|
Fréttavefur
9.Okt

Stuttar fréttir
# Mark Viduka gæti verið frá í allt að sex mánuði. Viduka er í heimalandi sínu Ástralíu til að fá úr því skorið hvort hann þarf á aðgerð að halda vegna meiðsla á hásin sem hafa verið að hrjá hann.
# Tony Jimenez varaforseti Newcastle hefur hætt störfum hjá Newcastle en hann hóf störf í janúar síðastliðnum.
# Gerry Francis fyrrum stjóri QPR, Tottenham og Bristol Rovers íhugar hvort hann eigi að taka tilboði Joe Kinnear um að gerast þjálfari hjá Newcastle
(FB)
8.Okt
Newcastle á toppnum
Eins og svo oft áður er Newcastle á toppnum hvað varðar meiðslafjölda leikmanna hjá úrvalsdeildarliðunum.
Eins og staðan er í dag þá er Newcastle með 8 leikmenn frá vegna meiðsla, Chelsea er í öðru sæti með 6 leikmenn og svo eru erkifjendurnir í Sunderland í þriðja sæti með 5 leikmenn meidda.
Þeir leikmenn sem eru meiddir hjá
Newcastle eru: (væntanlegur til baka)
Nacho Gonzalez 20 okt
Oba Martins 9 nóv
Habib Beye 20 okt
Alan Smith í desember
Jonas Gutierrez 20 okt
Andy Carroll 20 okt
Wesley Ngo Baheng jan 09
Mark Viduka óákveðið
Eins og sjá má þá er stutt í að nokkrir af þessum mönnum verði tilbúnir og mun það styrkja liðið heilmikið. Þeir Habib Beye og Jonas Gutierrez ættu að vera tilbúnir í næsta leik sem er gegn Man City mánudaginn 20 okt.
(FB)
8.Okt
Ný könnun
Það er komin ný könnun og nú er spurt hvort menn hafi einhverja trú á að Joe Kinnear muni gera góða hluti með Newcastle. Niðurstaða úr síðustu könnun er svona:
Hversu oft kíkir þú á heimasíður Newcastle klúbbsins ?
Einu sinni á dag eða oftar 76%
2 - 4 sinnum á viku 18%
Nokkrum sinnum á mánuði 7%
(FB)
5.Okt
Everton - Newcastle 2-2
(Arteta 17vsp, Fellaini 35) - (Taylor 45, Duff 47)

Flott endurkoma hjá Newcastle
Eftir fimm tapleiki í röð þá náði Newcastle jafntefli á Goodison Park í dag eftir að hafa lent 2-0 undir. Arteta kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu eftir að Nicky Butt hafði brotið klaufalega á Leighton Baines innan teigs. Fellaini kom svo Everton í 2-0 á 35 mínútu og útlitið ekki gott hjá Newcastle. En Steven Taylor náði að minnka munin á síðustu mínútu fyrri hálfleiks með flottu skallamarki. Geremi átti þá góða sendingu inn á teig Everton og Taylor skallaði boltann í slánna og inn. Staðan því 2-1 hálfleik.
Seinni hálfleikur var mjög góður hjá okkar mönnum og strax í byrjun náði Newcastle að jafna leikinn. Steven Taylor átti flott hlaup upp að endamörkum og sendi boltann fyrir markið beint fyrir lappir Damien Duff og hann átti ekki í erfiðleikum að skora af stuttu færi framhjá Tim Howard í markinu. Charles N´Zogbia fékk svo gullið tækifæri til að tryggja Newcastle öll stigin eftir góðan undirbúning Shola Ameobi (já ótrúlegt en satt) en Leighton Baines bjargaði á línu.
Það var allt annað að sjá til leikmanna Newcastle í þessum leik þó sérstaklega í seinni hálfleik miðað við síðustu leiki liðsins. Joe Kinnear var upp í stúku en missti af báðum mörkum Newcastle. Hann var á leið til búningsherbergisins þegar Taylor skoraði fyrra markið og var á leið upp í stúku þegar Duff skoraði seinna markið. Hann hefði kannski átt að vera á hlaupum allan leikinn ;)
Lið Newcastle:
Given, Taylor, Coloccini, Cacapa, Jose Enrique (Bassong 39), Geremi (Ameobi 75), Butt, Guthrie, N'Zogbia, Owen, Duff. Varamenn,Harper, Xisco, Edgar, Doninger, Donaldson.
Gul spjöld: N´Zogbia, Butt, Geremi.
Skot á mark: Eve 13(5) - Nufc 11(9)
Hornspyrnur: Eve 3 - Nufc 5
Áhorfendur: 33,805
Maður leiksins: Steven Taylor (Skoraði mark og lagði upp annað. Flottur leikur hjá Taylor.
(FB)
23.Sept

Félagsgjaldið
Ekki hefur gengið vel að fá félagsmenn til að greiða ársgjaldið í klúbbinn hingað til. Það hafa innan við 10 manns greitt félagsgjaldið sem er alveg ömurlega lélegt af um 300 manna hópi. Ég setti inn grein hér þann 28 ágúst (hana má lesa hér)og hvatti menn til að greiða gjaldið sem eru aðeins 2500 krónur sem er nú ekki mikið (tvær bjórkippur) en það skilaði ekki tilætluðum árangri. Það er algjört lykilatriði að fá menn til að greiða gjaldið því annars deyr þessi síða út og ég trúi því ekki að Newcastle stuðningsmenn á Íslandi vilji það. Það er EKKI sjálfsagður hlutur að þessi síða sé í gangi fyrir ekki neitt. Ég legg alveg geysilega mikinn tíma og vinnu í að halda henni gangandi og nú hvet ég Newcastle stuðningsmenn til að greiða gjaldið svo ég þurfi ekki að vera væla svona í ykkur. Eins og þið vitið að þá er alltaf eitthvað að gerast í kringum þetta lið okkar og það er mjög gott að geta lesið fréttir um liðið sitt á íslensku frekar en á ensku.
Allar upplýsingar um bankanúmer ofl. má sá hér til hliðar fyrir neðan Sám frænda.
(FB)
Eldri fréttir
|