
Þá eru ónefndir framherjarnir sem fóru auðvitað á kostum gegn slakri vörn. Kluivert ætlar að reynast hinn mesti happafengur og nú hljóta allar efasemdarraddir að vera um það bil að þagna. Hér er á ferð feikigóður knattspyrnumaður sem kann að gera gæfumuninn fyrir Newcastle. Allir vita svo að Kóngur vor er engum líkur, einfaldlega sá besti í bransanum. Nú er hann búinn að setja 179 mörk fyrir Newcastle og vantar aðeins 21 til að jafna met Wor Jackie Milburns.

Maður leiksins: Það er kannski hart að ganga framhjá Alan Shearer sem setti aðra Evrópuþrennu sína en Jermaine Jenas var feikilega flottur á miðjunni og þegar hann spilar svona er engin spurning um að þar fer maður í heimsklassa. Vel gert JJ!


30.9.2004
Ramat Gan Stadium

Hapoel Bnei Sakhnin - Newcastle 1-5 (1-3)
Mark Hapoel: Masudi 13
Mörk Newcastle: Kluivert 9, 42, Shearer 38, 52(v), 90

Lið Bnei Sakhnin: Murambadoro, Kasum, Etchi Oben, Danan, Basem Genaiem, Elyahu, Rabbah, Khalaila (Rodrigues 80), Masudi, Arshid (Edri 45), Agoye (Abu Saleh 71)
Gul spjöld: Khalila, Kasum, Masudi
Rautt spjald: Murambadoro (88).
Lið Newcastle: Given (Harper 45), Carr, Bernard, Hughes, O'Brien, Jenas, Bowyer, Robert (Ambrose 62), Bellamy, Kluivert (Milner 62), Shearer.
Gul spjöld: Hughes, Ambrose.

Áhorfendur: 12000
Dómari: Julian Rodriguez Santiago (Spáni)

 


17.2.2005

Komnir hálfa leið
Newcastle er komið hálfa leið áfram í Uefa keppninni. Liðið vann Heerenveen 2-1 á útivelli og var sérlega ánægjulegt að vinna eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik. Huntelaar kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik eftir mistök Titus Bramble en Alan Shearer jafnaði metin. Lee Bowyer tryggði svo sigurinn með lunknu marki en hann var síðan rekinn af velli með tvö gul spjöld. Heimamönnum tókst þó ekki að jafna og þeir eiga því erfiðan leik fyrir höndum á SJP.
Olympiakos vann 1-0 sigur á Sochaux í Grikklandi en sigurvegari þeirrar rimmu verður andstæðingur Newcastle eða Heerenveen í næstu umferð.

Souness gat verið ánægður með að Jermaine Jenas var leikfær þrátt fyrir að hafa ekki verið með á æfingu á miðvikudegi vegna veikinda. Stjórinn tefldi fram vörninni sem við mátti búast, Carr, O’Brien, Bramble og Babayaro. Á miðjunni voru Faye, Bowyer og Jenas og Kluivert rétt fyrir aftan þá Shearer og Ameobi sem voru fremstir. Enn á ný engir vængmenn.
Leikurinn fór ágætlega af stað og Newcastle virtist líklegt til að ná forystu. Ekki tókst þó að skapa dauðafæri en Shearer var næst því að skora á 4. mínútu en Tomasz Rzasa blokkeraði skot hans vel. Heerenveen sýndi ekki mikið en þó var framherjinn Klaas-Jan Huntelaar greinilega hættulegur og það var hann sem skoraði fyrsta mark leiksins á 24. mínútu. Bramble var klaufskur að ná ekki að bjarga þegar stungið var inn á teig, Huntelaar náði boltanum og snéri sér laglega áður en hann þrumaði glæsilega með vinstri í slá og inn. Flott mark! Sjálfstraust heimamanna jókst og tveimur mínútum síðar munaði minnstu að þeir skoruðu aftur. Frábær fyrirgjöf en Huntelaar náði ekki til knattarins. Gestirnir áttu í erfiðleikum en bestu sóknartilþrifin komu undir lok hálfleiksins þegar Shola Ameobi vann sér svæði vinstra megin og sendi fyrir en þar náði enginn samherji að komast í boltann.

Souness hefur áreiðanlega lesið vel yfir mönnum í hléi því baráttan var mun betri þegar menn mættu aftur til leiks. Áhangendur voru farnir að ókyrrast og einhverjir kölluðu eftir því að hausar Souness og stjórnarmanna yrðu látnir fjúka og þessu yrði hreinlega að svara með betri frammistöðu. Stephen Carr átti strax góða fyrirgjöf en vörn Heerenveen stóð enn. Ekki gekk samt vel að skapa góð færi og ljóst var að breytinga væri þörf. Souness setti Robert inná fyrir Shola þegar 28 mínútur voru eftir og færði Kluivert framar. Breytingin skilaði strax árangri, breidd vallarins nýttist mun betur og á 66. mínútu jafnaði Newcastle metin. Robert sendi á Kluivert sem lagði strax inn á Alan Shearer. Shearer, sem hafði skömmu áður fengið ágætt færi, kláraði af alkunnri snilld. Kóngurinn klikkar kannski einu sinni en ekki tvisvar í röð. Frábært hjá fyrirliðanum sem enn eina ferðina leiddi sína menn með ódrepandi baráttugleði. Þetta losaði greinilega um pressu á leikmönnum og þegar átta mínútur voru til leiksloka kom annað mark. Carr sendi fyrir, boltinn hafði viðkomu í Kluivert og fór þaðan fyrir markið. Þar var Lee Bowyer og sendi hann laglega með hælnum í markið. Vel gert hjá Bowyer. Litlu munaði hins vegar að önnur mistök Bramble hefðu kostað mark skömmu síðar. Mika Vayrynen hirti þá boltann af Bramble og var kominn einn í gegn en Given varði frábærlega. Lee Bowyer var svo rekinn af velli þegar hann fékk sitt annað gula spjald og verður að segja að bæði voru gefin fyrir harla litlar sakir. Bowyer hefur oft átt skilið að fá spjöldin en að þessu sinni verðskuldaði hann ekki að vera rekinn útaf.

Þetta var enginn glansleikur en engu að síður mjög gott að vinna sigur. Sannarlega nauðsynlegt fyrir Souness og liðið. Vörnin var alveg þokkaleg en tvenn mistök Brambles afleit. Það má þó ekki gleyma því að hann gerði margt gott í leiknum. Carr átti mjög góðan leik en Babayaro fór laskaður af velli en meiðsli hans eru víst ekki alvarleg. Andy var ágætur og Aaron Hughes átti fína innkomu.
Jenas átti ágætan dag, sérstaklega eftir því sem á leikinn leið og Faye var hinn þokkalegasti skjöldur fyrir framan vörnina. Bestur miðjumannanna var þó Bowyer sem var út um allan völl og var baráttugleði hans til fyrirmyndar. Gott mark en leitt að hann skyldi vera rekinn af velli. Nú tekur við tveggja leikja bann hjá Bowyer, hann tekur út leikbann heima gegn Chelsea og svo Evrópubann í seinni leiknum gegn Heerenveen. Slæmt að missa hann.
Kluivert fann sig alls ekki í holunni en komst strax miklu meira inn í leikinn eftir að Robert kom inná og hann gat fært sig framar. Hollendingurinn sýndi þá ágæta takta og átti reyndar þátt í báðum mörkunum. Vonandi fer hann að hrökkva almennilega í gang. Shola átti ekki góðan dag og virðist ekki hafa fundið sig í síðustu leikjum. Shearer var góður að vanda og það er hrein unun að sjá hvernig hann drífur sína menn áfram með baráttunni. Þá er rétt að hrósa Robert fyrir fína innkomu að þessu sinni. Þegar hann kom breyttist leikur Newcastle greinilega til batnaðar en spilið hafði verið allt of þröngt fram að því. Newcastle hlýtur að vera búið að tryggja sig áfram í keppninni, það þarf einfaldlega stórslys á SJP ef hollenska liðið á að vinna þetta upp.

Maður leiksins: Lee Bowyer átti þetta skilið en það er ekki hægt að velja mann sem fær að líta rauða spjaldið. Steve Carr verður því fyrir valinu en hann átti líka fínan leik.


17.2.2005
Abe Lenstra Stadion

Heerenveen - Newcastle 1-2 (1-0)
Mark Heerenveen: Huntelaar 24
Mörk Newcastle: Shearer 69, Bowyer 82

Lið Heerenveen: Vandenbussche, Bakkati, Hansson, Breuer, Rzasa, Vayrynen, Hestad, Huntelaar (Samaras 78), Prager (Rose 89), Bruggink (Sikora 79), Yildirim.
Gult spjald: Hansson.
Lið Newcastle: Given, Carr, Andrew O'Brien, Bramble, Faye, Babayaro (Hughes 52), Bowyer, Jenas, Kluivert, Ameobi (Robert 62), Shearer (Taylor 89).
Gul spjöld: Bowyer, Ameobi, Jenas
Rautt spjald: Bowyer
Sent Off: Bowyer (86).

Áhorfendur: 19.500
Dómari: Zsolt Szabo (Ungverjaland)


 

25.3.2004

Flottur sigur
Newcastle vann fínan sigur í Mallorca í kvöld. Liðið lenti aldrei í teljandi vandræðum og vann að lokum 3-0. Samtals vann Newcastle því 7-1 sem hlýtur að teljast ansi sterkt. Fyrri hálfleikur var markalaus en Alan Shearer setti fyrsta markið í upphafi seinni hálfleiks. Varamaðurinn Craig Bellamy þurfti ekki að vera lengi inná til að setja fallegt mark og undir lok leiksins skoraði svo Shearer aftur og gulltryggði sigurinn. Því má þó ekki gleyma að besti maður Newcastle var líklega Shay Given sem varði margoft glæsilega.
Newcastle er þar með komið í fjórðungsúrslit keppninnar þar sem mótherjinn verður PSV Eindhoven. Hollendingarnir unnu léttan sigur á Auxerre, 3-0 í kvöld og 4-1 samtals, og verða án efa erfiðir andstæðingar.
Liverpool féll úr leik eftir tap í Marseille og Celtic hélt jöfnu í Barcelona svo að spænski risinn er úr leik. Önnur lið sem komust áfram eru Valencia, Bordeaux, Villarreal og Inter Milan.

Sir Bobby kaus að byrja með Ameobi í sókninni. Andy O’Brien þurfti að taka hægri bakvörðinn og Titus var við hlið Woodys í hjarta varnarinnar. Ambrose á hægri kantinum. Lið Mallorca laskað vegna meiðsla lykilmanna og leikbanna. Newcastle byrjaði vel og Laurent Robert hitaði markvörðinn Miki vel upp með ógnarskoti úr aukaspyrnu af um 40 metra færi. Miki missti reyndar boltann frá sér en ekki náðu sóknarmenn að gera sér mat úr því. Miki varði svo vel sjö mínútum síðar þegar Jermaine Jenas lék laglega í gegnum vörn Mallorca og skaut að marki.
En það var meira að gerast hinum megin í fyrri hálfleiknum og Shay Given hafði reyndar nóg að gera. Arnold Bruggink, sem áður lék undir stjórn Sir Bobbys hjá PSV, var sprækur átti laglegt skot sem Shay náði að slá framhjá marki. Hvað eftir annað voru leikmenn Mallorca nálægt því að skora en Shay reyndist ávallt of sterkur.

Leikmenn Mallorca ætluðu sér sjálfsagt að skora í seinni hálfleiknum en Alan Shearer setti strik í reikninginn strax í upphafi hans. Miki átti þá misheppnaða sendingu frá marki sínu, boltinn hafnaði hjá Shearer sem var um 30 metra frá marki. Kóngurinn náði að leika knettinum til hliðar og sendi hann svo af krafti í markhornið, óverjandi fyrir hinn ólánssama Miki. Leikurinn breyttist þó ekkert sérstaklega við markið. Leikmenn Mallorca héldu áfram uppteknum hætti og Shay hafði nóg að gera. Á 78. mínútu kom hins vegar annað mark Newcastle og áttu varamennirnir allan heiðurinn af því. Hugo Viana vann boltann framan við vítateig Mallorca og sendi fram á Craig Bellamy. Bellamy var fyrir innan miðju en hafði örlítið forskot á varnarmann Mallorca. Það dugði og hinn sprettharði Bellamy stakk varnarmanninn hreinlega af, lék með boltann upp að vítateig og sendi hann svo fallega yfir Miki í markinu. Sérlega fallegt mark í alla staði og glæsilega gert hjá Bellamy sem fagnaði líka vel. Sjötta mark Bellamys síðan hann kom aftur í liðið eftir meiðslin.
Á 90. mínútu kom síðasta mark leiksins. Bellamy sendi út á vinstri vænginn. Þar tók Ollie Bernard við og fékk hann pláss og tíma til að komast upp að vítateig. Shearer beið dauðafrír á markteig og átti ekki í nokkrum vandræðum með að renna í markið þegar Ollie sendi á hann. Líklega með auðveldari mörkum sem Kóngurinn hefur sett.

Sigurinn var eins og áður sagði, frekar léttur, en þó ber að þakka Shay frábæra frammistöðu. Hann varði stórkostlega frá Arnold Bruggink, Txomin Nagore og Jesus Perera og átti sannarlega skilið að halda hreinu. Það verður ekki séð að þeir séu margir markverðirnir í heiminum í dag sem eru betri en Írinn snjalli.
Vörn Magpies var ekkert alltof örugg og stundum eins og menn væru helst til kærulausir. Woodgate var bestur varnarmannanna og gaman að sjá hvað hann leysir allt léttilega. Bramble átti sæmilegan dag en Andy var eðlilega í vandræðum með bakvarðarstöðuna. Komst þó þokkalega frá leiknum. Ollie Bernard var ekki upp á sitt besta varnarlega.
Jermaine Jenas hélt uppteknum hætti frá því gegn Charlton og átti mjög góðan leik, kannski sinn besta á tímabilinu. Barðist vel, skemmdi fyrir miðjumönnum Mallorca og byggði svo upp sóknir. Verulega gaman að sjá hann kominn í sitt rétta form. Vængmennirnir voru ekkert spes. Ambrose þokkalegur en Robert hvarf hreinlega eftir góða byrjun. Gary Speed duglegur að vanda en að þessu sinni kom ekki mikið vitrænt frá þessum iðna leikmanni. Sóknin var fín. Shearer var ekkert sérlega mikið í boltanum en sýndi styrk sinn með því að setja tvö mörk. Ameobi ávallt duglegur og á þönum allan leikinn. Að þessu sinni var hann þó ekki eins heppinn og stundum áður.
Af varamönnunum var Bellamy bestur og mark hans mjög fallegt. Nauðsynlegur partur af liðinu. Hugo barðist vel eða eins og einhver sagði: „Hvað, Hugo er bara í vinnunni!” Gott hjá stráknum og hann naut sín sérlega vel eftir að Gary Speed kom útaf og Hugo fór inn á miðjuna. En líklega verður þó leikurinn eftirminnilegastur fyrir Steven Taylor en þessi ungi varnarmaður kom inná fyrir Andy O’Brien á 81. mínútu og skilaði sínu vel. Small inn í liðið eins og hann væri þaulvanur. Vonandi framtíðarmaður á Tyneside, hefur a.m.k. burðina til að verða fantagóður varnarmaður.

En Newcastle er semsagt komið í fjórðungsúrslit og mætir þar PSV Eindhoven. Þar fer sterkt lið og má áreiðanlega reikna með hörkuleikjum. Með réttu hugarfari og gíðum anda er engin spurning að lið Magpies getur þó lagt Hollendingana og þá fer nú að verða gaman fyrir alvöru. Auðvitað er draumurinn sá að okkar menn leiki til úrslita í Gautaborg en enn er langt í að sá draumur rætist.

Maður leiksins: Súper Shay Given. Er jafn mikilvægur þessu liði og Alan Shearer og sannar hvað eftir annað að hann er einn af bestu markvörðum heims. Eða sjá menn einhvern betri í ensku úrvalsdeildinni?


25.3.2004
San Moix

Real Mallorca - Newcastle 0-3 (0-0)
Mörk Newcastle: Shearer 46, 90, Bellamy 78

Lið Mallorca: Miki, Lussenhoff, Poli, Ramis (Eto'o 52), Nagore, Nene, Toni Gonzalez (Nino 45), Marcos (Campano 38), Finidi, Bruggink, Perera.
Gul spjöld: Finidi 10, Ramis 39, Lussenhoff 48
Lið Newcastle: Given, Bramble, O'Brien (Taylor 81), Woodgate, Bernard, Ambrose, Speed (Bellamy 77), Jenas, Robert (Viana 66), Shearer, Ameobi.
Gul spjöld: Jenas 41, Ameobi 45

Áhorfendur: 11.500
Dómari: Konrad Plautz (Austurríki)

 


6.5.2004

Drogba drap drauminn
Didier Drogba sá til þess að gera Evrópudraum Magpies að engu. Hann skoraði bæði mörk Marseille í 2-0 sigri og var sigurinn fyllilega verðskuldaður. Fyrra markið kom á 18. mínútu eftir herfileg mistök en það seinna þegar skammt var til leiksloka. Liðsmenn Magpies reyndu hvað þeir gátu en eins og svo oft áður á tímabilinu voru þeir lánlausir. Þar með er ekkert annað að gera en að snúa sér að baráttunni um Evrópusætin.

Bobby stillti upp sama byrjunarliði og gegn Man City. Fátt markvert gerðist framan af leik og jafnræði var með liðunum. Andy O’Brien fékk gult spjald á 12. mínútu fyrir fremur litlar sakir. Þar með var ljóst að hann yrði ekki með í úrslitaleiknum. Sex mínútum síðar skoruðu svo heimamenn fáránlegt mark. Newcastle fékk aukaspyrnu sem þeir Bernard og Robert sáu um að framkvæma. Varnarmenn Marseille hreinsuðu og Viana glutraði boltanum til Meriem sem náði að koma honum fram á Didier Drogba. Drogba fór illa með Aaron Hughes og skoraði svo framhjá Given. Fátt var um færi, Robert átti skot yfir markið úr aukaspyrnu og Shola Ameobi vildi fá víti þegar hann féll við í teignum. Dómaratuskan var ekki á sama máli.

Newcastle byrjaði seinni hálfleikinn af nokkrum krafti. Ameobi var líflegur og átti ágætt skot framhjá markinu. Barthez varði síðan frá Robert og Shearer. Dómarinn þorði ekki að dæma víti þegar boltinn fór í hönd eins varnarmanna Marseille. Á 77. mínútu tókst Ameobi að skalla fyrir markið en Lee Bowyer náði ekki almennilega til boltans og skot hans fór framhjá marki. Bowyer var svo áminntur fyrir brot á Sylvain N’Dyiaye og nokkur hiti hljóp í menn. En á 82. mínútu gerði Drogba svo út um leikinn. Laurent Batlles sendi boltann fyrir og Drogba fékk næði til að þruma í mark, óverjandi fyrir Given.

Það er ekki margt hægt að segja um leik Magpies. Liðið var aldrei líklegt til að vinna og þegar við bætist lánleysið er ekki von á góðu. Given verður ekki sakaður um mörkin. Hughes var ekki upp á sitt besta og virtist hreinlega hálf stressaður. Andy og Titus voru ágætir og sérstaklega ber að hrósa Andy fyrir að halda haus með gult á bakinu allan leikinn. Titus sendi boltann hins vegar fulloft út í loftið. Olivier Bernard var sterkur og líklega besti maður liðsins.
Miðjan var slök. Ambrose vann svo sem ágætlega en lítið kom út úr því. Hugo Viana var einfaldlega arfaslakur og örugglega langversti maður vallarins. Svona frammistaða er hreinlega til skammar fyrir drenginn og menn hljóta að fara að spyrja hví í ósköpunum hann hafi verið keyptur fyrir of fjár. Lee Bowyer gerði mun meira þann skamma tíma sem hann var inná. Speed virkaði gamall og þreyttur og réði ekki við hraðann í leiknum. Robert reyndi en að þessu sinni gekk ekkert upp hjá honum. Shearer átti óttalega slakan dag en Ameobi var þó ágætur í seinni hálfleiknum.
Liðsmenn Marseille voru einfaldlega sterkari á öllum sviðum knattspyrnunnar, fljótari, ákveðnari og öruggari með sig. Eigum við ekki bara að vona að hinn eitraði Drogba og félagar fari alla leið og hampi bikarnum í Svíþjóð. Annars er manni auðvitað alveg skítsama um það. Newcastle er málið!

Maður leiksins: Olivier Bernard átti ágætan dag.


6.5.2004
Velodrome Stadium

Marseille - Newcastle 2-0 (1-0)
Mörk Marseille: Drogba 18, 82

Lið Marseille: Barthez, Beye, Hemdani, Meite, Ferreira, Dos Santos, Flamini, N'Diaye, Meriem, Marlet (Batlles 81), Drogba (Vachousek 90).
Gul spjöld: Beye 55, Flamini 75
Lið Newcastle: Given, Hughes, O'Brien, Bramble, Bernard, Ambrose, Viana (Bowyer 65), Speed, Robert, Shearer, Ameobi.
Gul spjöld: O'Brien 12, Viana 23, Bowyer 79.

Áhorfendur: 57.500
Dómari: M Lubos (Slovakía)

 


6.11.2003

Vinnusigur
Newcastle gerði það sem þurfti en ekkert meira en það, þegar liðið vann seinni leikinn gegn FC Basel í Uefa keppninni í gær. Sjálfsmark Boris Smiljanic á 14. mínútu varð eina mark leiksins og Newcastle vann 4-2 samanlagt. Góður sigur en leikurinn í heild lítt skemmtilegur á að horfa.

Fyrri hálfleikur var þó ágætur enda blésu bæði lið til sóknar. Svisslendingarnir urðu auðvitað að skora en liðsmenn Newcastle tóku vel á móti og voru líklegri. Alan Shearer fékk gult strax á 1. mínútu, fyrir að brjóta á Marco Zwyssig. Marco varð reyndar að fara af velli eftir tæklinguna og Smiljanic tók hans stöðu.
Á 14. mínútu kom svo markið. Laurent Robert tók horn frá hægri, Shearer barðist um boltann við varnarmann, boltinn sigldi yfir báða en beint í fætur varamannsins Boris Smiljanic og af honum í netið. Klaufalegt og má segja að markvörðurinn Pascal Zuberbuhler hefði átt að hremma boltann.
Um miðjan hálfleikinn fór heldur betur um stuðningsmenn Magpies. Cantaluppi fór þá illa með vörn Newcastle og slapp í gegn. Given kom á móti og virtist fella Cantaluppi sem var að stinga sér framhjá markverðinum. Dómarinn gaf hins vegar Cantaluppi gult og Given slapp með skrekkinn. Endalaust er hægt að deila um svona atvik en Cantaluppi var búinn að missa boltann langt frá sér. Given snerti hann áreiðanlega en leikmaðurinn gerði kannski mistök með því að falla of harkalega.
Liðin skiptust á um að sækja og Svisslendingarnir gátu þakkað Zuberbuhler í tvígang. Hann varði mjög vel þrumuskot frá Shearer og síðar þokkalega frá Gary Speed, sem var að leika sinn 250. leik fyrir Magpies. Hinum megin greip Given nokkrum sinnum mjög vel inní. Hann varði vel frá Rossi og frábærlega frá Marco Streller.

Ekki var langt liðið af seinni hálfleik þegar Rossi kom boltanum í netið hjá Given en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Tæpt var það þó. Áður hafði Yakin átt aukaspyrnu í utanverða stöngina. Annars var seinni hálfleikur hundleiðinlegur. Krafturinn virtist þverrandi og það var ekki fyrr en eftir að Ambrose og Solano höfðu skipt við Dyer og Robert að leikmenn Newcastle fóru að ógna marki af einhverju viti. Á 80. mínútu varði Zuberbuhler ágætlega frá Shearer og þó Newcastle fengi fleiri tækifæri tókst ekki að bæta við marki.

Það var gott að vinna og halda hreinu. Sennilega var það allt sem Sir Bobby fór fram á. Leikurinn lifir hins vegar ekki lengi í minningunni. Shay var góður í markinu og segja má að það hafi fyrst og fremst verið honum að þakka að Basel skoraði ekki. Vörnin var alls ekki nægilega örugg. Hughes átti alveg þokkalegan leik en miðverðirnir Andy og Titus gerðu báðir mistök. Titus verður að læra að það þarf ekki alltaf að fara í tæklingar og vinna boltann. Óþarfa tæklingar hans rétt utan teigs gáfu nokkrar aukaspyrnur. Bernard var fínn í fyrri hálfleik en helst til kærulaus í þeim seinni.
Robert og Dyer voru afar sprækir á vængjunum framan af. Gott að fá Dyer aftur í slaginn því hann getur sprengt upp varnir andstæðinganna. Það sem þó vantaði á var að koma með betri fyrirgjafir. Allt of oft klikkaði síðasta sendingin og í raun má segja að það hafi komið í veg fyrir að Newcastle gerði út um leikinn fyrir hlé. Jenas átti ágætan leik, ekki síst þegar leið á. Gary Speed lék mjög vel. Var góður í að stöðva Svisslendingana og átti margar góðar sendingar á framherjana. Þeir Ambrose og Solano hleyptu svo nýju lífi í sóknarleikinn þegar þeir komu inná og gott að sjá að Solano er ekki alveg út úr myndinni.
Shearer hlýtur að hafa verið ósáttur við þjónustuna í þessum leik. Miðjumenn Magpies hefðu átt að koma boltanum oftar á svæðið hans. Að þessu sinni varð Kóngurinn að láta sér gult spjald og hugsanlegt glóðarauga nægja. Ameobi var mjög duglegur og átti í heildina þokkalegan dag. Síðasta sendingin klikkaði þó of oft hjá honum, rétt eins og svo mörgum öðrum í liðinu.

Dregið verður í næstu umferð þann 12. desember og þá hafa lið úr meistaradeild bæst í hópinn.

Maður leiksins: Gary Speed. Að þessu sinni stóð valið milli hans, Shay Given og Kieron Dyer en Speed sýndi enn eina ferðina hversu skynsamur og duglegur leikmaður hann er.


27.11.2003
St James’ Park

Newcastle - FC Basel 1-0 (1-0)
Mark Newcastle: Smiljanic sjm. 14

Lið Newcastle: Given, Hughes, O’Brien, Bramble, Bernard, Dyer (Solano 79), Jenas, Speed, Robert (Ambrose 79), Shearer, Ameobi
Gult spjald: Shearer 1
Lið Basel: Zuberbuhler, P Degen, Quennoz, Zwyssig (Smiljanic 5), Atouba, Barberis (D Degen 53), Cantaluppi, H Yakin, Chipperfield, Rossi (Tum 62), Streller
Gult spjald: Cantaluppi 26

Áhorfendur: 40.395
Dómari: K Fisker


24.9.2003

Gamla góða flæðið
Leikmenn Newcastle sýndu loksins allar sínar bestu hliðar og tóku lið NAC Breda í bakaríið á SJP í kvöld. Craig Bellamy setti tvö mörk en hann hafði ekki skorað síðan í mars. Titus Bramble og Darren Ambrose gerðu fyrstu mörk sín fyrir félagið og Alan Shearer smurði einu hefðbundnu. Sannarlega ánægjulegt og gefur vonandi tóninn fyrir föstudagsleikinn gegn Arsenal.

Sir Bobby gerði þrjár breytingar frá því í leiknum gegn Bolton. Aaron Hughes var kominn inn fyrir Andy Griffin, Jermaine Jenas spilaði á miðjunni og Dyer var færður út á hægri vænginn en Solano settur út. Þá var Andy O’Brien í miðvarðarstöðunni í staðinn fyrir Woodgate sem var hvíldur.
Newcastle var sterkari aðilinn allt frá fyrstu mínútu og minnstu munaði að marki væri fagnað þegar Robert sendi fyrir en markmaðurinn Babos náði að bjarga. Þó að leikmönnum Magpies gengi ekkert alltof vel að komast í opin færi virtist mark liggja í lofti og það kom á 31. mínútu. O’Brien sendi fram og Shearer náði að skalla inn á Bellamy sem vippaði laglega yfir markvörðinn. Fimm mínútum síðar var staðan orðin 2-0 eftir frábæra sókn. Dyer fékk boltann á miðjunni og geystist fram, sendi út á væng á Robert sem sendi viðstöðulaust fyrir þar sem Bellamy kom á ferðinni og rak endahnútinn á. Frábær spilamennska og langt síðan Newcastle hefur sýnt slíka takta. Undir lok hálfleiksins fékk Breda tvö færi. Penders sendi inná Elmander en Given varði vel. Peto átti svo gott skot sem Írinn varði af stakri snilld.

Bellamy var nálægt því að gera sitt þriðja mark í upphafi seinni hálfleiks. Varnarmenn Breda náðu ekki að koma bolta frá og Bellamy skaut snarlega en boltinn fór í þverslá. Á 58. mínútu skoruðu Magpies hins vegar þriðja markið. Robert tók horn frá vinstri og Titus Bramble skallaði af krafti í hægra hornið. Fallegt mark. Shearer var klaufi að skora ekki á 70. mínútu eftir að Robert hafði sent fyrir, skot hans fór yfir markið. Robert var nálægt því að skora skömmu síðar en Babos varði. Á 77. mínútu var brotið á Bellamy og aukaspyrna dæmd. Robert renndi á Shearer sem ýtti við boltanum, varnarveggurinn gliðnaði og Shearer smurði laglega í vinstra markhornið. Gott mark en fráleitur varnarveggur.
Mínútu síðar setti Sir Bobby ungliðann Darren Ambrose inná fyrir Dyer sem hafði átt mjög góðan leik. Þegar sjö mínútur voru eftir skipti hann svo þeim Ameobi og Viana inná fyrir Bernard og Bellamy. Viana átti hættulegt skot skömmu síðar en tveimur mínútum fyrir leikslok kom fimmta markið. Robert sendi fallega fyrir frá vinstri og Ambrose skallaði laglega í mark.

Það var gaman að fylgjast með liði Magpies í kvöld. Hvergi veikan hlekk að finna og margir leikmenn upp á sitt allra besta. Given varði glæsilega í tvígang og ef hans hefði ekki notið við hefðu úrslitin ef til vill orðið önnur. Vörnin lengst af mjög góð og þeir Bernard og Bramble stórgóðir. Sérlega gaman að fylgjast með Bramble sem var ákafur í vörn sem sókn og uppskar með fallegu marki.
Á miðjunni héldu þeir Jenas og Speed vel og Dyer var eins og stormsveipur. Gríðarlega duglegur og hættulegur. Robert átti sinn besta leik í langan tíma og lagði upp þrjú marka liðsins. Bellamy var góður frammi og sannarlega kominn tími til að hann skoraði. Shearer lék einnig vel og lætur ekki tækifæri eins og það sem varnarmenn Breda færðu honum, sér úr höndum renna.
Vonandi er þetta bara byrjunin á skemmtuninni. Leikmenn Magpies sýndu í kvöld hvað þeir geta og nú er bara að halda áfram á sömu braut. Gamla góða flæðið var komið aftur í leik liðsins, boltinn gekk manna á milli í myljandi sóknarbolta.

Maður leiksins: Erfitt val þar sem margir komu til greina en Laurent Robert hefur vinninginn að þessu sinni.


Newcastle – NAC Breda 5-0 (2-0)
Mörk Newcastle: Bellamy 31, 36, Bramble 58, Shearer, 76, Ambrose 88
Lið Newcastle: Given, Hughes, O’Brien, Bramble, Bernard (Viana 83), Jenas, Speed, Dyer (Ambrose 77), Robert, Shearer, Bellamy (Ameobi 83)
Lið NAC Breda: Babos, Feher, Penders, Schenning, Gudelj, Peto, Engelaar, Slot (Koning 60), Diba (Boussaboun 72), Elmander, Seedorf
Gul spjöld: Gudelj, Peto

Dómari: N Ivanov (Rússlandi)
Áhorfendur: 36.004


 

3.8.2005

Út úr Evrópu
Lánleysið lék við leikmenn Magpies í seinni leiknum gegn Deportivo í Intertoto keppninni og 1-2 tap á heimavelli var alls ekki sanngjarnt miðað við færi. All leit vel út þegar James Milner renndi boltanum í net Depor undir lok fyrri hálfleiks en eins og svo oft áður voru gestirnir fljótir að svara og náðu að jafna fyrir hlé. Staðan var svo sem ekki vonlaus við það en hörmulega klaufaleg varnarmistök Robbie Elliotts snemma í seinni hálfleiknum stútuðu leiknum og þar með er ljóst að Newcastle spilar ekki í Evrópumóti þetta tímabilið.

Það var vel mætt á SJP og margir áreiðanlega spenntir að sjá Scott Parker og Emre stíga sín fyrstu skref með Newcastle. Souness tefldi fram nokkuð breyttu liði frá því fyrir viku. Robbie Elliott tók stöðu Babayaros sem var meiddur eins og svo oft áður. Faye var aftast á miðjunni en þeir Parker og Emre þar fyrir framan. Bowyer og Milner framarlega á vængjum og Stóri Al fremstur.
Depor fékk fyrsta góða færið og Capdevila hefði átt að skora en sópaði boltanum yfir markið af markteig. Shearer lét Molina markvörð aldeilis hafa fyrir því að verja fínan skalla. Markvörðurinn lá illa haldinn eftir smávægilegan árekstur við Alan skömmu síðar og menn voru orðnir heitir. Skömmu síðar lá boltinn í neti gestanna eftir ágæta sókn. Faye komst upp að endamörkum hægra megin og renndi ágætlega út á Bowyer. Skot hans varð að fínni sendingu og James Milner átti ekki í neinum vandræðum með að setja boltann í netið. 1-0 og útlit gott. Slæm varnarmennska kostaði liðsmenn Newcastle hins vegar forystuna. Andrade náði að læðast inn á teig og vippa yfir Given, annað mark hans í viðureign liðanna. Varnarmenn gerðu mistök og eins er spurning hvort Shay hefði ekki átt að vera fljótari út. Leikmönnum var nokkuð heitt í hamsi þegar þeir gengu til búningsklefa sinna.

Það voru aðeins tvær mínútur liðnar af seinni hálfleik þegar reiðarslagið dundi yfir. Robbie Elliott var með boltann við hliðarlínu og kaus að senda til baka. Sendingin var hins vegar skelfilega léleg og átti Given ekki minnsta möguleika á að ná henni. Tveir liðsmenn Depor komust upp og þó Carr næði að flækjast í Tristan þá fór boltinn til Munitis sem þakkaði pent fyrir sig og sendi í tómt markið. Sorglega ömurlegt.
Souness setti Ameobi inn á fyrir Faye og liðsmenn Newcastle eiga þó hrós skilið fyrir að berjast eins og ljón og skapa góð færi. Þegar um hálftími var eftir fékk Shearer gott færi en þurfti að teygja sig í boltann og mokaði honum yfir markið. Ameobi sýndi góð tilþrif í teignum en Molina varði mjög vel. Þá fór Shola illa með annað færi og varamaðurinn N’Zogbia skaut líka naumlega framhjá. Minnstu munaði svo að Emre skoraði í sínum fyrsta leik þegar hann sendi boltann í þverslá beint úr aukaspyrnu. Souness skipti Emre svo útaf rétt áður en flautað var og var honum vel fagnað.

Þá er hægt að koma með alla frasana en látum bara þennan duga: Leitt að vera ekki með í Evrópukeppninni en gott að geta einbeitt sér í heimahögunum. Við verðum að sætta okkur við orðinn hlut og þrátt fyrir allt var margt jákvætt við leikinn, lánið lék bara alls ekki við okkur. Gætum komið með mörg ef og hefði að þessu sinni. Veikleikarnir voru líka sýnilegir og vonandi hefur Souness gert sér það endanlega ljóst að ekki er hægt að treysta á Babayaro og Elliott, það verður bókstaflega að manna vinstri vænginn betur en svo. Hvað um það. Given verður ekki sakaður um þetta en hann hefði hugsanlega getað gert betur í fyrra markinu. Carr átti mjög góðan leik og var líklega besti maður varnarinnar. Boumsong var ágætur en gerði mistök í fyrra markinu. Taylor átti enn einn fína leikinn og er hreinn gullmoli. Elliott sökkaði hreinlega og á honum sannast að það er ekki nóg að vera með hjartað á réttum stað. Berum samt virðingu fyrir Robbie og tölum ekki of illa um hann. Staðreyndin er bara sú að hann er ekki lengur í úrvalsdeildarklassa og reyndar er töluvert síðan að það mátti vera öllum ljóst.
Faye var ágætur að þessu sinni og nýju mennirnir komust vel frá leiknum. Parker virkaði reyndar töluvert ryðgaður en liðkaðist eftir því sem á leikinn leið. Góður leikmaður. Emre var maður dagsins og sýndi marga góða takta. Einstaklega skemmtilegur, leikinn, útsjónarsamur og fylginn sér. Getur orðið hetja á SJP. Bowyer og Milner voru ágætir, sérstaklega sá fyrrnefndi sem virðist í mjög góðu formi þessa dagana. Kannski verður komandi tímabil gott hjá Bowyer. Shearer barðist vel og sýndi hvað hann er hættulegur í teignum. Það er þó alveg ljóst að hann mun ekki geta borið sóknarleik Newcastle uppi á tímabilinu. Shola var í gamla þvælingnum en hafa ber í huga að þetta var fyrsta sprikl hans eftir meiðsli. N’Zogbia gerði engar rósir og Brittain fékk ekki nema rétt að labba inn á völlinn.
Nú hefur verið ákveðið að Newcastle leiki við Yeading á SJP á laugardaginn en alvaran hefst svo á Highbury viku síðar.

Maður leiksins: Emre


3.8.2005
St James’ Park

Newcastle - Deportivo 1-2 (1-1)
Mark Newcastle: Milner 39
Mörk Deportivo: Andrade 45, Munitis 48

Lið Newcastle: Given, Carr, Elliott, Boumsong, Taylor, Bowyer, Faye (Ameobi 53), Milner (N'Zogbia 72) Parker, Emre (Brittain 90), Shearer.
Gul spjöld: Parker, Shearer, Taylor, Elliott
Lið Deportivo: Molina, Manuel Pablo, Andrade, Capdevila, Romero, Duscher, Scaloni, Sergio (Valeron 72), Munitis, Ruben Castro (Juanma 63), Tristan (Luque 55).
Gul spjöld: Tristan, Munitis, Manuel Pablo, Juanma.

Áhorfendur: 35.200
Dómari: Helmut Fleischer (Þýskaland)


 

23.7.2005

Al sá um Slóvakana
Alan Shearer færðist nær markameti Milburns með því að gera bæði mörkin í 2-0 sigri á Dubnica á SJP. Karlinn hefur nú gert 194 mörk fyrir félagið og vantar sex til að jafna metið. Þar með vann Newcastle 5-1 samanlagt og mætir Deportivo La Coruna í næstu umferð. Þar má reikna með mun erfiðari viðureign en fyrri leikurinn verður á Spáni um miðja vikuna.

Souness gerði nokkrar breytingar á liði sínu frá því í fyrri leiknum. Given var kominn í markið og Carr í sína stöðu. Taylor færðist í miðvarðarstöðuna en Elliott á bekkinn. Jenas og Bowyer voru komnir á miðjuna en N’Zogbia, Faye og Milner voru allir með. Shearer á sínum stað. Markfæri voru fremur fá framan af leik en á 21. mínútu var Milner nálægt því að brjóta ísinn. Bowyer stakk inn á strákinn sem skaut af 20 metra færi en markvörðurinn bjargaði í horn. Skömmu síðar átti Jenas skot í þverslá úr aukaspyrnu. Markvörðurinn varði líka skalla frá honum en fyrri hálfleikur var markalaus.

Souness gerði breytingu í hálfleik, setti Chopra inná fyrir Jenas sem kvartaði yfir eymslum og breytti úr 4-3-3 í 4-4-2. Chops var þó ekki lengi inná því hann lenti í samstuði við markvörð Dubnica og var að lokum skipt útaf á 58. mínútu. Brittain tók við, Milner var settur fram og Brittain tók hægri vængstöðuna. Heimamenn voru mun sterkari og á 71. mínútu kom mark. Milner tók hornspyrnu og Alan Shearer skallaði boltann í netið. Pressan jókst og Shearer hefði átt að fá víti þegar Zimen hrinti honum í teignum. Á 86. mínútu skallaði Shearer í slá eftir fyrirgjöf frá Brittain en þegar tvær mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma skallaði Shearer í mark eftir sendingu frá Carr.


23.7.2005
St James’ Park

Newcastle - Dubnica 2-0 (0-0)
Mörk Newcastle
: Shearer 71, 90
Lið Newcastle: Given, Carr, Boumsong, Taylor, Babayaro, Milner, Jenas (Chopra 46, (Brittain 58)), Bowyer, Faye, N'Zogbia, Shearer
FK ZTS Dubnica: Pernis, Pleva, Drzik, Kopacka (Skultety 82), Kiska (Augustini 68), Novak, Svestka, Izvolt, Zimen, Tesak, Adam (Svikruha 86)

Áhorfendur: 25.135
Dómari: Knut Kircher (Þýskaland)


16.9.2004

Ruglað dæmi
Newcastle vann Hapoel Bnei Sakhnin 2-0 í kvöld eftir brösugan leik. Patrick Kluivert gerði bæði mörk liðsins en leikurinn var ekkert augnayndi og verður líklega helst minnst fyrir að Nicky Butt fékk að líta rauða spjaldið eftir að hafa verið inná í aðeins 70 sekúndur.

Byrjunarlið Souness vakti athygli, Shearer og Bellamy á bekknum en Ameobi og Kluivert frammi. Vörnin og miðjan eins og í síðasta deildarleik og Shay auðvitað í markinu. Leikurinn byrjaði fantavel fyrir heimamenn því Patrick Kluivert skoraði á 4. mínútu. Varnarmanni Sakhnin mistókst illilega og Robert sendi boltann inná teig. Þar var hin mesta þvaga en á endanum hrökk boltinn fyrir Kluivert sem sendi í mark. Nú héldu víst flestir að þetta yrði skemmtiganga í arabískum garði en annað kom á daginn. Newcastle hefði að vísu átt að láta kné fylgja kviði en það tókst bara ekki. Markvörður Sakhnin varði frá JJ í góðu færi og skömmu síðar ágætt skot frá Kluivert. Heimamenn höfðu yfirburði en litlu munaði þó að gestir jöfnuðu úr skyndisókn en Given varði vel frá Soan. Hinum megin varði Murambadoro vel frá Bowyer og Dyer misnotaði sannkallað dauðafæri. Skömmu fyrir hlé skoraði svo Kluivert aftur og var markið gullfallegt. Robert tók hornspyrnu frá vinstri og Kluivert skallaði glæsilega í slá og inn.

Newcastle byrjaði seinni hálfleik vel en gestirnir svöruðu með hörðum leik og brotin voru skrautleg. Þegar tæp klukkustund var liðin kom Butt inná fyrir meiddan Dyer. Það tók þennan reynda leikmann ekki nema um mínútu að missa stjórn á sér og lenda í algjöru óþarfa skaki við liðsmann Sakhnin. Dómari leiksins rak þá báða réttilega af velli. Given mátti hafa sig allan við til að verja frá Avi Danan og Newcastle náði í raun aldrei taktinum eftir brottvísunina. Lokastaðan 2-0 og það verður hreint ekkert auðvelt að fara til Arabalands.

Það er erfitt að dæma Souness og lið hans út frá þessari vitleysu en þó er ekki hægt að segja annað en að liðið hefði átt að gera betur. Given var góður og bjargaði tvisvar vel. Vörnin var lala en ekkert meira. Hughes fór meiddur útaf snemma leiks en Bernard virðist vanta taktinn. Elliott má vera hreykinn fyrirliði en hann er enginn klassamiðvörður. Andy og Carr sæmilegir.
Dyer var ekki merkilegur á hægri væng og JJ þarf að gera betur. Bowyer átti þokkalegan leik og Robert var á köflum mjög ógnandi. Hann átti líka þátt í báðum mörkunum. Frammi var Shola ekki upp á sitt besta en Kluivert sýndi fína takta og gaman að sjá hversu góð fyrsta snerting hans er. Klassaleikmaður þar á ferð en virtist dofna er á leik leið. Butt var mjög heimskulegur en gaman að sjá baráttu varamannsins Milners þó hún skilaði í raun engu. Í heildina var þessi leikur óttalegt rugl og óhætt að segja að liðsmenn Newcastle hafi leyft Aröbunum að draga sig niður á slappt plan.

Maður leiksins: Patrick Kluivert hefur vinninginn af því hann gerði tvö mörk og sýndi netta takta en Laurent Robert var líka fínn. Að þessu sinni báru þeir tveir af liðsmönnum Magpies.


16.9.2004
St James’ Park

Newcastle - Hapoel Bnei Sakhnin 2-0 (2-0)
Mörk Newcastle: Kluivert 4, 42

Lið Newcastle: Given, Carr, Elliott, O'Brien, Hughes (Bernard 15), Dyer (Butt 58), Bowyer, Jenas, Robert, Ameobi (Milner 69), Kluivert.
Gult spjald: Bowyer
Rautt spjald: Butt 60
Lið Bnei Sakhnin: Murambadoro, Kasum (Edri 84), Etchi Oben, Danan, Basem Genaiem (Salameh 80), Elyahu, Soan, Hamud (Cleber 54), Rabbah, Masudi, Agoye.
Subs Not Used: Hilik, Abu Saleh, Khalaila, Shalaata.
Gul spjöld: Rabbah, Soan, Basem Genaiem, Danan, Cleber
Rautt spjald: Soan 60

Áhorfendur: 30.221
Dómari: Antonio Almeida Costa (Portúgal)


24.2.2005

Grikkirnir næstir
Newcastle er komið í 16-liða úrslit UEFA keppninnar. Liðið vann Heerenveen 2-1 í seinni leik liðanna á SJP í kvöld og því 4-2 samanlagt. Sigurinn var frekar auðveldur. Michel Brauer skoraði sjálfsmark snemma leiks og Alan Shearer kom Newcastle í 2-0 með góðu aukaspyrnumarki. Newcastle hefði getað sett fleiri mörk en Arnold Bruggink minnkaði muninn á 80. mínútu úr víti sem var dæmt á Shola Ameobi fyrir að höndla knött í teig. Næst verður leikið gegn Olympiakos frá Grikklandi en Grikkirnir unnu Socheaux 1-0 á útivelli í kvöld. Olympiakos vann 2-0 samanlagt og verður fróðlegt að sjá hvernig liðsmönnum Magpies gengur að fást við grísku varnaraðferðina.


Liðsuppstillingin kom nokkuð á óvart en Souness neyddist reyndar til að gera óvæntar breytingar þar sem Babayaro var lagstur í flensu og Kluivert var aumur í hné. Aaron Hughes var því í stöðu hægri bakvarðar, Andy og Titus miðverðir og Carr á sínum stað. Þeir Faye og Butt inni á miðjunni, Robert á vinstri vængnum og Dyer hægra megin. Shearer og Ameobi fremstir.
Leikurinn byrjaði fjörlega og Hollendingarnir fengu fyrsta færið. Mika Vayrynen skallaði yfir af stuttu færi og skömmu síðar varði Shay Given mjög vel frá Huntelaar. Greinilegt var að Hollendingarnir ætluðu sér að skora snemma enda þörf á því. Það plan gekk hins vegar ekki upp. Eftir tíu mínútna leik fékk Laurent Robert allt of mikið pláss vinstra megin, rauk upp völlinn og sendi fyrir markið. Markvörðurinn fór út í boltann en varnarmaðurinn Michel Breuer kom á ferðinni og sneiddi hann í netið. Klaufalegt með eindæmum en sendingin fyrir var góð. Markið sló gestina alveg út af laginu og heimamenn tóku völdin. Liðsmenn Newcastle voru mjög sprækir, baráttuglaðir og boltinn gekk hratt manna á milli. Kieron Dyer hefði átt að skora en fylgdi ekki eftir lausu skoti Ameobis sem markvörðurinn missti klaufalega frá sér. Annað markið kom þó fljótlega. Newcastle fékk aukaspyrnu rétt utan teigs og Alan Shearer þrumaði í markhornið niðri af sinni alkunnu snilld. Nú var líklegast að Newcastle myndi raða inn mörkum. Robert átti margar hættulegar fyrirgjafir og Shola Ameobi hefði átt að skora en að þessu sinni var hann hreinlega ekki á skotskóm. Einu sinni skallaði hann í stöng og öðru sinni varði markvörður Heerenveen vel í tvígang. James Milner kom inná fyrir Shearer og var tvívegis nærri því að skora og Ameobi hélt áfram að klúðra. Framherjinn fullkomnaði svo lánlausan leik með því að fá dæmt á sig víti þegar hann slengdi hönd klaufalega fyrir boltann. Algjör óþarfi hjá drengnum. Bruggink skoraði úr vítinu. Markið breytti hins vegar engu og þriðji sigur Newcastle á einni viku var í höfn.

Þessi leikur var bara hreint ágætur. Hann hefði getað þróast á annan veg ef Shay hefði ekki sýnt hefðbundið öryggi og varið fyrsta hættulega skotið frá Huntelaar. Eftir að Robert skaut í varnarmanninn og inn var þetta hins vegar aldrei spurning. Fyrri hálfleikurinn mjög góður og sá seinni eins og við mátti búast. Vörnin var alveg ágæt. Titus lék mjög vel og Andy var ágætur. Taylor fékk svo tækifæri í miðvarðarstöðu undir lokin og þarf að fá fleiri slík. Hann getur þó ekki reiknað með að festa sér sæti í liðinu ef Titus leikur eins og hann hefur gert í síðustu tveimur leikjum. Aaron átti mjög góðan leik og gaman að sjá hve sterkur hann mætir til leiks þegar á þarf að halda. Var mjög sprækur í að spretta fram völlinn og sterkur í vörninni. Carr var kannski ekki eins áberandi og í síðustu leikjum en stóð vakt sína vel.
Margir hafa efast um að Souness eigi að nota þá Faye og Butt saman á miðjunni en að þessu sinni gekk það upp. Báðir áttu ágætan dag og gott að sjá að Butt virðist búinn að ná sér af meiðslum. Faye var þó ekki mikið í boltanum. Dyer var mjög góður í fyrri hálfleiknum en Jenas ekki nema svona rétt þokkalegur í þeim seinni. Robert átti stórfínan leik og barðist eins og ljón. Aldeilis fínn þegar sá gállinn er á honum. Shola var ferlegur klaufi að skora ekki og dettur áreiðanlega út úr liðinu ef Kluivert nær sér fyrir sunnudaginn. Shearer var frábær eins og alltaf þó meiðsli háðu honum greinilega og Milner bara sæmilega sprækur.

Maður leiksins: Laurent Robert var greinilega staðráðinn í að sanna sig fyrir Souness og átti alveg stórfínan leik fyrir vikið. Ekkert óþarfa væl, bara barátta og ef hann spilar svona til vors erum við í góðum málum.


24.2.2005
St James’ Park

Newcastle - Heerenveen 2-1 (2-0)
Mörk Newcastle: Breuer sjm. 10, Shearer 25
Mark Heerenveen: Bruggink 80 v.

Lið Newcastle: Given, Carr, Andrew O'Brien (Taylor 78), Bramble, Hughes, Dyer (Jenas 45), Faye, Butt, Robert, Ameobi, Shearer (Milner 65).
Lið Heerenveen: Vandenbussche, Bakkati, Hansson, Breuer (Seip 74), Rzasa, Yildirim, Vayrynen, Radomski, Hestad, Bruggink (Sikora 80), Huntelaar (Samaras 68).

Áhorfendur: 26.156
Dómari: Dejan Delevic (Serbía & Svartfjallaland)

 


11.3.2004

Svarthvít ráðgáta
Newcastle vann Real Mallorca í kvöld í hreint furðulegum leik. Fyrri hálfleikur var ömurlega leiðinlegur flautukonsert og minnti helst á það sem boðið er upp á á firmamótum hérlendis. Seinni hálfleikurinn var af allt öðru sauðahúsi. Að vísu leit ekki vel út fyrir Magpies þegar Correa kom Mallorca yfir á 57. mínútu. Hvað svo gerðist er ei gott að vita. Lið Newcastle, sem hafði leikið ömurlega, vaknaði til lífsins svo um munaði. Craig Bellamy jafnaði metin á 67. mínútu og ekki leið á löngu þar til Alan Shearer skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Robert. Frakkinn gerði svo þriðja markið beint úr aukaspyrnu af ógnarfæri og var óheppinn að bæta ekki við öðru svipuðu. Edu Moya fékk síðan reisupassann og heimamenn náðu að bæta við fjórða markinu. Titus Bramble skoraði mjög laglega eftir sendingu frá Robert.

Uppstilling Bobbys kom ekkert á óvart. Woodgate var frá vegna slappleika og þeir Titus og Andy því miðverðir. Bernard kominn úr banni og Hughes því í sinni hefðbundnu stöðu. Dyer var á hægri kantinum og Bellamy einnig kominn aftur í byrjunarliðið. Fyrir leikinn var mínútu þögn til að heiðra minningu fórnarlamba hryðjuverkanna í Madrid.
Gestirnir byrjuðu betur og minnstu munaði að Eto’o skoraði strax á 2. mínútu, eftir hornspyrnu Nene frá vinstri. Skömmu síðar fékk Eto’o annan séns en náði ekki að nýta sér hann. Leikur Newcastle var í molum, miðjumennirnir náðu alls ekki að tengja og allt flot vantaði í spilið. Leikmenn Mallorca voru hins vegar fullir sjálfstrausts, þrátt fyrir að illa gengi að skapa góð færi. Besta rispa Newcastle í hálfleiknum kom þegar Bellamy slapp inn á teig en var stöðvaður af tveimur varnarmönnum. Allnokkur vítafnykur af því en dómarinn kaus að flauta ekki.
Dómarinn var annars virkur á flautunni og bókaði tvo leikmenn Real, Moya fyrir brot á Dyer og Correa fyrir að mótmæla dómnum. Á 41. mínútu átti svo Laurent Robert þrumuskot framhjá úr aukaspyrnu.

Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum en smám saman tóku heimamenn völdin. Á 57. mínútu sendi Robert laglega inn á Bellamy sem fór inn í teig hægra megin. Skot Bellamys var ágætt en Franco varði vel með fótunum. Skömmu síðar skoruðu hins vegar gestirnir. Gary Speed sendi boltann þá beint í lappirnar á Eto’o sem renndi á Campano og hljóp svo inn í teig til að taka aftur við boltanum. Skot Eto’o hafnaði í þverslá en Correa fylgdi vel á eftir og skallaði í autt markið.
Newcastle jafnaði tíu mínútum síðar. Bramble sendi langt fram völlinn, Shearer fór upp í boltann ásamt tveimur varnarmönnum Mallorca og knötturinn barst áfram. Craig Bellamy stakk sér innfyrir, gaf sér góðan tíma og renndi svo knettinum framhjá Franco. Laglegt mark hjá Bellamy.
Fjórum mínútum síðar skallaði Alan Shearer boltann í netið eftir hornspyrnu Roberts frá hægri, var illa valdaður á nærstöng og ekki að sökum að spyrja. Og þremur mínútum síðar kom þriðja markið. Robert tók þá aukaspyrnu af um 30 metra færi og þrumufleygur hans rataði í markið. Franco gerði hins vegar vel þegar hann varði annan þrumufleyg frá Robert skömmu síðar.
Spánverjarnir höfðu átt í miklum erfiðleikum með að stöðva liðsmenn Newcastle og mátti dómarinn grípa átta sinnum til gula spjaldsins. Á 83. mínútu fékk Moya sitt annað gula og þar með rautt. Og heimamenn náðu að bæta við enn einu markinu. Robert tók aukaspyrnu frá hægri og Titus Bramble skoraði laglega af stuttu færi, klippti boltann í netið. Laglegt mark og þriðja Evrópumark Brambles á tímabilinu.

Þessi stóri sigur hlýtur að duga Newcastle til að komast áfram í keppninni, annað væri hreinn skandall. Craig Bellamy á þakkir skildar fyrir að kveikja í mönnum. Hann var sífellt ógnandi með hraða og snerpu og ófáir liðsmenn Real fengu gult fyrir að fella piltinn. Robert er engum líkur, spilar eins og auli eina stundina en fuðrar svo upp í stakri snilld, skorar og leggur upp mörk. Og ekki má gleyma Titusi sem átti fantagóðan leik, ásamt Andy O’Brien sem bjargaði feikivel í tvígang. En hvernig Newcastle fór að því að vinna 4-1 verður sjálfsagt óráðin gáta um ókomna tíð.

Maður leiksins: Craig Bellamy


11.3.2004
St James’ Park

Newcastle - Real Mallorca 4-1 (0-0)
Mörk Newcastle: Bellamy 67, Shearer 71, Robert 74, Bramble 84
Mark Mallorca: Correa 57
Lið Newcastle: Given, Hughes, O’Brien, Bramble, Bernard, Dyer (Ambrose 87), Jenas, Speed, Robert, Shearer, Bellamy
Gult spjald: Dyer 69
Lið Mallorca: Franco, Cortes, Moya, Lussenhoff, Nino, Campano, Colsa (Marcos 65), Nagore, Nene, Correa (Finidi 65), Eto’o
Gul spjöld: Correa 35, Moya 35, Campano 45, Cortes 59, Lussenhoff 62, Colsa 65, Nagore 75
Rautt spjald: Moya 83

Áhorfendur 38.012
Dómari: A Hamer


22.4.2004

Úrslit ráðast í Frans
Markalaust jafntefli í fyrri viðureign Newcastle og Marseille þýðir að úrslitin ráðast í Frakklandi eftir tvær vikur. Lið Magpies var án margra sterkra manna og mátti merkja það á leik liðsins, þrátt fyrir að menn væru flestir að standa sig ágætlega. Leikurinn var reyndar fjörugur og spennandi og hefðu bæði lið getað skorað með smá heppni. Shola Ameobi komst næst því að setja mark fyrir Magpies en Didier Drogba átti skot í stöng hinum megin. Frakkarnir hljóta nú að teljast líklegri til að komast í úrslitaleikinn en það er allt hægt í fótbolta og lið Newcastle er frægt fyrir að fara Krýsuvíkurvegi.

Sir Bobby varð að gera miklar breytingar vegna meiðsla lykilmanna. Vörnin var þó kunnugleg og óbreytt frá síðasta leik. Hugo Viana var nú í byrjunarliði og Darren ungi Ambrose á hægri vængnum. Shola Ameobi var kominn í framlínuna með Shearer.
Leikurinn var fjörugur frá fyrstu mínútu. Smám saman náðu leikmenn Newcastle nokkurri yfirhönd og eftir um stundarfjórðung fékk Ameobi gullið tækifæri. Shearer skallaði boltann inn í teiginn, Ameobi losaði sig við Meite og skaut á mark en Barthez hafði heppnina með sér og varði með fætinum. Í raun algjör hundaheppni hjá markverðinum.
Hinum megin varði Shay líka vel á 25. mínútu. Frakkarnir komust inn í sendingu Viana og stormuðu fram. Drogba náði að skjóta ágætu skoti á mark en Given fleygði sér og varði vel.
Shearer reyndist varnarmönnum Frakkanna erfiður. Hann fékk aukaspyrnu sem Robert tók. Sendi boltann inn á teig en Shearer skallaði framhjá markinu enda aðþrengdur.

Minnstu munaði að Marseille tæki forystu í upphafi seinni hálfleiks. N’Diaye komst frmhjá Hughes og renndi á Drogba en Woodgate bjargaði frábærlega. Hinum megin vann Ameobi aukaspyrnu rétt utan teigs. Shearer bombaði á markið, Barthez varði, boltinn hrökk út á Gary Speed en hann skaut rétt framhjá. Mjög gott færi þar forgörðum. Robert átti svo ágætt skot úr aukaspyrnu en enn varði Barthez. Á 65. mínútu var svo enn komið að Drogba. Robert missti boltann kæruleysislega á miðjunni, Ferreira tók hann af honum og sendi á Drogba sem skaut glæsilega með vinstri. Boltinn hafnaði í innanverðri stönginni en skrúfaðist svo einhvern veginn framhjá hinni stönginni. Þar voru heilladísirnar svartar og hvítar.
Sir Bobby setti Bridges inná fyrir örþreyttan Ameobi þegar 12 mínútur voru eftir og leikmenn Newcastle börðust áfram eins og ljón. Speed og O’Brien höfðu ekki heppnina með sér í þvögu í teignum hjá Marseille en hinum megin skaut Drogba yfir í ágætu færi. Bridges slapp svo inn eftir mistök Ferreira en sendi boltann framhjá fjærstönginni. Given bjargaði svo Magpies með góðu úthlaupi í viðbótartíma.

Þrátt fyrir að sigur hefðist ekki er ekki hægt að setja mikið út á leik Newcastle. Því verður ekki á móti mælt að liðið veiklaðist mjög þar sem fljótustu mennirnir voru meiddir og ekki annað hægt en að velta fyrir sér hvernig leikurinn hefði þróast ef Bellamy, Dyer og Jenas hefðu verið heilir. Það tókst þó að halda hreinu og með smá heppni hefði Ameobi sett mark.
Shay var góður að vanda og varði nokkrum sinnum mjög vel. Varnarlínan var til fyrirmyndar. Aaron sýndi góða sóknartakta og varðist vel, Andy virkaði svolítið taugaóstyrkur í byrjun en efldist eftir því sem á leikinn leið og Bernard var góður að vanda. Bestur var þó Woodgate sem átti enn einn leikinn í heimsklassa.
Gary Speed átti mjög góðan leik, var að venju á þönum um allan völl og áberandi bestur miðjumanna Magpies. Ambrose var mjög góður í seinni hálfleiknum. Viana var greinilega ryðgaður og getur betur. Robert var hins vegar langslakastur liðsmanna og það er greinilega eitthvað að hjá honum þessa dagana. Orðið mjög langt síðan hann náði sér almennilega á strik og að þessu sinni munaði minnstu að mistök hans kostuðu mark. Vonandi fer hann að vakna á ný.
Shearer var mjög öflugur og gríðarlega erfiður fyrir varnarmenn Marseille. Ameobi var einnig sterkur en hafði ekki heppnina með sér upp við markið. Mjög seigur og vann vel fyrir liðið en þreyttist þegar á leikinn leið.
Varamaðurinn Bridges fékk ekki mikinn tíma til að sýna sig en hefði getað orðið hetja liðsins.
Það verður erfitt að leggja Marseille í Frans en það er ekki ómögulegt. Vonandi verða einhverjir af Lasarusunum orðnir leikfærir þó hæpið sé að vonast til þess.

Maður leiksins: Jonathan Woodgate var enn eina ferðina í heimsklassa.


22.4.2004
St James’ Park

Newcastle - Marseille 0-0
Lið Newcastle: Given, Hughes, O'Brien, Woodgate, Bernard, Ambrose, Viana, Speed, Robert, Ameobi (Bridges 78), Shearer
Lið Marseille: Barthez, Beye, Hemdani, Meite, Ferreira, Flamini, N'Diaye, Dos Santos, Batlles (Celestini 90), Meriem, Drogba.
Gult spjald. Beye

Áhorfendur: 52.004
Dómari: Valentin Ivanov (Rússland)


 

16.3.2005

Massíf skemmtun
Skemmtikraftarnir eru mættir enn á ný. Newcastle sýndi stórskemmtilega knattspyrnu í kvöld og vann Olympiakos 4-0 á SJP og samtals 7-1. Þar með er liðið komið í fjórðungsúrslit Uefa keppninnar. Kieron Dyer gaf tóninn með framúrskarandi sprettum og glæstu hælspyrnumarki og Alan Shearer var óheppinn að vera ekki búinn að bæta einu til tveimur við áður en honum tókst að setja boltann í net fyrir hlé. Sýningin hélt áfram í seinni hálfleik, Lee Bowyer gerði þriðja markið og Shearer setti það fjórða. Allir liðsmenn léku vel og gestirnir áttu hreinlega aldrei séns. Það er orðið langt síðan Newcastle hefur sýnt svo góða knattspyrnu og afar ánægjulegt að heyra stemmninguna á vellinum. Stemmningin var líka góð í Ölveri þar sem stuðningsmenn hér heima fylltu salinn og skemmtu sér eins og best verður á kosið. Þetta var áttundi sigurinn í röð og greinilegt að Graeme Souness er að gera virkilega góða hluti, þvert á allar hrakspár. Ef að liðið heldur svona áfram er hreinlega ekkert ómögulegt. Í kvöld sýndi liðið hvað það getur í raun og veru, menn börðust eins og ljón, boltinn gekk hratt manna á milli og hraðinn var á köflum gríðarlegur. Á föstudag verður dregið í Uefa keppninni og verður afar spennandi að vita hvert leið liggur næst.

Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Souness. Stjórinn ákvað að láta Steven Taylor byrja sem vinstri bakvörð en Aaron Hughes var miðvörður ásamt Andy O’Brien. Carr í sinni hefðbundnu rullu. Jenas var kominn í byrjunarliðið eftir nokkra fjarveru, Butt og Bowyer sáu um miðjuna og Robert vinstri vænginn. Kieron Dyer var svo látinn í framlínuna með Shearer þar sem Ameobi og Kluivert voru báðir meiddir.
Það var fátt sem benti til þess í byrjun að leikurinn yrði mjög auðveldur fyrir Newcastle því á þriðju mínútu mátti Shay Given sópa upp utan teigs eftir slappa sendingu frá Andy O’Brien. En gestirnir áttu ekki eftir að ógna marki Newcastle frekar í hálfleiknum. Þeir reyndu að verjast framarlega og þar með var liðsmönnum Magpies boðið upp í dans. Nokkrum sinnum munaði minnstu að menn slyppu við rangstöðugildru Grikkjanna og Dyer var sérlega hættulegur. Butt átti þrumuskot í þverslá og eitthvað hlaut undan að láta. Eftir aukaspyrnu frá Laurent Robert slapp Kieron Dyer inn á markteig og þó hann snéri baki í markið náði hann að gabba markvörðinn upp úr skóm og senda boltann með hælspyrnu í markið. Feikvel gert. Shearer hefði átt að gera annað mark þegar hann slapp innfyrir eftir stungu frá Jenas en fyrirliðinn skaut yfir markið. Hann var aftur nærri því að skora eftir fyrirgjöf Roberts en skalli hans fór rétt framhjá fjærstöng. Mark lá í loftinu og það kom rétt áður en flautað var til hlés. Dyer fór upp að endamörkum og renndi út á Alan Shearer sem að þessu sinni ruddi boltanum í netið.

Nú var bara spurningin hvort leikmenn Newcastle væru saddir eða í skapi til að skemmta áhangendum sínum. Liðsmenn Olympiakos áttu ekki lengur neina von og það sást vissulega á leik þeirra. Heimamenn voru hins vegar greinilega í góða skapinu og til í allt. Lee Bowyer gerði þriðja markið, skallaði í boga yfir Nikopolidis í markinu en markvörðurinn náði að krafsa frá, Jenas náði knettinum og renndi aftur út á Bowyer sem náði að troða boltanum í markið að þessu sinni. Það var svo við hæfi að meistari Shearer setti síðasta mark leiksins eftir sendingu frá Jenas. Eftir að hafa leikið á Nikopolidis þrumaði hann boltanum upp í þaknetið og setti þar með 191. mark sitt fyrir Magpies.

Þetta var einfaldlega frábær leikur hjá Newcastle þó svo að andstæðingarnir hafi kannski ekki verið í skapi til að berjast af krafti þegar á leikinn leið. Allt liðið lék feikivel, frá öftustu línu og til fremstu manna. Andy byrjaði að vísu ekki vel en steig ekki feilspor eftir það. Gaman að sjá baráttuna í Steven Taylor sem er greinilega gríðarlega efnilegur piltur. Carr átti mjög góða spretti og Aaron var góður. Butt spilaði glimrandi vel í sinni stöðu og Bowyer er í fantaformi. Jenas átti sinn besta leik í langan tíma og var mjög virkur í spilinu. Shearer hefði getað sett fleiri mörk og sannaði auðvitað enn eina ferðina hvílíkur snillingur hann er. Kieron Dyer blómstraði í framlínunni og er kominn í ógnargott form. Hvílíkur hraði á piltinum. Varamennirnir Milner, N’Zogbia og hinn ungi Peter Ramage geta allir verið sáttir með sinn þátt. Svona eiga menn að halda upp á 100. Evrópuleikinn.
Það er óneitanlega gaman að horfa á Newcastle spila svona vel. Graeme Souness á heiður skilinn fyrir að vera búinn að rífa upp stemmninguna í liðinu og fá leikmenn til að berjast með kjafti og klóm. Áttundi sigurinn eftir Dubai ferðina er staðreynd og að þessu sinni sungu áhangendur nafn Souness. Ótrúlegur sigur fyrir stjórann. Og áhangendur sungu einnig til Shearer og báðu hann að vera með eitt ár enn. Hver veit nema að þessi ótrúlega stemmning kveiki í karlinum og fái hann til að hætta við að hætta. Getan er svo sannarlega fyrir hendi og það segir sitt um hungrið að hann vildi ekki fara af velli þó stjórinn byði honum að hvílast fyrir leikinn gegn Portsmouth. Nei takk sagði Shearer enda hefur hann aldrei verið fyrir bekkjarsetuna.

Maður leiksins: Alan Shearer var enn eina ferðina ómótstæðilegur en Kieron Dyer var óstöðvandi þangað til honum var skipt útaf. Mögnuð frammistaða hjá honum.


16.3.2004
St James’ Park

Newcastle - Olympiakos 4-0 (2-0)
Mörk Newcastle: Dyer 18, Shearer 45, Bowyer 54, Shearer 69

Lið Newcastle: Given, Carr (Ramage 67), Taylor, Andrew O'Brien, Hughes, Jenas, Bowyer, Butt, Robert (N'Zogbia 58), Dyer (Milner 58), Shearer
Lið Olympiakos: Nikopolidis, Mavrogenidis, Vallas, Anatolakis, Pantos, Maric, Stoltidis (Taralidis 79), Kafes, Djordjevic (Okkas 60), Giovanni (Filipakos 67), Castillo.
Gult spjald: Vallas

Áhorfendur: 32.163
Dómari: Konrad Plautz (Austurríki)


 

27.8.2003

Svartur dagur
Newcastle náði ekki að komast í meistaradeild Evrópu þetta tímabilið. Liðið tapaði 0-1 fyrir Partizan Belgrad á SJP og féll svo út í vítaspyrnukeppni. Það er óhætt að segja að leikmönnum Magpies hafi verið kastað niður á jörðina eftir góða tíma að undanförnu. Við blasir einfaldlega sú staðreynd að þeir eru ekki lengur með í elítunni, þeir hafa misst Chelsea langt framúr sér og eru á sama stalli og Liverpool.

Það var sannkölluð veðurblíða í Newcastle í kvöld þegar leikur hófst og völlurinn ægifagur. Shearer fékk strax að finna til tevatnsins hjá Taribo West en ekkert kom út úr aukaspyrnunni sem af hlaust. Skömmu síðar náði Shearer að senda inná Shola en markmaður Partizan varð rétt á undan honum í boltann. West og Shearer héldu áfram að bítast og skiptast á vel völdum orðum en fátt var um færi. Þeir Shearer og Ameobi áttu báðir skalla en þeir voru hættulitlir. Nobby Solano átti hins vegar hættulegustu tilraun hálfleiksins, fallegt skot sem Kralj varði vel, en minnstu munaði að Nobby hefði náð frákastinu. Newcastle greinilega sterkari aðilinn og rólegur hálfleikur fyrir Shay.

Það voru ekki liðnar nema fimm mínútur af seinni hálfleik þegar ógæfan kvaddi húsa á SJP. Ivica Iliev skoraði þá fyrir gestina og staðan þar með orðin jöfn í rimmu liðanna. Jonathan Woodgate notaði hælinn til að halda knettinum í leik en hefði betur látið það ógert. Gestirnir komust í sókn, fóru inn í teig og boltinn barst á Iliev sem skoraði af öryggi. Áður en að markinu kom höfðu bæði lið átt færi en Kieron Dyer hefði átt að jafna strax eftir markið. Hann skóp sér færi á laglegan hátt en klúðraði því jafn skelfilega. Toon herinn andaði svo léttar skömmu síðar þegar liðsmenn Partizan fengu gott skallafæri en nýttu ekki. Skelfingin hafði engu að síður gripið um sig á meðal áhorfenda. Gat það verið að lið Magpies væri á leið út úr meistaradeild án þess að komast inn.
Shearer sendi inná Ameobi sem ákvað að leggja knöttinn fyrir sig í stað þess að láta vaða strax og misnotaði þar með illilega. Kóngurinn klúðraði svo sjálfur eftir að Ameobi hafði lagt upp fyrir hann. Partizan sýndi klærnar og leikmenn liðsins börðust eins og vitlausir um allan völl. Given var svo vel staðsettur og bjargaði þegar Djuljaj átti ágætt skot á 83. mínútu.
Sir Bobby skipti loks inná þegar fimm mínútur voru eftir, setti þá Robert inn fyrir Viana. Serbar gerðu enn harða hríð að marki Newcastle en Shay varði. Leiktíminn rann út og því varð að grípa til framlengingar. Silfurmarksreglan myndi ráða í fyrsta skipti í sögunni og menn veltu fyrir sér hvað í ósköpunum gæti gerst næst.

Gary Speed vék fyrir Jenas í upphafi framlengingar en gestirnir voru fyrri til að skapa hættu. Heimamenn sóttu þó meira en illa gekk að skapa færin. Given varði frá Duljaj og Malbasa en minnstu munaði að Shearer tryggði sigur með skoti úr aukaspyrnu á síðustu mínútu. Markmaður Partizan náði að verja á ótrúlegan hátt.

Vítakeppnin var skelfileg. Shearer, Dyer og Woodgate klúðruðu þremur fyrstu vítum Magpies en þrátt fyrir það tókst Partizan ekki að klára dæmið. Ameobi, LuaLua og Jenas skoruðu allir en Aaron Hughes brenndi af í stöðunni 3-3. Það var svo Cirkovic sem tryggði sigur gestanna og í fyrsta sinn er lið frá Serbíu í meistaradeild.

Þetta var án efa mikilvægasta vítakeppni í sögu Newcastle enda líklegt að fallið úr meistaradeildinni kosti 18 milljónir punda. Að minnsta kosti!


27.8.2003
St James’ Park
Newcastle - Partizan Belgrad 0-1 (0-0)
Mark Partizan: Iliev 50
Lið Newcastle: Given, Hughes, Woodgate, O'Brien, Bernard, Solano (LuaLua 117), Dyer, Speed (Jenas 91), Viana (Robert 85), Ameobi, Shearer.
Gult spjald: O’Brien
Lið Partizan: Kralj, Dordevic, West, Nadj, Malbasa, Duljaj, Sasa Ilic, Cirkovic, Delibasic (Cakar 117), Iliev, Radakovic.

Áhorfendur: 37.239
Dómari: Jan Wegereef


 

14.4.2004

Gullskallar
Gömlu meistararnir Alan Shearer og Gary Speed voru hetjur Newcastle í kvöld. Liðið vann 2-1 sigur á PSV og komst þar með í undanúrslit Uefa bikarkeppninnar í fyrsta sinn í 35 ár. Shearer skoraði með skalla snemma leiks en Mateja Kezman jafnaði metin úr vítaspyrnu eftir slæm mistök hjá Ambrose og Bernard. Speed tryggði svo sigurinn með glæsilegu skallamarki en bæði mörk Magpies komu eftir hornspyrnur Laurent Roberts frá hægri.
Newcastle mætir Marseille í undanúrslitum en Frakkarnir unnu Inter Milan 1-0 á útivelli og samanlagt 2-0. Valencia og Villarreal mætast í hinum undanúrslitaleiknum.

Robson gerði eina breytingu frá því í leiknum gegn Arsenal. Titus Bramble kom aftur í vörnina í stað Andy O’Brien. Newcastle byrjaði af krafti og greinilegt að von var á hörkuleik. Eftir um átta mínútna leik vann Shearer hornspyrnu hægra megin. Laurent Robert sendi fastan bolta á nærstöng og sendingin var hárnákvæm. Alan Shearer reis hátt í loft upp, eins og hann hefur gert svo oft áður, og skallaði af krafti í markið. Hvorki markvörðurinn Waterreus né Wilfred Bouma voru nægilega fljótir til að átta sig á hættunni og knötturinn söng í netinu. Mark númer 171 fyrir Newcastle og það 6. í Evrópukeppninni í ár.
Heimamenn fengu gullin tækifæri til að bæta við á næstu mínútum. Þeir Aaron Hughes og Titus Bramble fóru hins vegar illa með færin og sérstaklega var klúður Brambles klaufalegt. Algjört dauðafæri og alveg á hreinu að Shearer hefði ekki látið slíkt úr greipum renna. En Bramble er víst ekki framherji.
Eftir þetta róaðist leikurinn nokkuð en heimamenn höfðu hann í sínum höndum. Bellamy skaut framhjá úr erfiðu færi og Jenas átti skot af löngu færi sem Waterreus varði. Jenas skallaði svo yfir eftir hornspyrnu Roberts og þegar dómarinn flautaði til leikhlés var ekki margt sem benti til að Hollendingarnir ætluðu að veita Magpies mikla keppni.

Guus Hiddink sá að eitthvað varð að gera og hann tók því Danann Rommedahl útaf en setti Jan Vannegoor of Hesselink inná í hans stað. Og hvort sem það var skiptingunni að þakka eða einhverju öðru þá náðu Hollendingarnir að jafna metin. Lee Young-Pyo fékk þá að valsa upp hægri vænginn, Ambrose leyfði Lee að senda fyrir markið og þar tók Olivier Bernard hann niður á brjóstið í stað þess að hreinsa bara frá. Ji-Sung Park fékk þar með tíma til að komast í boltann og Ollie rak út fót og felldi hann. Hrein og klár vítaspyrna. Mateja Kezman skoraði af öryggi úr vítinu, Given fleygði sér í vitlaust horn.
Eftir markið var greinilega nokkur skjálfti í heimamönnum. Ætluðu þeir enn eina ferðina að klúðra sínum málum? Robert reyndi fyrir sér með hörkuneglu sem Waterreus varði vel og nokkru síðar skallaði Bramble yfir markið. Hinum megin varði Given frá Lee en á 66. mínútu réðust úrslitin. Newcastle fékk þá hornspyrnu og Robert sendi fyrir frá hægri. Að þessu sinni sendi Robert á fjærstöng þar sem Gary Speed stökk manna hæst og skallaði í markið. Frábærlega gert hjá Gary og Robert.
Ekki var björninn enn unninn því PSV nægði að jafna metin til að komast áfram á útimarkareglunni. Bramble fór meiddur af velli og O’Brien tók stöðu hans. Ambrose vék fyrir Shola og undir lokin fór Robert af velli en Hugo tók stöðu hans. Og lokamínúturnar voru æsandi. Á þeirri 88. fékk PSV aukaspyrnu á hættulegum stað. Bouma þrumaði á mark en Shay Given náði að fleygja sér og verja boltann glæsilega. Enn eina ferðina reyndist þessi stórgóði markvörður vel á ögurstundu og Newcastle var komið í undanúrslitin.

Að þessu sinni var liðsheildin góð hjá Newcastle og allir lögðu sitt að mörkum. Áður hefur verið minnst á þátt Givens en vörnin var einnig framúrskarandi. Hughes lék mjög vel og Bernard átti fínan dag þrátt fyrir að mistökin vörpuðu skugga á frammistöðuna. Miðverðirnir voru enn betri. Woody stígur einfaldlega ekki feilspor þessa dagana og er hreinlega magnaður. Frábær leikur hjá honum og raunar ekki mikið síðri hjá Titus Bramble. Hann hefði þó getað nýtt dauðafærið sitt betur en varnarlega var hann líka magnaður.
Ambrose var gríðarlega duglegur en gerði ein mistök. Afar efnilegur piltur og reynslan sem hann hefur öðlast að undanförnu kemur til með að verða dýrmæt á næstu misserum. Speed og Jenas voru báðir sterkir. Gaman að sjá hve vel Jenas hefur spilað að undanförnu og hversu grimmur hann hefur verið. Speed er svo engum líkur og líkt og Shearer, hættur að koma manni á óvart. Fullkominn fagmaður. Robert átti kannski ekkert sérstakan dag í heildina en hornspyrnurnar mögnuðu réðu úrslitum. Leikmaður sem Sir Bobby hefur einfaldlega ekki efni á að setja út úr liðinu og það er gríðarlega mikilvægt að hann verði í formi gegn Marseille.
Framherjarnir áttu góðan leik. Bellamy stanslaust suðandi og Shearer eins og alltaf, skynsamur, öruggur, öflugur og stórhættulegur. Merkilegt að sjá varnarmenn PSV sleppa af honum hendinni í hornspyrnunni. En það er vissulega ekki við mann að eiga, hann er jú kóngurinn.

Maður leiksins: Erfitt að ganga framhjá Woodgate og Bramble en Gary Speed var alveg magnaður og gerði gott mark sem réði úrslitum.


14.4.2004
St James’ Park

Newcastle - PSV Eindhoven 2-1 (1-0)
Mörk Newcastle: Shearer 10, Speed 66
Mark PSV: Kezman v. 50

Lið Newcastle: Given, Hughes, Woodgate, Bramble (O'Brien 78), Bernard, Ambrose (Ameobi 81), Jenas, Speed, Robert (Viana 90), Shearer, Bellamy.
Lið PSV: Waterreus, Bogelund, Colin, Bouma, Lee, De Jong, Vogel (Vonlanthen 75), Van Bommel, Park, Kezman, Rommedahl (Vennegoor of Hesselink 45).

Áhorfendur: 50.083
Dómari: Manuel Enrique Mejuto Gonzalez (Spánn)


7.4.2005

Er eitt nóg?
Newcastle vann Sporting Lissabon 1-0 í fyrri leik liðanna í fjórðungsúrslitum Uefa bikarsins í kvöld. Alan Shearer var enn eina ferðina hetjan á SJP, skallaði knöttinn glæsilega í mark eftir aukaspyrnu Laurent Robert frá vinstri væng. Leikurinn var annars frekar erfiður þó Sporting menn væru ekki að skapa sér merkileg færi. James Milner fékk gott færi til að bæta við undir lokin en skaut yfir markið. Kieron Dyer var í byrjunarliðinu en fór meiddur af velli. Stöðu hans tók Lee Bowyer og fékk hann fínustu móttökur. Það virðist svo sem stuðningsmenn liðsins hafi fyrirgefið honum axarskaftið.

Souness hafði ekki marga kosti í vörninni. Carr var í sinni stöðu en að þessu sinni voru þeir Andy O’Brien og Steven Taylor miðverðir. Aaron Hughes vinstri bakvörður. Amdy Faye tók stöðu Lee Bowyer en aðrir miðjumenn voru Dyer, Jenas og Robert. Shola og Shearer fremstir. Heimaliðið byrjaði vel og margt benti til að mark kæmi fljótlega. Leikurinn tafðist þegar markvörðurinn Ricardo meiddist en fljótlega eftir að hann komst af stað á ný átti Shola skot sem markvörðurinn varði. Hinum megin átti Liedson skot af löngu færi sem Shay varði. Smám saman komust gestirnir betur inn í leikinn með góðum samleik. Vörn Magpies stóð hins vegar vaktina vel og þeir Taylor og O’Brien lentu varla í nokkrum vandræðum. Robert skaut í stöng úr hornspyrnu en Newcastle gekk illa að skapa góð færi. Shearer skallaði í mark eftir aukaspyrnu Roberts en dómarinn Baskakov var á því að Robert hefði ekki haft leyfi til að senda boltann. Furðulegur dómur og afar vafasamur. Á 37. mínútu gat dómarinn hins vegar ekki annað en dæmt mark. Robert tók þá aukaspyrnu frá vinstri væng og Shearer skallaði glæsilega í vinstra markhornið. Merkilegt að hann væri óvaldaður á miðjum teignum. Sporting menn vöknuðu heldur betur við markið og boltinn smaug framhjá marki eftir gott skot Rui Costa.

Given varð að hætta leik í hálfleik vegna eymsla í mjöðm en þessi meiðsli hafa verið að hrjá hann upp á síðkastið. Steve Harper tók stöðu hans. Harper var áreiðanlega létt við að sjá boltann fara rétt framhjá eftir skot Carlos Martins og skömmu síðar varði markvörðurinn vel frá Moutinho, henti sér og sló boltann í horn. Á 63. mínútu var Lee Bowyer skipt inná fyrir Kieron Dyer. Toon herinn fagnaði vel og svo virtist sem vitleysisgangur þeirra félaga væri úr sögunni. Nú vantaði ekkert nema annað markið. Það hefði átt að koma þegar annar varamaður, James Milner, slapp í gegn eftir langa sendingu frá Taylor. Milner náði þó ekki að stilla miðið heldur þrumaði yfir markið. Þá var Ameobi óheppinn að fá dæmda á sig hendi eftir að Ricardo hafði gloprað knettinum til hans. Spirting náði ekki að skapa nein dauðafæri en spurningin er hvort þessi naumi sigur muni nægja liðsmönnum Newcastle í Lissabon eftir viku. Aaron Hughes fékk gult í leiknum og verður í banni í Lissabon. Það sama má segja um markahrókinn Liedson hjá Sporting.

Þetta var alls ekki með bestu leikjum Newcastle og í raun hefði liðið þurft að spila mun betur til að eiga skilið að vinna stærri sigur. En það var þó margt jákvætt. Liðið hélt hreinu og ekki hægt að segja að reynt hafi verulega á markverðina. Vörnin var þokkalega góð en samt verður að fullyrða að ekki hafi reynt almennilega á menn. Sérlega ánægjulegt var að sjá Steven Taylor spila glimrandi vel í miðvarðarstöðunni. Þessi drengur er hreint ómetanlegur gullmoli. Miðjan var þokkalega þétt en alla sköpun vantaði. Faye vann vel í að hjálpa vörninni og var líklega bestur miðjumannanna. Jenas var duglegur en sendingar hans oft á tíðum arfaslakar. Hann er hreinlega óravegu frá sínu besta. Robert hefur átt mun betri daga en enn eina ferðina lagði hann upp mark. Dyer byrjaði af miklum krafti en brann yfir og fór haltrandi af velli. Vonandi að hann nái sér fyrir seinni leikinn. Bowyer barðist eins og hann gerir alltaf og Milner er hættulegur en hefði átt að setja mark. Shola spilaði hálf meiddur og stóð sig þokkalega þó hann hafi oft verið betri. Alan Shearer var eins og nánast alltaf, framúrskarandi góður og réði úrslitum.

Maður leiksins: Að þessu sinni voru tvö skær ljós í fremur drumbslegu Newcastle liði. Tveir kóngar. Báðir eru heimamenn, annar á lokakafla ferilsins en hinn rétt að byrja. Að þessu sinni hefur Steven Taylor vinninginn yfir Alan Shearer.


7.4.2005
St James’ Park

Newcastle – Sporting Lissabon 1-0 (1-0)
Mark Newcastle: Shearer 37

Lið Newcastle: Given (Harper 45), Carr, Andrew O'Brien, Taylor, Hughes, Dyer (Bowyer 63), Jenas, Faye, Robert (Milner 57), Shearer, Ameobi.
Gul spjöld: Hughes, Bowyer.
Lið Sporting: Ricardo, Rogerio, Beto, Anderson Polga, Rui Jorge, Rochemback, Carlos Martins (Mota 67), Pedro Barbosa (Tello 82), Joao Moutinho, Liedson, Sa Pinto.
Gult spjald: Liedson.

Áhorfendur: 36.753
Dómari: Yuri Baskakov (Rússland)


 

16.12.2004

Toppmenn
Newcastle gerði í kvöld jafntefli við Sporting frá Lissabon í lokaleik D-riðils Uefa bikarsins. Leikar fóru 1-1 og tryggði Newcastle sér þar með efsta sæti riðilsins sem er auðvitað hið besta mál en dregið verður í næstu umferð á morgun. Souness hafði ekki marga möguleika varðandi uppstillingu þar sem margir liðsmenn voru meiddir og Bowyer að auki í banni. Craig Bellamy skoraði með skalla eftir aðeins fimm mínútna leik og var þetta 10. mark hans á tímabilinu og 11. Evrópumarkið fyrir Magpies. Sporting jafnaði metin á 39. mínútu þegar Custodio skallaði í mark. Í seinni hálfleik fór Bellamy meiddur af velli og unglingurinn Lewis Guy tók stöðu hans. Í fyrsta sinn sem hann spilar fyrir aðalliðið. Menn börðust ágætlega og uppskáru eitt stig sem dugði til að halda toppsætinu.
Sochaux vann Panionios og hirti þar með annað sæti riðilsins en Sporting varð að láta sér nægja þriðja sætið.

Það er ekki hægt að segja annað en Souness hafi verið þröngur stakkur skorinn varðandi uppstillingu. Given var í marki, Taylor, Hughes, Bramble og Elliott mynduðu varnarlínuna, Milner, Ambrose, Jenas og Bernard miðjulínuna og frammi voru Ameobi og Bellamy. Afar ungt lið þarna á ferð en það byrjaði leikinn vel. Á 5. mínútu sendi Bramble boltann fram völlinn, Shola náði að skalla fyrir markið og þar komst Craig Bellamy framfyrir Beto og skallaði laglega í markið. Vel gert hjá Bellamy en að sama skapi afleit varnarmennska hjá Beto. Um miðjan hálfleikinn hefði Bellamy átt að bæta við marki, slapp þá einn innfyrir eftir stungubolta frá James Milner en Ricardo kom út á móti og sá við honum. Ambrose átti líka nokkrar ágætar tilraunir, skot rétt yfir á 21. mínútu og svo skalla yfir eftir fyrirgjöf Milners.
Skömmu fyrir hlé skoraði svo Miguel Custido með skalla eftir aukaspyrnu frá Fabio Rochemback en Robbie Elliott hefði átt að geta varist betur. Skallinn var hins vegar góður og óverjandi fyrir Given. Rétt eftir jöfnunarmarkið komst Bellamy í færi á fjærstöng en skalli hans fór rétt framhjá. Ambrose átti hættulega aukaspyrnu sem Ricardo missti frá sér en leikmenn Magpies náðu ekki frákastinu. 11. mínútum fyrir leikslok varð Bellamy svo að fara af velli vegna meiðsla og Lewis Guy tók stöðu hans og tók þar með í fyrsta sinn þátt í aðalliðsleik með Newcastle þó hann kæmi verulega lítið við sögu. Sporting sótti meira síðustu mínúturnar en drengirnir börðust vel og Shay þurfti aldrei að taka á honum stóra sínum. Liðið slapp þó með skrekkinn þegar Ollie Bernard felldi einn leikmanna Sporting inni í teig.

Það er ekki réttmætt að gagnrýna lið Magpies harkalega þó leikurinn hafi ekki verið augnayndi. Fyrri hálfleikur var sýnu betri en hér var um hálfgert varalið að ræða. Vörnin barðist vel og gaman er að sjá til Taylors, hann er greinilega staðráðinn í að berjast um hvern einasta bolta. Á miðjunni var JJ ágætur á köflum og Ambrose óhræddur við að skjóta á markið. Bernard stóð sig hins vegar ekki sérlega vel í vængstöðunni þó hann hafi alls ekki verið slæmur. Craig Bellamy var hins vegar langbesti maður liðsins og lentu varnarmenn Sporting ávallt í basli er hann var nálægt boltanum. Þeir gátu heldur aldrei vitað hvar hann myndi skjóta upp kollinum, slík var yfirferðin.

Maður leiksins: Craig Bellamy


16.12.2004
St James’ Park

Newcastle - Sporting 1-1 (1-1)
Mark Newcastle: Bellamy 5
Mark Sporting: Custodio 40

Lið Newcastle: Given, Taylor (O'Brien 78), Bramble, Elliott, Hughes, Milner, Ambrose, Jenas, Bernard, Bellamy (Guy 79), Ameobi.
Gul spjöld: Bramble, Ameobi, Hughes.
Lið Sporting: Ricardo, Beto (Tello 83), Anderson Polga, Enakahire, Paito, Rogerio, Rochemback, Custodio, Tinga, Pinilla (Douala 66), Liedson.
Gul spjöld: Liedson, Beto.

Áhorfendur: 28.017
Dómari: Paul Allaerts (Belgíu)


 

3.3.2004

Shola sá um Norsarana
Varamaðurinn Shola Ameobi gerði tvö mörk og tryggði Newcastle 3-1 sigur á Valerenga í seinni leik liðanna í Uefa keppninni. Þar með er Newcastle komið áfram á 4-2 sigri samanlagt. Alan Shearer gerði fyrsta mark leiksins beint úr aukaspyrnu en Norsararnir seigluðust vel og náðu að jafna metin skömmu síðar. Ameobi gerði hins vegar út um leikinn í seinni hálfleik.

Sir Bobby gat ekki notað Kieron Dyer og Darren Ambrose sem voru báðir meiddir. Þá var Lee Bowyer í banni og ekki bætti það úr skák. Þá var Ollie Bernard kominn í leikbann en Jonathan Woodgate var með á ný eftir langa fjarvist. Robert var kominn aftur í liðið, Bridges var í byrjunarliði.
Alan Shearer var allt annað en kátur með hvíldina sem hann fékk í fyrri leik liðanna. Það þurfti því ekki að koma á óvart að hann setti fyrsta mark leiksins. Bolthof varði reyndar vel frá Shearer á 9. mínútu en gat ekki komið við neinum vörnum á 20. mínútu. Þá skoraði Shearer beint úr aukaspyrnu sem var dæmd á markvörðinn fyrir að handleika knöttinn utan teigs. Vafasamur dómur en gott mark.
Toon herinn átti líklega von á að markasúpa fylgdi í kjölfarið en annað kom á daginn því Hagen jafnaði metin aðeins sex mínútum síðar. Leikmenn Newcastle náðu alls ekki að komast í gírinn og fátt markvert gerðist til leikhlés. Shay mátti að vísu verja vel til að halda Norsurunum frá því að komast yfir. Titus Bramble átti skásta færi Newcastle, skallaði rétt framhjá í viðbótartíma. Herinn hlaut að hugsa sem svo hvort að skandallinn frá því í haust ætlaði að endurtaka sig. Myndu Norsararnir ná í vítakeppni?

Craig Bellamy fór meiddur af velli í hálfleik og Shola Ameobi tók stöðu hans. Og það tók Shola aðeins rúma mínútu að koma boltanum í netið. Strákurinn fór upp vinstra megin, komst inn fyrir Hagen og áður en Rekdal fékk nokkuð að gert, skaut hann ágætu skoti að marki. Bolthof náði aðeins að krafsa í knött en inn fór hann. Frábært fyrir Shola sem hefur verið sérlega iðinn við markakolann í Evrópuleikjum. En verkið var enn aðeins hálfnað því eitt mark enn hefði nægt Norðmönnunum. Á 55. mínútu varði Bolthof vel frá Bridges en Jenas og Ameobi voru nálægt því að komast í frákastið. Þremur mínútum síðar náði Rekdal að bjarga með tæklingu eftir að Shola hafði sent inn á Shearer.
Norðmennirnir sóttu nokkuð en gekk illa að ógna markinu. Þegar 16 mínútur voru til leiksloka mátti þó Toon herinn aldeilis hirða hjartað úr buxunum. Gashi komst innfyrir Bramble og sendi fyrir markið, Woodgate spyrnti frá en Kjetil Waehler náði frákastinu og þrumaði yfir.
Dagurinn verður eftirminnilegur fyrir hinn 19 ára Martin Brittain því hann kom inná fyrir Bridges þegar rúmt korter var eftir. Fyrsti leikur hans með aðalliði Magpies. Enn sóttu Norðmenn en þegar mínúta var eftir klikkaði rangstöðutaktíkin og Jenas slapp inn fyrir, renndi boltanum á Ameobi sem skoraði auðveldlega.

Fyrri hálfleikurinn var hreint hörmulegur hjá Newcastle og leikurinn í heild slappur. Ljóst að menn verða að gera miklu betur ef ekki á illa að fara í næstu umferð.


3.3.2004
St James’ Park

Newcastle - Valerenga 3-1 (1-1)
Mörk Newcastle: Shearer 19, Ameobi 47, 89
Mark Valerenga: Hagen 25

Lið Newcastle: Given, Hughes, Bramble, O’Brien, Woodgate, Jenas, Robert, Speed, Bridges (Brittain 76), Bellamy (Ameobi 45), Shearer
Gul spjöld: Bramble 27, Hughes 36
Lið Valerenga: Bolthof, Brocken, Hagen, Hovi, Santos, Gashi, Hanssen (Waehler 65), Jalland, Rekdal (Normann 70), Berre, Holm
Gul spjöld: Hagen 45, Brocken 74, Gashi 83

Áhorfendur: 38.531
Dómari: E Braamhaar


 

10.3.2005

Bullandi séns
Newcastle vann í kvöld flottan útisigur á Olympiakos í Aþenu. Leikurinn var skrýtinn því heimamönnum fækkaði eftir því sem á hann leið. Alan Shearer skoraði fyrst úr víti en heimamenn jöfnuðu af punktinum. Laurent Robert gerði frábært aukaspyrnumark fyrir hlé og það var svo Patrick Kluivert sem tryggði sætan sigur sem hæglega getur talist með þeim bestu í Evrópusögu Magpies. Það ætti að vera nánast formsatriði að ljúka seinni leiknum á SJP og því má fullyrða að Newcastle er komið í bullandi sénsa í þessari keppni.

Souness ákvað að setja varnarþétti á miðjuna í kvöld. Faye og Butt báðir í byrjunarliði en Robert og Dyer á vængjum. Varnarlínan eins og við mátti búast, Carr, O’Brien, Bramble og Hughes. Shearer og Kluivert frammi. Engin furða að stjórinn væri varkár enda hafði Olympiakos ekki fengið á sig mark í Evrópukeppninni í ár.
Leikurinn varð þó enginn afmælisfagnaður hjá Grikkjum. Þeir byrjuðu að vísu ágætlega og Shay Given varði frá Georgatos. En allt breyttist þegar sá hinn sami fékk rautt á 11. mínútu. Dyer stakk sér inn en markvörðurinn varði. Dyer hugðist ná frákastinu og skalla að marki en Georgatos óð í bakið á honum og Dyer skall í völlinn. Dómarinn dæmdi víti og rak Georgatos af velli. Eflaust umdeilt en Alan Shearer þeytti knetti af öryggi í net. Forystan varði aðeins í þrjár mínútur. Dómarinn flautaði annað víti á Andy O’Brien fyrir að toga í Ieroklis Stoltidis. Afar vafasamt en Djordevic skoraði af öryggi.
Heimamenn virkuðu þokkalega hættulegir og það sýndist ætla að verða Newcastle erfitt að nýta liðsmun. Varið var frá Shearer á línu en loks kom að því að forystu var náð á ný og markið var ekkert slor. Laurent Robert skoraði þá glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu eftir að Gabriel Schurrer hafði brotið á honum. Áður en flautað var til hlés var Kostoulas rekinn af velli fyrir brot á Nicky Butt, hans annað gula spjald. Áhorfendur voru afar ósáttir við dómarann sem mátti þola ýmiss konar glósur er hann gekk til búningsklefa.

Seinni hálfleikurinn var óttalega daufur og liðsmenn Magpies voru ekkert að stressa sig á neinum látum enda í góðri stöðu. Þeir voru auðvitað mun meira með boltann en illa gekk að skapa opin færi. Það var ekki fyrr en varamaðurinn James Milner náði góðum spretti upp að endamörkum vinstra megin að vörn Olympiakos lét undan. Milner renndi knetti út í teig þar sem Patrick Kluivert tók við og sendi af öryggi í mark. 1-3 frábær útisigur staðreynd og ljóst að Grikkir þurfa á kraftaverki að halda til að koma í veg fyrir að Newcastle fari áfram.

Leikurinn var fínn hjá Newcastle en dómarinn setti auðvitað sterkan svip á gang mála. Liðsheildin var góð og allir lögðu sig fram í þágu heildarinnar. Þegar litið er á þau lið sem eftir eru í keppninni er á hreinu að Newcastle á góða möguleika á að fara alla leið að þessu sinni. Það er gríðarlega góður stígandi í leik liðsins og hver veit nema þetta verði ár feikilegs fagnaðar. Heill sé Souness og drengjum hans.

Maður leiksins: Amdy Faye var feikilega þéttur aftast á miðjunni og kaupin á honum virðast ætla að sannast sem gríðarlega góð. Meira af slíku!


10.3.2005
Karaiskakis Stadium

Olympiakos - Newcastle 1-3 (1-2)
Mark Olympiakos: Djordjevic v. 16
Mörk Newcastle: Shearer v. 12, Robert 34, Kluivert 69

Lið Olympiakos: Nikopolidis, Mavrogenidis, Schurrer, Kostoulas, Anatolakis, Maric, Stoltidis, Djordjevic (Kafes 76), Georgatos, Rivaldo (Giovanni 65), Okkas (Pantos 65)
Gul spjöld: Kostoulas 25, Djordjevic 74
Rauð spjöld: Georgatos 11, Kostoulas 44
Newcastle: Given, Carr, Andrew O'Brien, Bramble, Hughes, Dyer (Jenas 60), Butt, Faye (N’Zogbia 84), Robert (Milner 60), Shearer, Kluivert.

Áhorfendur: 33.000
Dómari: Arturo Dauden Ibanez (Spánn)


 

21.10.2004

Á tæpasta vaði
Newcastle vann nauman sigur á Panionios í Grikklandi í fyrsta leik sínum í D-riðli Uefa keppninnar. Grikkirnir pökkuðu þétt í vörnina og það virtist ætla að skila þeim markalausu jafntefli og einu stigi því leikmönnum Newcastle gekk afar illa að skapa færi. Skömmu fyrir leikslok fiskaði svo varamaðurinn Shola Ameobi vítaspyrnu og Alan Shearer skoraði úr henni af feikilegu öryggi.

Souness var á svipuðum nótum og að undanförnu í liðsuppstillingunni. Robert fékk þó að byrja inni að þessu sinni og Milner var á hægri vængnum. JJ og Bowyer á miðju. Vörnin óbreytt og Bellamy frammi með Shearer. Leikmenn beggja liða áttu í erfiðleikum með að leika vel saman enda völlurinn loðinn og ósléttur. Heimamenn voru fastir fyrir í vörninni en liðsmenn Newcastle mun meira með boltann. Ollie Bernard var fyrstur til að skapa hættu er hann náði góðri fyrirgjöf á 10. mínútu. Sasa Zimonjic náði skömmu síðar að blokkera skot frá Bellamy eftir að JJ hafði lagt boltann á framherjann. Shay Given hafði ekki mikið að gera en hann varði þó vel á 22. mínútu, sló skalla Mario Breska yfir markið. Panagiotis Giannopoulos skallaði svo rétt framhjá marki. Hinum megin lagði Shearer á Jenas sem skaut beint á Colceag. Besta færi fyrri hálfleiks kom svo tveimur mínútum fyrir hlé. Colceag sló frá eftir aukaspyrnu, boltinn datt fyrir Jenas sem þrumaði yfir markið af stuttu færi. Illa farið með góðan séns.

Seinni hálfleikurinn byrjaði ágætlega og minnstu munaði að Shearer næði að skalla almennilega á mark eftir fyrirgjöf Roberts. Skalli hans var þó alltof laus og Colceag ekki í vandræðum með að verja. Elliott vann tæklingu gegn Domoraud í teignum og sendi laglega fram á Bellamy. Colceag var snöggur að koma út og hirða boltann. Markvörðurinn sló svo boltann yfir þegar Shearer skallaði á mark eftir hornspyrnu. Eitthvað þurfti að gera ætti Newcastle að vinna leikinn og Souness setti Ameobi inná fyrir Milner á 67. mínútu. Þegar 16 mínútur voru eftir af leiknum hefði Shola átt að skora, skallaði framhjá marki af stuttu færi. Shearer hefði líka getað gert betur skömmu síðar er hann skallaði beint á markvörðinn. En innkoma Shola var góð og sókn Newcastle þyngdist. Allt stefndi samt í jafntefli en þegar tíminn virtist ætla að renna út náði Shola að snúa á Grigoris Makos og fiska vítaspyrnu. Þó að Makos virtist ekki gera mikið af sér gat dómarinn varla annað en bent á punktinn. Alan Shearer var öryggið uppmálað í vítinu, þrumaði boltanum upp í vinstra markhornið.

Lið Newcastle olli nokkrum vonbrigðum en þó geta menn verið ánægðir með sigurinn og stigin þrjú. Ansi mikilvæg því að Socheaux vann góðan útisigur á Dinamo Tbilisi fyrr um kvöldið. Þetta var sjöundi leikurinn undir stjórn Souness og enn hefur liðið ekki tapað. Það telst ágætt en samleikur manna í þessum leik var á köflum afar slakur. Það er frekar erfitt að meta frammistöðu einstakra manna þar sem ekki margt stóð upp úr. Given átti náðugan dag en gerði vel það sem hann þurfti að gera. Vörnin var alveg ágæt og Ollie Bernard besti maður liðsins í fyrri hálfleiknum. Ástæða til að hrósa Robbie Elliott fyrir góðan leik. Milner átti ekki góðan dag en Robert var mun skárri. Þeir Bowyer gerð1 margt vel en oft á tíðum voru sendingar hans skelfilegar. Sennilega hefur slakur völlurinn eitthvað með það að gera. Bowyer var reyndar nokkuð heppinn að hanga inná vellinum því dómarinn hefði hæglega getað gefið honum annað gula spjaldið fyrir ruddalegan leik. JJ var mun betri og átti í raun góðan dag. Sendingar sumar slakar en hann dreifði spilinu ágætlega og var mjög hreyfanlegur. Bellamy var undarlega lítið í boltanum en vann sitt starf. Líklega haf atburðir vikunnar haft nokkur áhrif á hann. Souness hikaði ekki við að færa Bellamy út á hægri vænginn eftir að Shola kom inná. Shearer var ískaldur í vítinu og átti í heildina ágætan leik. Þáttur Shola Ameobi var stór og greinilegt að strákurinn ruglaði varnarmenn Panionios í ríminu. Merkilegt hvað Shola stendur sig alltaf vel í Evrópuleikjum. Næsti leikur er gegn Dinamo Tbilisi á SJP og á að vinnast en síðan liggur leið til Frakklands þar sem liðið mætir Sochaux og það verður áreiðanlega mjög erfiður leikur.

Maður leiksins: Erfitt val að þessu sinni en Olivier Bernard átti sinn besta leik í langan tíma þó svo dofnaði nokkuð yfir honum undir lokin. Eða voru það kannski félagar hans sem bættu aðeins í?


21.10.2004
Panionios Stadium

Panionios - Newcastle 1-0 (0-0)
Mark Newcastle: Shearer v. 87

Lið Panionios: Colceag, Dodd, Vlcek, Giannopoulos, Zimonjic (Goundoulakis 69), Parodi (Lagonikakis 75), Makos, Domoraud, Spiropoulos, Breska, Tsiolis.
Gul spjöld: Zimonjic 68, Lagonikakis 86.
Lið Newcastle: Given, Carr, O'Brien, Elliott, Bernard, Milner (Ameobi 67), Jenas, Bowyer, Robert, Bellamy, Shearer.
Gul spjöld: Carr 24, Bowyer 56.

Áhorfendur: 8000
Dómari: Roberto Rosetti (Ítalía)


 

Ómetanlegt mark, níu spjöld og írskur snillingur


Newcastle mætti til leiks gegn Partizan í nýju silfurbúningunum og þeir reyndust vel. Eins og við var að búast voru áhangendur Partizan mættir löngu fyrir leik og létu ófriðlega. Stuðningsmenn Magpies fengu hins vegar leiðar móttökur við komuna til Belgrad og máttu þakka fyrir að komast á völlinn í tæka tíð. Vopnuð lögregla hélt um 100 áhangendum á hóteli og var sú skýring gefin að það væri gert til að tryggja öryggi fólksins. Fáránleg leiðindi og til skammar fyrir stjórnvöld í Belgrad.

Lið Magpies byrjaði af krafti og strax á 2. mínútu náði Shearer að fleyta knettinum inn á Dyer sem rétt missti af honum. Brotið var á Bellamy og aukaspyrna dæmd en Solano skaut í varnarvegginn. Newcastle fékk aðra aukaspyrnu þegar West braut á Shearer en markmaður Partizan varði skot Solanos.
Partizan náði síðan upp pressu og fékk nokkrar hornspyrnur en leikmenn Magpies vörðust af öryggi. Eftir um 20 mínútur jafnaðist leikurinn og færin voru fá. Helst að hætta skapaðist þegar Newcastle fékk aukaspyrnur en þær nýttust ekki. Shearer átti eina þrumu í vegginn á 30. mínútu.
Á 38. mínútu dró svo til tíðinda. Robert sendi fyrir, Shearer náði ekki til knattarins en Nobby Solano var mættur á fjærstöng og renndi boltanum í netið. Óhemju mikilvægt mark og nú skyldi reyna á Partizan.
Minnstu munaði reyndar að heimamenn jöfnuðu rétt fyrir hlé en þá varði Shay Given frábærlega frá Delibasic sem hafði fengið alltof mikið pláss hægra megin í teignum.

Lothar Matthäus setti Drulovic inná fyrir Duljaj í hálfleik og varamaðurinn átti góða fyrirgjöf strax eftir hlé, en Malbasa skaut í hliðarnetið. Á 53. mínútu fékk Bellamy að líta gula spjaldið fyrir að röfla í dómaranum, hefðbundið hjá honum. O’Brien fékk einnig gult spjald, fyrir fremur saklaust brot á Stojanoski. Fátt markvert gerðist en Sir Bobby setti Ameobi inná fyrir Robert á 64. mínútu.
Þegar um 15 mínútur voru eftir fóru heimamenn að pressa en vörn Magpies var föst fyrir með Woodgate sem besta mann. Bernard átti skot sem Kralj blokkeraði á 76. mínútu en Ameobi fékk svo gult fyrir brot. Malbasa var bókaður skömmu síðar og West fékk gult fyrir að rífa Bellamy niður þegar hann var að sleppa innfyrir. Dómarinn var enn með spjald á lofti og gaf Shearer gult fyrir að taka aukaspyrnu of snemma. Markvörður Partizan varði spyrnu Solanos síðan auðveldlega. Heimamenn fóru í sókn og Given varði glæsilega frá Iliev. Dómarinn var nú kominn í ógurlegan ham og næst bókaði hann Bernard en fáir vissu fyrir hvað.
Þegar sjö mínútur voru eftir setti Sir Bobby Jenas inná fyrir hetjuna Solano en heimamenn voru hættulegir undir lokin. Sóknirnar dundu nú að marki Magpies og Given varði enn eina ferðina ótrúlega vel, að þessu sinni frá West. Given átti svo síðasta orðið þegar hann varði af snilld frá Stojanoski og þar með var mikilvægur sigur í höfn.

Mark Nobbys er ómetanlegt og fleytir Magpies hálfa leið í meistaradeildina. Má segja að það sé líka fullkomið svar hjá litla Perúmanninum við komu Lee Bowyers á Tyneside. Það má heldur ekki gleyma þætti Shay Given sem varði hreint ótrúlega í leiknum. Lið Magpies spilaði vel og átti sigur skilinn en líklega hefði honum þó ekki verið landað ef ekki hefði komið til snilli írska markmannsins. Jonathan Woodgate átti líka frábæran dag og stjórnaði vörninni vel. Dómarinn hlýtur hins vegar að vera eitthvað vankaður því hann gaf níu gul spjöld í leiknum, þar af átta í seinni hálfleik.


Belgrad 13.8.2003
Partizan Belgrad - NUFC 0-1 (0-1)
Lið Magpies: Given, Griffin, O’Brien, Woodgate, Bernard, Solano (Jenas 83), Dyer, Speed, Robert (Ameobi 64), Bellamy, Shearer.
Mark Magpies: Solano 38
Gul spjöld: Bellamy, O’Brien, Ameobi, Shearer, Bernard
Lið Partizan: Krajl, Bajic, Dordivic, West, Cirkovic, Duljaj (Drulovic 46), Nad, Malbasa, Ilic, Delibasic (Stojanoski 69), Iliev.
Gul spjöld: Nad, Dordevic, Malbasa, West
Dómari: Vladimir Hrinak
Áhorfendur: 32.500


 

9.4.2004

Allt í járnum
Newcastle er í ágætri stöðu eftir 1-1 jafntefli við PSV Eindhoven í Hollandi í gær. PSV komst yfir í leiknum með fallegu marki Serbans Mateja Kezman en Jermaine Jenas jafnaði metin með skalla. Úrslitin þýða að nú verða Hollendingarnir að skora á SJP þar sem útimarkið hefur tvöfalt vægi. Leikur Newcastle var góður og barátta liðsmanna til fyrirmyndar.

Kieron Dyer var enn eina ferðina frá vegna meiðsla en Jermaine Jenas tók stöðu hans. Annars var liðið óbreytt frá síðasta leik. Greinilegt var á upphafsmínútum leiksins að mótherjar Newcastle voru þeir langsterkustu í keppninni til þessa. Og Hollendingarnir byrjuðu með látum og voru feikilega ákveðnir. Keyrt var upp báða vængina og greinilegt var að nú átti að þefa uppi veikleikana. Titus Bramble náði að renna sér og bjarga af tánum á Mateja Kezman strax á fyrstu mínútunni. Leikmönnum PSV gekk vel framan af og sérstaklega skapaðist hætta vinstra megin. Jermaine Jenas bjargaði glæsilega þegar Jan Vannegoor of Hesselink slapp inn vinstra megin og sendi fyrir á Kezman.
Þegar um stundarfjórðungur var liðinn af leiknum vann Hesselink skallaeinvígi við Woodgate og kom boltanum fram völlinn. Boltinn féll hálfilla fyrir Hughes sem mistókst að ná valdi á honum. Hikið var nóg fyrir Mateja Kezman sem náði að stela boltanum, lék með hann í átt að marki og skaut svo hnitmiðað efst í hornið fjær þegar Titus Bramble var kominn í hann. Glæsilega gert.
Leikmenn Newcastle tóku að sækja eftir markið. Ronald Waterreus sló þrumufleyg Gary Speed yfir markið og kýldi svo góða fyrirgjöf Bernards frá marki. Í millitíðinni hafði Woodgate reyndar bjargað vel við nærstöng þegar Kezman gerðist ágengur. Newcastle var smám saman að ná völdum á miðjunni og Alan Shearer fékk ágætt færi þegar Laurent Robert vippaði laglega yfir varnarmenn PSV en skot meistarans var að þessu sinni hátt yfir markið. Aðeins mínútu síðar var Shearer mun nær því að skora. Bellamy sendi á Hughes og hann komst upp að endamörkum, sendi fyrir en Shearer skallaði yfir. Darren Ambrose var þarna í algjöru dauðafæri en Hughes sá hann líklega ekki.
Pressan jókst enn en undir lok hálfleiksins var Bramble heppinn. Hann sveiflaði handleggnum í átt að Remco van der Schaaf og miðvörðurinn fleygði sér með ógurlegum tilþrifum og hélt um andlitið. Ekki ósvipað atvik og þeir Bellamy og Shearer lentu í á síðasta tímabili en sem betur fer slapp Bramble með skrekkinn. Þó dómari leiksins hafi verið óttalega lélegur verður að hrósa honum fyrir að falla ekki í þessa gildru. Það er fátt ömurlegra í fótbolta en að sjá leikmenn reyna að blöffa dómarann til að láta reka mótherjana af velli. Afar kúkalegt svo ekki sé meira sagt.
Þegar um fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Newcastle metin. Leikarinn van der Schaaf braut þá kjánalega á Bernard nærri endamörkunum og Robert tók aukaspyrnuna. Sendi fyrir markið og þar stökk Jermaine Jenas hæst manna og skallaði knöttinn í mark. Dómarinn flautaði svo til leikhlés.

Seinni hálfleikur var gjörólíkur þeim fyrri og ekki nærri því eins skemmtilegur. Leikmenn Newcastle hugsuðu fyrst og fremst um að verjast og pressan var á köflum ansi mikil. Varnarmenn liðsins stóðu sig feikilega vel og þeir Bramble og Woodgate fóru á kostum og hreinlega fleygðu sér í boltana. Minnstu munaði þegar Wilfred Bouma átti þrumuskalla í þverslá. Líklega hefur Given náð að koma aðeins við boltann þar. Kezman átti góða hjólhestaspyrnu yfir markið en annars voru færin fá þar sem varnarmennirnir stóðu sig svo vel.
Skömmu fyrir leikslok munaði svo minnstu að Newcastle næði að stela sigri. Bellamy komst þá á ferðina og renndi boltanum á Shearer sem þrumaði á mark. Waterreus sló boltann yfir markið.

Menn geta verið ánægðir með jafntefli úr þessum leik. PSV er hörkulið en Newcastle á að geta nýtt sér heimavöllinn og klárað dæmið. Mark Jenas er mjög mikilvægt og gott að strákurinn skyldi vera með. Barátta liðsmanna var hreinlega til fyrirmyndar og á það við um hvern einasta leikmann. En þá að liðinu.
Shay Given virkaði eitthvað óöruggur í leiknum þó hann gerði kannski ekki nein alvarleg mistök. En einhverra hluta vegna virtist markmaðurinn alls ekki í sínu besta formi. Aaron Hughes byrjaði mjög illa og gerði mistök þegar Kezman stal af honum boltanum. En Hughes bætti sig þegar á leikinn leið og í heildina komst hann þokkalega vel frá leiknum. Ollie Bernard átti sinn besta leik í nokkurn tíma. Mjög sterkur varnarlega og ógnandi sóknarlega. Skínandi leikur hjá honum. Miðverðirnir tveir áttu stjörnuleik. Woodgate sagði fyrir leikinn að hann ætti nóg inni enn og miðað við svona frammistöðu hljóta menn að vera hugsi yfir slíkum fullyrðingum. Woody steig hreinlega ekki feilspor í gær og leysti allt af yfirvegun. Algjör klassi! Og Titus okkar Bramble. Hann átti kannski sinn besta leik síðan hann kom. Byrjaði á rosalegum tæklingum inni í teig og hafði kannski heppnina með sér. Var eins og jötunn í vörninni, vann boltann hvað eftir annað og skilaði honum ágtlega frá sér. Ef hann heldur áfram á þessari braut er Newcastle einfaldlega í góðum málum hvað vörnina varðar.

Miðjan átti góðan dag. Darren Ambrose byrjaði að vísu ekki vel en stóð vel fyrir sínu þegar á heildina er litið. Ósérhlífinn leikmaður sem vinnur vel fyrir liðið. Og ekki gleyma því að hann er aðeins 19 ára. Jermaine Jenas átti skínandi leik og áreiðanlega einn sinn besta á tímabilinu. Barðist eins og ljón, vann tæklingar, vann skallaeinvígi, sýndi glæsilega boltatækni og átti góðar sendingar. Framúrskarandi dagur hjá honum. Og Gary Speed átti líka skínandi dag. Hann barðist feikivel og var eins og ryksuga aftan til á miðjunni. Ef varnarmennirnir yfirgáfu sitt svæði var Speed ávallt til staðar. Ómetanlegur fyrir þetta lið. Laurent Robert átti mjög góðan leik en kannski nokkuð ólíkan því sem við höfum svo oft séð. Hann barðist út um allan völl og var á sífelldum hlaupum. Fór meira að segja í nokkrar tæklingar og studdi vel við Ollie. Glæsilegt hjá Frakkanum snjalla. Svo má ekki gleyma því að hann átti sendinguna á Jenas.

Framlínan var með daufara móti. Þeir Bellamy og Shearer virtust ekki upp á sitt besta og engu líkara en Bellamy kæmist ekki í gírinn sinn. Ekki þeirra besti dagur þó auðvitað væri baráttan til staðar eins og ávallt. Ameobi kom svo inná fyrir Shearer á lokamínútunum en hafði ekki tíma til að gera mikið.

Maður leiksins: Titus Bramble: Jötunn í vörninni!


8.4.2003
Philipsstadion

PSV Eindhoven - Newcastle 1-1 (1-1)
Mark PSV: Kezman 15
Mark Newcastle: Jenas 45+

Lið PSV: Waterreus, Bogelund, Bouma, Colin, de Jong (Rommedahl 67), Lee, van Bommel, van der Schaaf (Vogel 66), Kezman, Park, Hesselink
Gul spjöld: van der Schaaf 13, de Jong 45, Waterreus 87
Lið Newcastle: Given, Hughes, Woodgate, Bramble, Bernard, Ambrose, Jenas, Speed, Robert, Shearer (Ameobi 89), Bellamy
Gult spjald: Jenas 68

Áhorfendur: 35.000
Dómari: Gilles Veissiere (Frakkland)


25.11.2004

Franska grýlan fífluð
Newcastle kvað svo sannarlega frönsku grýlu í kútinn í kvöld. Liðið hafði ekki unnið Evrópuleik á franskri grundu þegar kom að leiknum en nú snéru menn heim með þrjú stig í farteski eftir fjögra marka sigur. Liðsmenn Newcastle geta þó þakkað markverðinum Shay Given sigurinn að nokkru leyti en hann átti stórleik þótt undarlegt megi virðast þegar horft er á lokatölur. Lee Bowyer setti fyrsta markið í fyrri hálfleik en Shola Ameobi bætti við í upphafi þess síðari. Bellamy og Robert bættu við áður en yfir lauk.

Souness kom ekkert á óvart með uppstillingu. Vörnin var sjálfvalin með þeim Hughes, Bramble, Elliott og Bernard. Ungliðarnir Ambrose og Milner á vængjum og Butt og Bowyer á miðju, Bellamy og Ameobi frammi.
Hvorugt liðið hafði fengið á sig mark í keppninni til þessa og eitthvað hlaut undan að láta. Frakkarnir voru sterkari til að byrja með og Romain Pitau átti fyrsta skotið en boltinn fór beint á Given. Eftir tæpar tíu mínútur kom Lee Bowyer sér í svörtu bókina dómarans eftir ljótt brot. Þar með var hann kominn í leikbann. Frakkarnir voru heitir og Shay Given varði frábærlega skot Menez úr aukaspyrnu. Hinum megin klúðraði Bellamy góðu færi eftir fyrirgjöf Milners, þrumaði yfir markið. Á 29. mínútu skoraði svo Newcastle nokkuð gegn gangi leiksins. Ameobi elti boltann inn í teig, boltinn hrökk út þar sem Lee Bowyer tók við og sendi hann viðstöðulaust í vinstra markhornið. Kannski nokkur heppni en vel gert hjá Bowyer sem skoraði fyrsta mark sitt á tímabilinu. Heimamenn sóttu fastar en skyndisóknir gestanna voru hættulegar. Ameobi skaut framhjá marki en skömmu síðar klúðraði Milner sannkölluðu dauðafæri. Given átti þá fantagóða sendingu fram á Bellamy sem sendi fyrir en Milner setti boltann yfir markið af stuttu færi. Given varði svo með fæti þegar Ilan virtist ætla að jafna metin og skömmu síðar varði hann vel frá Isabey. Bernard fékk gult fyrir ljótt brot en Mathieu skaut framhjá úr aukaspyrnunni.

Liðsmenn Newcastle voru fljótir að láta til sín taka í seinni hálfleik því Bernard rauk upp vinstri vænginn og sendi fyrir. Varnarmönnum Sochaux tókst ekki að verjast og Ameobi var á fjærstöng og stýrði boltanum í netið. Þegar rúmur hálftími var eftir setti Sochaux Santos inná fyrir Menez og Souness tók Bowyer útaf en Dyer kom inn. Og Sochaux fékk gullið tækifæri til að komast inn í leikinn þegar liðið fékk víti dæmt á peysutog. Mathieu skaut hins vegar framhjá markinu. Frakkarnir settu allt í sóknina og Wilson Oruma skaut framhjá marki. Á 75. mínútu gerðu gestirnir svo út um leikinn. Dyer átti þá flotta sendingu innfyrir á Hughes sem var kominn einn í gegn. Í stað þess að skjóta renndi hann til hægri á Bellamy sem skoraði auðveldlega. Vel gert. Enn reyndu Frakkarnir að sækja en vörnin stóð sig vel og Given var öruggur að baki henni. Það var svo varamaðurinn Robert sem átti lokaorðið. Hann skoraði beint úr aukaspyrnu skömmu fyrir leikslok.

Það er ómögulegt annað en hrósa liðinu fyrir þessa frammistöðu þó sigurinn sé í stærra lagi. Newcastle hefur hins vegar fengið að reyna það á eigin skinni í vetur að í sparkinu er ekki spurt um sanngirni. Þar ráða mörkin úrslitum. Shay Given var frábær í sínum 300. leik fyrir Magpies. Hefði hann ekki staðið sig fantavel í fyrri hálfleik hefðu úrslitin getað orðið önnur. Vörnin stóð vel fyrir sínu og ástæða til að hrósa Bramble og Elliott í miðvarðarstöðunum. Milner og Ambrose voru duglegir og Bowyer og Butt sömuleiðis. Það sama má segja um framherjana. Þetta var fyrst og fremst sigur góðrar liðsheildar og allir liðsmenn lögðu sitt að mörkum. Souness gaf mönnum séns og að þessu sinni er ekki hægt að segja annað en hann hafi veðjað á réttu hestana.

Maður leiksins: Shay Given, ekki spurning að hann átti snilldarleik.


25.11.2004
Auguste-Bonal

Sochaux - Newcastle 0-4 (0-1)
Mörk Newcastle: Bowyer 29, Ameobi 46, Bellamy 75, Robert 90

Lið Sochaux: Richert, Paisley, Diawara, Daf, Mathieu, Pitau, Lonfat (Boudarene 17), Oruma, Isabey (Diarra 84), Ilan, Menez (Santos 57)
Lið Newcastle: Given, Bernard, Bramble, Hughes, Elliott, Bowyer (Dyer 62), Butt, Ambrose (Taylor 90), Milner (Robert 80), Ameobi, Bellamy.
Gul spjöld: Bowyer, Bernard.

Áhorfendur: 15.173
Dómari: Carlos Megia Davila (Spánn)


14.3.2005

Sjálfsmorð
Newcastle er úr leik í Uefa bikarnum eftir ótrúlega viðureign gegn Sporting í Lissabon. Kieron Dyer kom Newcastle í 1-0 og tveimur mörkum yfir samanlagt og þar með þurfti Sporting að gera þrjú mörk, nokkuð sem virtist ómögulegt verkefni. En Sporting menn leystu það engu að síður og gott betur, unnu leikinn 4-1. Staðan var 1-1 í hálfleik en þegar leið á seinni hálfleik hrundi leikur Magpies til grunna og heimamenn gengu á lagið. Meiðsli lykilmanna settu óneitanlega strik í reikninginn og höfðu áhrif en það afsakar ekki hrunið. Það átti að vera hægt að koma í veg fyrir að Sporting gerði þrjú mörk. Í raun er ekki hægt að segja annað en liðsmenn Newcastle hafi fært andstæðingunum færin og sigurinn á silfurfati.

Laurent Robert var ekki einu sinni á bekknum eftir uppákomu dagsins. Souness greinilega búinn að fá nóg af fáránlegum athugasemdum Frakkans tungulipra. Given var kominn í markið á ný og Titus Bramble í miðvarðarstöðuna við hlið Steven Taylor. Baba og Carr bakverðir. Faye, Bowyer, Jenas og N’Zogbia voru á miðjunni en Dyer frammi með Shearer. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Toon því á 1. mínútu mátti Shay bjarga marki með ágætri vörslu. Það var þó ekki forsmekkurinn af því sem koma skyldi því smám saman náðu liðsmenn Magpies ágætum völdum á leiknum og voru afar hættulegir í sókninni, sérstaklega Dyer sem var oft við það að sleppa innfyrir. Þó liðsmenn Sporting væru meira með boltann náðu þeir ekki að skapa nein færi og vörn þeirra virkaði óörugg. Eitthvað hlaut að gerast. Á 20. mínútu náði Dyer að stinga sér innfyrir og senda boltann milli fóta Ricardos í markinu. Vel gert hjá Dyer. Minnstu munaði að hann setti annað mark á svipaðan hátt en skot hans fór þá naumlega framhjá. Á 40. mínútu jöfnuðu heimamenn. Bramble náði bara rétt að snerta boltann með kollinum þegar sending kom frá vinstri væng en það var ekki nóg því Niculae skallaði af krafti í netið. Bowyer fékk fínt færi til að koma Toon aftur yfir. Shearer renndi út á hann en skotið var yfir og framhjá. Hinum megin varði Given frábærlega þrumuskot frá Moutinho. 1-1 í hálfleik.

Jenas mætti ekki til leiks í seinni hálfleiknum og var það synd því hann hafði leikið vel í þeim fyrri. Í hans stað kom James Milner inná. Milner fékk fljótlega færi en skaut beint á Ricardo í markinu. Illa farið með gott færi þar. Dyer fór haltur af velli og Kluivert kom í hans stað. Annað áfall þar því Dyer hafði verið hættulegasti maður liðsins. Kluivert byrjaði ekki betur en Milner því hann náði ekki að senda almennilega á Shearer sem var í dauðafæri. Hefðu menn nýtt færin hefði útkoman áreiðanlega orðið önnur í leikslok.
En nú var komið að árás Sporting manna. Þeir tóku öll völd á vellinum og varnarleikur Newcastle batnaði ekki við að Bramble færi meiddur af velli og Andy OB tæki stöðu hans. Þar við bættist að N’Zogbia fékk slæmt högg og var augljóslega meiddur. Given varði gott skot frá Barbosa en hann gat ekkert að gert þegar Sa Pinto hirti frákastið og setti í netið. 2-1 en Newcastle enn inni í keppninni. Áfram pressuðu heimamenn og Beto skallaði í mark eftir hornspyrnu frá Rochemback. Newcastle átti möguleika á að skora eitt og komast áfram á útivallarmörkum rétt eins og í keppninni 1969 en sagan átti ekki að endurtaka sig að þessu sinni. Undir lokin notfærði Rochemback sér herfileg mistök Stephen Carr og gulltryggði ævintýralegan sigur Sporting og fullkomnaði um leið sneypu Magpies.

Þetta var afar sárt tap og nú þykir víst flestum líklegast að tímabilið sé að renna Newcastle úr greipum. Flestir telja Man United mun sterkara lið en Sporting og þegar við bætist að Newcastle getur ekki stillt upp nálægt því sínu sterkasta liði þá eru sigurlíkur harla litlar á sunnudag. Hvað um það. Given var fínn í markinu og gat ekkert við mörkunum fjórum gert. Vörnin var afar slök þó gott væri að sjá Titus koma inn í þetta að nýju. Carr og Baba voru báðir í vandræðum þó þeir gerðu góða hluti inn á milli. Carr átti í heildina skelfilegan dag. Taylor var þokkalegur en átti sinn skerf af mistökum. En líklega var það þó miðjan sem tapaði klikkaði verst. Jenas var fínn í fyrri hálfleik og agalegt að missa hann af velli. Milner gerði bókstaflega ekki neitt af viti og átti afar slakan dag. Bowyer var ágætur í fyrri hálfleik en missti taktinn og virtist algjörlega detta út úr leiknum. Að auki voru allt of margar sendingar hans arfaslakar. Faye var svo sem duglegur en á að geta mikið betur. Að þessu sinni var hann ekki nægilega góður varnarskjöldur og átti fjöldann allan af mislukkuðum sendingum. N’Zogbia átti mjög slakan dag en spilaði að vísu meiddur nokkurn hluta leiksins. Shearer fékk ekki mikið að gera en Dyer var bestur meðan hans naut við, sífellt til vandræða fyrir varnarmenn Sporting. Kluivert gerði ekkert af viti og virðist því miður ekki geta neitt þessa dagana.
Enn eina ferðina tapaði Newcastle á hroðalegum varnarmistökum, færaklúðri og ónákvæmni leikmanna. Það verður afar fróðlegt að sjá hvað gerist á næstunni. Leikurinn á sunnudag verður fróðlegur og framhaldið í deildinni hvernig svo sem fer gegn ManU.

Maður leiksins: Kieron Dyer þrátt fyrir að hafa farið snemma af velli.


14.4.2005
Jose Alvalade Stadium

Sporting - Newcastle 4-1 (1-1)
Mörk Sporting: Niculae 40, Sa Pinto 71, Beto 77, Rochemback 90
Mark Newcastle: Dyer 20

Lið Sporting: Ricardo, Anderson Polga, Rogerio, Rui Jorge, Beto, Carlos Martins (Pedro Barbosa 67), Rochemback, Joao Moutinho, Sa Pinto (Custodio 89), Niculae (Pinilla 75), Douala.
Gul spjöld: Beto, Anderson Polga.
Lið Newcastle: Given, Carr, Bramble (Andrew O'Brien 57), Taylor, Babayaro, Jenas (Milner 46), Faye, Bowyer, N'Zogbia, Dyer (Kluivert 60), Shearer.
Gul spjöld: Bowyer, Taylor.

Áhorfendur: 45.000
Dómari: Peter Frojdfeldt (Svíþjóð)


 

26.2.2004

Algjörir aular!
Newcastle gerði 1-1 jafntefli við norska liðið Valerenga í UEFA keppninni. Bellamy skoraði gullfallegt mark í fyrri hálfleik en Normann jafnaði metin snemma í seinni hálfleik með góðum skalla. Normennirnir eru væntanlega hæstánægðir en okkar menn eiga að skammast sín fyrir slæman leik.

Sir Bobby hafði gert nokkrar breytingar á liðinu. Hann var svo djarfur að leggja Kóngi vorum við bekkinn en oft hefur reynst vafasamt að geyma slíka eðalvagna þegar kemur að svona leikjum, þó svo mótherjarnir eigi ekki að vera mikil fyrirstaða.

Leikurinn fór frekar rólega af stað og ekkert markvisst gerðist fyrstu mínúturnar, ekki fyrr en Ambrose negldi í átt að markinu frá vítateighorninu en boltinn lenti í andlitinu á varnarmanninum Hovi sem sá tvöfalt eftir höggið. Um 20 mínútum seinna var honum skipt útaf fyrir Edvaldsen. Stuttu áður komst Dos Santos í skotfæri nokkrum metrum hægra megin við markið eftir glæsilega sendingu frá miðjunni en Shay varði með tilþrifum. Á 22min komst Abrose í svipað færi, eftir sendingu fá Bellamy, en Bolthof var vel staðsettur og varði boltann í horn. Næstu 10 mínúturnar hélt Newcastle áfram að skapa færi en uppskar ekkert. Minnstu munaði þó þegar Speed skallaði framhjá. Á 36. mínútu fékk Bernard gult fyrir að smella olboganum í andlitið á Edvardsen. Þremur mínútum síðar tók Jenas horn, Hanssen hreinsaði en Viana náði boltanum og sendi inn í teiginn. Þar tók Bellamy við og hamraði viðstöðulaust í fjærhornið. 0-1 fyrir okkar menn.

Leikmenn Valerenga byrjuðu seinni hálfleik af krafti og náðu að skapa sér nokkur hálffæri en liðsmenn Newcastle komust varla af sínum vallarhelmingi. Í upphafi hálfleiksins þurfti Ambrose að fara af velli vegna meiðsla og Dyer kom inn fyrir hann. Á 54. mínútu náði Valerenga frábærri sókn sem endaði með því að Brocken sendi glæsilega inn í teig frá hægri kantinum. Boltinn fór af kollinum á Normann í hægra markhornið og staðan orðin 1-1.
Fátt markvert gerðist næstu 10 mínútur, eða þar til Gamli kallinn skifti Ameobi og Viana útaf fyrir Bridges og Robert. Bridges gerði nú engar gloríur en Robert átti 2 góð skot að marki, annað úr aukaspyrnu af 40 metra færi sem fór útaf af varnarmanni og hitt rétt utan teigs en þá varði Bolthof glæsilega. Valerenga átti einnig nokkur góð færi en Given var ekki á því að fá á sig annað mark.

Það verður að játa að norska liðið kom töluvert á óvart, liðið barðist vel og uppskar sanngjarnt jafntefli, þrátt fyrir að hafa ekki spilað keppnisleik á þessu ári. Okkar menn ullu töluverðum vonbrigðum með slökum sóknarleik og er það vissulega áhyggjuefni að ekkert gerist að viti fyrir framan miðju nema Shearer sé þar til að segja mönnum til.


26.2.2003
Valhall, Osló

Valerenga – Newcastle 1-1 (0-1)
Mark Newcastle: Bellamy (39)
Mark Valerenga: Normann (54)

Newcastle United: Given, O'Brien, Jenas, Bellamy, Speed, Ambrose(Dyer 50'), Hughes, Bramble, Ameobi (Bridges 73') Bernard, Viana (Robert 73')
Gult spjald: Bernard 37
Bekkurinn: Harper, Elliott, Shearer,Taylor

Valerenga: Bolthof, Brocken, Hagen, Dos Santos, Rekdal, Berre, Hovi(Edvardsen 24' (Krogstad 87')), Gashi, Hanssen, Normann (Ovrebo 81'), Fredheim Holm
Gult spjald: Hanssen 78
Bekkurinn: Hjulstad, Bohinen, Naess Lund

Áhorfendur: 17.039
Dómari: Grzegorz Gilewski (Poland)