24. nóv

Í 20. skiptið á leik í Newcastle !

Engin maður hefur farið eins oft á leiki til Newcasle og Hafsteinn Þórðarson gjaldkeri kúbbsins. Hann er einn af alhörðustu stuðningsmönnum Newcastle og hér segir hann ferðasögu sína  frá nokkrum síðustu leikjum. Skoða nánar

Vandræði að útvega félögum miða:

Hafsteinn gjaldkeri skrifar;

Blessaður Guðmundur.

Svar var að berast frá okkar ágæta klúbbi í norður Englandi.

Skemmst er frá að segja að við erum algjörlega sett út í kuldann, ef ég má orða það svo.    Okkur bent á að miða sé hægt að kaupa á netinu þegar þeir fari í almenna sölu þ.e. ca 10-14 dögum fyrir leik.

Mín skoðun er sú að við þurfum að senda út fulltrúa ( formann klúbbsins ) til viðræðu við þessa ágætu aðila og fá einhvern beinann tengilið.  Box office er eingöngu að vinna sína vinnu án tillits til þess sem okkur hentar þ.e. að panta bæði flug og gistingu og láta þetta allt harmonera saman.

Þeir svara engu með charlton leikinn í okt. né man un leikinn um áramótin og benda á að sala á everton leikinn hefjist á þriðjudaginn 12.sept.

Hvað á svona klúbbur að gera ef við þurfum að vísa okkar félagsmönnum á þessar reglur sem eiga við um alla lausasölu án tillits til hvort menn eru áhangendur NUFC eða ekki.  Þá er jafnframt engin trygging fyrir miðum á góðum stað.  Þetta er bara sama sístem og ég hef keypt miða hjá öllum félögum í London þ.e. farið á netið eða hringt þegar lausasala hefst og gefið upp kortanúmer til greiðslutryggingar.

Fyrir tveimur árum sendi ég þeim mjög harðort bréf sem útskýrði okkar stöðu.  Það var á þeim tíma að pósturinn frá þeim var undirritaður af einherjum aðila.  Nú er eingöngu undirritun ( Kind regards )  ekkert nafn.

Þetta bréf hafði ágæt áhrif, ásamt símtölum í framhaldi þess og við fengum betri þjónustu og svör um miða fram í tímann.

Þessu er að mínu mati lokið frá þeirra hálfu og við þurfum eitthvað að gera eigi klúbburinn að standa undir nafni og útvega miða á leiki.

Ertu til í að skreppa út 23.sept á leikinn gegn Everton og skammast svolitið  ????  Fá hjá .þeim tengilið sem hleypir okkar fyrirspurnum framhjá steinrunnum svörum Box office sem setja sig ekkert inní hvaðan fyrirspurn kemur og hvað viðkomandi áhugamenn kosta til að koma og sjá hjá þeim leiki.

kv.

Hafsteinn

 

 

Heim